{"id":142,"date":"2010-10-09T00:00:00","date_gmt":"2010-10-09T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/10\/09\/islenski-dansflokkurinn-falmad-i-thyngdarleysi\/"},"modified":"2020-09-23T09:09:55","modified_gmt":"2020-09-23T09:09:55","slug":"islenski-dansflokkurinn-falmad-i-thyngdarleysi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/10\/09\/islenski-dansflokkurinn-falmad-i-thyngdarleysi\/","title":{"rendered":"\u00cdslenski dansflokkurinn: F\u00e1lma\u00f0 \u00ed \u00feyngdarleysi"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-82\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/thyngdarleysi.jpg\"><br>\nF\u00e1lma\u00f0 \u00ed \u00feyngdarleysi<\/center><p><\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 vantar alla m\u00f3tivasjon,\u201d sag\u00f0i sj\u00f3arinn \u00ed BRIM \u2013 (s\u00e1 \u00fe\u00e1 mynd \u00ed vikunni \u2013 alger snilld) \u2013 og \u00feess vegna dettur m\u00e9r \u00feetta or\u00f0 \u00ed hug n\u00fana, \u00feegar \u00e9g sest ni\u00f0ur til a\u00f0 skrifa um n\u00fdjasta verki\u00f0 \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u2013 Heimur sem ekki er til. \u00dea\u00f0 er engin bers\u00fdnileg m\u00f3tivasjon a\u00f0 baki \u2013 enginn hvati, engin saga, ekkert upphaf, enginn endir \u2013 a\u00f0eins \u201clifandi sk\u00falpt\u00far, m\u00e1lverk og t\u00f3nverk\u201d \u2013 eins og h\u00f6fundarnir, Gabr\u00edela og Erna, segja sj\u00e1lfar.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00dear sem \u00e9g sat \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi og fylgdist hugfangin me\u00f0 \u00e1tta mannsl\u00edk\u00f6mum \u00e1 svi\u00f0inu, sem virtust hvorki hafa upphaf n\u00e9 endi, s\u00fdndust vera \u00f3h\u00e1\u00f0ir a\u00f0dr\u00e1ttarafli jar\u00f0ar, l\u00f6gm\u00e1lum \u00feyngdar og sveigjanleika, \u00fdmist samanhn\u00fdttir e\u00f0a \u00fatopnir, teyg\u00f0ir, stundum afskr\u00e6mdir, jafnvel hrollvekjandi \u00ed sviplausum gervum \u00f3kunnra vera \u00ed heimi, sem ekki er til \u2013 \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r, hva\u00f0 \u00feeir eru l\u00e1nsamir, sem geta leitt hrollvekjur hins \u00edslenska raunveruleika hj\u00e1 s\u00e9r, loka\u00f0 sig af og skapa\u00f0 s\u00e9r sinn eigin heim, \u00f3\u00e1reittir og \u00feokkalega hamingjusamir, a\u00f0 manni s\u00fdnist.<\/p>\n<p>\u00deannig eru Erna, og Gabr\u00edela og Valdimar og Damien og Ben og eflaust allir krakkarnir \u00ed dansh\u00f3pnum l\u00edka. \u00deau l\u00e1ta bara hverjum degi n\u00e6gja s\u00edna \u00fej\u00e1ningu og halda \u00e1fram a\u00f0 sinna s\u00ednu. Kynlegar verur hafa veri\u00f0 Ernu og Gabr\u00edelu yrkisefni fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r h\u00f3fu samstarf \u00e1ri\u00f0 2005 \u00ed Brussel. Sama vor voru \u00fe\u00e6r b\u00e1\u00f0ar \u00e1 Tv\u00ed\u00e6ringnum \u00ed Feneyjum, ungar og spennandi listakonur. Straumur f\u00f3lks l\u00e1 \u00ed \u00edslenska s\u00fdningarsalinn.