{"id":153,"date":"2010-01-23T00:00:00","date_gmt":"2010-01-23T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/01\/23\/godir-islendingar-eins-og-i-spegli\/"},"modified":"2020-09-23T09:12:10","modified_gmt":"2020-09-23T09:12:10","slug":"godir-islendingar-eins-og-i-spegli","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/01\/23\/godir-islendingar-eins-og-i-spegli\/","title":{"rendered":"G\u00f3\u00f0ir \u00cdslendingar: Eins og \u00ed spegli"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"198\" class=\"alignnone size-full wp-image-45\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/godir.jpg\"><br>\nHallur Ing\u00f3lfsson og Halld\u00f3ra Geirhar\u00f0sd\u00f3ttir \u00ed hlutverkum s\u00ednum \u00ed s\u00fdningunni G\u00f3\u00f0ir \u00cdslendingar \u00ed Borgarleikh\u00fasinu. Borgarleikh\u00fasi\u00f0<\/center><p><\/p>\n<p>Fyrir nokkrum d\u00f6gum s\u00e1 \u00e9g kvikmyndina \u201cMaybe I should have\u201d. A\u00f0alpers\u00f3nan \u00ed myndinni hlj\u00f3p \u00fat um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll me\u00f0 kvikmyndav\u00e9lina \u00ed eftirdragi, hvort sem \u00fea\u00f0 var \u00ed Reykjav\u00edk, L\u00faxemburg e\u00f0a Tortolu, og spur\u00f0i spurninga. Hann spur\u00f0i erfi\u00f0ra spurninga og heimta\u00f0i hei\u00f0arleg sv\u00f6r. Hann f\u00e9kk sv\u00f6rin og okkur lei\u00f0 ekkert vel \u2013 fannst \u00fe\u00f3 a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um komist eitthva\u00f0 n\u00e6r kjarnanum &#8211; jafnvel fundi\u00f0 s\u00f6kud\u00f3lgana, gripi\u00f0 \u00e1 meinsemdinni.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Leikriti\u00f0 sem \u00e9g s\u00e1 \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi fjallar um sama efni, en fr\u00e1 allt \u00f6\u00f0ru sj\u00f3narhorni. \u00dea\u00f0 fjallar l\u00edka um \u00feolendur hrunsins, en a\u00f0 \u00feessu sinni spyrja \u00feolendur ekki spurninga, heldur eru \u00feeir \u00ed afneitun \u2013 skilja ekki alv\u00f6runa. E\u00f0a eru bara \u00ed losti? Undir lokin var \u00e9g gripin lamandi vonleysi &#8211; vonleysi um framt\u00ed\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0ar. Or\u00f0askiptin \u00e1 svi\u00f0inu dr\u00f3gu \u00far m\u00e9r allan m\u00e1tt \u2013 vi\u00f0 hl\u00f3gum a\u00f0 v\u00edsu eins og vitleysingar \u2013 en hvor var vitlausari, vi\u00f0 e\u00f0a \u00feau \u00e1 svi\u00f0inu?<\/p>\n<p>H\u00f6fundarnir, \u00feeir J\u00f3n Atli, Hallur og J\u00f3n P\u00e1ll, draga \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0ina sundur og saman \u00ed h\u00e1\u00f0i, eru miskunnarlausir \u00ed gagnr\u00fdni sinni og benda \u00e1 allt \u00fea\u00f0 versta \u00ed fari okkar \u2013 f\u00e1fengileika, heimsku, \u00fer\u00f6ngs\u00fdni, ford\u00f3ma, grimmd og eigingirni. Og \u00feetta er ekki einu sinni sk\u00e1ldskapur. \u00deeir sk\u00e1lda kannski \u00ed ey\u00f0urnar, en efni\u00f0 er allt sannleikanum samkv\u00e6mt \u2013 a\u00f0 \u00feeirra eigin s\u00f6gn. \u00deeir vinna efni\u00f0 upp \u00far vi\u00f0t\u00f6lum og fr\u00e1s\u00f6gnum \u00cdslendinga \u00ed bl\u00f6\u00f0um og