{"id":146,"date":"2010-03-29T00:00:00","date_gmt":"2010-03-29T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/03\/29\/eilif-ohamingja-i-borgarleikhusinu-blindingsleikur\/"},"modified":"2020-09-23T09:10:59","modified_gmt":"2020-09-23T09:10:59","slug":"eilif-ohamingja-i-borgarleikhusinu-blindingsleikur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/03\/29\/eilif-ohamingja-i-borgarleikhusinu-blindingsleikur\/","title":{"rendered":"Eil\u00edf \u00f3hamingja \u00ed Borgarleikh\u00fasinu: Blindingsleikur"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-26\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/blind.jpg\"><br>\nFr\u00e1 Borgarleikh\u00fasinu<\/center><p><\/p>\n<p>\u201cVei y\u00f0ur, fr\u00e6\u00f0imenn og far\u00edsear, hr\u00e6snarar! \u00de\u00e9r l\u00edkist<br>\nhv\u00edtum k\u00f6lku\u00f0um gr\u00f6fum, sem s\u00fdnast fagrar utan, en<br>\ninnan eru fullar af dau\u00f0ra manna beinum og alls kyns<br>\n\u00f3\u00feverra. \u00deannig eru\u00f0 \u00fe\u00e9r, s\u00fdnist hi\u00f0 ytra r\u00e9ttl\u00e1tir \u00ed<br>\nrangl\u00e6tis.\u201d<br>\n( Matteus, 23, 27.)<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Reyndu a\u00f0 bera \u00fe\u00e9r \u00ed munn eftirfarandi klisjutrossu, \u00e1n \u00feess a\u00f0 anda \u00e1 milli: \u201eHrun, \u00cdsland, \u00fatr\u00e1s, Icesave, einkav\u00e6\u00f0ing, Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkur, hlutafj\u00e1raukning, einkahlutaf\u00e9lag, skattaparad\u00eds, innherjavi\u00f0skipti, marka\u00f0smisnotkun, skuldatryggingar\u00e1lag, st\u00fdrivextir, skilanefndarmenn, ar\u00f0grei\u00f0slur, afskriftir, k\u00falul\u00e1n\u00feegar, \u00ferotab\u00fa, kr\u00f6fuhafar, krosseignatengsl, neysluv\u00f6ruver\u00f0sv\u00edsitala, myntk\u00f6rful\u00e1n, \u00e1starbr\u00e9f, s\u00e6greifi, s\u00e9rstakur saks\u00f3knari, bankaleynd, aflandsgengi, j\u00f6klabr\u00e9f, \u00e1h\u00e6ttufj\u00e1rfestir, grei\u00f0slua\u00f0l\u00f6gun, gjald\u00ferot og sk\u00f6tuselsfrumvarp.\u201c<br>\nMatthildur, saks\u00f3sknarinn\/fjallkonan \u00ed \u00feessum blindingsleik \u2013 sem S\u00f3lveig Arnarsd\u00f3ttir tekur f\u00f6stum t\u00f6kum strax \u00ed upphafi leiks, a\u00f0s\u00f3psmikil og sk\u00edrm\u00e6lt, sem fjallkonunni ber \u2013 l\u00fdsir fyrrnefnda klisjuromsu bannor\u00f0 \u00ed \u00feessu svi\u00f0sr\u00e9ttarhaldi, a\u00f0 vi\u00f0l\u00f6g\u00f0um innankv\u00f6lum me\u00f0 raflosti. \u00dear me\u00f0 er \u201c\u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsumr\u00e6\u00f0unni\u201d, eins og h\u00fan birtist okkur \u00feessi misserin \u00ed bl\u00f6\u00f0um, lj\u00f3svaka- og netmi\u00f0lum, \u00fath\u00fdst. Enda \u00fej\u00f3\u00f0in fyrir l\u00f6ngu b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 sig fullsadda af s\u00edbyljunni.<\/p>\n<p>\u201eHver vill fara \u00ed leikh\u00fas til a\u00f0 upplifa aftur harmleik hversdagsins?