{"id":138,"date":"2010-12-28T00:00:00","date_gmt":"2010-12-28T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/12\/28\/ler-konungur-samtima-adeila-eda-skripalaeti-og-skrudmaelgi\/"},"modified":"2020-09-23T09:08:58","modified_gmt":"2020-09-23T09:08:58","slug":"ler-konungur-samtima-adeila-eda-skripalaeti-og-skrudmaelgi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/12\/28\/ler-konungur-samtima-adeila-eda-skripalaeti-og-skrudmaelgi\/","title":{"rendered":"L\u00e9r konungur: Samt\u00edma \u00e1deila e\u00f0a skr\u00edpal\u00e6ti og skr\u00fa\u00f0m\u00e6lgi"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"240\" class=\"alignnone size-full wp-image-58\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/ler.jpg\"><br>\nArnar J\u00f3nsson fer me\u00f0 hlutverk L\u00e9s konungs. Fr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu<\/center><p><\/p>\n<p>\u00cd forvitnilegu vi\u00f0talii Fri\u00f0riku Ben\u00f3n\u00fdsd\u00f3ttur \u00ed vikunni sem lei\u00f0 vi\u00f0 Arnar J\u00f3nsson (Fr\u00e9ttabla\u00f0i\u00f0, 24. des,), vitnar hann \u00ed p\u00f3lska heimspekinginn Jan Kott, en s\u00e1 ma\u00f0ur \u00f6\u00f0la\u00f0ist heimsfr\u00e6g\u00f0 um mi\u00f0ja seinustu \u00f6ld me\u00f0 b\u00f3k sinni: Shakespeare Our Contemporary. Jan Kott var f\u00e6ddur \u00ed Varsj\u00e1 \u00e1ri\u00f0 1914 og upplif\u00f0i \u00e1 eigin skinni gy\u00f0ingahatur og \u00fdkta \u00fej\u00f3\u00f0ernishyggju, sem enda\u00f0i \u00ed vitfirringu nazismans og s\u00ed\u00f0ar Stal\u00edns. Hann nam l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Varsj\u00e1, en sem barn s\u00edns t\u00edma gat hann aldrei sliti\u00f0 hugann fr\u00e1 upplifun unglings\u00e1ranna, og s\u00fa reynsla setti mark sitt \u00e1 allt sem hann l\u00e9t fr\u00e1 s\u00e9r fara til \u00e6viloka.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Jan Kott var til d\u00e6mis \u00feeirrar sko\u00f0unar, a\u00f0 einr\u00e6\u00f0isherrar vorra t\u00edma \u00e6ttu s\u00e9r allir fyrirmyndir \u00ed \u00feekktustu pers\u00f3num Shakespeares. Hamlet, \u00d3\u00feell\u00f3, Macbeth, Jag\u00f3 og sj\u00e1lfur L\u00e9r v\u00e6ru endurbornir \u00ed Stal\u00edn og Hitler &#8211; helsj\u00fakir menn, sem l\u00e9tust stj\u00f3rnast af g\u00e6\u00f0gi og sj\u00e1lfelsku \u2013 og lif\u00f0u \u00ed st\u00f6\u00f0ugum \u00f3tta vi\u00f0 a\u00f0 missa valdi\u00f0 \u00ed hendur annarra. Kalda str\u00ed\u00f0 var \u00ed h\u00e1marki \u00e1 \u00feessum t\u00edma og hugmyndir Kotts f\u00e9llu eins og sprengjur inn \u00ed leikh\u00fasp\u00e6lingar Evr\u00f3pu. \u00de\u00e6r hleyptu n\u00fdju og fersku l\u00edfi \u00ed uppf\u00e6rslur og umr\u00e6\u00f0ur um \u00feetta h\u00f6fu\u00f0sk\u00e1ld enskum\u00e6landi \u00fej\u00f3\u00f0a. Peter Brook rei\u00f0 \u00e1 va\u00f0i\u00f0 me\u00f0 s\u00fdningu \u00e1 L\u00e9 konungi \u00ed Royal Shakespeare Company \u00e1ri\u00f0 1962.