{"id":156,"date":"2009-12-27T00:00:00","date_gmt":"2009-12-27T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/12\/27\/oliver-um-thjofak1dd1-horur-og-herramenn\/"},"modified":"2020-09-23T09:19:38","modified_gmt":"2020-09-23T09:19:38","slug":"oliver-um-thjofak1dd1-horur-og-herramenn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/12\/27\/oliver-um-thjofak1dd1-horur-og-herramenn\/","title":{"rendered":"Oliver!: Um \u00fej\u00f3fa, h\u00f3rur og herramenn"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-70\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/oliver.jpg\"><br>\n\u00d3liver!<\/center><p><\/p>\n<p>\u00de\u00f3 a\u00f0 m\u00e9r hafi ekki enn tekist a\u00f0 skilja, hvernig Selmu Bj\u00f6rnsd\u00f3ttur, t\u00f3kst a\u00f0 sannf\u00e6ra \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasstj\u00f3ra um, a\u00f0 hundgamall s\u00f6ngleikur, sem b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 teygja og toga \u00e1rum saman endalaust \u00ed \u00fatvarpi, sj\u00f3nvarpi, leikh\u00fasum og kvikmyndas\u00f6lum um alla heimsbygg\u00f0ina, skyldi ver\u00f0a j\u00f3las\u00fdning h\u00e9r uppi \u00e1 \u00cdslandi eina fer\u00f0ina enn, \u00fe\u00e1 ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g d\u00e1ist a\u00f0 fagmennsku, vandvirkni, smekkv\u00edsi og krafti \u00feessarar ungu konu, sem l\u00e6tur s\u00e9r greinilega ekki allt fyrir brj\u00f3sti brenna. \u00dea\u00f0 er t\u00f6ggur \u00ed Selmu Bj\u00f6rnsd\u00f3ttur og full \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 byrja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3ska henni til hamingju me\u00f0 fj\u00f6rlega og vanda\u00f0a s\u00fdningu.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Skyldu \u00fe\u00e6r hafa vali\u00f0 Oliver Twist, af \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fa er kreppa \u00e1 \u00cdslandi? En nota bene, kreppa er bara t\u00edmabundi\u00f0 \u00e1stand, sem varir ekki a\u00f0 eil\u00edfu \u2013 vonandi. L\u00edf f\u00e1t\u00e6klinga \u00ed g\u00f6tur\u00e6sum st\u00f3rborga n\u00edtj\u00e1ndu aldarinnar var varanlegt \u00e1stand. \u00dea\u00f0 voru \u00f6rl\u00f6g meirihluta \u00fej\u00f3\u00f0a. Enn voru engar almannatryggingar komnar til s\u00f6gunnar, engin sam\u00e1rbyrg\u00f0, engin von. \u00dea\u00f0 var ekkert \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag til, (eins og Maggie Thatcher komst eitt sinn a\u00f0 or\u00f0i) \u2013 bara einstaklingar, hver fyrir sig.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00f6rf\u00e1menn yfirst\u00e9tt, sem f\u00e6ddist me\u00f0 silfurskei\u00f0 \u00ed munninum. Au\u00f0urinn var geymdur \u00ed bankah\u00f3lfum, \u00ed landaeignum e\u00f0a \u00ed skartgripum. Hann gekk i arf. Peningarnir uxu \u00e1 trj\u00e1num og l\u00edfi\u00f0 var leikur fr\u00e1 upphafi til enda.