{"id":180,"date":"2015-02-02T00:00:00","date_gmt":"2015-02-02T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/02\/02\/lifid-er-samfelld-leiksyning-dv-30-1-2015-vidtal-solrunar-lilju-ragnarsdottur-vid-bryndisi-schram\/"},"modified":"2020-09-23T08:51:53","modified_gmt":"2020-09-23T08:51:53","slug":"lifid-er-samfelld-leiksyning-dv-30-1-2015-vidtal-solrunar-lilju-ragnarsdottur-vid-bryndisi-schram","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/02\/02\/lifid-er-samfelld-leiksyning-dv-30-1-2015-vidtal-solrunar-lilju-ragnarsdottur-vid-bryndisi-schram\/","title":{"rendered":"L\u00edfi\u00f0 er samfelld leiks\u00fdning. DV 30.1.2015: Vi\u00f0tal S\u00f3lr\u00fanar Lilju Ragnarsd\u00f3ttur vi\u00f0 Brynd\u00edsi Schram"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align: center;\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"408\" height=\"357\" class=\"alignnone size-full wp-image-29\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis.jpg\" srcset=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis.jpg 408w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis-300x263.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 408px) 85vw, 408px\" \/><br>\nBrund\u00eds Schram<\/p>\n<p>Brynd\u00eds Schram hefur nokku\u00f0 \u00e1kve\u00f0na sko\u00f0un \u00e1 \u00fev\u00ed hvar h\u00fan vill setjast ni\u00f0ur me\u00f0 bla\u00f0amanni til vi\u00f0tals. H\u00fan stingur strax upp \u00e1 Kex Hostel \u2013 vins\u00e6lum h\u00f3telbar \u00ed tygjum vi\u00f0 farfuglaheimili, sem \u00feykir nokku\u00f0 smart a\u00f0 s\u00e6kja. \u00cd lj\u00f3s kemur a\u00f0 \u00feetta er einn af hennar eftirl\u00e6tisst\u00f6\u00f0um, sem h\u00fan s\u00e6kir gjarnan \u00feegar h\u00fan gerir s\u00e9r fer\u00f0 \u00far Reykjadalnum \u00ed 101 Reykjav\u00edk. Kannski \u00ed drykk e\u00f0a tvo.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 er h\u00e1vaxin og tignarleg kona, \u00edkl\u00e6dd ullarsl\u00e1 og me\u00f0 hatt, sem gengur r\u00f6skum skrefum inn \u00ed salinn, \u00fear sem bla\u00f0ama\u00f0ur situr og b\u00ed\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er ekki a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 \u00fearna fari kona \u00e1 \u00e1ttr\u00e6\u00f0isaldri. \u00deegar Brynd\u00eds kemur auga \u00e1 bla\u00f0amann brei\u00f0ir h\u00fan strax \u00fat fa\u00f0minn og kyssir \u00e1 b\u00e1\u00f0ar kinnar, a\u00f0 su\u00f0r\u00e6num h\u00e6tti, l\u00edkt og h\u00fan s\u00e9 a\u00f0 heilsa aldag\u00f6mlum vini.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds tekur strax fram a\u00f0 h\u00fan vilji helst segja fr\u00e1 einhverju sem h\u00fan hefur ekki sagt fr\u00e1 \u00e1\u00f0ur. H\u00fan vill s\u00ed\u00f0ur endurtaka sig \u00far \u00f6\u00f0rum vi\u00f0t\u00f6lum. \u00dea\u00f0 er heldur ekki au\u00f0hlaupi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e6tla s\u00e9r a\u00f0 fanga l\u00edfshlaup Brynd\u00edsar \u00e1 \u00feremur bla\u00f0s\u00ed\u00f0um. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 velja kaflana vel og vi\u00f0 byrjum \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 horfa um \u00f6xl.<\/p>\n<p>\u201cL\u00edfi\u00f0 f\u00f3r ekki eins og \u00fea\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 fara, \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 ver\u00f0a baller\u00edna, en svo var \u00e9g allt \u00ed einu or\u00f0in 175 \u00e1 h\u00e6\u00f0, me\u00f0 brj\u00f3st og rass, \u00feannig \u00fea\u00f0 gekk aldrei,\u201d segir Brynd\u00eds og brosir einl\u00e6gt \u00fe\u00f3 skynja megi \u00f6rl\u00edtinn trega \u00ed r\u00f6ddinni.<\/p>\n<p>Hana langa\u00f0i miki\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a atvinnudansari, dansa \u00e1 st\u00f3ru svi\u00f0i \u00fati \u00ed heimi, en l\u00edkamsv\u00f6xturinn bau\u00f0 ekki upp \u00e1 \u00fea\u00f0, og e\u00f0lilega var \u00fea\u00f0 svekkjandi. \u201c\u00cd London m\u00e1ttu baller\u00ednurnar til d\u00e6mis ekki vera nema 165,\u201d b\u00e6tir h\u00fan vi\u00f0. \u00dea\u00f0 voru \u00fev\u00ed heilir t\u00edu sentimetrar sem skildu hana og drauminn a\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deessar reglur um h\u00e1marksh\u00e6\u00f0 baller\u00edna giltu \u00fe\u00f3 ekki alls sta\u00f0ar og veturinn eftir st\u00fadentspr\u00f3fi\u00f0 bau\u00f0st Brynd\u00edsi a\u00f0 stunda framhaldsn\u00e1m vi\u00f0 Kirov ballettinn \u00ed Len\u00edngrad. \u00de\u00e1 var h\u00fan hins vegar or\u00f0in \u00f3l\u00e9tt svo h\u00fan neyddist til a\u00f0 hafna bo\u00f0inu. \u201c\u00dea\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r ekki, en \u00e9g h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 dansa \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu. \u00c9g dansa\u00f0i alveg \u00feanga\u00f0 til \u00e9g var\u00f0 \u00fer\u00edtug og fluttist vestur \u00e1 \u00cdsafj\u00f6r\u00f0. \u00dea\u00f0 var svo geggja\u00f0 gaman a\u00f0 dansa \u00e1 \u00feessum \u00e1rum, \u00fea\u00f0 var g\u00f3\u00f0ur h\u00f3pur \u00fearna \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu. Ef \u00e9g hef\u00f0i veri\u00f0 ein \u00fe\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g \u00f6rugglega fari\u00f0 til Len\u00edngrad og \u00fea\u00f0 hef\u00f0i kannski leitt til einhvers meira. Hver veit?\u201d<\/p>\n<p>Brynd\u00eds segir a\u00f0 \u00fev\u00ed mi\u00f0ur hafi ekki veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 lifa af \u00fev\u00ed a\u00f0 vera dansari og \u00fea\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 h\u00fan f\u00f3r \u00ed leiklistarn\u00e1m. \u00dea\u00f0 j\u00f3k m\u00f6guleika hennar innan leikh\u00fassins.<\/p>\n<p>H\u00fan rifjar upp me\u00f0 bla\u00f0amanni eftirminnilegt atvik fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00feegar dansinn \u00e1tti hug hennar allan.