{"id":162,"date":"2009-10-21T00:00:00","date_gmt":"2009-10-21T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/10\/21\/spillingin-etur-bornin-sin-i-eftirlitsmanninum\/"},"modified":"2020-09-23T09:20:57","modified_gmt":"2020-09-23T09:20:57","slug":"spillingin-etur-bornin-sin-i-eftirlitsmanninum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2009\/10\/21\/spillingin-etur-bornin-sin-i-eftirlitsmanninum\/","title":{"rendered":"Spillingin \u00e9tur b\u00f6rnin s\u00edn \u00ed Eftirlitsmanninum"},"content":{"rendered":"<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"164\" class=\"alignnone size-full wp-image-75\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/spillingin.jpg\"><br>\nEftirlitsma\u00f0urinn<\/center><p><\/p>\n<p>N\u00fa eru li\u00f0nar t\u00e6par tv\u00e6r vikur s\u00ed\u00f0an loka\u00e1rsnemendur vi\u00f0 Listah\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk frums\u00fdndu Eftirlitsmanninn eftir Gogol. \u00deetta verk er tali\u00f0 skyldulesning allra \u00feeirra sem unna g\u00f3\u00f0u leikh\u00fasi &#8211; eins konar klass\u00edk leikb\u00f3kmenntanna. Gogol er settur \u00e1 stall me\u00f0 Moli\u00e9re og Shakespeare.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Upphaflega st\u00f3\u00f0 til a\u00f0 s\u00fdna verki\u00f0 a\u00f0eins fimmt\u00e1n s\u00ednnum, en vegna mikillar a\u00f0s\u00f3knar hefur n\u00fa veri\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 nokkrum \u00ed vi\u00f0b\u00f3t, \u00feannig a\u00f0 s\u00ed\u00f0b\u00fanum gefst enn t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 ver\u00f0a s\u00e9r \u00fati um \u00f3v\u00e6nta andlega hressingu.<\/p>\n<p>S\u00fdningin kemur skemmtilega \u00e1 \u00f3vart og gl\u00e6\u00f0ir \u00e1 n\u00fd von um framt\u00ed\u00f0 \u00feessarar volu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0ar, hugvit og metna\u00f0. \u00deetta einst\u00e6\u00f0a verk er skrifa\u00f0 fyrir hartn\u00e6r tv\u00f6 hundru\u00f0 \u00e1rum, en \u00e1 engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur br\u00fdnt erindi vi\u00f0 n\u00fat\u00edmaf\u00f3lk. Vi\u00f0 sj\u00e1um sj\u00e1lf okkur \u00ed sp\u00e9spegli. Vi\u00f0 hl\u00e6jum d\u00e1tt, en sn\u00faum heim hugsi.<\/p>\n<p>\u00cd fyrsta lagi f\u00f3r s\u00fdningin fram \u00ed \u00f3venjulegu umhverfi, \u00ed g\u00f6mlu h\u00fasi Landsmi\u00f0junnar &#8211; sem einu sinni var &#8211; vi\u00f0 S\u00f6lvh\u00f3lsg\u00f6tu. \u00dearna eru ekki lengur ungir menn a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a v\u00e9lar. N\u00fa l\u00e6ra \u00feeir a\u00f0 leika listir s\u00ednar. Listah\u00e1sk\u00f3linn er \u00fearna til h\u00fasa. Og \u00fea\u00f0 var \u00f3neitanlega hressandi tilbreyting a\u00f0 ganga inn \u00ed v\u00e9lsmi\u00f0ju, sem er \u00f3vart or\u00f0in a\u00f0 leikh\u00fasi. \u00dearna er ekkert sem minnir \u00e1 \u00cdsland 2007. Sem betur fer, Enginn a\u00f0 hreykja s\u00e9r, enginn \u00edbur\u00f0ur, ekkert \u00f3h\u00f3f. Hver kr\u00f3kur n\u00fdttur. Hv\u00edtkalka\u00f0ir veggir og metna\u00f0arfullar listakonur framt\u00ed\u00f0arinnar vi\u00f0 skenkinn.