<\/p>\n<p>Fyrir misskilning lendir Oliver \u00ed r\u00f6ngum h\u00f3pi vi\u00f0 f\u00e6\u00f0ingu. Hann er alinn upp \u00e1 muna\u00f0arleysingjah\u00e6li og s\u00ed\u00f0an \u00e1 g\u00f6tunni. Hann kynnist kj\u00f6rum hinna verst settu &#8211; en \u00fea\u00f0 var auglj\u00f3st fr\u00e1 upphafi, a\u00f0 hann tilheyr\u00f0i ekki. Hann var \u00f6\u00f0ru v\u00edsi, h\u00e1ttv\u00eds og tillitssamur. A\u00f0 lokum er misskilningurinn lei\u00f0r\u00e9ttur, og hann ratar aftur heim, inn fyrir m\u00fara au\u00f0s og forr\u00e9ttinda. Og \u00fe\u00e1 er bara spurningin: Hefur hann l\u00e6rt af reynslunni? Mun hann reyna \u00ed framt\u00ed\u00f0inni a\u00f0 r\u00e9tta hlut sm\u00e6lingjanna, minnugur \u00e6sku\u00e1ranna? Vi\u00f0 f\u00e1um aldrei sv\u00f6r vi\u00f0 \u00feeim spurningum, \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00f3k Charles Dickens endar, \u00fear sem Oliver sn\u00fdr aftur \u00ed fa\u00f0m fj\u00f6lskyldunnar og f\u00e6r vitneskju um arfinn, sem honum ber.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 lestur b\u00f3karinnar um Oliver Twist gr\u00e9t ma\u00f0ur hva\u00f0 eftir anna\u00f0 ofan \u00ed koddann sinn yfir grimmd og miskunnarleysi mannskepnunnar gagnvart \u00feeim, sem minna mega s\u00edn og eiga enga m\u00e1lsvara \u00ed h\u00f6r\u00f0um heimi. Ma\u00f0ur gr\u00e6tur ekki \u00e1 s\u00f6ngleik, enda er ekki \u00e6tlast til \u00feess. Sagan er stytt og einf\u00f6ldu\u00f0, fl\u00f3knir \u00fat\u00fard\u00farar skornir af og skemmtanagildi\u00f0 sett \u00ed \u00f6ndvegi. T\u00f3nlistin, s\u00f6ngurinn og dansarnir eru \u00fea\u00f0 sem halda s\u00fdningunni \u00e1 lofti, sagan v\u00edkur og ver\u00f0ur v\u00e6mnari \u00e1 svi\u00f0inu en \u00ed s\u00f6gunni, \u00e1deilan dofnar, h\u00f6fundurinn d\u00f3lar \u00ed bakgrunninum. Ni\u00f0ursta\u00f0an er meira a\u00f0 segja s\u00fa, a\u00f0 ma\u00f0ur er \u00ed lokin ekki viss hvort er meira a\u00f0la\u00f0andi \u2013 miskunnarlausir og grimm\u00fa\u00f0legir undirheimar gl\u00e6pakl\u00edkunnar e\u00f0a sm\u00e1borgaraleg hversdagsver\u00f6ld yfirst\u00e9ttarinnar. S\u00f6ngleikurinn er saminn n\u00edut\u00edu \u00e1rum eftir dau\u00f0a Dickens, \u00feannig a\u00f0 h\u00f6fundur haf\u00f0i l\u00f6ngu fyrirgert r\u00e9tti s\u00ednum til \u00e1hrifa. En hef\u00f0i hann s\u00e6tt sig vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta valta yfir bo\u00f0skap b\u00f3karinnar og \u00feynna hana \u00fat \u00ed ekki neitt?<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem hreif mig mest \u00e1 \u00e1 s\u00fdningunni um Oliver Twist frums\u00fdningarkv\u00f6ldi\u00f0 voru b\u00f6rnin og framlag \u00feeirra. \u00dea\u00f0 er \u00f3tr\u00falegt, hva\u00f0 \u00feau voru fagmannleg, frj\u00e1lsleg, gl\u00f6\u00f0, fim, sk\u00fdrm\u00e6lt og t\u00f3nviss. \u00dea\u00f0 var engu l\u00edkara en \u00feau hef\u00f0u unni\u00f0 \u00ed leikh\u00fasi fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu og hef\u00f0u a\u00f0 baki \u00e1ralanga \u00fej\u00e1lfun. Strax \u00ed upphafsatri\u00f0inu sl\u00f3gu \u00feau r\u00e9tta t\u00f3ninn og eftir \u00fea\u00f0 \u00e1ttu \u00feau hug og hj\u00f6rtu \u00e1horfenda. Dansarnir voru m\u00e1tulega einfaldir, en samt \u00feokkafullir, s\u00f6ngurinn bjartur og aga\u00f0ur. Og bara leikgle\u00f0in ein og s\u00e9r var eins