{"id":191,"date":"2015-05-28T00:00:00","date_gmt":"2015-05-28T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/05\/28\/ad-myrda-yndi-sitt\/"},"modified":"2020-09-23T08:49:01","modified_gmt":"2020-09-23T08:49:01","slug":"ad-myrda-yndi-sitt","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/05\/28\/ad-myrda-yndi-sitt\/","title":{"rendered":"A\u00f0 myr\u00f0a yndi sitt"},"content":{"rendered":"<p>Sem \u00e9g er a\u00f0 beygja burt undan s\u00f3linni og inn \u00ed eitt glj\u00fafri\u00f0, stendur ekki groddalegur karlma\u00f0ur, merktur Guardia Civil, vi\u00f0 vegkantinn og gefur okkur merki um a\u00f0 nema sta\u00f0ar. \u2013 Satt a\u00f0 segja f\u00e6 \u00e9g alltaf sm\u00e1hr\u00e6\u00f0slukast, \u00feegar sp\u00e6nska l\u00f6ggan er annars vegar. Og fr\u00e1 \u00fev\u00ed var engin undantekning a\u00f0 \u00feessu sinni, \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri b\u00e6\u00f0i bl\u00e1edr\u00fa, me\u00f0 belti\u00f0 spennt og gl\u00e6n\u00fdtt \u00f6kust\u00edrteini \u00ed t\u00f6skunni. Ma\u00f0urinn var merktur Guardia Civil, nota bene \u2013  ekki Policia. \u00deeir eru komnir aftur \u2013 falangistarnir \u2013  hin sau\u00f0tryggu handbendi \u00f3gnarstj\u00f3rnarinnar, sem voru \u00feekkt fyrir algert miskunnarleysi \u00ed  samskiptum vi\u00f0 saklaust f\u00f3lk.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Nema hva\u00f0, \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a, opna gluggann og afhendi l\u00f6greglumanninum \u00f6kusk\u00edrteini\u00f0. Hann sn\u00fdr \u00fev\u00ed \u00e1 alla kanta, gla\u00f0hlakkalegur \u00e1 svip. M\u00e9r st\u00f6kk ekki bros, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g var enn svol\u00edti\u00f0 hr\u00e6dd \u2013  vissi  ekki hvort \u00fea\u00f0 var b\u00edllinn e\u00f0a \u00e9g, sem \u00fe\u00f3tti grunsamleg \u2013  \u00feetta er reyndar bara sm\u00e1kr\u00edli, komi\u00f0 til \u00e1ra sinna, rautt og kramb\u00falera\u00f0. Hva\u00f0 var svona grunsamlegt vi\u00f0 fer\u00f0ir okkar? \u2013  \u00deegar ma\u00f0urinn er b\u00fainn a\u00f0 ganga aftur fyrir b\u00edlinn, r\u00e9ttir hann m\u00e9r sk\u00edrteini\u00f0 \u00e1 n\u00fd og  gefur okkur leyfi til a\u00f0 halda \u00e1fram fer\u00f0 okkar.<\/p>\n<p>\u00c9g ver\u00f0 allt \u00ed einu svo gl\u00f6\u00f0 og  fyllist \u00feakkl\u00e6ti yfir a\u00f0 sleppa \u00far greipum Guardia Civil. Set b\u00edlinn \u00ed gang og segi si svona \u00ed lei\u00f0inni vi\u00f0 manninn, a\u00f0 hann hafi eiginlega n\u00e6stum veri\u00f0 b\u00fainn a\u00f0 hr\u00e6\u00f0a \u00far m\u00e9r l\u00edft\u00f3runa \u2013 og b\u00e6ti vi\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 \u00ed fari sp\u00e6nsku l\u00f6ggunnar, sem valdi \u00feessum \u00f3tta m\u00ednum. Og hverju haldi\u00f0 \u00fei\u00f0, a\u00f0 hann svari?  \u201eHafi\u00f0 \u00fe\u00e9r veri\u00f0 a\u00f0 lesa Garcia Lorca?\u201c  \u201eNei, ekki n\u00fdlega, en \u00e9g er mikill a\u00f0d\u00e1andi Garcia Lorca\u201c, svara \u00e9g \u00ed sakleysi m\u00ednu. \u201eEinmitt, \u00fea\u00f0 er \u00feess vegna sem \u00fe\u00e9r eru\u00f0 hr\u00e6ddar\u201c, segir hann og horfir \u00e1 mig sigri hr\u00f3sandi. \u201eGarcia Lorca var nefnilega drepinn, vegna \u00feess a\u00f0 hann dirf\u00f0ist a\u00f0 gagnr\u00fdna okkur \u00ed Guardia Civil, fr\u00fa m\u00edn g\u00f3\u00f0\u201c. \u00c9g gapti af undrun \u2013 \u00feetta kom \u00far svo \u00f3v\u00e6ntri \u00e1tt. Er \u00fea\u00f0 \u00feetta sem \u00feeir l\u00e6ra \u00ed kv\u00f6ldsk\u00f3la Guardia Civil? Augu hans l\u00fdstu af \u00f3stj\u00f3rnlegum hroka \u2013 e\u00f0a var \u00fea\u00f0 kannski sektarkennd? \u00c9g horf\u00f0i \u00e1 h\u00f6nd hans, sem h\u00e9lt um skefti\u00f0 \u00e1 skammbyssunni \u00ed h\u00e6gri vasa. Eitt augnablik var\u00f0 \u00e9g skelfingu lostin. Var aftur skolli\u00f0 \u00e1 borgarastr\u00ed\u00f0? \u00dea\u00f0 f\u00f3r um mig hrollur \u00ed geislum s\u00f3larinnar, sem var n\u00fa komin h\u00e1tt \u00e1 loft og l\u00fdsti ofan \u00ed  glj\u00fafri\u00f0.<\/p>\n<p>N\u00e6sta vor ver\u00f0a einmitt li\u00f0in \u00e1ttat\u00edu \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Federico Garcia Lorca \u2013  eitt mesta sk\u00e1ld allra t\u00edma \u2013  l\u00e9t l\u00edfi\u00f0 fyrir atbeina Guardia Civil h\u00e9r \u00ed n\u00e1grenninu \u2013 Granada. Hann var skotinn ofan \u00ed fj\u00f6ldagr\u00f6f a\u00f0 n\u00e6turlagi  \u00e1 afviknum sta\u00f0 eins og hver annar fl\u00e6kingshundur. L\u00edk hans hefur enn ekki fundist, og Sp\u00e1nverjar eru enn a\u00f0 reyna a\u00f0 fyrirgefa sj\u00e1lfum s\u00e9r \u00feennan \u00f3afturkallanlega gl\u00e6p \u2013 e\u00f0a a\u00f0 reyna a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta hann, eins og \u00feessi l\u00f6gga, sem n\u00fa sleppti h\u00f6ndinni af byssunni og banda\u00f0i okkur fr\u00e1 eins og fl\u00e6kingshundum.<\/p>\n<p>N340 \u2013  er \u00ed b\u00f3kum, sem fjalla um sp\u00e6nska borgarastr\u00ed\u00f0i\u00f0 (1936-1939), nefndur \u201eVegur dau\u00f0ans\u201c, e\u00f0a jafnvel \u201eHinn bl\u00f3\u00f0i drifni vegur\u201c. \u00dea\u00f0 var eftir \u00feessum sama vegi, sem  \u00fe\u00fasundir manna, kvenna og barna, reyndu \u00ed \u00f6rv\u00e6ntingu a\u00f0 for\u00f0a s\u00e9r \u00e1 fl\u00f3tta undan hatursa\u00f0ger\u00f0um Francos, minnug or\u00f0a hans: \u201eS\u00e1 sem ekki er me\u00f0 m\u00e9r, er \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r \u2013 og \u00fev\u00ed r\u00e9ttdr\u00e6pur\u201c. B\u00e6\u00f0i Hitler og Mussolini voru s\u00f6mu sko\u00f0unar, eins og \u00fei\u00f0 muni\u00f0, og til a\u00f0 s\u00fdna vel\u00fe\u00f3knun \u00ed verki sendu \u00feeir fj\u00f6lda herskipa inn \u00e1 Mi\u00f0jar\u00f0arhafi\u00f0. \u00cd \u00e1rsbyrjun 1937, \u00feegar fl\u00f3ttinn n\u00e1\u00f0i h\u00e1marki, var varpa\u00f0 akkerum h\u00e9r r\u00e9tt undan str\u00f6ndinni og d\u00fandra\u00f0 sprengjum \u00e1 mannfj\u00f6ldann, sem str\u00e1f\u00e9ll eins og flugur \u00e1 heitum vordegi. Reyndar var \u00feetta \u00ed febr\u00faar. En tugir \u00fe\u00fasunda l\u00e1gu \u00ed valnum, og \u00e1rum saman var ekki hirt um a\u00f0 safna l\u00edkamsleifum hinna f\u00f6llnu, sem rotnu\u00f0u utan vegar, vegfarendum til ama og angurs. \u00deess vegna \u00feetta nafn \u201eVegur dau\u00f0ans\u201c.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 sem er kannski hr\u00e6\u00f0ilegast vi\u00f0 \u00feetta allt saman er, a\u00f0 umheimurinn vir\u00f0ist ekki hafa haft hugmynd um, hva\u00f0 var \u00ed gangi h\u00e9r \u00e1 su\u00f0urodda Evr\u00f3pu \u2013 e\u00f0a kannski vildi hann ekki vita \u00fea\u00f0. Menn hugsu\u00f0u \u00fe\u00e1 eins og n\u00fa, \u00fatl\u00f6nd koma m\u00e9r ekki vi\u00f0, mig ragar ekki um vandam\u00e1l annarra \u00fej\u00f3\u00f0a.  