{"id":140,"date":"2009-11-30T00:00:00","date_gmt":"2009-11-30T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/11\/30\/jesus-litli-fingerdur-vefur-sem-hvergi-slitnar\/"},"modified":"2020-09-23T09:20:12","modified_gmt":"2020-09-23T09:20:12","slug":"jesus-litli-fingerdur-vefur-sem-hvergi-slitnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/11\/30\/jesus-litli-fingerdur-vefur-sem-hvergi-slitnar\/","title":{"rendered":"Jes\u00fas litli: F\u00ednger\u00f0ur vefur sem hvergi slitnar"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-51\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/jesus.jpg\"><br>\nJes\u00fas litli<\/center><p><\/p>\n<p>Sagan endurtekur s\u00edg. Alltaf sama sagan, eins og Eldj\u00e1rn segir, &#8211; \u00e1r eftir \u00e1r. J\u00f3lin n\u00e1lgast. \u00cd svartasta skammdeginu er allt sett \u00e1 fullt \u00ed h\u00e1spenntu neyslu\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 n\u00fdta hverja stund til a\u00f0 undirb\u00faa h\u00e1t\u00ed\u00f0arnar. \u00dea\u00f0 \u00fearf ekki bara a\u00f0 \u00fer\u00edfa allt h\u00e1tt og l\u00e1gt, heldur \u00fearf eiginlega a\u00f0 breyta heimilinu \u00ed eins konar v\u00f6ruh\u00fas. F\u00f3lk gerir \u00fat lei\u00f0angra \u00ed Kringlur og Sm\u00e1ralindir og kemur klifja\u00f0 til baka af d\u00f3ti og vir\u00f0ist aldrei f\u00e1 n\u00f3g. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 vinna baki brotnu til \u00feess a\u00f0 eiga fyrir \u00feessum \u00f3sk\u00f6pum. Samkeppnin vi\u00f0 n\u00e1ungann, mannj\u00f6fnu\u00f0urinn vi\u00f0 n\u00e1grannann, kr\u00f6furnar fr\u00e1 umhverfinu \u2013 \u00feetta \u00ferennt og meira til beygir okkur undir \u00fer\u00e6ld\u00f3msok neyslu\u00e6\u00f0isins.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Og r\u00e9tt um \u00fea\u00f0 leyti sem vi\u00f0 erum a\u00f0 ni\u00f0urlotum komin brestur h\u00e1t\u00ed\u00f0in \u00e1. Vi\u00f0 leitum kirkjugri\u00f0a. Allt \u00ed einu fylllast kirkjur landsins \u2013 sem \u00fear fyrir utan standa lengst af t\u00f3mar \u2013 og heill herskari opinberra starfsmanna \u00feylur yfir okkur \u00ed einum k\u00f3r dularfullt j\u00f3lagu\u00f0spjall fr\u00e1 botni Mi\u00f0jar\u00f0arhafsins fyrir tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1rum. \u00dea\u00f0 er alveg sama hvernig ver\u00f6ldin velkist og veltist, str\u00ed\u00f0 e\u00f0a fri\u00f0ur, uppgrip e\u00f0a kreppa, \u00feetta er fastur punktur \u00ed tilverunni.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hvarflar ekki einu sinni a\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra a\u00f0 skera \u00feetta ni\u00f0ur \u00ed kreppunni. \u00deetta er heilagt: j\u00f3lagu\u00f0spjalli\u00f0, Jes\u00fas og Mar\u00eda, vitringarnir \u00fer\u00edr, meyf\u00e6\u00f0ingin, Her\u00f3des og P\u00edlatus og alger skortur \u00e1 gistir\u00fdmi \u00ed Betlehem. \u00deanga\u00f0 var \u00f6llum stefnt vegna manntalsins, sem kom au\u00f0vita\u00f0 fr\u00e1 skattstofunni. \u00deess vegna var Jes\u00fas \u00ed j\u00f6tu lag\u00f0ur l\u00e1gt, frelsarinn var oss f\u00e6ddur. Amen.