{"id":190,"date":"2015-05-21T00:00:00","date_gmt":"2015-05-21T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/05\/21\/hinn-slavneski-lifshaski\/"},"modified":"2020-09-23T08:49:16","modified_gmt":"2020-09-23T08:49:16","slug":"hinn-slavneski-lifshaski","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/05\/21\/hinn-slavneski-lifshaski\/","title":{"rendered":"Hinn slavneski l\u00edfsh\u00e1ski"},"content":{"rendered":"<p>Hv\u00edtar steinhellurnar bera enn lit bl\u00f3\u00f0sins, f\u00e1narnir standa uppi og myndir af hinum f\u00f6llnu blasa vi\u00f0 forvitnum fer\u00f0al\u00f6ngum. \u201cEn hvar eru \u00f6ll bl\u00f3min\u201d, spur\u00f0i \u00e9g lei\u00f0s\u00f6gukonuna. \u201c \u00de\u00fa \u00e1tt vi\u00f0 bl\u00f3min, sem f\u00f3lk bar a\u00f0 til a\u00f0 hei\u00f0ra minningu hinna f\u00f6llnu? H\u00e9r var miki\u00f0 bl\u00f3mahaf, alveg r\u00e9tt, en \u00ed skj\u00f3li n\u00e6tur voru bl\u00f3min hirt og seld aftur sem n\u00fd daginn eftir\u201d, sag\u00f0i h\u00fan og glotti. \u00c9g horf\u00f0i \u00e1 hana undrandi og hrygg &#8211; jafnvel \u00e1 \u00f6rlagastundu er ma\u00f0urinn samur vi\u00f0 sig.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>S\u00f3lin var komin h\u00e1tt \u00e1 loft. Samt anda\u00f0i k\u00f6ldu, mi\u00f0ur apr\u00edl.  \u00dea\u00f0 var hrollur \u00ed m\u00e9r.<\/p>\n<p>____________________________<\/p>\n<p>A\u00f0 v\u00edsu h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 haft einhvern pata af \u00fev\u00ed, a\u00f0 gestgjafar okkar v\u00e6ru bankamenn me\u00f0 einhver umsvif \u00ed Eistlandi. \u00deess vegna spur\u00f0um vi\u00f0 eistneska vini fr\u00e1 fornu fari, hvort \u00feetta v\u00e6ru fj\u00e1rpl\u00f3gsmenn? \u00deeir fullvissu\u00f0u okkur um, a\u00f0 \u00feessi n\u00e1ungar v\u00e6ru O.K. Engin fur\u00f0a. \u00dea\u00f0 sem vakti fyrir \u00f3l\u00edgarkanum, sem \u00e1tti bankann, var a\u00f0 koma \u00fev\u00ed til skila til hinna ofurr\u00edku \u2013  og hinna n\u00e6stum \u00fev\u00ed r\u00edku \u00ed \u00dakra\u00ednu \u2013  a\u00f0 peningarnir \u00feeirra v\u00e6ru \u00ed \u00f6ruggu skattaskj\u00f3li \u00ed Eistlandi. Eistland v\u00e6ri hi\u00f0 n\u00fdja Sviss nor\u00f0ursins. Bara \u00f6ruggara!<\/p>\n<p>Vi\u00f0 t\u00f3kum or\u00f0 vina okkar \u00ed Eistlandi tr\u00faanleg og l\u00e9tum slag standa. Vi\u00f0 t\u00edmdum ekki missa af \u00feeirri l\u00edfsreynslu a\u00f0 sj\u00e1 me\u00f0 eigin augum \u2013  og eiga or\u00f0asta\u00f0 \u2013  vi\u00f0 f\u00f3lk, sem lif\u00f0i vi\u00f0 stanslausar h\u00f3tanir Vladimirs Putin og vissi \u00ed raun ekkert, hva\u00f0 morgundagurinn b\u00e6ri \u00ed skauti s\u00e9r. Enda kom \u00e1 daginn, a\u00f0 r\u00e6\u00f0a JB var \u00e1g\u00e6tur inngangur a\u00f0 a\u00f0alefni r\u00e1\u00f0stefnunnar \u2013 Hva\u00f0 getum vi\u00f0 l\u00e6rt af  Eystrasalts\u00fej\u00f3\u00f0um?