t\u00edmaritum, \u00ed \u00fatvarpi og sj\u00f3nvarpi. \u00deeir vafra um \u00e1 netinu, pikka upp samr\u00e6\u00f0ur \u00e1 svokalla\u00f0ri \u201cface-book\u201d, nefna oft youtube, ipod og idol, eurovision, metro og macdonalds. Hugarheimurinn n\u00e6r ekkert upp fyrir veggi m\u00fasarholunnar, sem birgir s\u00fdn. \u00deetta erum vi\u00f0 sj\u00e1lf \u00ed spegli, og spegillinn l\u00fdgur ekki. \u00deeir leggja \u00e1 bor\u00f0 fyrir okkur sannleikann og nudda okkur upp \u00far honum, eins og salti \u00ed s\u00e1r. Og \u00feeir ver\u00f0a \u00e6 grimmari eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1 leikinn l\u00ed\u00f0ur. \u00deeir h\u00e6gja \u00e1 temp\u00f3inu, og vi\u00f0 ney\u00f0umst til a\u00f0 hlusta grannt. Lokahnykkurinn er fr\u00e1s\u00f6gn \u00f6ryrkjans um d\u00e1semdir Thailands, eins f\u00e1t\u00e6kasta lands veraldar, \u00fear sem allir eru svo gla\u00f0ir og g\u00f3\u00f0ir, \u00fe\u00f3tt \u00feeir eigi hvorki til hn\u00edfs n\u00e9 skei\u00f0ar! \u00deeir vilja jafnvel \u00f3lmir l\u00e1ta r\u00ed\u00f0a s\u00e9r. Og \u00fea\u00f0 kostar eiginlega ekki neitt, e\u00f0a mj\u00f6g l\u00edti\u00f0!, segir hann. S\u00fa fr\u00e1s\u00f6gn flettir endanlega ofan af heimsku og ford\u00f3mum litla mannsins, sem er eins og m\u00fas \u00ed holu sinni, veit ekkert, skilur ekkert. \u00cdslendingar \u00e6ttu a\u00f0 l\u00edta s\u00e9r n\u00e6r.<\/p>\n<p>\u00deegar upp er sta\u00f0i\u00f0, er spurningin \u00feessi: Er \u00feetta \u00e1stand, sem h\u00f6fundar l\u00fdsa undir r\u00f3s, aflei\u00f0ing hrunsins \u2013 e\u00f0a kannski ors\u00f6k hrunsins? Hvort kom \u00e1 undan, eggi\u00f0 e\u00f0a h\u00e6nan? Var\u00f0 hruni\u00f0, af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum heimsk og ford\u00f3mafull, e\u00f0a ur\u00f0um vi\u00f0 skyndilega heimsk og ford\u00f3mafull, \u00feegar allt var fari\u00f0 til fjandans? Hvort finnst ykkur l\u00edklegra?<\/p>\n<p>Leikmyndin er eins konar b\u00far \u00far netadr\u00e6sum, sem umlykur leikendur \u00e1 alla vegu. L\u00fdsingin leikur me\u00f0 og undirstrikar innilokunina og \u00f3gnina. B\u00fari\u00f0 er h\u00e1tt og mj\u00f3tt og me\u00f0 reglulegu millibili fellur \u00feungt hlass af gluggap\u00f3sti, reikningum og kr\u00f6fum, ofan \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 f\u00f3lksins, sem er loka\u00f0 inni \u00ed \u00feessu b\u00fari og veit ekki hva\u00f0an \u00e1 sig stendur ve\u00f0ri\u00f0. \u00cd upphafi eru allir a\u00f0 reyna a\u00f0 hafa reglu \u00e1 hlutunum, safna saman p\u00f3stinum s\u00ednum, flokka hann og kannski borga l\u00edka. En eftir a\u00f0 hafa hl\u00fdtt \u00e1 r\u00e6\u00f0u forseta \u00cdslands, sem neitar a\u00f0 sam\u00feykkja Icesave-reikninginn, \u00fe\u00e1 h\u00e6ttir f\u00f3lki\u00f0 \u00ed b\u00farinu a\u00f0 sinna p\u00f3stinum og a\u00f0 reyna a\u00f0 standa \u00ed skilum. \u00dea\u00f0 liggur ekkert anna\u00f0 fyrir en a\u00f0 \u00ed leikslok muni \u00feessi l\u00fd\u00f0ur drukkna \u00ed s\u00ednum eigin p\u00f3sti og \u00fear me\u00f0 v\u00e6ri m\u00e1li\u00f0 leyst. En \u00fea\u00f0 er ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 