{"id":160,"date":"2009-10-31T00:00:00","date_gmt":"2009-10-31T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/10\/31\/stjornuleikur-sem-endar-med-flugeldasyningu\/"},"modified":"2020-09-23T09:20:33","modified_gmt":"2020-09-23T09:20:33","slug":"stjornuleikur-sem-endar-med-flugeldasyningu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/10\/31\/stjornuleikur-sem-endar-med-flugeldasyningu\/","title":{"rendered":"Stj\u00f6rnuleikur sem endar me\u00f0 flugeldas\u00fdningu"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"164\" class=\"alignnone size-full wp-image-77\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/stjornur.jpg\"><br>\nFj\u00f6lskyldan \u2013 \u00e1g\u00fast \u00ed Osage s\u00fdslu<\/center><p><\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g geng pr\u00fa\u00f0b\u00fain inn \u00ed leikh\u00fasi\u00f0 \u00e1 frums\u00fdningarkv\u00f6ldi, er m\u00e9r oft svipa\u00f0 innan brj\u00f3sts og \u00feegar \u00e9g legg upp \u00ed langa flugfer\u00f0. \u00dea\u00f0 fer fi\u00f0ringur um magann um lei\u00f0 og flugv\u00e9lin hefur sig \u00e1 loft og sk\u00fdst upp \u00ed bl\u00e1an himininn. Framundan eru \u00f3vissu\u00e6vint\u00fdri.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Flugstj\u00f3rinn \u2013 a\u00f0 \u00feessu sinni Hilmir Sn\u00e6r Gu\u00f0nason &#8211; haf\u00f0i me\u00f0 s\u00ednu fallega brosi og me\u00f0f\u00e6ddu hrifn\u00e6mi vaki\u00f0 v\u00e6ntingar me\u00f0al far\u00feega, og \u00fea\u00f0 l\u00e1 einhvern veginn \u00ed loftinu, a\u00f0 allir hl\u00f6kku\u00f0u til fer\u00f0arinnar.<\/p>\n<p>\u00deetta var langt flug, og \u00e9g st\u00f3\u00f0 mig a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 mi\u00f0ri lei\u00f0 a\u00f0 vera farin a\u00f0 l\u00edta \u00e1 klukkuna, svona eins og ma\u00f0ur gerir, \u00feegar flugfreyjurnar eru l\u00f6ngu h\u00e6ttar a\u00f0 bera fram mat og v\u00edn, or\u00f0inn \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0ur a\u00f0 komast \u00e1 \u00e1fangasta\u00f0.<\/p>\n<p>En svo ger\u00f0ist eitthva\u00f0 \u00f3v\u00e6nt \u00fearna framm\u00ed. \u00dea\u00f0 var eins og flugv\u00e9lin sneri af lei\u00f0, f\u00e6ri af braut. H\u00fan n\u00f6tra\u00f0i og sk\u00f3kst eins og lauf \u00ed vindi. Spennan hr\u00edsla\u00f0ist aftur \u00ed myrkva\u00f0an far\u00feegasalinn og enginn gat seti\u00f0 kyrr \u00ed s\u00e6ti s\u00ednu lengur. \u00deegar flugv\u00e9lin loks lenti heilu og h\u00f6ldnu, st\u00f3\u00f0u allir upp og f\u00f6gnu\u00f0u fars\u00e6lum fer\u00f0alokum. Far\u00feegarnir gr\u00e9tu og hl\u00f3gu \u00ed senn.<\/p>\n<p>Leikriti\u00f0 Fj\u00f6lskyldan, eftir Bandar\u00edkjamanninn Tracy Letts, hefur noti\u00f0 f\u00e1d\u00e6ma vins\u00e6lda \u00ed heimalandinu. N\u00fa er bara a\u00f0 vita, hvort \u00cdslendingar kunni a\u00f0 meta \u00f3v\u00e6gna sj\u00e1lfsgagnr\u00fdni h\u00f6fundar og n\u00e6rg\u00f6ngula bers\u00f6gli &#8211; hvort \u00feeir \u00feoli a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 sj\u00e1lfa sig \u00ed spegli, \u00fear sem ekkert er dregi\u00f0 undan.