Greinasafn

2010
 »september

 »ágúst
 »júlí
 »júní
 »maí
 »apríl
 »mars
 »febrúar
 »janúar
2009
 »desember
 »nóvember
 »október
 »september
 »ágúst
 »júlí
 »júní
 »maí
 »apríl
 »mars
 »febrúar
 »janúar
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002

Articles in English

11.3.2010
SOLIDARITY OF SMALL NATIONS

Read more

7.11.2009
ICELAND AND THE CURRENT ECONOMIC CRISIS. POLITICAL COMPLICATIONS AND THE WAY FORWARD

Read more

14.8.2009
ICELAND AND THE EUROPEAN UNION

Read more

8.8.2009
POLITICAL FIRST-AID? Iceland and EU

Read more

20.7.2009
ICELAND: FROM CRISIS TO RECOVERY

Read more

All articles in English

Greinar apríl 2009

30.4.2009
KREPPAN OG EVRAN
Erum við ekki flest sammála um það, að við náum okkur seint á strik aftur, nema með því að fá afnot af gjaldmiðli sem dugar í viðskiptum, innan lands og utan? Er ekki lexían, sem við þurfum að læra af hruninu sú, að við komumst ekki af án þess að hafa starfhæft bankakerfi, stöðugt gengi, traustan gjaldmiðil og lága vexti? Er það ekki þetta sem rekur á eftir okkur að sækja um aðild að Evrópusambandinu og að taka upp evru? Við höfum fengið okkur fullsödd af því að vera leiksoppar í fjárhættuspili.

Lesa meira 

24.4.2009
ÞEIM MUN VERRA - ÞEIM MUN BETRA
Margir hafa tilhneigingu til að trúa frekar málflutningi manna eins og Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra – af því að hann er ekki í framboði – fremur en síbylju pólitískra farandsölumanna, sem hafa hagsmuna að gæta í að fegra veruleikann (ef þú ert í stjórn), eða búa til ýkta hryllingsmynd (ef þú ert í stjórnarandstöðu).

Lesa meira 

23.4.2009
ENGIN FRAMTÍÐARSÝN - ENGIN PÓLITÍK
Veruleikafirrt kosningabarátta:
Tókuð þið eftir smáfrétt í hádeginu í dag? Ölgerðin hefur að undanförnu verið að reyna að ná samningum um markaðssetningu á íslenskum bjór á breska markaðnum. Sumir mundu halda að það væri, eins og sagt var í enskukennslubókunum í gamla daga, “to carry coal to Newcastle” – bjór til Bretlands!

Lesa meira 

21.4.2009
DELORS´S BABY
The EEA-agreement is a product of the Cold War era. Five of us defined themselves as neutral or outside alliances. Two of us were NATO members, but suspicious of the European Union for different reasons.

Lesa meira 

21.4.2009
DELORS´S BABY
Það eru 15 ár liðin frá því að samningurinn um evrópska efnahagssvæðið (EES) gekk í gildi. 1. jan. 1994. Af því tilefni mun framkvæmdastjóri EFTA, Kaare Bryn, beita sér fyrir útgáfu afmælisrits á vegum aðalstöðvanna í Genf.

Þetta verður lítið og sætt fjölskylduafmæli. Ætli myndaalbúmið verði ekki skoðað, og svo verða rifjaðar upp skemmtilegar sögur frá fyrri tíð, þegar EFTA var og hét - smátt en fagurt - en engu að síður atkvæðamikill klúbbur og skemmtilegur.

Þegar ég rifja upp gamla daga verður mér fyrst hugsað til míns gamla og góða vinar, Hannesar Hafstein, aðalsamningamanns. Hann átti engan sinn líka. Við vorum öll á "first name basis": Pertti, hinn finnski, Anita og Ulf frá Svíþjóð, Wolfgang og Alois frá Austurríki, Jean Pascal og Blanchard frá Sviss og Thorvald og Eldrid frá Noregi - að ógleymdum prinsinum frá Liechtenstein.

