{"id":126,"date":"2012-12-28T00:00:00","date_gmt":"2012-12-28T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2012\/12\/28\/macbeth\/"},"modified":"2020-09-23T09:03:31","modified_gmt":"2020-09-23T09:03:31","slug":"macbeth","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2012\/12\/28\/macbeth\/","title":{"rendered":"Macbeth"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-61\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth1.jpg\"><br>\nMacbeth er \u00f3dau\u00f0legt verk og \u00e1 jafnmiki\u00f0 erindi vi\u00f0 okkur \u00ed n\u00fat\u00edmanum og \u00fea\u00f0 \u00e1tti, \u00feegar \u00fea\u00f0 var skrifa\u00f0, seint \u00e1 16. \u00f6ld<\/center><p><\/p>\n<p>Sagan af Macbeth er einhver magna\u00f0asta draugasaga allra t\u00edma. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 flytja hana \u00e1 \u00feessum t\u00edma \u00e1rs, \u00feegar myrkri\u00f0 gr\u00fafir yfir, kolsvart og \u00f3gnvekjandi. Myrkri\u00f0minnir okkur st\u00f6\u00f0ugt \u00e1, hva\u00f0 vi\u00f0 megum okkur l\u00edtils \u00ed str\u00ed\u00f0i vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin. \u00dea\u00f0 eru \u00feau, semspinna okkur l\u00edfs\u00fer\u00e1\u00f0, skapa okkur \u00f6rl\u00f6g, sem engu \u00feyrma og ver\u00f0ur ekki hagga\u00f0, hva\u00f0 sem \u00e1 gengur. \u00d6rl\u00f6gin eru \u00f3umfl\u00fdjanleg. \u00deannig voru \u00f6rl\u00f6g Macbeths l\u00edka \u00f3umfl\u00fdjanleg. En hann st\u00f3\u00f0 \u00ed \u00feeirri tr\u00fa, a\u00f0 hann g\u00e6ti hagr\u00e6tt\u00f6rl\u00f6gunum s\u00e9r \u00ed hag. Og \u00ed \u00fev\u00ed var fall hans fali\u00f0.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Sumir eru berdreymir, dreymir fyrir dagl\u00e1tum. Vi\u00f0 \u00feekkjum d\u00e6mi \u00feess \u00far okkar eigin fornb\u00f3kmenntum. (Vi\u00f0 vitum strax \u00ed upphafi Laxd\u00e6lu, hver ver\u00f0a \u00f6rl\u00f6g Gu\u00f0r\u00fanar \u00d3sv\u00edfursd\u00f3ttur, svo eitt kunnuglegt d\u00e6mi s\u00e9 teki\u00f0. En ekki hvarfla\u00f0i a\u00f0 neinum a\u00f0 reyna a\u00f0 hr\u00f3fla vi\u00f0 \u00feeim). A\u00f0rir sj\u00e1 fyrir \u00f3or\u00f0na hluti, tr\u00faa \u00e1 stokka og steina, e\u00f0a tr\u00faa \u00e1 verur, sem tala til \u00feeirra \u00far myrkraskotum og segja fyrir um framt\u00ed\u00f0ina, leggja jafnvel \u00e1l\u00f6g \u00e1 f\u00f3lk.<\/p>\n<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"351\" height=\"527\" class=\"alignnone size-full wp-image-62\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth2.jpg\" srcset=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth2.jpg 351w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth2-200x300.jpg 200w\" sizes=\"auto, (max-width: 351px) 85vw, 351px\" \/><br>\n\u00dar Machbeth<\/center><p><\/p>\n<p>\u00cd Macbeth birtast okkur strax \u00ed upphafi \u00ferj\u00e1r nornir \u00e1 svi\u00f0inu \u2013 <i>Lj\u00f3tt er fagurt, fagurt lj\u00f3tt<\/i> \u2013og \u00fe\u00e6r gefa t\u00f3ninn um \u00fea\u00f0 sem ver\u00f0a vill.Eitthva\u00f0 \u00f3gnvekjandi er \u00ed a\u00f0sigi. \u201e<i>Eru \u00fe\u00e6r t\u00e1ls\u00fdn, e\u00f0a \u00ed raun og veru\u00fea\u00f0 sem sj\u00e1 m\u00e1?<\/i>\u201c, spyr Bank\u00f3, f\u00e9lagi og vinur Macbeths. \u201e<i>Segja fl\u00f6g\u00f0in satt?