{"id":128,"date":"2011-03-13T00:00:00","date_gmt":"2011-03-13T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/13\/hedda-gabler-uppreisn-i-stassstofunni\/"},"modified":"2020-09-23T09:05:10","modified_gmt":"2020-09-23T09:05:10","slug":"hedda-gabler-uppreisn-i-stassstofunni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/13\/hedda-gabler-uppreisn-i-stassstofunni\/","title":{"rendered":"Hedda Gabler: Uppreisn \u00ed st\u00e1ssstofunni"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"152\" class=\"alignnone size-full wp-image-43\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/gabler.jpg\"><br>\nIlmur Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir \u00ed hlutverki s\u00ednu<p><\/p>\n<p><\/p><\/center>\u00de\u00f3ra biskupsd\u00f3ttir, sem Sigr\u00fan P\u00e1lsd\u00f3ttir, sagnfr\u00e6\u00f0ingur, ger\u00f0i svo skemmtileg skil \u00ed b\u00f3k, sem kom \u00fat fyrir s\u00ed\u00f0astu j\u00f3l, og Hedda Gabler voru nokkurn veginn samt\u00edmakonur. F\u00e6ddar um mi\u00f0bik n\u00edtj\u00e1ndu aldar, hef\u00f0arkonur, aldar upp \u00ed sm\u00e1b\u00e6, \u201c\u00fear sem allt vir\u00f0ist sl\u00e9tt og fellt \u00e1 yfirbor\u00f0inu, \u00fe\u00f3tt undir ni\u00f0ri r\u00edki einhvers konar str\u00ed\u00f0s\u00e1stand\u201d. B\u00e1\u00f0ar \u00feessar konur vir\u00f0ast eiga erfitt me\u00f0 a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00fer\u00f6ngu skor\u00f0ur, sem sm\u00e1borgaral\u00edfi\u00f0 setur \u00feeim. \u00de\u00e6r hafna kr\u00f6fum samf\u00e9lagsins, eru \u00f3fulln\u00e6g\u00f0ar og dreymir um frelsi \u2013 annars konar l\u00edf.<p><\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>En saml\u00edkingin n\u00e6r ekki \u00f6llu lengra, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f6nnur \u00feeirra k\u00fds a\u00f0 svipta sig l\u00edfi \u2013 hin lifir fram \u00ed h\u00e1a elli. \u00d6nnur \u00feeirra ver\u00f0ur \u00f3dau\u00f0leg, harms\u00f6guleg pers\u00f3na og \u00f6\u00f0last eil\u00edft l\u00edf \u00ed b\u00f3kmenntunum, \u00e1 me\u00f0an hin, d\u00f3ttir biskupsins, gleymist.<\/p>\n<p>Hedda er hins vegar ekki v\u00e6ntum\u00feykjuleg pers\u00f3na. H\u00fan vekur ekki sam\u00fa\u00f0 \u2013 \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti, h\u00fan vekur and\u00fa\u00f0. H\u00fan er greinilega dekurbarn, sem aldrei hefur \u00feurft a\u00f0 l\u00e1ta neitt \u00e1 m\u00f3ti s\u00e9r. Frek, eigingj\u00f6rn, sj\u00e1lfselsk, \u00f6fundsj\u00fak og \u2013 eins og h\u00fan or\u00f0ar \u00fea\u00f0 sj\u00e1lf \u2013 \u201cr\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0 p\u00fakann \u00ed sj\u00e1lfri s\u00e9r\u201d. \u00dea\u00f0 er sk\u00edrskotun \u00ed \u201chin myrku \u00f6fl\u201d, sem Ibsen byggir verki\u00f0 \u00e1. \u00deessi ey\u00f0ileggingarhv\u00f6t, sem er svo erfitt a\u00f0 hemja \u2013 a\u00f0 unna ekki \u00f6\u00f0rum \u00feess a\u00f0 vera hamingjusamir, hafa tilgang \u00ed l\u00edfinu, elska og vera elska\u00f0ir \u2013 \u00feessi hamslausa l\u00f6ngun til a\u00f0 drepa yndi sitt. \u00deetta eru allt kunnuglegar tilfinningar. \u2013 (Svona hef \u00e9g alltaf \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r, a\u00f0 Hallger\u00f0ur langbr\u00f3k hafi veri\u00f0.)