<\/p>\n<p>\u201c\u00c9g man \u00e1ri\u00f0 1956 \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 dansa Can Can uppi \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi, \u00ed K\u00e1tu ekkjunni. \u00de\u00e9r a\u00f0 segja n\u00fana sl\u00f3 \u00e9g alveg \u00ed gegn og \u00fea\u00f0 birtist \u00ed fyrsta skipti heils\u00ed\u00f0umynd af m\u00e9r \u00ed Vikunni. \u00deetta var fors\u00ed\u00f0umynd af m\u00e9r og J\u00f3ni Valgeiri, m\u00f3tdansara m\u00ednum \u00e1 \u00feessum \u00e1rum \u2013 og \u00fe\u00e1 var \u00e9g me\u00f0 svona hatt,\u201d segir Brynd\u00eds og tekur upp hattinn sinn. Henni \u00fe\u00f3tti vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 m\u00e6ta me\u00f0 svipa\u00f0an hatt \u00ed vi\u00f0tali\u00f0 og h\u00fan var me\u00f0 \u00e1 fors\u00ed\u00f0umyndinni fyrir t\u00e6pum 60 \u00e1rum.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds \u00fe\u00f3tti, og \u00feykir enn, st\u00f3rgl\u00e6sileg kona sem vakti athygli hvar sem h\u00fan f\u00f3r. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 undra a\u00f0 h\u00fan hafi, 19 \u00e1ra g\u00f6mul, veri\u00f0 be\u00f0in um a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed Fegur\u00f0arsamkeppni \u00cdslands sem f\u00f3r fram \u00ed T\u00edvol\u00ed \u00ed Vatnsm\u00fdrinni. A\u00f0spur\u00f0 hvernig \u00fea\u00f0 hafi komi\u00f0 til segir h\u00fan, a\u00f0 h\u00fan hafi l\u00edklega fyrst heyrt \u00e1v\u00e6ning af \u00feessu \u00ed g\u00f6mlu Sundlaugunum &#8211; sem enginn man n\u00fa eftir lengur. \u201c\u00c9g heyr\u00f0i fyrir aftan mig a\u00f0 einhver sag\u00f0i a\u00f0 \u201c\u00feessi yr\u00f0i flott \u00ed keppnina\u201d og svo hafa \u00feeir eflaust hringt \u00ed m\u00f6mmu. Mamma m\u00edn var mj\u00f6g falleg kona sem \u00e1tti s\u00edna drauma en h\u00fan giftist ung og f\u00f3r a\u00f0 hla\u00f0a ni\u00f0ur b\u00f6rnum. \u00c9g held a\u00f0 h\u00fan hafi bori\u00f0 \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00feessu, a\u00f0 henni hafi \u00fe\u00f3tt \u00feetta g\u00f3\u00f0 hugmynd, en \u00e9g t\u00f3k \u00feessu ekki mj\u00f6g alvarlega fyrr en \u00e1 lokasprettinum,\u201d segir Brynd\u00eds hreinskilin.<\/p>\n<p>Keppnin var haldin utanh\u00fass \u00ed T\u00edvol\u00ed \u00ed nor\u00f0angarra, eins og h\u00fan or\u00f0ar \u00fea\u00f0 sj\u00e1lf. Henni var \u00fev\u00ed \u00edskalt \u00fear sem h\u00fan \u00feurfti a\u00f0 spranga um svi\u00f0i\u00f0 \u00e1 sundbolnum einum fata og l\u00e1ta d\u00f3marana m\u00e6la sig \u00fat. Sama kv\u00f6ld var h\u00fan a\u00f0 dansa \u00ed Sumar \u00ed T\u00fdrol \u00e1 fj\u00f6lum \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins og var\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hlaupa \u00e1 milli sta\u00f0a til a\u00f0 allt gengi upp. Ekki vir\u00f0ist \u00fea\u00f0 hafa spillt fyrir. Brynd\u00eds var kosin fegur\u00f0ardrottning \u00cdslands \u00feetta kalda vorkv\u00f6ld \u00ed Vatnsm\u00fdrinni \u00e1ri\u00f0 1957. \u201cM\u00e9r voru f\u00e6r\u00f0 bl\u00f3m \u00ed leikh\u00fasinu \u00ed lok s\u00fdningar. Bessi Bjarnason st\u00f3\u00f0 \u00e1 svi\u00f0inu me\u00f0 fangi\u00f0 fullt af bl\u00f3mum og kyssti mig \u00e1 vangann og \u00fea\u00f0 var eiginlega \u00fea\u00f0 besta vi\u00f0 \u00feetta allt saman,\u201d segir h\u00fan sposk \u00e1 svip.<\/p>\n<p>En sigurv\u00edman var\u00f0i ekki lengi. \u201c\u00c9g s\u00e1 eiginlega samstundis eftir \u00feessu og fannst \u00e9g hafa stigi\u00f0 feilspor. M\u00e9r fannst ni\u00f0url\u00e6gjandi a\u00f0 l\u00e1ta m\u00e6la mig \u00fat eins og ver\u00f0launahryssu \u00e1 uppbo\u00f0i. \u00c9g var l\u00edka \u00f6rugglega undir \u00e1hrifum fr\u00e1 f\u00e9l\u00f6gum m\u00ednum \u00ed Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk, \u00fear \u00fe\u00f3tti ekki mj\u00f6g f\u00ednt a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed svona keppni. \u00cd skeytinu sem Brynd\u00eds f\u00e9kk sent fr\u00e1 sk\u00f3laf\u00e9laga s\u00ednum og n\u00faverandi eiginmanni, J\u00f3ni Baldvini Hannibalssyni, eftir keppnina, st\u00f3\u00f0 til a\u00f0 mynda: \u201csveiattan!\u201d og ekkert anna\u00f0.\u201d Sko\u00f0un hans var sk\u00fdr. \u201c\u00c9g tala\u00f0i mj\u00f6g l\u00edti\u00f0 um \u00feetta eftir keppnina og og aldrei opinberlega,\u201d b\u00e6tir h\u00fan vi\u00f0.<\/p>\n<p>Sigur \u00ed keppninni h\u00e9rna heima haf\u00f0i hins vegar \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 Brynd\u00eds var or\u00f0in fulltr\u00fai \u00cdslands \u00ed alheimsfegur\u00f0arsamkeppninni sem f\u00f3r fram \u00e1 Long Beach r\u00e9tt utan vi\u00f0 Los Angeles. \u201c\u00dea\u00f0 var au\u00f0vita\u00f0 mj\u00f6g gaman a\u00f0 fara \u00fat en \u00e9g var engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00ed uppreisn gegn \u00feessu \u00f6llu.\u201d H\u00fan vissi a\u00f0 h\u00fan \u00e1tti ekki m\u00f6guleika \u00e1 sigri \u00fati, enda keppnin kostu\u00f0 af snyrtiv\u00f6ru- og sundfataframlei\u00f0endum sem vildu a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u f\u00e1 fulltr\u00faa fj\u00f6lmennrar \u00fej\u00f3\u00f0ar til a\u00f0 kynnar v\u00f6rur s\u00ednar. \u201c\u00deess vegna var \u00e9g alveg \u00fatiloku\u00f0 strax. Herbergisf\u00e9lagi minn, s\u00e6t stelpa fr\u00e1 \u00cdsrael, tilkynnti m\u00e9r a\u00f0 vi\u00f0 k\u00e6mum ekki til greina. Vi\u00f0 afskrifu\u00f0um \u00fev\u00ed okkur sj\u00e1lfar og og t\u00f3kum \u00feessu af m\u00e1tulegu k\u00e6ruleysi. Vorum ekki einu sinni me\u00f0 varalit \u00e1 okkur,\u201d segir Brynd\u00eds h\u00e1lf prakkaraleg \u00e1 svipinn.