<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst ekki sanngjarnt a\u00f0 bera Letts saman vi\u00f0 st\u00f3rsk\u00e1ld \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Tsjekov e\u00f0a jafnvel Tennessee Williams. Styrkleiki hans liggur ekki endilega \u00ed sk\u00e1ldlegri d\u00fdpt e\u00f0a gagnr\u00fdninni s\u00f6gusko\u00f0un, heldur \u00ed \u00fev\u00ed hvernig hann beitir m\u00e1linu og h\u00f6f\u00f0ar til almennings b\u00e6\u00f0i \u00ed hugsun og atferli. Textinn rennur fram \u00e1reynslulaust, l\u00e9ttur og leikandi, eins og sykur \u00e1 tungu. Stundum er hann svo flatur, a\u00f0 hann hlj\u00f3mar eins og margtuggin klisja, yfirbor\u00f0slegur, jafnvel \u00fereytandi. En kannski er \u00fea\u00f0 einmitt galdurinn. H\u00f6fundur breg\u00f0ur upp spegli og s\u00fdnir okkur sannleikann. Raunveruleikinn \u2013 l\u00edfi\u00f0 sj\u00e1lft \u2013 getur veri\u00f0 svo kaldrifja\u00f0, svo grimmt og miskunnarlaust, a\u00f0 ma\u00f0ur heldur fyrir eyru og augu, vill ekki hlusta, vill ekki sj\u00e1. Flestir afneita sannleikanum og kj\u00f3sa heldur a\u00f0 lifa \u00ed blekkingunni.<\/p>\n<p>Letts er f\u00e6ddur \u00ed Tulsa, Oklahoma, einhvers sta\u00f0ar \u00e1 s\u00f3lb\u00f6ku\u00f0um sl\u00e9ttum \u00ed Mi\u00f0vestrinu vi\u00f0 landam\u00e6ri Su\u00f0ursins. Og einhvern veginn hef \u00e9g \u00e1 tilfinningunni, a\u00f0 verk hans beri keim af \u00feessu \u00fat\u00farborulega umhverfi. E\u00f0a eins og hann segir sj\u00e1lfur \u00ed vi\u00f0tali:<\/p>\n<div>\u201eHugsa\u00f0u \u00fe\u00e9r kvikmyndina The Last Picture Show, settu hana \u00ed lit, taktu \u00fat karakterana og ger\u00f0u \u00fe\u00e1 alla a\u00f0 rep\u00fablik\u00f6num og \u00fe\u00e1 f\u00e6r\u00f0u nokku\u00f0 sk\u00fdra mynd af b\u00e6num. Okkur Shawn (br\u00f3\u00f0ur hans) fannst vi\u00f0 hvorugur eiga heima \u00fearna.\u201d<\/div>\n<p>\u00dea\u00f0 fer ekki \u00e1 milli m\u00e1la, a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem fram fer \u00e1 svi\u00f0inu er s\u00e9rdeilis amr\u00edskt. Sl\u00e9tt og fellt \u00e1 yfirbor\u00f0inu, en undir ni\u00f0ri er ekki allt sem s\u00fdnist. \u00deetta er ekki Evr\u00f3pa &#8211; \u00feetta er ekki Tsjekov. Dregin er upp mynd af samf\u00e9lagi, \u00fear sem fjarl\u00e6g\u00f0in st\u00edar f\u00f3lki \u00ed sundur, tengslin rofna, samskiptin l\u00fata l\u00f6gm\u00e1lum hr\u00e6sninnar og kynsl\u00f3\u00f0irnar n\u00e1 ekki talsambandi. \u00dearna er engin saga. \u00deetta er allt \u00ed n\u00fainu.<\/p>\n<p>Frumbyggjarnir koma a\u00f0 v\u00edsu vi\u00f0 s\u00f6gu, \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 \u00f3s\u00f6g\u00f0 og undir yfirbor\u00f0inu. Johnna, sem sogast inn \u00ed fj\u00f6lskylduna alveg \u00f3v\u00e6nt, l\u00e6tur l\u00edti\u00f0 yfir s\u00e9r; hlutverk hennar er kannski mikilv\u00e6gara en \u00f6ll hin. \u00dea\u00f0 er h\u00fan, st\u00falka af \u00e6ttb\u00e1lki Indj\u00e1na &#8211; sem voru ofs\u00f3ttir, hraktir og sm\u00e1\u00f0ir \u00fat \u00e1 ystu n\u00f6f \u00fatr\u00fdmingar &#8211; sem endanlega bendir \u00e1 hugsanlegt svar vi\u00f0 \u00f3hamingju samf\u00e9lagsins. Vi\u00f0 brj\u00f3st s\u00e9r geymir h\u00fan sinn eigin naflastreng, sem \u00ed m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i tengdi d\u00f3ttur vi\u00f0 l\u00edfgjafa sinn. Naflastrengurinn er sagan. Ef hann slitnar, rofna tengsl kynsl\u00f3\u00f0anna. Vi\u00f0 sitjum uppi \u00ed t\u00f3mar\u00fami, r\u00f3tlaus og \u00e1n tilgangs.F\u00f3lk sem svona er \u00e1statt fyrir leitar a\u00f0 lokum \u00e1 n\u00e1\u00f0ir \u00f3minnisins \u2013 \u00ed lyfjaglasi\u00f0 e\u00f0a fl\u00f6skuna \u2013 til a\u00f0 sl\u00e6va s\u00e1rsaukann. A\u00f0 lokum er \u00fea\u00f0 Indj\u00e1nast\u00falkan sem situr eftir \u00f3h\u00f6ggu\u00f0, \u00feegar fj\u00f6lskyldan er farin \u00e1 tvist og bast og hefur n\u00e1nast tort\u00edmt sj\u00e1flri s\u00e9r.