{"id":131,"date":"2011-03-07T00:00:00","date_gmt":"2011-03-07T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/07\/stridssagan-allir-synir-minir-meistaraverk-millers\/"},"modified":"2020-09-23T09:06:33","modified_gmt":"2020-09-23T09:06:33","slug":"stridssagan-allir-synir-minir-meistaraverk-millers","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/03\/07\/stridssagan-allir-synir-minir-meistaraverk-millers\/","title":{"rendered":"Str\u00ed\u00f0ssagan Allir synir m\u00ednir: Meistaraverk Millers"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"203\" class=\"alignnone size-full wp-image-78\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/stridssagan.jpg\"><br>\nFr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu<\/center><p><\/p>\n<p>\u00c9g bj\u00f3 \u00ed Bandar\u00edkjunum um fimm \u00e1ra skei\u00f0 fyrir og eftir seinustu aldam\u00f3t. \u00de\u00e1 var Arthur Miller enn \u00e1 l\u00edfi, h\u00e1aldra\u00f0ur ma\u00f0ur, f\u00e6ddur \u00e1ri\u00f0 1915. \u00d6\u00f0ru hverju birtust vi\u00f0t\u00f6l vi\u00f0 \u00f6ldunginn \u00ed t\u00edmaritum og helgarbl\u00f6\u00f0um, \u00fear sem hann var enn a\u00f0 l\u00e1ta gamminn geysa og velta s\u00e9r upp \u00far spurningum um mannleg gildi, samf\u00e9lagslega \u00e1byrg\u00f0, r\u00e9ttl\u00e6ti, rangl\u00e6ti, sekt og sakleysi. Hann var h\u00e1p\u00f3lit\u00edskur, \u00e1str\u00ed\u00f0ufullur \u2013 og enn uppfullur af gagnr\u00fdni \u00e1 bandar\u00edskt samf\u00e9lag.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 kom fram \u00ed \u00feessum vi\u00f0t\u00f6lum, a\u00f0 hann byggi \u00e1 r\u00e1nd\u00fdru dvalarheimili eldri borgara, \u00fear sem saman voru komnir margir \u00f6flugustu sona og d\u00e6tra Bandar\u00edkjanna, fyrrverandi stj\u00f3rnm\u00e1lamenn, menningarpostular, rith\u00f6fundar og heimspekingar. Gott ef hinn fr\u00e6gi r\u00e6\u00f0uskrifari Kennedys, Theodor S\u00f6rensen, var ekki einn af \u00feeim. (\u201cSpyr\u00f0u ekki, hva\u00f0 land \u00feitt getur gert fyrir \u00feig, spyr\u00f0u hva\u00f0 \u00fe\u00fa getir gert fyrir land \u00feitt \u2013 muni\u00f0i?)<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst \u00feetta hlj\u00f3ta a\u00f0 vera mj\u00f6g skemmtilegt l\u00edf \u00ed ellinni, umr\u00e6\u00f0an h\u00e9ldi \u00e1fram \u00fer\u00e1tt fyrir breyttar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, menn v\u00e6ru a\u00f0 leysa l\u00edfsg\u00e1tuna alveg fram \u00ed rau\u00f0an dau\u00f0ann. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 spila bridge e\u00f0a sl\u00e1 keilur og k\u00falur, \u00fe\u00e1 v\u00e6ru heilasellurnar virkja\u00f0ar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 hugsa, \u00ferasa, \u00fer\u00e1tta og \u00fer\u00e6ta. M\u00e9r fannst \u00e9g alveg geta hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 ey\u00f0a ellinni \u00e1 svona sta\u00f0 og stunda hugarleikfimi me\u00f0 svona g\u00e6jum!<\/p>\n<p>Arthur Miller var upphaflega gy\u00f0ingastr\u00e1kur fr\u00e1 Brooklyn. Hann var bara unglingur, \u00feegar kreppan mikla rei\u00f0 yfir og fj\u00f6lskyldan var\u00f0 gjald\u00ferota. Fa\u00f0ir hans missti fyrirt\u00e6ki \u00ed fatabransanum, sem hann haf\u00f0i byggt upp h\u00f6r\u00f0um h\u00f6ndum, og gat ekki lengur styrkt b\u00f6rnin s\u00edn til n\u00e1ms. \u00deessi bitra reynsla vir\u00f0ist hafa brennimerkt Arthur Miller fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0. Allt sem hann l\u00e9t fr\u00e1 s\u00e9r fara \u00e1 sinni l\u00f6ngu \u00e6vi var spunni\u00f0 \u00fat fr\u00e1 \u00feessari d\u00fdrkeyptu reynslu unglings\u00e1ranna.