<\/p>\n<p>Kyiv er \u00f3gnvekjandi borg, greinilega bygg\u00f0 \u00e1 t\u00edmum r\u00fassnesku keisaranna \u2013  v\u00ed\u00f0\u00e1ttumikil str\u00e6ti og risavaxnar hallir \u2013   hallir, sem hef\u00f0u r\u00fama\u00f0  alla r\u00fassnesku  hir\u00f0ina, \u00e1 me\u00f0an h\u00fan var og h\u00e9t, og eitthva\u00f0 miki\u00f0 st\u00f3\u00f0 til.  Champs \u00c9lysees bliknar \u00ed samanbur\u00f0i. Alla vega er ekki nokkur lei\u00f0 a\u00f0 arka yfir brei\u00f0g\u00f6turnar \u00e1 s\u00ednum eigin f\u00f3tum eins og \u00ed Par\u00eds, heldur er manni v\u00edsa\u00f0 \u00e1 \u00f3ral\u00f6ng g\u00f6ng ne\u00f0an jar\u00f0ar, \u00fear sem i\u00f0ar \u00f6nnur ver\u00f6ld, upptendru\u00f0 af neonlj\u00f3sum og l\u00edflegri sm\u00e1kaupmennsku. B\u00fa\u00f0 vi\u00f0 b\u00fa\u00f0, l\u00edfs\u00fereytt andlit, sem draga a\u00f0 s\u00e9r athygli og ota a\u00f0 manni v\u00f6rum, allt fr\u00e1 sm\u00e1barnask\u00f3m upp \u00ed r\u00famd\u00fdnur. T\u00edminn leyf\u00f0i ekki langan stans, og \u00e9g \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 komast \u00fat til a\u00f0 draga a\u00f0 m\u00e9r ferskt loft.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 vorum alltaf me\u00f0 l\u00edfv\u00f6r\u00f0 \u00e1 h\u00e6lunum og ofurnettar lei\u00f0s\u00f6gukonur, sem t\u00falku\u00f0u hvert or\u00f0, sem vi\u00f0 s\u00f6g\u00f0um, yfir \u00e1 r\u00fassnesku!  \u00de\u00e6r viku ekki fr\u00e1 okkur, vildu allt fyrir okkur gera.  Svo f\u00ednar \u00ed tauinu og svo vel snyrtar me\u00f0 slegi\u00f0 h\u00e1r \u00e1 t\u00edu sentimetra h\u00e1um h\u00e6lum, a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed hversdagsleik m\u00ednum. \u00dear a\u00f0 auki me\u00f0 \u00f3lakka\u00f0ar neglur \u00ed g\u00f6mlum bandask\u00f3m, (sem \u00e9g s\u00e1, a\u00f0 \u00fe\u00e6r sko\u00f0u\u00f0u grant, \u00feegar \u00fe\u00e6r h\u00e9ldu, a\u00f0 \u00e9g t\u00e6ki ekki eftir!). \u00c9g var alltaf a\u00f0 reyna a\u00f0 fela t\u00e6rnar og l\u00edka t\u00f6skuna \u2013\u00feessa sv\u00f6rtu tu\u00f0ru, sem er komin til \u00e1ra sinna,  \u00far s\u00e9r gengin og gamaldags. M\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 \u00f3r\u00e9ttl\u00e1tt af gestgj\u00f6funum a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a lei\u00f0s\u00f6gukonur okkar \u00ed fatna\u00f0 fr\u00e1 Boss og Armani og Gucci \u2013 nema \u00feeir hafi haldi\u00f0, sem er au\u00f0vita\u00f0 ekki \u00f3l\u00edklegt, a\u00f0 \u00e9g ger\u00f0i \u00fea\u00f0 l\u00edka \u2013 og \u00feess vegna \u00feessir l\u00edfver\u00f0ir. Stelpur sem hafa efni \u00e1 Armani \u00feurfa greinilega l\u00edfv\u00f6r\u00f0 \u00ed h\u00f6fu\u00f0borg \u00dakra\u00ednu \u2013 og \u00fe\u00f3tt v\u00ed\u00f0ar v\u00e6ri leita\u00f0.