{"id":123,"date":"2011-03-11T00:00:00","date_gmt":"2011-03-11T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/11\/ljotleikur-mh-hart-er-i-heimi\/"},"modified":"2020-09-23T09:05:23","modified_gmt":"2020-09-23T09:05:23","slug":"ljotleikur-mh-hart-er-i-heimi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/11\/ljotleikur-mh-hart-er-i-heimi\/","title":{"rendered":"Lj\u00f3tleikur MH: Hart er \u00ed heimi"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"280\" class=\"alignnone size-full wp-image-60\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/ljotleikur.jpg\"><br>\nFr\u00e1 Leiklistarf\u00e9lagi MH<\/center><p><\/p>\n<p>M\u00e9r fannst eins og \u00feetta g\u00e6ti veri\u00f0 gamalt frystih\u00fas \u2013 e\u00f0a kannski bara vinnslusalur \u00ed frystih\u00fasi. H\u00e9r hafa hugsanlega einhvern t\u00edma sta\u00f0i\u00f0 \u00f6r\u00fereyttar konur og pilla\u00f0 r\u00e6kjur e\u00f0a flaka\u00f0 \u00feorsk til \u00fatflutnings. En \u00fea\u00f0 er li\u00f0in t\u00ed\u00f0. N\u00fa er h\u00e9r ekkert nema \u00edsk\u00f6ld g\u00f3lf og snjakahv\u00edtir veggir. Birtan er bl\u00e1f\u00f6l \u2013 eiginlega l\u00edkf\u00f6l. \u00d3sj\u00e1lfr\u00e1tt dreg \u00e9g f\u00e6turna undir mig og hneppi a\u00f0 m\u00e9r k\u00e1punni til a\u00f0 halda \u00e1 m\u00e9r hita. Er \u00feetta fyrirbo\u00f0i um \u00fea\u00f0 sem koma skal? Lj\u00f3tleikur heitir \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i \u00e9g fari\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 Draum um J\u00f3nsmessun\u00f3tt, s\u00fdningu Herran\u00e6tur Menntask\u00f3lans \u00ed Reykjav\u00edk (l\u00edka \u00ed gamalli verksmi\u00f0ju \u00ed hinum enda b\u00e6jarins). \u00c9g haf\u00f0i leyft m\u00e9r \u00feann muna\u00f0 a\u00f0 hl\u00e6ja af hjartans list og gleyma m\u00e9r \u00ed n\u00e6tur\u00e6vint\u00fdrum \u00e6skuf\u00f3lksins. \u00dea\u00f0 sem eftir sat, voru lj\u00fafar minningar um leikrit, sem sn\u00fdst um \u00e1stir, dufl og da\u00f0ur \u2013 og f\u00e6r happy end.<\/p>\n<p>En leikriti\u00f0, sem \u00e9g s\u00e1 \u00ed frystih\u00fasinu \u00ed \u00d6rfirisey eftir nemendur Menntask\u00f3lans \u00ed Hamrahl\u00ed\u00f0 og kennara \u00feeirra, Bjartmar \u00de\u00f3r\u00f0arson, er allt \u00f6\u00f0ru v\u00edsi \u2013 og f\u00e6r ekki happy end. Og kannski er \u00fea\u00f0 ekki leikrit \u00ed venjulegri merkingu, heldur miklu fremur \u00e1drepa, \u00e1minning e\u00f0a vi\u00f0v\u00f6run. Fj\u00f3r\u00f0i veggurinn er rifinn ni\u00f0ur og leikendur tala beint til \u00e1horfenda \u2013 um \u00fea\u00f0 sem \u00feeim liggur \u00e1 hjarta.<\/p>\n<p>\u00deetta var allt eitthva\u00f0 svo \u00f3v\u00e6nt. Hva\u00f0 er f\u00f3lki\u00f0 a\u00f0 p\u00e6la, f\u00f3lk \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins? H\u00e9r er allt \u00ed einu komi\u00f0 fram \u00e1 sj\u00f3narsvi\u00f0i\u00f0 ungt f\u00f3lk, sem l\u00e6tur ekki glepjast af glass\u00farnum, en skyggnist undir yfirbor\u00f0i\u00f0 \u2013 hi\u00f0 \u00e1fer\u00f0arfallega yfirbor\u00f0. H\u00e9r er veri\u00f0 a\u00f0 leita sannleikans, hugsa um samf\u00e9lagslega \u00e1byrg\u00f0, r\u00e9ttl\u00e6ti og rangl\u00e6ti, sekt og sakleysi (\u00deau \u00e6ttu a\u00f0 gefa s\u00e9r t\u00edma til a\u00f0 fara og