og hressandi andvari \u00e1 \u00feessum s\u00ed\u00f0ustu og verstu t\u00edmum vonleysis og svarts\u00fdni. \u00c9g \u00feekki ekki til Alette Collins, dansah\u00f6fundarins, en h\u00fan kann greinilega \u00e1 sitt f\u00f3lk, veit takm\u00f6rk \u00feess og spinnur skynsamlega \u00far h\u00e6fileikum \u00feess. Allir fengu a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn, ekki bara b\u00f6rnin, heldur fullor\u00f0nir l\u00edka. Dansarnir voru augnayndi s\u00fdninguna \u00ed gegn.<\/p>\n<p>J\u00f3hann G. J\u00f3hannsson hefur unni\u00f0 \u00e1rum saman \u00ed leikh\u00fasinu og klikkar aldrei. Hinn aga\u00f0i s\u00f6ngur barnanna segir allt um vandvirkni og metna\u00f0 J\u00f3hanns \u00ed starfi. Og sama ver\u00f0ur sagt um framlag hans \u00ed gryfjunni, \u00fear sem faldir voru snillingar \u00e1 flautu og klar\u00ednett, fagott og horn, trompeta og b\u00e1s\u00fanur og \u00e9g veit ekki meira upp a\u00f0 telja. Au\u00f0vita\u00f0 allir \u00f3missandi og gefandi f\u00f3lk, b\u00e6\u00f0i fyrir okkur \u00ed salnum og \u00e1 svi\u00f0inu.<\/p>\n<p>N\u00e6st \u00e1 eftir b\u00f6rnunum &#8211; sem voru stj\u00f6rnur kv\u00f6ldsins \u2013 langar mig a\u00f0 nefna leikmynd og b\u00faninga. Umger\u00f0in getur skipt sk\u00f6pum um velgengni s\u00fdningar. Vytautas Narbutas hefur vali\u00f0 a\u00f0 b\u00faa Oliver nat\u00faraliska leikmynd, sem endurspeglar umhverfi og t\u00ed\u00f0aranda \u00e1 \u00f6ld Dickens. Hann n\u00fdtir s\u00e9r hringsvi\u00f0i\u00f0 skynsamlega, \u00feannig a\u00f0 skiptingar er sn\u00f6ggar og einfaldar. \u00cd bakgrunni er brug\u00f0i\u00f0 upp margv\u00edslegu myndefni, sem flikkar upp \u00e1 s\u00fdninguna. Leikmyndin og l\u00fdsing L\u00e1rusar Bj\u00f6rnssonar og \u00d3lafs \u00c1g\u00fasts Stef\u00e1nssonar spila skemmtilega saman. Afkimar st\u00f3rborgarinnar, sem h\u00fdsa dreggjar mannl\u00edfsins, \u00fej\u00f3fagengi, h\u00f3rur og misyndismenn, allra handa, virkar eins og spennandi \u00e6vint\u00fdraver\u00f6ld \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 formfasta en daufger\u00f0a umgj\u00f6r\u00f0 betri borgaranna. Svona fegrar s\u00f6ngleikurinn sorann, en sl\u00e6vir bo\u00f0skap h\u00f6fundar \u00ed lei\u00f0inni.<\/p>\n<p>Ekki m\u00e1 \u00e9g gleyma a\u00f0 geta b\u00faninganna hennar Mar\u00edu \u00d3lafsd\u00f3ttur, sem voru aldeilis \u00ed takt vi\u00f0 umger\u00f0ina, b\u00e6\u00f0i \u00ed litum og a\u00f0 ger\u00f0 \u2013 h\u00fan v\u00e9k \u00ed engu fr\u00e1 hef\u00f0bundinni notkun tweed ullarinnar a\u00f0 breskum si\u00f0. Ma\u00f0ur gat ekki sliti\u00f0 augun af smekklegu litavali \u00ed b\u00faningum margra kvennanna, sem voru hver annarri eftirminnilegri, jafnvel \u00ed sm\u00e1hlutverkum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 \u00feri\u00f0ja sem mig langar til a\u00f0 nefna er leikur Eggerts \u00deorleifssonar \u00ed hlutverki hins fr\u00e6ga Fagins. Fagin er sk\u00farkurinn \u00ed verkinu sem notf\u00e6rir s\u00e9r ney\u00f0 muna\u00f0arlausra barna til misyndisverka. Hann gerir \u00feau \u00fat til a\u00f0 r\u00e6na vegfarendur og liggur s\u00ed\u00f0an \u00e1 r\u00e1nsfengnum eins og ormur \u00e1 gulli. (\u00cd rauninni var Fagin ekki pers\u00f3na \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu heldur \u00feekktur ma\u00f0ur samt\u00edma h\u00f6fundi. Upplj\u00f3strun um starfsemi hans \u00ed mi\u00f0borg Lund\u00fana var mikill skandall \u00e1 s\u00ednum t\u00edma).