Hér að neðan birtist afmæliskveðjan frá undirrituðum undir fyrirsögninni: BARNIÐ HANS DELORS. Pistillinn mun birtat í afmælisritinu seinna í vor.

Lesa meira 

19.4.2009
Marshall Brement, sendiherra á Íslandi - minning
Marshall Brement, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi (1981-85), var enginn venjulegur kerfiskall. Í samanburði við þá kollega hans, bandaríska, sem hafa til siðs að kaupa sér sendiherraembætti í fjarlægum löndum fyrir framlög í kosningasjóði, vitandi varla hvar þeir eru staddir á landakortinu, var Marshall hinn útvaldi atvinnumaður.

Lesa meira 

18.4.2009
NATO 60 ÁRA: HEIMAVARNARLIÐ EÐA HEIMSLÖGREGLA
Kannski er sálarháski Íslendinga í upphafi nýrrar aldar sá, að þjóðin hefur enn ekki fundið sér samastað í samfélagi þjóðanna. Við erum ekki lengur á amerísku áhrifasvæði, en hræðsluáróðurinn gegn Evrópusambandinu birgir okkur sýn og leiðir á villigötur. Við erum ein og yfirgefin. Hnípin (skuldug) þjóð í vanda.

Samt er engin umræða um utanríkismál fyrir kosningar. Ég segi utanríkismál - því að umræðan um Evrópusambandið, öfugsnúin og forskrúfuð sem hún er - er auðvitað um innanlandsmál. Hún snýst um það, hvernig fólk og fyrirtæki megi njóta starfsumhverfis eins og tíðkast í grannríkjum okkar. Hún snýst um normaliseringu. Hún snýst um stöðugleika í fjármálum, í verðlagi, vöxtum á lánum og greiðslubyrði skulda, svo að fólk og fyrirtæki geti gert framtíðaráætlanir á sæmilega traustum forsendum. Hún snýst um að skapa 20 þúsund störf fyrir menntað fólk. Hún snýst m.ö.o. um innanríkismál.

Utanríkismál snúast hins vegar um það, hvernig tryggja megi framtíðaröryggi þjóðarinnar fyrir ytri áföllum og erlendri ásælni. Þjóð sem er sokkin í skuldir og hefur áhyggjur af afkomu sinni frá degi til dags, má ekki vera að því að hugsa um framtíðina.

Það kemur því kannski ekki á óvart að það voru varla fleiri en 30 manns, sem komu á Varðbergsfund á Hótel Borg í gærkvöldi (föstudaginn 17.04.) eftir fréttir og Kastljós, til að hlusta á okkur Höllu Gunnarsdóttur rökræða um framtíð NATO í tilefni af 60 ára afmæli hernaðarbandalagsins fyrr í mánuðinum. Við áttum að svara spurningum eins og þessum: Hefur NATO einhverju hlutverki að gegna eftir fall Sovétríkjanna og lok kalda stríðsins? Hvað er bandalag sem átti að verja Evrópu fyrir útþenslustefnu Sovétríkjanna að gera í Afganistan? Er NATO að verða að einhvers konar heimslögreglu?
Í þjónustu hverra, með leyfi? Fara hagsmunir Evrópuríkja ævinlega saman við hagsmuni ameríska heimsveldisins? Er ekki kominn tími til að Evrópa taki sín mál í eigin hendur? Og hvað með Ísland? Hvar á það heima í nýrri heimsmynd?

Það vakti athygli að meirihluti fundargesta var að eigin sögn í klappliði Höllu Gunnarsdóttur frá Vinstri grænum. Öðru vísi mér áður brá! Hér fer á eftir ræðan sem ég flutti á þessum fundi.