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hefur \u00feurft mikla \u00fatsj\u00f3narsemi og hugmyndaflug til a\u00f0 koma fyrir leikmynd og finna r\u00fdmi til athafna \u00ed \u00fev\u00ed skr\u00edtna og \u00fer\u00f6nga pl\u00e1ssi, sem okkur var v\u00edsa\u00f0 til s\u00e6tis \u00ed. Lofth\u00e6\u00f0 var l\u00edtil, en m\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 ekki koma a\u00f0 s\u00f6k. \u00derengslin undirstriku\u00f0u m\u00fasarholusj\u00f3narmi\u00f0in, sem verki\u00f0 fjallar um. F\u00e1t\u00e6klegt \u00feakherbergi\u00f0, \u00fear sem eftirlitsmanninum er v\u00edsa\u00f0 til s\u00e6ngur \u00ed gistih\u00fasinu, er d\u00e6migert fyrir hugmyndina a\u00f0 baki verkinu. \u00dea\u00f0 getur enginn sta\u00f0i\u00f0 uppr\u00e9ttur \u00ed \u00feessu herbergi. Vi\u00f0 erum \u00ed m\u00fasarholu. \u00derengslin ste\u00f0ja a\u00f0 \u00e1 alla vegu.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e6jum ekki fram \u00ed eldh\u00fasi\u00f0 e\u00f0a inn \u00ed bakherbergin, \u00fe\u00e1 vissum vi\u00f0 hvar \u00feau voru og hva\u00f0 \u00fear f\u00f3r fram. \u00dear kemur til hugvits\u00f6m l\u00fdsing hins finnska Mika Haarinen. L\u00fdsingin v\u00edkkar svi\u00f0i\u00f0. Leikmyndin var \u00fev\u00ed ekki eins kn\u00f6pp og efni st\u00f3\u00f0u til. M\u00f3ei\u00f0ur Helgad\u00f3ttir, leikmyndah\u00f6nnu\u00f0ur, hefur eflaust l\u00edka \u00feurft a\u00f0 s\u00fdna a\u00f0hald og n\u00fdtni vi\u00f0 val \u00e1 leikmunum. M\u00e9r finnst h\u00fan komast mj\u00f6g vel fr\u00e1 vandas\u00f6mu verkefni.<\/p>\n<p>Sama ver\u00f0ur sagt um Myrru Leifsd\u00f3ttur, sem s\u00e1 um b\u00faninga og leikgervi. Gervin voru svo sannf\u00e6randi, a\u00f0 m\u00e9r var \u00f3m\u00f6gulegt a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 hver var hva\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 allir l\u00e9ku meira en eitt hlutverk. S\u00e9rstaklega var\u00f0 m\u00e9r stars\u00fdnt \u00e1 Osip, \u00fej\u00f3n eftirlitsmannsins, sem var svo str\u00e1kslegur me\u00f0 \u00feunnan skeggh\u00fdjung \u00ed v\u00f6ngum, a\u00f0 \u00e9g var me\u00f0 b\u00f6ggum hildar um, af hvoru kyninu leikarinn (e\u00f0a leikkonan) v\u00e6ri.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er auglj\u00f3st, a\u00f0 \u00feessi leikendah\u00f3pur \u00feekkist mj\u00f6g vel og er vanur a\u00f0 vinna saman, enda eru allir \u00feessir sj\u00f6 krakkar \u00e1 loka\u00e1ri \u00ed leiklistardeildinni eftir \u00feiggja \u00e1ra n\u00e1m. \u00deetta er einmitt s\u00e1 t\u00edmi l\u00edfsins, \u00feegar ma\u00f0ur er sannf\u00e6r\u00f0ur um, a\u00f0 allt s\u00e9 m\u00f6gulegt og framt\u00ed\u00f0in s\u00e9 \u00f3endanleg. T\u00e6kif\u00e6rin l\u00edka. Kannski ver\u00f0ur samt aldrei eins gaman a\u00f0 lifa eins og einmitt n\u00fana &#8211; ma\u00f0ur er enn a\u00f0 l\u00e6ra, kynnast n\u00fdjum h\u00f6fundum og leikstj\u00f3rum, getur vali\u00f0 s\u00e9r rj\u00f3mann \u00far leikb\u00f3kmenntunum til a\u00f0 ba\u00f0a sig upp \u00far. \u00deetta er \u00f6gurstund \u00ed l\u00edfi hvers og eins..<\/p>\n<p>Gle\u00f0in og nautnin leyndi s\u00e9r heldur ekki \u00ed leik \u00feessa unga f\u00f3lks. \u00d6ll n\u00e1\u00f0u \u00feau \u00f3tr\u00falega g\u00f3\u00f0um t\u00f6kum \u00e1 pers\u00f3num s\u00ednum og g\u00e1fu \u00feeim l\u00edf, sem vakti \u00e1huga, forvitni. Og \u00e9g s\u00e9 ekki betur en a\u00f0 \u00fearna innan um s\u00e9u efni \u00ed gamanleikara framt\u00ed\u00f0arinnar.