{"id":132,"date":"2011-02-06T00:00:00","date_gmt":"2011-02-06T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/02\/06\/ballid-a-bessastodum-landnamshaenur-og-lour-i-hladvarpanum\/"},"modified":"2020-09-23T09:07:06","modified_gmt":"2020-09-23T09:07:06","slug":"ballid-a-bessastodum-landnamshaenur-og-lour-i-hladvarpanum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/02\/06\/ballid-a-bessastodum-landnamshaenur-og-lour-i-hladvarpanum\/","title":{"rendered":"Balli\u00f0 \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um: Landn\u00e1msh\u00e6nur og l\u00f3ur \u00ed hla\u00f0varpanum"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"203\" class=\"alignnone size-full wp-image-24\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/ballid.jpg\"><br>\n\u00de\u00f3runn Arna Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir og J\u00f3hannes Haukur J\u00f3hannesson \u00ed hlutverkum prinsessunnar og forsetans<\/center><p><\/p>\n<p>\u00c9g hef einhvern veginn svo miklar v\u00e6ntingar til leikh\u00fassins, a\u00f0 \u00ed hvert sinn, sem \u00e9g er ekki alveg s\u00e1tt vi\u00f0 s\u00fdningu, \u00fe\u00e1 hef \u00e9g tilhneigingu til a\u00f0 kenna sj\u00e1lfri m\u00e9r um \u2013 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 bara \u00fereytt e\u00f0a illa fyrir k\u00f6llu\u00f0, e\u00f0a hafi bara einfaldlega ekki vit \u00e1 \u00fev\u00ed, sem \u00e1 bor\u00f0 er bori\u00f0. \u00dear a\u00f0 auki f\u00f3r \u00e9g alein \u00e1 Balli\u00f0 \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um, haf\u00f0i engan f\u00e9lagsskap. \u00c9g sakna\u00f0i \u00feess a\u00f0 hafa ekki l\u00edtinn hnokka vi\u00f0 h li\u00f0 m\u00e9r, sem g\u00e6ti votta\u00f0 me\u00f0 l\u00e1t\u00e6\u00f0i s\u00ednu, hvort s\u00fdningin v\u00e6ri skemmtileg e\u00f0a lei\u00f0inleg \u2013 \u00feetta er n\u00fa einu sinni barnas\u00fdning og \u00fea\u00f0 er \u00fev\u00ed \u00feeirra a\u00f0 d\u00e6ma. \u00dea\u00f0 eru b\u00f6rnin, sem eiga a\u00f0 fylla salinn sunnudag eftir sunnudag, og ef \u00fea\u00f0 tekst a\u00f0 lokka \u00feau \u00ed leikh\u00fasi\u00f0 (\u00fer\u00e1tt fyrir 3.200 kr\u00f3nur mi\u00f0aver\u00f0), \u00fe\u00e1 er sigurinn unninn og segir allt um s\u00fdninguna, sem segja \u00fearf \u2013sama hva\u00f0 m\u00e9r finnst, sem er komin nokku\u00f0 af barnsaldri.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>H\u00fasi\u00f0 var reyndar fullt af b\u00f6rnum \u00ed fylgd foreldra og \u00e6ttingja, og \u00fea\u00f0 var athyglisvert a\u00f0 fylgjast me\u00f0, hversu einbeitt \u00feau virtust og hlustu\u00f0u grannt \u2013 stillt og pr\u00fa\u00f0. (\u00c9g haf\u00f0i satt a\u00f0 segja ekki hugsa\u00f0 \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 fyrr, hva\u00f0 jafnvel b\u00f6rnin eltast vi\u00f0 t\u00edskusveiflur \u00ed fatabur\u00f0i. Hvert og eitt eins og klippt \u00fat \u00far Vogue e\u00f0a Armani Magazine.)