{"id":114,"date":"2013-06-15T00:00:00","date_gmt":"2013-06-15T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2013\/06\/15\/ferdalog\/"},"modified":"2020-09-23T08:57:25","modified_gmt":"2020-09-23T08:57:25","slug":"ferdalog","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2013\/06\/15\/ferdalog\/","title":{"rendered":"Fer\u00f0al\u00f6g"},"content":{"rendered":"<p>\u00deegar \u00e9g var yngri, vildi \u00e9g helst alltaf vera a\u00f0 fer\u00f0ast, b\u00faa \u00ed fer\u00f0at\u00f6skum, me\u00f0 b\u00f6rnin \u00ed afturs\u00e6tinu og l\u00e1ta hverjum degi n\u00e6gja s\u00edna \u00fej\u00e1ningu. J\u00f3n Baldvin sag\u00f0i oft: Sv\u00edn f\u00f3r a\u00f0 R\u00edn, kom aftur sv\u00edn.<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 n\u00fana, a\u00f0 \u00fea\u00f0 var svol\u00edti\u00f0 til \u00ed \u00feessu hj\u00e1 honum. \u00deessi tilgangslausu fer\u00f0al\u00f6g me\u00f0 stuttri vi\u00f0komu og stressi, skilja kannski eftir einhverjar minningar um mannl\u00edf e\u00f0a landslag, en breyta engu og hafa engin varanleg \u00e1rif.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 eru \u00feessar l\u00f6ngu fer\u00f0ir til framandi \u00fej\u00f3\u00f0a, sem skipta m\u00e1li.  \u00dea\u00f0 er s\u00fa l\u00edfsreynsla,sem gerir \u00far \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 manneskju, sem \u00fe\u00fa ert \u00ed dag, breytir hugsunarh\u00e6tti \u00fe\u00ednum, l\u00edfsvi\u00f0horfum, jafnvel matar\u00e6\u00f0i og kl\u00e6\u00f0abur\u00f0i. \u00c1rin m\u00edn \u00ed Par\u00eds og v\u00ed\u00f0ar um Frakkland l\u00f6g\u00f0u grunninn a\u00f0 \u00feeirri manneskju, sem \u00e9g er n\u00fana. Fimm l\u00f6ng sumur \u00e1 \u00cdtal\u00edu b\u00e6ttu s\u00ed\u00f0an um betur. \u00c9g f\u00f3r l\u00edka a\u00f0 sj\u00e1 mitt eigi\u00f0 land \u00ed n\u00fdju lj\u00f3si. Svo voru \u00fea\u00f0 l\u00f6ngu seinna \u00f6nnur fimm \u00e1r \u00ed Bandar\u00edkjunum. \u00deau \u00e1r voru \u00f3tr\u00falega \u00e1hrifamikil og afdrifar\u00edk. \u00c9g tala n\u00fa ekki um heil \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00ed  Finnlandi. \u00deegar kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sn\u00faa heim  \u00ed dalinn, var \u00e9g gripin kv\u00ed\u00f0a yfir \u00fev\u00ed, a\u00f0 n\u00fa \u00e6tti \u00e9g enga framt\u00ed\u00f0 lengur. K\u00e6mist aldrei neitt, mundi ekki upplifa neitt n\u00fdtt. V\u00e6ri kona me\u00f0 fort\u00ed\u00f0, en enga framt\u00ed\u00f0!<\/p>\n<p>Sp\u00e1nn haf\u00f0i alltaf skipa\u00f0 st\u00f3ran sess \u00ed huga m\u00e9r. \u2013 \u00c9g \u00e1tti m\u00e9r draum&#8230; Sumir draumar r\u00e6tast. Og n\u00fa erum vi\u00f0 h\u00e9r, \u00ed Andal\u00fas\u00edu \u2013  Litlu Afr\u00edku, eins og sumir kalla hana. \u00d3neitanlega eru mikil \u00e1hrif Afr\u00edku \u00ed \u00f6llu umhverfinu, enda ekki nema nokkrir tugir k\u00edl\u00f3metra yfir sundi\u00f0. \u00cd sj\u00f6 hundru\u00f0 \u00e1r r\u00e9\u00f0u M\u00e1rar h\u00e9r r\u00edkjum og skildu eftir sig fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0i, sem enn eimir eftir af \u00ed daglegu l\u00edfi. H\u00e9r sk\u00edn s\u00f3lin alla daga \u2013 \u00fe\u00f3tt hann rj\u00faki upp  aldeilis \u00f3v\u00e6nt \u00f6\u00f0ru hverju me\u00f0 ofsavindhvi\u00f0um og sk\u00fdf\u00f6llum, sem eiga s\u00e9r enga sk\u00fdringu nema n\u00e1b\u00fdli\u00f0 vi\u00f0 Sierra Nevada, h\u00e6sta fjall Sp\u00e1nar. \u00dea\u00f0 tr\u00f3nir h\u00e9r fyrir ofan \u00ed \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund metra h\u00e6\u00f0, alhv\u00edtt vetur sem sumar.<\/p>\n<p>Kannski var \u00fea\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0, sem dr\u00f3 mig hinga\u00f0. \u00deetta dramat\u00edska, kjarnyrta m\u00e1l, sem \u00e1 dj\u00fapar r\u00e6tur a\u00f0 rekja til lat\u00ednunnar. Hermenn R\u00f3marveldis fluttu m\u00e1li\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r \u00e1 \u00cdber\u00eduskagann, og b\u00e6ndur og b\u00faandli\u00f0, sem erja\u00f0i j\u00f6r\u00f0ina, afbaka\u00f0i \u00fea\u00f0 eftir \u00fe\u00f6rfum. N\u00fa er \u00feetta tungutak m\u00f3\u00f0urm\u00e1l flestra \u00ed heiminum fyrir utan mandar\u00edn. Sp\u00e1nverjar fluttu tungum\u00e1li\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r til n\u00fdja heimsins. S\u00fa saga er full af grimmd og \u00f3d\u00e6\u00f0isverkum, en \u00fea\u00f0 sem lifir er tungum\u00e1li\u00f0, sem frj\u00f3vga\u00f0ist af n\u00fdrri l\u00edfsreynslu fjarri f\u00f3sturj\u00f6r\u00f0inni, og er n\u00fa sameinandi afl heillar heims\u00e1lfu.<\/p>\n<p>Sumir segja, a\u00f0 h\u00e6fileikinn til a\u00f0 l\u00e6ra n\u00fd tungum\u00e1l eldist af manni eins og bernskan. En er ekki l\u00edka sagt, a\u00f0 ma\u00f0ur eigi a\u00f0 var\u00f0veita \u00ed s\u00e9r barni\u00f0 til hinstu stundar \u2013 forvitni og opinn huga? Og kannski er \u00fea\u00f0 barni\u00f0 \u00ed m\u00e9r, sem hefur s\u00f6kkt s\u00e9r ni\u00f0ur \u00ed n\u00e1m \u00e1 seinni \u00e1rum \u2013 tileinka\u00f0 s\u00e9r sp\u00e6nska m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i af \u00e1str\u00ed\u00f0u. Besta j\u00f3lagj\u00f6fin sem \u00e9g f\u00e9kk eitt \u00e1ri\u00f0, var \u201e501 sp\u00e6nsk s\u00f6gn\u201c (flestar \u00f3reglulegar). Af \u00feessari \u00e1str\u00ed\u00f0u kviknar forvitnin a\u00f0 bera saman or\u00f0 \u00e1 \u00f3l\u00edkum tungum, uppruna \u00feeirra, skyldleika, vensl og breytingar \u00ed t\u00edmans r\u00e1s. \u00dat \u00far \u00feessum fr\u00f3\u00f0leik getur ma\u00f0ur lesi\u00f0 menningars\u00f6guna. Og saga Sp\u00e1nar er \u00f3tr\u00falega spennandi og dramat\u00edsk, en \u00fea\u00f0 merkilegasta er, a\u00f0 \u00feeir hafa sj\u00e1lfir enn ekki gert upp vi\u00f0 fort\u00ed\u00f0ina \u2013 s\u00ednar s\u00f6gulegu hamfarir.