<\/p>\n<p>Fyrsta verk hans, sem sl\u00f3 r\u00e6kilega \u00ed gegn (og f\u00e6r\u00f0i honum millj\u00f3nir \u00ed vasann), var S\u00f6luma\u00f0ur deyr. \u00de\u00e1 var hann r\u00e9tt \u00fer\u00edtugur a\u00f0 aldri. \u00c9g man, hva\u00f0 \u00feetta verk haf\u00f0i mikil \u00e1hrif \u00e1 mig, \u00feegar \u00e9g s\u00e1 \u00fea\u00f0 sem unglingur m\u00f6rgum \u00e1rum seinna. \u00c1 minni stuttu \u00e6vi haf\u00f0i \u00e9g aldrei \u00e1tt \u00feess kost a\u00f0 kafa svo dj\u00fapt inn \u00ed fylgsni s\u00e1larinnar, barni\u00f0 \u00ed m\u00e9r haf\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 aldrei upplifa\u00f0 \u00fe\u00e1 dj\u00fapu, h\u00f6mlulausu \u00f6rv\u00e6ntingu, \u00f3tta og vonleysi, sem leiddi \u00e1 lokum til dau\u00f0a hins l\u00e1nlausa f\u00f6\u00f0ur \u00ed mi\u00f0ri kreppu. \u00c9g var \u00f6r\u00fereytt \u00e1 s\u00e1l og l\u00edkama, \u00feegar \u00e9g st\u00f3\u00f0 upp \u00ed lokin og gekk \u00fat \u00ed grunlausa hversdagstilveruna \u00e1 n\u00fd. Og einhvern veginn \u00feannig var m\u00e9r l\u00edka innanbrj\u00f3sts, \u00feegar \u00e9g yfirgaf leikh\u00fasi\u00f0 \u00e1 laugardagskv\u00f6ldi\u00f0 (2. s\u00fdning).<\/p>\n<p>Allir synir m\u00ednir eru str\u00ed\u00f0sgr\u00f3\u00f0asaga. \u00c1 sama t\u00edma og Evr\u00f3pa, R\u00fassland, Japan og K\u00edna voru l\u00f6g\u00f0 \u00ed r\u00fast, gr\u00e6ddu Bandar\u00edkjamenn (eins og \u00cdslendingar) \u00e1 t\u00e1 og fingri \u00e1 seinni heimsstyrj\u00f6ldinni. \u00c1 sama t\u00edma og ungir menn voru kvaddir \u00ed herinn til a\u00f0 deyja fyrir f\u00f6\u00f0urlandi\u00f0, r\u00f6ku\u00f0u gamlir menn saman st\u00f3rgr\u00f3\u00f0a af \u00fev\u00ed a\u00f0 framlei\u00f0a og selja vopn og \u00f6nnur v\u00edgt\u00f3l. \u201cHvers konar ma\u00f0ur ert \u00fe\u00fa eiginlega, \u00e1ttu \u00fe\u00e9r ekkert f\u00f6\u00f0urland?\u201d \u2013 spyr Chris f\u00f6\u00f0ur sinn \u00ed uppgj\u00f6rinu undir lokin. J\u00e1, einmitt. Kapitalisminn vir\u00f0ir engin landam\u00e6ri. Hann \u00e1 s\u00e9r ekkert f\u00f6\u00f0urland anna\u00f0 en gr\u00f3\u00f0af\u00edknina. \u00cd \u00feeim gr\u00e1a leik er allur heimurinn v\u00edgv\u00f6llurinn.<\/p>\n<p>Joe Keller, fa\u00f0irinn, er einn \u00feessara str\u00ed\u00f0sgr\u00f3\u00f0amanna. Hann selur varahluti \u00ed flugv\u00e9lar. Hann veit, a\u00f0 \u00ed \u00feeim leynast gallar, sem hann felur vitandi vits, \u00fe\u00f3tt \u00feeir geti valdi\u00f0 dau\u00f0a fj\u00f6lda flugmanna. En Joe og Kate (kona hans) eiga tvo syni, sem b\u00e1\u00f0ir voru kvaddir \u00ed herinn. Annar \u00feeirra var flugma\u00f0ur, sem sneri aldrei til baka. En hann flaug aldrei F-15, var \u00fea\u00f0?