{"id":150,"date":"2010-02-15T00:00:00","date_gmt":"2010-02-15T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/02\/15\/ufsagrylur-i-hafnarfjardarleikhusinu-orda-vant\/"},"modified":"2020-09-23T09:11:37","modified_gmt":"2020-09-23T09:11:37","slug":"ufsagrylur-i-hafnarfjardarleikhusinu-orda-vant","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/02\/15\/ufsagrylur-i-hafnarfjardarleikhusinu-orda-vant\/","title":{"rendered":"Ufsagr\u00fdlur \u00ed Hafnarfjar\u00f0arleikh\u00fasinu: Or\u00f0a vant"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-83\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/ufsagrylur.jpg\"><br>\nUfsagr\u00fdlur<\/center><p><\/p>\n<p>Hver er \u00feessi M\u00f3ei\u00f0ur Helgad\u00f3ttir? \u00c9g bara spyr. H\u00fan hefur veri\u00f0 a\u00f0 skj\u00f3ta upp kollinum h\u00e9r og \u00fear \u00ed leikh\u00fasheiminum, en n\u00fa r\u00e6\u00f0st h\u00fan \u00f3trau\u00f0 til atl\u00f6gu vi\u00f0 sj\u00e1lft sk\u00e1ldi\u00f0 Sj\u00f3n. Hugr\u00f6kk ung kona, \u00fev\u00ed a\u00f0 leikriti\u00f0 \u2013 \u00feetta fyrsta leikrit, sem Sj\u00f3n semur \u00ed fullri lengd \u2013 Ufsagr\u00fdlur (f\u00e1r\u00e1nlegt heiti) hefur ekki veri\u00f0 \u00e1rennilegt vi\u00f0 fyrsta lestur \u2013 hann heimtar heilt ge\u00f0sj\u00fakrah\u00fas \u00e1 svi\u00f0i\u00f0 e\u00f0a fangelsi \u00ed Guantanamo st\u00edl, risast\u00f3rt g\u00e1maskip, \u00f3ve\u00f0ur \u00e1 hafi \u00fati, \u00feyrlu sem n\u00e1lgast me\u00f0 fullfermi. Hef\u00f0i m\u00e1tt vir\u00f0ast \u00f3gerlegt vi\u00f0 \u00f3fullkomnar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00ed \u00f3r\u00e6\u00f0u r\u00fdmi su\u00f0ur \u00ed Hafnarfir\u00f0i.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>En \u00feetta leysir h\u00fan allt l\u00e9ttilega \u2013 og sem meira er, \u00feetta virkar. \u00cd upphafi erum vi\u00f0 st\u00f6dd \u00e1 ge\u00f0sp\u00edtala, \u00fear sem fyrrverandi bankadr\u00edslar h\u00faka \u00ed l\u00e6stum b\u00farum og eru \u00ed endurh\u00e6fingu hj\u00e1 l\u00e6knav\u00edsindunum. \u00c1 h\u00e6\u00f0inni fyrir ofan r\u00f6flar vitiskertur og \u00fatvatna\u00f0ur bankastj\u00f3ri \u2013 og \u00feegar \u00e9g segi r\u00f6flar, \u00fe\u00e1 meina \u00e9g \u00fea\u00f0, eintal hans er \u00ed slitrum og \u00f3skiljanlegt \u00e1horfendum. En svo erum vi\u00f0 allt \u00ed einu \u2013 \u00e1n \u00feess a\u00f0 hr\u00f3fla\u00f0 s\u00e9 vi\u00f0 nokkrum hlut \u2013 komin um bor\u00f0 \u00ed st\u00f3rt skip, sem b\u00ed\u00f0ur sendingar fr\u00e1 landi \u2013 fr\u00e1 \u00cdslandi. \u00deegar \u00feyrlan n\u00e1lgast og losar sig vi\u00f0 farminn \u00e1 dekki\u00f0, eru hlj\u00f3\u00f0 hennar svo sannf\u00e6randi, a\u00f0 ma\u00f0ur s\u00e9r hana fyrir s\u00e9r \u00fearna handan vi\u00f0 horni\u00f0. M\u00f3ei\u00f0ur ber a\u00f0 v\u00edsu enga \u00e1yrg\u00f0 \u00e1 hlj\u00f3\u00f0effektum, \u00dea\u00f0 gera \u00feeir f\u00e9lagar Helgi \u00de\u00f3rsson og Sigtryggur Berg Sigmarsson (Stilluppsteypa) og fara \u00e1 flug. Rammir t\u00f3nar \u00ed upphafi leiks og vindgnau\u00f0 \u00e1 opnu hafi gefur \u00fdmislegt \u00ed skyn en upplj\u00f3strar engu. A\u00f0 \u00e9g n\u00fa ekki tali um b\u00faninga og gervi, sem eru \u00feaulhugsu\u00f0 og draga fram f\u00e1r\u00e1nleikann og vitfirringuna \u00ed l\u00edfi \u00fej\u00f3\u00f0ar. Myrra Leifsd\u00f3ttir og \u00c1sta Haf\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir hafa vanda\u00f0 mj\u00f6g til verka og mega vera \u00e1n\u00e6g\u00f0ar me\u00f0 sitt framlag til s\u00fdningarinnar. Vil \u00e9g s\u00e9rstaklega nefna gervi M\u00f3ru yfirl\u00e6knis. Af hverju skyldi h\u00fan annars tala me\u00f0 \u00fe\u00fdskum hreim? Er \u00fea\u00f0 til a\u00f0 undirstrika skyldleikann vi\u00f0 \u00fatr\u00fdmingarb\u00fa\u00f0ir nasista, sem l\u00edka voru undir stj\u00f3rn l\u00e6knav\u00edsindanna?)L\u00fdsingin me\u00f0 hugviti Gar\u00f0ars Borg\u00fe\u00f3rssonar, er tp\u00e6ld og gaf myndinni fyllingu.