{"id":215,"date":"2018-01-15T00:00:00","date_gmt":"2018-01-15T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/01\/15\/throtlaust-utkall\/"},"modified":"2020-09-23T08:42:23","modified_gmt":"2020-09-23T08:42:23","slug":"throtlaust-utkall","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/01\/15\/throtlaust-utkall\/","title":{"rendered":"\u00derotlaust \u00fatkall"},"content":{"rendered":"<p>S\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0 er Dj\u00fap og J\u00f6kulfir\u00f0ir. \u00deetta er heljarsl\u00f3\u00f0arorrusta umkomulauss f\u00f3lks vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faru\u00f6flin \u2013 upp \u00e1 l\u00edf og dau\u00f0a. \u00dea\u00f0 hvarflar ekki a\u00f0 nokkrum manni, a\u00f0 \u00e1 \u00feessum n\u00e1str\u00f6ndum leynist b\u00e6jarheiti\u00f0 Una\u00f0sdalur \u2013 fegurst b\u00e6jarheiti \u00e1 \u00edslensku. Hva\u00f0 \u00fe\u00e1 heldur, a\u00f0 sj\u00e1lft N\u00f3belsk\u00e1ldi\u00f0 hafi l\u00fdst \u00fev\u00ed yfir, a\u00f0 fegursta b\u00f3karheiti \u00e1 \u00edslensku v\u00e6ri: Fr\u00e1 Dj\u00fapi og Str\u00f6ndum. \u00cd s\u00f6gum Kalmanns er nefnilega ekkert sumar.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Upp \u00e1 l\u00edf e\u00f0a dau\u00f0a, sag\u00f0i \u00e9g. \u00c1 \u00feessum sl\u00f3\u00f0um, og \u00e1 \u00feessum t\u00edmum \u2013 undir lok n\u00e6sts\u00ed\u00f0ustu aldar \u2013 var l\u00edfi\u00f0 mestan part \u00f3g\u00e6fa. Dau\u00f0inn l\u00edkn fr\u00e1 \u00feraut.<\/p>\n<p>S\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0urinn, fl\u00f3kinn en einfaldur \u00ed senn, spunninn upp \u00far \u00fer\u00edleik J\u00f3ns Kalmanns: Himnar\u00edki og helv\u00edti, Harmur englanna og Hjarta mannsins \u2013 t\u00e6plega \u00fe\u00fasund bla\u00f0s\u00ed\u00f0ur.<\/p>\n<p>S\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0urinn er einfaldur \u00ed \u00feeim skilningi, a\u00f0 allt sn\u00fdst \u00feetta um str\u00ed\u00f0 mannf\u00f3lksins vi\u00f0 ofurefli n\u00e1tt\u00farunnar um \u00fea\u00f0 a\u00f0 lifa af. Fl\u00f3ki\u00f0 \u00ed \u00feeim skilningi, a\u00f0 \u00ed hugarfylgsnum og s\u00e1larl\u00edfi \u00feessa umkomulausa f\u00f3lks lifa, \u00fer\u00e1tt fyrir allt, draumar og vonir um betra og fegurra mannl\u00edf.<\/p>\n<p>H\u00f6fundurinn, J\u00f3n Kalmann, er einn helsti galdrama\u00f0ur hugarflugsins \u00ed b\u00f3kmenntum samt\u00edmans. Or\u00f0 hans eru eins og \u201ebj\u00f6rgunasveitir \u00ed \u00ferotlausu \u00fatkalli\u201c, sem eiga a\u00f0 bjarga \u201eli\u00f0num atbur\u00f0um og slokknu\u00f0um l\u00edfum undan svartholi gleymskunnar\u201c.