<\/p>\n<p>Joe er holdgervingur amer\u00edska draumsins. Hann gr\u00e6\u00f0ir \u00e1 daginn og grillar \u00e1 kv\u00f6ldin. Hann gengur svo langt \u00ed gr\u00e6\u00f0ginni, a\u00f0 hann v\u00edlar ekki fyrir s\u00e9r a\u00f0 stofna l\u00edfi annarra \u00ed h\u00e6ttu. A\u00f0 eigin \u00e1liti ber hann enga \u00e1byrg\u00f0 \u2013 ekki frekar en \u00feessir 147 einstaklingar \u00ed \u00e1byrg\u00f0arst\u00f6\u00f0um \u00e1 \u00cdslandi, sem sannleiksnefndin okkar yfirheyr\u00f0i eftir hrun og allir sem einn v\u00edsu\u00f0u fr\u00e1 s\u00e9r allri \u00e1byrg\u00f0. Ditto me\u00f0 Joe. Hann skelllir skuldinni \u00e1 alla a\u00f0ra \u2013 og var s\u00fdkna\u00f0ur fyrir d\u00f3mi. Undirma\u00f0ur hans var sekur fundinn \u00ed hans sta\u00f0.<\/p>\n<p>En s\u00f6k b\u00edtur sekan. Vitneskjan um \u00feetta \u00f3d\u00e6\u00f0isverk \u00e1s\u00e6kir fj\u00f6lskylduna og l\u00e6tur hana ekki \u00ed fri\u00f0i. \u00deeir sem f\u00f3rust, g\u00e1tu \u00feess vegna veri\u00f0 \u201callir synir m\u00ednir\u201d. M\u00e1lsv\u00f6rn Joes (hins amer\u00edska kapitalisma) er einf\u00f6ld: \u201c\u00dei\u00f0 vildu\u00f0 peningana, ekki satt?\u201d Hann endurtekur spurninguna \u00ed s\u00edbylju \u2013 og sv\u00f6rin eru afhj\u00fapandi. \u2013 \u00dar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fe\u00f6g\u00f0u\u00f0 og \u00fe\u00e1\u00f0u\u00f0 peningana, eru\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00f6ll samsek.<\/p>\n<p>H\u00e9r gefst \u00edslenskum leikh\u00fasgestum eftir hrun kj\u00f6ri\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 l\u00edta \u00ed spegil. A\u00f0eins me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera miskunnarlaust upp vi\u00f0 \u00feessa fort\u00ed\u00f0, getur okkar litla fj\u00f6lskylda (\u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0) losa\u00f0 sig \u00far \u00f3s\u00fdnilegum, en \u00f3sl\u00edtanlegum fj\u00f6trum l\u00edfslygi og sj\u00e1lfsblekkingar, sem eitrar l\u00edf okkar. Og reynt a\u00f0 byrja n\u00fdtt l\u00edf \u00e1 traustari grunni.<\/p>\n<p>Hv\u00edl\u00edkt drama. Hv\u00edl\u00edkt meistaraverk!<\/p>\n<p>S\u00fdning \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins \u00e1 \u00feessu meistaraverki Arthurs Miller er \u00e1hrifamikil, \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera beint gl\u00e6sileg \u2013 enda \u00fev\u00ed skyldi h\u00fan vera \u00fea\u00f0? Leikstj\u00f3rinn, Stef\u00e1n Baldursson, tekur mj\u00f6g skynsamlega afst\u00f6\u00f0u, hann er vark\u00e1r og g\u00e6tir \u00feess a\u00f0 ofgera ekki ungum leikurum. Fr\u00e1 \u00fev\u00ed tjaldi\u00f0 er dregi\u00f0 fr\u00e1, r\u00edkir \u00fer\u00fagandi \u00f3tti og sektarkennd \u00ed loftinu. Keller fj\u00f6lskyldan engist eins og d\u00fdr \u00ed fj\u00f6trum. L\u00edf hennar sn\u00fdst um \u00fea\u00f0 a\u00f0 hylma yfir, afskr\u00e6ma, lj\u00faga a\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r og gera a\u00f0ra samseka \u00ed afneituninni. \u00dea\u00f0 er leiki\u00f0 \u00e1 l\u00e1gu n\u00f3tunum, \u00ed upphafi ofurh\u00e6gt, en sm\u00e1m saman magnast temp\u00f3i\u00f0 og springur \u00ed uppgj\u00f6ri fe\u00f0ganna. Afhj\u00fapunin a\u00f0 leikslokum er miskunnarlaus, og kemur vi\u00f0 kaunin \u00e1 okkur \u00f6llum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 \u00fearf st\u00f3rleikara til a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 svona st\u00f3rbroti\u00f0 verk, og m\u00e9r finnst \u00e9g geta sagt me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri samvisku, a\u00f0 leikarar, allir sem einn, skilu\u00f0u s\u00ednu vel og skilmerkilega, \u00e1n \u00feess \u00fe\u00f3 endilega a\u00f0 s\u00fdna stj\u00f6rnuleik.