<\/p>\n<p>En hva\u00f0 er \u00fe\u00e1 um verki\u00f0 sj\u00e1lft a\u00f0 segja \u2013 \u00feetta fyrsta leikrit eftir Sj\u00f3n \u00ed fullri lengd? \u00c9g \u00edmynda\u00f0i m\u00e9r, a\u00f0 Sj\u00f3n, sem er ma\u00f0ur or\u00f0sins, mundi leggja fyrir okkur dj\u00fapt hugsa\u00f0an texta, og a\u00f0 vi\u00f0 \u00feyrftum a\u00f0 fara a\u00f0 p\u00e6la, brj\u00f3ta heilann, vera vakandi fyrir \u00f3r\u00e6\u00f0um merkingum or\u00f0a. En, \u00f3, nei, Sj\u00f3n hendir textanum og l\u00e6tur verkin tala. Kannski er veruleikinn svo viti firrtur, a\u00f0 or\u00f0in duga ekki lengur til a\u00f0 l\u00fdsa honum e\u00f0a koma til skila neinni merkingu. Raunveruleikinn er oftast \u00f3tr\u00falegri og f\u00e1r\u00e1nlegri en nokkur or\u00f0 geta l\u00fdst.<\/p>\n<p>\u00cd hvers konar samf\u00e9lagi hr\u00e6rumst vi\u00f0? Erum vi\u00f0 ekki komin \u00fat \u00e1 ystu m\u00f6rk mannlegrar heg\u00f0unar? Hva\u00f0 getur mannskepnan lagst l\u00e1gt \u00ed gr\u00e6\u00f0gi og subbuskap? Au\u00f0vita\u00f0 er Sj\u00f3n \u2013 eins og vi\u00f0 \u00f6ll hin \u2013 bullandi rei\u00f0ur, fullur af \u00f3ge\u00f0i, fyrirlitningu og vonbrig\u00f0um. Og hann finnur engin or\u00f0 lengur. \u00cd sta\u00f0 \u00feess dregur hann upp \u00f3skammfeilnar myndir, sem segja allt sem segja \u00fearf \u2013 myndir af drullusokkum og sk\u00edth\u00e6lum, gl\u00e6pahyski, mor\u00f0ingjum, \u00fej\u00f3fum og \u00fej\u00f3fsnautum. Hann gengur af \u00e1settu r\u00e1\u00f0i fram af \u00e1horfendum me\u00f0 vi\u00f0bj\u00f3\u00f0i og f\u00falmennsku. Vi\u00f0 g\u00f6ngum \u00fat me\u00f0 \u00f3gle\u00f0i \u00ed maganum \u2013 en samt er allt satt, sem hann s\u00fdnir okkur \u00e1 svi\u00f0inu. Hann er ekki a\u00f0 lj\u00faga neinu a\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>Endanlega sn\u00fdst allt um gulli\u00f0. Hvar er gulli\u00f0 a\u00f0 finna? \u00dea\u00f0 er ekki \u00e1 Tort\u00f3lu, heldur \u00ed i\u00f0rum \u00feeirra, sem fyrir l\u00f6ngu eru or\u00f0nir af aurum apar. \u00dea\u00f0 leynist \u00ed sk\u00edtnum. \u00deeir \u00feurfa h\u00e6g\u00f0alyf og st\u00f3lp\u00edpu til a\u00f0 finna aftur hina f\u00f6ldu fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0i. \u00deegar gulli\u00f0 hefur gengi\u00f0 ni\u00f0ur af \u00feeim, flj\u00f3tandi innan um sk\u00edtinn, \u00fe\u00e1 er fundi\u00f0 f\u00e9 til a\u00f0 hefja endurreisnina. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur allt aftur eins og \u00fea\u00f0 var. Ekkert breytist. Er nema von, a\u00f0 h\u00f6fundinum ver\u00f0i or\u00f0a vant?<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er svo miki\u00f0 \u00farval g\u00f3\u00f0ra leikara \u00e1 \u00cdslandi, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e6tir fur\u00f0u. Ma\u00f0ur fer \u00ed atvinnuleikh\u00fasin, og \u00fear eru allir vel sk\u00f3la\u00f0ir \u2013 bara me\u00f0 mismunandi sterka \u00e1ru \u2013 og s\u00ed\u00f0an \u00ed litlu ja\u00f0arleikh\u00fasin, \u00fear sem leikgle\u00f0in b\u00e6tir oft upp \u00fea\u00f0 sem \u00e1 vantar \u00ed fagmennsku. En \u00e9g gat ekki betur s\u00e9\u00f0 \u2013 