<\/p>\n<p>\u00cd Bandar\u00edkjunum opnu\u00f0ust \u00fe\u00f3 \u00fdmis t\u00e6kif\u00e6ri fyrir \u00feessa ungu og \u00f3hl\u00fd\u00f0nu st\u00falku fr\u00e1 \u00cdslandi, en \u00feegar \u00e1 h\u00f3lminn var komi\u00f0 \u00fe\u00e1 reyndist h\u00fan of h\u00e1vaxin fyrir kvikmyndabransann sem heilla\u00f0i hana miki\u00f0. \u201cM\u00e9r var sagt, a\u00f0 helstu elskhugar Hollywood \u00e1 hv\u00edta tjaldinu \u00e1 \u00feessum t\u00edma hef\u00f0u varla n\u00e1 m\u00e9r \u00ed \u00f6xl. \u00c9g hef\u00f0i \u00fe\u00f3 geta\u00f0 fengi\u00f0 a\u00f0 augl\u00fdsa tannkrem!, en m\u00e9r \u00fe\u00f3tti \u00fea\u00f0 ekki spennandi og \u00e1kva\u00f0 frekar a\u00f0 fara heim aftur og kl\u00e1ra MR. \u00dear missti \u00e9g af \u00f6\u00f0ru t\u00e6kif\u00e6ri\u201d, segir h\u00fan og hl\u00e6r vi\u00f0. \u201c\u00c9g spyr mig stundum af hverju \u00e9g n\u00fdtti ekki t\u00e6kif\u00e6rin sem bu\u00f0ust? En \u00fearna var \u00e9g svo \u00e1stfangin og \u00fe\u00e1 hverfur allt anna\u00f0 \u00ed skuggann. \u00c1stin er svo sterkt afl,\u201d segir Brynd\u00eds hugsi og staldrar a\u00f0eins vi\u00f0. \u201c\u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 kalla \u00feetta eftirsj\u00e1 \u00fev\u00ed ma\u00f0ur veit ekkert hvernig l\u00edfi\u00f0 hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 annars.\u201d<\/p>\n<p>Brynd\u00eds hitti \u00e1stina i l\u00edf\u00ed s\u00ednu, J\u00f3n Baldvin Hannibalsson, fyrst \u00feegar \u00feau voru saman \u00ed landspr\u00f3fi. \u201c\u00c9g var\u00f0 svo skotin \u00ed \u00feessum str\u00e1k en \u00e9g tala\u00f0i aldrei vi\u00f0 hann,\u201d segir h\u00fan sposk \u00e1 svip. En a\u00f0dragandinn a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau f\u00f3ru loksins a\u00f0 vera saman var\u00f0 ansi langur. \u201c\u00c9g held vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 b\u00fain a\u00f0 \u00feekkjast \u00ed fj\u00f6gur \u00e1r \u00feegar vi\u00f0 snertum hvort anna\u00f0 fyrst.\u201d Brynd\u00eds segir J\u00f3n Baldvin hafa veri\u00f0 mj\u00f6g \u00e1berandi strax \u00ed Gagg\u00f3 Vest. Hann var frakkur og \u00f6ruggur me\u00f0 sig og \u00fea\u00f0 heilla\u00f0i \u00feessa ungu st\u00falku. \u201cHann var a\u00f0alm\u00e1lp\u00edpan \u00ed sk\u00f3lanum, eldrau\u00f0ur bolsi og n\u00e1\u00f0i a\u00f0 spilla \u00f6llum sambekkingum s\u00ednum. \u00dea\u00f0 var haldinn foreldrafundur \u00fat af honum og \u00fea\u00f0 \u00e1tti bara a\u00f0 reka \u00feennan dreng \u00far sk\u00f3lanum. En \u00fea\u00f0 var gert samkomulag um a\u00f0 ritsko\u00f0a allt sem hann skrifa\u00f0i,\u201d segir Brynd\u00eds og hl\u00e6r \u00feegar h\u00fan rifjar \u00feetta upp. \u201cHann var strax \u00fearna or\u00f0inn \u00f3\u00f0ap\u00f3lit\u00edkus og s\u00fa \u00e1str\u00ed\u00f0a hefur einkennt hann alla t\u00ed\u00f0. Hann hefur einhvers sta\u00f0ar sagt a\u00f0 hann hafi haft \u00e1str\u00ed\u00f0u fyrir tvennu \u00ed l\u00edfinu \u2013 p\u00f3l\u00edt\u00edkinni og konunni sinni. Svo, n\u00fa \u00feegar p\u00f3l\u00edt\u00edkin er a\u00f0 baki \u00fe\u00e1 er \u00e9g bara ein eftir\u201d, segir Brynd\u00eds og hl\u00e6r dillandi hl\u00e1tri.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00ed Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk sem \u00feau f\u00f3ru a\u00f0 kynnast a\u00f0eins betur, en Brynd\u00eds horf\u00f0i alltaf h\u00fdru auga til \u00feessa \u00e1str\u00ed\u00f0ufulla unga manns me\u00f0 sterku stj\u00f3rnm\u00e1lasko\u00f0anirnar.<\/p>\n<p>Tveimur \u00e1rum eftir a\u00f0 lei\u00f0ir \u00feeirra l\u00e1gu fyrst saman \u00ed landspr\u00f3finu t\u00f3k J\u00f3n Baldvin af skari\u00f0 og bau\u00f0 Brynd\u00edsi \u00ed b\u00ed\u00f3, \u00e1 kvikmyndina \u201cRau\u00f0u sk\u00f3na\u201d. \u201c\u00c9g man a\u00f0 mamma sag\u00f0i: \u201cmiki\u00f0 hl\u00fdtur \u00feetta a\u00f0 vera g\u00e1fa\u00f0ur piltur sem b\u00fd\u00f0ur \u00fe\u00e9r a\u00f0 sj\u00e1 Rau\u00f0u sk\u00f3na, \u00fea\u00f0 er svo merkileg mynd.\u201d\u201d N\u00e6sta \u00e1r bau\u00f0 J\u00f3n Baldvin henni svo \u00e1 Framt\u00ed\u00f0arballi\u00f0 \u00ed MR. \u00dea\u00f0 var\u00f0 \u00fe\u00f3 ekkert meira \u00far sambandi \u00feeirra fyrr en \u00e1 loka\u00e1rinu \u00ed menntask\u00f3lanum. \u201c\u00c1 lei\u00f0inni heim \u00far leikh\u00fasinu \u00e1 kv\u00f6ldin labba\u00f0i \u00e9g reglulega fram hj\u00e1 h\u00fasinu, \u00fear sem hann \u00e1tti heima og s\u00e1 \u00fatundan m\u00e9r, hvort \u00fear v\u00e6ri lj\u00f3s \u00ed glugga \u2013 vakir hann enn?\u201d segir Brynd\u00eds og hl\u00e6r a\u00f0 sj\u00e1lfri s\u00e9r.<\/p>\n<p>\u201cEn hann skrifa\u00f0i m\u00e9r alltaf, alveg fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann var\u00f0 16 \u00e1ra. \u00c9g velti \u00fev\u00ed stundum fyrir m\u00e9r, hvort \u00e9g eigi a\u00f0 afhenda \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafninu br\u00e9fin me\u00f0 \u00fev\u00ed skilyr\u00f0i a\u00f0 \u00feau ver\u00f0i ekki opnu\u00f0 fyrr en eftir fimmt\u00edu \u00e1r\u201d Brynd\u00eds hl\u00e6r enn meira og vi\u00f0urkennir a\u00f0 br\u00e9fabunkinn s\u00e9 ansi h\u00e1r. \u201c\u00c9g svara\u00f0i honum au\u00f0vita\u00f0 en m\u00edn br\u00e9f voru svo hversdagsleg \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 hans. M\u00edn voru skrifu\u00f0 \u00e1 einf\u00f6ldu m\u00e1li \u00e1 me\u00f0an hann var lj\u00f3\u00f0r\u00e6nn, vel lesinn og skrifa\u00f0i forkunnarfagra \u00edslensku.\u201d Brynd\u00eds ver\u00f0ur dreymin \u00e1 svip \u00feegar h\u00fan rifjar upp br\u00e9faskriftirnar. \u00dear sem \u00feau tv\u00f6, \u00f3har\u00f0na\u00f0ir unglingar, skiptust \u00e1 leyndarm\u00e1lum og vangaveltum um l\u00edfi\u00f0.<\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 var fyrst \u00ed st\u00fadentspr\u00f3funum sem eitthva\u00f0 ger\u00f0ist. Vi\u00f0 f\u00f3rum upp \u00ed Hei\u00f0m\u00f6rk saman og \u00fea\u00f0 ger\u00f0i \u00fatslagi\u00f0.