<\/p>\n<p>\u00c6vint\u00fdraverk \u00ed sex \u00fe\u00e1ttum var\u00f0 til \u00e1 eldh\u00fasbor\u00f0inu heima hj\u00e1 Gabr\u00edelu. Spannst or\u00f0 af or\u00f0i. Gabr\u00edela dr\u00f3 l\u00ednur \u00e1 bla\u00f0 og Erna rissa\u00f0i hreyfingar \u00ed minnisb\u00f3kina. Og yrkisefni\u00f0 var enn \u00fea\u00f0 sama, kynjaverur \u00far \u00f3kunnum heimi.Valdimar og Ben voru l\u00edka vi\u00f0 bor\u00f0i\u00f0 og t\u00f3ku \u00fe\u00e1tt \u00ed spunanum. En hvort kom \u00e1 undan, t\u00f3nlistin e\u00f0a lifandi sk\u00falpt\u00far? F\u00e9kk Erna innbl\u00e1stur af t\u00f3nlistinni e\u00f0a \u00f6fugt? Ekkert \u00feeirra hefur svar \u00e1 rei\u00f0um h\u00f6ndum.<\/p>\n<p>T\u00f3narnir renna fram brei\u00f0ir og sei\u00f0andi \u00ed upphafi, jafnvel d\u00e1lei\u00f0andi. Sm\u00e1m saman eykst hra\u00f0inn, sk\u00falpt\u00farinn tekst \u00e1 flug, margfaldast eins og amaba e\u00f0a hverfur inn \u00ed sig eins og rykhno\u00f0ri \u00ed s\u00f3lskini. \u00d3tr\u00falegur gj\u00f6rningur, magna\u00f0ur \u00ed fj\u00f6lbreytileik s\u00ednum. Stundum \u00e6gifagur en l\u00edka forlj\u00f3tur \u2013 e\u00f0a \u00f6llu heldur \u00e6gifagur \u00ed lj\u00f3tleik s\u00ednum. \u00d3\u00feoli\u00f0 skr\u00ed\u00f0ur upp eftir handleggjum og baki, mann langar til a\u00f0 standa upp, hlaupa \u00fat \u2013 og \u00f6skra. \u00c6gifagurt, forlj\u00f3tt! Hvort er \u00fea\u00f0? Hvort tveggja, er svari\u00f0.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst \u00feetta \u00e6gif\u00f6gur upplifun sem \u00e9g hef\u00f0i ekki vilja\u00f0 missa af. Fr\u00e1b\u00e6rir listamenn koma \u00fearna a\u00f0 verki. Erna er frumkv\u00f6\u00f0ull, sem \u00e1 vart sinn l\u00edka. H\u00fan spilar \u00e1 mannsl\u00edkamann eins og hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri, og \u00ed sameiningu tekst \u00feeim Gabr\u00edelu og henni a\u00f0 skapa \u00f3gleymanlegar myndir, m\u00e1lverk og sk\u00falpt\u00fara, sem hreyfast \u00ed s\u00edfellu, leggjast saman, leysast upp, \u00feykkna upp aftur eins og sk\u00fd \u00ed roki.<\/p>\n<p>Og ekki eru \u00fe\u00e6r sviknar af samstarfsf\u00f3lki s\u00ednu. \u00dea\u00f0 er s\u00e1 leir, sem hno\u00f0a\u00f0 er \u00far. Dansararnir s\u00fdna \u00f3tr\u00falega leikni, allir sem einn og einn sem allir. \u00dea\u00f0 er \u00e1n\u00e6gjulegt a\u00f0 sj\u00e1 h\u00f3pinn svona samstilltan og kraftmikinn. Dramat\u00edsk t\u00f3nlist Valdimars og Bens \u00e1 ekki s\u00edst \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00e1hrifum verksins, og ekki m\u00e1 gleyma a\u00f0 geta l\u00fdsingar Kjartans og A\u00f0alsteins, sem lei\u00f0ir okkur \u00ed gegnum s\u00fdninguna af listfengi og n\u00e6mu auga.