<\/p>\n<p>Eggert hefur um \u00e1rabil veri\u00f0 einn helsti gamanleikari \u00fej\u00f3\u00f0arinnar og n\u00fdtur mikilla vins\u00e6lda sem sl\u00edkur. En Fagin er ekki bara gr\u00ednpers\u00f3na. Hann er margslunginn og fl\u00f3kinn karakter. Dj\u00fapt \u00ed vitund hans b\u00e6rist \u00f3v\u00e6nt mennska, sem hl\u00fdtur a\u00f0 vera \u00f6grandi fyrir h\u00e6fileikar\u00edkan leikara a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0. Eggert tekst me\u00f0 sk\u00f6punarkrafti s\u00ednum a\u00f0 vekja sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 sk\u00farknum, jafnvel a\u00f0d\u00e1un. \u00dea\u00f0 er ekki laust vi\u00f0, a\u00f0 ma\u00f0ur finni til, \u00feegar hann \u00ed \u00f3\u00f0agoti glutrar ni\u00f0ur \u00f6llu \u00fe\u00fdfinu, sem \u00e1tti a\u00f0 ver\u00f0a honum l\u00edfeyrissj\u00f3\u00f0ur \u00ed umkomulausri elli. Eggert hefur mj\u00f6g g\u00f3\u00f0a fys\u00edk, eins og sagt er, sem hann n\u00fdtir til fulls \u00ed \u00e1t\u00f6kum s\u00ednum vi\u00f0 sk\u00farkinn. &#8211; Og svo syngur hann eins og engill! Klezmer s\u00f6ngurinn hlj\u00f3ma\u00f0i sei\u00f0andi og ekta.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru tveir str\u00e1kar, sem skipta me\u00f0 s\u00e9r hlutverki Olivers, \u00feeir Ari \u00d3lafsson og Sigurbergur H\u00e1konarson. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur hef \u00e9g bara s\u00e9\u00f0 annan \u00feeirra leika, Ara \u00d3lafsson, en \u00e9g efast ekki um, a\u00f0 Sigurbergur s\u00e9 l\u00edka fallegur , lj\u00fafur, lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0ur og lagv\u00eds eins og Ari. Ari hefur undurfagra r\u00f6dd, sem \u00e1 augabrag\u00f0i tekst a\u00f0 br\u00e6\u00f0a hvers manns hjarta og heilla konur upp \u00far sk\u00f3num. Alla vega t\u00f3kst honum \u00fea\u00f0 samstundis \u00e1 svi\u00f0inu \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu. \u00de\u00e6r Nans\u00fd, \u00f6\u00f0ru nafni Vigd\u00eds Hrefna P\u00e1lsd\u00f3ttir, og Beta, \u00f6\u00f0ru nafni \u00d3l\u00f6f Jara Skagfj\u00f6r\u00f0, f\u00e9llu fyrir Oliver vi\u00f0 fyrstu kynni og reyndust honum sannir vinir, \u00feegar \u00e1 reyndi. \u00deetta eru vi\u00f0kunnalegar stelpur, syngja og dansa eins og \u00fe\u00e6r hafi aldrei gert anna\u00f0, og m\u00e1 eiginlega segja, a\u00f0 Vigd\u00eds Hrefna hafi slegi\u00f0 \u00ed gegn \u00ed s\u00ednum rau\u00f0a kj\u00f3l, gl\u00e6sileg og sj\u00e1lfs\u00f6rugg. Og \u00fea\u00f0 er varla h\u00e6gt a\u00f0 geta Nans\u00fdar \u00e1n \u00feess a\u00f0 nefna Bill Sikes, \u00e1stmann hennar og banamann. \u00cd b\u00f3kinni er Bill mikill skelfir, hann er hinn h\u00e6ttulegi gl\u00e6pama\u00f0ur, grimmari og \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0ari en sj\u00e1lfur Fagin. M\u00e9r fannst \u00de\u00f3rir S\u00e6mundsson ekki bl\u00e1sa n\u00f3gu miklu l\u00edfi \u00ed t\u00f6ffarann, vera hikandi \u00ed t\u00falkun sinni, ekki n\u00f3gu \u00f3gnvekjandi. M\u00e6tti ekki b\u00e6ta \u00far \u00fev\u00ed?