<\/p>\n<p>M\u00f6rg barnanna \u00feekktu eflaust efni\u00f0 og h\u00f6f\u00f0u hl\u00fdtt \u00e1 s\u00f6gurnar hennar Ger\u00f0ar Kristn\u00fdjar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar undir svefninn uppi \u00ed r\u00fami. Og \u00e9g get vel tr\u00faa\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 gott a\u00f0 sofna \u00fat fr\u00e1 svona s\u00f6gum. \u00deau hl\u00f3gu a\u00f0 v\u00edsu ekki oft \u2013 \u00feetta er ekki sprenghl\u00e6gileg s\u00fdning, og \u00feau \u00e6ptu heldur ekki, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er ekki spennutryllir, heldur svona einf\u00f6ld \u2013 kannski m\u00e1 segja hversdagsleg \u2013 saga um raunir forsetans \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um. \u00dea\u00f0 gerist ekkert miki\u00f0, bara sm\u00e1fl\u00e6kjur, sem \u00fearf a\u00f0 grei\u00f0a \u00far. Miklar br\u00e9faskriftir, \u00f3v\u00e6ntir gestir og br\u00fa\u00f0kaup upp til fjalla. Sagan f\u00e6r \u00fe\u00f3 g\u00f3\u00f0an endi, sem er n\u00fa fyrir mestu \u00ed barnas\u00f6gum. \u00c1stin bl\u00f3mstrar og prinsessan b\u00e6ti r\u00e1\u00f0 sitt og l\u00e6tur af \u00f3lundinni.<\/p>\n<p>\u00dear sem \u00e9g sat innan um barnaskarann og reyndi a\u00f0 einbeita m\u00e9r \u2013 eins og \u00feau \u2013 a\u00f0 \u00fev\u00ed sem fram f\u00f3r \u00e1 svi\u00f0inu, vakna\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r spurningin um, hver \u00fea\u00f0 mundi vera, sem velur verkefni til s\u00fdninga \u00ed leikh\u00fasinu. \u00dea\u00f0 er \u00f3neitanlega miki\u00f0 vandaverk. Fj\u00e1rhagur h\u00fassins stendur og fellur me\u00f0 a\u00f0s\u00f3kn a\u00f0 s\u00fdningum, og mist\u00f6k \u00ed verkefnavali getur ri\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fullu.<\/p>\n<p>N\u00fa er \u00e9g ekki a\u00f0 segja, a\u00f0 Balli\u00f0 \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um s\u00e9u mist\u00f6k, en einhvern veginn r\u00eds efni \u00feess, sagan sj\u00e1lf, ekki undir hinum gl\u00e6stu umb\u00fa\u00f0um sem \u00fev\u00ed hefur veri\u00f0 vali\u00f0 \u2013 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er miki\u00f0 \u00ed lagt. Sagan er \u00e1takal\u00edtil, en leikmyndin, aftur \u00e1 m\u00f3ti, leikstj\u00f3rnin og leikurinn, er kraftmikill og gl\u00e6silegur. Atbur\u00f0ar\u00e1sin m\u00e1tulega hr\u00f6\u00f0, hvergi dau\u00f0ur punktur, leikmyndin (Gu\u00f0r\u00fan Oyahals) einf\u00f6ld en mj\u00f6g myndr\u00e6n, litirnir hl\u00fdir og alltumvefjandi, fatna\u00f0ur (Mar\u00eda Th. \u00d3lafsd\u00f3ttir) \u00fe\u00e6gilegur og \u00edbur\u00f0ur vi\u00f0 h\u00e6fi. Leikararnir leggja sig auglj\u00f3slega alla fram um a\u00f0 bl\u00e1sa l\u00edfi og lit \u00ed fremur litlausar s\u00f6gupers\u00f3nurnar.<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst gaman a\u00f0 fara \u00ed leikh\u00fas. M\u00e9r finnst gaman a\u00f0 l\u00e1ta t\u00e6la mig inn \u00ed s\u00fdndarver\u00f6ld leiklistarinnar. Gleyma f\u00e1rinu \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu um stund og hverfa inn \u00ed heim sk\u00e1ldskaparins. A\u00f0 l\u00e1ta heillast af atbur\u00f0ar\u00e1sinni, upplifa sorg og gle\u00f0i, hatur og \u00e1st, rifja upp allar \u00fe\u00e6r undirliggjandi tilfinningar, sem l\u00e1ta mann \u00f3snortinn \u00ed hinu daglega \u00ferasi. En mest gaman \u00ed leikh\u00fasinu er a\u00f0 upplifa unga (og aldna) leikara bl\u00f3mstra \u00e1 svi\u00f0inu, sj\u00e1 \u00fe\u00e1 n\u00e1 fullkomnum t\u00f6kum \u00e1 verkefninu, og ver\u00f0a frj\u00e1lsa \u00ed fullkomnun sinni. Leiklist er list augnabliksins og kemur aldrei aftur.