{"id":137,"date":"2011-01-08T00:00:00","date_gmt":"2011-01-08T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/01\/08\/kandiland-nakinn-sannleikur-kattlidugir-og-mjukir-likamar\/"},"modified":"2020-09-23T09:08:34","modified_gmt":"2020-09-23T09:08:34","slug":"kandiland-nakinn-sannleikur-kattlidugir-og-mjukir-likamar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2011\/01\/08\/kandiland-nakinn-sannleikur-kattlidugir-og-mjukir-likamar\/","title":{"rendered":"Kand\u00edland: Nakinn sannleikur &#8211; Kattli\u00f0ugir og mj\u00fakir l\u00edkamar"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"422\" class=\"alignnone size-full wp-image-55\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/kandiland.jpg\" srcset=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/kandiland.jpg 300w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/kandiland-213x300.jpg 213w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 85vw, 300px\" \/><br>\nKand\u00edland<\/center><p><\/p>\n<p>Af hverju \u00ed \u00f3sk\u00f6punum \u00feetta fr\u00e1hrindandi nafn \u201chreyfi\u00fer\u00f3unarsamsteypan? Satt a\u00f0 segja var\u00f0 m\u00e9r fyrst hugsa\u00f0 til hreyfihamla\u00f0ra, s\u00ed\u00f0an til \u00fer\u00f3unarsamvinnustofnunar, og loks til steypust\u00f6\u00f0varinnar BM Vall\u00e1r. (Kannski eil\u00edfri fjarveru minni af landinu um a\u00f0 kenna). En a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri samheiti yfir lifandi mannverur, sem eftir margra \u00e1ra samstarf, v\u00e6ru or\u00f0nar eins og steyptar \u00ed sama m\u00f3ti\u00f0, h\u00f3pur listaf\u00f3lks sem hef\u00f0i \u00fer\u00f3a\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r s\u00e9rstakt tj\u00e1ningarform, sem er b\u00e6\u00f0i frumlegt og ferskt, kom skemmtilega \u00e1 \u00f3vart.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var ekki fyrr en \u00e9g var komin langlei\u00f0ina heim eftir s\u00fdninguna, a\u00f0 \u00fea\u00f0 rann upp fyrir m\u00e9r, hv\u00edl\u00edk vinna hl\u00fdtur a\u00f0 liggja a\u00f0 baki svona \u00f3hef\u00f0bundinni lei\u00f0 til a\u00f0 tj\u00e1 hug sinn.. \u00deetta n\u00fdjasta verk samsteypunnar \u2013 e\u00f0a \u00f6llu heldur gj\u00f6rningur \u2013 krefst mikillar yfirlegu og endalausra p\u00e6linga. Bara \u00fea\u00f0 a\u00f0 voga s\u00e9r a\u00f0 r\u00edfa meistarann sj\u00e1lfan \u00e1 hol, henda \u00e1 haugana or\u00f0skr\u00fa\u00f0i, m\u00e6lgi, \u00fat\u00fard\u00farum og hli\u00f0arplottum s\u00fdnir mikla dirfsku og sj\u00e1lfstraust. Og hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 bera s\u00ed\u00f0an \u00e1 bor\u00f0 beinin ber \u2013 til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 megum sj\u00e1 me\u00f0 eigin augum, hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var sem rak Shakespeare \u00e1fram \u00ed ritum s\u00ednum um str\u00ed\u00f0andi kl\u00edkur og \u00e6ttarsamf\u00e9l\u00f6g mi\u00f0alda, og hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var sem allt snerist um \u2013 \u00fe\u00e1 sem n\u00fa \u2013 valdagr\u00e6\u00f0gi.<\/p>\n<p>S\u00fdningin tekur r\u00fama klukkustund og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 segjast eins og er, a\u00f0 hinn samsteypti h\u00f3pur h\u00e9lt \u00e1horfendum f\u00f6ngnum fr\u00e1 upphafi til loka. Honum t\u00f3kst, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara sparlega me\u00f0 or\u00f0 (sem Shakespeare eru svo mikilv\u00e6g), en svo til eing\u00f6ngu me\u00f0 hreyfingum l\u00edkama sinna, a\u00f0 koma til skila \u00feessari einu hugmynd, sem verki\u00f0 byggist \u00e1 &#8211; valda\u00fe\u00f6rf manneskjunnar, \u00feessum drifkrafti, sem \u00f6llu r\u00e6\u00f0ur, spillir og sundrar, og sem a\u00f0 lokum er ekki neitt og um ekki neitt. Verki\u00f0 heitir Kand\u00edland, d\u00e6migert. Kand\u00edsykur er g\u00f3\u00f0ur \u00e1 brag\u00f0i\u00f0, en br\u00e1\u00f0nar \u00e1 tungunni og leysist upp \u00e1 samri stundu. \u00deannig er l\u00edka valdi\u00f0, varir stutt og skilur ekkert eftir nema \u00f3brag\u00f0 \u00ed munninum.