<\/p>\n<p>M\u00e9r leist vel \u00e1 h\u00fasi\u00f0 sem birtist \u00e1 svi\u00f0inu. L\u00fdsingin gaf \u00fev\u00ed notalegan bl\u00e6. \u00deetta gat veri\u00f0 h\u00fas me\u00f0 s\u00e1l. M\u00e9r fannst a\u00f0 \u00ed \u00feessu h\u00fasi hlyti a\u00f0 b\u00faa hugsandi f\u00f3lk. B\u00e6kur \u00fe\u00f6ktu alla veggi, lampinn yfir s\u00f3fanum haf\u00f0i a\u00f0dr\u00e1ttarafl og eldh\u00fasi\u00f0 var \u00fe\u00e6gilega druslulegt. Su\u00f0urr\u00edkjat\u00f3nninn \u00ed t\u00f3nlist KK og f\u00e9laga vakti upp heim\u00fer\u00e1 til li\u00f0ins t\u00edma. \u00der\u00fagandi mollan var stundum gefin \u00ed skyn me\u00f0 or\u00f0um og l\u00e1tbrag\u00f0i leikaranna, en gleymdist \u00feess \u00e1 milli. \u00dea\u00f0 var a\u00f0 v\u00edsu st\u00edlbrot, sem m\u00e1 lagf\u00e6ra. M\u00e9r leist l\u00edka vel \u00e1 manninn \u00ed h\u00fasinu og hlakka\u00f0i til a\u00f0 kynnast honum n\u00e1nar. &#8211; manni sem las b\u00e6kur og orti lj\u00f3\u00f0. En \u00fe\u00f3tt hann hyrfi sj\u00f3num okkar strax \u00ed upphafi, h\u00e9lt hann samt \u00e1fram a\u00f0 vera a\u00f0alpers\u00f3nan \u00ed s\u00f6gunni.<\/p>\n<p>Og hva\u00f0 segir ma\u00f0ur svo, \u00feegar upp er sta\u00f0i\u00f0? \u00c9g vi\u00f0urkenni, a\u00f0 um t\u00edma var \u00e9g or\u00f0in b\u00fdsna \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0. M\u00e9r fannst textinn langdreginn og l\u00e1gk\u00farulegur \u00e1 k\u00f6flum, jafnvel v\u00e6minn og vemmilegur. M\u00e9r fannst, a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i m\u00e1tt stytta verki\u00f0 og sl\u00edpa textann til a\u00f0 halda spennunni. S\u00e9rstaklega trufla\u00f0i \u00feetta mig \u00ed \u00f6\u00f0rum \u00fe\u00e6tti. Samt ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 segja, a\u00f0 m\u00e1lt\u00ed\u00f0in, erfidrykkjan, b\u00e6tti \u00fea\u00f0 allt upp \u2013 h\u00fan var \u201et\u00e6r snilld\u201d \u00ed innihaldslausu or\u00f0agj\u00e1lfri, sem engan enda \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 taka.<\/p>\n<p>\u00cd seinasta \u00fe\u00e6ttinum n\u00e1\u00f0u leikararnir s\u00e9r aftur \u00e1 strik og s\u00fdningin enda\u00f0i \u00ed stj\u00f6rnuleik, hverjum \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum. \u00deetta minnti \u00e1 flugeldas\u00fdningu, \u00fear sem flugi\u00f0 magnast me\u00f0 hverri sprengju og endar \u00ed stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e9 ekki betur en a\u00f0 Hilmir Sn\u00e6r s\u00e9 kominn til a\u00f0 vera \u00ed hinni f\u00e1t\u00e6klegu st\u00e9tt leikstj\u00f3ra \u00e1 \u00cdslandi. (L\u00e1i honum hver sem er a\u00f0 vera or\u00f0inn lei\u00f0ur \u00e1 a\u00f0 leika breimandi elskhuga til eil\u00edf\u00f0arn\u00f3ns.) \u00dea\u00f0 er, eins og hann segir