{"id":182,"date":"2013-02-14T00:00:00","date_gmt":"2013-02-14T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2013\/02\/14\/panodil-handa-thjodhetjum\/"},"modified":"2020-09-23T09:02:58","modified_gmt":"2020-09-23T09:02:58","slug":"panodil-handa-thjodhetjum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2013\/02\/14\/panodil-handa-thjodhetjum\/","title":{"rendered":"Pan\u00f3d\u00edl handa \u00fej\u00f3\u00f0hetjum"},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 var  gaman \u00e1 \u00feessum \u00e1rum, \u00feegar Brynja og Erlingur t\u00f3ku upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 byggja \u201eSkemmtih\u00fas\u201c inni \u00ed s\u00ednum eigin gar\u00f0i \u00ed hjarta borgarinnar. Ekkert var \u00feeim ofvi\u00f0a, \u00feessum gla\u00f0beittu hj\u00f3num.  \u00deetta skemmtih\u00fas var\u00f0 eins konar \u00f6grun vi\u00f0 atvinnuleikh\u00fasin tv\u00f6, uppl\u00edfgandi vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 annars  heldur f\u00e1broti\u00f0 leiklistarl\u00edf  Reykjav\u00edkur. Brynja var engum l\u00edk. H\u00fan l\u00e9t ekki au\u00f0veldlega a\u00f0 stj\u00f3rn,  og naut s\u00edn best, \u00feegar h\u00fan vann sj\u00e1lfst\u00e6tt og f\u00f3r s\u00ednar eigin lei\u00f0ir &#8211;   b\u00e6\u00f0i frj\u00f3  \u00ed hugsun  og hugvits\u00f6m. Gafst aldrei upp.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>H\u00fasi\u00f0 er byggt eins og ba\u00f0stofa, langt og mj\u00f3tt, og gestum er bo\u00f0i\u00f0 til s\u00e6tis beggja megin undir s\u00fa\u00f0. Leikarar ver\u00f0a a\u00f0 taka mi\u00f0 af  \u00fev\u00ed, sn\u00faa s\u00e9r \u00e1 alla vegu  eins og \u00ed leikh\u00fasum mi\u00f0alda.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var mikill sl\u00e1ttur \u00e1 Brynju og Erlingi \u00e1 \u00feessum \u00e1rum og oft glatt \u00e1 hjalla \u00ed skemmtih\u00fasinu. \u00dearna s\u00e1 \u00e9g \u00ed fyrsta sinn leikrit Brynju um Gu\u00f0r\u00ed\u00f0i \u00deorbjarnard\u00f3ttur, v\u00ed\u00f0f\u00f6rlustu konu mi\u00f0alda,  og seinna Gunnlaugss\u00f6gu Ormstungu \u00ed leikger\u00f0 Benedikts sonar Brynju og sk\u00f3lasystur hans Halld\u00f3ru, sem voru b\u00e6\u00f0i n\u00fd\u00fatskrifu\u00f0 \u00feegar h\u00e9r var komi\u00f0 s\u00f6gu.  \u00deessi verk v\u00f6ktu athygli langt \u00fat fyrir landsteinana og nutu vins\u00e6lda \u00e1rum saman.<\/p>\n<p>Mig minnir, a\u00f0 \u00e1starsaga Ormstungu hafi veri\u00f0 ein\u00fe\u00e1ttungur og \u00fe\u00f3 nokkru styttri en s\u00fa s\u00fdning, sem frums\u00fdnd var \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00feann 8. feb. s.l.. Hvort  lengingin er til b\u00f3ta, er \u00e9g ekki alveg viss um, en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur ver\u00f0ur sagan \u00f3neitanlega \u00edtarlegri og n\u00e1kv\u00e6mari fyrir viki\u00f0. \u00dea\u00f0 er dvali\u00f0 lengur vi\u00f0 einst\u00f6k atri\u00f0i, nostra\u00f0 vi\u00f0 \u00feau,  og \u00feau lifa \u00ed minningunni lengi \u00e1 eftir. Allt \u00ed miniature.