{"id":158,"date":"2009-12-07T00:00:00","date_gmt":"2009-12-07T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/12\/07\/mariuhaenan-leikhus-fyrir-leikskolann\/"},"modified":"2020-09-23T09:20:01","modified_gmt":"2020-09-23T09:20:01","slug":"mariuhaenan-leikhus-fyrir-leikskolann","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/12\/07\/mariuhaenan-leikhus-fyrir-leikskolann\/","title":{"rendered":"Mar\u00eduh\u00e6nan: Leikh\u00fas fyrir leiksk\u00f3lann"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"166\" class=\"alignnone size-full wp-image-66\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/maria.jpg\"><br>\nMar\u00eduh\u00e6nan<\/center><p><\/p>\n<p>S\u00fa var t\u00ed\u00f0 a\u00f0 \u00e9g tromma\u00f0i me\u00f0 alla m\u00edna krakka \u00ed leikh\u00fas og \u00e1 t\u00f3nleika og \u00e1 balletta og gaf \u00feeim ordrur um a\u00f0 sitja grafkyrr s\u00fdningar \u00e1 enda &#8211; \u00fea\u00f0 var sko engin miskunn (hj\u00e1 Magn\u00fasi) \u00fe\u00e1. \u00deetta var \u00fe\u00e1ttur \u00ed uppeldinu, \u00feau \u00e1ttu a\u00f0 l\u00e6ra \u00e1 leikh\u00fas fyrir l\u00edfi\u00f0.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Eitt sumar bj\u00f3 \u00e9g \u00ed Edinborg. \u00c9g var b\u00fain a\u00f0 ver\u00f0a m\u00e9r \u00fati um mi\u00f0a \u00fat \u00e1 bla\u00f0amannapassa \u00e1 leiks\u00fdningar, t\u00f3nleika, kvikmyndas\u00fdningar og upp\u00e1komur allra handa \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni miklu, sem haldin er \u00fear s\u00ed\u00f0la sumars \u00e1r hvert. Enn skyldu b\u00f6rnin nj\u00f3ta me\u00f0 m\u00e9r \u2013 enda haf\u00f0i \u00e9g engan til a\u00f0 passa \u2013 fa\u00f0ir \u00feeirra var v\u00ed\u00f0s fjarri. \u00c9g man a\u00f0 \u00feetta \u00fe\u00f3tti n\u00fa ekkert til fyrirmyndar \u00fearna \u00ed Edinborg \u2013 b\u00f6rnin voru litin hornauga, enda yfirleitt einu gestirnir undir l\u00f6galdri og m\u00e1ttu ekki l\u00e1ta \u00e1 s\u00e9r kr\u00e6la. \u201cChildren should be seen &#8211; but not heard\u201d er partur af \u00e6vafornri breskri l\u00edfsspeki, sem l\u00e6r\u00f0i sk\u00f3linn mi\u00f0la\u00f0i okkur \u00ed enskukennslu for\u00f0um daga. S\u00fa regla var greinilega enn \u00ed gildi \u00e1 \u00e1ttunda \u00e1ratugnum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er af sem \u00e1\u00f0ur var, n\u00fa eru b\u00f6rnin dregin \u00ed leikh\u00fas, um \u00fea\u00f0 leyti sem \u00feau h\u00e6tta \u00e1 brj\u00f3sti, \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 vekja me\u00f0 \u00feeim \u00e1huga e\u00f0a janvel l\u00f6ngun til a\u00f0 ver\u00f0a partur af \u00feessari t\u00f6fraver\u00f6ld. \u00dev\u00ed ekki? Fyrir m\u00f6rgum er leikh\u00fasi\u00f0 eins konar fl\u00f3ttalei\u00f0 fr\u00e1 \u00edsk\u00f6ldum raunveruleikanum \u2013 fl\u00f3ttalei\u00f0, sem vir\u00f0ist einhvern veginn meira freistandi n\u00fana en nokkru sinni fyrr.