{"id":147,"date":"2010-03-08T00:00:00","date_gmt":"2010-03-08T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/03\/08\/haenuungarnir-magnad-leikhusverk-listraent-afrek\/"},"modified":"2020-09-23T09:11:10","modified_gmt":"2020-09-23T09:11:10","slug":"haenuungarnir-magnad-leikhusverk-listraent-afrek","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/03\/08\/haenuungarnir-magnad-leikhusverk-listraent-afrek\/","title":{"rendered":"H\u00e6nuungarnir: Magna\u00f0 leikh\u00fasverk &#8211; listr\u00e6nt afrek"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-89\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/ungar.jpg\"><br>\nH\u00e6nuungarnir<\/center><p><\/p>\n<p>Hefur \u00fe\u00fa nokkurn t\u00edma komi\u00f0 inn \u00ed \u00fatr\u00fdmingarb\u00fa\u00f0ir kj\u00faklinga \u2013 fi\u00f0urfj\u00e1rg\u00falag? \u00c9g lenti \u00ed \u00fev\u00ed einu sinni vestur \u00ed Bandar\u00edkjunum og \u00fea\u00f0 l\u00ed\u00f0ur m\u00e9r ekki \u00far minni. Af hverju minnti \u00feetta mig svo sterklega \u00e1 dau\u00f0afabr\u00edkkur Hitlers e\u00f0a \u00fer\u00e6lab\u00fa\u00f0ir Stal\u00edns \u2013 meira \u00fe\u00f3 Hitlers, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta var allt svo v\u00edsindalegt. Allt steril\u00edsera\u00f0 \u00ed h\u00f3lf og g\u00f3lf, hv\u00edtir l\u00e6knasloppar, plastsmokkar yfir sk\u00f3fatna\u00f0inn og andlitsgr\u00edmur fyrir vitum.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Og svo var \u00fea\u00f0 kerfi\u00f0 sj\u00e1lft. Endalaus f\u00e6rib\u00f6nd, \u00fear sem f\u00f3rnarf\u00f3strin li\u00f0u \u00e1fram fr\u00e1 klaki \u00fatungunarv\u00e9larinnar a\u00f0 sj\u00e1lfvirkum st\u00fatum, sem \u00fer\u00f6ngdu f\u00f3\u00f0rinu ofan \u00ed koki\u00f0 \u2013 allt v\u00edsindalega \u00fatreikna\u00f0 til a\u00f0 n\u00e1 fram h\u00e1makrsholdgun \u00e1 sem skemmstum t\u00edma. Kerfi\u00f0 var skynsamlegt. \u00deeir t\u00f6lu\u00f0u um framlei\u00f0ni og framleg\u00f0. \u00dea\u00f0 var ekkert minnst \u00e1 d\u00fdravernd. \u00deeir hef\u00f0u b\u00e1\u00f0ir veri\u00f0 \u00ed essinu s\u00ednu \u00fearna, Hitler og Stal\u00edn. \u00c9g s\u00f3r \u00feess d\u00fdran ei\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, a\u00f0 aldrei skyldi \u00f3hro\u00f0i af \u00feessu tagi koma inn fyrir m\u00ednar varir eftirlei\u00f0is. \u00dea\u00f0 er svo til marks karakerleysi mitt og mannskepnunnar, a\u00f0 \u00feegar barnab\u00f6rnin heimta Burger King, \u00fe\u00e1 l\u00e6t \u00e9g undan m\u00f3t\u00fer\u00f3alaust \u2013 en skammast m\u00edn samt.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 kemur \u00feetta m\u00e1linu vi\u00f0? J\u00fa, sj\u00e1\u00f0u til: H\u00e6nsnab\u00fai\u00f0 er mannf\u00e9lagi\u00f0 \u00ed hnotskurn. \u00dea\u00f0 stj\u00f3rnast af s\u00f6mu l\u00f6gm\u00e1lum um framlei\u00f0ni og framleg\u00f0 \u2013 eins og \u00fea\u00f0 heitir \u2013 og mannf\u00e9lagi\u00f0. Hversdagslegt arga\u00feras J\u00f3ns og Gunnu, \u00e1n upphafs og endis og \u00fat og su\u00f0ur, minnir \u00e1 f\u00e1tt anna\u00f0 fremur en gargi\u00f0 \u00ed h\u00e6nsnfuglinum, sem veri\u00f0 er a\u00f0 lei\u00f0a til sl\u00e1trunar. Og mannf\u00f3lki\u00f0 er l\u00edka ali\u00f0 \u00e1 s\u00ednu andlega ruslf\u00e6\u00f0i \u00ed gegnum forheimskandi fj\u00f6lmi\u00f0laf\u00e1r fr\u00e1 v\u00f6ggu til grafar. Hver og einn er inniloka\u00f0ur \u00ed sinni m\u00fasarholu og s\u00e9r f\u00e1tt \u00fat fyrir hana. Icesave-rugli\u00f0 sem hefur veri\u00f0 mata\u00f0 ofan \u00ed okkar afvegaleiddu \u00fej\u00f3\u00f0, er d\u00e6misaga \u00far veruleikanum um n\u00e1kv\u00e6mlega \u00feetta \u2013 smj\u00f6rkl\u00edpa handa l\u00fd\u00f0num.