<\/p>\n<p>Og \u00fea\u00f0 eru margir leikarar \u00ed \u00feessari s\u00fdningu, sem bl\u00f3mstra og heilla \u00ed vi\u00f0leitni sinni til a\u00f0 gera gott \u00far \u00f6llu. J\u00f3hannes Haukur, sem leikur sj\u00e1lfan forsetann, er einn \u00feeirra. Hann er \u00ed fyrsta lagi hrikalega flott t\u00fdpa, mj\u00f6g forsetalegur (ef til er einhver uppskrift af forseta), og \u00fear fyrir utan getur hann allt, leiki\u00f0 \u00e1 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri, sungi\u00f0 \u2013 og dansa\u00f0! Dansinn \u00ed bl\u00e1u sokkunum er eitt besta atri\u00f0i s\u00fdningarinnar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er l\u00edka gaman a\u00f0 fylgjast me\u00f0 n\u00fdju leikurunum, sem \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0 hefur r\u00e1\u00f0i\u00f0 til starfa. \u00de\u00f3runn Arna er mj\u00f6g sannf\u00e6randi sem \u00f3lundarlega prinsessan, getur b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 yfirm\u00e1ta falleg og forlj\u00f3t, \u00feegar h\u00fan grettir sig \u00ed \u00f3lundinni. Syngur eins og engill, er kattli\u00f0ug, k\u00e1t og hr\u00edfandi. Sama ver\u00f0ur sagt um sk\u00f3labr\u00e6\u00f0ur hennar, \u00fe\u00e1 Hilmar Jensson og \u00c6var \u00de\u00f3r Benediktsson. Spennandi a\u00f0 sj\u00e1 n\u00fd andlit og fylgjast me\u00f0, hvernig \u00feau n\u00fdta t\u00e6kif\u00e6rin. \u00d6ll afbrag\u00f0stalentar, en \u00e9g vona bara, a\u00f0 \u00de\u00f3runn Arna festist ekki \u00ed sm\u00e1stelpuhlutverkunum.<\/p>\n<p>Svo eru \u00fearna \u00ferj\u00e1r \u2013 reyndar fj\u00f3rar \u2013 valkyrjur af eldri kynsl\u00f3\u00f0inni (\u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u allar kornungar), \u00fe\u00e6r Edda Arnlj\u00f3tsd\u00f3ttir, Lilja Gu\u00f0r\u00fan \u00deorvaldsd\u00f3ttir, \u00de\u00f3runn L\u00e1rusd\u00f3ttir og Anna Krist\u00edn Arngr\u00edmsd\u00f3ttir \u2013 allt fr\u00e1b\u00e6rar leikkonur, sem \u00e6ttu skili\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 reyna sig \u00ed veigameiri hlutverkum. Erni \u00c1rnasyni tekst a\u00f0 gera s\u00e9r mat \u00far litlu og n\u00e6r vel til ungra \u00e1horfenda me\u00f0 sprelli s\u00ednu. \u00dea\u00f0 gerir reyndar Kjartan Gu\u00f0j\u00f3nsson l\u00edka, en \u00e1 miklu h\u00f3fstilltari h\u00e1tt. Hann hefur notalegan leikst\u00edl. L\u00e1ra Sveinsd\u00f3ttir leikur \u00f6rlagad\u00eds forsetans, draumkennd \u00ed upphafi, en s\u00fdnir t\u00f6uver\u00f0a festu, \u00feegar \u00e1 reynir. Hefur meira a\u00f0 segja verksvit, sem kemur s\u00e9r vel fyrir svol\u00edti\u00f0 vanka\u00f0an forseta.<\/p>\n<p>T\u00f3nlistarf\u00f3lki\u00f0, \u00feau Baldur, J\u00f3n Geir og Unnur Birna flikka mj\u00f6g upp \u00e1 s\u00fdninguna og bl\u00e1sa \u00ed hana l\u00edfi, sem bjargar miklu. \u00deau flytja t\u00f3nlist eftir Braga Valdimar, sem er b\u00e6\u00f0i \u00f6rvandi og \u00fe\u00e6gileg, sum l\u00f6gin kannski einum of miki\u00f0 \u00ed \u00e6tt vi\u00f0 Eurovision\u00e6\u00f0i\u00f0, en inni \u00e1 milli \u00f6rlar \u00e1 klezmer, lj\u00fafs\u00e1rum gy\u00f0ingat\u00f3num, sem hr\u00edfa okkur burt til annarra t\u00edma og annars konar l\u00edfs.