{"id":195,"date":"2015-08-31T00:00:00","date_gmt":"2015-08-31T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/08\/31\/erik-bidstedk1dd1-balletmeistari-thjodleikhussins-dainn-i-maik1dd1-2002\/"},"modified":"2020-09-23T08:47:57","modified_gmt":"2020-09-23T08:47:57","slug":"erik-bidstedk1dd1-balletmeistari-thjodleikhussins-dainn-i-maik1dd1-2002","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2015\/08\/31\/erik-bidstedk1dd1-balletmeistari-thjodleikhussins-dainn-i-maik1dd1-2002\/","title":{"rendered":"Erik Bidsted, balletmeistari \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins d\u00e1inn \u00ed ma\u00ed, 2002"},"content":{"rendered":"<p>Vi\u00f0 vorum ungar Reykjav\u00edkurmeyjar a\u00f0 st\u00edga okkar fyrstu dansspor inn \u00ed ver\u00f6ld leikh\u00fassins &#8211;  t\u00f6fraver\u00f6ld, \u00fear sem gr\u00e1r veruleikinn var skilinn eftir utan dyra. Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00far sk\u00f3laf\u00f6tunum, \u00edkl\u00e6ddumst gervi baller\u00ednunnar, settum h\u00e1ri\u00f0 \u00ed hn\u00fat og gutum gagnr\u00fdnum augum a\u00f0 st\u00f3rum speglum b\u00faningsherbergisins.  Bi\u00f0um spenntar eftir a\u00f0 dyrnar opnu\u00f0ust og meistarinn seg\u00f0i myndugri r\u00f6ddu: &#8220;V\u00e6r saa gode.&#8221;<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>M\u00e9r er \u00feetta allt saman svo lj\u00f3slifandi \u00ed minningunni. Vi\u00f0 stilltum okkur upp \u00ed r\u00f6\u00f0 fyrir framan speglana og byrju\u00f0um sl\u00e1\u00e6fingarnar. Bidsted gekk me\u00f0fram r\u00f6\u00f0inni, gagnr\u00fdndi hverja og eina &#8211; hver og ein f\u00e9kk sinn skammt: Bein \u00ed baki, inn me\u00f0 magann, halda h\u00f6f\u00f0inu h\u00e1tt &#8211; en, to, tre, en, to, tre&#8230;<\/p>\n<p>Svitinn boga\u00f0i af okkur. Vi\u00f0 reyndum a\u00f0 gera betur en vi\u00f0 g\u00e1tum, ekki skyldum vi\u00f0 gefast upp. Allt fyrir Bidsted.<\/p>\n<p>\u00c9g held vi\u00f0 h\u00f6fum allar elska\u00f0 hann \u00ed laumi. A\u00f0 v\u00edsu vorum vi\u00f0 svo ungar, a\u00f0 vi\u00f0 vissum ekki, hva\u00f0 \u00e1stin var. En vi\u00f0 \u00fer\u00e1\u00f0um heitt a\u00f0 gera honum til h\u00e6fis og a\u00f0 heyra hann segja eitthva\u00f0 fallegt og upp\u00f6rvandi vi\u00f0 okkur. \u00dea\u00f0 var a\u00f0alsmerki Bidsteds, a\u00f0 hann gat bl\u00e1si\u00f0 okkur \u00ed brj\u00f3st tr\u00fa \u00e1 sj\u00e1lfar okkur, tr\u00fa \u00e1 getu okkar og a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum a\u00f0 gera eitthva\u00f0, sem m\u00e1li skipti.<\/p>\n<p>St\u00e6rsta r\u00f3sin \u00ed hnappagati Bidsteds er og ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 Helgi T\u00f3masson, n\u00faverandi listr\u00e6nn stj\u00f3rnandi San Francisco-ballettsins. \u00dea\u00f0 m\u00e1 segja, a\u00f0 Bidsted hafi uppg\u00f6tva\u00f0 Helga sem barn og leitt hann inn \u00e1 \u00fe\u00e1 braut, sem reyndist honum seinna svo heilladrj\u00fag. \u00dea\u00f0 er kannski engin tilviljun, a\u00f0 n\u00fa hefur Helgi veri\u00f0 ger\u00f0ur a\u00f0 hei\u00f0ursdoktor vi\u00f0 hinn heimsfr\u00e6ga Juillard t\u00f3nlistarh\u00e1sk\u00f3la \u00ed New York.<\/p>\n<p>Bidsted var brautry\u00f0jandi. A\u00f0eins r\u00famu \u00e1ri eftir a\u00f0 stofna\u00f0ur var Balletsk\u00f3li \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins f\u00e6r\u00f0i hann upp s\u00fdningu, sem m\u00e1 segja a\u00f0 hafi or\u00f0i\u00f0 upphaf \u00feess bl\u00f3maskei\u00f0s, sem fylgdi \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. Mig minnir a\u00f0 hann hafi \u00e1 \u00feessari fyrstu s\u00fdningu fundi\u00f0 hlutverk fyrir sem n\u00e6st allar dansmeyjarnar. Fyrir hl\u00e9 ra\u00f0a\u00f0i hann okkur eftir st\u00e6r\u00f0 \u00ed tv\u00f6falda r\u00f6\u00f0 fram eftir svi\u00f0inu, \u00fe\u00e6r minnstu fremst og \u00fe\u00e6r st\u00e6rstu aftast, og s\u00ed\u00f0an var brug\u00f0i\u00f0 upp mynd af \u00fev\u00ed undirb\u00faningstarfi, sem unni\u00f0 er baksvi\u00f0s, \u00feegar eitthva\u00f0 miki\u00f0 stendur til.