Lesa meira 

18.4.2009
Efnahagslegt fjöldasjálfsmorð
Vegna ummæla Ragnars Arnalds í þætti Hjálmars Sveinssonar, - Krossgötur - sem fluttur var í ríkisútvarpinu eftir hádegi í dag, og ég tók þátt í, langar mig til að endurbirta hluta úr grein sem ég skrifaði fyrir meira en mánuði um ameríska frjálshyggjuhagfræðinginn, Kenneth Rogoff, sem Ragnar Heimssýnarformaður vitnaði í sér til halds og trausts.

Lesa meira 

14.4.2009
AÐ GANGA HREINT TIL VERKS
Þegar það kom á daginn, við réttarhöld sem kennd voru við “hreinar hendur” að Kristilegi demókrataflokkurinn á Ítalíu var maðksmoginn af mafíunni, gengu ítalskir kjósendur hreint til verks í næstu kosningum og þurrkuðu flokkinn út af þingi.

Lesa meira 

13.4.2009
Í LEIT AÐ LAUSNUM - svar til Kristjáns Torfa 2
“Hvorki ég né þú né helstu sérfræðingar heimsins vita hvað er framundan. Gagnvart slíkri óvissu er heimskulegt að vera með stórkarlalegar yfirlýsingar um hvernig hlutirnir muni þróast.”

Kristján Torfi 2.

Lesa meira 

12.4.2009
Þjóðrækni eða remba?
Það gladdi okkur Bryndísi að heyra að menningarpáfar til hægri og vinstri, fyrrverandi ritstjórar Morgunblaðs og Þjóðviljans, þeir Matthías Jóhannessen og Árni Bergmann, ætluðu að miðla okkur af hugsun sinni um sálarheill þjóðarinnar upp úr hruni hjá hinum frábæra útvarpsmanni, Hjálmari Sveinssyni eftir hádegið í dag (laug. 11.04.) Við höfðum reynt að leggja hlustir við boðskap þeirra þjóðkirkjumanna í þjóðarfjölmiðlinum um páskana en ekki getað staðnæmst við neitt sem máli skiptir.

Lesa meira 

11.4.2009
(MEÐAL)VEGURINN TIL GLÖTUNAR

Ég les það í Pressunni að Tíminn sé genginn í endurnýjun lífdaganna – uppvakinn sem kosningablað framsóknarmanna. Hitt sætir jafnvel enn meiri tíðindum að hinn aldni jöfur þeirra framsóknarmanna, Steingrímur Hermannsson, lætur þar til sín heyra eftir að hafa haft hljótt um sig um hríð.

Lesa meira 

11.4.2009
JBH svarar HLH
Sæll Heiðar Lind. Þakka þér fyrir að vekja athygli mína á svargrein þinni. Svo sem sagnfræðinema sæmir er grein þín málefnaleg og gott innlegg í umræðuna. Þótt mér þyki hinn nýi formaður ykkar bera af sér góðan þokka er ekki þar með sagt að ég sé sannfærður um að hér eftir sé fortíð Framsóknar í ösku og framtíðin öll í heiðríjku hugans og heiðarleikans.

Lesa meira 

10.4.2009
Torfalög kapítalismans: svar til Kristjáns Torfa 09.04.
Til Kristjáns Torfa:
“Er þetta einhvers konar nýfjármagnskratismi sem þú talar fyrir undir kjörorðunum “almenningur á að borga skuldir óreiðumanna””? - Þetta er skætingur sem ekki er svaraverður.
Athugasemdir þínar að öðru leyti verðskulda þessi svör:
1. Ég hef að sjálfsögðu hvergi haldið því fram að ríkið (skattgreiðendur) eigi að greiða skuldir einkaaðila. Einmitt þess vegna gagnrýndi ég Hudson fyrir að gera ekki skýran greinarmun á ríkisskuldum og skuldum með ríkisábyrgðum (“sovereign debt”) og skuldum einkaaðila.

Lesa meira 

9.4.2009
Evrópusambandið er "post-colonial": Svar til Viggós Jörgenssonar, 9. 4.
Heill og sæll, Viggó.
Ég lærði mína hagfræði í gamla daga við breskan (skoskan) háskóla. Um sumt - t.d. hina angló/amerísku heimsvaldastefnu - lærði ég meira af vinum mínum í Labour and Socialist Club,...