<\/p>\n<p>Svo m\u00e1 b\u00e6ta vi\u00f0, a\u00f0 k\u00fdrin Lilja og leikur hennar er eitt \u00f3gleymanlegasta atri\u00f0i s\u00fdningarinnar. A\u00f0 \u00e9g tali n\u00fa ekki um landn\u00e1msh\u00e6nuna og l\u00f3urnar \u00ed hla\u00f0varpanum \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um. Mikill snillingur Bernd Ogrodnik \u00far Borgarnesi, og ekki \u00f3n\u00fdtt a\u00f0 f\u00e1 hann til li\u00f0s vi\u00f0 sig.<\/p>\n<p>\u00deess er ekki geti\u00f0 \u00ed leikskr\u00e1, hver s\u00e9 h\u00f6fundur dansa og hreyfinga \u00ed s\u00fdningunni. \u00c9g geri \u00fe\u00e1 r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 leikstj\u00f3rinn, \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir beri \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00feeim. \u00dea\u00f0 er ekki l\u00edtil b\u00fab\u00f3t fyrir leikstj\u00f3ra a\u00f0 geta sameina\u00f0 \u00feetta tvennt, k\u00f3re\u00f3graf\u00edu og leikstj\u00f3rn.<\/p>\n<p>M\u00e9r s\u00fdnist \u00e1 \u00f6llu, a\u00f0 \u00c1g\u00fasta s\u00e9 hinn mesti forkur og hafi reki\u00f0 h\u00f3pinn \u00e1fram af krafti og \u00fatsj\u00f3narsemi. Vonandi eigum vi\u00f0 eftir a\u00f0 sj\u00e1 meira til hennar \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdnir barnaleikriti\u00f0: Balli\u00f0 \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um<br \/>\nH\u00f6fundur: Ger\u00f0ur Kristn\u00fd<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<br \/>\nB\u00faningar: Mar\u00eda Th. \u00d3lafsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00fdsing: \u00d3lafur \u00c1g\u00fast Stef\u00e1nsson<br \/>\nBr\u00fa\u00f0uh\u00f6nnu\u00f0ur: Bernd Ogrodnik <\/p>\n<p>Leikendur:<br \/>\nJ\u00f3hannes Haukur J\u00f3hannesson<br \/>\n\u00de\u00f3runn Arna Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nEdda Arnlj\u00f3tsd\u00f3ttir<br \/>\nLilja Gu\u00f0r\u00fan \u00deorvaldsd\u00f3ttir<br \/>\n\u00de\u00f3runn L\u00e1rusd\u00f3ttir<br \/>\n\u00c6var \u00de\u00f3r Benediktsson<br \/>\nKjartan Gu\u00f0j\u00f3nsson<br \/>\n\u00d6rn \u00c1rnason<br \/>\nAnna Krist\u00edn \u00c1sgr\u00edmsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00e1ra Sveinsd\u00f3ttir<br \/>\nHilmar Jensson<\/p>\n<p>Hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleikarar:<br \/>\nBaldur Ragnarsson<br \/>\nJ\u00f3n Geir J\u00f3hannsson<br \/>\nUnnir Birna Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-132","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/132","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=132"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/132\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":573,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/132\/revisions\/573"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=132"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=132"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=132"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}