<\/p>\n<p>Thea, \u00f3v\u00e6ntur gestur, segir fr\u00e1 \u00fev\u00ed, hva\u00f0 h\u00fan var alltaf hr\u00e6dd vi\u00f0 Heddu sem krakki. Hedda \u00e1tti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 r\u00edfa \u00ed h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 henni, \u00feegar \u00fe\u00e6r m\u00e6ttust \u00ed sk\u00f3lastiganum, og h\u00f3ta \u00fev\u00ed jafnvel a\u00f0 sv\u00ed\u00f0a \u00fea\u00f0 af henni. Hedda \u00feykist ekkert muna \u2013 man ekki einu sinni, hva\u00f0 Thea heitir \u2013 en au\u00f0vita\u00f0 \u00feoldi h\u00fan ekki Theu, sem haf\u00f0i svo fallegt h\u00e1r.<\/p>\n<p>Hedda er sj\u00e1lfhverf pers\u00f3na, sem hugsar bara um eigin hag og sv\u00edfst einskis \u00ed samskiptum vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk. (K\u00f6nnumst vi\u00f0 ekki vi\u00f0 svolei\u00f0is f\u00f3lk?) H\u00fan tra\u00f0kar \u00e1 l\u00edtilmagnanum, s\u00fdnir honum forakt, l\u00edtilsvir\u00f0ingu. \u00dea\u00f0 er \u00f6murlegt a\u00f0 horfa upp \u00e1 \u00fea\u00f0, hvernig h\u00fan kemur fram vi\u00f0 J\u00fallu, f\u00f3stru J\u00f6rgens, eiginmannsins \u2013 \u00feessa g\u00f3\u00f0u konu, sem vill henni svo gott og hefur stutt ungu hj\u00f3nin til a\u00f0 kaupa draumah\u00fasi\u00f0.<br>\nE\u00f0a hvernig h\u00fan kemur fram vi\u00f0 eiginmann sinn. H\u00fan tra\u00f0kar \u00e1 honum l\u00edka, s\u00fdnir honum \u00f3ver\u00f0skulda\u00f0a fyrirlitningu. Samt eru \u00feau bara n\u00fdgift<br>\nHvers vegna \u00f6ll \u00feessi neikv\u00e6\u00f0ni? \u00deetta ni\u00f0urrif? Hedda er kona \u00ed uppreisnarham gegn \u00fev\u00ed l\u00f6gm\u00e1li t\u00ed\u00f0arandans sem ney\u00f0ir konur til a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 \u00fe\u00e1 rullu, sem \u00feeim er sk\u00f6mmtu\u00f0 \u2013 a\u00f0 vera fallegt stofubl\u00f3m, undird\u00e1nug eiginkona \u00ed st\u00e1ssstofu. Uppreisn hennar gegn \u00feessum \u00e1sk\u00f6pu\u00f0u \u00f6rl\u00f6gum br\u00fdst \u00fat \u00ed \u00f3vild og meinb\u00e6gni gagnvart \u00f6llum \u00feeim, sem f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn \u00ed l\u00edfinu \u2013 e\u00f0a s\u00e6tta sig vi\u00f0 st\u00f6\u00f0u s\u00edna \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu. H\u00fan er ni\u00f0urrifsmanneskja.<\/p>\n<p>Hedda er \u00ed innsta e\u00f0li s\u00ednu ekki g\u00f3\u00f0 kona \u2013 og \u00e1 \u00fev\u00ed ekkert gott skili\u00f0. Og \u00feegar h\u00fan er b\u00fain a\u00f0 brenna allar br\u00fdr a\u00f0 baki s\u00e9r, \u00fe\u00e1 er bara ein \u00fatg\u00f6ngulei\u00f0 \u2013 a\u00f0 svipta sig l\u00edfinu. Og ekki hvarfla\u00f0i a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 hafa sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 henni \u00ed dau\u00f0anum. \u00dea\u00f0an af s\u00ed\u00f0ur fannst m\u00e9r h\u00fan s\u00fdna hugrekki. \u00deetta var hennar fl\u00f3ttalei\u00f0.<\/p>\n<p>Hedda Gabler er \u00e1 svi\u00f0inu allan t\u00edmann. H\u00fan birtist okkur \u00ed upphafi, kl\u00e6dd f\u00f6lbl\u00e1um drags\u00ed\u00f0um kj\u00f3l me\u00f0 brei\u00f0a gj\u00f6r\u00f0 um sig mi\u00f0ja. Li\u00f0a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 fellur laust ni\u00f0ur \u00e1 axlirnar og augun skj\u00f3ta gneistum. H\u00fan er t\u00edguleg \u2013 m\u00f6gnu\u00f0, eins og segir \u00ed pr\u00f3gramminu.