<\/p>\n<p>J\u00f3hanni Sigur\u00f0arsyni tekst a\u00f0 draga upp tr\u00faver\u00f0uga mynd af holdgervingi hins amer\u00edska draums, hvort heldur er \u00ed yfirbor\u00f0slegri sj\u00e1lfs\u00e1n\u00e6gju hans e\u00f0a \u00ed \u00e1takanlegri sj\u00e1lfsme\u00f0aumkun, \u00feegar sannleikurinn ver\u00f0ur ekki lengur umfl\u00fainn.<\/p>\n<p>Bj\u00f6rn Thors \u00ed hlutverki hins eftirlifandi sonar og erfingja einkafyrirt\u00e6kisins kemur \u00fev\u00ed vel til skila, hvernig hi\u00f0 \u00fer\u00fagandi farg fort\u00ed\u00f0arinnar gr\u00fafir yfir tilverunni. Framan af lifir hann \u00ed afneitun og \u00fatilokun, en nagandi grunsemdin l\u00e6tur hann ekki \u00ed fri\u00f0i. S\u00fa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hans a\u00f0 vilja a\u00f0 ganga a\u00f0 eiga fyrrum k\u00e6rustu (Arnbj\u00f6rg Hl\u00edf Valsd\u00f3ttir) br\u00f3\u00f0ur s\u00edns, sem aldrei sneri heim \u00far seinustu sprengju\u00e1r\u00e1sinni, hrindir atbur\u00f0ar\u00e1sinni af sta\u00f0. \u00dear me\u00f0 opnast g\u00e1ttir helv\u00edtis. \u00dea\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur \u00e1tti a\u00f0 vera gleymt og grafi\u00f0, r\u00eds upp eins og draugur \u00far fort\u00ed\u00f0inni og ney\u00f0ir alla sem hlut eiga a\u00f0 m\u00e1li, til a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 sannleikann. Arnbj\u00f6rg Hl\u00edf kemur vel fyrir, laus vi\u00f0 alla tilger\u00f0, sk\u00fdrm\u00e6lt og sk\u00f6rugleg.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var kominn t\u00edmi til a\u00f0 Gu\u00f0r\u00fan Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur G\u00edslad\u00f3ttir fengi aftur a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 ver\u00f0ug vi\u00f0fangsefni. \u00dearna kom a\u00f0 \u00fev\u00ed. Gl\u00e6sileg leikkona me\u00f0 sterka n\u00e6rveru. Henni tekst vel a\u00f0 koma til skila blindri afneitun m\u00f3\u00f0urinnar, umhyggju hennar fyrir velfer\u00f0 fj\u00f6lskyldunnar, og \u00f3bilgj\u00f6rnu r\u00e1\u00f0r\u00edki, sem birtist \u00ed skilyr\u00f0islausri kr\u00f6fu um, a\u00f0 allir a\u00f0rir taki \u00fe\u00e1tt \u00ed l\u00edfslyginni \u2013 \u00e1 hennar forsendum.<\/p>\n<p>\u00d6nnur hlutverk eru minni, en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur mikilv\u00e6g, til a\u00f0 koma til skila \u00feeim a\u00f0st\u00e6\u00f0um, sem r\u00edkja \u00e1 heimilinu og me\u00f0 n\u00e1gr\u00f6nnum. M\u00e9r finnst alveg kominn t\u00edmi til a\u00f0 treysta Eddu Arnlj\u00f3tsd\u00f3ttur fyrir einhverju \u00f6\u00f0ru og meira en amr\u00edskum e\u00f0a \u00edslenskum eldh\u00fasmellum.<\/p>\n<p>Svo skildi \u00e9g ekki alveg, hvers vegna l\u00e6knir (Baldur Trausti Hreinsson) \u00far leikriti eftir Chekov var a\u00f0 venja komur s\u00ednar \u00e1 heimili Keller fj\u00f6lskyldunnar. \u00d3sk\u00f6p sjarmerandi og notalegur, en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00e1 skj\u00f6n vi\u00f0 megins\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0inn. (Heimilisl\u00e6knirinn haf\u00f0i a\u00f0 v\u00edsu l\u00e1ti\u00f0 sig dreyma um a\u00f0 \u00fej\u00f3na v\u00edsindunum \u00ed ranns\u00f3knarstofunni. Annar draumur sem ekki r\u00e6ttist.)