\u201c spyr Andri Sn\u00e6r \u00ed leikskr\u00e1. Og svari\u00f0 er: Vi\u00f0 viljum gri\u00f0 fr\u00e1 klisjukenndri gerviumr\u00e6\u00f0u, sem for\u00f0ast a\u00f0 kafa undir yfirbor\u00f0 hlutanna \u2013 vi\u00f0 viljum l\u00e1ta lei\u00f0a \u00ed lj\u00f3s sannleikann sem undir b\u00fdr. \u00deess vegna er \u00feetta svi\u00f0sverk \u00ed formi r\u00e9ttarhalds. M\u00e6lskubr\u00f6g\u00f0in minna stundum \u00e1 amer\u00edskan sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e1tt, \u00fear sem \u00e1k\u00e6randinn brilljerar \u00ed yfirheyrslum og ney\u00f0ir f\u00f3rnarlambi\u00f0 til a\u00f0 hrekjast \u00far einu v\u00edgi \u00ed anna\u00f0, um lei\u00f0 og hann (\u00e1k\u00e6randinn) afhj\u00fapar falsvitnisbur\u00f0, undanf\u00e6rslur og lyga\u00fev\u00e6lu.<\/p>\n<p>A\u00f0 baki b\u00fdr s\u00fa hugsun, a\u00f0 hugt\u00f6k fj\u00e1rm\u00e1laheimsins og stj\u00f3rnm\u00e1lal\u00edfsins, sem hver endurtekur \u00ed vanahugsun eftir \u00f6\u00f0rum, s\u00e9u fyrst og fremst til \u00feess fallin a\u00f0 hylma yfir \u2013 fremur en a\u00f0 lei\u00f0a \u00ed lj\u00f3s \u2013 sannleikann. Hver og einn \u00fe\u00e1tttakenda reynir a\u00f0 fegra sinn hlut. Verktakinn \u2013 Orri Huginn \u00c1g\u00fastsson, sem s\u00fdnir \u00e1 s\u00e9r n\u00fdja og spennandi hli\u00f0 \u00ed hverju verkinu \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru &#8211; bankast\u00fdran Sara D\u00f6gg \u00c1sgeirsd\u00f3ttir, sem kemur \u00e1 \u00f3vart me\u00f0 \u00fdkjulausum en hnitmi\u00f0u\u00f0um leikst\u00edl, athafnama\u00f0urinn \u2013 Atli Rafn Sigur\u00f0sson, flott t\u00fdpa, og jafnvel bj\u00f6rgunarsveitarma\u00f0urinn og sk\u00e1tadrengurinn, Gu\u00f0j\u00f3n \u00deorsteinn P\u00e1lmarsson, sem reyndi undir drep a\u00f0 sannf\u00e6ra Matthildi me\u00f0 einl\u00e6gni og bl\u00e1um augum um sakleysi sitt \u2013 fara me\u00f0 utana\u00f0l\u00e6r\u00f0a rullu s\u00edna, \u00feegar \u00feau eru krafin sagna um gildismati\u00f0, sem r\u00e1\u00f0i ath\u00f6fnum \u00feeirra og framkomu vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk. Vi\u00f0 k\u00f6nnumst vi\u00f0 klisjurnar \u00far augl\u00fdsingasmi\u00f0ju almannatengslanna: hei\u00f0arleiki, j\u00e1kv\u00e6\u00f0ni, frumkv\u00e6\u00f0i, traust, \u00e1byrg\u00f0 \u2013 you name it, they\u00b4ve got it.<\/p>\n<p>En hvernig getur \u00fe\u00e1 heilt \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag hruni\u00f0 til grunna, ef \u00feau sem \u00fear r\u00e1\u00f0a h\u00fasum, eru \u00fev\u00edl\u00edkt fyrirmyndarf\u00f3lk? D\u00e6mi\u00f0 gengur ekki upp. Yfirheyrslurnar lei\u00f0a \u00ed lj\u00f3s, a\u00f0 veruleikinn, sem undir b\u00fdr, er allur annar: Sk\u00e1tadrengurinn, sem g\u00e6tir \u201edau\u00f0atjaldsins\u201c \u00e1 \u00fativistarh\u00e1t\u00ed\u00f0inni, er \u00e1r\u00e1ttunau\u00f0gari. Bankastj\u00f3raskv\u00edsan, sem brosir breitt \u00e1 flatskj\u00e1 s\u00fdndarveruleikans, er \u00ed reynd h\u00f6mlulaus gly\u00f0ra og barnamor\u00f0ingi. St\u00f3rverktakinn, sem bygg\u00f0i fimmt\u00e1n \u00fe\u00fasund manna \u00fathverfi me\u00f0 forlj\u00f3tum h\u00faskumb\u00f6ldum , \u00fear sem stofuglugginn sn\u00fdr upp \u00ed ur\u00f0 og grj\u00f3t og svalirnar brei\u00f0a \u00far s\u00e9r m\u00f3ti nor\u00f0ann\u00e6\u00f0ingnum, j\u00e1 \u2013 verktakinn, sem l\u00e6tur verkin tala, endurspeglar um lei\u00f0 sinn innri mann, \u00f3hrj\u00e1legan hugleysingja \u00e1 fl\u00f3tta undan \u00feeim, sem fjarst\u00fdra honum.