Greinar júní 2009
30.6.2009
ICESAVE Í IÐNÓ - HREINSUNARDEILD VG Það hefðu ekki margir íslenskir stjórnmálamenn getað farið í fötin hans Steingríms J. á fundinum um Icesave í Iðnó í gærkvöldi. Eftir átján ára þrautagöngu í stjórnarandstöðu verður það seint sagt um formann Vinstri-grænna, að hann beri ábyrgð á Icesave-reikningnum. Það gera hins vegar fortakslaust fv. formenn hinna flokkanna þriggja, Sjálfstæðis-, Framsóknarflokks og Samfylkingar. Fundarmenn virtust hins vegar flestir hverjir standa í þeirri trú, að við Steingrím einan væri að sakast.
Lesa meira
29.6.2009
AF ILLU PRETTA TÁLI - Svar til Steinþórs Jónssonar Heill og sæll, Steinþór.
Ég þykist þess ekki umkominn að kveða af eða á um réttmæti þessa lista yfir meinta sakborninga, sem þú birtir. Hitt þykist ég vita, að ef íslenskt réttarfar væri starfandi á sömu forsendum og hið bandaríska, hefði öllum þessum mönnum verið birtar ákærur með rökstuddum grun um lögbrot eða meiriháttar afglöp í starfi.
Lesa meira
29.6.2009
HVER Á HVAÐ OG HVAÐ ER HVURS? Svar til Þorbjörns Heill og sæll, Þorbjörn
Ég er sammála þér um það, að kerfis- og gjaldmiðilshrunið á Íslandi var fyrirsjáanlegt og fyrirbyggjanlegt, ef tekið hefði verið í taumana í tæka tíð. Hvaða úrræði voru tiltæk?
Lesa meira
27.6.2009
ÖFUGMÆLI Sú kenning nefndar um hæfi umsækjenda um starf seðlabankastjóra, að þeim einum sé treystandi til verksins, sem geta a.m.k. sannað (með)höfundarrétt á peningamálastefnu, sem hefur kollvarpað fjármálalegum stöðugleika heils hagkerfis, eða starfað möglunarlaust í mörg ár að því að keyra seðlabanka í þrot – hlýtur að teljast í besta falli nýstárleg og í þeim skilningi sérkennilegt framlag til fræðanna.
Lesa meira
23.6.2009
ICESAVE: STAÐREYNDIRNAR TALA SÍNU MÁLI Svar til Einars Jóhannessonar.
Heill og sæll, Einar.
Mér þykir leiðinlegt að þurfa að segja það, en þessi samsetningur þinn er samsafn af staðleysustöfum og annað ekki. (Jú - að vísu, illgirni og fjölmæli í bland).
Lesa meira
21.6.2009
BANANALÝÐVELDI? Það er ástæða til að vekja athygli á lítilli frétt hjá RÚV í hádeginu í gær, laugardag. Fréttin er svohljóðandi:
“Bandaríski milljarðamæringurinn, Allen Stanford, situr nú á bak við lás og slá, en í gær var hann ákærður fyrir stórfelld fjársvik og peningaþvætti. Segja saksóknarar, að alþjóðlegt fjármálaveldi Stanfords hafi í rauninni ekki verið annað en stórfellt pýramídasvindl.
Lesa meira
19.6.2009
Á FLÓTTA Englendingar gera greinarmun á því, sem heitir “crime of commission vs. crime of omission.” Annars vegar er um að ræða glæp sem framinn er af ásetningi, hins vegar um það sem kalla mætti vanræksluglöp.
Lesa meira
18.6.2009
Svar til Jóns Þórs Helgasonar Heill og sæll, Jón Þór.
Að því er varðar þá kenningu að regluverk ESB sé einhver orsakavaldur að Icesave-reikningnum, þá bendi ég þér á hjálagða grein, þar sem þessi kenning er einfaldlega hrakin.
Lesa meira
15.6.2009
ÓFYRIRGEFANLEGT? Tilraun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins og fv. menntamálaráðherra, til að varpa sök af Icesave-reikningnum af forystu Sjálfstæðisflokksins yfir á aðra (sjá: “Á að semja um Icesave?”, Mbl., 13.06.) kallar að lágmarki á eftirfarandi leiðréttingar:
Lesa meira
11.6.2009
AF SKÚRKUM OG FÓRNARLÖMBUM ICESAVE-MÁLSINS VEI YÐUR, ÞÉR HRÆSNARAR.Hvað svo sem mönnum finnst um samningsniðurstöðuna í Icesave-málinu, þá er eitt víst: Stjórnarandstöðuflokkarnir, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn, ættu síst af öllum að þykjast þess umkomnir að gagnrýna núverandi ríkisstjórn, hvað þá heldur núv. fjármálaráðherra, Steingrím J. Sigfússon, fyrir að hafa haldið illa á málum eða fyrir að hafa lagt drápsklyfjar á þjóðina að ósekju.
Lesa meira