<br>\nOg Ilmur Kristj\u00e1nds\u00f3ttir er m\u00f6gnu\u00f0 leikkona. Vi\u00f0 sleppum ekki af henni augunum allt kv\u00f6ldi\u00f0, \u00feessari frekjud\u00f3s, sem er v\u00f6n a\u00f0 beygja alla \u00ed duft\u00f0 og r\u00e1\u00f0a \u00f6rl\u00f6gum manna \u2013 e\u00f0a \u00fev\u00ed tr\u00fair h\u00fan alla vega sj\u00e1lf.. Augun eru spegill s\u00e1larinnar, og Ilmur hefur st\u00f3r og falleg augu. \u00cd \u00feeim speglast \u00f6rv\u00e6ntingin \u00ed bland vi\u00f0 dj\u00f6fullegan svip \u201cp\u00fakans sem h\u00fan r\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0\u201d. \u00c9g var als\u00e6l me\u00f0 Ilmi \u00ed hlutverki Heddu.<\/p>\n<p>Nema \u00fea\u00f0 var eitt sem angra\u00f0i mig \u00f3skaplega. \u00dea\u00f0 var kj\u00f3llinn sem h\u00fan kl\u00e6ddist seinni partinn \u00ed leikritinu. \u00c9g h\u00e9lt satt a\u00f0 segja, a\u00f0 snillingurinn Filipp\u00eda El\u00edsd\u00f3ttir g\u00e6ti ekki brug\u00f0ist. En \u00fearna hefur or\u00f0i\u00f0 einhver misskilningur. Allt \u00ed einu var Hedda komin \u00ed knallstuttan kj\u00f3l \u00far skr\u00ed\u00f0andi sat\u00edni, sem meira a\u00f0 segja f\u00f3r henni illa. H\u00fan var enn me\u00f0 belti\u00f0 um sig mi\u00f0ja, me\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 slegi\u00f0 og \u00ed hn\u00e9h\u00e1um st\u00edgv\u00e9lum samkv\u00e6mt n\u00fdjustu t\u00edsku. Allt \u00ed einu var Hedda or\u00f0in eins og hver \u00f6nnur mi\u00f0b\u00e6jarskv\u00edsa \u00e1 lei\u00f0 \u00fat \u00ed n\u00e6turl\u00edfi\u00f0.<\/p>\n<p>Kannski er leikstj\u00f3rinn \u00fearna a\u00f0 reyna a\u00f0 sk\u00edrskota til \u00feess, a\u00f0 bar\u00e1tta Heddu vi\u00f0 sj\u00e1lfa sig eigi enn fullt erindi og a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 t\u00edmalaus. J\u00e1, kann a\u00f0 vera, en einmitt kl\u00e6\u00f0na\u00f0ur kvenna \u00e1 seinni hluta n\u00edtj\u00e1ndu aldar var partur af hlekkjunum, sem \u00fe\u00e6r \u00feurftu a\u00f0 r\u00edfa utan af s\u00e9r. Korselett, sk\u00f3s\u00ed\u00f0ir undirkj\u00f3lar, fyrirfer\u00f0armikil pils, langar ermar, uppsett h\u00e1r og hattar. Allt \u00feetta p\u00edrump\u00e1r laut str\u00f6ngum reglum, sem enginn voga\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 hr\u00f3fla vi\u00f0 \u00e1 \u00feessum t\u00edmum. Byltingin f\u00f3lst einmitt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00edfa utan af s\u00e9r hin hreyfihamlandi \u00fer\u00f6ngu kl\u00e6\u00f0i, r\u00edfa af s\u00e9r b\u00farkuna. Auk \u00feess fer \u00e9g ekki ofan af \u00fev\u00ed, a\u00f0 Hedda var mun gl\u00e6islegri \u00ed s\u00ed\u00f0a kj\u00f3lnum en \u00ed stuttpilsinu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var gaman a\u00f0 horfa \u00e1 \u00fe\u00e6r st\u00f6llur saman \u00e1 svi\u00f0inu, Ilmi og Brynhildi. \u00de\u00e6r eru b\u00e1\u00f0ar f\u00e6ddar leikkonur og ver\u00f0a \u00e6 betri vi\u00f0 hverja raun. \u00de\u00e6r eru ekkert a\u00f0 leika, \u00fe\u00e6r bara eru, og hversdagslegt samtal \u00feeirra Heddu og Theu \u00f6\u00f0last d\u00fdpri merkingu \u00ed munni \u00feessara tveggja. Thea hefur sam\u00fa\u00f0 okkar allra, h\u00fan er t\u00e1kn um hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a og fagra \u00ed tilverunni, sem kveikir \u00f6fund \u00ed brj\u00f3stum hinna \u00f3fulln\u00e6g\u00f0u. Thea er \u00e1 m\u00f6rkum \u00feess a\u00f0 vera of mikil tilfinningavera, en Brynhildi tekst a\u00f0 fara bil beggja og gera henni sannf\u00e6randi skil, algerlega laus vi\u00f0 alla v\u00e6mni.