{"id":181,"date":"2012-12-29T00:00:00","date_gmt":"2012-12-29T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2012\/12\/29\/betri-eru-tveir-en-einn\/"},"modified":"2020-09-23T09:03:12","modified_gmt":"2020-09-23T09:03:12","slug":"betri-eru-tveir-en-einn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2012\/12\/29\/betri-eru-tveir-en-einn\/","title":{"rendered":"\u201eBetri eru tveir en einn\u201c"},"content":{"rendered":"<p><i>\u201eBetri eru tveir en einn, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir hafa g\u00f3\u00f0 laun fyrir strit sitt. \u00dev\u00ed a\u00f0 falli annar \u00feeirra, \u00fe\u00e1 getur hinn reist f\u00e9laga sinn \u00e1 f\u00e6tur, en vei andst\u00e6\u00f0ingnum sem fellur og enginn annar er til a\u00f0 reisa \u00e1 f\u00e6tur\u201c.<\/i><\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00deessi tilvitnun \u00ed hinum \u00e6vaforna texta Pr\u00e9dikarans var John Steinbeck mj\u00f6g hugleikin. Hann vitnar til \u00feessara or\u00f0a \u00ed h\u00f6fu\u00f0verki s\u00ednu, \u201e\u00der\u00fagum rei\u00f0innar\u201c. \u00der\u00fagur rei\u00f0innar eru t\u00edmam\u00f3taverk. \u00d3brotgjarn minnisvar\u00f0i um Kreppuna miklu \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratug li\u00f0innar aldar, \u00feegar hi\u00f0 kapital\u00edska hagkerfi Bandar\u00edkjanna hrundi til grunna me\u00f0 skelfilegum aflei\u00f0ingum. Fj\u00e1rm\u00e1lakerfi\u00f0 hrundi, bankar ur\u00f0u gjald\u00ferota, sparif\u00e9 almennings glata\u00f0ist. Meira en fj\u00f3r\u00f0i hver ma\u00f0ur missti vinnuna. Skuldum vafnir b\u00e6ndur misstu jar\u00f0ir s\u00ednar og f\u00f3ru \u00e1 vergang. \u00d6rv\u00e6ntingarfull bar\u00e1tta uppflosna\u00f0ra manna og kvenna, sem  breyst h\u00f6f\u00f0u \u00ed \u00f6reigal\u00fd\u00f0 farandverkamanna, er rau\u00f0i \u00fer\u00e1\u00f0urinn \u00ed \u00der\u00fagum rei\u00f0innar. \u00c1 \u00e9g a\u00f0 g\u00e6ta br\u00f3\u00f0ur m\u00edns? \u00dea\u00f0 er hin st\u00f3ra spurning allra t\u00edma. Og \u00feegar kreppir a\u00f0,  \u00f6\u00f0last s\u00fa spurning d\u00fdpri og fl\u00f3knari merkingu, \u00fev\u00ed a\u00f0 hver er sj\u00e1lfum s\u00e9r n\u00e6stur. Bar\u00e1ttan um brau\u00f0i\u00f0 gerir mennina grimma og miskunnarlausa.<\/p>\n<p>\u00deessi saga \u00fej\u00f3\u00f0ar, hrun efnahagsl\u00edfsins og brostnar vonir, var\u00f0 Steinbeck a\u00f0 yrkisefni \u00ed fleiri verkum. M\u00fds og menn, sem kom \u00fat \u00e1ri\u00f0 1937 segir fr\u00e1 tveimur farandverkam\u00f6nnum, \u00feeim Georg og Lenna, sem \u00fev\u00e6last landshorna \u00e1 milli \u00ed leit a\u00f0 vinnu og f\u00f3tfestu \u00ed l\u00edfinu. \u00deeir eiga s\u00e9r sameiginlegan draum um a\u00f0 mega lifa af landsins g\u00e6\u00f0um og eru a\u00f0 safna, \u00fe\u00f3tt h\u00e6gt gangi.  Georg er skynsamur og me\u00f0 st\u00f3rt hjarta, Lenni er l\u00edtt gefinn en sterkur sem naut. \u00deeir eru \u00f3a\u00f0skiljanlegir vinir, Lenni d\u00fdrkar Georg og treystir \u00e1 hann, Georg verndar Lenna, er honum sem fa\u00f0ir og br\u00f3\u00f0ir. Fallegt samband en erfitt, \u00fev\u00ed a\u00f0 Lenni hugsar eins og barn og kemur \u00feeim f\u00e9l\u00f6gum oft \u00ed bobba me\u00f0 heg\u00f0un sinni.