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g st\u00f3\u00f0 upp a\u00f0 lokinni s\u00fdningu, var m\u00e9r efst \u00ed huga hi\u00f0 \u00f3tr\u00falega \u00ferek, hugvitsemi, fimi  og farsakennd  leikbr\u00f6g\u00f0  \u00ed t\u00falkun \u00feessarar \u00fe\u00fasund \u00e1ra g\u00f6mlu s\u00f6gu fr\u00e1 frumb\u00fdlings\u00e1rum  n\u00fdb\u00faa \u00e1 \u00cdslandi. \u00dea\u00f0 var ekki sagan sj\u00e1lf, sem fanga\u00f0i hug minn fyrst og fremst, heldur pers\u00f3nurnar, sem segja okkur s\u00f6guna,  bl\u00e1sa \u00ed hana l\u00edfi og gera hana svo raunverulega, a\u00f0 \u00fea\u00f0 ja\u00f0rar vi\u00f0 a\u00f0 vera \u00f3\u00fe\u00e6gilegt. Minnir um margt \u00e1 Ionesco e\u00f0a leikh\u00fas f\u00e1r\u00e1nleikans, sem birtir okkur n\u00fdja og \u00f3\u00feekkta n\u00e6rmynd af mannl\u00edfinu.<\/p>\n<p>Benedikt segist \u00ed vi\u00f0tali hafa fitna\u00f0 \u00e1 \u00feessum sautj\u00e1n \u00e1rum,  &#8211; \u00fe\u00f3 n\u00fa v\u00e6ri \u2013 kannski honum veiti ekki \u00e1 a\u00f0 taka sig \u00f6gn \u00e1 &#8211; hann er \u00e1 m\u00f6rkum \u00feess a\u00f0 vera of \u00feungur  \u2013 ( \u00fe\u00f3 svo hann hafi virst fisl\u00e9ttur \u00e1 t\u00f6ltinu, r\u00e9tt eins og riddari beint \u00fat \u00far evr\u00f3pskri mi\u00f0aldas\u00f6gu). Halld\u00f3ra (eftir nokkur stykki b\u00f6rn) er hins vegar eins og lauf \u00ed sk\u00f3gi, fl\u00f6grar um svi\u00f0i\u00f0, st\u00edgur vart til jar\u00f0ar . t\u00e6lir og tort\u00edmir  \u2013  flag\u00f0 undir f\u00f6gru skinni.<\/p>\n<p><i>\u201e\u00cdsland, fars\u00e6lda fr\u00f3n, og hags\u00e6lda hr\u00edmhv\u00edta m\u00f3\u00f0ir, hvar er \u00fe\u00edn fornaldar fr\u00e6g\u00f0, frelsi\u00f0 og mannd\u00e1\u00f0in best?.\u201c <\/i>&#8230;. Me\u00f0 \u00feessa fyrirmynd  J\u00f3nasar \u00ed huga l\u00e6r\u00f0um  vi\u00f0 \u00cdslandss\u00f6guna,  og \u00e9g veit ekki til \u00feess, a\u00f0 s\u00f6gub\u00e6kurnar hafi  hr\u00f3fla\u00f0 vi\u00f0 upphafinni t\u00falkun sk\u00e1ldsins s\u00ed\u00f0an \u00e9g var \u00ed barnask\u00f3la.  <i>\u201eOg \u00fe\u00e1 komu fe\u00f0urnir fr\u00e6gu og frj\u00e1lsr\u00e6\u00f0ishetjurnar g\u00f3\u00f0u, austan um hyld\u00fdpishaf,  hinga\u00f0 \u00ed s\u00e6lunnar reit\u201c.<\/i>..  Ja, s\u00e9r er n\u00fa hver s\u00e6lureiturinn!  Hrollurinn hr\u00edslast um l\u00edkamann, \u00fear sem vi\u00f0 sl\u00e1umst \u00ed f\u00f6r me\u00f0 a\u00f0alpers\u00f3nunum og skr\u00ed\u00f0um inn b\u00e6jarg\u00f6ngin, l\u00e1g og dimm. \u00d3sj\u00e1lfr\u00e1tt gr\u00edpum vi\u00f0 fyrir vitin vegna megnrar f\u00fdlu, sem leggur \u00e1 m\u00f3ti okkur. (\u00cdslendingar ku hafa skori\u00f0 sig \u00far \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum vegna andremmu og hlandf\u00fdlu!)<\/p>\n<p>Og \u00e1 hinum helga sta\u00f0, Almannagj\u00e1<i> \u201e\u00fear sem al\u00feingi fe\u00f0ranna st\u00f3\u00f0\u201c<\/i>, er ekki beint kr\u00e6sileg a\u00f0koma.  \u00dear liggja helstu h\u00f6f\u00f0ingjar landsins  \u00e1 milli \u00fe\u00fafna \u00ed eigin sp\u00fdju eftir svall n\u00e6turinnar. \u201eG\u00f3\u00f0i gefu m\u00e9r pan\u00f3d\u00edl\u201c! er \u00fea\u00f0 eina sem \u00feeir megna a\u00f0 bi\u00f0ja um, \u00feegar gesti ber a\u00f0 \u00ed morguns\u00e1ri\u00f0..<\/p>\n<p>Fr\u00e9tta\u00fatsendingin \u00far br\u00fa\u00f0kaupi aldarinnar \u00ed Borgarfir\u00f0i, \u00fear sem b\u00e6\u00f0i Helga hin fagra og Gunnlaugur, vonbi\u00f0ill hennar, eru \u00ed a\u00f0alhlutverki, er einhver besta \u00fatf\u00e6rsla, sem ma\u00f0ur hefur s\u00e9\u00f0 \u00e1 leiksvi\u00f0i lengi, lengi. E\u00f0a \u00fe\u00e1 samtal hj\u00f3nanna, A\u00f0alr\u00e1\u00f0s Englandskonungs og  Queen Emmu &#8211;  sem ekki s\u00e9st og enginn heyrir \u00ed, en er \u00fe\u00f3 lj\u00f3slifandi komin. \u00dea\u00f0 var magna\u00f0. (\u00dea\u00f0 samtal sannar okkur l\u00edka, a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru fleiri en vi\u00f0, \u00cdslendingar, sem voru illa gefnir og \u00f3danna\u00f0ir).<\/p>\n<p>Unglingarnir kvarta undan \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00cdslandssagan s\u00e9 svo uppskr\u00fafu\u00f0 og h\u00e1t\u00ed\u00f0leg, og a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 erfitt a\u00f0 einbeita s\u00e9r vi\u00f0 lesturinn.  Hvenig v\u00e6ri a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00feeim \u00ed leikh\u00fasi\u00f0 og s\u00fdna \u00feeim, hva\u00f0 upplifun s\u00f6gunnar getur veri\u00f0 skemmtileg og uppfr\u00e6\u00f0andi \u00ed senn &#8211; bara ef ma\u00f0ur hefur augun opin og sko\u00f0ar sm\u00e1a letri\u00f0, eins og \u00feau Benedikt og Halld\u00f3ra hafa au\u00f0sj\u00e1anlega gert?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1starsaga Ormstungu.  Frums\u00fdnd \u00ed Borgarleikh\u00fasinu 9. Febr\u00faar.<\/p>\n<p>Leikendur:<br \/>\nBenedikt Erlingsson<br \/>\nHalld\u00f3ra Geirhar\u00f0sd\u00f3ttir<br \/>\nH\u00f6fundar:<br \/>\nBenedikt Erlingsson, Halld\u00f3ra Geirhar\u00f0sd\u00f3ttir og Peter Engkvist<br \/>\nLeikstj\u00f3rn: Peter Engkvist<br \/>\nLeikmynd: H\u00f3purinn<br \/>\nB\u00faningar: H\u00f3purinn<br \/>\nL\u00fdsing: Gar\u00f0ar Borg\u00fe\u00f3rsson og \u00de\u00f3r\u00f0ur Orri P\u00e9tursson<br \/>\nS\u00fdningarstj\u00f3rn: Christopher Astridge <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-182","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/182","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=182"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/182\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":563,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/182\/revisions\/563"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=182"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=182"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=182"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}