\u201d Brynd\u00eds \u00e1tti a\u00f0 vera a\u00f0 l\u00e6ra fyrir lat\u00ednupr\u00f3f, en t\u00f3k s\u00e9r sm\u00e1 hl\u00e9. \u201c\u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 f\u00e1 9,5 \u00ed lat\u00ednu en f\u00e9kk ekki nema 9,\u201d segir Brynd\u00eds k\u00edmin. J\u00f3n trufla\u00f0i hana vi\u00f0 l\u00e6rd\u00f3minn, en h\u00fan s\u00e1 ekki eftir \u00fev\u00ed. S\u00e6tti sig vi\u00f0 n\u00eduna, enda gaf Hei\u00f0merkurfer\u00f0in henni manninn sem hana haf\u00f0i dreymt um svo lengi. Allt fyrir \u00e1stina.<\/p>\n<p>T\u00e6pu \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar, \u00ed jan\u00faar 1959, f\u00e6ddist \u00feeim svo fyrsta barni\u00f0, st\u00falka sem f\u00e9kk nafni\u00f0 Ald\u00eds \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00f3\u00f0ur Brynd\u00edsar. \u201c\u00c9g sag\u00f0i engum a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00f3l\u00e9tt og \u00fea\u00f0 var au\u00f0vita\u00f0 alveg f\u00e1r\u00e1nlegt. \u00c9g f\u00f3r til Par\u00edsar hausti\u00f0 1958 og var \u00fear fram yfir \u00e1ram\u00f3t. Svo fr\u00e9tti mamma yfir hafi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00f3l\u00e9tt og skipa\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 koma heim. \u00dea\u00f0 li\u00f0u svo ekki nema tveir e\u00f0a \u00fer\u00edr dagar fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g kom heim \u00feanga\u00f0 til \u00e9g var b\u00fain a\u00f0 eiga barn.\u201d \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 st\u00falkan k\u00e6mi \u00f3v\u00e6nt \u00ed heiminn var h\u00fan meira en velkomin inn \u00ed fj\u00f6lskylduna. \u201cH\u00fan var me\u00f0 lj\u00f3sar krullur og himinbl\u00e1 augu og var eftirl\u00e6ti allra.\u201d Hausti\u00f0 sama \u00e1r giftu svo Brynd\u00eds og J\u00f3n Baldvin sig. \u00de\u00f3 vissulega setti \u00fea\u00f0 strik \u00ed reikninginn a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru komin me\u00f0 barn \u00fe\u00e1 l\u00e9tu \u00feau \u00fea\u00f0 ekki stoppa sig og f\u00f3ru b\u00e6\u00f0i \u00fat til Edinborgar \u00ed n\u00e1m. J\u00f3n Baldvin var a\u00f0 l\u00e6ra til fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra, eins og hann ganta\u00f0ist me\u00f0 s\u00ed\u00f0ar, en Brynd\u00eds nam tungum\u00e1l vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann og lauk \u00ed lei\u00f0inni kennarapr\u00f3fi \u00ed listdansi vi\u00f0 Royal Academy.<\/p>\n<p>\u00deegar J\u00f3n Baldvin lauk n\u00e1mi s\u00ednu \u00ed hagfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 Edinborgarh\u00e1sk\u00f3la \u00fe\u00e1 f\u00e9kk hann, a\u00f0 s\u00f6gn Brynd\u00edsar, enga vinnu \u00e1 \u00cdslandi. Hann var ekki \u00ed r\u00e9ttum flokki. En \u00fea\u00f0 var eitthva\u00f0 sem Brynd\u00eds haf\u00f0i aldrei hugsa\u00f0 \u00fat \u00ed. H\u00fan ger\u00f0i s\u00e9r ekki grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 virka\u00f0i svona. \u201cEn einhvern veginn komumst vi\u00f0 \u00ed gegnum \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 sem bjarga\u00f0i okkur var a\u00f0 J\u00f3n Baldvin \u00fe\u00f3tti g\u00f3\u00f0ur kennari og \u00fea\u00f0 var m\u00e6lt me\u00f0 honum \u00feegar vanta\u00f0i sk\u00f3lameistara til a\u00f0 stofna menntask\u00f3la \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.\u201d \u00dea\u00f0 var\u00f0 \u00fev\u00ed \u00far, a\u00f0 fj\u00f6lskyldan fluttist b\u00faferlum til \u00cdsafjar\u00f0ar, en \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0u \u00ferj\u00fa b\u00f6rn b\u00e6st \u00ed h\u00f3pinn, Gl\u00famur, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur og Kolfinna. B\u00faferlaflutningarnir l\u00f6g\u00f0ust \u00fe\u00f3 ekkert s\u00e9rstaklega vel \u00ed Brynd\u00edsi \u00ed upphafi. \u201c\u00deetta var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00e1n samr\u00e1\u00f0s vi\u00f0 mig og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00f3satt a\u00f0 segja, a\u00f0 \u00e9g hafi veri\u00f0 \u00ed sj\u00f6unda himni. \u00c9g s\u00e1 fyrir m\u00e9r a\u00f0 komast ekki \u00ed leikh\u00fas n\u00e6stu \u00e1rin. En \u00fea\u00f0 var ekki aftur sn\u00fai\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0, enda reyndist \u00feetta l\u00edka mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ur t\u00edmi. L\u00edfi\u00f0 er svo \u00f3l\u00edkt \u00fati \u00e1 landi og \u00fea\u00f0 \u00e1tti \u00e9g ,borgarbarni\u00f0, eftir a\u00f0 komast a\u00f0 raun um. \u00deetta var g\u00f3\u00f0 reynsla og vi\u00f0 komumst flj\u00f3tt inn \u00ed kjarna samf\u00e9lagsins,\u201d segir Brynd\u00eds sem minnist \u00e1ranna \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i me\u00f0 gle\u00f0i og \u00feakkl\u00e6ti \u00ed hjarta. H\u00fan sat svo sannarlega ekki au\u00f0um h\u00f6ndum fyrir vestan, en h\u00fan kenndi tungum\u00e1l vi\u00f0 menntask\u00f3lann, dans og leiklist, svo t\u00f3k h\u00fan \u00fe\u00e1tt \u00ed leiks\u00fdningum me\u00f0 leikf\u00e9lagi sta\u00f0arins. \u00de\u00e1 gegndi h\u00fan sj\u00e1lf starfi sk\u00f3lameistara menntask\u00f3lans \u00ed eitt \u00e1r \u2013 reyndar fyrst kvenna til a\u00f0 gegna sl\u00edku emb\u00e6tti, me\u00f0an J\u00f3n Baldvin stunda\u00f0i fr\u00e6\u00f0i s\u00edn vi\u00f0 Harvard sem Fulbright styrk\u00feegi.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds segir \u00feessa d\u00fdrm\u00e6tu reynslu af kennslunni, sem og dansinum og leiklistinni hafa n\u00fdst henni mj\u00f6g vel \u00feegar h\u00fan f\u00f3r \u00fat \u00ed \u00fe\u00e1ttager\u00f0 fyrir sj\u00f3nvarp, en h\u00fan var me\u00f0al annars umsj\u00f3narma\u00f0ur Stundarinnar okkar um \u00e1rabil. \u201c\u00c9g leit alltaf \u00e1 kennslustofuna sem mitt litla leiksvi\u00f0 og sj\u00f3nvarpi\u00f0 sem mitt st\u00f3ra svi\u00f0,\u201d segir h\u00fan brosandi. \u201cSvo hefur l\u00edfi\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 veri\u00f0 ein samfelld leiks\u00fdning,\u201d b\u00e6tir h\u00fan vi\u00f0.