Greinasafn

2010
 »september

 »ágúst
 »júlí
 »júní
 »maí
 »apríl
 »mars
 »febrúar
 »janúar
2009
 »desember
 »nóvember
 »október
 »september
 »ágúst
 »júlí
 »júní
 »maí
 »apríl
 »mars
 »febrúar
 »janúar
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002

Articles in English

11.3.2010
SOLIDARITY OF SMALL NATIONS

Read more

7.11.2009
ICELAND AND THE CURRENT ECONOMIC CRISIS. POLITICAL COMPLICATIONS AND THE WAY FORWARD

Read more

14.8.2009
ICELAND AND THE EUROPEAN UNION

Read more

8.8.2009
POLITICAL FIRST-AID? Iceland and EU

Read more

20.7.2009
ICELAND: FROM CRISIS TO RECOVERY

Read more

All articles in English

Greinar 2007

13.9.2007
AL GORE GEGN AMRÍSKA HEIMSVELDINU
Al Gore: The Assault on Reason
The Penguin Press, N.Y., 2007, 308 bls..


Ef Al Gore, þáverandi varaforseti og frambjóðandi í forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2000, hefði unnið kosningarnar, eins og öll rök stóðu til, hefði hann ekki þurft að skrifa þessa bók. Al Gore hafði verið einn áhrifamesti varaforseti í sögu þess vandræðalega embættis, (a.m.k. fram að tíð Cheneys, núverandi varaforseta, sem flestir álíta meiri þungavigtarmann en meintan húsbónda í Hvíta húsinu). Bill Clinton naut almennra vinsælda sem forseti og hefði auðveldlega fengið umboð kjósenda þriðja kjörtímabilið í röð, væri það leyfilegt samkvæmt stjórnarskránni. Clinton og Gore höfðu skilað góðu búi. Það var uppgangur í efnahagslífinu, sem var drifinn áfram af tæknibyltingu, sem jók framleiðni og samkeppnishæfni bandarískra fyrirtækja og dró um leið úr atvinnuleysi. Viðvarandi fjárlagahalla hafði verið snúið upp í fimm trilljón dala tekjujöfnuð. Það blés því byrlega fyrir Al Gore.

Lesa meira 

3.8.2007
KOLLA OG KÚLTÚRINN FIMMTÍU ÁRA
Auðvitað átti Mál og menning að heiðra Kollu og kúltúrinn í tilefni af þessu stórafmæli með því að gefa út bók með úrvali af viðtölum Kollu við mannfólkið. Þá hefðum við séð það svart á hvítu, sem mörgum okkar hefur lengi boðið í grun, að Kolla væri besti viðtalshöfundur samtímans. A.m.k. eftir að Matti Jó hætti að birta sexopnuviðtöl við Rostropovits um kalda stríðið í kúltúrnum undir fyrirsögninni: Í fáum orðum sagt.

Lesa meira 

28.5.2007
Á ÉG AÐ GÆTA BRÓÐUR MÍNS?
Þorgrímur Gestsson: Öryggissjóður verkalýðsins – Baráttan fyrir atvinnuleysistryggingum á Íslandi. 316 bls. Útgefandi: Atvinnuleysistryggingasjóður.

Þótt þessi bók sé harla ólíkleg til að ná inn á metsölulista bókaútgefenda, er hún samt áhugaverð um margt og kannski einmitt þess vegna. Í fyrsta lagi er hún áhugaverð vegna þess að hún lýsir hugmyndafræðilegum ágreiningi milli ráðandi stjórnmálaafla um uppbyggingu velferðarríkis á Íslandi. Hún skýrir líka, hvers vegna jafnaðarmönnum á Íslandi tókst ekki að fá lög um atvinnuleysistryggingar virk í framkvæmd fyrr en árið 1956, hálfri öld síðar en í Danmörku og Noregi og löngu eftir að atvinnuleysistryggingar voru lögfestar í Finnlandi (1917) og í Svíþjóð (1938).

