{"id":155,"date":"2010-01-02T00:00:00","date_gmt":"2010-01-02T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/01\/02\/okyrrd-fleiri-ordk1dd1-faerri-stola\/"},"modified":"2020-09-23T09:19:28","modified_gmt":"2020-09-23T09:19:28","slug":"okyrrd-fleiri-ordk1dd1-faerri-stola","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2010\/01\/02\/okyrrd-fleiri-ordk1dd1-faerri-stola\/","title":{"rendered":"\u00d3kyrr\u00f0: Fleiri or\u00f0, f\u00e6rri st\u00f3la"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-69\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/okyrrd.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"166\"><br>\n\u00d3kyrr\u00f0<\/center><p><\/p>\n<p>Svi\u00f0smyndin er kolsvartur kassi, \u00e1n upphafs n\u00e9 endis. \u00d3r\u00e6\u00f0 v\u00eddd. Hversdagslegir skrifstofust\u00f3lar eru einu svi\u00f0smunirnir. \u00derj\u00e1r litlausar pers\u00f3nur h\u00faka upp vi\u00f0 vegg, stara fram fyrir sig, \u00e1n vitundar hver um a\u00f0ra. Engin \u00feeirra segir neitt. Engin gerir neitt.<br>\nHvers er a\u00f0 v\u00e6nta?<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Aha, hringurinn er fullkomna\u00f0ur, hugsa \u00e9g: Leikh\u00fas f\u00e1r\u00e1nleikans er ekki bara h\u00e9r og n\u00fa. \u00dev\u00ed b\u00fd\u00f0st samkeppni uppi \u00e1 svi\u00f0i. Og kannski er \u00fea\u00f0 bara tilviljun, a\u00f0 einn h\u00f6fundur \u00d3kyrr\u00f0ar, Ragnar \u00cdsleifur Bragason, er h\u00e9r (kannski \u00f3me\u00f0vita\u00f0) a\u00f0 feta \u00ed f\u00f3tspor m\u00f3\u00f0ur sinnar, N\u00ednu Bjarkar \u00c1rnad\u00f3ttur, sk\u00e1ldkonu \u2013 en h\u00fan stunda\u00f0i l\u00edka leiklistarn\u00e1m \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. Og N\u00edna Bj\u00f6rk ger\u00f0i alveg eins og sonurinn, skrifa\u00f0i verkin sj\u00e1lf. Hugmyndir hennar um leikh\u00fas voru svo pers\u00f3nulegar, a\u00f0 h\u00fan gat ekki hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 t\u00falka annarra manna or\u00f0. N\u00edna f\u00f3r inn \u00e1 svipa\u00f0ar brautir og sonurinn. H\u00fan heilla\u00f0ist af leikh\u00fasi f\u00e1r\u00e1nleikans. \u00c1 \u00feeim \u00e1rum var \u201c th\u00e9atre absurde\u201d bylting \u00ed heimi leiklistarinnar. Hinn n\u00fdi st\u00edll splundra\u00f0i vi\u00f0teknum reglum og neyddi \u00e1horfandann til a\u00f0 hugsa upp \u00e1 n\u00fdtt.<\/p>\n<p>Og svei m\u00e9r \u00fe\u00e1! Sjaldan fellur epli\u00f0 langt fr\u00e1 eikinni. Ragnar er a\u00f0 v\u00edsu ekki eini h\u00f6fundur verksins, en \u00e9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 sk\u00e1ldi\u00f0 hafi leitt h\u00f3pinn, \u00e1tt frumkv\u00e6\u00f0i\u00f0. Fri\u00f0geir Einarsson er \u00fatskrifa\u00f0ur \u00far Leiklistarsk\u00f3la r\u00edkisins og Margr\u00e9ti Bjarnad\u00f3ttur er danslistakona, menntu\u00f0 \u00ed Arnhem \u00ed Hollandi. \u00deau \u00e6ttu \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6ta hvert anna\u00f0 upp, \u00f6ll \u00ferj\u00fa. Einn semur textann, annar leikst\u00fdrir og s\u00e1 \u00feri\u00f0ji bl\u00e6s l\u00edfi \u00ed hreyfingar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 f\u00f3r a\u00f0 v\u00edsu heldur l\u00edti\u00f0 fyrir textanum \u00ed \u00d3kyrr\u00f0. \u00dea\u00f0 var eiginlega synd, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed \u00feau f\u00e1u skipti, sem or\u00f0listin f\u00e9kk a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn var h\u00fan fyndin, f\u00e1r\u00e1nleg (absurde) og beinskeytt \u00ed takt vi\u00f0 hugmyndina a\u00f0 verkinu. \u00deegar \u00e9g hlusta\u00f0i \u00e1 textann, fannst m\u00e9r um stund \u00e9g skilja, hva\u00f0 h\u00f6fundar v\u00e6ru a\u00f0 fara, hver v\u00e6ri bo\u00f0skapurinn (e\u00f0a \u00fev\u00ed sem \u00e9g \u00edmynda\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 v\u00e6ri bo\u00f0skapurinn).