{"id":218,"date":"2018-02-16T00:00:00","date_gmt":"2018-02-16T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/02\/16\/karlmannslaus-i-kulda-og-trekki-bryndis-schram-skrifar-um-loaboratorium\/"},"modified":"2020-09-23T08:41:44","modified_gmt":"2020-09-23T08:41:44","slug":"karlmannslaus-i-kulda-og-trekki-bryndis-schram-skrifar-um-loaboratorium","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/02\/16\/karlmannslaus-i-kulda-og-trekki-bryndis-schram-skrifar-um-loaboratorium\/","title":{"rendered":"Karlmannslaus \u00ed kulda og trekki. Brynd\u00eds Schram skrifar um L\u00f3aborator\u00edum"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g hef \u00fea\u00f0 sterklega \u00e1 tilfinningunni, a\u00f0 n\u00fd kynsl\u00f3\u00f0 kvenna s\u00e9 endanlega a\u00f0 leggja undir sig \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 (kannski heiminn?). A\u00f0 Me-too byltingin s\u00e9 eins konar lokahnykkur str\u00ed\u00f0s, sem sta\u00f0i\u00f0 hefur yfir fr\u00e1 \u00f6r\u00f3fi alda. Frj\u00e1lsar konur. Og n\u00fa l\u00e1tum vi\u00f0 loks til skarar skr\u00ed\u00f0a. T\u00f6kum v\u00f6ldin.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>T\u00ed\u00f0arandinn er breyttur. Ungar konur \u00ed dag nj\u00f3ta meira frelsis en \u00e1\u00f0ur t\u00ed\u00f0ka\u00f0ist. Og \u00fe\u00e6r hafa meiri kjark og meira sj\u00e1lfstraust en m\u00e6\u00f0ur \u00feeirra og \u00f6mmur. Ungar konur kl\u00e6\u00f0a sig djarflega, \u00fe\u00e6r tj\u00e1 sig af krafti, \u00fe\u00e6r \u00feora, eru skapandi og gerandi. \u00dea\u00f0 er ekki bara \u00ed listageiranum, heldur l\u00edka \u00e1 svi\u00f0i v\u00edsinda og stj\u00f3rnm\u00e1la. Hver konan af annarri st\u00edgur fram og vill l\u00e1ta gott af s\u00e9r lei\u00f0a. Karlmenn hafa hins vegar l\u00e1ti\u00f0 undan s\u00edga, dregi\u00f0 sig \u00ed hl\u00e9 \u2013 \u00e1n \u00feess kannski a\u00f0 \u00e1tta sig fullkomlega \u00e1 \u00fev\u00ed, hva\u00f0 er \u00ed gangi.<\/p>\n<p>Miki\u00f0 held \u00e9g, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 gaman a\u00f0 vera ung kona \u00ed dag, eiga framt\u00ed\u00f0ina fyrir s\u00e9r. En s\u00fa kona ver\u00f0ur a\u00f0 vera til \u00ed slaginn, \u00fev\u00ed samkeppnin er h\u00f6r\u00f0. \u00c9g hef til d\u00e6mis ekki t\u00f6lu \u00e1 \u00f6llum \u00feeim fr\u00e1b\u00e6ru listakonum, sem halda upp leiklistarstarfsemi \u00ed landinu um \u00feessar mundir. N\u00fd andlit, n\u00fdir sigrar daglega, svo til. Og t\u00e6kif\u00e6rin eru of f\u00e1 fyrir allan \u00feennan kvennaskara.<\/p>\n<p>Leiklistarsk\u00f3lar eru g\u00f3\u00f0ir til s\u00edns br\u00faks, en endanlega er \u00fea\u00f0 brj\u00f3stviti\u00f0, me\u00f0f\u00e6ddir h\u00e6fileikar, sem skera \u00far um \u00e1rangur \u00e1 leiksvi\u00f0i. Og \u00fev\u00ed ver\u00f0ur ekki neita\u00f0, a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum \u00far miklu a\u00f0 mo\u00f0a, eigum \u00f3venju st\u00f3ran h\u00f3p h\u00e6fileikaf\u00f3lks, sem jafnast \u00e1 vi\u00f0 bestu leikara st\u00f3rborganna.