<\/p>\n<p>Lenni elskar allt sem er mj\u00fakt vi\u00f0komu, en hefur enga stj\u00f3rn \u00e1 hreyfingum s\u00ednum. Honum finnst gott a\u00f0 finna ylinn af l\u00edtilli m\u00fas \u00ed l\u00f3fa s\u00e9r, en ef h\u00fan s\u00fdnir m\u00f3t\u00fer\u00f3a, \u00fe\u00e1 tekur hann \u00e1 m\u00f3ti, og m\u00fasin deyr \u2013 alveg \u00f3vart. \u00deegar Lenni f\u00e6r a\u00f0 snerta h\u00e1r  st\u00falkunnar, sem er mj\u00fakt eins og l\u00edtil m\u00fas, tekur hann \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt \u00e1 m\u00f3ti, \u00feegar h\u00fan s\u00fdnir m\u00f3t\u00fer\u00f3a. St\u00falkan deyr \u00ed h\u00f6ndunum \u00e1 honum \u2013 alveg \u00f3vart. Georg, vinur hans, \u00e1 engra kosta v\u00f6l.<\/p>\n<p>Farandverkamenn eru skr\u00edtnir gaurar. \u00deeir eru \u00e1 fl\u00f3tta undan sj\u00e1lfum s\u00e9r, \u00e1reiti hversdagsl\u00edfsins, berast fr\u00e1 einu b\u00fdli til annars, \u00fer\u00e6la dag og n\u00f3tt, detta \u00ed \u00fea\u00f0 reglulega, fara \u00e1 h\u00f3ruh\u00fas \u00e1 \u00fatborgunardegi og hafa sko\u00f0anir \u00e1 \u00f6llu milli himins og jar\u00f0ar. \u00deeir eru einfarar, sj\u00e1lfum s\u00e9r n\u00e6stir,  \u00f3ttast n\u00e1in samskipti, og skilja alls ekki af hverju Georg er a\u00f0 p\u00fakka upp \u00e1 \u00feetta ofvaxna barn, Lenna, sem eru honum bara til ama.  En \u00feeir eru einmana, og innst inni \u00fer\u00e1 \u00feeir vin\u00e1ttu og sam\u00fa\u00f0. \u00dea\u00f0 eiga \u00feeir sameiginlegt me\u00f0 okkur \u00f6llum hinum \u2013 betri eru tveir en einn.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er forvitnilegt a\u00f0 skyggnast inn \u00ed b\u00fasta\u00f0 farandverkamanna og sj\u00e1 \u00fe\u00e1 lifna \u00e1 svi\u00f0inu hvern \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum. The\u00f3d\u00f3r, \u00der\u00f6stur Le\u00f3, \u00de\u00f3rir, Valur Freyr, Kjartan, Halld\u00f3r, Sigur\u00f0ur \u00de\u00f3r \u2013 og hundurinn M\u00e1ni \u2013 hafa greinilega lagt mikla vinnu og andlegar p\u00e6lingar \u00ed \u00feetta \u00fer\u00f6ngt skor\u00f0a\u00f0a karlasamf\u00e9lag, sem er einhvern veginn utan og ofan vi\u00f0 l\u00edf venjulegs f\u00f3lks.   Hver og ein pers\u00f3na er dregin sk\u00fdrum dr\u00e1ttum, hver er annarri kaldh\u00e6\u00f0nari, s\u00e9rviskulegri og  &#8211; undarlegt nokk \u2013 manneskjulegri. \u00dea\u00f0 m\u00e1 n\u00e6stum \u00fev\u00ed segja, a\u00f0 The\u00f3d\u00f3r J\u00fal\u00edusson vinni enn einn leiksigurinn \u00ed hlutverki Candys. The\u00f3d\u00f3r hefur til a\u00f0 bera \u00feessa au\u00f0m\u00fdkt gagnvart leiklistinni, sem er svo falleg.