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 kemur fram \u00ed vi\u00f0tali Fri\u00f0riku, a\u00f0 Arnar hefur tileinka\u00f0 s\u00e9r sko\u00f0anir Kotts og lagt grunninn a\u00f0 t\u00falkun sinni \u00ed anda hans. Hann gengur svo langt a\u00f0 segja \u00e1 einum sta\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi \u201cfinna \u00f3f\u00e1 d\u00e6mi\u201d um valdamenn af \u00feessari tegund \u201c\u00ed okkar eigin umhverfi\u201d. Ma\u00f0ur l\u00edttu \u00fe\u00e9r n\u00e6r. Hann talar um skr\u00edpaleik, sem sn\u00fdst upp \u00ed harmleik .M\u00e9r finnst vi\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 l\u00edta til \u00feessa, \u00feegar vi\u00f0 fj\u00f6llum um leik Arnars. \u00deetta er grundvallaratri\u00f0i var\u00f0andi skilabo\u00f0 leikritsins.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 vil \u00e9g l\u00edka nefna \u00ed upphafi sem eina af grunnforsendum atbuur\u00f0ar\u00e1sarinnar \u2013 en \u00fea\u00f0 er undarlegt samband f\u00f6\u00f0ur vi\u00f0 b\u00f6rn s\u00edn. L\u00e9r konungur \u00e1 \u00ferj\u00e1r d\u00e6tur, en \u00fe\u00e6r eru honum sem \u00f3kunnar manneskjur. Hann veit ekkert um \u00feeirra innri mann, hvers konar karakter \u00fe\u00e6r hafa a\u00f0 geyma \u00e1 baki vi\u00f0 fallegt bros.. Hann hefur greinilega aldrei tala\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e6r, aldrei hlusta\u00f0 e\u00f0a lagt sig fram um a\u00f0 kynnast \u00feessum afkomendum s\u00ednum, erfingjum kr\u00fanunnar. Yngsta d\u00f3ttirin er a\u00f0 v\u00edsu dekurbarn f\u00f6\u00f0ur s\u00edns &#8211; eins og t\u00edtt er um yngstu b\u00f6rn \u2013 en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur er h\u00fan honum \u00f3kunn l\u00edka \u2013 h\u00fan kann ekki a\u00f0 lj\u00faga e\u00f0a smja\u00f0ra fyrir honum og \u00fev\u00ed afneitar hann henni. Eflaust hefur L\u00e9r fr\u00e1 upphafi liti\u00f0 \u00e1 d\u00e6tur s\u00ednar sem pe\u00f0 \u00ed valdatafli og fj\u00e1rfestingu til framt\u00ed\u00f0ar. Hann hefur l\u00e1ti\u00f0 a\u00f0ra um uppeldi \u00feeirra. Og \u00fear liggja mist\u00f6k hans \u2013 upphaf \u00f3g\u00e6funnar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 vakti hins vegar athygli og \u00e1leitnar spurningar \u00e1horfenda, a\u00f0 konungur smellti l\u00f6ngum og \u00e1str\u00ed\u00f0ufullum kossi \u00e1 varir d\u00e6tra sinna a\u00f0 skilna\u00f0i (\u00fe.e.a.s. Nema Kordel\u00edu). Hva\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 gefa \u00ed skyn, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed handritinu er ekkert minnst \u00e1 koss? Og hver \u00e1tti a\u00f0 hafa kennt d\u00e6trum konungs kl\u00e6ki atvinnuh\u00f3runnar heima \u00ed h\u00f6llinni? Var veri\u00f0 a\u00f0 gefa \u00ed skyn, a\u00f0 konungur hef\u00f0i girnst l\u00edkama d\u00e6tra sinna og \u00fear me\u00f0 glata\u00f0 tr\u00fana\u00f0arsambandi vi\u00f0 \u00fe\u00e6r strax \u00ed \u00e6sku? Var \u00fea\u00f0 sk\u00fdringin \u00e1 fjarl\u00e6g\u00f0inni \u00e1 milli f\u00f6\u00f0ur og d\u00e6tra? Var \u00fear kannski kominn lykillinn a\u00f0 hruni konungsveldisins?