{"id":130,"date":"2011-03-08T00:00:00","date_gmt":"2011-03-08T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/08\/af-draumorum-og-dadurrosum-draumur-a-jonsmessunott\/"},"modified":"2020-09-23T09:06:21","modified_gmt":"2020-09-23T09:06:21","slug":"af-draumorum-og-dadurrosum-draumur-a-jonsmessunott","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/08\/af-draumorum-og-dadurrosum-draumur-a-jonsmessunott\/","title":{"rendered":"Af draum\u00f3rum og da\u00f0urr\u00f3sum &#8211; Draumur \u00e1 J\u00f3nsmessun\u00f3tt"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-338\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2011\/03\/draumorum.jpg\"><br>\nMR<\/center><p><\/p>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 eiga uppt\u00f6k s\u00edn \u00ed plastinu er Nor\u00f0urp\u00f3llinn h\u00e1lfger\u00f0ur \u00e6vint\u00fdraheimur. Hver ranghalinn \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum, lj\u00f3st\u00fdrur \u00ed dularfullum sk\u00famaskotum og l\u00e1gv\u00e6rt \u00f6ldugj\u00e1lfur vi\u00f0 t\u00fanf\u00f3tinn. Mj\u00f6g vi\u00f0eigandi entr\u00e9e a\u00f0 \u00e6vint\u00fdrinu, sem Shakespeare skrifa\u00f0i fyrir okkur endur fyrir l\u00f6ngu um dint\u00f3tta bokka og da\u00f0randi heillad\u00edsir, sem hafa nautn af \u00fev\u00ed a\u00f0 str\u00ed\u00f0a mannf\u00f3lkinu og koma \u00fev\u00ed \u00ed bobba.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00deetta er svo sem ekkert n\u00fdtt fyrir okkur \u00cdslendinga, vi\u00f0 h\u00f6fum alla t\u00ed\u00f0 tr\u00faa\u00f0 \u00e1 \u00e1lfa \u2013 og gerum enn. Hva\u00f0 segir ekki \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0v\u00edsunni? \u00d3lafur rei\u00f0 me\u00f0 bj\u00f6rgum fram, villir hann, stillir hann. \u2013 Hitti hann fyrir s\u00e9r \u00e1lfam\u00e6r, \u00fear rau\u00f0ur loginn brann. \u2013 Og s\u00ed\u00f0ar \u00ed sama kv\u00e6\u00f0i tekur \u00d3lafur \u00e1skorun \u00e1flkonunnar \u2013 gakk \u00ed bj\u00f6rg og b\u00fa me\u00f0 oss. \u2013 Sumir sneru aftur til mannheima, a\u00f0rir komu aldrei til baka.<\/p>\n<p>Leikriti\u00f0 heitir Draumur og gerist \u00e1 J\u00f3nsmessun\u00f3tt. Jafnvel n\u00fat\u00edmakonur \u00e1 \u00cdslandi ba\u00f0a sig \u00ed d\u00f6gginni \u00e1 J\u00f3nsmessun\u00f3tt til \u00feess a\u00f0 endurheimta meyd\u00f3minn. \u00c1 milli draums og v\u00f6ku sveiflast \u00fe\u00e6r \u00far einum heimi \u00ed annan, lostafullar og l\u00e6v\u00edsar, leitandi a\u00f0 fullkomnun \u00ed \u00e1st sinni og hatri. \u00dea\u00f0 heitir a\u00f0 vera \u00ed \u00e1l\u00f6gum, alveg eins og Herm\u00eda, Helena og T\u00edtan\u00eda voru \u00ed \u00e1l\u00f6gum Bokka og vissu ekki \u00ed \u00feennan heim n\u00e9 annan \u2013 l\u00f6g\u00f0u jafnvel \u00e1st \u00e1 asna.<\/p>\n<p>Svo a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 leita langt. Draumur \u00e1 J\u00f3nsmessun\u00f3tt g\u00e6ti veri\u00f0 okkar eiginn.<\/p>\n<p>Shakespeare var r\u00famlega \u00fer\u00edtugur, \u00feegar hann skrifa\u00f0i \u00feetta s\u00edvins\u00e6la verk.