18.9.2009
Athugasemd við skilaboðum, sem kennd eru við "Jóa"
Ég stend að sjálfsögðu ekki í skoðana- eða bréfaskiptum við fólk, sem af einhverjum ástæðum vill ekki láta nafns síns getið. Ýmsar athugasemdir og ábendingar í tilgreindum pistli verðrskulda hins vegar svar og munu fá svör, ef höfundur mannar sig upp í koma fram í dagsljósið.
Að öðru leyti vísa ég til fyrri riltsmíða minna um Icesave-málið hér á þessari heimasíðu, þar sem sú fullyrðing er rækilega rökstudd, að Icesave-reikningurinn er því sem næst allur á ábyrgð Sjálfstæðiflokksins og Sjálfstæðismanna. Við það stend ég.
Jón Baldvin Hannibalsson

Ummæli við grein
19.9.2009 18:24:37
Ingi Hvar nálgast ég skrif "Jóa"?
22.9.2009 10:53:22
Erlingur Þ Þetta er rétt mat að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn, helmingaskiptaflokkarnir bera ríkustu ábyrgðina. Einnig voru ýmsir innan Samfylkingar ábyrgir, vegna skorts á eftirlitsaðgerðum.
Ljóst er að ekki virðast þeir sem ríkustu ábyrgðina bera vilja gangast við þeirri ábyrgð sem þeir báru. Lítilmannlegt er að kenna öðrum um, samanber gömlu söguna um flísina og bjálkann.
Skipulagðar pólitískar ráðningar í ýmsar valdastöður ss. Ríkislögreglustjóra og Ríkissaksóknara, með þeim tilgangi að ráðast á óþæga aðila er með eindæmum.
Í tíð Franco tók vel á 3 áratug að hreinsa út úr embættiskerfinu, jáfólk sem stóð í vegi fyrir umbótum. Ástæðan hér heima er sú að stjórnvöld yfirtóku þrígreiningu valdsins, og auk þess verkalýðsfélög og fjölmiðla, en þeim þáttum var síðar skiljanlega bætt við. Þegar allir 5 þættirnir er auðvitað ekkert í viðkomandi landi sem bendir til Lýðræðis. Það er síðan með ólíkindum að lykilstjórnandinn bak við tjöldin Kjartan Gunnarson, skuli ennþá sitja í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Einnig er ljóst að þessari klíku er ekkert að vanbúnaði að ráðast á aðila innan Sjálfstæðisflokksins, sbr Villa Vill, til að koma að sínu fólki.
Ef flokkurinn ætlar að láta taka sig alvarlega, þarf að hreinsa út, en flestir þingmenn flokksins, og stjórnendur eru beint eða óbeint tengdir þessari spillingu. Ekkert fararsnið virðist á liðinu. Farið er í gamla gírinn að kenna öðrum um.
Þegar fjöldi slíkra mála safnast upp td. Olíusamráðið, þar sem máli er komið út af borðinu vegna tæknilegra ástæðna. Þeim mun fleiri málum sem á að koma fyrir kattarnef, með slíku siðleysi. Þeim mun meira er kastað rýrð á réttarkerfið. Fólk sér þetta, hins vegar á Ríkisstjórnin í miklum erfiðleikum með að vinna sig út úr þessum tröllvaxna vanda. Það er hins vegar hægt að gera með samstiltu átaki, ekki með því sem stjórnendur Sjálfstæðisflokksins viðhafa: það er með blaðri.
Skrifa ummæli