<\/i>\u201c \u2013 \u201e<i>E\u00f0a bitum vi\u00f0 \u00ed brj\u00e1lsemisins r\u00f3t og misstum r\u00e1\u00f0 og r\u00e6nu?<\/i>\u201cBank\u00f3 er auglj\u00f3slega efahyggjuma\u00f0ur,ekki au\u00f0tr\u00faa, eins og Macbeth, sem ver\u00f0ur\u201e<i>stjarfur, sem \u00ed lei\u00f0slu<\/i>\u201c. Hann er \u00f3\u00f0ar farinn a\u00f0 plotta \u00ed huganum, \u00e6tlar a\u00f0 storka \u00f6rl\u00f6gunum. Og ma\u00f0ur spyr sig \u00ed lokin: hef\u00f0i hvarfla\u00f0 a\u00f0 Macbeth a\u00f0 myr\u00f0a D\u00fankan, konunginn, ef nornirnar hef\u00f0u ekki or\u00f0i\u00f0 \u00e1 vegi hans og hann lagt tr\u00fana\u00f0 \u00e1 or\u00f0 \u00feeirra?<\/p>\n<p>Sta\u00f0reyndin er hins vegar s\u00fa, a\u00f0 b\u00e6\u00f0i Macbeth og Bank\u00f3 voru ekki bara uppdiktera\u00f0ir af Shakespeare, heldur voru \u00feeir uppi \u00ed Skotlandi um \u00fea\u00f0 leyti, sem \u00cdsland var a\u00f0 byggjast. \u00deeir b\u00e1ru b\u00e1\u00f0ir \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 dau\u00f0a D\u00fankans, konungs Skotlands. \u00dea\u00f0 er v\u00edst l\u00edka sta\u00f0reynd, a\u00f0 allir konungar breska konungd\u00e6misins vorulengi vel beinir afkomendurBank\u00f3s. Og \u00fe\u00e1 liggur \u00ed augum uppi sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed, hvers vegna Shakespeare leysir Bank\u00f3 undan allri \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 mor\u00f0i D\u00fankans \u00ed leikritinu. Shakespeare \u00feurfti peninga til a\u00f0 geta reki\u00f0 leikh\u00fas \u00ed London, og James 1, Englak\u00f3ngur \u00e1 hans t\u00edmum,var mikill leikh\u00fasma\u00f0ur og \u00f6rl\u00e1tur \u00e1 f\u00e9 vi\u00f0 listamenn. Shakespeare sj\u00e1lfur hagr\u00e6\u00f0ir sem s\u00e9 s\u00f6gunni!<\/p>\n<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"398\" height=\"260\" class=\"alignnone size-full wp-image-63\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth3.jpg\" srcset=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth3.jpg 398w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth3-300x196.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 398px) 85vw, 398px\" \/><br>\n\u00dar Machbeth<\/center><p><\/p>\n<p>Macbeth var hinn grimmi einr\u00e6\u00f0isherra, sem hugsa\u00f0i eing\u00f6ngu um eigin hag, aldrei um \u00fej\u00f3\u00f0arhag. Hann sveifst einskis, l\u00e9t drepa \u00edmynda\u00f0a andst\u00e6\u00f0inga, alla \u00fe\u00e1, sem \u00f3gnu\u00f0u v\u00f6ldum hans og \u00f6ryggi.D\u00fankan, konungur Skotlands, sem fellur fyrir hendi Macbeths, var fars\u00e6ll konungur \u201e<i>haf\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 r\u00edkt \u00ed mildri r\u00f3 \u00e1valdast\u00f3l<\/i>\u201c, a\u00f0 s\u00f6gn Macbeths sj\u00e1lfs. Bank\u00f3, besti vinur hans, hl\u00fdtur s\u00f6mu \u00f6rl\u00f6g, \u201e<i>\u00fev\u00ed \u00f3ttiminn vi\u00f0 Bank\u00f3 n\u00edstir mig. \u00dea\u00f0 er \u00ed e\u00f0li hans eitthva\u00f0 konunglegt, sem skelfir mig<\/i>\u201c. \u00deurfum vi\u00f0 a\u00f0 segja meira? Blindur metna\u00f0ur rekur menn til n\u00ed\u00f0ingsverka.