<\/p>\n<p>Kannski er \u00e9g h\u00e1lfgert n\u00f6rd. Mitt l\u00edf og yndi er a\u00f0 leika m\u00e9r me\u00f0 \u00f3reglulegar sagnir sp\u00e6nskunnar og spreyta mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 beygja \u00fe\u00e6r \u00ed vi\u00f0tengingarh\u00e6tti, skildagat\u00ed\u00f0 \u2013 e\u00f0a  jafnvel \u00fe\u00e1skildagat\u00ed\u00f0. Og \u00e9g er or\u00f0in svo kl\u00e1r \u2013  e\u00f0a \u00e1 \u00e9g a\u00f0 segja kokhraust, \u00fe\u00f3tt \u00e9g segi sj\u00e1lf fr\u00e1 \u2013 a\u00f0 \u00e9g fer l\u00e9tt me\u00f0 a\u00f0 r\u00f6kr\u00e6\u00f0a vi\u00f0 bifv\u00e9lavirkja um umfer\u00f0ar\u00f3happ \u00ed vi\u00f0tenginarh\u00e6tti, vi\u00f0 p\u00edpara um st\u00edfla\u00f0 ni\u00f0urfall \u00ed skildagat\u00ed\u00f0 og m\u00e1lningartegundir vi\u00f0 m\u00e1larameistara \u00ed n\u00fat\u00ed\u00f0 og framt\u00ed\u00f0. Og \u00e9g skemmti m\u00e9r best, \u00fe\u00e1 sjaldan \u00e9g f\u00e6 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 \u00ferasa um sp\u00e6nska p\u00f3lit\u00edk vi\u00f0 eina b\u00f3ksalann \u00ed b\u00e6num e\u00f0a hann Miguel h\u00e9rna \u00ed n\u00e6sta h\u00fasi. Ef \u00fei\u00f0 tr\u00fai\u00f0 m\u00e9r ekki, \u00fe\u00e1 eru h\u00e6g heimat\u00f6kin a\u00f0 spyrja bara manninn minn. Aldrei \u00feessu vant situr hann \u00fe\u00f6gull og pr\u00fa\u00f0ur og hlustar \u00e1 mig hafa or\u00f0 fyrir okkur b\u00e1\u00f0um. Eftir \u00e1 kemur \u00ed lj\u00f3s, a\u00f0 hann er farinn a\u00f0 skilja meira en \u00e9g h\u00e9lt \u00ed \u00f6llu \u00feessu, sem \u00e9g er a\u00f0 \u00ferasa um.<\/p>\n<p>\u00deegar ma\u00f0ur b\u00fdr \u00ed heitu landi, l\u00e6rir ma\u00f0ur flj\u00f3tlega a\u00f0 spara orkuna og leita \u00ed skuggann, \u00e1 me\u00f0an s\u00f3lin   er h\u00e6st \u00e1 lofti. Morgunninn n\u00fdtist vel til vinnu, en \u00e1 h\u00e1degi draga sig allir \u00ed hl\u00e9, fara \u00ed sturtu, skipta um f\u00f6t, setjast til bor\u00f0s me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni og hv\u00edla sig \u00e1 eftir \u2013 f\u00e1 s\u00e9r h\u00e6nublund, eins og \u00fea\u00f0 heitir \u00e1 okkar m\u00e1li. \u00dea\u00f0 er ekki fyrr en degi tekur a\u00f0 halla og skuggarnir lengjast \u00ed \u00fer\u00f6ngum g\u00f6tunum, a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f6rum \u00e1 stj\u00e1 \u00e1 n\u00fd, komum vi\u00f0 \u00e1 \u00feorpskr\u00e1nni, f\u00e1um klapp \u00e1 baki\u00f0, jafnvel koss \u00e1 vangann og svalandi drykk. H\u00e1va\u00f0inn er \u00e6randi, allir eru hl\u00e6jandi og masandi \u2013 en \u00e9g veit ekki, hvort nokkur hlustar! Barir eru eins konar vi\u00f0komusta\u00f0ir \u00ed \u00feorpinu, \u00fear sem allir eiga erindi, l\u00e9tta af s\u00e9r streitu og kv\u00ed\u00f0a og finna samkennd me\u00f0 n\u00e1gr\u00f6nnum og vinum. A\u00f0 v\u00edsu ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 oftast er \u00e9g eina konan, hinar eru sj\u00e1lfsagt allar \u00ed eldh\u00fasinu e\u00f0a enn a\u00f0 vinna fram eftir fyrir fj\u00f6lskyldunni \u2013 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e9r er engu loka\u00f0 fyrr en seint \u00e1 kv\u00f6ldin.