{"id":144,"date":"2010-08-30T00:00:00","date_gmt":"2010-08-30T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/08\/30\/hamskiptin-i-ham\/"},"modified":"2020-09-23T09:10:34","modified_gmt":"2020-09-23T09:10:34","slug":"hamskiptin-i-ham","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/08\/30\/hamskiptin-i-ham\/","title":{"rendered":"Hamskiptin: \u00cd ham"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-46\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/hamskiptin.jpg\"><br>\nHamskiptin<\/center><p><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var h\u00e1lfger\u00f0ur beygur \u00ed m\u00e9r, \u00feegar \u00e9g sneri heim \u00far leikh\u00fasinu \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi. \u00dea\u00f0 var ekki laust vi\u00f0, a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri kv\u00ed\u00f0afull, hr\u00e6dd vi\u00f0 hi\u00f0 \u00f3komna, veturinn og myrkri\u00f0 \u2013 og hugsanlegt birtingarform angistarinnar \u00ed okkar heillum horfna \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi. Angistin getur sn\u00faist upp \u00ed andhverfu s\u00edna, brotist \u00fat \u00ed hamslausri grimmd og miskunnarleysi. \u00deeir sem ekki falla inn \u00ed mynstri\u00f0, \u00feeir sem skera sig \u00far, eru \u00f6\u00f0ru v\u00edsi, ofbj\u00f3\u00f0a blyg\u00f0unarkennd (les: r\u00e9ttl\u00e6tiskennd) okkar \u2013 skulu v\u00edkja. Um \u00fea\u00f0 fjallar n\u00f3vella Franz Kafka \u2013 Hamskiptin.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Einhvers sta\u00f0ar segir: \u201cGregor is a human being in an insect\u00b4s disguise, but his family are insects in the disguise of human beings.\u201d \u00deetta er s\u00fa andhverfa og \u00f3hugna\u00f0ur, sem situr \u00ed manni lengi \u00e1 eftir, um \u00fea\u00f0 hvernig foreldrar, jafnvel elsku\u00f0 systir, geta umbreyst \u00ed \u00f3argad\u00fdr, drepi\u00f0 \u00e1stvin sinn og fyrirvinnu og haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 lifa eins og ekkert hafi \u00ed skorist. \u00deau tryllast af f\u00f6gnu\u00f0i og hlaupa \u00fat \u00ed vori\u00f0, frelsu\u00f0 undan oki s\u00ednu.<\/p>\n<p>A\u00f0 v\u00edsu er \u00feeim hl\u00edft vi\u00f0 a\u00f0 myr\u00f0a son sinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 Gregor f\u00f3rnar l\u00edfi s\u00ednu sj\u00e1lfviljugur og gefur \u00feeim frelsi. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 hafa sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur og systur Gregors, sem sitja uppi me\u00f0 skorkvikindi \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 sinni og vita ekki sitt rj\u00fakandi r\u00e1\u00f0, \u00fe\u00e1 er sam\u00fa\u00f0in \u00f6ll me\u00f0 manneskjunni \u00ed \u00e1lagahamnum, sem enn elskar hi\u00f0 fagra og g\u00f3\u00f0a \u00ed l\u00edfinu, en hefur glata\u00f0 h\u00e6fileikanum til a\u00f0 tj\u00e1 sig \u00e1 skiljanlegu m\u00e1li. \u201cA human being in an insect\u00b4s disguise\u201d.