{"id":135,"date":"2011-01-16T00:00:00","date_gmt":"2011-01-16T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/01\/16\/afinn-siggi-a-betra-skilid\/"},"modified":"2020-09-23T09:08:00","modified_gmt":"2020-09-23T09:08:00","slug":"afinn-siggi-a-betra-skilid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/01\/16\/afinn-siggi-a-betra-skilid\/","title":{"rendered":"Afinn: Siggi \u00e1 betra skili\u00f0"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-20\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/afinn.jpg\"><br>\nSiggi \u00e1 betra skili\u00f0<\/center><p><\/p>\n<p>M\u00e9r finnst einhvern veginn, a\u00f0 \u00feeir Sigur\u00f0ur Sigurj\u00f3nsson og Bjarni Haukur \u00de\u00f3rsson, hef\u00f0u \u00e1tt a\u00f0gera \u00fea\u00f0 upp vi\u00f0 sig, \u00e1\u00f0ur en \u00feeir l\u00f6g\u00f0u upp \u00ed \u00feessa fer\u00f0, hvort \u00feeir \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 b\u00faa til leikrit e\u00f0a \u201cuppstand\u201d (stand-up show). \u00dea\u00f0 er ekki nokkur lei\u00f0 a\u00f0 hr\u00e6ra \u00feessu tvennu saman, svo a\u00f0 vel fari. Leikrit l\u00fata \u00e1kve\u00f0num l\u00f6gm\u00e1lum, fyrst fer fram kynning, s\u00ed\u00f0an spinnst fl\u00e6kja, svo ver\u00f0a hv\u00f6rf og a\u00f0 lokum birtist lausnin.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Uppstand er hins vegar bara svo yfirbor\u00f0slegt hjal, fimm aura brandarar, sem ganga \u00e1 \u00feorrabl\u00f3tum Lionsmanna \u2013 e\u00f0a jafnvel hj\u00e1 Fr\u00edm\u00farurum \u2013 oftast stolnir og \u00fe\u00fdddir \u00far bandar\u00edskum gr\u00edn\u00fe\u00e1ttum, og halda sjaldnast athygli lengur en h\u00e1lft\u00edma \u00ed senn. J\u00e1, j\u00e1, Bill Cosby er snillingur,hann n\u00fdtir s\u00e9r \u00feetta form betur en flestir a\u00f0rir. \u00dea\u00f0 gengur kannski \u00ed amer\u00edkanann. En vi\u00f0 erum varla or\u00f0in svo amer\u00edkan\u00edseru\u00f0, e\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst \u00feeir str\u00e1karnir, Siggi og Bjarni Haukur, ekki alveg vera me\u00f0 \u00feetta \u00e1 hreinu, og \u00fev\u00ed voru \u00fea\u00f0 st\u00edlbrot \u00e1 uppstandinu, \u00feegar Siggi ger\u00f0ist \u00f6\u00f0ru hverju melodramat\u00edskur og f\u00f3r a\u00f0 rifja upp s\u00f6gur af pabba s\u00ednum, r\u00e9tt eins og hann hef\u00f0i skroppi\u00f0 \u00ed vi\u00f0tal hj\u00e1 J\u00f3nasi J\u00f3nassyni \u00e1 s\u00ed\u00f0kv\u00f6ldi. \u00deetta snerist upp \u00ed a\u00f0 vera sentimentalskt \u00e1 k\u00f6flum og dr\u00f3 \u00far skemmtanagildi verksins.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst Siggi n\u00e1 s\u00e9r best upp, \u00feegar hann f\u00f3r a\u00f0 segja s\u00f6gur (og hann hl\u00fdtur a\u00f0 eiga margar s\u00f6gur \u00ed f\u00f3rum s\u00ednum). T.d. Var heims\u00f3knin til Grindav\u00edkur alveg br\u00e1\u00f0fyndin, og ma\u00f0ur s\u00e1 hann fyrir s\u00e9r me\u00f0 viagrapokann \u00ed vi\u00f0tali vi\u00f0 barnask\u00f3lanemendur! (En hvernig er \u00fea\u00f0, er nokku\u00f0 ap\u00f3tek \u00ed Grindav\u00edk?). En \u00e1 hinn b\u00f3ginn er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 gantast svo miki\u00f0 me\u00f0 \u00feetta viagra \u00ed gegnum \u00e1rin, a\u00f0 vi\u00f0 kunnum alla brandarana utan b\u00f3kar. M\u00e9r fannst l\u00edka, a\u00f0 Siggi hef\u00f0i ekki \u00e1tt a\u00f0 fara a\u00f0 f\u00edl\u00f3s\u00f3fera undir lokin. \u00dea\u00f0 kl\u00e6\u00f0ir ekki gamanleikarann \u2013 alla vega ekki \u00ed svona skemmtipr\u00f3grami.<\/p>\n<p>Bjarni Haukur er skr\u00e1\u00f0ur h\u00f6fundur leik\u00fe\u00e1ttarins, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 Siggi eigi br\u00f3\u00f0urpartinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann reitir af s\u00e9r brandara um konuna, b\u00f6rnin og tengdab\u00f6rnin (Skyldi ekki S\u00f6kkvi Sn\u00e6r hafa gefist upp \u00e1 tengdapabba fyrir l\u00f6ngu?) Hann er \u00f3hr\u00e6ddur vi\u00f0 a\u00f0 gera gr\u00edn a\u00f0 sj\u00e1lfum sem hj\u00e1lparvana gamalmenni (hvernig er \u00fea\u00f0, er Siggi ekki bara \u00e1 sextugsaldri?), b\u00e6\u00f0i hj\u00e1 l\u00e6kninum og jafnvel uppi \u00ed r\u00fami hj\u00e1 elsku konunni sinni.