<\/p>\n<p>Ni\u00f0ri \u00e1 str\u00f6ndinni er  b\u00fai\u00f0 a\u00f0 leggja hv\u00edtan d\u00fak \u00e1 bor\u00f0. \u00dej\u00f3narnir taka okkur fagnandi og bera fram t\u00f3mata og avocado \u00far bakgar\u00f0inu og svo  n\u00fddreginn, p\u00f6nnusteiktan kola. Me\u00f0 \u00feessu er bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 \u00edskalt hv\u00edtv\u00edn \u00far hl\u00ed\u00f0unum h\u00e9r fyrir ofan. H\u00e9r um sl\u00f3\u00f0ir er hver og einn sj\u00e1lfum s\u00e9r n\u00e6gur. Menn lifa fr\u00e1 hendinni til munnsins. F\u00f3lki\u00f0 h\u00e9r hefur alla t\u00ed\u00f0 b\u00fai\u00f0 vi\u00f0 kreppu (nema \u00ed \u00feessi nokkur \u00e1r, \u00feegar \u00e6\u00f0i rann \u00e1 menn, og allir f\u00f3ru \u00ed byggingarvinnu). Andal\u00fas\u00eda hefur l\u00f6ngum veri\u00f0 f\u00e1t\u00e6kasta h\u00e9ra\u00f0 Sp\u00e1nar, en einhvern veginn hafa \u00feeir lifa\u00f0 af og kunna a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feess, sem n\u00e1tt\u00faran b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1. Alltaf gla\u00f0ir.<\/p>\n<p>Kv\u00f6ldi\u00f0 l\u00ed\u00f0ur h\u00e6gt. \u00dea\u00f0 er a\u00f0fall og f\u00f3lk er enn a\u00f0 svamla \u00ed sj\u00f3num. Hann er hl\u00fdr n\u00fana, \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f3lin er b\u00fain a\u00f0 baka steinana \u00ed fj\u00f6runni allan daginn. Vi\u00f0 horfum \u00e1 hana hverfa \u00e1 bak vi\u00f0 hv\u00edtan klettinn, sem r\u00eds upp af str\u00f6ndinni eins og h\u00f6ggmynd \u00far marmara. Myrkri\u00f0 skellur \u00e1,eins og hendi s\u00e9 veifa\u00f0. T\u00edmi til kominn a\u00f0 \u00feakka fyrir sig, standa upp fr\u00e1 bor\u00f0um og bj\u00f3\u00f0a g\u00f3\u00f0a n\u00f3tt \u2013 buenas noches.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einn g\u00f3\u00f0ur vinur minn skrifa\u00f0 m\u00e9r um daginn og spur\u00f0i, hva\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 \u00fev\u00e6last \u00e1 s\u00f3larstr\u00f6ndum  Sp\u00e1nar, sem ger\u00f0i mig b\u00e6\u00f0i gamla fyrir aldur fram og og v\u00e6ri ekkert nema t\u00edmas\u00f3un. H\u00e9r kemur svari\u00f0, sem \u00e9g sendi honum seint og um s\u00ed\u00f0ir:<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-114","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/114","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=114"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/114\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":549,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/114\/revisions\/549"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=114"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=114"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=114"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}