<\/p>\n<p>Macbeth er \u00f3dau\u00f0legt verk og \u00e1 jafnmiki\u00f0 erindi vi\u00f0 okkur \u00ed n\u00fat\u00edmanum og \u00fea\u00f0 \u00e1tti, \u00feegar \u00fea\u00f0 var skrifa\u00f0, seint \u00e1 16. \u00f6ld. Vi\u00f0 \u00feurfum ekki anna\u00f0 en a\u00f0 l\u00edta \u00ed kring um okkur, fylgjast me\u00f0 fr\u00e9ttum hva\u00f0an\u00e6va \u00far heiminum, til a\u00f0 horfa upp \u00e1 viti firrta, sj\u00e1lfskipa\u00f0a einr\u00e6\u00f0isherra murka l\u00edfi\u00f0 \u00far \u00edmyndu\u00f0um \u00f3vinum, hvort sem \u00fea\u00f0 eru saklaus b\u00f6rn, konur e\u00f0a karlar. Og \u00fea\u00f0 sem verra er, \u00feeir lifa endalaust, enginn vir\u00f0ist dirfast a\u00f0 lyfta fingri, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 ota a\u00f0 \u00feeim byssusting e\u00f0a skera \u00fe\u00e1 \u00e1 h\u00e1ls til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va \u00f3h\u00e6fuverkin. \u00c1s\u00fdnd \u00feeirra birtist okkur \u00e1 sj\u00f3nvarpsskj\u00e1num \u00ed samt\u00edmanum e\u00f0a \u00ed ann\u00e1lum bl\u00f3\u00f0ugustu sk\u00e1lmaldar allra t\u00edma, tuttugusta aldarinnar. Vitfirring \u00feeirra er alger, samviskan dau\u00f0, i\u00f0run \u00f3hugsandi.<\/p>\n<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"405\" height=\"273\" class=\"alignnone size-full wp-image-64\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth4.jpg\" srcset=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth4.jpg 405w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/machbeth4-300x202.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 405px) 85vw, 405px\" \/><br>\n\u00dar Machbeth<\/center><p><\/p>\n<p>\u00cd rauninni standa nornirnar utan vi\u00f0 mannlegan skilning, \u00fe\u00e6r eru eins konar t\u00e1kngerving okkar verstu synda \u2013 synda, sem f\u00e1ir \u00feora a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0. \u00de\u00e6r eru hi\u00f0 illa, dj\u00f6fullinn \u00ed mannsmynd.\u00cd \u00feessu verki afhj\u00fapar Shakespere miskunnarlaust afskr\u00e6mingu mannlegs hugarfars hinna si\u00f0blindu valdar\u00e6ningja. Hann l\u00fdsir freistingu valdsins, fallinu og s\u00ed\u00f0an maklegum m\u00e1lagj\u00f6ldum undir lokin.\u00cd \u00feeim skilningi n\u00e6r r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 fram a\u00f0 ganga.<\/p>\n<p>Og Shakespeare lei\u00f0ir fram Macbeth og laf\u00f0i hans til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00feetta erfi\u00f0a hlutverk. \u00dea\u00f0 eru l\u00edklega engin hlutverk \u00ed samanl\u00f6g\u00f0um leikb\u00f3kmenntum heimsins jafneftirs\u00f3knarver\u00f0 og einmitt \u00feessi tv\u00f6.H\u00e1punktinum \u00e1 leiklistarferlinum er n\u00e1\u00f0, allt sem \u00e1 eftir kemur, ver\u00f0ur bara f\u00f6l eftirl\u00edking af \u00fev\u00ed sem einhvern t\u00edma var. Hlutverkin krefjast hins ofurmannlega, a\u00f0 ma\u00f0ur gefi allt og skilji ekkert eftir. Einn falskur t\u00f3nn r\u00fdfur tr\u00fana\u00f0arsamband leikarans vi\u00f0 \u00e1horfendur.Vi\u00f0erum \u00f6ll neydd til a\u00f0 horfa um stund inn \u00ed kviku manns\u00e1larinnar, upplifa lostann, syndina, angistina, \u00f3ttann, efann, hatri\u00f0 \u2013 a\u00f0 lokum ni\u00f0url\u00e6gingu refsingarinnar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem gerir j\u00f3las\u00fdningu \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins spennandi, er hin st\u00f6\u00f0uga sk\u00edrskotun til hins gl\u00f3rulausa n\u00fat\u00edma. Vi\u00f0 erum st\u00f6dd \u00ed t\u00edmalausu r\u00fami, \u00fear sem a\u00f0eins einn venjulegur eldh\u00fasvaskur r\u00fdfur t\u00f3mleikann. En \u00feessi vaskur gegnir veigamiklu hlutverki. \u00dear reyna \u00f3d\u00e6\u00f0ismennirnir me\u00f0 s\u00ednar flekku\u00f0u hendur a\u00f0 \u00fevo \u00fe\u00e6r hreinar af verkum s\u00ednum. \u2013 \u201e<i>Vi\u00f0 hreinsumburtu verki\u00f0 me\u00f0 sm\u00e1 vatni. \u00dea\u00f0 er allt og sumt<\/i>\u201c, segir laf\u00f0in. \u2013 \u201e<i>S\u00e6ktu \u00fe\u00e9r n\u00fa vatn og \u00fevo\u00f0u\u00b4af h\u00f6ndum \u00feessa gr\u00f3fu s\u00f6nnun!<\/i>\u201c\u201e<i>Burt, dj\u00f6fulsblettur. Burt segi \u00e9g!<\/i>\u201c \u2013 En eitt magna\u00f0asta sj\u00f3narspil s\u00fdningarinnar var, \u00feegar drottningin sj\u00e1lf settist upp \u00e1 vaskinn \u00ed \u00f6rv\u00e6ntingu sinni og kasta\u00f0i af s\u00e9r vatni \u2013 \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 kasta upp!<\/p>\n<p>Anna\u00f0 sj\u00f3narspil stendur m\u00e9r lj\u00f3slifandi fyrir hugskotssj\u00f3num.N\u00fdkr\u00fdndur k\u00f3ngur Skotlands og sp\u00fasa hans taka \u00e1 m\u00f3ti gestum \u00ed h\u00f6llinni. Bank\u00f3 er allur. Bor\u00f0inu er rennt fram \u00e1 svi\u00f0i\u00f0, hla\u00f0i\u00f0 kristal og kertum, \u00feungt og \u00edbur\u00f0armiki\u00f0. Gestir allt um kring (s\u00e1 \u00e9g r\u00e9tt, a\u00f0 fe\u00f0garnir D\u00fankan, Malcolm og Donalbein v\u00e6ru \u00fearna \u00ed statistahlutverkum?!) Ge\u00f0veikt flott gj\u00f6rningur. Einkum \u00ed lokin, \u00feegar \u00feernan dregur bor\u00f0i\u00f0 \u00fat af svi\u00f0inu me\u00f0 konungshj\u00f3nin \u00ed lostafullum fa\u00f0ml\u00f6gum \u00e1 hv\u00edtum d\u00fak.<\/p>\n<p>Kl\u00e6\u00f0na\u00f0ur leikara er l\u00edka t\u00edmalaus. K\u00f3r\u00f3nan er \u00fea\u00f0 eina sem minnir \u00e1 hinar myrku mi\u00f0aldir. Laf\u00f0i Macbeth g\u00e6ti veri\u00f0 drottning allra t\u00edma, og hermenn konungs mundu s\u00f3ma s\u00e9r vel, hvort sem v\u00e6ri \u00ed \u00cdrak, Kosovo, Kolumb\u00edu, Palest\u00ednu e\u00f0a S\u00fdrlandi.Notkun sj\u00f3nvarps til a\u00f0 koma \u00e1 framf\u00e6ri fr\u00e9ttum af atbur\u00f0um l\u00ed\u00f0andi stundar f\u00e6rir atbur\u00f0ar\u00e1sina inn \u00ed samt\u00edmann og losar okkur, \u00e1horfendur, undan \u00fev\u00ed melodrama, sem tilb\u00fanar aft\u00f6kur \u00e1 leiksvi\u00f0i eru. \u00dea\u00f0 sem s\u00e9st \u00e1 sj\u00f3nvarpsskerminum gefur n\u00f3g til kynna. T\u00f3nlistin tilheyrir l\u00edka n\u00fat\u00edmanum, gott ef h\u00fan var ekki \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 k\u00f6llum fram\u00farstefnuleg. Stundum voru hlj\u00f3\u00f0in \u00f3gnvekjandi, fyrirbo\u00f0i hins voveiflega, stundum argapopp, t\u00e1kn hins hj\u00e1k\u00e1tlega.