a\u00f0 v\u00edsu erfitt undir ufsagr\u00fdlugervum \u2013 en a\u00f0 \u00fearna v\u00e6ru l\u00edka atvinnuleikarar me\u00f0 margra \u00e1ra reynslu a\u00f0 baki. Nefni \u00e9g \u00fear gamla kunningja eins og \u00c1rna P\u00e9tur, Hj\u00e1lmar Hj\u00e1lmarsson og Erling J\u00f3hannesson. Hinn ungi Orri Huginn sv\u00edkur engan. Hann hefur alla vega fr\u00e1b\u00e6ra fys\u00edk \u2013 datt \u00ed g\u00f3lfi\u00f0 hva\u00f0 eftir anna\u00f0 og ni\u00f0ur stiga \u00e1n \u00feess a\u00f0 brj\u00f3ta sig. Stelpunum, \u00feeim Birnu Hafstein og A\u00f0albj\u00f6rgu \u00de\u00f3ru \u00c1rnad\u00f3ttur, t\u00f3kst b\u00e1\u00f0um a\u00f0 draga upp sk\u00fdra mynd af pers\u00f3num s\u00ednum, hinum kvenlega sadista \u00ed hlutverki yfirl\u00e6knis \u00e1 endurh\u00e6fingarh\u00e6linu og hinni a\u00f0\u00ferengdu eiginkonu bankastj\u00f3rans.<\/p>\n<p>\u00deetta er sem sagt leikrit um kreppuna \u00e1 \u00cdslandi og heimatilb\u00fanar orsakir hennar. \u00dea\u00f0 er \u00f3\u00feol \u00ed andr\u00famsloftinu, \u00fea\u00f0 kreppir a\u00f0 \u00e1 heimilum, \u00ed sk\u00f3lum og \u00e1 vinnust\u00f6\u00f0um. En \u2013 \u00fea\u00f0 kreppir ekki a\u00f0 \u00ed leikh\u00fasum borgarinnar. L\u00edkt og \u00ed Weimar for\u00f0um daga hefur kreppan kveikt \u00ed f\u00f3lki, vaki\u00f0 \u00fea\u00f0 af v\u00e6rum blundi og sk\u00f6punarkrafturinn fl\u00e6\u00f0ir \u00ed undirdj\u00fapunum sem aldrei fyrr. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson, sem hefur haldi\u00f0 Hafnarfjar\u00f0arleikh\u00fasinu gangandi \u00e1rum saman af mikilli bjarts\u00fdni og \u00ferautseigju, er ekkert \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefast upp. Ufsagr\u00fdlur er ekkert stofudrama, \u00fea\u00f0 er gr\u00f3teska og hryllingsb\u00fa\u00f0, svo sem h\u00e6fir efninu. M\u00e9r finnst R\u00fanar hafa s\u00fdnt kjark a\u00f0 leggja til atl\u00f6gu vi\u00f0 \u00feetta verk, \u00fev\u00ed a\u00f0 sannleikanum ver\u00f0ur hver s\u00e1rrei\u00f0astur og miskunnarlaus \u2013 jafnvel br\u00fat\u00f6l afhj\u00fapun \u00e1 veruleikanum \u00e1 upp \u00e1 pallbor\u00f0i\u00f0 hj\u00e1 f\u00e1um. \u00c6tli e\u00f0lisl\u00e6g vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 flestra s\u00e9 ekki a\u00f0 stinga h\u00f6f\u00f0inu \u00ed sandinn. \u00deetta er hins vegar leikh\u00fas fyrir \u00fe\u00e1, sem kj\u00f3sa fremur a\u00f0 ganga uppr\u00e9ttir.<\/p>\n<p>Ekki l\u00e1ta deigan s\u00edga, R\u00fanar.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hafnarfjar\u00f0arleikh\u00fasi\u00f0:  Ufsagr\u00fdlur<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3ri: R\u00fanar Gu\u00f0brandsson<br \/>\nLeikmynd: M\u00f3ei\u00f0ur Helgad\u00f3ttir<br \/>\nB\u00faningar: Myrra Leifsd\u00f3ttir<br \/>\nLeikgervi: \u00c1sta Haf\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00fdsing: Gar\u00f0ar Borg\u00fe\u00f3rsson<br \/>\nT\u00f3nlist\/hlj\u00f3\u00f0: Stilluppsteyp<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-150","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/150","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=150"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/150\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":591,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/150\/revisions\/591"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=150"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=150"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=150"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}