{"id":148,"date":"2010-10-08T00:00:00","date_gmt":"2010-10-08T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/10\/08\/blessud-se-minning-naeturinnar-frabaer-flutningur-og-samspil-orda-og-tona\/"},"modified":"2020-09-23T09:10:10","modified_gmt":"2020-09-23T09:10:10","slug":"blessud-se-minning-naeturinnar-frabaer-flutningur-og-samspil-orda-og-tona","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/10\/08\/blessud-se-minning-naeturinnar-frabaer-flutningur-og-samspil-orda-og-tona\/","title":{"rendered":"Blessu\u00f0 s\u00e9 minning n\u00e6turinnar: Fr\u00e1b\u00e6r flutningur og samspil or\u00f0a og t\u00f3na"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-68\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/minning.jpg\"><br>\nBlessu\u00f0 s\u00e9 minning n\u00e6turinnar<\/center><p><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er kominn mi\u00f0vikudagur, \u00feegar \u00e9g loks sest ni\u00f0ur \u00ed r\u00f3 og n\u00e6\u00f0i til \u00feess a\u00f0 skrifa nokkur or\u00f0 um frumflutning Ragnars \u00cdsleifs \u00ed r\u00edkis\u00fatvarpinu \u00e1 sunnudaginn \u2013 og bi\u00f0st \u00e9g forl\u00e1ts \u00e1 \u00fev\u00ed. \u00c9g hef f\u00e1tt m\u00e9r til afb\u00f6tunar nema hva\u00f0 \u00e1 sunnudaginn st\u00f3\u00f0 p\u00e1skahelgin sem h\u00e6st me\u00f0 vinafj\u00f6ld, veislum og tilheyrandi, ferming n\u00fdafsta\u00f0in, og m\u00f6rg \u00f6nnur bj\u00f3\u00f0 framundan me\u00f0 freistingum og h\u00e6ttum b\u00e6\u00f0i fyrir l\u00edkamann og andann.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00c9g v\u00e9k \u00fe\u00f3 \u00f6llu \u00f6\u00f0ru til hli\u00f0ar og l\u00e9t fara vel um mig \u00ed s\u00f3fanum \u00feennan eftirmi\u00f0dag, sta\u00f0r\u00e1\u00f0in \u00ed a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00e1 or\u00f0 sk\u00e1ldsins. \u00dea\u00f0 rifju\u00f0ust upp fyrir m\u00e9r dagar \u00ed bernsku, \u00feegar \u00fatvarpi\u00f0 var svo til eini tengillinn vi\u00f0 mannl\u00edfi\u00f0 allt um kring og fj\u00f6lskyldan safna\u00f0ist saman til a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00e1 \u00fatvarpsleikriti\u00f0 \u00e1 hverjum fimmtudegi (a\u00f0 mig minnir). Mamma sat me\u00f0 prj\u00f3nana \u00ed h\u00e6gindast\u00f3lnum, en vi\u00f0 krakkarnir l\u00e1gum \u00e1 g\u00f3lfinu allt um kring og m\u00e1ttum ekki missa af or\u00f0i. \u00datvarpsleikritin voru meirih\u00e1ttar institution, sem m\u00f3ta\u00f0i sko\u00f0anir okkar fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0 og kveikti me\u00f0 okkur \u00f3lj\u00f3sar v\u00e6ntingar um eitthva\u00f0 \u00fati \u00ed hinum st\u00f3ra heimi, sem vi\u00f0 vissum ekki enn hva\u00f0 var.<\/p>\n<p>\u00datvarpi\u00f0 er ekki venjulegt leikh\u00fas, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear er \u00fea\u00f0 bara or\u00f0i\u00f0 sem gildir og r\u00f6ddin er eini t\u00falkandinn. Allt \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 getum sagt me\u00f0 hreyfingum, l\u00e1tbrag\u00f0i, andlitssvip, augnatilliti, l\u00fdsingu og leikmunum \u00e1 leiksvi\u00f0inu m\u00e1 s\u00edn einskis \u00e1 bylgjum hlj\u00f3\u00f0sins. Leikarinn ver\u00f0ur a\u00f0 \u00ferengja \u00f6llu \u00fev\u00ed sem honum b\u00fdr \u00ed brj\u00f3sti inn \u00ed hlj\u00f3m or\u00f0anna. \u00deetta er s\u00e9rst\u00f6k list, sem er ekki \u00f6llum gefin. Jafnvel g\u00f3\u00f0ir leikarar, sem eru \u00ed essinu s\u00ednu \u00e1 svi\u00f0inu, eiga ekkert erindi \u00ed \u00fatvarp.