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er um fatna\u00f0 Theu a\u00f0 segja, a\u00f0 \u00fear fer Filipp\u00eda h\u00e1lfa lei\u00f0. Sni\u00f0 og yfirbrag\u00f0 dragtarinnar er ibsenskt, en \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 skori\u00f0 ne\u00f0an af pilsinu, \u00feannig a\u00f0 fagrir f\u00f3tleggir Brynhildar f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn. Ef pilsin mega vera stutt og tv\u00f6\u00fe\u00fasundogt\u00eduleg, af hverju eru \u00fe\u00e1 str\u00e1karnir kl\u00e6ddir alveg samkv\u00e6mt hef\u00f0inni, me\u00f0 s\u00ed\u00f0 frakkal\u00f6f og \u00ed hnepptum vestum? \u00c1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera d\u00e6mi um \u00edhaldssemi karla, sem vilja engu breyta og halda sem fastast \u00ed fornar hef\u00f0ir \u2013 og allra s\u00edst sleppa konunum lausum? Krist\u00edn leikstj\u00f3ri er sennilega sannf\u00e6r\u00f0ur fem\u00ednisti!<\/p>\n<p>En hva\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 elsku Kristbj\u00f6rgu, sem m\u00e6tti halda af fatavali, a\u00f0 v\u00e6ri hin d\u00e6miger\u00f0a s\u00fafragetta, kona \u00ed uppreisn gegn hef\u00f0inni? Kristbj\u00f6rg er l\u00e1tin kl\u00e6\u00f0ast s\u00ed\u00f0um buxum, sem \u00e9g held, a\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 \u00f3hugsandi \u00e1 \u00feessum t\u00edmum, og er n\u00e6stum kr\u00fanur\u00f6ku\u00f0. Minnir meir \u00e1 karlmann, \u00fear til h\u00fan setur upp \u00feennan l\u00edka hr\u00e6\u00f0ilega hatt, sem h\u00fan hefur vali\u00f0 af s\u00e9rst\u00f6ku tilefni, en bendir til \u00feess, a\u00f0 J\u00falla hafi mj\u00f6g gr\u00f3teskan smekk. M\u00e9r fannst kl\u00e6\u00f0na\u00f0ur Kristbjargar \u00fat \u00ed h\u00f6tt, einkum \u00fear sem J\u00falla er eins konar Florence Nightingale og hefur eytt \u00e6vinni \u00ed \u00e1 hj\u00e1lpa \u00feeim sem minna mega s\u00edn. Auk \u00feess \u00e1 Kristbj\u00f6rg \u00feetta ekki skili\u00f0, h\u00fan er ein af m\u00e1ttarst\u00f3lpum leikarast\u00e9ttarinnar, sem bregst ekki og gerir aldrei uppsteit.<\/p>\n<p>Og fyrst \u00e9g er n\u00fa b\u00fain a\u00f0 nefna allar konurnar \u00ed leikritinu nema eina, \u00fe\u00e1 \u00e6tla \u00e9g n\u00fa a\u00f0 geta vinnukonunnar, sem segir f\u00e1tt, en spilar \u00fe\u00f3 st\u00f3ra rullu \u2013 alla vega \u00ed me\u00f0f\u00f6rum H\u00f6rpu \u00c1rnad\u00f3ttur, sem er sm\u00e1m saman a\u00f0 ver\u00f0a meira \u00e1berandi \u00ed leikh\u00fasl\u00edfinu. (Leikst\u00fdr\u00f0i me\u00f0al annars einni albestu s\u00fdningu, sem n\u00fa er \u00e1 fj\u00f6lunum \u00ed Reykjav\u00edk, S\u00faldarskeri.) Berta vinnukona er s\u00fa eina kvennanna, sem er kl\u00e6dd samkv\u00e6mt hef\u00f0, \u00ed sk\u00f3s\u00ed\u00f0u