<\/p>\n<p>Bjarni Haukur vir\u00f0ist vera vanda\u00f0ur leikstj\u00f3ri. Hann l\u00e6tur ekkert fram hj\u00e1 s\u00e9r fara og sinnir sm\u00e1atri\u00f0unum, sem skipta oft svo miklu m\u00e1li. Og \u00ed samvinnu vi\u00f0 Finn Arnar (leikmynd), K\u00e1ra G\u00edsla (l\u00fdsing)og P\u00e1lma Sigurhjartarson (t\u00f3nlist) tekst honum a\u00f0 skapa einfalda en m\u00e1tulega t\u00e1knr\u00e6na umger\u00f0 um \u00feau \u00e1r, sem leikarinn veltir s\u00e9r upp \u00far.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 vera segin saga \u00ed \u00feessum bransa, a\u00f0 ef h\u00f6fundur er jafnframt leikstj\u00f3ri, \u00fe\u00e1 bregst \u00fea\u00f0 ekki, a\u00f0 s\u00fdningin ver\u00f0ur of l\u00f6ng og missir flugi\u00f0. H\u00f6fundur t\u00edmir ekki a\u00f0 henda \u00e1 burt gullmolunum! \u00dea\u00f0 \u00fearf \u00fev\u00ed miskunnarlausan klippara vi\u00f0 hli\u00f0 stj\u00f3rnanda \u00ed sl\u00edkum tilfellum. S\u00fdningin hans Sigga og Bjarna Hauks fengi miklu meira skemmtanagildi og n\u00e6\u00f0i meir vins\u00e6ldum, ef \u00feeir styttu verki\u00f0, slepptu jafnvel hl\u00e9inu. \u00dea\u00f0 mundi ydda s\u00fdninguna, gera hana hnitmi\u00f0a\u00f0ri og eflaust \u00e1n\u00e6gjulegri.<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur Sigurj\u00f3nsson er einn af allra vins\u00e6lustu og fj\u00f6lh\u00e6fustu leikurum \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Hann \u00e1 langan feril a\u00f0 baki og hefur skapa\u00f0 margar \u00f3dau\u00f0legar pers\u00f3nur \u00e1 svi\u00f0inu, sem lifa \u00ed minningunni, \u00fe\u00f3 a\u00f0 allt anna\u00f0 gleymist. \u00c9g man enn eftir honum sem Amadeus \u00ed Mozart, \u00c1rna \u00ed Stundarfri\u00f0i, Ragga \u00e1 B\u00edlaverkst\u00e6\u00f0i Badda, o. Fl., o.fl. Svo m\u00e1 ekki gleyma \u00feeim fj\u00f6lda pers\u00f3na, sem hann hefur t\u00falka\u00f0 \u00ed vins\u00e6lasta sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6tti R\u00daV allra t\u00edma \u2013 Spaugstofunni. Hann er l\u00f6ngu or\u00f0inn eign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar og getur ekki um frj\u00e1lst h\u00f6fu\u00f0 stroki\u00f0, jafnvel \u00fe\u00f3tt hann reyni a\u00f0 fl\u00fdja a\u00f0d\u00e1endur s\u00edna alla lei\u00f0 til Kanar\u00edeyja.<\/p>\n<p>Hann er elska\u00f0ur og d\u00e1\u00f0ur, og \u00fea\u00f0 fann ma\u00f0ur svo vel \u00ed leikh\u00fasinu. Fullt h\u00fas af gestum, sem voru komnir til a\u00f0 fagna me\u00f0 honum \u00e1 t\u00edmam\u00f3tum. En einhvern veginn var \u00e9g ekki s\u00e1tt, hvernig hann spann \u00far l\u00edfs\u00fer\u00e6\u00f0i s\u00ednum. M\u00e9r fannst satt a\u00f0 segja, a\u00f0 Siggi \u00e6tti a\u00f0 gera meiri kr\u00f6fur, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri fyrir ne\u00f0an vir\u00f0ingu hans \u00e1 \u00feessum t\u00edmam\u00f3tum og vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed uppstandi af \u00feessu tagi. Gr\u00edni\u00f0 var of yfirbor\u00f0slegt, \u00fea\u00f0 vanta\u00f0i undirt\u00f3ninn, d\u00fdptina \u00ed verki\u00f0, jafnvel s\u00e1rsaukann. Siggi \u00e1 betra skili\u00f0.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Borgarleikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdnir AFANN eftir Bjarna Hauk \u00de\u00f3rsson<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3ri: Bjarni Haukur \u00de\u00f3rsson<br \/>\nLeikmynd og b\u00faningar: Finnur Arnar Arnarsson<br \/>\nL\u00fdsing: K\u00e1ri G\u00edslason<br \/>\nT\u00f3nlist: P\u00e1lmi Sigurhjartarson<\/p>\n<p>Leikari: Sigur\u00f0ur Sigurj\u00f3nsso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-135","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/135","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=135"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/135\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":576,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/135\/revisions\/576"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=135"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=135"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=135"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}