<\/p>\n<p>Getur veri\u00f0 a\u00f0 Kafka s\u00e9 a\u00f0 skrifa um sj\u00e1lfan sig? Um fj\u00f6lskyldu s\u00edna og hi\u00f0 steingelda sm\u00e1borgaralega umhverfi, sem hann \u00f3lst upp \u00ed \u2013 og bj\u00f3 vi\u00f0 alla t\u00ed\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann fluttist aldrei a\u00f0 heiman? Hann gefur \u00edmyndunaraflinu lausan tauminn og spinnur \u2013 spinnur um \u00fea\u00f0 sem hugsanlega hef\u00f0i geta\u00f0 gerst \u2013 en ger\u00f0ist samt ekki.<\/p>\n<p>\u00d3neitanlega ver\u00f0ur manni hugsa\u00f0 til br\u00e9fsins, sem hann skrifa\u00f0i f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum \u00e1ri\u00f0 1919, \u2013 en fa\u00f0ir hans aldrei s\u00e1. \u00dear l\u00fdsir hann \u00e1 miskunnarlausan h\u00e1tt sambandi f\u00f6\u00f0ur og sonar. Hann l\u00fdsir (eins og segir \u00ed pr\u00f3gramminu) valdbeitingu, k\u00fagun, ford\u00f3mum, sektarkennd, \u00f6rv\u00e6ntingu, einangrun og firringu \u00ed samskiptum fe\u00f0ga.<\/p>\n<p>Fa\u00f0irinn \u00ed leikritinu g\u00e6ti veri\u00f0 n\u00e1kv\u00e6m eftirl\u00edking kaupmannsins, Hermanns Kafka \u2013 sm\u00e1munasamur og tilfinningalaus hrotti, en um lei\u00f0 undird\u00e1nug sme\u00f0ja frammi fyrir valdinu og n\u00ed\u00f0ist \u00e1 veikbur\u00f0a syni s\u00ednum. M\u00f3\u00f0ir Franz Kafka hefur l\u00edklega ekki \u00e1tt margra kosta v\u00f6l \u00ed samskiptum vi\u00f0 eiginmann sinn, har\u00f0stj\u00f3rann \u00e1 heimilinu. \u00cd leikritinu er h\u00fan dregin upp sem einfeldningsleg undirl\u00e6gja. Jafnvel systirin, Gr\u00e9ta, hin sterka og r\u00e1\u00f0ag\u00f3\u00f0a, sn\u00fdst gegn honum \u00ed lokin. \u201cInsects in the disguise of human beings\u201d.<\/p>\n<p>Var Kafka p\u00f3lit\u00edsk pers\u00f3na? Er l\u00fdsing hans \u00e1 mannlegum samskiptum innan fj\u00f6lskyldunnar, valdbeitingu, au\u00f0sveipni, hjar\u00f0heg\u00f0un og skorti \u00e1 umbur\u00f0arlyndi gagnvart hinu \u00f3venjulega, d\u00e6misaga, sem h\u00f6fundurinn segir til a\u00f0 gegnuml\u00fdsa \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 \u00ed heild? Sumir lesa v\u00e6g\u00f0arlausa \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsgagnr\u00fdni \u00fat \u00far verkum hans, \u00fe\u00f3tt s\u00f6gurnar sj\u00e1lfar sn\u00faist bara um innhverfa sj\u00e1lfsr\u00fdni, eins og t.d. Hamskiptin og R\u00e9ttarhaldi\u00f0. Sumir ganga meira a\u00f0 segja svo langt a\u00f0 l\u00fdsa hinum innhverfa og \u00f3mannblendna h\u00f6fundi Hamskiptanna sem frams\u00fdnum sp\u00e1manni, sem s\u00e1 fyrir hrun evr\u00f3pskrar si\u00f0menningar og valdat\u00f6ku nasista og komm\u00fanista, sem \u00feyldu enga gagnr\u00fdni og engin fr\u00e1vik fr\u00e1 sta\u00f0la\u00f0ri hjar\u00f0heg\u00f0un ofst\u00e6kisins.