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hafa b\u00fai\u00f0 \u00ed t\u00e6p t\u00edu \u00e1r \u00ed litlu \u00feorpi \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um \u00fe\u00e1 fann Brynd\u00eds hins vegar a\u00f0 h\u00fan var\u00f0 a\u00f0 v\u00edkka sj\u00f3ndeildarhringinn. H\u00fan var\u00f0 a\u00f0 komast \u00ed burtu fr\u00e1 \u00cdslandi og r\u00e9\u00f0i sig sem fararstj\u00f3ra \u00e1 \u00cdtal\u00edu \u00e1 vegum Ing\u00f3lfs \u00ed \u00dats\u00fdn. Henni l\u00edka\u00f0i \u00fea\u00f0 svo vel a\u00f0 h\u00fan f\u00f3r enn og aftur til \u00cdtal\u00edu m\u00f6rg \u00e1r \u00ed r\u00f6\u00f0. \u00de\u00e1 kvikna\u00f0i l\u00edka fer\u00f0a\u00e1hugi hennar af alv\u00f6ru en h\u00fan er meira fyrir l\u00f6ng fer\u00f0al\u00f6g. Finnst l\u00edti\u00f0 vari\u00f0 \u00ed a\u00f0 fara \u00ed vikufer\u00f0 til \u00fatlanda.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds hefur alltaf veri\u00f0 mikill tungum\u00e1lagarpur. \u00dea\u00f0 hefur legi\u00f0 vel fyrir henni og henni \u00feykir \u00fea\u00f0 skemmtilegt. \u00deegar h\u00fan var sextug \u00e1kva\u00f0 h\u00fan a\u00f0 l\u00e1ta gamlan draum r\u00e6tast og l\u00e6ra sp\u00e6nsku.<\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 var alltaf draumurinn. Pabbi \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 senda mig til Sp\u00e1nar \u00feegar \u00e9g var\u00f0 st\u00fadent. \u00de\u00e1 r\u00e9\u00f0i Franco \u00fear r\u00edkjum og landi\u00f0 var eiginlega loka\u00f0 svo \u00fea\u00f0 var\u00f0 ekkert \u00far a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri. Sem betur fer eiginlega, \u00fev\u00ed \u00fearna var \u00e9g svo skotin \u00ed str\u00e1k og vildi helst ekki fara langt \u00ed burtu fr\u00e1 honum,\u201d segir Brynd\u00eds og \u00e1 \u00fear a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin, sem v\u00e9k ekki \u00far huga hennar. \u201c\u00c9g hef\u00f0i \u00f6rugglega enda\u00f0 sem eiginkona einhvers appels\u00ednur\u00e6ktanda \u00e1 Sp\u00e1ni og aldrei komi\u00f0 aftur heim.\u201d<\/p>\n<p>H\u00fan vi\u00f0urkennir a\u00f0 oft hafi \u00feetta allt togast \u00e1 \u00ed henni, dansinn, leiklistin og tungum\u00e1lin. \u201c\u00dea\u00f0 er svol\u00edti\u00f0 erfitt \u00feegar ma\u00f0ur hefur \u00e1huga \u00e1 m\u00f6rgu, \u00fe\u00e1 er h\u00e6tt vi\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 dreifi kr\u00f6ftunum, dragi \u00far einbeitingunni. \u00d6rl\u00f6gin t\u00f3ku fram yfir hendurnar \u00e1 m\u00e9r og s\u00f6g\u00f0u a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 v\u00e6ri best svona \u2013 eins og \u00fea\u00f0 var\u00f0. \u00c1stin er svo voldugt n\u00e1tt\u00faruafl, a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00fd\u00f0ingarlaust a\u00f0 streitast \u00e1 m\u00f3ti.<br>\n\u00c1stin er gu\u00f0s gj\u00f6f.\u201d<\/p>\n<p>Brynd\u00eds hefur t\u00f6luver\u00f0ar \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 ver\u00f0a of v\u00e6min \u00feegar h\u00fan r\u00e6\u00f0ir \u00e1stina, en vi\u00f0urkennir \u00fe\u00f3 a\u00f0 h\u00fan J\u00f3n Baldvin s\u00e9u alltaf jafn \u00e1stfangin, sama hva\u00f0 \u00e1 dynji. \u201cAfbr\u00fd\u00f0isemin er meira a\u00f0 segja enn til sta\u00f0ar &#8211; en me\u00f0 \u00f6fugum formerkjum. N\u00fa \u00e1 hann til a\u00f0 vera \u00f6gn afbr\u00fd\u00f0isamur, \u00fe\u00f3tt hann fari kannski vel me\u00f0 \u00fea\u00f0.\u201d segir Brynd\u00eds, meira \u00ed gr\u00edni en alv\u00f6ru. \u201c\u00ed gamla daga \u00e1tti \u00e9g stundum erfitt me\u00f0 a\u00f0 s\u00e6tta mig vi\u00f0, a\u00f0 J\u00f3n Baldvin var alltaf umsetinn konum. N\u00fa hef \u00e9g meira sj\u00e1lfstraust. \u00c9g haf\u00f0i ekki miki\u00f0 sj\u00e1lfstraust \u00feegar var yngri. Afbr\u00fd\u00f0isemin spratt af \u00fev\u00ed \u00e9g haf\u00f0i ekki tr\u00fa \u00e1 sj\u00e1lfri m\u00e9r. \u00deegar vi\u00f0 f\u00f3rum \u00ed part\u00fd \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann gamminn geysa me\u00f0an \u00e9g sat og fannst \u00e9g vera utang\u00e1tta. Hann tala\u00f0i vi\u00f0 konur sem voru \u00e1 kafi \u00ed p\u00f3lit\u00edkinni eins og hann. \u00c9g \u00e1tti vo\u00f0a b\u00e1gt \u00e1 t\u00edmabili.\u201d<\/p>\n<p>Bla\u00f0ama\u00f0ur \u00e1 erfitt me\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa a\u00f0 \u00feessi hreinskipta kona sem situr fyrir framan hann, tignarleg og bein \u00ed baki, uppfull af sj\u00e1lfstrausti, a\u00f0 \u00fev\u00ed vir\u00f0ist, hafi einhvern t\u00edma veri\u00f0 \u00f3\u00f6rugg me\u00f0 sj\u00e1lfa sig. En \u00feannig var \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds segir \u00feetta hafa breyst h\u00e6gt og r\u00f3lega enda hafi \u00feau J\u00f3n Baldvin alltaf veri\u00f0 gott teymi, og b\u00e6tt hvort anna\u00f0 upp. \u00dea\u00f0 hafi komi\u00f0 mj\u00f6g sk\u00fdrt \u00ed lj\u00f3s \u00feegar hann t\u00f3k vi\u00f0 sem forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksins. \u201c\u00c9g \u00feurfti a\u00f0 vera me\u00f0 honum \u00ed \u00f6llu. Vi\u00f0 vorum eiginlega b\u00e6\u00f0i tv\u00f6 \u00ed \u00feessu og f\u00f3lk segir m\u00e9r \u00fea\u00f0 n\u00fana eftir\u00e1, a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi skipt miklu m\u00e1li a\u00f0 \u00e9g var vi\u00f0 hli\u00f0 hans.\u201d En Brynd\u00eds t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 sj\u00e1 um m\u00fdkri hli\u00f0ar formannsstarfsins, s\u00fdndi f\u00f3lki \u00ed kringum \u00feau a\u00f0 \u00fea\u00f0 skipti m\u00e1li me\u00f0 hl\u00fdlegri n\u00e6rveru, notalegu spjalli og fa\u00f0ml\u00f6gum \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00e1tti vi\u00f0.