<\/p>\n<p>\u00cd texta h\u00f6fundarins \u00e1 s\u00ed\u00f0um \u00fer\u00edleiksins gera \u00feau \u00fea\u00f0. H\u00f6fundurinn h\u00f6f\u00f0ar til \u00edmyndunarafls lesandans, sem hverfur me\u00f0 honum aftur \u00ed t\u00edmann og setur sig \u00ed spor \u00feessa \u00f6rsnau\u00f0a f\u00f3lks \u00e1 hjara veraldar, \u00fear sem \u00fea\u00f0 heyr tv\u00eds\u00fdna bar\u00e1ttu vi\u00f0 ofurefli\u00f0. Lesandinn nemur or\u00f0 Kalmanns stundum sem t\u00f3nlist, stundum sem myndverk, en aldrei sem dau\u00f0an b\u00f3kstaf. \u00deetta getur gerst \u00ed hugarheimi lesandans. En er \u00feetta h\u00e6gt \u00e1 leiksvi\u00f0inu?<\/p>\n<p>\u00deeir f\u00e6rast ekki l\u00edti\u00f0 \u00ed fang, listr\u00e6nir stj\u00f3rnendur \u00feessarar s\u00fdningar, \u00feeir Bjarni J\u00f3nsson og Egill Hei\u00f0ar Anton J\u00f3nsson. B\u00e1\u00f0ir eru \u00ferautreyndir leikstj\u00f3rnendur. \u00deeir \u00feekkja af eigin reynslu, b\u00e6\u00f0i innan lands og utan, \u00fe\u00e1 t\u00e6kni, sem leiksvi\u00f0i\u00f0 b\u00fdr yfir vi\u00f0 a\u00f0 koma s\u00f6gu til skila \u00ed m\u00e1li, myndum og hlj\u00f3\u00f0um.<\/p>\n<p>Kannski h\u00f6fum vi\u00f0 aldrei s\u00e9\u00f0 anna\u00f0 eins \u00e1 \u00edslensku leiksvi\u00f0i. Hamslaus \u00f6ldugangur \u00e1 grimmu \u00fathafi, \u00fear sem opin b\u00e1tskel er eins og leikfang \u00ed heljargreipum hafsins. Manndr\u00e1psbylur \u00e1 reginfj\u00f6llum, \u00fear sem snj\u00f3hengjan h\u00f3tar dau\u00f0a og dj\u00f6fli. Og mannskepnan reynir a\u00f0 skr\u00ed\u00f0a \u00ed skj\u00f3l eins og s\u00e6rt d\u00fdr. Magna\u00f0!<\/p>\n<p>Hvernig kemur ma\u00f0ur \u00feessum \u00f3sk\u00f6pum til skila \u00e1 svi\u00f0inu?<\/p>\n<p>Til \u00feess a\u00f0 upplifa \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ma\u00f0ur einfaldlega a\u00f0 sj\u00e1 s\u00fdninguna. \u00cd \u00ferj\u00e1r klukkustundir s\u00e1tu frums\u00fdningargestir eins og bergnumdir inni \u00ed \u00feessari \u00f3gnarver\u00f6ld.<\/p>\n<p>St\u00f3ra svi\u00f0i\u00f0 er n\u00fdtt \u00fat \u00ed ystu m\u00f6rk. Engin afmarkandi leikmynd, bara myrkri\u00f0,  gnau\u00f0i\u00f0 og \u00f3ttinn, sem hangir \u00ed loftinu \u2013 og sverfur st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0. Stundum glittir \u00ed hamingjuna, \u00e1stina. En hafi\u00f0 er \u00f3gnvekjandi \u2013 \u00e9g tala n\u00fa ekki um, ef \u00fe\u00fa ert \u00f3syndur og \u00e1tt l\u00edf \u00feitt undir miskunnsemi Gu\u00f0s. \u00cd bakgrunninn er brug\u00f0i\u00f0 upp myndum af  teikningum \u00de\u00f3rarins Bl\u00f6ndal, sem eru hr\u00edfandi \u00ed einfaldleik s\u00ednum en um lei\u00f0 svo \u00f3tr\u00falega  grimmar. B\u00faningar Helgu, l\u00fdsing \u00de\u00f3r\u00f0ar Orra og undirliggjandi t\u00f3nlist Hj\u00e1lmars Helga magna upp steminguna. Ma\u00f0ur vill helst hj\u00fafra sig upp a\u00f0 sessunaut. Hva\u00f0 n\u00e6st?