<\/p>\n<p>Nema hva\u00f0 \u2013 vi\u00f0 bjuggum \u00e1 nosturslegu n\u00fduppger\u00f0u h\u00f3teli \u00ed elsta hluta borgarinnar. Herbergi\u00f0 okkar var r\u00f3srautt, og okkur var fagna\u00f0 vi\u00f0 komuna um mi\u00f0ja n\u00f3tt me\u00f0 r\u00f3sum \u00ed sama lit. R\u00e1\u00f0stefnan var l\u00edka \u00e1 h\u00f3telinu, svo a\u00f0 vi\u00f0 komumst ekkert \u00fat fyrstu tvo dagana. Eftir r\u00e1\u00f0stefnuna var dotti\u00f0 \u00ed \u00fea\u00f0, miki\u00f0 skrafa\u00f0 og skeggr\u00e6tt \u2013 vodka og Kyiv kj\u00faklingar \u00e1 bor\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00c9g komst a\u00f0 \u00fev\u00ed, a\u00f0 s\u00e6ta lei\u00f0s\u00f6gukonan okkar var systurd\u00f3ttir eiganda bankans \u2013 \u00feess sem st\u00f3\u00f0 fyrir r\u00e1\u00f0stefnunni. H\u00fan haf\u00f0i veri\u00f0 send \u00ed sk\u00f3la \u00e1 Englandi \u00e1 \u00e1ttunda \u00e1ri, og fari\u00f0 v\u00ed\u00f0a um Evr\u00f3pu. Regluleg heimsdama af r\u00fassneskum Gy\u00f0inga\u00e6ttum, og var greinilega v\u00f6n a\u00f0 gefa skipanir og a\u00f0 vera hl\u00fdtt. L\u00edfv\u00f6r\u00f0urinn st\u00f3\u00f0 s\u00edna plikt \u00ed bakherberginu allt kv\u00f6ldi\u00f0.  Pabbi hennar er hins vegar \u2013 e\u00f0a var, \u00e1\u00f0ur en Putin f\u00f3r r\u00e1nshendi um h\u00e9ra\u00f0i\u00f0 \u2013 einn r\u00edkasti v\u00ednframlei\u00f0andi \u00e1 Kr\u00edmskaganum. Um \u00feessar mundir var hann, \u00e1samt m\u00f6mmu, a\u00f0 reyna a\u00f0 jafna sig eftir \u00e1falli\u00f0 \u00e1 j\u00f3gan\u00e1mskei\u00f0i \u00ed Indlandi.  Allt \u00feetta t\u00f3kst henni a\u00f0 segja m\u00e9r undir bor\u00f0um, \u00e1 me\u00f0an h\u00fan dreypti \u00e1 vatninu \u2013  en \u00e9g naut v\u00ednsins.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00f6\u00f0rum degi var JB kalla\u00f0ur \u00ed bla\u00f0avi\u00f0t\u00f6l. \u00c1 me\u00f0an f\u00f3r \u00e9g \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0 um n\u00e1grenni\u00f0 og sko\u00f0a\u00f0i mannl\u00edfi\u00f0. \u00dea\u00f0 voru ekki margir \u00e1 ferli, en allir brostu til m\u00edn, gla\u00f0legir og vingjarnlegir \u2013 f\u00f3lk sem bar af s\u00e9r g\u00f3\u00f0an \u00feokka. En Kyivb\u00faar l\u00edkjast Sp\u00e1nverjum a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti, a\u00f0 \u00feeir sem ekki kunna \u00feeirra st\u00f3rkostlega tungum\u00e1l, hafa greinilega ekkert a\u00f0 segja. En hva\u00f0 um \u00fea\u00f0, misskiptingin blasti  vi\u00f0 \u00e1 hverju g\u00f6tuhorni. F\u00e1t\u00e6kir ganga \u00feungum skrefum me\u00f0 hoki\u00f0 bak og pokasjatta \u00ed fanginu \u2013 \u00e1 me\u00f0an l\u00faxusl\u00edm\u00f3s\u00ednur \u00feeysa hj\u00e1 og gefa sk\u00edt \u00ed hyski\u00f0.<\/p>\n<p>Loksins \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi gafst okkur t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 fara \u00ed sko\u00f0unarfer\u00f0 um borgina. Vi\u00f0 \u00f3kum \u00ed tveimum Mercedes bensum, \u00fev\u00ed a\u00f0 lei\u00f0s\u00f6gukonurnar h\u00f6f\u00f0u s\u00edn hvorn l\u00edfv\u00f6r\u00f0inn, og \u00fev\u00ed dug\u00f0i ekki einn b\u00edll. \u00dear me\u00f0 sluppu \u00fe\u00e6r vi\u00f0 a\u00f0 svara spurningum okkar um land og \u00fej\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 var svona k\u00e6ruleysislegur vonbrig\u00f0a- og uppgjafart\u00f3nn \u00ed or\u00f0um \u00feeirra. \u201cEkki gefa betlurunum peninga, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er f\u00f3lk, sem ekki nennir a\u00f0 vinna!