{"id":122,"date":"2013-06-30T00:00:00","date_gmt":"2013-06-30T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2013\/06\/30\/casa-bryndis\/"},"modified":"2020-09-23T08:56:54","modified_gmt":"2020-09-23T08:56:54","slug":"casa-bryndis","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2013\/06\/30\/casa-bryndis\/","title":{"rendered":"CASA BRYND\u00cdS"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"614\" height=\"461\" class=\"alignnone size-full wp-image-80\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/tak.jpg\" srcset=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/tak.jpg 614w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/tak-300x225.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 709px) 85vw, (max-width: 909px) 67vw, (max-width: 984px) 61vw, (max-width: 1362px) 45vw, 600px\" \/><br>\n<i>Miguel gerir vi\u00f0 \u00feaki\u00f0<\/i><br>\nOg n\u00fa st\u00f3\u00f0 til a\u00f0 taka h\u00fasi\u00f0 \u00ed gegn h\u00e1tt og l\u00e1gt. \u00dea\u00f0 var kominn t\u00edmi til, fimm \u00e1r. Svo er l\u00edka st\u00f3rafm\u00e6li framundan. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur Casa Brynd\u00eds \u2013 en h\u00fasi\u00f0 heitir \u00fea\u00f0 \u2013 a\u00f0 tjalda s\u00ednu fegursta. Vi\u00f0 vorum b\u00fain a\u00f0 bera upp a\u00f0f\u00f6ng, sem til \u00feurfti: st\u00f3ra dunka af hv\u00edtri \u00fatim\u00e1lningu og a\u00f0ra minni af innim\u00e1lningu; svart \u00e1 \u00fatihur\u00f0ir, eirrautt \u00e1 gluggakarma og svart lakk \u00e1 j\u00e1rngrindur fyrir gluggum. \u00de\u00f3 nokkur byr\u00f0i a\u00f0 bera. En n\u00fa \u00e1tti a\u00f0 gera \u00feetta faglega, af vir\u00f0ingu fyrir aldag\u00f6mlum sp\u00e6nskum hef\u00f0um. \u00deess vegna var kalla\u00f0 \u00e1 Miguel.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Miguel er morgunhani. \u00de\u00f3tt hann \u00feyki ekki aldinn a\u00f0 \u00e1rum h\u00e9r um sl\u00f3\u00f0ir (67 \u00e1ra), er hann h\u00e6ttur a\u00f0 vinna, kominn \u00e1 eftirlaun (jubilado heitir \u00fea\u00f0 h\u00e9r, sem minnir skemmtilega \u00e1 or\u00f0i\u00f0 \u201ea\u00f0 jubilera\u201c, eins og vi\u00f0 ger\u00f0um \u00ed mennt\u00f3 \u00ed gamla daga). Hann var \u00e1\u00f0ur fyrr verkstj\u00f3ri yfir \u00e1haldah\u00fasi b\u00e6jarins, sennilega m\u00farari \u00ed grunninn, en \u201ealt-mulig mand\u201c, \u00feegar \u00e1 \u00fearf a\u00f0 halda. Miguel \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 taka a\u00f0 s\u00e9r verkstj\u00f3rnina, en JBH \u00e1tti a\u00f0 vera handlangari hj\u00e1 m\u00fararanum, (eins og hann segist reyndar hafa veri\u00f0 einhvern t\u00edmann \u00e1 sk\u00f3la\u00e1runum). Morgunhaninn bar\u00f0i upp \u00e1 klukkan sj\u00f6 a\u00f0 morgni. Vinnan h\u00f3fst me\u00f0 \u00fea\u00f0 sama. Tjaldd\u00fakar breiddir \u00e1 gangst\u00e9ttar allt um kring, svo a\u00f0 hvergi yr\u00f0i slettur a\u00f0 finna, \u00fer\u00e1tt fyrir hamaganginn. Svo var r\u00falla\u00f0 og r\u00falla\u00f0 og r\u00falla\u00f0. Miguel vann sj\u00f6 t\u00edma \u00ed einni lotu fyrir siestu (s\u00ed\u00f0degishv\u00edld). \u00de\u00e1 f\u00f3r hann heim \u00ed h\u00e1degismat og halla\u00f0i s\u00e9r, enda hitinn \u00fe\u00e1 or\u00f0inn \u00f3b\u00e6rilegur. En hann