{"id":152,"date":"2010-02-03T00:00:00","date_gmt":"2010-02-03T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/02\/03\/tilbrigdi-vid-stef-thrjar-stjornur-saella-er-ad-gefa-en-thiggja\/"},"modified":"2020-09-23T09:11:59","modified_gmt":"2020-09-23T09:11:59","slug":"tilbrigdi-vid-stef-thrjar-stjornur-saella-er-ad-gefa-en-thiggja","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/02\/03\/tilbrigdi-vid-stef-thrjar-stjornur-saella-er-ad-gefa-en-thiggja\/","title":{"rendered":"Tilbrig\u00f0i vi\u00f0 stef \u00ferj\u00e1r stj\u00f6rnur: S\u00e6lla er a\u00f0 gefa en \u00feiggja"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"175\" class=\"alignnone size-full wp-image-76\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/stef.jpg\"><br>\nTilbrig\u00f0i vi\u00f0 stef<\/center><p><\/p>\n<p>Hvar \u00ed heiminum nema \u00e1 \u00cdslandi getur ma\u00f0ur fari\u00f0 \u00ed leikh\u00fas \u00ed hjarta borgar \u2013 \u00fear sem \u00fe\u00f6gnin \u00ed umhverfinu er sl\u00edk, a\u00f0 gluggar standa galopnir og eina hlj\u00f3\u00f0i\u00f0 sem berst inn, er gargi\u00f0 \u00ed g\u00edrugum g\u00e6sum \u2013 e\u00f0a \u00e1lftakvak \u00ed umv\u00f6ndunart\u00f3n? Hvergi, hugsa \u00e9g \u2013 en \u00feannig er einmitt stemningin \u00e1 efri h\u00e6\u00f0inni \u00ed I\u00f0n\u00f3 \u00feessa dagana. Kaffileikh\u00fas \u2013 og \u00fea\u00f0 \u00ed or\u00f0sins fyllstu merkingu, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 kaffi, jafnvel heitt s\u00fakkula\u00f0i me\u00f0 rj\u00f3ma og kru\u00f0er\u00edi, \u00ed upphafi leiks og \u00e1horfendur deila \u00fev\u00ed me\u00f0 leikendum. Leikendur f\u00e1 jafnvel eitthva\u00f0 sterkara, \u00feegar or\u00f0r\u00e6\u00f0an ver\u00f0ur of \u00e1geng. Jar\u00f0gulur litur veggjanna heldur hl\u00fdlega utan um leikendur og gesti, \u00fear sem \u00feeir sitja \u00ed hnapp hver \u00e1 m\u00f3ti \u00f6\u00f0rum. Svona var leikh\u00fas kannski einmitt hugsa\u00f0 \u00ed upphafi, sta\u00f0ur \u00fear sem ma\u00f0ur talar vi\u00f0 mann og segir s\u00f6gu. \u00cd svona \u00fer\u00f6ngu r\u00fdmi f\u00e1 or\u00f0in auki\u00f0 v\u00e6gi og \u00fea\u00f0 hentar mj\u00f6g vel \u00feeim, sem liggur miki\u00f0 \u00e1 hjarta og \u00feurfa a\u00f0 veita tilfinningum s\u00ednum \u00fatr\u00e1s.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00deannig finnst m\u00e9r a\u00f0 hlj\u00f3ti a\u00f0 vera komi\u00f0 fyrir h\u00f6fundi Tilbrig\u00f0a vi\u00f0 stef Strindbergs. \u00de\u00f3r R\u00f6gnvaldsson er heimspekingur a\u00f0 upplagi og s\u00e9rhvert atvik \u00e1 lei\u00f0 um l\u00edfi\u00f0 veldur honum heilabrotum \u2013 kallar \u00e1 \u00edhygli og leit a\u00f0 lausnum. \u00de\u00f3r hefur v\u00ed\u00f0a rata\u00f0, heima og erlendis og s\u00e6kir hugmyndir s\u00ednar \u00ed sj\u00f3\u00f0 l\u00edfsreynslunnar. Hann \u00feekkir \u00e1stina og miskunnarleysi hennar, hann \u00feekkir afbr\u00fd\u00f0isemi, \u00f6fund, \u00f3tta, vonbrig\u00f0i og uppgj\u00f6f. Kannski hefur hann l\u00edka h\u00e1\u00f0 bar\u00e1ttu vi\u00f0 Bakkus og or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 l\u00fata l\u00e6gra haldi. Hann hefur gefi\u00f0 og hann hefur kannski l\u00edka stoli\u00f0. Hann veit, a\u00f0 s\u00e1 sem fyrirl\u00edtur sj\u00e1lfan sig, hefur ekkert a\u00f0 gefa, getur ekki elska\u00f0 a\u00f0ra. Allt \u00feetta leitar \u00e1 huga heimspekingsins, hv\u00edlir \u00e1 honum eins og mara. Og hann vill tala um \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 finna sv\u00f6r og lausn. Svona l\u00edt \u00e9g \u00e1 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g veit, a\u00f0 \u00de\u00f3r hefur alla t\u00ed\u00f0 fundi\u00f0 s\u00e1luf\u00e9laga \u00ed August Strindberg, hinu \u00f3vi\u00f0jafnanlega leiksk\u00e1ldi Sv\u00eda, sem kruf\u00f0i tilfinningal\u00edf mannskepnunnar \u00e1 sinni t\u00ed\u00f0 af fullkomnu miskunnarleysi vi\u00f0 sj\u00e1lfa sig og a\u00f0ra. \u00de\u00f3r s\u00e6kir \u00ed sama fari\u00f0 og meistarinn e\u00f0a heldur sig alla vega \u00e1 svipu\u00f0um sl\u00f3\u00f0um. S\u00e6nskt samf\u00e9lag var \u00e1 t\u00edmum Strindbergs miklu sts\u00e9ttskiptara en n\u00fa. Hin borgaralega yfirst\u00e9tt lif\u00f0i og hr\u00e6r\u00f0ist \u00ed eigin heimi, sem var h\u00e1tt yfir hversdags tilveru l\u00fd\u00f0sins hafinn. \u00cdslendingum sem \u00f3lust upp \u00ed frumst\u00e6\u00f0u sveitasamf\u00e9lagi \u00e1 t\u00ed\u00f0 Strindbergs, hl\u00fdtur a\u00f0 hafa \u00fe\u00f3tt ver\u00f6ld hans framandi. Kannski erum vi\u00f0 farin a\u00f0 skilja hi\u00f0 f\u00e1ga\u00f0a borgaralega umhverfi \u00ed verkum hans betur n\u00fa til dags. \u00deess vegna er \u00e1hugavert a\u00f0 fylgjast me\u00f0 tilraun \u00de\u00f3rs til a\u00f0 spila tilbrig\u00f0i vi\u00f0 stef Strindbergs \u2013 um \u00e1stina, hj\u00f3nabandi\u00f0, svik, framhj\u00e1hald og fyrirgefningu \u2013 og um \u00f6ryggi og afkomu. \u00dev\u00ed hvort \u00fer\u00e1ir konan meir: \u00e1st e\u00f0a \u00f6ryggi? S\u00e1 sem gerir \u00f6\u00f0rum illt, getur um lei\u00f0 neytt \u00feann sem fyrir ver\u00f0ur, til a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 sj\u00e1lfan sig og til a\u00f0 virkja sinn innri styrk. Loser wins? .Hvor er sterkari, s\u00e1 sem \u00feiggur e\u00f0a s\u00e1 sem gefur?<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r hefur gott vald \u00e1 \u00edslensku m\u00e1li. Leiktextinn er \u00fej\u00e1ll og liggur vel \u00ed munni, stundum jafnvel sk\u00e1ldlegur og myndr\u00e6nn. \u00dea\u00f0 er gaman a\u00f0 fara me\u00f0 og hl\u00fd\u00f0a \u00e1 g\u00f3\u00f0an texta.<\/p>\n<p>Leikriti\u00f0 hefst \u00e1 stefi Strindbergs og s\u00ed\u00f0an koma fj\u00f6gur tilbrig\u00f0i vi\u00f0 \u00fea\u00f0 eftir \u00de\u00f3r R\u00f6gnvaldsson. Tv\u00e6r konur og tveir karlar eru \u00ed a\u00f0alhlutverkunum, en einnig kemur vi\u00f0 s\u00f6gu \u00fej\u00f3nustuf\u00f3lk, sem hefur \u00ed n\u00f3gu a\u00f0 sn\u00faast \u00ed kringum gesti s\u00edna \u00e1 kaffih\u00fasinu. \u00cd fyrsta stefinu eru l\u00ednurnar lag\u00f0ar og s\u00ed\u00f0an er spunni\u00f0 \u00fat fr\u00e1 \u00feeim. \u00cd fyrsta stefinu skarta konurnar s\u00ed\u00f0um kj\u00f3lum og kl\u00e6\u00f0ast h\u00f6nskum og h\u00f6ttum. \u00dea\u00f0 eru tv\u00e6 gl\u00e6silegar konur \u00far leikarast\u00e9ttinni, \u00fe\u00e6r Lilja \u00de\u00f3risd\u00f3ttir og Gu\u00f0r\u00fan \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir. Kvenlegar og formfastar, svol\u00edti\u00f0 tilger\u00f0arlegar, b\u00e6\u00f0i \u00ed leik og limabur\u00f0i. \u00deannig var eflaust l\u00edka leiki\u00f0 \u00e1 n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld, leikarar settu upp gr\u00edmur og hl\u00edf\u00f0u sinni eigin pers\u00f3nu. \u00deetta var \u00e1\u00f0ur en \u00e1hrifa Stanislavskijs f\u00f3r a\u00f0 g\u00e6ta \u00ed leiklistarheiminum. \u00c9g veit ekki, hvort \u00feetta var \u00e1kv\u00f6r\u00f0un leikstj\u00f3ra e\u00f0a af \u00fev\u00ed a\u00f0 leikkonurnar l\u00f6g\u00f0u ekki \u00ed a\u00f0 gefa sig hlutverkinu algerlega \u00e1 vald.