heilsa. \u00cd sta\u00f0 \u00feess heldur f\u00f3lki\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 tala og tala, \u00e1n \u00feess a\u00f0 segja nokku\u00f0, \u00fea\u00f0 heldur \u00e1fram a\u00f0 afhj\u00fapa m\u00fasarholusj\u00f3narmi\u00f0 s\u00edn, f\u00e1visku og eymd. \u00dea\u00f0 fer meira a\u00f0 segja a\u00f0 bla\u00f0ra um \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0i miklu betur n\u00fana. Bla, bla, bla\u2026<\/p>\n<p>Sj\u00f3nvarpi\u00f0 leikur veigamiki\u00f0 hlutverk \u00ed s\u00fdningunni. \u00dea\u00f0 er partur af myndinni og spilar st\u00f3ra rullu \u2013 er \u00fe\u00f3 alltaf \u00ed bakgrunninum. \u00c9g s\u00e1 \u00fatundan m\u00e9r litlar stelpur \u00ed fallegum brj\u00f3stah\u00f6ldurum \u2013 svona h\u00f6ldurum, sem lyfta undir brj\u00f3stin. Og svo voru brj\u00f3stin m\u00e6ld og haldararnir m\u00e6r\u00f0ir. \u00deeim var kennt a\u00f0 brosa og vera \u00e1n\u00e6g\u00f0ar me\u00f0 sj\u00e1lfar sig. Mj\u00f6g vins\u00e6lt sj\u00f3nvarpsefni, s\u00e9rstaklega me\u00f0a ungra st\u00falkna. \u00c9g s\u00e1 ekki \u201cDesperate Housewives\u201d a\u00f0 \u00feessu sinni, en \u00fdmislegt \u00ed \u00feeim d\u00far, og svo l\u00edka verur fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum hn\u00f6ttum \u2013 a\u00f0 m\u00e9r s\u00fdndist.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 haf\u00f0i greinilega veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 mikil vinna \u00ed a\u00f0 ra\u00f0a inn \u201cr\u00e9ttu\u201d efni \u00e1 dagskr\u00e1 sj\u00f3nvarpsins til a\u00f0 undirstrika vi\u00f0fangsefni h\u00f6funda og s\u00fdna fram \u00e1, hvernig \u00feessi mi\u00f0ill hefur \u00e1hrif og m\u00f3tar hugsunarh\u00e1tt heilla kynsl\u00f3\u00f0a. Einstaka sinnum var blasi\u00f0 \u00ed l\u00fa\u00f0ra og \u00fe\u00e1 \u00feyrptust fangar b\u00farsins a\u00f0 skj\u00e1num og hlustu\u00f0u af athygli. Fr\u00e9ttir og augl\u00fdsingar &#8211; algert \u201cmust.\u201d \u00dej\u00f3\u00f0in f\u00e6r a\u00f0 kj\u00f3sa, \u00e9g skrifa ekki undir, n\u00fa ver\u00f0ur \u00fej\u00f3\u00f0in a\u00f0 s\u00fdna \u00e1byrg\u00f0,\u201d sag\u00f0i forsetinn. Jes\u00fas minn! Fangarnir r\u00f6nku\u00f0u ekki vi\u00f0 s\u00e9r. E\u00f0a voru \u00feeir bara \u00ed losti og afneitun? \u00deeir h\u00e9ldu \u00e1fram a\u00f0 bla\u00f0ra um ekki neitt.<\/p>\n<p>Alv\u00f6ruumr\u00e6\u00f0a um hlutverk sj\u00f3nvarpsins er l\u00f6ngu t\u00edmab\u00e6r \u00ed okkar litla \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi.<\/p>\n<p>\u00deegar manni ver\u00f0ur hugsa\u00f0 til \u00feess, hva\u00f0 sj\u00f3nvarp skiptir miklu m\u00e1li \u00ed uppeldi og fr\u00e6\u00f0slu barna okkar, \u00fe\u00e1 er ni\u00f0ursta\u00f0a hrollvekjandi. Og \u00ed alv\u00f6ru m\u00e6tti huglei\u00f0a \u00fea\u00f0, hvort r\u00edkissj\u00f3nvarpi\u00f0 beri ekki t\u00f6luver\u00f0a \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed, hvernig er fyrir okkur komi\u00f0. \u00dea\u00f0 menningarlausa ruslf\u00e6\u00f0i, sem \u00e1 bor\u00f0 er bori\u00f0 dag eftir dag, viku eftir viku, \u00e1r eftir \u00e1r, er mannskemmandi, svo ekki s\u00e9 sterkara til or\u00f0a teki\u00f0. \u00c9g held, a\u00f0 h\u00f6fundum \u00feessa verks s\u00e9 svipa\u00f0 innan brj\u00f3sts og m\u00e9r. Megi \u00feeir halda \u00e1fram \u00e1 \u00feessari braut. P\u00f3lit\u00edsk leikverk eiga svo sannarlega erindi vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0ina einmitt n\u00fana.