<\/p>\n<p>Loks tekur til m\u00e1ls hinn b\u00edsperrti og sj\u00e1lfumgla\u00f0i athafnama\u00f0ur, sem er, a\u00f0 eigin \u00e1liti, h\u00e1tt yfir alla hafinn. \u00dearna stendur \u00e1 svi\u00f0inu \u00feetta \u00edslenska \u201e\u00fcbermensch\u201c &#8211; sem Atli Rafn leikur af \u00f3tr\u00falegum krafti og til\u00ferifum \u2013 og forseti l\u00fd\u00f0veldisins h\u00f3f til sk\u00fdjanna \u00ed veislur\u00e6\u00f0um s\u00ednum me\u00f0 \u00feotuli\u00f0inu innan lands og utan. Sag\u00f0i hann ekki \u00ed einhverri lofr\u00e6\u00f0unni, a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i a\u00f0 breyta n\u00e1mskr\u00e1nni vi\u00f0 vi\u00f0skiptah\u00e1sk\u00f3la austan hafs og vestan til \u00feess a\u00f0 skapa r\u00fdmi fyrir \u00fatr\u00e1sarv\u00edkinginn \u00edslenska, til \u00feess a\u00f0 hugdirf\u00f0 hans, \u00e1h\u00e6ttus\u00e6kni og skj\u00f3tr\u00e6\u00f0i fengi sess vi\u00f0 sitt h\u00e6fi?<\/p>\n<p>Athafnask\u00e1ldi\u00f0, sem \u00fearna birtist okkur \u00e1 svi\u00f0inu, er eins konar krossblendingur af J\u00f3ni \u00c1sgeiri, Bj\u00f6rg\u00f3lfi Thorsara og Hannesi \u201eassetstrippara\u201c \u00ed einni og s\u00f6mu pers\u00f3nunni. R\u00e6\u00f0a hans var lofs\u00f6ngur um dirfsku, \u00e1r\u00e6\u00f0i, \u00feor og kjark yfirbur\u00f0amannsins, sem b\u00f6nd me\u00f0almennskunnar n\u00e1 ekki a\u00f0 hefta. Ekkert fyrirl\u00edtur hann eins heitt og innilega og \u201eEvr\u00f3puregluger\u00f0ani\u00f0urnj\u00f6rva\u00f0ahommatittinn.\u201c Sj\u00e1lfur er hann holdgervingur \u00farvals tegundanna, d\u00e1\u00f0adrengur af sk\u00f3la Darwins. Kraftbirtingarhlj\u00f3mur hans er \u00f3m\u00f3tst\u00e6\u00f0ilegur. Atorka hans leysir \u00far l\u00e6\u00f0ingi hi\u00f0 \u00f3m\u00f3tst\u00e6\u00f0ilega afl \u2013 eins og \u00feau segja, Gunnar \u00ed Krossinum og J\u00f3n\u00edna Ben \u2013 um sj\u00e1lf sig \u00ed einhverju glass\u00farvi\u00f0talinu.<\/p>\n<p>\u00dearna er loksins komin fram hugmyndafr\u00e6\u00f0ileg sk\u00fdring \u00e1 \u00f3g\u00e6funni. \u00c1r\u00e1sargirni mannsins, sem leyst hefur veri\u00f0 \u00far vi\u00f0jum (regluger\u00f0a og eftirlits), sem au\u00f0vita\u00f0 er \u00e6tta\u00f0 fr\u00e1 Evr\u00f3pusambandinu. \u00dea\u00f0 er sums\u00e9 testoster\u00f3ni\u00f0, karlmennskuhorm\u00f3narnir, sem allt \u00e6tlar lifandi a\u00f0 drepa. \u00dea\u00f0 er sennilega ekki tilviljun, a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 \u201ea\u00f0 r\u00ed\u00f0a\u201c streymir oftar af v\u00f6rum leikendanna en \u00e9g f\u00e6 t\u00f6lu \u00e1 komi\u00f0. \u00dea\u00f0 er s\u00edfellt veri\u00f0 a\u00f0 r\u00ed\u00f0a og nau\u00f0ga. Mannskepnan greinist bara \u00ed tv\u00e6r tegundir: B\u00f6\u00f0la og f\u00f3rnarl\u00f6mb. Birtist okkur \u00fearna hin feminiska lausn \u00e1 varg\u00f6ld hins hrunda karlveldis? Munu \u00fe\u00e6r loksins koma okkur til bjargar, Magga Thatcher, \u00cdmelda Marcos e\u00f0a fr\u00fa Bandaranaike, svo nefndar s\u00e9u bara \u00f6rf\u00e1ar valkyrjur \u00far samt\u00edmanum? A\u00f0 \u00f6llu gamni slepptu, er \u00fea\u00f0 reynar umhugsunarefni, a\u00f0 \u00ed \u00feessu leikverki, sem samkv\u00e6mt leikskr\u00e1 tekur eina klukkustund og tuttugu m\u00edn\u00fatur a\u00f0 s\u00fdna, \u00f6rlar vart \u00e1 h\u00famor, sem g\u00e6ti gefi\u00f0 til kynna margr\u00e6\u00f0i mannskepnunnar. J\u00fa, a\u00f0 v\u00edsu einu sinni, \u00feegar einn sakborninga taldi f\u00f3tbolta fram til s\u00edns gildismats.