<\/p>\n<p>Satt a\u00f0 segja lei\u00f0 m\u00e9r eins og h\u00e1lfger\u00f0ri bo\u00f0flennu \u00e1 barnas\u00fdningu fr\u00e1 Noregi \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu \u00e1 laugardag. \u00c9g var alein me\u00f0 sj\u00e1lfri m\u00e9r, haf\u00f0i engin b\u00f6rn til a\u00f0 halda \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 e\u00f0a hjala vi\u00f0, \u00feegar \u00f3kyrr\u00f0 f\u00e6r\u00f0ist \u00ed litla kroppa.<\/p>\n<p>\u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 m\u00e9r fannst jafnvel meira spennandi a\u00f0 fylgjast me\u00f0 leikh\u00fasgestum &#8211; metna\u00f0arfullum foreldrum og afkv\u00e6mum \u00feeirra \u00e1 \u00fdmsum aldri &#8211; en \u00fev\u00ed sem fram f\u00f3r \u00e1 svi\u00f0inu sj\u00e1lfu. Bara \u00fea\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a andlitin og hreyfingar \u00ed r\u00f6kkvu\u00f0um salnum, d\u00e1st a\u00f0 v\u00e6ntum\u00feykjunni sem skein \u00fat \u00far brosandi augum, samheldni hj\u00f3naleysa, \u00f3\u00feekkt barna og \u00feolinm\u00e6\u00f0i a\u00f0standenda, sem snarminnka\u00f0i eftir \u00fev\u00ed sem lei\u00f0 \u00e1 s\u00fdninguna. \u00cd salnum f\u00f3r fram spennandi leikverk, spuni vi\u00f0 \u00f3v\u00e6ntar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n<p>Eitt barnanna &#8211; sem var n\u00fa varla meira en fimm m\u00e1na\u00f0a \u2013 var ekki fyrr b\u00fai\u00f0 a\u00f0 koma s\u00e9r fyrir \u00ed fangi m\u00f3\u00f0ur sinnar og lj\u00f3sin h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 sl\u00f6kkt, \u00feegar \u00fea\u00f0 leysti vind og upp gaus \u00feessi l\u00edka yndislega barnslega k\u00fakalykt (sem er eiginlega alls ekki vond). M\u00f3\u00f0irin \u00e1tti \u00f3h\u00e6gt um vik og gat sig hvergi hr\u00e6rt, fyrr en s\u00fdningu lauk fj\u00f6rut\u00edu og fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar. H\u00fan s\u00e1 enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 bi\u00f0jast afs\u00f6kunar, enda \u00fev\u00ed skyldi h\u00fan gera \u00fea\u00f0?<\/p>\n<p>Einn l\u00edtill gutti \u00e1tti erfitt me\u00f0 a\u00f0 sitja kyrr og vildi helst vafra um salinn, upp og ni\u00f0ur stiga e\u00f0a jafnvel upp \u00e1 svi\u00f0. Pabbinn reyndi a\u00f0 vera kurteis \u00ed upphafi og tala drenginn til \u2013 \u00ed h\u00e1lfum hlj\u00f3\u00f0um \u00fe\u00f3 &#8211; en var farinn a\u00f0 kl\u00edpa hann fast og lengi, \u00feegar drengurinn l\u00e9t s\u00e9r ekki segjast. M\u00f3\u00f0irin sneri s\u00e9r bara undan og l\u00e9t sem henni k\u00e6mu ekki vi\u00f0 \u00feessir ofvirku fe\u00f0gar.<\/p>\n<p>Sumir krakkarnir s\u00e1tu stilltir og pr\u00fa\u00f0ir allan s\u00fdningart\u00edmann og fylgdust af athygli me\u00f0 \u00fev\u00ed sem fram f\u00f3r \u00e1 svi\u00f0inu. S\u00fa athygli segir au\u00f0vita\u00f0 mest um gildi s\u00fdningarinnar. \u00deetta voru b\u00f6rn, sem komin eru til vits og \u00e1ra, h\u00e6tt \u00e1 bleyjum, \u00f6gu\u00f0 \u00ed leiksk\u00f3lanum, v\u00f6n \u00fev\u00ed a\u00f0 sitja \u00e1 rassinum og hlusta \u00e1 hi\u00f0 tala\u00f0a or\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00f3neitanlega vandi a\u00f0 skrifa um leikverk, sem er \u00e6tla\u00f0 b\u00f6rnum fr\u00e1 n\u00edu m\u00e1na\u00f0a aldri. \u00dea\u00f0 liggur \u00ed hlutarins e\u00f0li, a\u00f0 \u00fear eru ekki notu\u00f0 m\u00f6rg or\u00f0. Verki\u00f0 sn\u00fdst um \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja litla einfalda s\u00f6gu og halda athygli ungra \u00e1horfenda. \u00dea\u00f0 er gert me\u00f0 st\u00f3rum hreyfingum, sterkum lj\u00f3sum, fallegum litum og og talandi t\u00f3num.