Lesa meira 

7.5.2007
ÞAÐ EINA SEM ÞEIR SKILJA
Það er sagt, að allt vald spilli. Og að allsherjarvald spilli algerlega. Valdhafar sem venjast því, að þeir séu fæddir til valda, og að fátt eða ekkert geti hróflað við völdum þeirra, ganga yfirleitt á lagið. Það býður spillingunni heim.

Lesa meira 

29.4.2007
TIL UMHUGSUNAR FYRIR KJÓSENDUR, ÁÐUR EN GENGIÐ ER AÐ KJÖRBORÐINU:TÍU ÁSTÆÐUR TIL AÐ SKIPTA UM VALDHAFA
Kosningar snúast um að velja fulltrúa til að fara með völd. Valdið er vandmeðfarið. Það er sagt, að allt vald spilli. Og að allsherjarvald spilli algerlega. Valdhafar sem venjast því, að þeir séu fæddir til valda og að fátt eða ekkert geti hróflað við völdum þeirra, ganga yfirleitt á lagið. Það býður spillingunni heim.

Lesa meira 

23.4.2007
ER SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM TREYSTANDI FYRiR HAGSTJÓRNINNI
Í Silfri Egils s.l. sunnudag 22. apríl lýsti Agnes Bragadóttir, stjörnublaðamaður Morgunblaðsins,
því yfir, að hana hryllti við tilhugsuninni um vinstristjórn eftir kosningarnar 12. maí. Að baki þessum ummælum
Agnesar býr trúlega hin lífseiga goðsögn um, að Sjálfstæðisflokknum sé einum treystandi fyrir hagstjórninni. En er það svo? Hver er dómur staðreyndanna?

Lesa meira 

4.4.2007
HIÐ OPNA ÞJÓÐFÉLAG OG ÓVINIR ÞESS
Eiríkur Bergmann Einarsson: OPIÐ LAND – Ísland í samfélagi þjóðanna. 138 bls. Skrudda 2007.

Eins og heiti bókarinnar bendir til, leitast höfundur við að skýra og skilgreina stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna á hraðfara breytingaskeiði, sem kennt er við hnattvæðingu. Sjálfur tekur hann afdráttarlausa afstöðu út frá grundvallarsjónarmiðum: Hann vill opna landið upp á gátt og lítur á hnattvæðinguna fremur sem tækifæri en ógnun.

Lesa meira 

31.3.2007
SJÁLFSHJÁLPARBÓK HANDA (HUGSANDI) KJÓSENDUM
Hörður Bergmann: Að vera eða sýnast: gagnrýnin hugsun á tímum sjónarspilsins. 154 bls. Skrudda 2007.

Málflutningsrit eða rökræðubókmenntir eru fásénar í íslenskri bókaflóru. Gagnrýnin hugsun - það að lýsa efasemdum um viðtekna venjuhugsun, virðist varla eiga heima í íslenskri umræðuhefð. Hefðin sú er mestan part ad hominem, þ.e.a.s. við hneigjumst til að hjóla í höfundinn sjálfan fremur en hugmyndir hans. En um hvað snúast umvandanir höfundar þessarar bókar?

Lesa meira 

24.3.2007
FRAMTÍÐARLANDIÐ
Þegar bensínlítrinn við dæluna kostar svipað og sígarettupakkinn í sjoppunni, munu menn finna það á pyngju sinni, að öld olíunnar er liðin.

Lesa meira 

1.3.2007
VIÐTAL JAKOBÍNU DAVÍÐSDÓTTUR VIÐ JÓN BALDVIN FYRIR TÍMARITIÐ MANNLÍF
Það hefur ekki farið fram hjá þeim sem á annað borð fylgjast eitthvað með stjórnmálaumræðunni hér landi að hvarvetna er rætt um Evrópumál. Þar sem þrír eða fleiri koma saman ber Evrópusambandið á góma og sýnist sitt hverjum.

Lesa meira 

21.2.2007
HVER Á ÍSLAND?
Þann 31. mars n.k. mun athygli allra landsmanna beinast að ykkur Hafnfirðingum. Þann dag svarið þið því, hvort ykkur hugnast tillögur bæjarstjórnar um deiliskipulag vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Það er mál, sem varðar framtíð ykkar bæjarfélags, kannski næstu hálfa öldina eða svo. Það er ykkar ákvörðun og ekki annarra.