var m\u00e6ttur aftur til vinnu \u00e1 slaginu fimm, enda s\u00f3lin farin a\u00f0 s\u00edga. \u00de\u00e1 unnu \u00feeir \u00ed fj\u00f3ra t\u00edma. \u00deetta \u00fe\u00fd\u00f0ir ellefu t\u00edma vinnudag. (Eru ekki \u00dej\u00f3\u00f0verjar alltaf a\u00f0 r\u00edfa kjaft um letihauga, sem flatmagi \u00e1 str\u00f6ndum Mi\u00f0jar\u00f0arhafsins og vinni aldrei \u00e6rlegt handtak? \u00dev\u00edl\u00edkt bull! Hverjir eru \u00fea\u00f0, sem liggja afvelta \u00e1 s\u00f3lr\u00edkum str\u00f6ndum Su\u00f0ur-Sp\u00e1nar? \u00dej\u00f3\u00f0verjar \u2013 alla vega ekki Sp\u00e1nverjar. \u00deeir vita betur).<\/p>\n<p>Nema hva\u00f0, a\u00f0 loknu dagsverki var h\u00fasi\u00f0 alhv\u00edtt allt um kring \u2013 hv\u00edtara en nokkru sinni fyrr.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00f6\u00f0rum degi byrja\u00f0i \u201eakr\u00f3bat\u00edkin\u201c (loftfimleikar). A\u00f0al\u00edverusta\u00f0ur h\u00fassins er nefnilega \u00feaki\u00f0. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 hluta umgirt timburverki, sem liggur svo h\u00e1tt, a\u00f0 h\u00e6stu stigar n\u00e1 ekki upp. \u00dear a\u00f0 auki er brattinn svo mikill, a\u00f0 stigamennsku ver\u00f0ur vart vi\u00f0 komi\u00f0 \u2013 alla vega hafa \u00feeir \u00fer\u00e1l\u00e1ta tilhneigingu til a\u00f0 falla undan brekkunni. Vi\u00f0 \u00feetta b\u00e6tist, a\u00f0 reglur Evr\u00f3pusambandsins banna, a\u00f0 menn yfir 62ja \u00e1ra aldri s\u00e9u a\u00f0 pr\u00edla \u00ed l\u00edfsh\u00e6ttulegum stigum me\u00f0 tilheyrandi kostna\u00f0i fyrir hospital systemi\u00f0, ef illa fer. Hva\u00f0 er \u00fe\u00e1 til r\u00e1\u00f0a?<\/p>\n<p>Miguel kunni r\u00e1\u00f0 vi\u00f0 \u00feessu. Hann lag\u00f0i stiga fr\u00e1 grindverki handan g\u00f6tunnar me\u00f0 t\u00e1festi \u00e1 sillu vi\u00f0 \u00feakbr\u00fan h\u00fassins. Eftir a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u umvafi\u00f0 h\u00fasi\u00f0 g\u00f6mlum s\u00e6ngurfatna\u00f0i fr\u00e1 h\u00fasfreyju Miguels, til \u00feess a\u00f0 hvergi slettist, pr\u00edla\u00f0i Miguel eins og \u00feraut\u00fej\u00e1lfa\u00f0ur sirkusartist eftir \u00feessu gl\u00e6fraverki. JBH h\u00e9lt vi\u00f0 annan endann til \u00f6ryggis, en sj\u00e1lf h\u00e9lt \u00e9g \u00e1 m\u00e1lningardollunni uppi \u00e1 \u00feakinu, \u00fev\u00ed a\u00f0 Miguel var\u00f0 j\u00fa a\u00f0 halda s\u00e9r fast me\u00f0 annarri hendinni en m\u00e1la me\u00f0 hinni. Ef Evr\u00f3pusambandi\u00f0 hefur eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00feetta a\u00f0 athuga \u2013 \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 bara eftir \u00e1 \u2013 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er b\u00fai\u00f0 og gert. Timburverki\u00f0 er n\u00fa fagurm\u00e1la\u00f0 me\u00f0 d\u00f6kkri f\u00faav\u00f6rn, sem r\u00edmar vi\u00f0 hur\u00f0ina sv\u00f6rtu. \u00deetta vakti \u00fe\u00f3 nokkra athygli \u00ed n\u00e1grenninu. M\u00e9r segir svo hugur um, a\u00f0 Miguel hafi b\u00e6tt alin vi\u00f0 h\u00e6\u00f0 s\u00edna \u00ed almennings\u00e1litinu (en hann er ekki mj\u00f6g h\u00e1r \u00ed loftinu).