Alla vega var s\u00e1ral\u00edti\u00f0 gert til a\u00f0 verja sp\u00e6nsku \u00fej\u00f3\u00f0ina, sem st\u00f3\u00f0 svo til varnarlaus gegn hinum volduga \u00f3vini.<\/p>\n<p>\u00c1ttat\u00edu \u00e1r eru li\u00f0in, \u00fea\u00f0 er ekki langur t\u00edmi, tv\u00e6r kynsl\u00f3\u00f0ir. Mamma var a\u00f0 vinna \u00ed Braunsverslun \u00ed Austurstr\u00e6ti \u00e1 \u00feessum \u00e1rum. \u00dear s\u00e1 pabbi hana fyrst.  Svo f\u00f3ru \u00feau me\u00f0 togara til \u00de\u00fdskalands \u00ed br\u00fa\u00f0kaupsreisu. Hugsi\u00f0 ykkur! Engin vandam\u00e1l, engar \u00e1hyggjur. \u2013 J\u00fa, a\u00f0 v\u00edsu, tugir \u00fe\u00fasunda hugsj\u00f3namanna v\u00ed\u00f0s vegar a\u00f0 \u00far heiminum \u2013 \u00fear \u00e1 me\u00f0al nokkrir \u00cdslendingar \u2013  ger\u00f0ust sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0ar \u00ed Brigadas Internationales til a\u00f0 verja l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00e1 Sp\u00e1ni. En \u00feeir m\u00e1ttu s\u00edn l\u00edtils gegn ofurvaldinu, sem voru fasistar\u00edki Evr\u00f3pu og eir\u00f0u engu. Venjulegt f\u00f3lk, b\u00e6ndur og b\u00faali\u00f0, b\u00f6rn og gamalmenni, r\u00e1fu\u00f0u um vegi landsins \u00ed leit a\u00f0 skj\u00f3li gegn hungri, kulda og ofbeldi. \u00dej\u00f3\u00f0in lif\u00f0i \u00ed st\u00f6\u00f0ugum \u00f3tta og allsleysi \u00e1rum saman. Og s\u00e1 \u00f3tti  er enn \u00fearna undir ni\u00f0ri \u2013 svipa\u00f0ur og s\u00e1 \u00f3tti, sem \u00e9g fann smj\u00f6r\u00feefinn af \u00feennan morgun \u00ed glj\u00fafrinu dj\u00fapa.<\/p>\n<p>P.s.<br>\nReyndar s\u00e1 \u00e9g \u00ed bl\u00f6\u00f0unum daginn eftir, a\u00f0 Guardia Civil hef\u00f0i gert rass\u00edu \u00ed Andal\u00fas\u00edu. Grunur l\u00e9k \u00e1, a\u00f0 einhverjar sp\u00e6nskar konur hef\u00f0u \u00feegi\u00f0 eitt \u00fe\u00fasund evrur fyrir a\u00f0 giftast h\u00e6lisleitendum \u00e1 Sp\u00e1ni. Gat veri\u00f0, a\u00f0 l\u00f6gregluma\u00f0urinn hafi haldi\u00f0, a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri sp\u00e6nsk og JB h\u00e6ttulegur ma\u00f0ur \u00ed leit a\u00f0 h\u00e6li?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g \u00e1tti m\u00e9r einskis ills von \u00feennan fagra f\u00f6studagsmorgun. S\u00f3lhv\u00edtur himinninn rann saman vi\u00f0 hafi\u00f0 bl\u00e1a, sem  b\u00e6r\u00f0ist varla \u00ed logninu. Vi\u00f0 vorum a\u00f0 aka eftir N340, sem er gamla \u00fej\u00f3\u00f0brautin me\u00f0 sj\u00f3num \u00e1 milli Malaga og Almer\u00edu.  Vegurinn \u00fdmist hangir utan \u00ed snarbr\u00f6ttum klettaveggjum e\u00f0a beygir inn \u00ed dj\u00fap glj\u00fafur, \u00fear sem jafnvel s\u00f3lin sj\u00e1lf n\u00e6r ekki a\u00f0 sk\u00edna \u00ed morguns\u00e1ri\u00f0. \u00c9g sat undir st\u00fdri. Vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um \u00e1 marka\u00f0inn \u00ed Almunecar.<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-191","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/191","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=191"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/191\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":524,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/191\/revisions\/524"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=191"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=191"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=191"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}