<\/p>\n<p>Tilbrig\u00f0i \u00de\u00f3rs f\u00e6ra sig yfir \u00ed n\u00fat\u00edmann. Fatna\u00f0urinn breytist, ver\u00f0ur smekklaus og stingur \u00ed st\u00faf vi\u00f0 formfestu fyrri t\u00ed\u00f0ar. \u00dej\u00f3nstuf\u00f3lki\u00f0 ber af \u00ed sv\u00f6rtu og hv\u00edtu, sem h\u00e6fir yfirst\u00e9ttar kaffih\u00fasi. Smekkleysi\u00f0 r\u00ed\u00f0ur ekki vi\u00f0 einteyming og segir raunar allt sem segja \u00fearf um hringlandah\u00e1tt okkar t\u00edma, b\u00e6\u00f0i hva\u00f0 var\u00f0ar \u00fatlit og s\u00e1larl\u00edf. \u00c9g veit ekki, hvort \u00feetta var \u00f3vart e\u00f0a me\u00f0vita\u00f0 hj\u00e1 Fitore Berisha, sem s\u00e1 um val \u00e1 b\u00faningum leikenda. M\u00e9r fannst \u00feetta gefa texta h\u00f6fundar meiri d\u00fdpt fyrir viki\u00f0.<\/p>\n<p>Merkilegt annars a\u00f0 bera saman \u00f3l\u00edka leikst\u00edla fyrr og n\u00fa, og hva\u00f0 leiklistinni hefur fari\u00f0 fram, hva\u00f0 t\u00falkun var\u00f0ar. N\u00fa er lagt upp \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00edla pers\u00f3nuna sem \u00fe\u00fa ert a\u00f0 leika me\u00f0 hjartanum og heilanum. Bara vera \u00fe\u00fa sj\u00e1lfur \u00e1 svi\u00f0inu. Eins og m\u00e9r fannst einmitt Valgeiri Skagfj\u00f6r\u00f0 takast svo vel. \u00cd seinasta tilbrig\u00f0inu fer \u00de\u00f3r svol\u00edti\u00f0 \u00fat af l\u00ednunni, karlarnir r\u00e6\u00f0a drykkjuvandam\u00e1l og hvernig menn fors\u00f3ma eigin h\u00e6fileika \u2013 og visna af kulda \u00ed \u00e1stlausu sambandi. Gunnar Gunnsteinsson er glettilega g\u00f3\u00f0ur \u00ed hlutverki sj\u00f3arans, afslappa\u00f0ur og sannf\u00e6randi, en Valgeir stelur senunni, \u00e1n \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 segja eitt aukateki\u00f0 or\u00f0. Og \u00fea\u00f0 er n\u00fa ekki l\u00edti\u00f0 afrek \u00ed leikh\u00fasi, \u00fear sem or\u00f0 skulu standa.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst \u00feetta notalegt kv\u00f6ld og spennandi p\u00e6lingar. Uppf\u00e6rslan var einf\u00f6ld og l\u00e1tlaus, ekkert prj\u00e1l n\u00e9 st\u00e6lar. Gamla I\u00f0n\u00f3 gaf \u00fev\u00ed r\u00e9tta umger\u00f0. Anna\u00f0 \u00feurfti ekki, nema kjarkinn til a\u00f0 dr\u00edfa \u00ed \u00feessu, allslaus og auralaus. Takk fyrir, \u00de\u00f3r og Inga.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Tilbrig\u00f0i vi\u00f0 stef eftir \u00de\u00f3r R\u00f6gnvaldsson<br \/>\nS\u00fdnt \u00ed I\u00f0n\u00f3<br \/>\n1. stef<br \/>\nEftir: August Strindberg<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Inga Bjarnason<br \/>\nA\u00f0sto\u00f0arleikstj\u00f3ri: Hildur Sif Thorarensen<br \/>\nB\u00faningar: Fitore Berisha<br \/>\nL\u00fdsing: Bjarni P\u00e1lmason<\/p>\n<p>Leikendur:<br \/>\nLilja \u00de\u00f3risd\u00f3ttir<br \/>\nGu\u00f0r\u00fan \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir<br \/>\nValgeir Skagfj\u00f6r\u00f0<br \/>\nGunnar Gunnsteinsson<br \/>\n\u00d3lafur \u00deor J\u00f3hannesso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-152","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/152","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=152"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/152\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":593,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/152\/revisions\/593"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=152"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=152"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=152"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}