<\/p>\n<p>Ekki m\u00e1 gleyma a\u00f0 geta Hrapps, Tryggva Bj\u00f6rnssonar, sem heilla\u00f0i salinn me\u00f0 fagmannlegri svi\u00f0sframkomu og gl\u00e6silegum s\u00f6ng. Valgeir Hrafn Skagfj\u00f6r\u00f0 leikur til skiptis vi\u00f0 Tryggva, og efast \u00e9g ekki um, a\u00f0 hann s\u00e9 ekki s\u00ed\u00f0ri. B\u00f6rn eru til alls v\u00eds, a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist.<\/p>\n<p>M\u00f6rg sm\u00e6rri hlutverk eru \u00ed verkinu. \u00deau eiga \u00fea\u00f0 \u00f6ll sammerkt a\u00f0 vera mj\u00f6g vel \u00fatf\u00e6r\u00f0 og allrar athygli ver\u00f0. Til d\u00e6mis eru \u00feau Berg\u00fe\u00f3r P\u00e1lsson og \u00de\u00f3runn L\u00e1rusd\u00f3ttir \u00f3gleymanleg sem illmennin Bumble og fr\u00fa Corney. F\u00fallyndi \u00feeirra og kraftmikill s\u00f6ngur syngur enn \u00ed eyrum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru vi\u00f0brig\u00f0i a\u00f0 sj\u00e1 tvo \u00f6ndvegisleikara, \u00feau Arnar J\u00f3nsson og Ragnhei\u00f0i Stein\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttur, \u00ed ster\u00edlum hlutverkum betri borgaranna, sem voru eins og s\u00f3tthreinsu\u00f0 af lei\u00f0indum. Jafnvel Dickens sj\u00e1lfum var um megn a\u00f0 gl\u00e6\u00f0a \u00feessar peres\u00f3nur l\u00edfi og lit. Enn eitt pari\u00f0 kemur \u00ed hugann, \u00feau Fri\u00f0rik Fri\u00f0riksson, \u00fatfararstj\u00f3ri og Esther Tal\u00eda Casey (hefur greinilega veri\u00f0 helgu\u00f0 leiklistinni fr\u00e1 upphafi) kona hans dr\u00f3gu upp sk\u00fdra mynd af millist\u00e9ttarf\u00f3lki, sem er miskunnarlausara gagnvart sm\u00e6lingjunum en allir a\u00f0rir. \u00c1lfr\u00fan \u00d6rn\u00f3lfsd\u00f3ttir var s\u00e6tari en s\u00e6tasti sykurmoli sem d\u00f3ttirin \u00ed h\u00fasinu og \u00e1stkona N\u00f3a, \u00cdvars Helgasonar, l\u00e6rlingsins. \u00deeirra saga er miklu \u00fdtarlegri i \u00ed b\u00f3kinni og hef\u00f0i alveg m\u00e1tt segjast \u00f6ll. \u00deessi tv\u00f6 hef\u00f0u vissulega r\u00e1\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Baldur Trausti var sl\u00e9ttur og felldur sem Grimwig l\u00e6knir. Hann haf\u00f0i ekki \u00far miklu a\u00f0 mo\u00f0a, en ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem hann gat. Sama er a\u00f0 segja um kr\u00e1areigandann, Val Frey Einarsson.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er bara eftir a\u00f0 geta tveggja kvenna, sem f\u00f3ru me\u00f0 l\u00edtil hlutverk en ger\u00f0u \u00feeim \u00f3gleymanleg skil. \u00deetta eru \u00fe\u00e6r Edda Arnlj\u00f3tsd\u00f3ttir og Lilja Gu\u00f0r\u00fan \u00deorvaldsd\u00f3ttir. Miki\u00f0 lifandis \u00f3sk\u00f6p ger\u00f0u \u00fe\u00e6r miki\u00f0 \u00far litlu. Hvort sem Edda birtist sem hortug matr\u00e1\u00f0skona e\u00f0a blindfull m\u00f3\u00f0ir \u00e1 