sj\u00e1lfur, miki\u00f0 p\u00fasluspil a\u00f0 n\u00e1 \u00feessu \u00f6llu saman, og honum ferst \u00fea\u00f0 bara b\u00e6rilega. S\u00fdningin hefur e\u00f0lilegt fl\u00e6\u00f0i, atri\u00f0in skarast l\u00e9ttilega og \u00e1reynslulaust. Margt f\u00f3lk \u00ed litlu h\u00fasi, en enginn \u00fev\u00e6list hver fyrir \u00f6\u00f0rum. Enda hefur hann \u00e1 a\u00f0 skipa miklu mannvali og m\u00f6rgum stj\u00f6rnum. \u201eLeikaraleikrit\u201d er kannski r\u00e9tta or\u00f0i\u00f0, eins og hann nefndi \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur. E\u00f0a kannski stj\u00f6rnustr\u00ed\u00f0?<\/p>\n<p>Konur hafa algerlega yfirh\u00f6ndina \u00ed \u00feessu verki, enda er \u00fearna spila\u00f0 \u00e1 strengi tilfinninga, sem tilheyra \u00feeirra ver\u00f6ld. Og \u00fe\u00f3 a\u00f0 kallarnir taki \u00f6rl\u00f6gum s\u00ednum af karlmennsku og l\u00edtill\u00e6ti, spinna \u00feeir allir vel \u00far misst\u00f3rum hlutverkum. Nefni \u00e9g \u00fe\u00f3 s\u00e9rstaklega The\u00f3d\u00f3r J\u00fal\u00edusson, sem er ekta \u00ed hlutverki hins aumkunarver\u00f0a \u00e1tvagls, og R\u00fanar Frey G\u00edslason, sem er \u00f3hugnanlega eftirminnilegur \u00ed hlutverki \u00f3merkilegs flagara.<\/p>\n<p>Sigr\u00fan Edda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir var \u00f3tr\u00falega flott \u00ed loka\u00fe\u00e6ttinum. H\u00fan slaga\u00f0i h\u00e1tt upp \u00ed Margr\u00e9ti Helgu, sem var \u00fe\u00f3 \u00f3neitanlega stjarna kv\u00f6ldsins. \u00c9g hef ekki s\u00e9\u00f0 miki\u00f0 til Margr\u00e9tar Helgu \u00e1 seinni \u00e1rum, en h\u00fan hefur greinilega vaxi\u00f0 af l\u00edfsreynslu og listr\u00e6num sk\u00f6punarkraft me\u00f0 \u00e1runum. Fr\u00e1 \u00fev\u00ed h\u00fan st\u00f3\u00f0 upp \u00far r\u00faminu \u00e1 efri h\u00e6\u00f0 h\u00fassins \u00ed upphafi leiks h\u00e9lt h\u00fan athyglinni \u00f3skiptri og var \u00f3hugnalega tr\u00faver\u00f0ug \u00ed v\u00edmunni og \u00e6\u00f0inu sem geisa\u00f0i \u00ed l\u00edkama hennar.<\/p>\n<p>Raddstyrkur Margr\u00e9tar Helgu og beiting raddarinnar er eitthva\u00f0, sem yngri leikarar m\u00e6ttu taka s\u00e9r til fyrirmyndar. Hvert or\u00f0 sem h\u00fan sag\u00f0i n\u00e1\u00f0i um allan salinn, sem var hins vegar ekki h\u00e6gt a\u00f0 segja um hina yngri \u00ed h\u00f3pnum. \u00c9g h\u00e9lt fyrst, a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri or\u00f0in heyrnarlaus, en svo kom \u00e1 daginn, a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 \u00ed kringum mig \u00e1 \u00f6ftustu bekkjunum kv\u00f6rtu\u00f0u undan hinu sama. \u00dea\u00f0 vir\u00f0ist eins og kynsl\u00f3\u00f0abil hafi or\u00f0i\u00f0 \u00ed leikh\u00fasinu eins og \u00ed leikritinu. Kannski \u00e6tlu\u00f0u allirs \u00e9r a\u00f0 leika \u00ed kvikmyndum &#8211; ekki \u00e1 st\u00f3ru svi\u00f0i. En \u00feetta \u00fearf a\u00f0 lagf\u00e6ra, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1horfandinn missir af mikilv\u00e6gum tengingum og tilv\u00edsunum \u00ed leikfl\u00e9ttum, sem \u00fearme\u00f0 fara forg\u00f6r\u00f0um.