<\/p>\n<p>\u00c1 Finnlands\u00e1rum m\u00ednum kynntist \u00e9g r\u00famenskum fl\u00f3ttamanni, sem haf\u00f0i m\u00e1tt \u00feola ofs\u00f3knir, pyndingar og har\u00f0r\u00e6\u00f0i af hendi leyni\u00fej\u00f3nustu Ceausescus \u00e1 t\u00edmum \u00f3gnarstj\u00f3rnar komm\u00fanista \u00fear \u00ed landi. Eftir fall einr\u00e6\u00f0isherrans t\u00f3k \u00feessi ma\u00f0ur h\u00f6ndum saman vi\u00f0 \u00f6nnur f\u00f3rnarl\u00f6mb ofbeldisins me\u00f0 kr\u00f6fu um, a\u00f0 b\u00f6\u00f0lar valdstj\u00f3rnarinnar, sem h\u00f6f\u00f0u \u00f3tal gl\u00e6pi \u00e1 samviskunni, yr\u00f0u dregnir fyrir r\u00e9tt og l\u00e1tnir s\u00e6ta \u00e1byrg\u00f0 fyrir \u00f3d\u00e6\u00f0isverk s\u00edn. En \u00feegar \u00feessum kr\u00f6fum t\u00f3k a\u00f0 vaxa fylgi me\u00f0al almennings voru g\u00f6mlu komm\u00fanistarnir aftur komnir til valda, b\u00e6\u00f0i \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum og vi\u00f0skiptum. Bara \u00ed n\u00fdju gervi. A\u00f0 lokum var s\u00e6st \u00e1 \u00fea\u00f0 til m\u00e1lamynda, a\u00f0 skipu\u00f0 yr\u00f0i eins konar s\u00e1ttanefnd (og vitna\u00f0 \u00ed Su\u00f0ur- Afr\u00edku til hli\u00f0sj\u00f3nar), sem \u00e1tti a\u00f0 gefa m\u00f6nnum kost \u00e1 a\u00f0 koma fram og j\u00e1ta misgj\u00f6r\u00f0ir s\u00ednar, gegn sakaruppgj\u00f6f. \u00dea\u00f0 segir svo allt sem segja \u00fearf um framkv\u00e6mdina, a\u00f0 forma\u00f0ur s\u00e1ttanefndarinnar haf\u00f0i \u00e1 seinustu d\u00f6gum einr\u00e6\u00f0isherrans veri\u00f0 a\u00f0sto\u00f0arframkv\u00e6mdastj\u00f3ri leyni\u00fej\u00f3nustunnar. \u00dear me\u00f0 s\u00e1 \u00feessi vinur minn s\u00edna s\u00e6ng \u00fat breidda og fl\u00fa\u00f0i land. B\u00f6\u00f0larnir hafa aftur n\u00e1\u00f0 v\u00f6ldum \u00ed R\u00famen\u00edu. \u00deeir hafa ekki hinga\u00f0 til s\u00e9\u00f0 neina \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 j\u00e1ta gl\u00e6pi s\u00edna (\u00fea\u00f0 er kalla\u00f0 a\u00f0 \u201e\u00fdfa s\u00e1rin\u201c). \u00deeir hafa bara skipt um gr\u00edmur.<\/p>\n<p>Vitringarnir \u00fer\u00edr, sem eiga a\u00f0 segja \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0inni sannleikann um \u00fea\u00f0, hverjir b\u00e1ru \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 hruni \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsins og \u00feeim harmkv\u00e6lum, sem einstaklingar og h\u00f3par hafa m\u00e1tt \u00feola af \u00feeim s\u00f6kum, eiga a\u00f0 skila af s\u00e9r nokkrum d\u00f6gum eftir p\u00e1ksah\u00e1t\u00ed\u00f0ina. Munu \u00feeir segja sannleikann? E\u00f0a munu \u00feeir l\u00e1ta n\u00e6gja a\u00f0 birta okkur svokalla\u00f0a stj\u00f3rns\u00fdslu\u00fattekt, \u00fear sem bannor\u00f0um fj\u00e1rm\u00e1laheimsins ver\u00f0ur hagr\u00e6tt \u00ed \u00fev\u00ed skyni a\u00f0 hylma yfir \u00fea\u00f0 broga\u00f0a s\u00e1larl\u00edf, sem a\u00f0 baki bj\u00f3? \u00de\u00e1 reynir \u00e1, hvort \u00feeir sem s\u00fdnast \u201ehi\u00f0 ytra r\u00e9ttl\u00e1tir \u00ed augum manna, en eru hi\u00f0 innra fullir hr\u00e6sni og rangl\u00e6tis\u201c, &#8211; sleppa me\u00f0 skrekkinn. Ver\u00f0ur allt eins og var, r\u00e9tt eins og \u00ed R\u00famen\u00edu?