<\/p>\n<p>\u00c9g mundi ekki skilgreina verki\u00f0 sem dans, \u00fe\u00f3 a\u00f0 flestir \u00fe\u00e1tttakendur s\u00e9u l\u00e6r\u00f0ir sem sl\u00edkir. \u00cd m\u00ednum huga var \u00feetta meira \u00ed \u00e6tt vi\u00f0 tilraun me\u00f0 l\u00edkamann. Hversu langt getur ma\u00f0ur gengi\u00f0 \u00ed hinu afbrig\u00f0ilega \u00e1n \u00feess a\u00f0 ofbj\u00f3\u00f0a, hvernig getur ma\u00f0ur tj\u00e1\u00f0 sig me\u00f0 l\u00edkamanum \u00e1n or\u00f0a? Hva\u00f0 sag\u00f0i ekki ma\u00f0urinn um daginn? Hann sag\u00f0ist hlusta me\u00f0 augunum. \u00dea\u00f0 er einmitt \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 ger\u00f0um, vi\u00f0 hlustu\u00f0um me\u00f0 augunum, \u00fev\u00ed a\u00f0 hreyfingarnar t\u00f6lu\u00f0u s\u00ednu m\u00e1li.<\/p>\n<p>M\u00e9r var\u00f0 hugsa\u00f0 til gj\u00f6rningalistamanna fyrri \u00e1ra, eins og t.d. \u00deeirra br\u00e6\u00f0ra Sigur\u00f0ar og Kristj\u00e1ns Gu\u00f0mundssona, Hreins Fri\u00f0finnssonar og fleiri n\u00fdlistarmanna. \u00deessi s\u00fdning samsteypunnar er \u00ed fullkomnu samhengi vi\u00f0 gj\u00f6rninga \u00feeirra. Eini munurinn er s\u00e1, a\u00f0 verk \u00feeirra voru statisk, f\u00f6st \u00ed ramma og hreyfa sig hvergi. En \u00feetta verk samsteypunnar er d\u00fdnamiskt, sprotti\u00f0 upp \u00far gj\u00f6rningum byltingarmannanna, en hreyfanlegt, fullt af l\u00edfi og meiningum. Og erum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 komin aftur \u00ed hring, eins og \u00ed Kand\u00edlandi? Byrjum aftur \u00fear sem vi\u00f0 endum? Gj\u00f6rningur lifir bara \u00ed n\u00fainu, \u00e1 ekkert l\u00edf utan svi\u00f0s.<\/p>\n<p>H\u00f3purinn er steyptur \u00ed sama m\u00f3t, \u00fea\u00f0 leynist engum. Hvert og eitt hefur yfir a\u00f0 r\u00e1\u00f0a kattli\u00f0ugum, mj\u00fakum og sveigjanlegum l\u00edkama, sem tj\u00e1ir sig sk\u00fdrt, svo allir megi skilja. Talandi l\u00edkamar, talandi sama tungum\u00e1li\u00f0, me\u00f0 s\u00f6mu hugsun \u00ed kollinum. \u00deetta komst allt til skila. Sam\u00fejappa\u00f0, einfalt og gl\u00e6silegt.<\/p>\n<p>M\u00e9r fundust dansatri\u00f0in vi\u00f0 t\u00f3nlist Queen g\u00f3\u00f0, \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera beint gl\u00e6sileg. Enginn dansh\u00f6fundur er nefndur \u00ed pr\u00f3gramminu og skyldi ma\u00f0ur \u00fev\u00ed \u00e6tla, a\u00f0 leikendur sj\u00e1lfir hafi sami\u00f0 allar hreyfingar \u2013 nema \u00fea\u00f0 s\u00e9 leikstj\u00f3rinn, V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson. V\u00edkingur er a\u00f0 s\u00e6kja \u00ed sig ve\u00f0ri\u00f0. A\u00f0 v\u00edsu mj\u00f6g a\u00f0la\u00f0andi leikari, en l\u00edka li\u00f0t\u00e6kur leikstj\u00f3ri, sem hefur sannast \u00e1 undanf\u00f6rnum misserum. Ekki veitir af, \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 eigum allt of marga fr\u00e1b\u00e6ra leikara, sem f\u00e1 ekki t\u00e6kif\u00e6ri vegna skorts \u00e1 leikstj\u00f3rum.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cdslenska hreyfi\u00fer\u00f3unarsamsteypan s\u00fdnir \u00ed Kassanum KAND\u00cdLAND<\/p>\n<p>H\u00f6fundur: \u00cdslenska hreyfi\u00fer\u00f3unarsamsteypan<br \/>\nLeikstj\u00f3rn: V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson<br \/>\nDramat\u00farg: \u00c1sger\u00f0ur G. Gunnarsd\u00f3tir<br \/>\nFlytjendur: Katr\u00edn Gunnarsd\u00f3ttir, Melkorka Sigr\u00ed\u00f0ur, Ragnhei\u00f0ur Bjarnarson, Steinn \u00d3lafur Gunnarsson og Vigd\u00eds Eva Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir<br \/>\nSvi\u00f0smynd: Eir\u00fan Sigur\u00f0ard\u00f3ttir<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0mynd: G\u00edsli Galdur \u00deorgeirsson<\/p>\n<p>T\u00f3nlist: Queen<br \/>\nTexti: William Shakespeare \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu Helga H\u00e1lfd\u00e1narsonar<br \/>\nFramlei\u00f0andi: Arna \u00ddr S\u00e6varsd\u00f3ttir<br \/>\nA\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 ger\u00f0 s\u00fdningar: Hannes \u00d3li \u00c1g\u00fastsso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-137","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/137","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=137"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/137\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":578,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/137\/revisions\/578"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=137"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=137"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=137"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}