<\/p>\n<p>\u00c9g var heldur ekki fullkomlega s\u00e1tt vi\u00f0 leikmynd Gr\u00e9tars Reynissonar. H\u00fan gaf einhvern veginn \u00ed skyn, a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum st\u00f6dd \u00ed Mid-West, ma\u00f0ur horf\u00f0i \u00fat \u00e1 endalausa gr\u00e6na sl\u00e9ttu, eins og vi\u00f0 v\u00e6rum ein \u00ed heiminum, fjarri manna bygg\u00f0. Samt voru n\u00e1grannarnir a\u00f0 r\u00e1pa inn og \u00fat, kl\u00e6ddir stuttum pilsum og \u00e1 h\u00e1um h\u00e6lum eins og \u00fathverfaborgarar. \u00c1tti \u00feetta ekki a\u00f0 gerast \u00ed verksmi\u00f0juborg, eins konar Detroit? Og af hverju \u00feurftu leikararnir a\u00f0 f\u00f3ta sig \u00e1 hallandi svi\u00f0sg\u00f3lfi allan t\u00edmann?<\/p>\n<p>Hins vegar fannst m\u00e9r \u00fe\u00fd\u00f0ing Hrafnhildar Hagal\u00edn koma hversdagsm\u00e1li s\u00f6gupers\u00f3na vel til skila og \u00fdkjulaust, eins og v\u00e6nta m\u00e1 fr\u00e1 svo g\u00f3\u00f0um rith\u00f6fundi, sem h\u00fan er. Og G\u00edsli Galdur galdrar fram h\u00f3gv\u00e6r hlj\u00f3\u00f0, sem gefa s\u00fdningunni dramat\u00edskan undirt\u00f3n.<\/p>\n<p>\u00deesssi volduga s\u00fdning stendur \u00ed \u00ferj\u00e1 heila t\u00edma me\u00f0 einu hl\u00e9i. Um lei\u00f0 og leikh\u00fasgestir \u00fe\u00f6kku\u00f0u leikendum fyrir g\u00f3\u00f0a s\u00fdningu, var m\u00e9r efst \u00ed huga hv\u00edl\u00edkt meistaraverk \u00feetta leikrit er. S\u00edgilt drama um mannlegan breiskleika og \u00f3v\u00e6gin afhj\u00fapun \u00e1 \u00e1fer\u00f0arfallegum s\u00fdndarveruleika \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lags, sem lifir \u00ed blekkingu um eigi\u00f0 \u00e1g\u00e6ti, en undir yfirbor\u00f0inu er veruleikinn allur annar, har\u00f0ur og miskunnarlaus. Meistarverk, sem \u00e1 erindi vi\u00f0 okkur \u00f6ll.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdnir: Allir synir m\u00ednir eftir Arthur Miller<br \/>\n\u00de\u00fd\u00f0ing: Hrafnhildur Hagal\u00edn<br \/>\nLeikjst\u00f3ri: Stef\u00e1n Baldursson<br \/>\nLeikmynd: Gr\u00e9tar Reynisson<br \/>\nB\u00faningar: \u00de\u00f3runn Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlist: G\u00edsli Galdur \u00deorgeirsson<br \/>\nL\u00fdsing: L\u00e1rus Bj\u00f6rnsson<br \/>\nLeikendur: J\u00f3hann Sigur\u00f0arson, Gu\u00f0r\u00fan Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur G\u00edslad\u00f3ttir, Bj\u00f6rn Thors, Arnbj\u00f6rg Hl\u00edf Valsd\u00f3ttir, Atli Rafn Sigur\u00f0arson, Baldur Trausti Hreinsson, Edda Arnlj\u00f3tsd\u00f3ttir, Hannes \u00d3li \u00c1g\u00fastsson, Vid\u00eds Hrefna P\u00e1lsd\u00f3ttir, Hringur Ingvarsson og Grettir Valsson<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-131","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/131","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=131"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/131\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":571,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/131\/revisions\/571"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=131"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=131"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=131"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}