<\/p>\n<p>H\u00e6nuungar Braga \u00d3lafssonar eru \u00edsmeygileg d\u00e6misaga \u00far samt\u00edmanum. \u00deetta er listilega sami\u00f0 leikh\u00fasverk. Loksins kemur fram \u00e1 sj\u00f3narsvi\u00f0i\u00f0 h\u00f6fundur, sem vir\u00f0ist kunna \u00e1 sj\u00e1lft leih\u00fasi\u00f0 \u2013 sj\u00e1lfan galdurinn. S\u00f6guefni\u00f0 g\u00e6ti ekki veri\u00f0 hversdagslegra. Grunur leikur \u00e1 um, a\u00f0 kj\u00faklingum (sem keyptir vorum me\u00f0 40% afsl\u00e6tti) hafi veri\u00f0 stoli\u00f0 \u00far frystikistu \u00ed sameign \u00ed blokk. \u00dea\u00f0 er haldinn h\u00fasfundur um m\u00e1li\u00f0. \u00c1 me\u00f0an blokkarb\u00faar bla\u00f0ra endalaust um meintan gl\u00e6p, l\u00e6\u00f0ast \u00fej\u00f3farnir inn og stela \u00fev\u00ed, sem ver\u00f0m\u00e6tast er \u00ed eigu \u00edb\u00faanna \u2013 flatskj\u00e1num og t\u00f6lvunni. \u00dea\u00f0 kemur meira a\u00f0 segja \u00e1 daginn, a\u00f0 pl\u00f6turnar sem jassgeggjarinn keypti \u00e1samt kunningjum s\u00ednum \u00ed Kolaportinu um daginn, voru stolnar. L\u00f6greglan bo\u00f0ar komu s\u00edna til a\u00f0 s\u00e6kja \u00fe\u00fdfi\u00f0. Sigurhans reynir a\u00f0 stinga a.m.k. Einn \u00feeirra \u2013 var \u00fea\u00f0 me\u00f0 Charlie Parker e\u00f0a \u00dee\u00f3f\u00edl\u00edusi Monk \u2013 inn \u00e1 sig. Little things mean a lot.<\/p>\n<p>\u00deetta er allt og sumt. En \u00far \u00feessum \u2013 \u00e1 yfirbor\u00f0inu l\u00edtilfj\u00f6rlega efnivi\u00f0 \u2013 er b\u00fai\u00f0 til magna\u00f0 leikh\u00fasverk, \u00fear sem h\u00f6fundur og leikendur spila \u00e1 tilfinningar leikh\u00fasgesta, \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 t\u00f6kum \u00fdmist bakf\u00f6ll af hl\u00e1tri, kumrum innra me\u00f0 okkur yfir tv\u00edr\u00e6\u00f0ri fyndni samtalsins, e\u00f0a n\u00e1nast t\u00e1rumst yfir afk\u00e1ralegri heimsku s\u00f6gupers\u00f3nanna. \u00d6llu \u00feessu n\u00e6r h\u00f6fundurinn, Bragi \u00d3lafsson, fram me\u00f0 k\u00fanst samtalsins \u00e1 svi\u00f0inu. \u00dear vi\u00f0 b\u00e6tist, a\u00f0 pers\u00f3nusk\u00f6punin er \u00fatsmogin og leikararnir, allir sem einn, gl\u00e6\u00f0a pers\u00f3nurnar l\u00edfi og lit \u00e1 svi\u00f0inu.<\/p>\n<p>H\u00fasfundurinn er \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0. Spurningin er: Hver stal kj\u00faklingunum? Fe\u00f0garnir \u00ed n\u00e6stu \u00edb\u00fa\u00f0, sem lifa fyrir flatskj\u00e1inn, liggja undir grun. Samt er \u00fdmislegt anna\u00f0 gefi\u00f0 \u00ed skyn. \u00cd s\u00edmtali sonarins vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ur s\u00edna vakna grunsemdir um, a\u00f0 einmitt hann hafi stoli\u00f0 kj\u00faklingunum til a\u00f0 f\u00e1 fyrir d\u00f3p\u00ed til a\u00f0 nj\u00f3ta me\u00f0 dr\u00e6sunni uppi \u00e1 lofti. \u00dearna er allt saman komi\u00f0 \u00ed einum punkti: \u00dea\u00f0 sem leifarnar af \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagin hefur sn\u00faist um \u00ed meira en \u00e1r \u2013 og \u00e6tlar engan endi a\u00f0 taka. Munurinn er bara s\u00e1, a\u00f0 \u00feessa kv\u00f6ldstund \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu getum vi\u00f0 hlegi\u00f0 okkur m\u00e1ttlaus yfir aumkunarver\u00f0ri heimsku mannskepnunnar, umkomuleysi hennar og hj\u00e1lparvana getuleysi frammi fyrir \u00f6rl\u00f6gum s\u00ednum. R\u00e9tt eins og t\u00ed\u00f0kast \u00ed h\u00e6nsnah\u00fasum.