pilsi, me\u00f0 langar ermar og hneppt upp \u00ed h\u00e1ls (\u00feannig skyldi \u00fea\u00f0 vera). En Berta er l\u00edka greinilega \u00ed uppreisnarhug, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er me\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 slegi\u00f0, sem setur \u00f3neitanlega n\u00fdtt strik \u00ed reikninginn. Vi\u00f0 f\u00f6rum \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt a\u00f0 gefa henni auga. Hva\u00f0 er h\u00fan a\u00f0 fara me\u00f0 \u00feessu? Og \u00feetta kemst h\u00fan upp me\u00f0 \u00ed f\u00ednu h\u00fasi v\u00e6ntanlegs pr\u00f3fessors!<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er \u00e9g komin a\u00f0 karlm\u00f6nnunum \u00ed l\u00edfi Heddu. \u00deeir eru allir \u00e1 hennar valdi, nema kannski s\u00edst Brakk l\u00f6gma\u00f0ur, sem n\u00e6r sl\u00edkum fantat\u00f6kum \u00e1 henni, a\u00f0 h\u00fan engra kosta v\u00f6l \u00ed lokin. \u00dearna er Eggert \u00e1 r\u00e9ttum sta\u00f0, mj\u00fakm\u00e1ll \u00e1 yfirbor\u00f0inu, en h\u00e1ll sem \u00e1ll undir ni\u00f0ri. Hefur r\u00e1\u00f0 undir rifi hverju, \u00edsmeygilegur, undirf\u00f6rull eiginhagsmunaseggur, sem heillar en hrindir fr\u00e1 s\u00e9r \u00e1 sama t\u00edma. Eggert kemur \u00feessu \u00f6llu til skila \u00e1 sinn l\u00e1tlausa en \u00f6gn h\u00famoriska m\u00e1ta.<\/p>\n<p>Eiginma\u00f0ur Heddu er ekki \u00f6fundsver\u00f0ur af hlutverki s\u00ednu. Fagma\u00f0ur, sem hef\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 \u00e1tt a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 lifa \u00ed skj\u00f3li J\u00fallu fr\u00e6nku, f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta athygli og \u00e1star og geta helga\u00f0 l\u00edf sitt \u00f3\u00e1reittur lestri og fr\u00e6\u00f0ist\u00f6rfum. \u00cd sta\u00f0inn situr hann uppi me\u00f0 kr\u00f6fuhar\u00f0a, \u00f3bilgjarna eiginkonu, sem vir\u00f0ir hann einskis, nema hann geti skaffa\u00f0 vel og haldi\u00f0 uppi \u00f3breyttum l\u00edfsst\u00edl. Valur Freyr s\u00e9st h\u00e9r \u00ed n\u00fdju lj\u00f3si, allt \u00ed einu svo l\u00edtill s\u00e9r, blj\u00fagur og au\u00f0sveipur. Ma\u00f0ur fer a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed, a\u00f0 Valur Freyr s\u00e9 svona \u00ed raun og veru, og \u00fea\u00f0 segir eiginlega allt um fr\u00e1b\u00e6ra framg\u00f6ngu hans.<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e1 er bara eftir a\u00f0 geta Ellerts (mj\u00f6g algengt nafn \u00ed minni fj\u00f6lskyldu), hins fallvalta alk\u00f3h\u00f3lista, sem Hedda dregur \u00e1 t\u00e1lar en hendir s\u00ed\u00f0an. Alk\u00f3h\u00f3listar mega ekki vi\u00f0 sl\u00edkum \u00e1f\u00f6llum. \u00cd sm\u00e1b\u00e6jarillkvittninni kremst hann undir og \u00e1 s\u00e9r ekki vi\u00f0reisnar von, jafnvel \u00fe\u00f3tt hann skrifi hverja mets\u00f6lub\u00f3kina \u00e1 f\u00e6tur annarri. Ellert er l\u00edka f\u00f3rnarlamb \u201cp\u00fakans, sem Hedda r\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0\u201d.