<\/p>\n<p>Allavega er k\u00f3ngsi ekki fyrr b\u00fainn a\u00f0 sleppa h\u00f6ndum af valdinu og afhenda tveimur elstu d\u00e6trunum lyklav\u00f6ldin a\u00f0 r\u00edkinu, a\u00f0 \u00fe\u00e6r sn\u00faa vi\u00f0 honum bakinu og v\u00edsa \u00e1 dyr. Hann \u00e1 hvergi h\u00f6f\u00f0i a\u00f0 halla. \u00cd \u00f6rv\u00e6ntingu og eftirsj\u00e1 leitar hann n\u00fa yngstu d\u00f3tturinnar, sem hann \u00feorir samt ekki a\u00f0 m\u00e6ta augliti til auglitis.A\u00f0 lokum sturlast hann af sorg og sk\u00f6mm.<\/p>\n<p>Tvisvar ver\u00f0ur gamall ma\u00f0ur barn.<\/p>\n<p>Yfirst\u00e9ttarkonur \u00e1 Mi\u00f0\u00f6ldum \u00e1ttu ekki margra kosta v\u00f6l \u00ed l\u00edfinu \u2013 anna\u00f0hvort voru \u00fe\u00e6r settar \u00e1 stall sem eins konar kynlaus stofust\u00e1ss, \u00f3snertanlegar og \u00f3umbreytanlegar \u2013 e\u00f0a hurfu \u00e1 bak vi\u00f0 \u00feykka veggi klaustursins og \u00e1ttu aldrei afturkv\u00e6mt. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed skemmtileg n\u00fat\u00edmaleg tilbreyting a\u00f0, a\u00f0 Goner\u00edl (Margr\u00e9t Vilhj\u00e1lmsd\u00f3ttir), og Regan (Vigd\u00eds Hrefna P\u00e1lsd\u00f3ttir) \u2013 tv\u00e6r eldri d\u00e6tur L\u00e9s \u2013 sp\u00fdta \u00f3v\u00e6nt l\u00edfi \u00ed l\u00f6gulega kroppa s\u00edna (me\u00f0 leyfi leikstj\u00f3ra, v\u00e6ntanlega) og fara \u00e1 kostum sem slyngar, metna\u00f0argjarnar, gra\u00f0ar og gr\u00e1\u00f0ugar konur, sem heimta v\u00f6ld og peninga, hva\u00f0 sem \u00fea\u00f0 kostar. \u00de\u00e6r hafa til a\u00f0 bera alla \u00fe\u00e1 kosti, sem pr\u00fd\u00f0a mega unga menn!( Hva\u00f0 var ekki sagt um \u00fatr\u00e1sarv\u00edkingana okkar?) Hlutverkunum er sn\u00fai\u00f0 vi\u00f0, n\u00fa er komi\u00f0 a\u00f0 okkur, stelpur! B\u00e6\u00f0i Margr\u00e9t og Vigd\u00eds eru flottar \u00ed gervum nornanna \u2013 fullkomnir dj\u00f6flar \u00ed konumynd. H\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 gefnar til fj\u00e1r, en h\u00f6f\u00f0u litla l\u00f6ngun til a\u00f0 liggja me\u00f0 eiginm\u00f6nnum s\u00ednum. Enda b\u00e1\u00f0ar illa giftar, \u00f6nnur g\u00f3\u00f0l\u00e1tlegri rolu (\u00d3lafur Darri \u00d3lafsson), en hin gerspilltu \u00far\u00fev\u00e6tti (Baldur Trausti Hreinsson). B\u00e1\u00f0ir reyndu a\u00f0 gera s\u00e9r mat \u00far litlum hlutverkum og t\u00f3kst \u00fea\u00f0, \u00fe\u00f3 a\u00f0 m\u00e9r finnist \u00d3lafur Darri alltof g\u00f3\u00f0ur biti fyrir svona f\u00e1fengilega pers\u00f3nu. En hva\u00f0 um \u00fea\u00f0, d\u00f6murnar b\u00e1\u00f0ar voru sem sagt enn \u00e1 vei\u00f0um. \u00de\u00e6r l\u00e9ku af sannf\u00e6randi \u00e1str\u00ed\u00f0u, veltu s\u00e9r upp \u00f6llu \u00fev\u00ed sem texti Shakespeare gefur \u00ed skyn, en segir ekki berum or\u00f0um. G\u00e1fu hlutverkunum d\u00fdpt og \u00f3r\u00e6\u00f0i, sem vekur \u00ed senn \u00e1huga og spennu.