<\/p>\n<p>Rau\u00f0h\u00e6r\u00f0ur \u00e1lfur \u00ed gr\u00e6num kj\u00f3l fangar strax athygli \u00e1horfenda. Hann veifar gr\u00f6nnum handleggjum, st\u00edgur ballettf\u00f3tum l\u00e9tt til jar\u00f0ar og talar til barnanna me\u00f0 st\u00f3rum spurulum augum. Svo kemur mar\u00eduh\u00e6nan til s\u00f6gunnar. H\u00fan er me\u00f0 rau\u00f0a skel og hreyfir sig h\u00e6gt. \u00c1lfurinn og mar\u00eduh\u00e6nan eru villt \u00ed sk\u00f3ginum. Risasat\u00f3rir blikkandi sveppir skj\u00f3ta \u00feeim skelk \u00ed bringu, a\u00f0 ekki s\u00e9 tala\u00f0 um, \u00feegar s\u00f3lin og tungli\u00f0 fara a\u00f0 hoppa og skoppa allt um kring. En sagan endar vel og allir eru gla\u00f0ir. Og gl\u00f6\u00f0ust eru b\u00f6rnin \u00ed salnum, \u00feegar \u00feeim er bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 svi\u00f0 til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt og halda \u00e1fram a\u00f0 b\u00faa til leikrit.<\/p>\n<p>Inger Cecilie Bertr\u00e1n de Lis er h\u00f6fundur verksins um Mar\u00eduh\u00e6nuna og er sj\u00e1lf \u00ed a\u00f0alhlutverki. Manni s\u00fdnist af fallegum hreyfingum Inger, a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 mennta\u00f0ur dansari, og \u00fea\u00f0 hef\u00f0i svo sannarlega veri\u00f0 gaman a\u00f0 sj\u00e1 hana spreyta sig \u00e1 erfi\u00f0ara verkefni. H\u00fan er lj\u00faf og g\u00f3\u00f0 og \u00e1 gott me\u00f0 a\u00f0 halda athygli barna. Eflaust er \u00fea\u00f0 henni hjartans m\u00e1l a\u00f0 n\u00e1 til yngstu borgaranna og lei\u00f0a \u00feau inn \u00e1 \u00f3kanna\u00f0ar brautir, gera \u00fe\u00e1 a\u00f0 betri manneskjum. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 einhvern veginn liggja \u00ed augum uppi. \u00deetta er hugsj\u00f3nastarf og eflaust oft van\u00feakkl\u00e1tt.<br>\nTinna Gr\u00e9tarsd\u00f3ttir var \u00ed hlutverki mar\u00eduh\u00e6nunnar. Mar\u00eduh\u00e6na gefur ekki miki\u00f0 svigr\u00fam til a\u00f0 s\u00fdna h\u00e6fileika og \u00feess vegna er erfitt a\u00f0 d\u00e6ma framlag Tinnu. En vonandi gefst t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess seinna.<\/p>\n<p>Umgj\u00f6r\u00f0 s\u00fdningarinnar er l\u00e1tlaus og einf\u00f6ld, sem vera ber me\u00f0 farands\u00fdningar. T\u00f3nlistin metna\u00f0arfull og miki\u00f0 \u00ed hana lagt. H\u00fan kallar \u00e1 athygli og mann langar til a\u00f0 f\u00e1 meira a\u00f0 heyra.