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e6tla\u00f0i satt a\u00f0 segja ekki a\u00f0 \u00feekkja Stef\u00e1n Hall aftur, hafandi s\u00e9\u00f0 hann \u00ed hinum \u00f3l\u00edklegustu hlutverkum. H\u00e9r birtist gl\u00e6simenni\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur var, okkur \u00e1 svi\u00f0inu, \u00f6gn \u00feungur og luralegur, svo\u00edti\u00f0 sveit\u00f3, n\u00fdkominn a\u00f0 nor\u00f0an, aumkunarver\u00f0ur daginn eftir fyllirii\u00f0, \u00f3\u00feekkjanlegur \u00ed ni\u00f0url\u00e6gingunni. Stef\u00e1n er l\u00edka einn af \u00feeim, sem fer \u00e6 meir fyrir b\u00e6\u00f0i \u00ed kvikmyndum og \u00e1 leiksvi\u00f0i. \u00c9g \u00f3tta\u00f0ist kannski, a\u00f0 hann mundi festast \u00ed hlutverkum s\u00e6tu, kl\u00e1ru g\u00e6janna, en \u00fearna f\u00e6r hann a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 ver\u00f0uga pers\u00f3nu, sem gefur honum f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 kafa inn \u00ed s\u00e1larl\u00edf \u00f6rvingla\u00f0s manns. Fr\u00e1b\u00e6rt.<\/p>\n<p>Leikmynd Finns Arnars Arnarsonar og l\u00fdsing Halld\u00f3rs Arnar \u00d3skarssonar er gl\u00e6sileg, og h\u00e6fir vel yfirst\u00e9ttarfj\u00f6lskyldu \u00ed norsku \u00feorpi \u2013 t\u00edmalaus, og g\u00e6ti \u00feess vegna veri\u00f0 \u00ed n\u00fdlegri villu \u00ed Grafarholti. Mikill elegans yfir brei\u00f0um stiga upp \u00e1 lofti\u00f0 og glervegg, sem skilur \u00e1 milli stofu og svala. St\u00edlhreint og \u00fe\u00e6gilegt fyrir auga\u00f0.<\/p>\n<p>T\u00f3nlistin er l\u00edka mj\u00f6g spennandi. Bar\u00f0i J\u00f3hannsson fylgir eftir st\u00edgandi verksins, og t\u00f3nlistin ver\u00f0ur \u00e6 magna\u00f0ri, efti \u00fev\u00ed sem dj\u00f6fulskapurinn eykst. \u00dea\u00f0 l\u00e1 vi\u00f0, a\u00f0 ma\u00f0ur hrykki af hj\u00f6runum, \u00feegar skoti\u00f0 rei\u00f0 af og t\u00f3nlistin fjara\u00f0i \u00fat.<\/p>\n<p>Me\u00f0 stuttu millibili tv\u00f6 s\u00edgild meistaraverk \u00e1 fj\u00f6lum \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins \u2013 Ibsen og s\u00ed\u00f0ari t\u00edma l\u00e6risveinn hans, Arthur Miller. Ekki ver\u00f0ur sagt, a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasstj\u00f3rann okkar vanti metna\u00f0. \u00c9g \u00f3ska henni til hamingju me\u00f0 kraftmikinn og djarfan leikstj\u00f3ra, Krist\u00ednu Eysteinsd\u00f3ttur.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdnir HEDDA GABLER eftir Henrik Ibsen<br \/>\nLeikstj\u00f3rn: Krist\u00edn Eysteinsd\u00f3ttir<br \/>\n\u00de\u00fd\u00f0ing og dramat\u00farg\u00eda: Bjarni J\u00f3nsson<br \/>\nLeikmynd: Finnur Arnar Arnarsson<br \/>\nB\u00faningar: Filipp\u00eda I. El\u00edsd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlist: Bar\u00f0i J\u00f3hannsson<br \/>\nL\u00fdsing: Halld\u00f3r \u00d6rn \u00d3skarsso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-128","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/128","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=128"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/128\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":567,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/128\/revisions\/567"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=128"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=128"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=128"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}