p\u00f6bbar\u00f6lti, gaf h\u00fan sig alla \u00ed hlutverki\u00f0. Og Lilja Gu\u00f0r\u00fan sem Sally gamla me\u00f0 leyndarm\u00e1l Olivers vi\u00f0 brj\u00f3st s\u00e9r! Ekki var h\u00fan s\u00ed\u00f0ri. L\u00edtil hlutverk, en st\u00f3r \u00ed t\u00falkun Eddu og Lilju Gu\u00f0r\u00fanar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er til marks um fr\u00e1b\u00e6ra \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00de\u00f3rarins Eldj\u00e1rn, a\u00f0 h\u00fan virtist mj\u00f6g t\u00f6m \u00e1 tungu ungvi\u00f0sins, st\u00f3\u00f0 hvergi \u00ed barnungu f\u00f3lkinu. Hvert or\u00f0 heyr\u00f0ist, sk\u00fdrt og kl\u00e1rt, fram \u00ed salinn. M\u00e6ttu margir eldri leikarar taka s\u00e9r \u00fea\u00f0 til fyrirmyndar \u2013 e\u00f0a var \u00feetta kannski hlj\u00f3\u00f0stj\u00f3rn \u00feeirra \u00cdsleifs Birgissonar og T\u00f3masar Freys a\u00f0 \u00feakka?<\/p>\n<p>\u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 s\u00fa sem h\u00e9lt \u00ed alla \u00fer\u00e6\u00f0i, haf\u00f0i augun alls sta\u00f0ar, g\u00e6tti \u00feess a\u00f0 svi\u00f0i\u00f0 \u00ed\u00f0a\u00f0i af l\u00edfi fr\u00e1 upphafi til enda, a\u00f0 hvergi v\u00e6ri dau\u00f0ur punktur, \u00e1minnti f\u00f3lk um lifa me\u00f0 verkinu og einbeita s\u00e9r, heiti Selma Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir. Endanlega ber h\u00fan \u00e1byrg\u00f0ina, sem byggist \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 allir leggi sig fram og hl\u00fd\u00f0i. \u00cd okkar agalausa samf\u00e9lagi, \u00fear sem allt er \u00e1 hverfanda hveli og enginn aktar hver annan, er \u00feessi s\u00fdning l\u00e9ttir og huggun, skemmtileg af\u00fereying og ekki of \u00ed\u00feyngjandi fyrir andann.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00fd\u00f0ing: \u00de\u00f3rarinn Eldj\u00e1rn<br \/>\n\u00de\u00fd\u00f0ing s\u00f6ngtexta: J\u00f3hann G. J\u00f3hannsson<br \/>\nLeikstj\u00f3rn: Selma Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlistarstj\u00f3rn: J\u00f3hann G. J\u00f3hannsson<br \/>\nDansh\u00f6fundur: Alette Collins<br \/>\nLeikmynd: Vytautas Narbutas<br \/>\nB\u00faningar: Mar\u00eda \u00d3lafsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00fdsing: L\u00e1rus Bj\u00f6rnsson og \u00d3lafur \u00c1g\u00fast Stef\u00e1nsson<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0stj\u00f3rn: \u00cdsleifur Birgisson og T\u00f3mas Freyr Hjaltason<br \/>\nS\u00fdningarstj\u00f3ri: Krist\u00edn Hauksd\u00f3tti<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-156","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/156","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=156"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/156\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":599,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/156\/revisions\/599"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=156"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=156"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=156"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}