\u201d Hver kannast ekki vi\u00f0 svona vi\u00f0horf?<\/p>\n<p>Kyiv er bygg\u00f0 \u00e1 sj\u00f6 h\u00e6\u00f0um  eins og R\u00f3maborg, og ef a\u00f0 Hitler hef\u00f0i ekki sprengt upp anna\u00f0 hvert h\u00fas \u00ed upphafi seinni heimstyrjaldarinnar \u2013  og ef a\u00f0 Stal\u00edn hef\u00f0i ekki byggt \u00fe\u00fasundir blokka \u00ed anda Sov\u00e9ttr\u00fabo\u00f0sins \u00ed sta\u00f0inn, \u00fe\u00e1 v\u00e6ri h\u00fan kannski enn jafn f\u00f6gur og R\u00f3m. En \u00ed \u00e1ranna r\u00e1s hefur h\u00fan  l\u00e1ti\u00f0 \u00e1 sj\u00e1, og peningarnir sem hugsanlega hef\u00f0u geta\u00f0 fari\u00f0 \u00ed vi\u00f0ger\u00f0ir og endurn\u00fdjun og fegrun, eru allir horfnir inn \u00ed skattaskj\u00f3l hinna ofurr\u00edku, \u00fea\u00f0an sem \u00feeir koma aldrei til baka inn \u00ed hagkerfi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1 fj\u00f3r\u00f0a degi flugum vi\u00f0 \u00e1fram til Malaga \u00ed gegnum  M\u00fcnchen. Svei m\u00e9r \u00fe\u00e1, ef \u00fea\u00f0 var ekki lj\u00faf tilfinning a\u00f0 vir\u00f0a fyrir s\u00e9r bl\u00f3mleg b\u00fdli og gr\u00e6na akra ofan \u00far h\u00e1loftunum og vita, a\u00f0 framundan bi\u00f0i vel skipulag\u00f0ur, bavar\u00edskur flugv\u00f6llur, \u00fear sem ekkert g\u00e6ti klikka\u00f0.  Allt undir kontr\u00f3l \u2013 \u00fe\u00fdsk Ordnung eftir hinn slavneska l\u00edfsh\u00e1ska.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mig haf\u00f0i aldrei \u00f3ra\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00e9g mundi einn g\u00f3\u00f0an ve\u00f0urdag standa \u00e1 Maidan, \u00feessu s\u00f6gulega torgi \u00ed Kyiv, h\u00f6fu\u00f0borg \u00dakra\u00ednu, \u00fear sem \u00f3\u00fereyjufullir borgarar komu saman fyrir r\u00e9tt r\u00famu \u00e1ri \u00ed uppreisn gegn spillingu stj\u00f3rnvalda \u2013   heimta\u00f0i r\u00e9ttl\u00e6ti og sanngirni, betra l\u00edf, bjartari framt\u00ed\u00f0 \u2013 \u00e1 torginu, \u00fear sem byltingin breyttist \u00ed bl\u00f3\u00f0ba\u00f0 og hinir hugdj\u00f6rfu f\u00e9llu fyrir byssuk\u00falum leigumor\u00f0ingja, forsetinn fl\u00fa\u00f0i land, boxarinn, Klitschko, var\u00f0 borgarstj\u00f3ri, og s\u00fakkula\u00f0ik\u00f3ngurinn, Poroschenko forseti. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-190","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/190","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=190"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/190\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":525,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/190\/revisions\/525"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=190"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=190"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=190"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}