<\/p>\n<p>\u201c\u00deessi \u00fer\u00e1\u00f0ur \u00e1 milli okkar J\u00f3ns Baldvins hefur alltaf haldi\u00f0 og \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 okkar l\u00e1n. L\u00edfi\u00f0 er svo sannarlega ekki alltaf dans \u00e1 r\u00f3sum. \u00dea\u00f0 skiptast \u00e1 skin og sk\u00farir og \u00feegar upp koma erfi\u00f0 augnablik \u00ed l\u00edfinu \u00fe\u00e1 er svo gott a\u00f0 vera ekki einn,\u201d segir h\u00fan hreinskilin, en \u00fea\u00f0 er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 segja a\u00f0 fj\u00f6lskyldan hafi fengi\u00f0 sinn skerf af m\u00f3tbyr \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum. Brynd\u00eds segir \u00fea\u00f0 frekar hafa styrkt samband \u00feeirra en nokku\u00f0 anna\u00f0.<br>\nSt\u00f3ra h\u00f6ggi\u00f0 kom \u00ed jan\u00faar 2013, \u00feegar Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur, d\u00f3ttir \u00feeirra, l\u00e9st skyndilega. Brynd\u00eds hefur unni\u00f0 \u00far sorginni me\u00f0 eiginmann sinn s\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0 og segir \u00fea\u00f0 hafa skipt \u00f6llu m\u00e1li a\u00f0 hafa styrk af honum. Engin \u00e1fallahj\u00e1lp, engin s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ivi\u00f0t\u00f6l, engin lyfjagj\u00f6f, ekkert pillufargan \u2013 bara einl\u00e6gar samverustundir \u00ed minningu Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar me\u00f0 fj\u00f6lskyldu og vinum.<br>\n\u201c\u00c9g er farin a\u00f0 reyna a\u00f0 l\u00edtum bj\u00f6rtum augum \u00e1 framt\u00ed\u00f0ina n\u00fana. \u00deetta er svo miki\u00f0 \u00f3r\u00e9ttl\u00e6ti, \u00fev\u00ed b\u00f6rnin eru framlenging af manni sj\u00e1lfum og \u00feau eiga a\u00f0 lifa lengur\u201d. \u00dea\u00f0 tekur \u00e1 Brynd\u00edsi a\u00f0 r\u00e6\u00f0a fr\u00e1fall d\u00f3ttur sinnar og augu hennar fyllast af t\u00e1rum. H\u00fan l\u00edtur undan og gefur s\u00e9r sm\u00e1 t\u00edma \u00e1\u00f0ur en h\u00fan heldur \u00e1fram.<\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 d\u00f3 eitthva\u00f0 inni \u00ed m\u00e9r \u00feegar \u00e9g missti Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i, en \u00e9g d\u00e6md til a\u00f0 lifa \u2013 \u00fe\u00f3tt ekki v\u00e6ri nema fyrir hana M\u00f6rtu okkar, einkad\u00f3ttur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar. \u00deetta er alveg \u00f3skiljanlegt og breytti \u00f6llu m\u00ednu l\u00edfsvi\u00f0horfi. \u00c9g missti tr\u00fana a\u00f0 miklu leyti, m\u00e9r finnst \u00e9g hafa veri\u00f0 svikin \u00ed trygg\u00f0um.\u201d Brynd\u00eds reynir hva\u00f0 h\u00fan getur a\u00f0 sj\u00e1 tilgang me\u00f0 d\u00f3tturmissinum, a\u00f0 finna einhverja r\u00e9ttl\u00e6tingu \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur hafi \u00feurft a\u00f0 deyja svona ung. \u201c\u00c9g f\u00f3r fyrst a\u00f0 gr\u00f6finni um daginn, \u00feegar \u00fea\u00f0 voru li\u00f0in tv\u00f6 \u00e1r, enda tr\u00fai \u00e9g ekki a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 \u00fear. En legsteinninn er fallegur og vi\u00f0 \u00e1ttum lj\u00fafa stund me\u00f0 vinkonum hennar.\u201d<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 skipti miklu m\u00e1li fyrir Brynd\u00edsi \u00feegar h\u00fan var a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 sorgina \u00ed upphafi, a\u00f0 komast \u00ed anna\u00f0 umhverfi. Fara burt fr\u00e1 \u00cdslandi. En \u00feau hj\u00f3nin voru \u00ed \u00fatl\u00f6ndum n\u00e6stum allt \u00e1ri\u00f0 eftir a\u00f0 Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur l\u00e9st, me\u00f0al annars \u00ed Viln\u00edus, h\u00f6fu\u00f0borg Lith\u00e1en, \u00fear sem J\u00f3n Baldvin er reyndar hei\u00f0ursborgari. \u201cHann gantast stundum me\u00f0 \u00fea\u00f0 , hva\u00f0a forr\u00e9ttindi fylgi vegsemdinni, engir skattar, fr\u00edtt \u00ed str\u00e6t\u00f3 og \u00f3keypis grafreitur, \u00feegar \u00fear a\u00f0 kemur. Hann kenndi \u00fear vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann og s\u00ed\u00f0ar vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Tartu, Eistlandi\u201d.<\/p>\n<p>Svo eiga \u00feau s\u00e9r athvarf \u00ed Andal\u00fas\u00edu \u2013 \u00ed ltlu \u00feorpi uppi \u00e1 kletti vi\u00f0 hafi\u00f0. H\u00fasi\u00f0 keyptu \u00feau fyrir lok \u00e1rsins 2007. Fyrst Brynd\u00eds var loksins b\u00fain a\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 sp\u00e6nskunni \u00fe\u00e1 vildi h\u00fan \u00f3lm eignast afdrep \u00e1 Sp\u00e1ni. Og eftir a\u00f0 hafa fylgt eiginmanni s\u00ednum \u00ed utanr\u00edkis\u00fej\u00f3nustunni \u00e1 annan \u00e1ratug, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00f3tti henni \u00fea\u00f0 ekki beinl\u00ednis heillandi tilhugsun a\u00f0 loka sig af \u00ed afdal \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<p>\u201cVi\u00f0 vissum a\u00f0 \u00fea\u00f0 var allt a\u00f0 fara til fjandans h\u00e9rna heima og \u00e1ttum sm\u00e1 pening \u00ed banka sem dug\u00f0i fyrir \u00feessu h\u00fasi,\u201d segir Brynd\u00eds og hl\u00e6r. \u201c\u00deetta er svipa\u00f0 og a\u00f0 b\u00faa \u00ed Mos\u00f3, eins og vi\u00f0 gerum \u00e1 \u00cdslandi, \u00ed n\u00e1b\u00fdli vi\u00f0 menningarborgina Reykjav\u00edk, sem \u00f3neitanlega hefur upp \u00e1 margt a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a, en samt utan vi\u00f0 hana \u00ed fri\u00f0s\u00e6ld Reykjadalsins. Eins er \u00fea\u00f0 me\u00f0 Salobrena. \u00deetta er l\u00edti\u00f0 \u00feorp \u00ed n\u00e1munda vi\u00f0 \u00ferj\u00e1r s\u00f6gufr\u00e6gar borgir, sem l\u00edka hafa upp \u00e1 margt a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u2013 Granada, Malaga, C\u00f3rdova\u201d b\u00e6tir h\u00fan vi\u00f0, en \u00feau dvelja um helming af \u00e1rinu \u00e1 Sp\u00e1ni.