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 flykkjumst \u00ed kirkjur landsins, vi\u00f0 leggjum vi\u00f0 hlustir. En heyrum vi\u00f0 nokku\u00f0? Er \u00feetta ekki sagan endalausa um \u00fea\u00f0, a\u00f0 sj\u00e1andi sj\u00e1um vi\u00f0 ekki og heyrandi heyrum vi\u00f0 ekki? Vi\u00f0 t\u00f6kum \u00fe\u00e1tt \u00ed einhverju sem er sta\u00f0na\u00f0 ritual, form \u00e1n innihalds og bo\u00f0skapurinn upprunalegi l\u00f6ngu t\u00fdndur, gleymdur og grafinn.<\/p>\n<p>\u00c9g geri alveg r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 einhvern veginn \u00e1 \u00feessum n\u00f3tum hafi h\u00f6fundar Jes\u00fas litla veri\u00f0 a\u00f0 hugsa og \u00ed framhaldi af \u00feeim p\u00e6lingum hafi or\u00f0i\u00f0 til \u00feessi snjalla par\u00f3d\u00eda, sem birtist a\u00f0 lokum fullsk\u00f6pu\u00f0 \u00e1 leiksvi\u00f0inu undir heitinu JES\u00daS LITLI. J\u00f3lasagan er s\u00f6g\u00f0, eins og Matteus og L\u00fakas s\u00f6g\u00f0u hana endur fyrir l\u00f6ngu \u2013 en undur og st\u00f3rmerki, vi\u00f0 erum allt \u00ed einu farin a\u00f0 leggja vi\u00f0 hlustir. Og \u00feegar sagan er s\u00f6g\u00f0 af tr\u00fa\u00f0um \u00ed englal\u00edki, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur h\u00fan svo \u00f3tr\u00falega fyndin. \u00c9g tala n\u00fa ekki um, \u00feegar tr\u00fa\u00f0arnir eru n\u00fat\u00edmaf\u00f3lk, sem stenst ekki \u00fe\u00e1 fresitingu a\u00f0 spyrja \u00f3\u00fe\u00e6gilegra spurninga af og til.<\/p>\n<p>Benedikt Erlingsson er skr\u00e1\u00f0ur h\u00f6fundur og leikstj\u00f3ri \u00feessarar s\u00fdningar, \u00fe\u00f3 a\u00f0 n\u00f6fn allra leikenda s\u00e9u a\u00f0 v\u00edsu nefnd til s\u00f6gunnar. \u00c9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 alveg fyrir m\u00e9r, a\u00f0 grunnhugmyndin og s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0urinn s\u00e9 Benedikts \u2013 hann hefur fengi\u00f0 \u00ed v\u00f6ggugj\u00f6f allt \u00fea\u00f0 besta fr\u00e1 b\u00e1\u00f0um foreldrum og b\u00e6tir gott um betur. Er allt \u00ed senn, andlega \u00feenkjandi, gagnr\u00fdninn \u00ed hugsun og hugmyndar\u00edkur. S\u00ed\u00f0an hafi b\u00e6st \u00ed h\u00f3pinn \u00feeir leikendur, sem hann treysti \u00e1, Halld\u00f3ra Geirmundsd\u00f3ttir, Bergur \u00de\u00f3r Ing\u00f3lfsson og Kristjana Stef\u00e1nsd\u00f3ttir. Einvalali\u00f0 \u2013 ekki bara sl\u00e9ttir og felldir leikarar, heldur hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleikarar, s\u00f6ngvarar, akr\u00f3batar, sk\u00e1ld og r\u00e6\u00f0umenn. \u00derotlaus vinna, \u00fea\u00f0 var spunni\u00f0 og spunni\u00f0. \u00dar var\u00f0 f\u00ednger\u00f0ur vefur, sem hvergi slitnar en hangir saman \u00e1 bl\u00e1\u00fer\u00e6\u00f0i hugvitsemi og listfengi. B\u00e6\u00f0i Kristjana og Bergur \u00de\u00f3r hafa voldugar raddir, sem Halld\u00f3ra b\u00e6tir upp me\u00f0 \u00f3tr\u00falegri m\u00edm\u00edk og leikni.<\/p>\n<p>Leikmynd Snorra Freys Hilmarssonar er einf\u00f6ld en samt margslungin. \u00dea\u00f0 sama m\u00e1 segja um l\u00fdsingu Kjartans \u00de\u00f3rissonar. Saman t\u00f3kst \u00feessum tveimur a\u00f0 skapa leikritinu ramma sem h\u00e9lt okkur f\u00f6ngnum, en leyf\u00f0i samt \u00edmyndunaraflinu a\u00f0 leika lausum hala.