<\/p>\n<p>Kordel\u00eda sj\u00e1lf (\u00c1lfr\u00fan \u00d6rn\u00f3lfsd\u00f3ttir) er m\u00e1lu\u00f0 f\u00f6lari og f\u00e6rri litum af h\u00f6fundarins h\u00e1lfu. H\u00fan hefur bara einn streng a\u00f0 strj\u00faka og \u00fea\u00f0 gerir henni erfitt fyrir.Gerir hana a\u00f0 h\u00e1lfger\u00f0ri v\u00e6lukj\u00f3u. \u00c1lfr\u00fan hefur svo sannarlega veri\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja \u00ed sig ve\u00f0ri\u00f0 a\u00f0 undanf\u00f6rnu, gullfalleg stelpa me\u00f0 spr\u00fa\u00f0landi talent (eins og h\u00fan \u00e1 kyn til), en vir\u00f0ist vera a\u00f0 festast \u00ed einh\u00e6fum g\u00f3\u00f0u stelpu hlutverkum, svo sem eins og Kordel\u00edu, sem endurtekur \u00ed s\u00edfellu. J\u00fa, j\u00fa, bo\u00f0beri hins g\u00f3\u00f0a &#8211; s\u00f6nn og hreinskiptin \u2013 en skyldi ekki leynast breyskt e\u00f0li \u00e6ttarinnar undir sakleysislegu yfirbor\u00f0inu?<\/p>\n<p>Fyrir \u00fe\u00e1 sem ekki h\u00f6f\u00f0u kynnt s\u00e9r L\u00e9 konung \u00e1 ensku e\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00ed n\u00fdrri \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00de\u00f3rarins Eldj\u00e1rn, var\u00f0 skyndileg innkoma jarlsins af Glostri (Eggert \u00deorleifsson) og sona hans tveggja, skilgetins (Atli Rafn Sigur\u00f0arson) og \u00f3skilgetins (Stef\u00e1n Hallur Stef\u00e1nsson), alger r\u00e1\u00f0g\u00e1ta. Hvernig \u00e1ttu unglingarnir \u00ed h\u00f3pnum a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ru tv\u00f6 plott \u00ed gangi, tv\u00e6r s\u00f6gur? \u00dea\u00f0 var ekki fyrr en \u00ed hl\u00e9inu, sem t\u00f3kst a\u00f0 sk\u00fdra fyrir \u00feeim samhengi\u00f0. Og \u00e9g hugsa, a\u00f0 \u00feetta hafi fl\u00e6kst fyrir fleirum en unglingum. L\u00e9r konungur er ekki skyldulesning \u00ed framhaldssk\u00f3lum h\u00e9r, eins og hann er au\u00f0vita\u00f0 \u00ed landi sk\u00e1ldsins. \u00dear \u00feekkir hvert mannsbarn, sem \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 hefur noti\u00f0 bo\u00f0legrar sk\u00f3lag\u00f6ngu, \u00f6ll helstu verk Shakespeares og eiga a\u00f0 skilja mismunandi plott, undirhyggju, gri\u00f0rof og svik, sem mynda s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0inn.<\/p>\n<p>Auk \u00feess var Eggert \u00deorleifsson auglj\u00f3slega ekki r\u00e9tti ma\u00f0urinn \u00ed hlutverk jarlsins af Glostri, og m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 s\u00f3un \u00e1 st\u00f3rkostlegum h\u00e6fileikum Eggerts a\u00f0 leggja \u00fea\u00f0 \u00e1 hann a\u00f0 leika veiklunda\u00f0, tr\u00fagjarnt g\u00f3\u00f0menni, sem hefur ekkert anna\u00f0 til m\u00e1lanna a\u00f0 leggja en a\u00f0 \u00e1saka sj\u00e1lfan sig \u00ed alltof l\u00f6ngu m\u00e1li. Gangan langa, upp og ni\u00f0ur, hring eftir hring, \u00e1 au\u00f0u svi\u00f0inu \u00ed upphafi seinasta \u00fe\u00e1ttar dr\u00f3 allan kraft \u00far s\u00fdningunni, sem vannst ekki a\u00f0 fullu upp aftur fyrr en \u00ed bl\u00e1lokin me\u00f0 innkomu konungsins. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 ma\u00f0ur horf\u00f0i me\u00f0 skelfingu inn \u00ed t\u00f3mar augnt\u00f3ftir jarlsins, \u00fe\u00e1 t\u00f3kst honum hvorki a\u00f0 vekja sam\u00fa\u00f0 n\u00e9 spennu. Okkur var sama um hann, hvernig sem \u00e1 \u00fev\u00ed st\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p>Hins vegar haf\u00f0i ma\u00f0ur sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 \u00feeim syni, skilgetnum \u00fe\u00f3, sem \u00ed lokin stendur aleinn \u00e1 berstr\u00edpu\u00f0u svi\u00f0inu og talar til okkar sem hugsanlegur bjargv\u00e6ttur \u00fej\u00f3\u00f0ar \u2013 l\u00edfsreyndur me\u00f0 gott hjartalag og hei\u00f0arlegan \u00e1setning. F\u00e6ddur foringi. Atli Rafn s\u00fdnir \u00e1 s\u00e9r margar hli\u00f0ar \u00ed fl\u00f3kinni pers\u00f3nusk\u00f6pun, en \u00f3tr\u00falegastur er hann, \u00feegar hann r\u00edfur utan af s\u00e9r spjarirnar og umbreytist \u00ed Tomma klikk \u2013 aumkunarver\u00f0an umrenning, sem hvergi \u00e1 s\u00e9r athvarf, grindhora\u00f0 og fatalaust fatlaf\u00f3l. Breytingin er eins og sj\u00f3nhverfing, ja\u00f0rar vi\u00f0 a\u00f0 vera gj\u00f6rningur per se. Miki\u00f0 teater, gl\u00e6silegt.<\/p>\n<p>\u00d3skilgetni sonurinn, J\u00e1tmundur f\u00e6r makleg m\u00e1lagj\u00f6ld, enda f\u00e6ddur af h\u00f3ru, sem gleymdi a\u00f0 kenna honum g\u00f3\u00f0a si\u00f0i \u2013 e\u00f0a kenndi honum g\u00f3\u00f0a si\u00f0i til brei\u00f0a yfir hi\u00f0 sanna e\u00f0li sitt. Stef\u00e1n Hallur hefur haft m\u00f6rg t\u00e6kif\u00e6ri \u00ed vetur, og hann b\u00e6tir svo sem engu vi\u00f0 a\u00f0 \u00feessu sinni. Gl\u00e6silegur a\u00f0 vanda og n\u00e6r vel a\u00f0 t\u00falka fl\u00e1ttskap og undirl\u00e6gjuh\u00e1tt hins \u00f3\u00e6\u00f0ri sonar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er svipa\u00f0a s\u00f6gu a\u00f0 segja af \u00feeim Eggerti \u00deorleifssyni og P\u00e1lma Gestssyni \u2013 \u00feeir eru b\u00e1\u00f0ir brillian gamanleikarar, og P\u00e1lma er ma\u00f0ur b\u00fainn a\u00f0 fylgjast me\u00f0 \u00e1 skj\u00e1num \u00ed marga \u00e1ratugi. \u00dea\u00f0 er alltaf erfitt fyrir svona menn (\u00e9g man bara eftir \u00f6rl\u00f6gum Bessa) a\u00f0 fara yfir \u00ed dramat\u00edk og \u00e6tla a\u00f0 sannf\u00e6ra \u00e1horfendur um tr\u00faver\u00f0ugleik \u00ed traged\u00edu. \u00dea\u00f0 gengur mj\u00f6g sjaldan. \u00dea\u00f0 er l\u00edklega \u00feess vegna sem \u00e9g s\u00e6tti mig ekki fullkomlega vi\u00f0 P\u00e1lma \u00ed hlutverki hins g\u00f6fuga jarls af Kent. \u00c9g veit vel a\u00f0 P\u00e1lmi er g\u00f6fugmenni (enda a\u00f0 vestan) og leggur sig allan fram, einl\u00e6gur, h\u00f3gv\u00e6r og umhyggjusamur vi\u00f0 konung sinn \u2013 en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur bara P\u00e1lmi (held jafnvel, a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 \u00ed gallabuxunum s\u00ednum \u00e1 svi\u00f0inu).