sj\u00e1 verk Arthurs Miller \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu. Sem ungur ma\u00f0ur p\u00e6ldi hann \u00ed \u00f6llu \u00feessu, og \u00e1ratugum seinna \u00e1 hann enn fullt erindi vi\u00f0 okkur. Hefur ekkert breyst?). \u00deetta var allt svo \u00f3v\u00e6nt, \u00fev\u00ed a\u00f0 flestir \u00ed \u00feessu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi eru \u00ed bullandi afneitun, a\u00f0 manni s\u00fdnist, l\u00e1ta sem allt s\u00e9 \u00ed stakasta lagi \u00ed gerspilltum heimi.<\/p>\n<p>Og svo f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 hugsa um \u00fea\u00f0 \u00e1 lei\u00f0inni heim, hvort \u00feetta \u00f3l\u00edka leikritaval tveggja framhaldssk\u00f3la hef\u00f0i einhverja d\u00fdpri merkingu. L\u00fdstu \u00feessar andst\u00e6\u00f0ur tveimur \u00f3l\u00edkum heimum? V\u00e6ri \u00fearna \u00ed hnotskurn hinn \u00edmynda\u00f0i munur \u00e1 \u00feessum tveimur sk\u00f3lum, MR og MH \u2013 og reyndar \u00f6llum \u00f6\u00f0rum framhaldssk\u00f3lum landsins? \u00dea\u00f0 vir\u00f0ist vera mikill titringur me\u00f0al nemenda \u00ed 10. bekk grunnsk\u00f3la var\u00f0andi val \u00e1 framhaldssk\u00f3lum. MR stendur \u00e1 g\u00f6mlum merg og hefur s\u00e9rst\u00f6\u00f0u, hvort sem h\u00fan er r\u00e9ttl\u00e6tanleg e\u00f0a ekki. Er kannski eitthva\u00f0 til \u00ed \u00fev\u00ed, a\u00f0 hann s\u00e9 \u00f6\u00f0ru v\u00edsi \u2013 hva\u00f0 segja \u00feeir \u2013 a\u00f0 hann s\u00e9 yfirst\u00e9ttarsk\u00f3li?<\/p>\n<p>Eru MR-ingar \u00ed afneitun \u2013 e\u00f0a er \u00fea\u00f0 hrein tilviljun, a\u00f0 \u00feeir velja verk til s\u00fdningar, sem hefur s\u00e1ral\u00edti\u00f0 fram a\u00f0 f\u00e6ra nema yfirbor\u00f0slega skemmtun og hr\u00edfandi texta? Eru \u00fe\u00e1 krakkarnir \u00fear ekkert anna\u00f0 en ofverndu\u00f0 101 dekurb\u00f6rn, sem lifa \u00ed \u00e1fer\u00f0arfallegum heimi, er hl\u00edft vi\u00f0 raunveruleika \u00edslensks samf\u00e9lags og velja s\u00e9r verk \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 sinn l\u00edfsst\u00edl? E\u00f0a er galsinn og glaumurinn \u00e1 J\u00f3nsmessun\u00f3tt kannski \u00feeirra fl\u00f3ttalei\u00f0 fr\u00e1 alv\u00f6ru l\u00edfsins, \u00e1 me\u00f0an MH-ingar horfast \u00ed augu vi\u00f0 raunveruleikann og takast \u00e1 vi\u00f0 hann?<\/p>\n<p>Lj\u00f3tleikur er afrakstur margra m\u00e1na\u00f0a p\u00e6linga nemenda vi\u00f0 menntask\u00f3lann me\u00f0 kennara s\u00ednum, Bjartmari, sem hefur auglj\u00f3slega lagt sig allan fram um a\u00f0 finna hinn r\u00e9tta t\u00f3n, leyfa \u00f6llum a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn, standa frammi fyrir \u00e1horfendum og f\u00e1 a\u00f0 segja hug sinn. Kr\u00f6kkunum liggur miki\u00f0 \u00e1 hjarta og \u00f6llum tekst \u00feeim a\u00f0 koma \u00fev\u00ed vel til skila me\u00f0 m\u00e1tulega leikr\u00e6num tilbur\u00f0um, \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera tilger\u00f0arlegir. Hef \u00e9g \u00fe\u00e1 \u00ed huga \u00c1stu Hei\u00f0i, H\u00f6llu Gu\u00f0r\u00fanu og J\u00f3n Reginbaldur, sem s\u00fdna, a\u00f0 \u00ed \u00feeim b\u00fdr leikaraefni, \u00e1 me\u00f0an hin eiga svol\u00edti\u00f0 erfi\u00f0ara me\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta huga og h\u00f6nd fylgjast a\u00f0. Stir\u00f0leiki sem hverfur me\u00f0 \u00e6fingu.