<\/p>\n<p>Seinni hluti s\u00fdningarinnar var ballettinn: &#8220;\u00c9g bi\u00f0 a\u00f0 heilsa&#8221; vi\u00f0 undurlj\u00fafa t\u00f3nlist Karls \u00d3 Run\u00f3lfssonar. Meistarinn sj\u00e1lfur br\u00e1 s\u00e9r \u00ed gervi sk\u00e1ldsins \u2013 \u00ed fuglsl\u00edki.<\/p>\n<p>\u201cN\u00fa andar su\u00f0ri\u00f0 s\u00e6la vindum \u00fe\u00fd\u00f0um, \u00e1 sj\u00f3num allar b\u00e1rur sm\u00e1ar r\u00edsa og flykkjast heim a\u00f0 f\u00f6gru landi \u00edsa\u2026\u201d<\/p>\n<p>Or\u00f0 J\u00f3nasar rifjast upp fyrir m\u00e9r h\u00e9r \u00e1 litlu gangst\u00e9ttarkaffih\u00fasi \u00ed listahverfi Mex\u00edk\u00f3borgar, \u00fear sem \u00e9g sit og hugsa til l\u00f6ngu li\u00f0inna daga.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 stelpurnar h\u00f6f\u00f0um aldrei s\u00e9\u00f0 alv\u00f6rudansm\u00e6r \u00e1\u00f0ur. Lisa Kj\u00e6regaard, fyrri eiginkona Bidsteds, var \u00f3gleymanleg \u00ed hlutverki st\u00falkunnar med rau\u00f0an sk\u00faf \u00ed peysu. Lisa var s\u00f3l\u00f3dansm\u00e6r vid Pantomime Teatret \u00ed T\u00edvol\u00edgar\u00f0inum \u00ed Kaupmannah\u00f6fn.<\/p>\n<p>\u00c9g var bara ein af m\u00f6rgum b\u00e1rum, sem \u201cflykktust heim a\u00f0 f\u00f6gru landi \u00edsa.\u201d \u00c9g man eins og \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00ed g\u00e6r. N\u00e6fur\u00feunnir kj\u00f3lar, fisl\u00e9ttir og s\u00e6gr\u00e6nir, v\u00f6f\u00f0ust eins og \u00feang utan um granna l\u00edkama okkar, \u00fear sem vi\u00f0 bylgju\u00f0umst um svi\u00f0i\u00f0  &#8211; reyndar s\u00e9 \u00e9g af g\u00f6mlum myndum, a\u00f0 \u00e1vali bylgjunnar \u00e1tti f\u00e1tt sameiginlegt med gelgjulimum \u00feessara t\u00e1ningsstelpna.<\/p>\n<p>\u00deessi \u00e6vint\u00fdrakv\u00f6ld fannst m\u00e9r sem allt v\u00e6ri fullkomna\u00f0 og a\u00f0 framvegis mundi \u00e9g sv\u00edfa dansandi gegnum l\u00edfi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00de\u00f6kk s\u00e9 Bidsted, sem n\u00fa er horfinn af svi\u00f0inu.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Bidsted \u00e1 \u00feetta inni hj\u00e1 \u00fe\u00e9r,&#8221; sag\u00f0i J\u00f3n Baldvin vi\u00f0 mig. Eftir \u00e1 a\u00f0 hyggja er \u00feetta alveg r\u00e9tt hj\u00e1 honum. Bidsted \u00e1 \u00fea\u00f0 svo sannarlega inni hj\u00e1 m\u00e9r, a\u00f0 \u00e9g minnist hans nokkrum or\u00f0um. <\/p>\n<p>Hann var minn mentor \u00e1 \u00e1runum milli tektar og tv\u00edtugs &#8211; fyrsti ma\u00f0urinn, m\u00e9r vandalaus, sem \u00e9g hreifst af, leit upp til, hlakka\u00f0i til a\u00f0 hitta \u00e1 hverjum degi \u00ed m\u00f6rg \u00e1r.<br \/>\nVi\u00f0 k\u00f6llu\u00f0um hann alltaf Bidsted &#8211; aldrei Erik, \u00fea\u00f0 gaf til kynna h\u00e6filega fjarl\u00e6g\u00f0. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,4],"tags":[],"class_list":["post-195","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-minningagreinar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/195","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=195"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/195\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":520,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/195\/revisions\/520"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=195"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=195"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=195"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}