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds \u00e1tta\u00f0i sig ekki \u00e1 \u00fev\u00ed fyrr h\u00fan var\u00f0 sendiherrafr\u00fa \u00ed Washington, hve h\u00fan var \u00ed raun \u00f3frj\u00e1ls \u00e1 \u00cdslandi. \u201c\u00cd p\u00f3lit\u00edkinni f\u00e6r ma\u00f0ur ekki um frj\u00e1lst h\u00f6fu\u00f0 stroki\u00f0 og er st\u00f6\u00f0ugt undir sm\u00e1sj\u00e1 fj\u00f6lmi\u00f0la og almennings\u00e1lits, en \u00e9g \u00e1tta\u00f0i mig ekki \u00e1 \u00feessu til fulls fyrr en \u00e9g var komin \u00fat. \u00c9g m\u00e1tti ekki hreyfa mig \u00e1n \u00feess a\u00f0 um \u00fea\u00f0 v\u00e6ri r\u00e6tt og \u00feegar str\u00e6t\u00f3 keyr\u00f0i framhj\u00e1 h\u00fasinu okkar \u00e1 Vesturg\u00f6tu \u00fe\u00e1 h\u00e6g\u00f0i hann alltaf \u00e1 s\u00e9r til a\u00f0 f\u00f3lk g\u00e6ti k\u00edkt inn um eldh\u00fasgluggana hj\u00e1 okkur. Einhvern t\u00edma var\u00f0 m\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 bi\u00f0ja r\u00e1\u00f0herrab\u00edlstj\u00f3ra J\u00f3ns Baldvins a\u00f0 koma vi\u00f0 \u00ed Fiskb\u00fa\u00f0 Hafli\u00f0a, \u00fear sem \u00e9g \u00e1tti panta\u00f0an fisk \u00ed kv\u00f6ldmatinn. \u00deetta kalla\u00f0i \u00e1 fyrirsagnir \u00ed bl\u00f6\u00f0um um forr\u00e9ttindafr\u00fa og p\u00f3lit\u00edska spillingu. Stundum \u00e1tti r\u00e6tnin s\u00e9r engin takm\u00f6rk.\u201d<\/p>\n<p>\u00c1reiti\u00f0 haf\u00f0i \u00fer\u00f3ast h\u00e6gt og r\u00f3lega og var or\u00f0i\u00f0 e\u00f0lilegur hluti af l\u00edfi \u00feeirra hj\u00f3na. \u201cMig gruna\u00f0i \u00fe\u00f3 aldrei a\u00f0 f\u00f3lk v\u00e6ri illgjarnt e\u00f0a vildi ey\u00f0ileggja mig. \u00c9g fann i raun aldrei fyrir \u00e1reitinu fyrr en \u00fea\u00f0 allt \u00ed einu h\u00e6tti \u00feegar vi\u00f0 komum \u00fat. Hv\u00edl\u00edkur l\u00e9ttir.\u201d<\/p>\n<p>\u00cd Amer\u00edku vissi enginn hver Brynd\u00eds var og h\u00fan gat fari\u00f0 \u00f3\u00e1reitt inn \u00ed verslun og keypt s\u00e9r kj\u00f3l \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00e1 allra v\u00f6rum. \u201cM\u00e9r fannst \u00e9g allt \u00ed einu svo frj\u00e1ls og gat fari\u00f0 a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a mig og heg\u00f0a m\u00e9r, eins og \u00e9g vildi. \u00c1 \u00cdslandi var \u00e9g i\u00f0ulega valin verst kl\u00e6dda konan, af \u00fev\u00ed \u00e9g gekk ekki \u00ed f\u00f6tum fr\u00e1 Boss, Armani, e\u00f0a hva\u00f0 \u00feetta n\u00fa heitir allt saman.\u201d<\/p>\n<p>\u00cd Washington datt Brynd\u00eds \u00fe\u00f3 flj\u00f3tlega inn \u00ed i\u00f0andi menningarl\u00edf \u00ed tengslum vi\u00f0 sendir\u00e1\u00f0i\u00f0 og flj\u00f3tlega var\u00f0 sendir\u00e1\u00f0 \u00cdslands or\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feri\u00f0ja vins\u00e6lasta \u00ed Washington, samkv\u00e6mt sko\u00f0anak\u00f6nnunum. \u201c\u00c9g \u00feurfti sj\u00e1lf a\u00f0 sj\u00e1 um a\u00f0 elda \u00ed veislunum, en \u00e9g haf\u00f0i ekki einu sinni svuntu me\u00f0 m\u00e9r \u00fat. \u00c9g h\u00e9lt a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri svo f\u00ednt starf a\u00f0 vera sendiherrafr\u00fa, a\u00f0 \u00fea\u00f0 hvarfla\u00f0i ekki a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 elda. En svo reyndist \u00e9g bara vera listakokkur \u2013 a\u00f0 annarra s\u00f6gn \u2013 og f\u00e9kk miki\u00f0 hr\u00f3s fyrir. M\u00e1 \u00e9g ekki bara monta mig af \u00feessu n\u00fana?, spyr h\u00fan kankv\u00edslega.<\/p>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir m\u00f6rg \u00e1r a\u00f0 baki, \u00fe\u00e1 segist Brynd\u00eds l\u00edti\u00f0 finna fyrir aldrinum, enda er h\u00fan heilsuhraust.<br>\nHver er galdurinn? Daglega \u00ed r\u00e6ktinni? \u00c1 hlaupabrettum? Hefur h\u00fan l\u00edfsst\u00edlsform\u00falu a\u00f0 mi\u00f0la \u00f6\u00f0rum? \u201cEkkert af \u00feessu\u201d, segir Brynd\u00eds og bandar fr\u00e1 s\u00e9r hendinni. G\u00f6ngufer\u00f0ir \u00ed n\u00e1tt\u00farunni og sundi\u00f0, j\u00e1. Samt ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00e9g stunda miklu meiri \u00fativist og g\u00f6ngur \u00ed \u00feorpinu m\u00ednu \u00fearna su\u00f0ur fr\u00e1 en h\u00e9r heima.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 einna helst \u00e1 \u00cdslandi sem h\u00fan \u00e1ttar sig \u00e1 hva\u00f0 h\u00fan er or\u00f0in g\u00f6mul. \u201cMa\u00f0ur er eiginlega \u00fatsk\u00fafa\u00f0ur \u00far \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu, flokka\u00f0ur sem \u00f3vinnuf\u00e6r stofnanamatur upp \u00e1 n\u00e1\u00f0 og miskunn annarra. Ma\u00f0ur m\u00e1 varla hafa sko\u00f0anir, m\u00e1 ekki einu sinni s\u00e6kja um starf. \u00c1 \u00feessum aldri hefur f\u00f3lk mikla reynslu og \u00feekkingu en m\u00e1 ekki mi\u00f0la \u00feessari \u00feekkingu. \u00dev\u00edl\u00edkir ford\u00f3mar.\u201d Brynd\u00edsi finnst \u00feetta til skammar og segist finna mun minna fyrir \u00feessum aldursford\u00f3mum annars sta\u00f0ar \u00ed heiminum.<\/p>\n<p>H\u00fan heldur s\u00e9r ungri me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti, en \u00fe\u00f3 a\u00f0allega me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda s\u00ednu striki. \u201cMa\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 hafa gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 lifa og vera forvitinn. \u00c9g m\u00e1 ekki missa af neinu,\u201d segir h\u00fan hl\u00e6jandi. En \u00fea\u00f0 er svo sannarlega n\u00f3g a\u00f0 gera hj\u00e1 Brynd\u00edsi. \u00deau hj\u00f3n stunda menningarl\u00edfi\u00f0 af \u00e1huga, s\u00e6kja leikh\u00fas, t\u00f3nleika og lists\u00fdningar, taka \u00e1 m\u00f3ti gestum, halda miklar veislur og og k\u00edkja \u00e1 barina. \u201c\u00c9g \u00e6tla sko ekki a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 fara \u00e1 barinn. Ef \u00e9g flytti til Reykjav\u00edkur \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00e9g \u00f6rugglega alltaf \u00e1 b\u00f6runum,\u201d segir Brynd\u00eds og skellir upp \u00far. \u201cM\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 vera sj\u00e1lfsag\u00f0ur hluti af hversdagsl\u00edfinu, s\u00e9rstaklega eftir a\u00f0 hafa vanist \u00fev\u00ed sem \u00f3missandi \u00fe\u00e6tti daglegs l\u00edfs. Ma\u00f0ur er manns gaman, er \u00fea\u00f0 ekki?