<\/p>\n<p>Kona Curleys kemur \u00e1 \u00f3vart. Af lestri b\u00f3kar skyldi ma\u00f0ur \u00e6tla, a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri da\u00f0urgj\u00f6rn og lausl\u00e1t, einmana og eir\u00f0arlaus, en me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fela \u00c1lfr\u00fanu \u00d6rn\u00f3lfsd\u00f3ttur \u00feetta hlutverk, hefur leikstj\u00f3ri kosi\u00f0 a\u00f0 fara inn \u00e1 a\u00f0ra braut. Hann vill, a\u00f0 kona Curleys veki me\u00f0 Lenna s\u00f6mu tilfinningar og d\u00fdrin \u00ed sk\u00f3ginum, sem hann \u00fer\u00e1ir a\u00f0 leggja vi\u00f0 brj\u00f3st s\u00e9r og l\u00e1ta vel a\u00f0. H\u00fan \u00e1 a\u00f0 vera mj\u00fak eins og m\u00fasin, kvik eins og kan\u00ednurnar og h\u00e6r\u00f0 eins og hvolparnir. H\u00fan \u00e1 a\u00f0 vera grannvaxin, f\u00ednger\u00f0, barnsleg, me\u00f0 st\u00f3r augu og s\u00edtt, mj\u00fakt h\u00e1r. Engin leikkona \u00f6nnur en \u00c1lfr\u00fan fellur svo vel a\u00f0 \u00feessum hugmyndum leikstj\u00f3ra. Hins vegar hef\u00f0i m\u00e1tt velja henni fatna\u00f0, sem betur h\u00e6f\u00f0i n\u00fdgiftri konu en saklausri sk\u00f3lastelpu.<\/p>\n<p>\u00d3lafur Darri er magna\u00f0ur leikari. Hann fyllir \u00fat \u00ed svi\u00f0i\u00f0 og hefur sterka n\u00e6rveru. \u00dea\u00f0 er alger sj\u00f3nhverfing a\u00f0 sj\u00e1, hvernig honum tekst a\u00f0 b\u00faa til barn \u00far \u00feessum st\u00f3ra \u00feunga l\u00edkama s\u00ednum.  \u00deegar hann brosir, lj\u00f3ma augun eins og \u00ed barni, \u00feegar hann gr\u00e6tur, setur hann upp skeifu eins og barn. \u00dea\u00f0 eina, sem m\u00e9r finnst orka tv\u00edm\u00e6lis, er m\u00e1lfari\u00f0. \u00de\u00fd\u00f0ing \u00d3lafs J\u00f3hanns Sigur\u00f0ssonar er falleg og v\u00f6ndu\u00f0, en stundum hlj\u00f3mar \u00edslenskan of fullor\u00f0inslega \u00far munni barnsins \u2013 \u00e9g tala n\u00fa ekki um \u00ed munni fatla\u00f0s barns.<\/p>\n<p>Hilmar er l\u00edka vaxandi \u00ed s\u00ednu starfi. Hann \u00e1 ekki langan feril a\u00f0 baki, en allt sem hann gerir, gerir hann vel, af miklum tr\u00faver\u00f0ugleik og l\u00edtill\u00e6ti. Georg stendur Hilmari n\u00e6rri, leikurinn er  \u00e1reynslulaus og sannf\u00e6randi. \u00dea\u00f0 eina, sem gekk ekki alveg upp a\u00f0 m\u00ednu mati var lokasenan. \u00dear fannst m\u00e9r Hilmari fatast flugi\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann tr\u00fa\u00f0i ekki \u00e1 \u00fea\u00f0, sem hann var a\u00f0 gera. En \u00fear er au\u00f0vita\u00f0 vi\u00f0 leikstj\u00f3rann sj\u00e1lfan, J\u00f3n P\u00e1l Eyj\u00f3lfsson, a\u00f0 eiga.<\/p>\n<p>J\u00f3n P\u00e1ll er me\u00f0 fr\u00e1b\u00e6ran h\u00f3p listamanna s\u00e9r til samstarfs og skilar m\u00f6gnu\u00f0u verki, en af hverju breytir hann upphaflega textanum? Hann l\u00e6tur Georg skj\u00f3ta Lenna \u00far \u00feriggja metra fjarl\u00e6g\u00f0, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 standa \u00fe\u00e9tt upp vi\u00f0 vin sinn, tala um fyrir honum, lei\u00f0a hann inn \u00ed draumalandi\u00f0 og leyfa honum a\u00f0 deyja me\u00f0 bros \u00e1 v\u00f6r. A\u00f0eins \u00feannig er h\u00e6gt a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 dau\u00f0a Lenna. (Til hvers var hundurinn M\u00e1ni dreginn inn \u00e1 svi\u00f0, fengi\u00f0 hlutverk \u00ed hendur, nema til \u00feess a\u00f0 kenna okkur, hvernig vi\u00f0 dey\u00f0um besta vin okkar \u00e1n s\u00e1rsauka?)