<\/p>\n<p>\u00c9g er ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 samt\u00f6l blokkarb\u00faa \u00e1 h\u00fasfundinum s\u00e9 kannski \u00fea\u00f0 besta sinnar tegundar, sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 \u00e1 \u00edslensku leiksvi\u00f0i. Kerlingar\u00e1lftin, h\u00fan El\u00edn Ragnhei\u00f0ur Rosenthal (Kr\u00edstbj\u00f6rg Kjeld) \u00e6tla\u00f0i okkur lifandi a\u00f0 drepa me\u00f0 f\u00e1fengilegu bla\u00f0ri s\u00ednu um R\u00fassagr\u00fdlur og gamlar s\u00e1lir \u2013 allt var \u00fea\u00f0 \u00fat \u00far k\u00fa \u2013 en gert me\u00f0 \u00fev\u00edl\u00edkum til\u00ferifum, a\u00f0 leitun er a\u00f0 betra absurd teater. \u00dea\u00f0 eina sem snart mig \u00f3notalega, hafandi b\u00fai\u00f0 \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r me\u00f0 Finnum \u2013 var a\u00f0 Vetrarst\u00ed\u00f0i\u00f0 \u2013 sem ger\u00f0i Finnum kleift a\u00f0 lifa af \u2013 er heilagt \u00ed \u00feeirra hug og hjarta, og m\u00e1 ekki hafa \u00ed flimtingum.<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3rinn, Stef\u00e1n J\u00f3nsson, vinnur h\u00e9r listr\u00e6nt afrek. Samstarfsf\u00f3lk hans, B\u00f6rkur J\u00f3nsson (leikmyndin), R\u00edkey Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir (b\u00faningah\u00f6nnu\u00f0ur) og Halld\u00f3r \u00d6rn \u00d3skarsson (lj\u00f3sameistari) skila \u00f6ll g\u00f3\u00f0u verki, ekki s\u00edst B\u00f6rkur, en leikmynd hans var afar tr\u00faver\u00f0ug umgj\u00f6r\u00f0 um tilveru blokkarb\u00faa \u2013 e\u00f0a \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 segja hellisib\u00faa?<\/p>\n<p>Var einhvern bo\u00f0skap a\u00f0 finna \u00ed \u00feessu \u00f6llu saman? J\u00e1, hann hlj\u00f3\u00f0ar svona \u00far munni Sigurhans jassfreaks: \u201e\u00dej\u00f3\u00f0 sem l\u00e6tur v\u00f6ldin \u00ed hendurnar \u00e1 \u00fej\u00f3fum og gl\u00e6pam\u00f6nnum, hl\u00fdtur a\u00f0 gera r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 einhverju ver\u00f0i stoli\u00f0 fr\u00e1 henni.\u201d Einmitt.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e6nuungarnir, e\u00f0a minningarnar fr\u00e1 Karhula eftir Braga \u00d3lafsson<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3rn: Stef\u00e1n J\u00f3nsson<br \/>\nLeikynd: B\u00f6rkur J\u00f3nsson<br \/>\nB\u00faningar: R\u00edkey Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00fdsing: Halld\u00f3r \u00d6rn \u00d3skarsson<\/p>\n<p>Pers\u00f3nur og leikendur:<br \/>\nSigurhans: Eggert \u00deorleifsson<br \/>\nOlga: Ragnhei\u00f0ur Steind\u00f3rsd\u00f3ttir<br \/>\nCarl B\u00f6hmer: P\u00e1lmi Gestsson<br \/>\nAnastasias: Fri\u00f0rik Fri\u00f0riksson<br \/>\nEl\u00edn Ragnhei\u00f0ur Rosenthal: Kristbj\u00f6rg Kjeld<br \/>\nLill\u00fd: Vigd\u00eds Hrefna P\u00e1lsd\u00f3tti<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-147","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/147","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=147"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/147\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":589,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/147\/revisions\/589"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=147"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=147"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=147"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}