<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00f6llu \u00feessu s\u00f6g\u00f0u, ver\u00f0 \u00e9g samt a\u00f0 gagnr\u00fdna grunninn a\u00f0 verkinu. \u00de\u00e6r Gabr\u00edela og Erna vir\u00f0ast vera \u00ed eins konar \u00e1l\u00f6gum, sem \u00fe\u00e6r geta ekki losa\u00f0 sig \u00far. \u00dea\u00f0 eru fimm \u00e1r s\u00ed\u00f0an \u00fe\u00e6r \u201cdebuteru\u00f0u\u201d me\u00f0 kynjaverur s\u00ednar \u00e1 Biennalnum og \u00fe\u00e6r hafa enn ekki vaxi\u00f0 fr\u00e1 \u00feessum verum. M\u00e9r finnst kominn t\u00edmi til a\u00f0 leita \u00e1 n\u00fd mi\u00f0, f\u00e6ra sig kannski n\u00e6r okkur sj\u00e1lfum, raunveruleikanum, n\u00fat\u00edmanum, inn \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0, fjalla um eitthva\u00f0 sem kemur okkur \u00f6llum vi\u00f0 og hefur \u00e1hrif \u00e1 daglegt l\u00edf.<\/p>\n<p>Hver er kveikjan a\u00f0 \u00feessu verki? Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem vekur dansinn til l\u00edfsins? Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem egnir dansarann til a\u00f0 ofbj\u00f3\u00f0a l\u00edkamanum \u00ed d\u00fdrslegri tj\u00e1ningu? F\u00e1tt er fegurra en \u00e1reynslulaus orka \u00e6skunnar.F\u00e1tt er sorglegra en misnotkun hins fagra (og einl\u00e6ga) \u00ed \u00fej\u00f3nustu fl\u00e6r\u00f0arinnar. Hva\u00f0 sag\u00f0i ekki str\u00e1kurinn \u00ed BRIMI \u00ed l\u00fakarnum, \u00fear sem hann sat af s\u00e9r fr\u00edvaktina vi\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 hundf\u00falt kl\u00e1m?. \u201c\u00dea\u00f0 vantar \u00ed \u00feetta m\u00f3tivasj\u00f3n. Er \u00fea\u00f0 ekki m\u00e1li\u00f0?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>F\u00e1lma\u00f0 \u00ed \u00feyngdarleysi.  \u00cdslenski dansflokkurinn frums\u00fdnir \u00ed Borgarleikh\u00fasinu<\/p>\n<p>Heimur sem ekki er til \u2013 Transaquania \u2013 Into Thin Air<br \/>\n\u00c6vint\u00fdraverk \u00ed sex k\u00f6flum<\/p>\n<p>H\u00f6fundar: Erna \u00d3marsd\u00f3ttir. Damien Jalet. Gabr\u00edela Fri\u00f0riksd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlist: Valdimar J\u00f3hannsson, Ben Frost<br \/>\nB\u00faningar: Gabr\u00edela Fri\u00f0riksd\u00f3ttir, Hranfhildur H\u00f3lmgeirsd\u00f3ttir<br \/>\nLj\u00f3sah\u00f6nnun: Kjartan \u00de\u00f3risson, A\u00f0alsteinn Stef\u00e1nsson<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0t\u00e6kni: Baldvin Magn\u00fasson<br \/>\nMyndband \u00ed forsal: Pierre Debusschere<br \/>\nDansarar: A\u00f0alhei\u00f0ur Halld\u00f3rsd\u00f3ttir, \u00c1sgeir Helgi Magn\u00fasson, Cameron Corbett, Hannes \u00de\u00f3r Egilsson, Hj\u00f6rd\u00eds Lilja \u00d6rn\u00f3lfsd\u00f3ttir, Mar\u00eda \u00de\u00f3rd\u00eds \u00d3lafsd\u00f3ttir, Steve Lorenz, Sigr\u00ed\u00f0ur Soff\u00eda N\u00edelsd\u00f3ttir, \u00deyr\u00ed Huld \u00c1rnad\u00f3tti<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-142","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/142","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=142"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/142\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":583,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/142\/revisions\/583"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=142"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=142"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=142"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}