<\/p>\n<p>\u00de\u00fasund bla\u00f0s\u00ed\u00f0ur, sag\u00f0i \u00e9g,  t\u00f3lf leikarar \u00ed 23 hlutverkum \u00ed r\u00famlega \u00ferj\u00e1r klukkustundir \u00e1 svi\u00f0inu. \u00d6llum liggur miki\u00f0 \u00e1 hjarta og \u00feurfa a\u00f0 koma skilabo\u00f0um \u00e1lei\u00f0is. Allir vilja ver\u00f0a \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed s\u00f6gunni \u2013  s\u00f6gunni okkar. En t\u00edminn leyfir \u00fea\u00f0 ekki.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er bara str\u00e1kurinn, sem f\u00e6r \u00feann t\u00edma, sem hann \u00fearf. Hann er \u00e1 svi\u00f0inu allan t\u00edmann.  \u00deur\u00ed\u00f0ur Bl\u00e6r J\u00f3hannsd\u00f3ttir n\u00fdtir t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 og sl\u00e6r r\u00e6kilega \u00ed gegn \u00ed hlutverki str\u00e1ksins. H\u00fan dregur upp einl\u00e6ga, sannf\u00e6randi og kraftmikla mynd af \u00feessum lj\u00faflingi, sem saknar B\u00e1r\u00f0ar og er kominn \u00ed pl\u00e1ssi\u00f0 til a\u00f0 skila b\u00f3kinni. \u201eB\u00e1r\u00f0ur hugsa\u00f0i of miki\u00f0 um lj\u00f3\u00f0, gleymdi stakknum, og heimurinn var ekki samur\u201c, segir \u00e1 einum sta\u00f0.<\/p>\n<p>Sumir leika tv\u00f6 hlutverk, jafnvel \u00ferj\u00fa \u2013 og \u00fea\u00f0 er erfitt. \u00dea\u00f0 er fari\u00f0 hratt yfir s\u00f6gu, brug\u00f0i\u00f0 upp myndum, en sagan ekki s\u00f6g\u00f0 til enda. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 forvitnilegt a\u00f0 tala lengur vi\u00f0 Jens landp\u00f3st, sem fer \u00e1 flug \u00ed t\u00falkun Bergs \u00de\u00f3rs, e\u00f0a Andreu, sem a\u00f0 lokum flyst til Bjarna b\u00f3nda \u00e1 Nesi. M\u00e9r finnst Katla Margr\u00e9t hafa g\u00f3\u00f0a n\u00e6rveru \u00ed hlutverki Andreu, fangg\u00e6slunnar \u2013 en \u00fea\u00f0 var svol\u00edti\u00f0 erfitt a\u00f0 skilja \u00e1 milli hennar og Salvarar, vinnukonunnar af Str\u00f6ndinni.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 geta ekki allir komist a\u00f0 \u00ed svona margskiptri s\u00f6gu. Hef\u00f0i \u00fe\u00e1 m\u00e1tt stytta verki\u00f0? \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 hafa komi\u00f0 til tals og hef\u00f0i kannski veri\u00f0 til b\u00f3ta. \u00dea\u00f0 vefst \u00f6rugglega fyrir \u00feeim, sem ekki hafa lesi\u00f0 magnum opus Kalmanns a\u00f0 fylgjast me\u00f0 \u00ed afkimum og undirm\u00e1lum s\u00f6gunnar.<\/p>\n<p>Saga Geir\u00fer\u00fa\u00f0ar g\u00e6ti veri\u00f0 efni \u00ed a\u00f0ra leiks\u00fdningu. Geir\u00fer\u00fa\u00f0ur er bur\u00f0ar\u00e1sinn andsp\u00e6nis  hinu karll\u00e6ga og veitir hinum veika gr\u00f3\u00f0ri skj\u00f3l. H\u00fan br\u00fdtur allar hef\u00f0ir og er \u00e1 skj\u00f6n vi\u00f0 dansk\u00e6tta\u00f0a \u00feorpstilveruna. Harmur hennar a\u00f0 lokum er \u00f3gnvekjandi og minnir \u00e1 hetjur gr\u00edskra leikb\u00f3kmennta. Margr\u00e9t Vilhj\u00e1lmsd\u00f3ttir s\u00f3mir s\u00e9r vel \u00ed hlutverki Geir\u00fer\u00fa\u00f0ar, \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 ekki svarth\u00e6r\u00f0! Rautt er l\u00edka eggjandi, a\u00f0 s\u00f6gn!