<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 var bara eftir d\u00fatli\u00f0. Hv\u00edtt a\u00f0 innan \u00ed gestaherbergjum. Svart lakk \u00e1 gluggagrindur, svalahandri\u00f0 og \u00fatihur\u00f0 \u00e1 ne\u00f0stu h\u00e6\u00f0. Fyrrverandi forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksins f\u00f3r l\u00e9tt me\u00f0 \u00feetta. Enda tiltukta\u00f0ur handlangari m\u00farara, smi\u00f0a og p\u00edpara (og gott ef ekki j\u00e1rnabindingarmanna) \u00far sumarvinnunni for\u00f0um daga. Eftir fj\u00f6gurra daga t\u00f6rn var kalla\u00f0 \u00e1 mig a\u00f0 taka \u00fat verki\u00f0. \u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 segja, a\u00f0 m\u00e9r \u00fe\u00f3tti nokku\u00f0 vel a\u00f0 verki sta\u00f0i\u00f0 af tveimur m\u00f6nnum, sem samkv\u00e6mt reglum Evr\u00f3pusambandsins er banna\u00f0 a\u00f0 pr\u00edla upp \u00ed stiga.<\/p>\n<p>\u00cd vi\u00f0urkenningarskyni grilla\u00f0i \u00e9g eitthva\u00f0 gott on\u00ed \u00fe\u00e1 og gaf \u00feeim \u00f3t\u00e6pilega me\u00f0 af rau\u00f0v\u00ednsk\u00fatnum, sem vinur minn, Manuel olifu- og v\u00ednyrkjub\u00f3ndi \u00ed Zujar \u2013 tengdafa\u00f0ir J\u00f3ns Sigur\u00f0ar Eyj\u00f3lfssonar, B\u00edldd\u00e6lings, kennara \u00ed Priego de C\u00f3rdova og sumarafleysingarmanns \u00e1 Fr\u00e9ttabla\u00f0inu \u2013 lauma\u00f0i a\u00f0 m\u00e9r um daginn. H\u00e9r um sl\u00f3\u00f0ir leggjum vi\u00f0 f\u00e1tt okkur til munns anna\u00f0 en \u00fea\u00f0, sem j\u00f6r\u00f0in e\u00f0a hafi\u00f0 gefa af s\u00e9r. \u00dea\u00f0 fer ekki leynt, a\u00f0 Casa Bryndis ber n\u00fa af \u00f6\u00f0rum h\u00fasum \u00ed hverfinu. Gott ef kellingarnar \u00ed hverfinu eru ekki farnar a\u00f0 hafa augasta\u00f0 \u00e1 \u00feeim f\u00e9l\u00f6gum, Miguel og JBH, til a\u00f0 halda \u00e1fram \u00ed vi\u00f0haldinu hj\u00e1 s\u00e9r.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00fasi\u00f0 hangir utan \u00ed h\u00e1um kletti. \u00dea\u00f0 er eiginlega samgr\u00f3i\u00f0 klettinum. A\u00f0gengi\u00f0 er bratt. Okkur greinir \u00e1 um, hva\u00f0 \u00ferepin eru m\u00f6rg upp a\u00f0 Radio Salobrena handan g\u00f6tunnar e\u00f0a upp a\u00f0 hervirki Hannibals (byggt 228 f.kr.), \u00f6gn fj\u00e6r. \u00c9g held \u00fea\u00f0 fari eftir hitastiginu, hversu m\u00f6rg \u00ferepin eru, \u00feegar vi\u00f0 \u00fer\u00f6mmum upp \u00far \u00feorpinu \u00ed ne\u00f0ra. \u00deetta er sums\u00e9 \u00e6vafornt M\u00e1ra\u00feorp. H\u00fasin eru \u00f6ll n\u00e6r undantekningarlaust hv\u00edtm\u00e1lu\u00f0. A\u00f0rir litir, sem \u00feykja leyfilegir, eru \u00fdmist svartur, \u00e1 \u00fatihur\u00f0ir og gluggagrindur, e\u00f0a eirrau\u00f0ur (terracotta) \u00e1 gluggakarma og stundum \u00e1 hur\u00f0ir, ef eigandinn vill skera sig \u00far.<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-122","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/122","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=122"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/122\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":547,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/122\/revisions\/547"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=122"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=122"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=122"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}