{"id":211,"date":"2017-09-03T00:00:00","date_gmt":"2017-09-03T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2017\/09\/03\/eins-og-enginn-se-morgundagurinn\/"},"modified":"2020-09-23T08:43:43","modified_gmt":"2020-09-23T08:43:43","slug":"eins-og-enginn-se-morgundagurinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2017\/09\/03\/eins-og-enginn-se-morgundagurinn\/","title":{"rendered":"Eins og enginn s\u00e9 morgundagurinn"},"content":{"rendered":"<p>Vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 umgangast m\u00f3\u00f0ur j\u00f6r\u00f0 eins og enginn s\u00e9 morgundagurinn.<\/p>\n<p>Enn segjum vi\u00f0 bara takk, \u00feegar str\u00e1kurinn \u00e1 kassanum \u00ed B\u00f3nus spyr: M\u00e1 bj\u00f3\u00f0a \u00fe\u00e9r poka?  Einn e\u00f0a tvo? Hring eftir hring. Vi\u00f0  komum  aftur \u00ed b\u00fa\u00f0ina, dag eftir dag \u2013  og alltaf \u00feiggjum vi\u00f0 plastpoka.  Alveg hugsunarlaust.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Og \u00fe\u00f3! \u00dea\u00f0 fer um okkur sm\u00e1hrollur, \u00feegar fr\u00e9ttir t\u00edunda, hvernig st\u00f3rhveli me\u00f0 magann fullan af plasti  geispa golunni \u00e1 fjarl\u00e6gum str\u00f6ndum \u2013 e\u00f0a \u00feegar v\u00edsindamenn sta\u00f0festa, a\u00f0 \u00feessi fj\u00f6gur \u00fe\u00fasund manna risaskip ,sem l\u00f3na h\u00e9r \u00e1 ytri h\u00f6fninni \u00ed Reykjav\u00edk yfir sumart\u00edmann s\u00e9u dag og n\u00f3tt a\u00f0 sp\u00fa eiturgufum yfir borgina okkar \u2013  bara af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum svo k\u00e6rulaus og h\u00f6fum ekki sett okkur reglur eins og a\u00f0rar si\u00f0mennta\u00f0ar \u00fej\u00f3\u00f0ir um notkun svartol\u00edu.<\/p>\n<p>Erum vi\u00f0 a grafa okkar eigin gr\u00f6f? Vitandi vits?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 hla\u00f0a ni\u00f0ur b\u00f6rnum, eins og enginn s\u00e9 morgundagurinn, og allt \u00ed stakasta lagi. \u00deetta reddast, segja \u00cdslendingar gjarnan \u2013 e\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n<p>Var kannski allt \u00feetta Valger\u00f0i R\u00fanarsd\u00f3ttur \u00ed huga, \u00feegar h\u00fan settist ni\u00f0ur \u2013 e\u00f0a st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 \u00e6fingasl\u00e1na \u2013  me\u00f0 n\u00fdf\u00e6dda d\u00f3ttur s\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0, heltekin af \u00feeirri hugsun a\u00f0 reyna koma \u00e1 framf\u00e6ri skilabo\u00f0um til \u00fej\u00f3\u00f0ar sinnar:  <b>K\u00e6ra manneskja \u2013 vi\u00f0 flj\u00f3tum sofandi a\u00f0 feig\u00f0ar\u00f3si.<\/b><\/p>\n<p>Og \u00feegar upp er sta\u00f0i\u00f0, er \u00e9g ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 Valger\u00f0i hafi tekist a\u00f0 vekja okkur af v\u00e6rum blundi og uppger\u00f0ark\u00e6ruleysi. \u00dea\u00f0 var satt a\u00f0 segja h\u00e1lfger\u00f0ur hrollur \u00ed manni \u00e1 \u00fatlei\u00f0inni eftir frums\u00fdningu \u2013   \u00fer\u00e1tt fyrir s\u00e6tar k\u00f6kur \u00ed bo\u00f0i h\u00fassins, sem sl\u00f3gu \u00e1 \u00f3ttann og \u00f3brag\u00f0i\u00f0 \u00ed munninum.<\/p>\n<p>Svo m\u00e1 l\u00edka b\u00e6ta \u00fev\u00ed vi\u00f0, a\u00f0 \u00ed lokin sneru flytjendur alv\u00f6runni upp \u00ed gr\u00edn og glens me\u00f0 plastbr\u00fa\u00f0u, sem \u00feeir bl\u00e9su upp, \u00fear til h\u00fan yfirgn\u00e6f\u00f0i mannskapinn og ger\u00f0i sig l\u00edklega til a\u00f0 gleypa alla vi\u00f0stadda. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i h\u00fan eflaust gert, ef mannsh\u00f6ndin hef\u00f0i ekki gripi\u00f0 \u00ed taumana og sagt stopp, hinga\u00f0 og ekki lengra. Br\u00fa\u00f0an lyppa\u00f0ist ni\u00f0ur og minnti \u00e1 t\u00f3man B\u00f3nuspoka \u00e1 ruslahaug \u00ed lokin. \u00dea\u00f0 er nefnilega ma\u00f0urinn, sem \u00e1 s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>K\u00e6ra manneskja er \u00e1 margan h\u00e1tt m\u00f6gnu\u00f0 s\u00fdning, og \u00fea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 fleirum a\u00f0 \u00feakka en Valger\u00f0i \u2013 sem er frumkv\u00f6\u00f0ullinn. T\u00f3nsk\u00e1ldi\u00f0, \u00c1skell Har\u00f0arson,  \u00e1 ekki minnstan \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa s\u00fdningunni v\u00e6gi. \u00cd rauninni stj\u00f3rnar hann taktinum fr\u00e1 upphafi til enda , gefur s\u00fdningunni lit og brag\u00f0 og dramat\u00edska d\u00fdpt.