<\/p>\n<p>H\u00f3patri\u00f0in voru augnayndi, augnablik \u00far g\u00f6mlum kvikmyndum. Me\u00f0 samtvinnun l\u00fdsingar og l\u00e1tbrag\u00f0s var formi\u00f0 broti\u00f0 upp oftar en einu sinni, og \u00fe\u00e1 f\u00e6r\u00f0ist leikurinn meir yfir \u00ed leikh\u00fas f\u00e1r\u00e1nleikans. Dramat\u00edskir og angurv\u00e6rir t\u00f3nar M\u00f6ggu St\u00ednu og f\u00e9laga hennar m\u00f6gnu\u00f0u stemninguna. Fyllir\u00edssena eftirlistmannsins er l\u00edka vi\u00f0 m\u00f6rk f\u00e1r\u00e1nleikans &#8211; \u00f3gleymanlegt atri\u00f0i. Og ekki er s\u00ed\u00f0ri samleikur m\u00f3\u00f0ur og d\u00f3ttur \u00ed stofunni heima me\u00f0 hre\u00f0jatak \u00e1 eftirlitsmanninum. \u00dea\u00f0 toppa\u00f0i eiginlega allt.<\/p>\n<p>M\u00e9r s\u00fdnist Stef\u00e1n J\u00f3nsson, leikstj\u00f3ri og fagstj\u00f3ri leikaran\u00e1ms Listah\u00e1sk\u00f3lans hafa lagt mikla al\u00fa\u00f0 og metna\u00f0 \u00ed \u00feetta verk. \u00deetta er fl\u00f3kin uppf\u00e6rsla, \u00fev\u00ed a\u00f0 hver leikari leikur a.m.k. \u00derj\u00fa hlutverk. \u00dea\u00f0 hefur \u00fev\u00ed veri\u00f0 \u00ed \u00ed m\u00f6rg horn a\u00f0 l\u00edta og hvergi m\u00e1tt gefa eftir. \u00der\u00e1tt fyrir \u00ferengsli \u00e1 svi\u00f0inu rennur s\u00fdningin lj\u00faflega. H\u00fan er g\u00e1skafull me\u00f0 \u00feungum undirt\u00f3n. Og \u00fea\u00f0 er eins og krakkarnir b\u00e6ti hvert anna\u00f0 upp.<\/p>\n<p>Og eitt enn. Oft ber vi\u00f0 \u00ed leikh\u00fasum \u00e1 seinni \u00e1rum, a\u00f0 leikarar kunna ekki a\u00f0 tala \u00feannig a\u00f0 allir heyri. \u00dea\u00f0 er auglj\u00f3st, a\u00f0 leiklistardeild Listah\u00e1sk\u00f3lans leggur metna\u00f0 sinn \u00ed kenna raddbeitingu og g\u00f3\u00f0a frams\u00f6gn. \u00dea\u00f0 er til fyrirmyndar og set \u00e9g \u00fea\u00f0 \u00e1 kredit hj\u00e1 Stef\u00e1ni J\u00f3nssyni, leikstj\u00f3ra og fagstj\u00f3ra deildarinnar. \u00dea\u00f0 er unun a\u00f0 hlusta \u00e1 g\u00f3\u00f0an texta, ef vel er fari\u00f0 me\u00f0. Og m\u00e9r vir\u00f0ist \u00fe\u00fd\u00f0ing Bjarna b\u00e6\u00f0i safar\u00edk og sk\u00e1ldleg.<\/p>\n<p>\u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 m\u00e6la me\u00f0 \u00feessu fr\u00e1b\u00e6ra klassiska verki, sem \u00e1 beint erindi vi\u00f0 \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0ina um \u00feessar mundir.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>SPILLINGIN \u00c9TUR B\u00d6RNIN S\u00cdN e. Nikolaj Gogol<br \/>\nEftirlitsma\u00f0urinn<br \/>\n\u00de\u00fd\u00f0ing: Bjarni J\u00f3nsson<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Stef\u00e1n J\u00f3nsson<br \/>\nLeikmynd: M\u00f3ei\u00f0ur Helgad\u00f3ttir<br \/>\nB\u00faningah\u00f6nnun og leikgervi: Myrra Leifsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00fdsing: Mika Haarinen<br \/>\nT\u00f3nlist: Magga St\u00edn<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-162","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/162","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=162"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/162\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":606,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/162\/revisions\/606"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=162"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=162"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=162"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}