<\/p>\n<p>Er \u00fe\u00e1 einhver von? Ef draumur sk\u00e1ldsins um himnar\u00edki \u00e1 j\u00f6r\u00f0u getur ekki r\u00e6st, ver\u00f0um vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 l\u00e1ta okkur n\u00e6gja framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn feminismans? \u00c1t\u00f6kin milli hinna karll\u00e6gu og kvenlegu gilda standa \u00e1 milli \u00fatger\u00f0arau\u00f0valdsins, Fri\u00f0riks, sem Vali Frey Einarssyni, tekst snilldarlega a\u00f0 gera m\u00e1tulega fr\u00e1hrindandi, og hinna har\u00f0dr\u00e6gu sj\u00f3s\u00f3knara annars vegar,  og svo hins \u00f3har\u00f0na\u00f0a unglings (str\u00e1ksins) \u00ed skj\u00f3li Geir\u00fer\u00fa\u00f0ar hins vegar.<\/p>\n<p>M\u00edt\u00fa-hreyfingin l\u00e6\u00f0ist inn \u00ed s\u00fdninguna me\u00f0 st\u00f3ryrtum yfirl\u00fdsingum gegn \u201ehelv\u00edtis karlmennskunni\u201c. V\u00edst er kappi\u00f0 best me\u00f0 forsj\u00e1 (\u00fea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 hafa stakkinn me\u00f0 \u00ed r\u00f3\u00f0ur). En hver s\u00e6kir bj\u00f6rg \u00ed b\u00fa, ef engin er karlmennskan? Var \u00fea\u00f0 ekki B\u00fadda, sem leysti \u00ferautina og fann samr\u00e6mi\u00f0 \u00ed samhverfu andst\u00e6\u00f0nanna \u2013 yin og yang, karls og konu?<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0a \u2013 gl\u00e6sileg s\u00fdning, en kr\u00f6fuh\u00f6r\u00f0. \u00dea\u00f0 var n\u00e6stum eins og st\u00f3rbroti\u00f0 myndverki\u00f0 k\u00e6f\u00f0i \u00e1 stundum hinn ofursk\u00e1ldlega texta h\u00f6fundar.<\/p>\n<p>Er einhver bo\u00f0skapur? Hva\u00f0 segir Kalmann sj\u00e1lfur:<\/p>\n<p><i>\u201e\u00c9g hef heimildir fyrir \u00fev\u00ed, a\u00f0 allt s\u00e9 svo fullkomi\u00f0 \u00ed himnar\u00edki, a\u00f0 f\u00f3lk deyr \u00fear um aldur fram af t\u00f3mum lei\u00f0indum, en a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og fj\u00f6ri\u00f0 s\u00e9 \u00ed helv\u00edti&#8230;. Ef svo \u00f3l\u00edklega vildi til, a\u00f0 vi\u00f0 myndum n\u00e1 einhverri fullkomnun, \u00fe\u00e1 v\u00e6rum vi\u00f0 ekki lengur manneskjur. Heldur eitthva\u00f0  anna\u00f0\u201c.<\/i><\/p>\n<p>Og eitt, sem \u00e9g gleymdi a\u00f0 minnast \u00e1:                                                                                    S\u00f3lr\u00fan Ylfa Ingimarsd\u00f3ttir \u00ed hlutverki Lilju, litlu systur str\u00e1ksins, sem honum \u00fe\u00f3tti svo v\u00e6nt um, \u00e1 me\u00f0an h\u00fan lif\u00f0i, fylgir honum \u00ed svefni og v\u00f6ku. Segir aldrei or\u00f0, en leikur hennar \u00e1 fi\u00f0luna er \u00f3gleymanlegur \u2013 fullur sakna\u00f0ar, \u00e1star og trega.