Greinasafn

2010
 »september

 »ágúst
 »júlí
 »júní
 »maí
 »apríl
 »mars
 »febrúar
 »janúar
2009
 »desember
 »nóvember
 »október
 »september
 »ágúst
 »júlí
 »júní
 »maí
 »apríl
 »mars
 »febrúar
 »janúar
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002

Articles in English

11.3.2010
SOLIDARITY OF SMALL NATIONS

Read more

7.11.2009
ICELAND AND THE CURRENT ECONOMIC CRISIS. POLITICAL COMPLICATIONS AND THE WAY FORWARD

Read more

14.8.2009
ICELAND AND THE EUROPEAN UNION

Read more

8.8.2009
POLITICAL FIRST-AID? Iceland and EU

Read more

20.7.2009
ICELAND: FROM CRISIS TO RECOVERY

Read more

All articles in English

Greinar ágúst 2009

31.8.2009
SVARTBÓK KOMMÚNISMANS: SVÖRT SÁLUMESSSA
Inngangsorð: Nú er komin skýringin á því, hvers vegna Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor, hefur látið óvenjulítið fara fyrir sér að undanförnu. Ástæðan er ekki endilega sú, að fjörbrot frjálshyggjunnar hafa skekið íslenskt þjóðfélag til grunna – og reyndar heimsbyggðina alla í þokkabót – og að þetta hafi vakið prófessornum efasemdir um trúverðugleik trúboðsins. Ástæðan er sú, að prófessorinn hefur lokað sig inni við að snúa hinu mikla franska ritsafni: “Svartbók kommúnismans” yfir á íslensku. Þetta er mikið verk, sem verðskuldar vandaða umræðu um ýmis undirstöðuatriði í stjórnmálum samtímans – ekki síst nú, þegar frjálshyggjutilraunin með Ísland hefur brugðist og við stöndum sem þjóð frammi fyrir þeirri óumflýjanlegu spurningu: Hvers konar þjóðfélag viljum við byggja upp á rústum hins hrunda? Fyrir þetta á Hannes Hólmsteinn hrós skilið.

Lesa meira 

26.8.2009
ÁMINNTUR UM SANNSÖGLI...
Kjartan Gunnarsson, fv.vara-formaður bankaráðs Landsbankans fullyrðir í Mbl.grein (14.08.09), að forráðamenn Landsbankans hafi aldrei haldið því fram, “að neins konar ríkisábyrgð fylgdi störfum hans, hvorki í Bretlandi né annars staðar.” Undirsátar Kjartans, bankastjórarnir Halldór Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, halda hinu gagnstæða fram. Í bréfi, sem þeir undirrita í nafni bankans til hollenska seðlabankans og FME í sept. 2008, “sögðust (þeir) hafa vissu fyrir því, að íslenska ríkið myndi ábyrgjast lágmarksinnstæður í íslenskum bönkum.

Lesa meira 

19.8.2009
FORHERÐING?
Opnugrein Kjartans Gunnarssonar, fv. framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins (og þar með eins nánasta samstarfsmanns Davíðs Oddssonar) og varaformanns bankaráðs Landsbankans (og þar með eins nánasta samstarfsmanns Björgólfs Guðmundssonar) í Mbl. 14.08. s.l., gefur tilefni til að biðja lesendur Mbl. að hugleiða eftirfarandi staðreyndir:

Lesa meira 

15.8.2009
UM BRIGSL OG VÍXL : Svar til Sigurðar Líndal
“Allir þeir lögfræðingar, sem ég hef rætt við eru sammála um, að
ábyrgð ríkissjóðs Íslands (á Icesave-reikningnum) nái ekki lengra en
tryggingarsjóður innstæðueigenda getur staðið undir.”
Ármann Kr. Ólafsson, alþm., 30. okt., .2008

“Allir lögfræðingar, sem ég talaði við, töldu, að þetta væri bindandi,
að við yrðum að borga (20.887 evrur)”
Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði, 27. nóv., 2008

Sagt er, að landamerkjadeilur og lagaþras sé eins konar þjóðaríþrótt landans. Ég viðurkenni fúslega, að þetta getur verið skondin íþrótt upp að vissu marki – allavega finnst iðkendunum það oftast nær sjálfum. En ef þrasið snýst upp í hártoganir og útúrsnúninga um aukaatriði, getur gamanið farið að kárna. Þrasið umhverfist þá í merkingarlítið stagl um aukaatriði, sem kemur engum að gagni.


Lesa meira 

14.8.2009
ICELAND AND THE EUROPEAN UNION
In her article: “Iceland – What can be Learnt from the Crash” – published in Le Monde, the Daily Telegraph and Aftenposten in Norway, August 1st, Madame Eva Joly, member of the European Parliament, pleads the case of the Icelandic people, based on the premise that they were innocent victims of events, beyond their control.

Lesa meira 

14.8.2009
ÍSLAND OG EVRÓPUSAMBANDIÐ
Í grein sinni: “Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu,” sem birtist í áhrifamiklum fjölmiðlum í Bretlandi, Frakklandi og Noregi, auk Íslands, 1. ágúst, s.l., byggir Eva Joly, þingmaður á Evrópuþinginu, málflutning sinn á því, að íslenska þjóðin sé fórnarlamb atburða, sem hún fékk engu um ráðið.

Lesa meira 

11.8.2009
Svar til Héðins Björnssonar
Heill og sæll, Héðinn.
Takk fyrir tilskrifið

Lesa meira 

8.8.2009
POLITICAL FIRST-AID? Iceland and EU
Why should the European Union – or individual member states – worry about Iceland in her current distress? A country with a tiny population in the North Atlantic, on the margins, of Europe having fallen victim to an economic crash, which is beyond the nation’s means to recover from, on her own? Are there any interests involved, justifying that the EU should incur effort and expense – although a miniscule amount seen from the vantage point of Brussels – to help Iceland to recover from this major setback?

Lesa meira 

8.8.2009
ÁFALLAHJÁLP?
Hvers vegna ætti Evrópusambandið – eða einstök aðildarríki þess – að hafa af því áhyggjur, þótt Ísland – fámennt eyríki í Norður-Atlantshafi, á jaðri Evrópu - verði fyrir efnahagshruni, sem þjóðinni er ofviða að ráða fram úr á eigin spýtur? Eru einhverjir hagsmunir í húfi, sem réttlæti það, að Evrópusambandið leggi á sig fyrirhöfn og jafnvel kostnað – þótt hreinir smáaurar séu á mælikvarða sambandsins – til að hjálpa Íslendingum til að komast út úr tímabundnum erfiðleikum?

Lesa meira