<\/p>\n<p>\u00d6ll umger\u00f0in \u00ed \u00feessu \u00fer\u00f6nga r\u00fdmi Tjarnab\u00ed\u00f3s er svo sannalega eftirtektarver\u00f0. Margir ungir  listamenn leggja \u00fear h\u00f6nd \u00e1 pl\u00f3g, f\u00e1 \u00fatr\u00e1s fyrir brj\u00e1la\u00f0ar hugmyndir, nj\u00f3ta \u00feess a\u00f0 vera til og f\u00e1 a\u00f0 skapa a\u00f0 eigin vild. \u00dea\u00f0 er l\u00edfi\u00f0, og \u00fea\u00f0 er \u00f6fundsvert. Tjarnarb\u00ed\u00f3 \u00e1 framt\u00ed\u00f0ina fyrir s\u00e9r me\u00f0 n\u00fdju li\u00f0i og ferskum hugmyndum.<\/p>\n<p>Hring eftir hring. L\u00edfi\u00f0 endurtekur sig. Ein kynsl\u00f3\u00f0 tekur vi\u00f0 af annarri \u2013 og \u00f6ll \u00feurfum vi\u00f0 s\u00farefni. Vi\u00f0 getum ekki lifa\u00f0 \u00e1n s\u00farefnis. \u00deau gengu hring eftir hring \u00e1 svi\u00f0inu, aftur og aftur, ein kynsl\u00f3\u00f0 af annarri. Voru vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 ganga fram af manni. Sumir \u00e1horfenda litu \u00e1 klukkuna, voru a\u00f0 missa \u00feolinm\u00e6\u00f0ina. Allt me\u00f0 r\u00e1\u00f0um gert \u2013 nokku\u00f0 snjallt hj\u00e1 Valger\u00f0i.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 besta var eftir. \u00dea\u00f0 var dans hinnar \u00fer\u00edeinu manneskju \u00e1 dau\u00f0astundinni. Kannski var \u00fea\u00f0 ekki dans \u2013  heldur angistar\u00f3p, sem birtist \u00ed \u00f3tr\u00falegum \u2013 m\u00e1 \u00e9g segja grotesque \u2013  hreyfingum hinnar \u00f6rv\u00e6ntingarfullu manneskju \u2013 gapandi eftir s\u00farefni  &#8211; vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 gefa upp \u00f6ndina. \u00deetta voru \u00fe\u00e6r allar \u00ferj\u00e1r, Valger\u00f0ur, Sn\u00e6d\u00eds Lilja og V\u00e9d\u00eds. Allar hafa \u00fe\u00e6r brotist \u00fat \u00far vi\u00f0jum hins klass\u00edska danssk\u00f3la \u2013 e\u00f0a sneitt fram hj\u00e1 \u00feeim \u2013  fara n\u00fdjar sl\u00f3\u00f0ir, s\u00ednar eigin sl\u00f3\u00f0ir, sem eru hr\u00edfandi \u00ed frumst\u00e6\u00f0ri tj\u00e1ningu og ver\u00f0a \u00f3gleymanlegar eftir \u00feetta kv\u00f6ld. \u00deetta var birtingarmynd raunveruleikans, sem vi\u00f0 blasir komandi kynsl\u00f3\u00f0um, ef ekkert ver\u00f0ur a\u00f0 gert.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 flj\u00f3tum sofandi a\u00f0 feig\u00f0ar\u00f3si.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Frums\u00fdning \u00ed Tjarnab\u00ed\u00f3i K\u00e6ra manneskja<\/p>\n<p>Dansverk undir handlei\u00f0slu Valger\u00f0ar R\u00fanarsd\u00f3ttur \u2013                                                                    Flytjendur: Ragnar \u00cdsleifur Bragason, Sn\u00e6d\u00eds Lilja Ingad\u00f3ttir, Valger\u00f0ur R\u00fanarsd\u00f3ttir og  V\u00e9d\u00eds Kjartansd\u00f3ttir                                                                                                                                               T\u00f3nlist: \u00c1skell Har\u00f0arson                                                                                                                         Leikmyndir og b\u00faningar: Ragnhei\u00f0ur Ma\u00eds\u00f3l Sturlud\u00f3ttir                                                                     Lj\u00f3sah\u00f6nnun: Kristj\u00e1n Darri Kristj\u00e1nsson <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-211","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/211","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=211"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/211\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":506,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/211\/revisions\/506"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=211"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=211"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=211"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}