<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00e9g eftir a\u00f0 nefna f\u00edfli\u00f0 sj\u00e1lft (\u00d3laf\u00eda Hr\u00f6nn J\u00f3nsd\u00f3ttir). Einn unglingurinn me\u00f0al gesta minna \u00e1 frums\u00fdningu sag\u00f0i \u00ed lok s\u00fdningar, \u201cF\u00edfli\u00f0 hvarf eftir hl\u00e9, amma, og \u00fe\u00e1 var ekkert gaman lengur\u201d. Og \u00feetta var a\u00f0 vissu leyti alveg r\u00e9tt. A\u00f0 loknu hl\u00e9i kl\u00e6ddi \u00d3laf\u00eda Hr\u00f6nn sig \u00far tr\u00fa\u00f0ab\u00faningnum og t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r hlutverk hj\u00fakrunarkonunnar \u2013 e\u00f0a \u00f6llu heldur hlutverk sj\u00fakrali\u00f0ans. H\u00fan sag\u00f0i ekki or\u00f0 lengur, heldur l\u00e9t s\u00e9r n\u00e6gja a\u00f0 lei\u00f0a sj\u00faka og aldra\u00f0a um svi\u00f0i\u00f0 og s\u00e1 um a\u00f0 hlynna a\u00f0 \u00feeim \u00ed b\u00e1gindum s\u00ednum. Kannski var f\u00edflinu um megn a\u00f0 horfa upp \u00e1 konung sinn gefast upp og gr\u00e1ta eins og barn. F\u00edflagangurinn \u00e1tti ekki vi\u00f0 lengur, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 segja k\u00f3nginum sannleikann. En \u00d3laf\u00eda f\u00f3r algerlega \u00e1 kostum, me\u00f0an h\u00fan l\u00e9t svo l\u00edti\u00f0 a\u00f0 tala til okkar af svi\u00f0inu. H\u00fan heillar gesti me\u00f0 hispurslausri framkomu og sk\u00fdrum talanda. En h\u00fan talar ekki bara me\u00f0 munninum, heldur me\u00f0 \u00f6llum l\u00edkamanum, \u00feessum st\u00f3ra alltumvefjandi l\u00edkama. H\u00fan var reyndar l\u00edka me\u00f0 hvern gj\u00f6rninginn \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum, og \u00feegar h\u00fan a\u00f0 lokum bar\u00f0i trumbur og h\u00e9lt takti, meira a\u00f0 segja l\u00edka, \u00fe\u00e1 \u00e6tla\u00f0i allt a\u00f0 springa. \u00d3laf\u00eda er engum l\u00edk.<\/p>\n<p>M\u00e9r er \u00fea\u00f0 enn minnisst\u00e6tt, \u00feegar \u00e9g hitti Arnar J\u00f3nsson \u00ed fyrsta sinn. Vi\u00f0 vorum b\u00e6\u00f0i a\u00f0 hefja n\u00e1m vi\u00f0 Leiklistarsk\u00f3la \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins, og hann var str\u00e1kurinn a\u00f0 nor\u00f0an. \u00c9g s\u00e1 \u00fea\u00f0 strax \u00ed upphafi, a\u00f0 Arnar mundi ekki l\u00e6ra neitt \u00ed \u00feessum sk\u00f3la. Hann kunni allt. Ekki af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann v\u00e6ri sannf\u00e6r\u00f0ur um \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur, heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var f\u00e6ddur leikari og var me\u00f0 \u00feetta allt \u00e1 hreinu \u2013 g\u00f3\u00f0a f\u00fds\u00edk, fr\u00e1b\u00e6ra raddbeitingu og \u00f3a\u00f0finnanlega svi\u00f0st\u00e6kni. Hva\u00f0 var h\u00e6gt a\u00f0 kenna svona manni? J\u00fa, tukta hann til, r\u00edfa hann ni\u00f0ur. En \u00fea\u00f0 t\u00f3kst aldrei. Strax \u00e1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri var hann kominn \u00e1 fjalirnar me\u00f0 a\u00f0alhlutverk \u00ed G\u00edsl, eftir Brendan Behan.