<\/p>\n<p>\u00deessi skilningur \u00e1 verkum Kafka, er sennilega venjuleg eftir\u00e1speki, enda er f\u00e1tt a\u00f0 finna \u00ed l\u00edfi og pers\u00f3nuleika h\u00f6fundarins, sem rennir sto\u00f0um undir g\u00e1fnalj\u00f3sakenningar af \u00feessu tagi. Daginn sem fyrri heimstyrj\u00f6ldin braust \u00fat, skrifar Kafka \u00ed dagb\u00f3k s\u00edna: \u201cSkrapp \u00ed sund\u201d. En \u00fea\u00f0 er vita\u00f0, a\u00f0 Kafka haf\u00f0i \u00e1 \u00e1runum fyrir fyrra str\u00ed\u00f0 \u00f3beit \u00e1 r\u00e1\u00f0andi hugmyndafr\u00e6\u00f0i, sem kennd var vi\u00f0 \u201cf\u00e9lagslegan Darwinisma\u201d. Me\u00f0 v\u00edsan til yfirbur\u00f0a hinna h\u00e6fustu var tali\u00f0 r\u00e9ttm\u00e6tt a\u00f0 \u00fatr\u00fdma \u00f6llu \u00fev\u00ed, sem taldist veikbur\u00f0a, afbrig\u00f0ilegt e\u00f0a \u00f3heilbrigt.V\u00edsindamenn m\u00e6ltu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gelda hina \u00feroskaheftu og jafnvel flytja \u00fe\u00e1, sem af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um f\u00e9llu ekki inni \u00ed fj\u00f6ldann, nau\u00f0ungarflutningum \u00ed s\u00e9rstakar fangab\u00fa\u00f0ir. \u00dea\u00f0an er a\u00f0 v\u00edsu stutt \u00ed g\u00falagi\u00f0 og gasklefana.<\/p>\n<p>Og hva\u00f0 er svo um t\u00falkun Vesturports a\u00f0 segja \u2013 margver\u00f0launa\u00f0a s\u00fdningu \u00fati \u00ed hinum st\u00f3ra heimi?<\/p>\n<p>Fyrsta sem kemur upp \u00ed hugann er or\u00f0i\u00f0 st\u00edlhreint og formfast. Byrjunin marka\u00f0i stefnu, sem h\u00e9lst alveg til loka. Hvergi st\u00edlbrot. Veisla fyrir auga\u00f0. Hver hreyfing og hvert or\u00f0 \u00feaulhugsa\u00f0.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 or\u00f0 sem kemur upp \u00ed hugann er fimi \u2013 leikfimi (\u00feaulhugsa\u00f0 or\u00f0). G\u00edsli \u00d6rn er aldeilis \u00f3tr\u00falega leikfimur. Ma\u00f0ur gleymdi \u00fev\u00ed, a\u00f0 hann var ekki liggjandi \u00ed \u00f6ngum s\u00ednum \u00e1 alv\u00f6ru g\u00f3lfi e\u00f0a \u00ed felum undir l\u00e1r\u00e9ttu r\u00fami, heldur h\u00e9kk \u00e1 bl\u00e1n\u00f6glunum ne\u00f0an \u00far loftinu e\u00f0a veggnum og f\u00f3r samt me\u00f0 textann eins og hann st\u00e6\u00f0i \u00e1 g\u00f3lfinu og hef\u00f0i e\u00f0lilegt r\u00fdmi fyrir lungun.<\/p>\n<p>Og \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 G\u00edsli \u00d6rn v\u00e6ri \u00ed gervi kvikindis \u00f6llum til ama, \u00fe\u00e1 t\u00f3kst honum me\u00f0 t\u00falkun sinni a\u00f0 vekja sl\u00edka me\u00f0aukvun og sam\u00fa\u00f0, a\u00f0 augun fylltust t\u00e1rum hva\u00f0 eftir anna\u00f0. Hann var mennskur \u00fer\u00e1tt fyrir allt.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst leikendur reyndar allir f\u00e1ga\u00f0i, en samt m\u00e1tulega ruddalegir \u00ed t\u00falkun sinni. N\u00edna D\u00f6gg hefur \u00feetta allt, h\u00fan getur b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 h\u00f6r\u00f0 og mj\u00fak, var eldsn\u00f6gg a\u00f0 skipta um ham og hugsun.<\/p>\n<p>Ingvar s\u00fdndi snilldarbr\u00f6g\u00f0 hva\u00f0 eftir anna\u00f0, einkum \u00ed upphafi, og svo \u00feegar hann var kominn \u00ed einkennisb\u00faning undirtyllunnar, sem f\u00f3r honum svo vel. \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 erfitt a\u00f0 leika fulla menn, en hann f\u00f3r f\u00ednt \u00ed \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Elva \u00d3sk b\u00fdr yfir \u201cdas ewige weibliche,\u201d \u00feokkafull kona, sem aldrei ver\u00f0ur g\u00f6mul. Samt var h\u00fan mj\u00f6g sannf\u00e6randi \u00ed hlutverki m\u00f3\u00f0urinnar.