<br>\nEkki m\u00e1 gleyma t\u00f3nlistinni, sem rennur eins og rau\u00f0ur \u00fer\u00e1\u00f0ur um alla s\u00fdninguna og lyftir henni um margar h\u00e6\u00f0ir. S\u00e9rstaklega var \u00e9g stolt af \u00fev\u00ed a\u00f0 heyra, a\u00f0 Mar\u00edukv\u00e6\u00f0i vinar m\u00edns, Atla Heimis, hef\u00f0i hloti\u00f0 n\u00e1\u00f0 fyrir augum (eyrum) t\u00f3nlistarstj\u00f3rans, Kristj\u00f6nu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eina sem \u00e9g mundi leyfa m\u00e9r a\u00f0 kvarta yfir, er a\u00f0 \u00e9g heyr\u00f0i ekki alltaf n\u00f3gu vel til leikenda. \u00c9g sat innarlega, og \u00fear sem leikendur ver\u00f0a a\u00f0 leika til \u00feriggja \u00e1tta, fer ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00feeir sn\u00fai stundum h\u00f6f\u00f0inu fr\u00e1 manni og \u00fe\u00e1 heyrist ekki or\u00f0askil. \u00c9g missti \u00fev\u00ed greinilega af nokkrum g\u00f3\u00f0um or\u00f0atilt\u00e6kjum.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g gekk aftur \u00fat \u00ed raunveruleikann og \u00edskalt n\u00e1ttmyrkri\u00f0 a\u00f0 s\u00fdningu lokinni, f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r, hvar \u00e9g mundi setja aldurstakmarki\u00f0. \u00deetta er ekki barnaleikrit, \u00fe\u00f3 a\u00f0 titill verksins villi m\u00f6nnum kannski s\u00fdn \u2013 Jes\u00fas litli. Nei, s\u00ed\u00f0ur en svo. Leyfum b\u00f6rnunum a\u00f0 vera Jes\u00fab\u00f6rn, leyfum \u00feeim a\u00f0 hlakka til j\u00f3lanna, tr\u00faa \u00ed blindni \u00e1 b\u00f3kstafinn og draga sinn eigin l\u00e6rd\u00f3m. \u00deeirra er framt\u00ed\u00f0in, n\u00f3gur t\u00edmi til a\u00f0 efast. \u00deetta er leikrit fyrir fullor\u00f0i\u00f0 f\u00f3lk, sem \u00fearf \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda, fremur n\u00fa en nokkru sinni, a\u00f0 leita gri\u00f0a undan neyslufyllir\u00edinu, helgislepjunni og hr\u00e6sninni.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Borgarleikh\u00fasi\u00f0: Jes\u00fas litli<\/p>\n<p>Eftir: Benedikt Erlingsson, Berg \u00de\u00f3r Ing\u00f3lfsson, Halld\u00f3ru Geirmundsd\u00f3ttur<\/p>\n<p>Frums\u00fdnt \u00ed Borgarleikh\u00fasinu 21. n\u00f3v. 2009<br \/>\nLeikstj\u00f3rn: Benedikt Erlingsson<br \/>\nLeikmynd og b\u00faningar: Snorri Freyr Hilmarsson<br \/>\nL\u00fdsing: Kjartan \u00de\u00f3risson<br \/>\nT\u00f3nlist, \u00fatsetningar og t\u00f3nlistarstj\u00f3rn: Kristjana Stef\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nH\u00f6fundar s\u00fdningar: Benedikt Erlingsson, Bergur \u00de\u00f3r Ing\u00f3lfsson, Halld\u00f3ra Geirmundsd\u00f3ttir, Kristjana Stef\u00e1nsd\u00f3ttir og Snorri Freyr Hilmarsso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-140","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/140","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=140"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/140\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":602,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/140\/revisions\/602"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=140"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=140"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=140"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}