<\/p>\n<p>Hugmyndin a\u00f0 \u00feessu stutta verki fyrir b\u00f6rn er g\u00f3\u00f0, en kannski fulld\u00fdru ver\u00f0i keypt til a\u00f0 flytja milli landa. Af hverju gerum vi\u00f0 ekki \u00feetta sj\u00e1lf? Vi\u00f0 eigum fj\u00f6ldann allan af atvinnulausum d\u00f6nsurum og leikh\u00fasf\u00f3lki, sem er f\u00fast til a\u00f0 f\u00f3rna s\u00e9r fyrir \u00fe\u00e1 sem eiga a\u00f0 erfa landi\u00f0 (obs! \u2013 skuldirnar, er \u00fea\u00f0 ekki ve\u00f0sett upp \u00ed topp?) \u2013 litlu b\u00f6rnin \u2013 opna fyrir \u00feeim n\u00fdja og heillandi ver\u00f6ld. Svona s\u00fdningar \u00e6ttu a\u00f0 vera fastir li\u00f0ir \u00ed starfsemi leiksk\u00f3lanna og dagheimilinna, sem og \u00ed fyrstu bekkjum grunnsk\u00f3la. \u00dea\u00f0 er a\u00f0eins l\u00edtill h\u00f3pur metna\u00f0arfullra foreldra, sem l\u00e6tur \u00fea\u00f0 eftir s\u00e9r a\u00f0 kaupa sig inn \u00e1 s\u00fdningar fyrir ungab\u00f6rn. En b\u00f6rnin eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera me\u00f0, f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feess besta sem \u00ed bo\u00f0i er \u2013 \u00f6ll b\u00f6rn, ekki bara sum.<\/p>\n<p>Fj\u00f6rut\u00edu og fimm m\u00edn\u00fatur eru langur t\u00edmi fyrir l\u00edtil b\u00f6rn. Margt getur komi\u00f0 upp \u00e1 \u00e1 ekki skemmri t\u00edma. \u00dev\u00ed fannst m\u00e9r \u00ed rauninni athyglisver\u00f0ast vi\u00f0 \u00feessa \u00f3venjulegu leiks\u00fdningu, hva\u00f0 b\u00f6rnin, \u00e1horfendur &#8211; \u00fer\u00e1tt fyrir allt &#8211; s\u00fdndu mikla h\u00e6fileika til a\u00f0 einbeita s\u00e9r, hlusta, taka undir og svara af skynsemi og r\u00f6kv\u00edsi. Enginn f\u00f3r a\u00f0 gr\u00e1ta, enginn f\u00f3r a\u00f0 bla\u00f0ra e\u00f0a \u00f6skra. \u00dea\u00f0 r\u00edkti \u00feokkaleg \u00fe\u00f6gn \u00ed salnum, sem lofar g\u00f3\u00f0u um framt\u00ed\u00f0ina. Hven\u00e6r byrjar annars \u00feetta alr\u00e6mda agaleysi \u00cdslendinga? Byrjar \u00fea\u00f0 \u00ed sk\u00f3lanum?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0: Mar\u00eduh\u00e6nan, dansleikh\u00fas fr\u00e1 Noregi fyrir b\u00f6rn fr\u00e1 n\u00edu m\u00e1na\u00f0a aldri<\/p>\n<p>Hugmynd, leikmynd og hreyfingar: Inger Cecilie Bertr\u00e1n de Lis<br \/>\nDansarar: Inger Cecilie Bertr\u00e1n de Lis og Tinna Gr\u00e9tarsd\u00f3ttir<br \/>\nT\u00f3nlist: Karoline Rising N\u00e6ss<br \/>\nB\u00faningar: Hilde Elisabeth Brunsted<br \/>\nL\u00fdsing: Elisabeth Kjeldahl Nilsson og Gunnv\u00e1 Meinseth<br \/>\nT\u00f3nlistarflutningur: Karoline Rising N\u00e6ss, Andreas Bratlie, Tale M. Mydske<br \/>\nR\u00e1\u00f0gj\u00f6f: Robert Skj\u00e6rstad<br \/>\nFramlei\u00f0andi: Inger Cecilie Bertr\u00e1n de Lis<br \/>\nA\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 framlei\u00f0slu: Marianne Alber<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-158","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/158","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=158"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/158\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":601,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/158\/revisions\/601"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=158"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=158"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=158"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}