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning n\u00e6turinnar er fyrsta verk Ragnars \u00cdsleifs, sem hann skrifar fyrir \u00fatvarp, og kannski eiga verk Ragnars einmitt miklu frekar erindi \u00ed \u00fatvarp en leikh\u00fas. Ragnar er fyrst og fremst lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ld, sem veltir fyrir s\u00e9r hrynjandi or\u00f0anna og samspili \u00feeirra hvert vi\u00f0 anna\u00f0 \u2013 eins og hlj\u00f3ma \u00ed \u00f3fullger\u00f0u t\u00f3nverki. Formi\u00f0 skiptir hann miklu m\u00e1li, jafnvel svo miklu, a\u00f0 stundum er eins og \u00fea\u00f0 taki af honum v\u00f6ldin og hlaupi \u00fat um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll. Ma\u00f0ur missir \u00fer\u00e1\u00f0inn og skilur ekki alveg hvert sk\u00e1ldi\u00f0 er a\u00f0 fara. \u00dea\u00f0 er eins og \u00fea\u00f0 gleymi s\u00e9r \u00ed leik or\u00f0anna. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning n\u00e6turinnar er eins konar pr\u00f3salj\u00f3\u00f0, byggt \u00e1 stefi sem er endurteki\u00f0 \u00ed s\u00edfellu, t\u00falka\u00f0 \u00e1 mismunandi vegu. \u00dea\u00f0 er fullt af \u201cWeltschmerz\u201d \u2013 \u00f3hamingju, \u00f3tta og sorg yfir einhverju sem aldrei var\u00f0. Konan syrgir barni\u00f0, sem aldrei f\u00e6ddist, gamli ma\u00f0urinn s\u00e9r eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 vera ekki eins og hann \u00e6tla\u00f0i. Ungu raddirnar eru forvitnar, leitandi en vantar grunn til a\u00f0 standa \u00e1. \u00de\u00e6r n\u00e1 aldrei til botns. \u00deess vegna vantar botninn \u00ed verki\u00f0 einhvern veginn. Ragnar \u00cdsleifur er sveimhugi, hann sv\u00edfur en staldrar sjaldan vi\u00f0. Hversu lengi kemst hann upp me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed h\u00f6r\u00f0um heimi?<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem var \u00e1n\u00e6gjulegast vi\u00f0 \u00feennan atbur\u00f0 \u00ed \u00fatvarpinu s\u00ed\u00f0degis \u00e1 p\u00e1skadag, var fyrst og fremst fr\u00e1b\u00e6r flutningur og samspil or\u00f0a og t\u00f3na. S\u00edmon Birgisson vissi alveg hva\u00f0 hann var a\u00f0 fara me\u00f0 vali \u00e1 leikendum og stefnumarki \u00ed flutningi. \u00dea\u00f0 var enginn efi \u00ed hans huga, hann f\u00f3r aldrei \u00fat af sporinu. \u00dea\u00f0 ger\u00f0i verki\u00f0 spennandi \u00fer\u00e1tt fyrir vankanta. Raddirnar voru hver annarri magn\u00ferungnari \u2013 bjartar og d\u00f6kkar, daprar og gla\u00f0ar \u00e1 v\u00edxl. Serstaklega var gaman a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00e1 Gu\u00f0laugu Mar\u00edu spila \u00e1 r\u00f6dd s\u00edna eins og h\u00e1rf\u00ednt hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri. Tilbrig\u00f0in voru svo m\u00f6rg, sem or\u00f0in sem h\u00fan sag\u00f0i, s\u00e1rsaukinn og sorgin l\u00fdstu reynslu og \u00feroska, sem \u00fearf einmitt \u00ed leikrit af \u00feessari ger\u00f0. Ungu raddirnar leiftru\u00f0u af forvitni, spennu og l\u00edfsgle\u00f0i , sem smita\u00f0i jafnvel \u00e1heyrandann heima \u00ed stofu, og manni hl\u00fdna\u00f0i um hjartar\u00e6tur e\u00f0a heyra aftur lj\u00faflinginn \u00c1rna Tryggvason, sem f\u00e9kk \u00fev\u00ed mi\u00f0ur allt of sjaldan t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 leika hinn alv\u00f6ru\u00ferungna mann \u00e1 l\u00f6ngum leikaraferli.