<\/p>\n<p>Og \u00fear sem \u00e9g var a\u00f0 horfa \u00e1 Arnar \u00feetta kv\u00f6ld, sitjandi \u00e1 \u00feri\u00f0ja bekk, \u00ed n\u00e1v\u00edgi vi\u00f0 leikarana, \u00fe\u00e1 fannst m\u00e9r eins og \u00feetta hef\u00f0i allt gerst \u00ed g\u00e6r. Drengurinn haf\u00f0i ekkert breyst, krafturinn var s\u00e1 sami, t\u00e6knin enn gl\u00e6silegri, minni\u00f0 \u00f3brig\u00f0ult, r\u00f6ddin voldug og bj\u00f6rt eins og for\u00f0um daga. \u00dea\u00f0 sem kannski \u00e1 skorti \u00ed l\u00e9ttleika og ung\u00e6\u00f0ingsh\u00e6tti var b\u00e6tt upp me\u00f0 d\u00fdrm\u00e6tri reynslu li\u00f0inna \u00e1ra \u2013 s\u00e1rsauka, s\u00f6knu\u00f0, sorg, kvalir, vonbrig\u00f0i \u2013 allt \u00fea\u00f0 \u00f3v\u00e6nta og \u00f3umbe\u00f0na, sem endanlega gerir okkur einhvers vir\u00f0i. Arnar var a\u00f0 uppskera, svo sem til var s\u00e1\u00f0. Allt kv\u00f6ldi\u00f0 var hann a\u00f0 gefa \u2013 mi\u00f0la \u00f6\u00f0rum af \u00fev\u00ed sem hann hefur sj\u00e1lfur l\u00e6rt af l\u00edfinu.\u00dea\u00f0 var eins og hann tala\u00f0i fr\u00e1 eigin hjarta, gamall ma\u00f0ur, saddur l\u00edfdaga.<\/p>\n<p>B\u00f6rkur J\u00f3nsson er h\u00f6fundur leikmyndarinnar og Halld\u00f3r \u00d6rn J\u00f3nsson anna\u00f0ist l\u00fdsingu. \u00deeirra samvinna fellur eins og fl\u00eds vi\u00f0 rass. \u00deeir fara \u00f3tro\u00f0nar sl\u00f3\u00f0ir. Bl\u00f6\u00f0rurnar lofu\u00f0u g\u00f3\u00f0u og g\u00e1fu okkur bjarts\u00fdnar hugmyndir um framhaldi\u00f0. M\u00e9r fannst rigningin l\u00edka skemmtilegur effekt, \u00fe\u00f3tt \u00feessi gr\u00f3\u00f0rarsk\u00far v\u00e6ri n\u00e1tt\u00farlega ekkert til samj\u00f6fnu\u00f0ar vi\u00f0 ofvi\u00f0ri\u00f0, sem Shakespeare s\u00e1 fyrir \u00e1 \u00f6gurstundu \u00ed l\u00edfi gamals manns.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst l\u00edka verulega smart a\u00f0 r\u00edfa burt allt glysi\u00f0 og l\u00e1ta sk\u00edna \u00ed bera veggi h\u00fassins \u00e1 gl\u00e6ru lj\u00f3si. \u00de\u00e1 vorum vi\u00f0 a\u00f0 komast til botns \u00ed verkinu og umhverfi\u00f0 spila\u00f0i fullkomlega undir. Hins vegar gat \u00e9g ekki s\u00e6tt mig vi\u00f0 vegavinnusk\u00farinn, sem B\u00f6rkur haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 reisa \u00ed \u00feessu n\u00f6turlega t\u00f3mi. \u00dear gekk hann einum of langt \u00ed raunveruleik s\u00ednum, a\u00f0 m\u00ednu viti. Kassinn var svo hr\u00e6\u00f0ilega lj\u00f3tur og fr\u00e1hrindandi.M\u00e9r var\u00f0 svo miki\u00f0 um, a\u00f0 \u00e9g missti h\u00e6fileikann til a\u00f0 einbeita m\u00e9r a\u00f0 textanum um stund.