<\/p>\n<p>Umgj\u00f6r\u00f0in utan um farandverkamenn og anna\u00f0 \u00fatigangsf\u00f3lk er svol\u00edti\u00f0 yfir\u00feyrmandi \u00ed h\u00f6ndum Ilmar Stef\u00e1nsd\u00f3ttur. St\u00f3rskornir stakkar, sem geyma afrakstur erfi\u00f0ismanna vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 m\u00f6nnum og d\u00fdrum fyrir f\u00f3\u00f0ri, velta fram svi\u00f0i\u00f0 og gefa l\u00edti\u00f0 r\u00fam til athafna. En kannski er \u00fea\u00f0 l\u00edka \u00e6tlunin. Farandverkamenn b\u00faa \u00fer\u00f6ngt. \u00deeim er \u00e6tla\u00f0 l\u00edti\u00f0 r\u00fdmi. En l\u00fdsing Bj\u00f6rns Bergsteins gefur \u00feessum st\u00f6kkum l\u00edf og dul\u00fa\u00f0 vi\u00f0 h\u00e6fi.  T\u00f3nlist snillingsins Dav\u00ed\u00f0s \u00de\u00f3rs b\u00e6tir svo um betur me\u00f0 dramat\u00edskum undirt\u00f3n, sem gefur s\u00f6gunni um m\u00fds og menn fyllingu og una\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g sat \u00e1 sj\u00f6tta bekk \u00ed Borgarleikh\u00fasinu, svo a\u00f0 \u00e9g heyr\u00f0i vel. Svo geri \u00e9g r\u00e1\u00f0 fyrir, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 betri hlj\u00f3mbur\u00f0ur \u00fear en \u00ed eldri byggingu \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins (en \u00fear sat \u00e9g \u00e1 t\u00f3lfta bekk \u00e1 frums\u00fdningu Macbeths og kvarta\u00f0i undan a\u00f0 heyra ekki). Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur velti \u00e9g \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r, hvort  kennslu \u00ed raddbeitingu og frams\u00f6gn s\u00e9 eitthva\u00f0 \u00e1b\u00f3tavant \u00ed leiklistarsk\u00f3lum n\u00fat\u00edmans. \u00d3lafur Darri hefur fr\u00e1 n\u00e1tt\u00farunnar hendi st\u00f3ran brj\u00f3stkassa og hlj\u00f3mmikla r\u00f6dd og hann sker sig \u00far a\u00f0 \u00feessu leyti. En \u00fea\u00f0 geta allir haft r\u00f6dd eins og \u00d3lafur Darri, bara ef \u00feeir leggja sig eftir \u00fev\u00ed og f\u00e1 kennslu.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Borgarleikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdnir:  M\u00fds og menn eftir John Steinbeck<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3rn: J\u00f3n P\u00e1ll Eyj\u00f3lfsson<br \/>\nA\u00f0sto\u00f0arleikstj\u00f3rn: J\u00f3n Atli J\u00f3nasson<br \/>\nLeikmynd: Ilmur Stef\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nB\u00faningar: Ilmur Stef\u00e1nsd\u00f3ttir, Anna Kolfinna Kuran<br \/>\nT\u00f3nlist: Dav\u00ed\u00f0 \u00de\u00f3r J\u00f3nsson<br \/>\nL\u00fdsing: Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0: Gunnar Sigurbj\u00f6rnsson<br \/>\nLeikgervi: Margr\u00e9t Benediktsd\u00f3ttir<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-181","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/181","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=181"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/181\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":564,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/181\/revisions\/564"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=181"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=181"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=181"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}