<\/p>\n<p>\u00cd Silfri Egils \u00ed dag vakti s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur athygli \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 n\u00fa er svo komi\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9l\u00f6gum \u00e1 Vesturl\u00f6ndum, \u201ea\u00f0 b\u00f6rn eru alin upp af atvinnum\u00f6nnum\u201c. \u00deetta er n\u00fdtt \u00ed mannkynss\u00f6gunni. Hinga\u00f0 til hafa foreldrar veri\u00f0 a\u00f0 bj\u00e1stra vi\u00f0 \u00feetta uppeldishlutverk, me\u00f0 misj\u00f6fnum \u00e1rangri, eins og sagan s\u00fdnir. En ekki hefur \u00fea\u00f0 batna\u00f0 me\u00f0 atvinnum\u00f6nnunum \u2013 e\u00f0a hva\u00f0? Hva\u00f0 segir \u00fea\u00f0 okkur um gildi kerfisuppeldis og langrar sk\u00f3lag\u00f6ngu? Ef hinum si\u00f0blindu er lyft \u00e1 stall til \u00e6\u00f0stu valda \u00ed svok\u00f6llu\u00f0um l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is\u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9l\u00f6gum samt\u00edmans, hva\u00f0 segir \u00fea\u00f0 okkur um l\u00fd\u00f0inn? Og um l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i\u00f0? Ef veruleikinn er or\u00f0inn svo skrumsk\u00e6ldur, a\u00f0 almenningur hefur glata\u00f0 tr\u00fanni \u00e1 m\u00e1tt sannleikans til a\u00f0 gera okkur frj\u00e1ls, hvert \u00e1 hann \u00fe\u00e1 a\u00f0 leita? \u201eHver vill fara \u00ed leikh\u00fas til a\u00f0 upplifa aftur harmleik hversdagsins?\u201c \u2013 spyr Andri Sn\u00e6r. Enginn, tr\u00fai \u00e9g. En til \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 samt\u00edmann undanbrag\u00f0alaust \u00ed spegli? J\u00fa, hvert eigum vi\u00f0 svo sem a\u00f0 leita anna\u00f0 en \u00ed leikh\u00fasi\u00f0, me\u00f0an vi\u00f0 b\u00ed\u00f0um eftir vottor\u00f0i vitringanna?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Lifandi leikh\u00fas og Borgarleikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdna: Eil\u00edf \u00f3hamingja eftir Andra Sn\u00e6 Magnason og \u00deorleif \u00d6rn Arnarsson<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: \u00deorleifur \u00d6rn Arnarsson<br \/>\nDramaturg: S\u00edmon \u00d6rn Birgisson<br \/>\nL\u00fdsing: Kjartan \u00de\u00f3risson<br \/>\nSvi\u00f0smyndarh\u00f6nnu\u00f0ur: Dr\u00edfa Freyju-\u00c1rmannsd\u00f3ttir<br \/>\nB\u00faningar: Judith Amal\u00eda J\u00f3hannsd\u00f3ttir<\/p>\n<p>Leikendur:<br \/>\nS\u00f3lveig Arnarsd\u00f3ttir<br \/>\nGu\u00f0j\u00f3n \u00deorsteinn P\u00e1lmarsson<br \/>\nAtli Rafn Sigur\u00f0sson<br \/>\nSara D\u00f6gg \u00c1sgeirsd\u00f3ttir<br \/>\nOrri Huginn \u00c1g\u00fastsso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-146","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/146","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=146"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/146\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":588,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/146\/revisions\/588"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=146"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=146"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=146"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}