<\/p>\n<p>Samspil or\u00f0a og t\u00f3na, sag\u00f0i \u00e9g h\u00e9r \u00e1\u00f0an, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 rann allt saman \u2013 or\u00f0 og t\u00f3nar \u2013 myndu\u00f0u eina samfellu, \u00f3rj\u00fafanlega. Flott. Vi\u00f0 vorum \u00e1 fer\u00f0alagi, l\u00edklega me\u00f0 lest, sem \u00e1tti svo vel vi\u00f0 texta Ragnars. Flj\u00fagandi fer\u00f0, engin vi\u00f0koma.<\/p>\n<p>T\u00f3nverk \u00d6nnu \u00deorvaldsd\u00f3ttur lyfti verkinu \u00ed h\u00e6\u00f0ir og gaf \u00fev\u00ed aukinn styrk. Sell\u00f3leikur hennar sj\u00e1lfrar var dulmagna\u00f0ur og undurfagur.<\/p>\n<p>Georg Magn\u00fasson \u00e1 eflaust sinn \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00f3a\u00f0finnanlegum flutningi \u00feessa verka ungu mannanna. \u00c1rum saman hefur hann unni\u00f0 af \u00f3metanlegri vandvirkni og smekkv\u00edsi a\u00f0 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kum r\u00edkis\u00fatvarpsins. Hann er baksvi\u00f0s og aleinn og \u00fev\u00ed gleymist oftast a\u00f0 geta hans. H\u00e9r honum \u00fev\u00ed \u00feakka\u00f0 \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll.<\/p>\n<p>Ragnar \u00cdsleifur er ungur, eiginlega bara barn. Hann \u00e1 margt \u00f3l\u00e6rt og margt \u00f3lesi\u00f0, en hann hefur gott veganesti og l\u00f6ngun og h\u00e6fileika til a\u00f0 gera sig gildandi sem sk\u00e1ld. \u00dea\u00f0 kemur me\u00f0 vaxandi aldri og reynslu \u2013 en ekki vera of br\u00e1\u00f0l\u00e1tur.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00datvarpsleikh\u00fasi\u00f0: BLESSU\u00d0 S\u00c9 MINNING N\u00c6TURINNAR eftir Ragnar \u00cdsleif Bragason<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3ri: S\u00edmon Birgisson<br \/>\nLeikendur: Gu\u00f0laug Mar\u00eda Bjarnad\u00f3ttir<br \/>\n\u00c1rni Tryggvason<br \/>\nHj\u00f6rtur J\u00f3hann J\u00f3nsson<br \/>\nSara D\u00f6gg \u00c1sgeirsd\u00f3ttir<br \/>\n\u00d3l\u00f6f Haraldsd\u00f3ttir<\/p>\n<p>T\u00f3nlist: Anna \u00deorvaldsd\u00f3ttir<br \/>\nFytjendur: Anna \u00deorvaldsd\u00f3ttir<br \/>\nJustin DeHart<br \/>\nBerglind T\u00f3masd\u00f3ttir<br \/>\nDaniel Shapira<\/p>\n<p>Hlj\u00f3\u00f0vinnsla: Georg Magn\u00fasso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-148","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/148","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=148"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/148\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":584,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/148\/revisions\/584"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=148"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=148"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=148"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}