<\/p>\n<p>B\u00faningar Helgu voru t\u00edmalausir, eins og leikst\u00edllinn kraf\u00f0ist. Sumir kallanna voru \u00f3ttalega r\u00e6filslegir \u00ed krumpu\u00f0um gallabuxum, enda \u00e1ttu \u00feeir svo sem ekkert a\u00f0 vir\u00f0ast gl\u00e6silegri en \u00feeir voru af gu\u00f0i gj\u00f6r\u00f0ir. Stelpurnar voru hins vegar m\u00e1tulega gly\u00f0rulegar \u00ed le\u00f0ri og bl\u00fandud\u00fallum, eins og \u00fatr\u00e1sarkonum h\u00e6fir. T\u00f3nlist Hildar Ingveldard\u00f3ttur Gu\u00f0nad\u00f3ttur vakti mikla athygli. Hildur sat \u00ed st\u00fakunni og t\u00f6fra\u00f0i fram undurfagra t\u00f3na, sem fylltu upp \u00ed t\u00f3mar\u00fami\u00f0 og dr\u00f3 \u00far har\u00f0neskjunni \u00ed svi\u00f0smyndinni.<\/p>\n<p>\u00de\u00fd\u00f0ing \u00de\u00f3rarins Eldj\u00e1rn hlj\u00f3mar eins og t\u00f3nlist af himnum ofan. Miki\u00f0 skelfing er ma\u00f0urinn gott sk\u00e1ld. En svo m\u00e1 spyrja, er virkilega \u00fe\u00f6rf \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a Shakespeare \u00e1 n\u00fat\u00edmam\u00e1l? Eru klassikerarnir \u2013 Shakespeare sj\u00e1lfur og Helgi H\u00e1lfd\u00e1narson or\u00f0nir \u00fareltir? N\u00e1 \u00feeir ekki lengur eyrum okkar n\u00fat\u00edmamanna nema fyrir atbeina seinni t\u00edma \u00fe\u00fd\u00f0inga? \u00c9g bar \u00feetta undir unglingana, barnab\u00f6rnin m\u00edn, sem \u00e9g bau\u00f0 me\u00f0 m\u00e9r \u00e1 s\u00fdninguna, og \u00feeirra sv\u00f6r voru afdr\u00e1ttarlaus.J\u00e1, \u00fea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a hann. Einn gekk svo langt a\u00f0 spyrja, hvort \u00fea\u00f0 m\u00e6tti ekki rokka L\u00e9 kallinn \u00ed Laugardalsh\u00f6llinni! Bara hugmynd!<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdnir: L\u00e9 konung eftir William Shakespeare \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00de\u00f3rarins Eldj\u00e1rns<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Benedict Andrew<br \/>\nLeikmynd: B\u00f6rkur J\u00f3nsson<br \/>\nB\u00faningar: Helga I. Stef\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlist: Hildur Ingveldard\u00f3ttir Gu\u00f0nad\u00f3ttir<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0mynd: B.J. Nilsen<br \/>\nL\u00fdsing: Halld\u00f3r \u00d6rn \u00d3skarsson<br \/>\nDramat\u00farg: Matthew Whittet<br \/>\nA\u00f0sto\u00f0arleikstj\u00f3ri: Fri\u00f0rik Fri\u00f0riksson<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-138","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/138","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=138"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/138\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":579,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/138\/revisions\/579"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=138"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=138"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=138"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}