<\/p>\n<p>Hanna Mar\u00eda Karlsd\u00f3ttir ger\u00f0i s\u00e9r mat \u00far \u00far heldur n\u00f6turlegu hlutverki s\u00ednu. M\u00e9r fannst h\u00fan komast n\u00e6st \u00fev\u00ed a\u00f0 vera hin d\u00e6miger\u00f0a amr\u00edska kelling, eins og \u00fe\u00e6r gerast sv\u00e6snastar. Og \u00fe\u00f3 &#8211; N\u00edna D\u00f6gg hef\u00f0i alveg eins geta\u00f0 flogi\u00f0 beint inn fr\u00e1 Miami. Svona stelpur s\u00e9r ma\u00f0ur \u00e1 myndum \u00ed glansritum. Ekkert kemst a\u00f0 nema sj\u00e1lfi\u00f0 og \u00fatliti\u00f0. J\u00f3hanna Vigd\u00eds \u00e1tti erfitt uppdr\u00e1ttar me\u00f0 sitt hall\u00e6rislega hlutverk, enda enga sk\u00fdringu a\u00f0 f\u00e1 \u00e1 vandr\u00e6\u00f0agangi hennar fr\u00e1 h\u00f6fundarins hendi fyrr en r\u00e9tt undir lokin. Sama m\u00e1 segja um Unni \u00d6sp Stef\u00e1nsd\u00f3ttur; indj\u00e1nast\u00falkan gegnir a\u00f0 v\u00edsu \u00f3r\u00e6\u00f0u hlutverki \u00ed leikritinu, \u00fe\u00f3tt h\u00f6fundi takist t\u00e6plega a\u00f0 gl\u00e6\u00f0a pers\u00f3nuna sj\u00e1lfa holdi og bl\u00f3\u00f0i. Ung st\u00falka, sem \u00e9g hef ekki s\u00e9\u00f0 \u00e1 leiksvi\u00f0i \u00e1\u00f0ur, Gu\u00f0r\u00fan Bjarnad\u00f3ttir, kom skemmtilega \u00e1 \u00f3vart \u00ed hlutverki hins \u00f3hamingjusama unglings. Jafnvel \u00ed myrkri voru hreyfingar hennar vandr\u00e6\u00f0alega \u00e1lappalegar. Pers\u00f3nusk\u00f6pun hennar var sannf\u00e6randi \u2013 l\u00edklega er \u00fearna efnileg leikkona \u00e1 fer\u00f0.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt \u00e1horfendur hafi \u00e1 t\u00edmabili be\u00f0i\u00f0 \u00e1tekta milli vonar og \u00f3tta, f\u00f3r ekki milli m\u00e1la af undirtektum \u00feeirra a\u00f0 leikslokum, a\u00f0 \u00feessum li\u00f0sh\u00f3pi \u00e1 svi\u00f0inu haf\u00f0i tekist a\u00f0 vinna hug \u00feeirra og hj\u00f6rtu. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um or\u00f0i\u00f0 vitni a\u00f0 stj\u00f6rnuleik. \u00c1 \u00fatlei\u00f0inni m\u00e1tti heyra allt um kring, a\u00f0 verki\u00f0 haf\u00f0i kveikt \u00e1huga leikh\u00fasgesta. \u00deeir voru \u00fdmist \u00ed hr\u00f3kasamr\u00e6\u00f0um e\u00f0a h\u00f6rkurifrildi um pers\u00f3nur og leikendur \u00ed \u00feessu fj\u00f6lskyldudrama. Og \u00fe\u00e1 er tilgangi verksins n\u00e1\u00f0, ekki satt?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Borgarleikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdnir: Fj\u00f6lskyldan \u2013 \u00e1g\u00fast \u00ed Osage s\u00fdslu<\/p>\n<p>H\u00f6fundur: Tracy Letts<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Hilmir Sn\u00e6r Gu\u00f0nason<br \/>\nT\u00f3nlist: KK<br \/>\nLeikmynd: B\u00f6rkur J\u00f3nsson<br \/>\nL\u00fdsing: Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson<br \/>\nB\u00faningar: Margr\u00e9t Einarsd\u00f3tti<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-160","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/160","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=160"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/160\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":604,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/160\/revisions\/604"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=160"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=160"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=160"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}