<\/p>\n<p>Textinn var hins vegar svo knappur, a\u00f0 \u00fea\u00f0 var mikilv\u00e6gt a\u00f0 fara vel me\u00f0 hann. \u00dear sem a\u00f0eins einn \u00fe\u00e1tttakenda er leikl\u00e6r\u00f0ur, \u00fe\u00e1 skorti miki\u00f0 \u00e1, a\u00f0 textinn skila\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 fullu me\u00f0 \u00feeim myndarbrag, sem hann \u00e1tti skili\u00f0. \u00dea\u00f0 var greinilegt, a\u00f0 hvorki sk\u00e1ldi\u00f0 n\u00e9 danslistakonan h\u00f6f\u00f0u lagt sig eftir frams\u00f6gn og raddbeitingu \u00ed s\u00ednu n\u00e1mi.<\/p>\n<p>Hins vegar l\u00e9ku fyrrnefndir skrifstofust\u00f3lar \u00fe\u00fd\u00f0ingarmikil hlutverk. \u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 s\u00fdningunni lauk, \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00e9g \u00e1tta\u00f0i mig \u00e1 hlutverki st\u00f3lanna \u00ed verkinu. Beittu leikendur \u00feeim fyrir sig eins og skj\u00f6ldum, til a\u00f0 verjast \u00e1gengni utana\u00f0komandi? Voru st\u00f3larnir eins konar gr\u00edmur til a\u00f0 fela sig \u00e1 bak vi\u00f0? E\u00f0a v\u00f6rn vi\u00f0 v\u00e1 \u00ed fjandsamlegum heimi? Voru \u00feeir kannski pers\u00f3nugervingar litla f\u00f3lksins, sem vi\u00f0 erum alltaf a\u00f0 \u00fdta \u00e1fram, r\u00e1\u00f0skast me\u00f0 og hafa vit fyrir? (S\u00fa hugmynd var a\u00f0 v\u00edsu bl\u00e1sin \u00fat af bor\u00f0inu mj\u00f6g snemma).<\/p>\n<p>\u00c9g er enn (fj\u00f3rum d\u00f6gum seinna) a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r, hva\u00f0 st\u00f3larnir st\u00f3\u00f0u fyrir og hvort \u00feeir voru yfirleitt nau\u00f0synlegir. Skru\u00f0ningur og \u00f3\u00fe\u00e6gilegt \u00edskur, \u00feegar \u00feeir voru dregnir eftir h\u00f6r\u00f0u steing\u00f3lfinu, f\u00f3r \u00ed taugarnar \u00e1 m\u00e9r. M\u00e9r finnst einhvern veginn, a\u00f0 h\u00f6fundar hef\u00f0u geta\u00f0 sagt okkur meiningu s\u00ednar um firringu, snertif\u00e6lni, \u00f3tta og einmanaleik \u00ed har\u00f0sn\u00fanum heimi \u00e1 hlj\u00f3\u00f0l\u00e1tari h\u00e1tt &#8211; kannski nota fleiri or\u00f0 og f\u00e6rri st\u00f3la.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00e1 hef\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 lokasennan milli st\u00f3ls og manns fari\u00f0 forg\u00f6r\u00f0um. Og \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 synd, \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0urinn festist \u00ed st\u00f3lnum \u00e1 mj\u00f6g t\u00e1knr\u00e6nan h\u00e1tt \u2013 svona svipa\u00f0 og okkur h\u00e6ttir til a\u00f0 festast \u00ed eigin kreddum, eigin \u00edmyndunum, l\u00e6sa okkur \u00ed rugli, sem vi\u00f0 losnum aldrei vi\u00f0 \u00e1 eigin sp\u00fdtur. Vi\u00f0 \u00feurfum hvert \u00e1 \u00f6\u00f0ru a\u00f0 halda.<\/p>\n<p>E\u00f0a var \u00fea\u00f0 ekki bo\u00f0skapur verksins?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d3KYRR\u00d0<br \/>\nKassinn<\/p>\n<p>H\u00f6fundar: Fri\u00f0geir Einarsson, Ragnar \u00cdsleifur Bragason og Margr\u00e9t Bjarnad\u00f3ttir<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Fri\u00f0geir Einarsson<br \/>\nLeikarar: Fri\u00f0geir Einarsson, Ragnar \u00cdsleifur Bragason og Margr\u00e9t Bjarnad\u00f3ttir<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0mynd: Kristj\u00e1n Lo\u00f0mfj\u00f6r\u00f0<br \/>\nA\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 leikstj\u00f3rn: Saga Sigur\u00f0ard\u00f3tti<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-155","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/155","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=155"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/155\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":598,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/155\/revisions\/598"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=155"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=155"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=155"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}