<\/p>\n<p>\u00c9g hef \u00ed farangrinum nokkrar uppf\u00e6rslur af Macbeth. \u00deessi er \u00f3l\u00edk \u00feeim \u00f6llum \u2013 s\u00e9rst\u00f6k. Og hva\u00f0 er svona s\u00e9rstakt? \u00dea\u00f0 er \u00feessi sterka sk\u00edrskotun til samt\u00edmans \u2013 \u00fat yfir gr\u00f6f og dau\u00f0a s\u00f6gunnar. \u00dea\u00f0 er frumleikinn, sem birtist \u00ed \u00fev\u00ed, hvernig n\u00fat\u00edmat\u00e6kni og vi\u00f0mi\u00f0 eru notu\u00f0 til a\u00f0 koma atbur\u00f0ar\u00e1sinni til skila til samt\u00edmans, en vi\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur h\u00fan rauns\u00e6rri og reyndar enn\u00fe\u00e1 \u00f3gnv\u00e6nlegri en h\u00fan v\u00e6ri \u00ed gervi gamallar s\u00f6gu. Og svo er \u00fea\u00f0 \u00feessi sterka l\u00edkamlega n\u00e1nd, sem einkennir uppf\u00e6rsluna fr\u00e1 upphafi til enda. Spennan, lostinn, \u00e1stin, hatri\u00f0 \u2013 allar \u00feessar frumkenndir mannskepnunnar birtast okkur \u00ed leik Bj\u00f6rns og Margr\u00e9tar \u00ed allri sinni nekt. \u00dea\u00f0 l\u00e6tur engan \u00f3snortinn. \u00deau eru, \u00fer\u00e1tt fyrir ungan aldur, b\u00e6\u00f0i tv\u00f6 tr\u00faver\u00f0ug \u00ed hlutverkum s\u00ednum. \u00c1n \u00feess v\u00e6ri s\u00fdningin gl\u00f6tu\u00f0.<\/p>\n<p>Svo get \u00e9g ekki l\u00e1ti\u00f0 hj\u00e1 l\u00ed\u00f0a a\u00f0 nefna hlut \u00d3laf\u00edu Hrannar og \u00de\u00f3runnar \u00d6rnu Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur \u00ed hlutverkum dyravar\u00f0ar og \u00feernu Macbeths. Nau\u00f0gunarsenan minnti \u00ed Balkanstr\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00ed bakgar\u00f0i Evr\u00f3pu fyrir nokkrum \u00e1rum. Og \u00fea\u00f0 er sjaldg\u00e6ft a\u00f0 sj\u00e1 leikara gera miki\u00f0 \u00far litlu, eins og \u00de\u00f3runni tekst hva\u00f0 eftir anna\u00f0 \u00ed hlutverki \u00feernunnar.<\/p>\n<p>Einn er \u00fe\u00f3 lei\u00f0ur lj\u00f3\u00f0ur \u00e1 \u00feessari s\u00fdningu. Enn gerist \u00fea\u00f0, a\u00f0 b\u00e6\u00f0i textame\u00f0fer\u00f0, frams\u00f6gn og raddstyrk leikaranna er \u00e1b\u00f3tavant. \u00dea\u00f0 er \u00feeim mun verra, sem splunkun\u00fd og listileg \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00de\u00f3rarins Eldj\u00e1rns \u00e1 betra skili\u00f0. H\u00e9r ver\u00f0ur leikh\u00fasi\u00f0 einfaldlega a\u00f0 fara a\u00f0 taka s\u00e9r tak.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Macbeth \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu<br \/>\nLeikstj\u00f3rn: Benedict Andrews<br \/>\nLeikmynd: B\u00f6rkur J\u00f3nsson<br \/>\nB\u00faningar: Helga I. Stef\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlist: Oren Ambarchi<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0mynd: Kristinn Gauti Einarsson og Oren Ambarchi<br \/>\nL\u00fdsing: Halld\u00f3r \u00d6rn \u00d3skarsson<br \/>\n\u00de\u00fd\u00f0ing: \u00de\u00f3rarinn Eldj\u00e1rn<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-126","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/126","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=126"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/126\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":565,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/126\/revisions\/565"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=126"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=126"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=126"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}