Lesa meira 

9.4.2009
Hugleiðing í tilefni af Hudson: Viðbrögð við heimskreppu
Framsóknarmenn hafa fengið til landsins nýjan hagfræðigúrú frá Missouri sér til halds og trausts. Sá heitir Michael Hudson og fundaði með Framsókn og forvitnum gestum á Grand Hótel s.l. mánudagskvöld.

Lesa meira 

8.4.2009
NÓBELSVERÐLAUNA VIRÐI?
Á fundi Framsóknarfélaganna í Reykjavík á Grand Hótel s.l. mánudagskvöld sagði Gunnar Tómasson, hagfræðingur, að verðtryggingin væri mestu hagstjórnarmistök Íslandssögunnar. Ef veitt væru Nóbelsverðlaun fyrir vitlausar hugmyndir í hagfræði, (sem gerist alltaf öðru hverju) ætti höfundur hennar Nóbelsverðlaunin skilin.

Lesa meira 

5.4.2009
Ísland: Saklaust fórnarlamb eða sjálfskaparvíti
Það voru góðir gestir í Silfri Egils 5. april. Michael Hudson og John Perkins lýstu af mælsku og eldmóði hættum frumskógarins í alþjóðlegum kapítalisma sem nú hafa lagt litla Ísland í einelti. Áður hafði Jón Helgi Egilsson sýnt fram á það með trúverðugum rökum að alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er að gefa Íslandi inn lyf sem passar ekki við sjúkdóminn. Ketill Sigurjónsson lögfræðingur varaði við glannalegri draumsýn um að þetta “muni allt saman reddast” þegar við byrjum að dæla olíu upp af Drekasvæðinu. Þeir Hudson og Perkins eru báðir svo róttækir í sinni sýn á heiminn, að hvorugum þeirra er boðið í mainstream fjölmiðla í Ameríku. “Ameríska lýðræðið” þolir ekki svona menn. Þess vegna eru þeir jaðrinum.

Lesa meira 

5.4.2009
Meira um sæta stráka. (Svar til Heiðu, sjá póst neðan við fyrri grein)

Það er ævinlega þörf áminning að benda mönnum á að líta í eigin barm. Já, ég var einu sinni ungur og óreyndur. Ég man enn hvað ég var innst inni upp með mér þegar ég spilaði í fyrsta sinn í "landsliðinu". Þetta var árið 1969 og ég var þrítugur. Það var efnt til kappræðna um inngönguna í EFTA og við vorum þrír framsögumenn: Gylfi Þ Gíslason, viðskiptaráðherra og frumkvöðull málsins, Lúðvík Jósepsson, þrautreyndur pólitískur slagsmálahundur, og svo unglingurinn sjálfur ég. Ég fann það á fundinum að ég var ekki orðinn jafnoki þessara þungavigtarmanna, en hélt þó mínum hlut, að eigin mati, án þess að verða mér til skammar.

Lesa meira 

4.4.2009
Pólitík og pottormabylting: Frumsýning í sjónvarpssal
Hvernig á að byggja upp úr rústunum? Hvernig á að koma hjólum atvinnulífsins í swing? Hvernig verða til störf? Hvernig á að bjarga þeim heimilum sem sjá ekki út úr skuldum og eru að missa húsnæðið? Hverjir eiga í þessu ástandi að borga skattana sem þarf að innheimta til að greiða niður skuldirnar? Ráðum við við þetta ein? Eða þurfum við að semja við grannþjóðir okkar og lánardrottna um tímabundna aðstoð meðan við erum að klóra okkur upp úr skuldafeninu? Er ESB partur af lausninni? Hvað getur komið í staðinn fyrir krónuna, sem er farin að sökkva aftur, þótt hún sé bundin við bryggju?

Lesa meira