<\/p>\n<p>Leikmynd, l\u00fdsing, b\u00faningar, gervi og leikur \u2013 allt tvinnast \u00feetta saman, og ef eitthva\u00f0 klikkar, \u00fe\u00e1 klikkar allt. En \u00fea\u00f0 var enginn sj\u00e1anlegur misbrestur \u00e1 \u2013 nema hva\u00f0 m\u00e9r fundust sum gervin of \u00fdkt, \u00feannig a\u00f0 andlitin fengu ekki a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn. Leikararnir eru greinilega mj\u00f6g n\u00e1nir hver \u00f6\u00f0rum. Hver \u00f6\u00f0rum betri, b\u00e6ta hver annan upp \u2013 eins og einhver sag\u00f0i. Ungir leikarar hafa l\u00edka til a\u00f0 bera \u00fdmislegt, sem eldri og reyndari leikarar hafa ekki. \u00deeir b\u00faa yfir leikgle\u00f0i, sem er gefandi og upp\u00f6rvandi og berst eins og ilmur \u00fat \u00ed salinn. \u00der\u00e1tt fyrir har\u00f0neskjuleg og t\u00e6pitungulaus skilabo\u00f0 h\u00f6fundanna, \u00fe\u00e1 gle\u00f0jumst vi\u00f0 yfir listr\u00e6num \u00e1rangri leikenda. Svo lengi sem h\u00f6fundarnir hika ekki vi\u00f0 a\u00f0 taka \u00e1 k\u00fdlum samt\u00edmans og ungir leikarar koma bo\u00f0skapnum til skila, gagnteknir leikgle\u00f0i, er \u00e1st\u00e6\u00f0ulaust a\u00f0 \u00f6rv\u00e6nta. \u00de\u00e1 er enn von.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>G\u00f3\u00f0ir \u00cdslendingar frums\u00fdnt \u00ed Borgarleikh\u00fasinu 22. jan\u00faar 2010 &#8211; finnst vi\u00f0 ekki vera \u00ed tengslum vi\u00f0 raunveruleikann \u2013 <\/p>\n<p>H\u00f6fundar: Mindgroup<br \/>\nJ\u00f3n Atli J\u00f3nasson<br \/>\nJ\u00f3n P\u00e1ll Eysteinsson<br \/>\nHallur Ing\u00f3lfsson<\/p>\n<p>Myndband: Mindgroup<\/p>\n<p>L\u00fdsing: Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson<br \/>\nLeikgervi: Sigr\u00ed\u00f0ur R\u00f3sa Bjarnad\u00f3ttir og leikh\u00f3purinn<br \/>\nB\u00faningar: Stefan\u00eda Adolfsd\u00f3ttir og leikh\u00f3purinn<\/p>\n<p>Leikendur:<br \/>\nBergur \u00de\u00f3r Ing\u00f3lfsson<br \/>\nD\u00f3ra J\u00f3hannsd\u00f3ttir<br \/>\nHalld\u00f3r Gylfason<br \/>\nHalld\u00f3ra Gerimundsd\u00f3ttir<br \/>\nHallur Ing\u00f3lfsson<br \/>\nJ\u00f3n Atli J\u00f3nasson<br \/>\nJ\u00f3n P\u00e1ll Eysteinsso<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-153","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/153","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=153"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/153\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":594,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/153\/revisions\/594"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=153"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=153"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=153"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}