<\/p>\n<p>Sag\u00f0ar eru hryllingss\u00f6gur \u00far hversdagsl\u00edfinu um hvers kyns ofbeldi, nau\u00f0ganir, tr\u00faarfasisma, f\u00edkniefnanotkun, bl\u00f3\u00f0s\u00fathellingar \u2013 s\u00f6gur sem vi\u00f0 heyrum \u00ed daglegum fr\u00e9ttum, en skellum skollaeyrum vi\u00f0 \u2013 gleymum jafnhar\u00f0an. \u00deetta kemur okkur ekki vi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1horfandinn hangir svol\u00edti\u00f0 \u00ed lausu lofti framan af, veit ekki alveg hvert stefnir, en allt gengur \u00fe\u00f3 upp a\u00f0 lokum og \u00fer\u00e6\u00f0irnir tvinnast saman. Og skilabo\u00f0in eru sk\u00fdr: vi\u00f0 viljum ekki meir af svo g\u00f3\u00f0u. En hver er svo ni\u00f0ursta\u00f0an? Heldur mikil svarts\u00fdni, a\u00f0 m\u00e9r finnst, eiginlega uppgj\u00f6f. M\u00f3\u00f0irin k\u00fds a\u00f0 f\u00f3rna barni s\u00ednu n\u00fdf\u00e6ddu, fremur en a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ti \u00f6rl\u00f6g f\u00f3rnarlambsins \u00ed grimmum heimi. En m\u00e1 ekki l\u00edka benda \u00e1, a\u00f0 erfi\u00f0leikarnir s\u00e9u til \u00feess a\u00f0 sigrast \u00e1 \u00feeim? L\u00edfi\u00f0 er til \u00feess a\u00f0 l\u00e6ra af \u00fev\u00ed, e\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n<p>Og n\u00fa er kominnn n\u00fdr dagur \u2013 \u00e9g er enn a\u00f0 huglei\u00f0a Lj\u00f3tleikinn\/lj\u00f3tleikann. Var \u00fea\u00f0 kannski af \u00e1settu r\u00e1\u00f0i, sem g\u00f3lfi\u00f0 var \u00edskalt og birtan l\u00edkf\u00f6l? Verk MH-inga er angistarfullt, \u00e1gengt og grimmt \u2013 \u00ed Lj\u00f3tleik fer fram miskunnarlaus sj\u00e1lfsko\u00f0un, sem \u00e9g vona innilega, a\u00f0 eldist aldrei af \u00c1stu, Birki, H\u00f6llu Bj\u00f6rgu og H\u00f6llu Gu\u00f0r\u00fanu, Ingimari, Ingunni, J\u00f3ni, S\u00f6lmundi og Steinunni.<\/p>\n<p>\u00de\u00f6kk fyrir vakninguna.<\/p>\n<p>3 stj\u00f6rnur<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag Menntask\u00f3lans \u00ed Hamrahl\u00ed\u00f0<br \/>\nS\u00fdndur \u00ed Eyjarsl\u00f3\u00f0 3<br \/>\nH\u00f6fundar: Bjartmar \u00de\u00f3r\u00f0arson og nemendur hans<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Bjartmar \u00de\u00f3r\u00f0arson<br \/>\nDansh\u00f6fundur: \u00c1sgeir Helgi Magn\u00fasson<br \/>\nLj\u00f3sah\u00f6nnu\u00f0ur: Torfi Geir S\u00edmonarson<br \/>\nH\u00f6fundur t\u00f3nlistar: J\u00f3n H. Geirfinnsson<br \/>\nNemendur s\u00e1u jafnframt um h\u00f6nnun og sm\u00ed\u00f0i leikmyndar, \u00feau saumu\u00f0u b\u00faninga, s\u00f6mdu t\u00f3nlist og f\u00f6r\u00f0u\u00f0u hvert anna\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-123","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/123","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=123"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/123\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":568,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/123\/revisions\/568"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=123"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=123"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=123"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}