Lesa meira 

14.2.2007
HVAÐ ER SVONA RÓTTÆKT VIÐ AÐ VERA VINSTRI-GRÆN(N)?
VIÐ ÖLL: Íslenskt velferðarsamfélag á tímamótum eftir Steingrím J. Sigfússon, alþm. 224 bls., Salka 2006.

“Það er bjargföst sannfæring mín, að samábyrgt velferðarsamfélag í anda þess besta, sem við þekkjum að norrænni fyrirmynd, sé þróaðasta samfélagsskipan, sem enn hefur litið dagsins ljós á jörðinni... Hvergi í heiminum er betra að búa, hvergi er betra að ala upp börn, hvergi er betra að lifa lífinu og hvergi er betra að verða gamall heldur en í norrænu velferðarsamfélögunum.”
(Steingrímur J. Sigfússon: Við öll, bls. 200)<(i>

Ef maður vissi ekki, að ofangreind tilvitnun er úr stefnuskrárriti formanns Vinstri-grænna, gæti maður haldið, að formaður Alþýðuflokksins forðum daga væri að tala. Eða einhver innmúraður og innvígður eðalkrati af Norðurlöndum, sem hljómaði svona í íslenskri þýðingu. Alla vega er þetta sósíaldemókratískt manifesto – lífsskoðun jafnaðarmanns - í hnotskurn. Samt vill Steingrímur alls ekki gangast við því að vera krati. Hann vegsamar þá samfélagsgerð, sem er skilgetið afkvæmi sósíaldemókratískrar hugmyndafræði og hundrað ára baráttu jafnaðarmannaflokka og verkalýðshreyfinga á Norðurlöndum. En samt vill hann ekki vera við þá kenndur.

Lesa meira 

14.2.2007
ÁRSHÁTÍÐ FRAMTÍÐARINNAR, 14. FEB. 2007: FÍLABEINSTURN EÐA FRAMLEGÐARFORRIT?
Ég var mættur í fyrsta tíma í sögu iðnbyltingarinnar í hagfræðideild Edinborgarháskóla ásamt með öðrum stúdentum víðs vegar að úr heiminum. Kennarinn var grallaralegur sláni frá Írlandi, margvís og meinhæðinn. Hann spurði þá sem þarna voru saman komnir, hvort þeir hefðu lært einhverja sögu áður.

Lesa meira 

4.2.2007
HROKI OG HEIGULSHÁTTUR
Það mun vera leitun á byggðu bóli á Íslandi, þar sem mannanna verk eru jáfnólundarlega upp á kant við sköpunarverk náttúrunnar og Mosfellsbær. Það þarf ekki að príla hátt í hlíðar Helgafells til að skynja búsæld Reykja- og Mosfellsdals. Þar hefur verið víða gott undir bú. Varmá og Leirvogsá liðast um blómlegt undirlendið. Útsýnið er fagurt og fjallasýn háleit. Við erum hérna á fornum söguslóðum.

Lesa meira 

9.1.2007
UM TJÁNINGARFRELSI Í RÉTTARRÍKI"SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER........"
Þann 18. október 2006 krafðist Jón Magnússon, hrl. þess, f.h. niðja Sigurjóns Sigurðssonar, f.v. lögreglustjóra, að ákæruvaldið höfðaði opinbert mál gegn Jóni Baldvini fyrir að hafa í sjónvarpsviðtali kallað Sigurjón Sigurðsson “lögreglustjórann alræmda”. Viðtalið var í tengslum við umfjöllun um leynilegar hleranir á símum ráðamanna á öldinni sem leið.
Með bréfi þann 1. mars s.l. vísaði ríkissaksóknari umræddri kröfu frá og vitnaði um rökstuðning til málsvarnarskjals Jón Baldvins. Þar sem málið varðar grundvallarsjónarmið um tjáningarfrelsi í réttarríki, á málsvarnarskjalið erindi við þá, sem láta sig tjáningarfrelsi varða.

Lesa meira