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brynd\u00eds Schram skrifar um Himnar\u00edki og helv\u00edti, eftir J\u00f3n Kalmann Stef\u00e1nsson. Frums\u00fdnt \u00ed Borgarleikh\u00fasinu 11. jan\u00faar, 2018.<\/p>\n<p>Listr\u00e6nir stj\u00f3rnendur: <\/p>\n<blockquote><p>Leikger\u00f0: Bjarni J\u00f3nsson<br \/>\nLeikstj\u00f3rn: Egill Hei\u00f0ar Anton P\u00e1lsson<br \/>\nLeikmynd og kvikmynd: Egill Ingibergsson<br \/>\nB\u00faningar: Helga I. Stef\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00fdsing: \u00de\u00f3r\u00f0ur Orri P\u00e9tursson<br \/>\nFrumsamin t\u00f3nlist og og hlj\u00f3\u00f0mynd: Hj\u00e1lmar H. Ragnarsson<br \/>\nTeikningar og kvikun: \u00de\u00f3rarinn Bl\u00f6ndal<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0: Baldvin \u00de\u00f3r Magn\u00fasson<br \/>\nLeikgervi: Helga I. Stef\u00e1nsd\u00f3ttir og \u00c1rd\u00eds Bjarn\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir<br \/>\nS\u00fdningarstj\u00f3rn: P\u00e1la Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir og Vigd\u00eds Perla Maack<\/p><\/blockquote>\n<p>Leikarar: <\/p>\n<blockquote><p>\u00deur\u00ed\u00f0ur Bl\u00e6r J\u00f3hannsd\u00f3ttir<br \/>\nMargr\u00e9t Vilhj\u00e1lmsd\u00f3ttir<br \/>\nSigr\u00fan Edda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir<br \/>\nKatla Margr\u00e9t \u00deorgeirsd\u00f3ttir<br \/>\nBirna R\u00fan Eir\u00edksd\u00f3ttir<br \/>\nBergur \u00de\u00f3r Ing\u00f3lfsson<br \/>\nValur Freyr Einarsson<br \/>\nHannes \u00d3li \u00c1g\u00fastsson<br \/>\nHaraldur Ari Stef\u00e1nsson<br \/>\nBj\u00f6rn Stef\u00e1nsson<br \/>\nP\u00e9tur Eggertsson<br \/>\nS\u00f3lr\u00fan Ylfa Ingimarsd\u00f3ttir<\/p><\/blockquote>\n<p><i>\u201eOr\u00f0in okkar eru eins konar bj\u00f6rgunarsveitir \u00ed \u00ferotlausu \u00fatkalli, \u00fe\u00e6r eiga a\u00f0 bjarga li\u00f0num atbur\u00f0um og slokknu\u00f0um l\u00edfum undan svartholi gleymskunnar, og \u00fea\u00f0 er alls ekki sm\u00e1tt hlutverk,\u201c<\/i> segir h\u00f6fundur \u00ed upphafi fyrstu b\u00f3kar. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-215","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/215","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=215"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/215\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":499,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/215\/revisions\/499"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=215"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=215"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=215"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}