\u201d<\/p>\n<p>Eins og komi\u00f0 hefur fram eru Brynd\u00eds og J\u00f3n Baldvin miklir vinir og hafa haldi\u00f0 neistanum \u00ed hj\u00f3nabandi s\u00ednu \u00ed yfir fimmt\u00edu \u00e1r. En hver er lykillinn a\u00f0 svo fars\u00e6lu hj\u00f3nabandi? \u201cVi\u00f0 h\u00f6fum l\u00f6ngum og l\u00f6ngum veri\u00f0 a\u00f0skilin, eins og \u00f6ll \u00feessi sumur sem \u00e9g var a\u00f0 vinna erlendis. A\u00f0skilna\u00f0ur vekur upp s\u00f6knu\u00f0inn og skerpir \u00e1stina. \u00de\u00e1 kviknar \u00feessi neisti alltaf aftur. Svo er ekki gott fyrir konu a\u00f0 ver\u00f0a h\u00e1\u00f0 manni s\u00ednum, hvorki fj\u00e1rhagslega n\u00e9 \u00e1 annan h\u00e1tt. H\u00fan ver\u00f0ur a\u00f0 vera sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 og hafa r\u00fdmi til a\u00f0 fara s\u00ednu fram. Karlmanninum finnst \u00fea\u00f0 alveg jafn \u00f3\u00fe\u00e6gilegt og konunni ef h\u00fan hangir alltaf utan \u00ed honum.\u201d Brynd\u00eds segir \u00fe\u00f3 \u00fdmislegt hafa breyst \u00ed samskiptum \u00feeirra, fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feau h\u00e6ttu a\u00f0 fara anna\u00f0 til vinnu \u00e1 degi hverjum og f\u00f3ru a\u00f0 verja t\u00edmanum saman \u00e1 annan h\u00e1tt. \u201c\u00c9g var til d\u00e6mis v\u00f6n a\u00f0 stj\u00f3rna \u00f6llu innan h\u00fass, sm\u00e1u sem st\u00f3ru, fr\u00e1 vi\u00f0haldi og vi\u00f0ger\u00f0um a\u00f0 matseld og \u00f6\u00f0ru \u00feess h\u00e1ttar. En allt \u00ed einu finnst JB or\u00f0i\u00f0 gaman a\u00f0 elda og \u00fe\u00e1 reyni \u00e9g a\u00f0 for\u00f0a m\u00e9r. Hann er svona ma\u00f0ur sem fer n\u00e1kv\u00e6mlega eftir uppskriftinni en \u00e9g er meira fyrir a\u00f0 spila af fingrum fram \u2013 og \u00feannig er \u00fea\u00f0 l\u00edka me\u00f0 okkur \u00ed l\u00edfinu sj\u00e1lfu.\u201d<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er Brynd\u00eds sj\u00e1lfskipa\u00f0ur einkaritari eiginmanns s\u00edns, enda kann hann, a\u00f0 hennar s\u00f6gn, ekki \u00e1 lyklabor\u00f0i\u00f0 \u00e1 t\u00f6lvunni. H\u00fan segir hann ekki hafa v\u00e9lrita\u00f0 sj\u00e1lfur s\u00ed\u00f0an hann f\u00e9kk fyrst einkaritara \u00feegar hann var sk\u00f3lameistari \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. \u201cHann haf\u00f0i einkaritara \u00ed \u00f6llum s\u00ednum st\u00f6rfum eftir \u00fea\u00f0 svo hann hefur alveg gleymt \u00fev\u00ed hvernig \u00e1 a\u00f0 v\u00e9lrita. Hann getur \u00fev\u00ed ekki komi\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r svo miki\u00f0 sem br\u00e9fi nema \u00e9g s\u00e9 \u00e1 sta\u00f0num.\u201d Brynd\u00edsi lei\u00f0ist fyrkomulagi\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki neitt. \u00deetta eru \u00feeirra stundir saman og samvinnan endurspeglar hve vel \u00feau virka saman sem ein heild. H\u00fan vi\u00f0urkennir a\u00f0 \u00feau s\u00e9u \u00ed raun enn s\u00f6mu \u00e1stf\u00f6ngnu unglingarnir og \u00feau voru fyrir t\u00e6pum 60 \u00e1rum. \u201c\u00c1 endanum er \u00fea\u00f0 \u00e1stin sem skiptir \u00f6llu m\u00e1li, a\u00f0 lifa me\u00f0 og fyrir einhvern, \u00fea\u00f0 kemur ekkert \u00ed sta\u00f0inn fyrir \u00fea\u00f0,\u201d segir Brynd\u00eds \u00ed einl\u00e6gni a\u00f0 lokum.<\/p>\n<p>Og vi\u00f0 tekur myndataka, \u00fear sem h\u00fan vill a\u00f0 hatturinn f\u00e1i a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn sem v\u00edsun \u00ed fors\u00ed\u00f0u Vikunnar \u00e1ri\u00f0 1956, fyrstu st\u00f3ru myndina af henni \u00e1 opinberum vettvangi.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p><b>Brynd\u00eds Schram<\/b> er kona sem flestir \u00feekkja. H\u00fan hafur stigi\u00f0 v\u00ed\u00f0a ni\u00f0ur f\u00e6ti sem dansari, leikari, kennari, \u00fe\u00e1ttager\u00f0arkona og m\u00f3\u00f0ir, teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum og veri\u00f0 virk \u00ed samkv\u00e6misl\u00edfinu, b\u00e6\u00f0i innan lands og utan. L\u00edf hennar hefur \u00fe\u00f3 s\u00ed\u00f0ur en svo alltaf veri\u00f0 dans \u00e1 r\u00f3sum, en \u00e1 erfi\u00f0um t\u00edmum finnst henni mikilv\u00e6gt a\u00f0 geta halla\u00f0 s\u00e9r upp a\u00f0 eiginmanni s\u00ednum til 55 \u00e1ra, J\u00f3ni Baldvini Hannibalssyni. \u00deau hj\u00f3nin eru afar n\u00e1in en Brynd\u00eds segir \u00fe\u00f3 mikilv\u00e6gt a\u00f0 vera reglulega a\u00f0skilin. \u00deannig vi\u00f0haldi \u00feau neistanum. Bla\u00f0ama\u00f0ur settist ni\u00f0ur me\u00f0 Brynd\u00edsi og r\u00e6ddi um sorgir og sigra \u00ed l\u00edfinu, \u00e1stina, aldurinn og d\u00f3tturmissinn, sem er mesta raunin sem h\u00fan hefur \u00feurft a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-180","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/180","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=180"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/180\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":532,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/180\/revisions\/532"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=180"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=180"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=180"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}