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er sagt, a\u00f0 hann hafi sami\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 bei\u00f0ni vinar \u00ed giftingarhuglei\u00f0ingum. \u00c6sku\u00fer\u00f3ttur og fj\u00f6rugt \u00edmyndunarafl r\u00e1\u00f0a f\u00f6r. Shakespeare gefur sj\u00e1lfum s\u00e9r lausan tauminn, \u00fea\u00f0 er engu l\u00edkara en a\u00f0 hann s\u00e9 a\u00f0allega a\u00f0 skemmta sj\u00e1lfum s\u00e9r \u2013 og jafnvel skrattanum \u00e1 stundum. Hva\u00f0 er \u00e1st? Hva\u00f0 eru frj\u00e1lsar \u00e1stir? Og hva\u00f0 er a\u00f0 vera \u00e1st fanginn? Hann l\u00e6tur gamminn geysa og allt flakka. Ekkert heilagt, gerir gr\u00edn, gantast og gefur undir f\u00f3tinn.<\/p>\n<p>Sagan er \u00ed raun f\u00e1r\u00e1nleg, en textinn er safar\u00edkur og fer vel \u00ed munni. Jafnvel \u00ed munni amat\u00f6ra. Og hva\u00f0 voru leikarar \u00e1 t\u00edmum Shakespeares svo sem anna\u00f0 en amat\u00f6rar \u2013 athyglissj\u00fakir \u00e1hugamenn, sem fengu \u00fatr\u00e1s \u00ed skj\u00f3li leiksk\u00e1ldsins? Kannski var \u00feetta leikrit einmitt skrifa\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed huga, \u00fev\u00ed a\u00f0 hinn mennta\u00f0i leikari fer \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt a\u00f0 leita d\u00fdpri merkingar \u00ed texta, sem fl\u00e6\u00f0ir fram \u00e1 valdi tilfinninganna, og getur hugsanlega afskr\u00e6mt hann.<\/p>\n<p>\u00c1 t\u00edmum Shakespeares leyf\u00f0ist konum ekki a\u00f0 st\u00edga \u00e1 leiksvi\u00f0. Karlmenn ur\u00f0u \u00fev\u00ed a\u00f0 breg\u00f0a s\u00e9r \u00ed kvenhlutverkin og n\u00e1\u00f0u margir hverjir miklum frama sem sl\u00edkir. En \u00e9g er fegin \u00fev\u00ed, a\u00f0 sl\u00edku banni skuli afl\u00e9tt \u00ed n\u00fat\u00edmanum, \u00fev\u00ed a\u00f0 barmmiklar og lendapr\u00fa\u00f0ar konur kveikja sl\u00edkan f\u00edtonskraft \u00ed \u00e6\u00f0um str\u00e1kanna, sem hlaupa r\u00e1villtir fram og til baka um svi\u00f0i\u00f0, a\u00f0 s\u00fdningin hef\u00f0i ekki or\u00f0i\u00f0 svipur hj\u00e1 sj\u00f3n, ef \u00feeirra hef\u00f0i ekki noti\u00f0 vi\u00f0. Lostafull fegur\u00f0 \u00feeirra, sveipu\u00f0 silki og siffoni, sv\u00edfur \u00e1 mann eins og \u00e1fengt \u00f6l \u2013 hva\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 blessa\u00f0a \u00f3\u00feroska\u00f0a drengina \u00e1 svi\u00f0inu? \u00c9g er svo sem ekki a\u00f0 segja, a\u00f0 drengirnir hafi ekki veri\u00f0 kyn\u00feokkafullir l\u00edka, en \u00feeir voru meira \u00ed v\u00f6rn en s\u00f3kn, ef svo m\u00e1 segja.<\/p>\n<p>Leikendur \u00ed s\u00fdningu Herran\u00e6tur eru um fj\u00f6rut\u00edu talsins \u2013 fyrir utan alla \u00fe\u00e1, sem l\u00f6g\u00f0u h\u00f6nd \u00e1 pl\u00f3ginn og l\u00e9tu drauminn r\u00e6tast, sm\u00ed\u00f0u\u00f0u leiktj\u00f6ld, saumu\u00f0u b\u00faninga, skreyttu leikendur og greiddu h\u00e1r \u00feeirra, \u00fatbjuggu leikskr\u00e1 og s\u00f6mdu t\u00f3nlist. \u00dea\u00f0 er \u00f3tr\u00falegt a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r, hva\u00f0 leiklistin heillar og hverju samheldinn h\u00f3pur ungmenna f\u00e6r \u00e1orka\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er greinilegt, a\u00f0 leikstj\u00f3rinn, Gunnar Helgason, hefur lagt mikla vinnu \u00ed uppf\u00e6rsluna og beitt b\u00e6\u00f0i skynsemi og \u00edmyndunarafli til a\u00f0 gefa henni l\u00edf og lit. Frams\u00f6gn leikenda er yfirleitt sk\u00fdr og \u00feeim tekst flestum a\u00f0 koma bundnum texta til skila til \u00e1horfenda, sem margir hverjir eru a\u00f0 heyra hann \u00ed fyrsta sinn.Leikendur ver\u00f0a a\u00f0 skilja sj\u00e1lfir \u00fea\u00f0, sem \u00feeir eru a\u00f0 segja. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 grundvallatri\u00f0i.<\/p>\n<p>Leikurinn einkenndist \u00ed heild af miklu fj\u00f6ri og gle\u00f0i, sem smitar \u00fat \u00ed salinn.\u00c9g nefni engin n\u00f6fn, en \u00fea\u00f0 er greinilegt, a\u00f0 fleiri en einn og fleiri en tvo \u00feeirra eigum vi\u00f0 eftir a\u00f0 sj\u00e1 aftur \u00e1 leiksvi\u00f0um borgarinnar \u00ed framt\u00ed\u00f0inni.<\/p>\n<p>Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur finnst m\u00e9r, a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i m\u00e1tt \u00fe\u00e9tta s\u00fdninguna, klippa textann og stytta hl\u00e9in. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i a\u00f0 v\u00edsu bitna\u00f0 \u00e1 t\u00f3nlistinni, sem Kristj\u00e1n Norland ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 og er aldeilis yndisleg, spilu\u00f0 af fingrum fram. En stytting er alltaf til b\u00f3ta. Efni\u00f0 skilar s\u00e9r betur.<br>\nLeikmynd og b\u00faningar eru heillandi \u00ed einfaldleik s\u00ednum, og geri \u00e9g r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 dempu\u00f0 l\u00fdsing eigi sinn \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 gera gott \u00far \u00f6llu. Svo finnst m\u00e9r, a\u00f0 h\u00f3purinn hlj\u00f3ti a\u00f0 hafa veri\u00f0 heppinn a\u00f0 f\u00e1 Krist\u00ednu Berman til li\u00f0s vi\u00f0 sig, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan lj\u00e6r s\u00fdningunni anda \u00e1starv\u00edmu \u00fe\u00fasund og einnar n\u00e6tur.<\/p>\n<p>Gunni fr\u00e6ndi m\u00e1 vera \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 uppskeruna.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Herran\u00f3tt \u00ed Nor\u00f0urp\u00f3lnum setur upp Draumur \u00e1 J\u00f3nsmessun\u00f3tt eftir William Shakespeare<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Gunnar Helgason<br \/>\n\u00datlitsh\u00f6nnun: Krist\u00edna Berman<br \/>\nA\u00f0sto\u00f0arleikstj\u00f3ri: Helga Hvanndal Brj\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlist: Kristj\u00e1n Norland<br \/>\nLeikendur: Nemendur \u00ed Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00ed<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-130","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/130","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=130"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/130\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":570,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/130\/revisions\/570"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=130"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=130"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=130"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}