<\/p>\n<p>Svo fannst m\u00e9r \u00d3lafur Egill komast mj\u00f6g vel fr\u00e1 s\u00ednu fl\u00f3kna hlutverki, sem var\u00f0 reyndar mj\u00f6g sk\u00fdrt \u00ed me\u00f0fer\u00f0 hans.<\/p>\n<p>\u00deau voru \u00f6ll h\u00e1rn\u00e1kv\u00e6m \u00ed t\u00falkun sinni, hver hreyfing og hvert or\u00f0 h\u00f6f\u00f0u dj\u00fapst\u00e6\u00f0a merkingu og m\u00e1tti ekki skeika.<\/p>\n<p>Umger\u00f0in var tekin beint \u00far raunveruleikanum og l\u00e9\u00f0i s\u00fdningunni dapurlegan og \u00f3gnvekjandi svip. Herbergi Gregors var fr\u00e1b\u00e6r lausn \u00e1 t\u00e6knilegum vanda. Og \u00fea\u00f0 var snilld, hvernig \u00feeim t\u00f3kst a\u00f0 varpa spegilmynd bj\u00f6llunnar \u00e1 vegginn. B\u00faningarnir \u00e1ttu ekki hva\u00f0 s\u00edst \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 gera s\u00fdninguna tr\u00faver\u00f0uga.<\/p>\n<p>T\u00f3nlistin var mj\u00f6g athyglisver\u00f0 og spennandi framan af, en hins vegar kunni \u00e9g ekki a\u00f0 meta lokalagi\u00f0, sem m\u00e9r fannst einhvern veginn koma \u00far allt annarri \u00e1tt, vera \u00ed m\u00f3ts\u00f6gn vi\u00f0 \u00fea\u00f0 t\u00edmabil, sem sagan segir fr\u00e1.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er kominn n\u00fdr dagur, og \u00fe\u00e1 horfa hlutirnir \u00f6\u00f0ru v\u00edsi vi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g er ekki lengur d\u00f6pur, en samt er ekki laust vi\u00f0, a\u00f0 \u00e9g kv\u00ed\u00f0i vetrinum.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hamskiptin Eftir Franz Kafka<\/p>\n<p>S\u00fdningu Vesturports \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu<\/p>\n<p>Leikger\u00f0 og leikstj\u00f3rn &#8211; G\u00edsli \u00d6rn Gar\u00f0arsson og David Farr<br \/>\n\u00de\u00fd\u00f0ing \u2013 J\u00f3n Atli J\u00f3nasson<br \/>\nT\u00f3nlist \u2013 Nick Cave og Warren Ellis<br \/>\nLeikmynd \u2013 B\u00f6rkur J\u00f3nsson<br \/>\nB\u00faningar \u2013 Brenda Murphy \/Ingveldur Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0<br \/>\nL\u00fdsing &#8211; Bj\u00f6rn Helgason \/ H\u00f6r\u00f0ur \u00c1g\u00fastsson<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0mynd \u2013 Nick Manning<br \/>\nLj\u00f3smyndir \u2013 Eddi<br \/>\nS\u00fdningarstj\u00f3ri \u2013 Gunnar Gunnsteinsso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-144","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/144","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=144"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/144\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":586,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/144\/revisions\/586"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=144"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=144"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=144"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}