<\/p>\n<h3>Bers\u00f6gli og s\u00e6randi miskunnarleysi<\/h3>\n<p>Til d\u00e6mis um allt \u00feetta er L\u00f3aborator\u00edum, sem s\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 f\u00f6studagskv\u00f6ld var frums\u00fdnt \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u2013 n\u00fdtt verk eftir unga konu, L\u00f3u Hl\u00edn Hjalmt\u00fdsd\u00f3ttur. A\u00f0 \u00feessu verki koma minnst t\u00edu konur en bara \u00fer\u00edr karlmenn, \u00feannig a\u00f0 hlutverkin hafa sn\u00faist vi\u00f0. A\u00f0 v\u00edsu standa karlarnir \u00fer\u00edr sig me\u00f0 pr\u00fd\u00f0i, sj\u00e1 um t\u00f3nlist, l\u00fdsingu og lj\u00f3smyndir \u00ed s\u00fdningunni. \u00deeir eru g\u00f3\u00f0ir til s\u00edns br\u00faks, \u00feessar elskur!<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti er \u00feetta er kvennaverk, skrifa\u00f0 fyrir konur og um konur. L\u00f3a byggir verki\u00f0 \u00e1 samnefndum myndas\u00f6gum, sem h\u00fan er einnig h\u00f6fundur a\u00f0. Leikriti\u00f0 er sami\u00f0 \u00ed samstarfi vi\u00f0 leikh\u00f3pinn Sokkabandi\u00f0 \u2013 og \u00ed Sokkabandinu eru bara konur, au\u00f0vita\u00f0.<\/p>\n<p>Leikriti\u00f0 spannar eina langa helgi \u00ed l\u00edfi fj\u00f6gurra kvenna, sem hafa b\u00fai\u00f0 \u00e1rum saman \u00ed s\u00f6mu blokkinni \u00ed \u00fathverfi Reykjav\u00edkur. \u00de\u00e6r tengjast fj\u00f6lskyldub\u00f6ndum, annars vegar m\u00e6\u00f0gur og svo systur. L\u00edf \u00feeirra allra er heldur mislukka\u00f0, og \u00fe\u00e6r farnar a\u00f0 \u00f6rv\u00e6nta. Eiga erfitt me\u00f0 a\u00f0 umgangast f\u00f3lk, s\u00e9rstaklega n\u00e1komna \u00e6ttingja. Allt er \u00ed rauninni \u00f6murlegt, en samt svo f\u00e1r\u00e1nlega fyndi\u00f0 \u00ed me\u00f0f\u00f6rum L\u00f3u. Samt\u00f6lin eru l\u00e9tt og leikandi. Hver og ein \u00feeirra gengur fram af okkur me\u00f0 \u00f3\u00fe\u00e6gilegri bers\u00f6gli og s\u00e6randi miskunnarleysi gagnvart hinum. S\u00fdna subbuskap, sem ja\u00f0rar vi\u00f0 kl\u00e1m og karlfyrirlitningu, sem hindrar e\u00f0lilegt saml\u00edf. \u00de\u00e6r l\u00e1ta allt gossa. \u201eTil hvers er \u00feetta l\u00edf?\u201c er spurt \u00e1 einum sta\u00f0. Kannski er \u00feetta bara spegilmynd af raunveruleikanum (reality show). \u00dev\u00ed fer samt fjarri, a\u00f0 h\u00f6fundurinn dragi upp helgimynd af hinum vammlausu konum, sem s\u00e6ta st\u00f6\u00f0ugu \u00e1reiti karlpeningsins, en hafa n\u00fa sagt: n\u00fa er n\u00f3g komi\u00f0 \u2013 hinga\u00f0 en ekki lengra,<\/p>\n<h3>Miki\u00f0 hlegi\u00f0<\/h3>\n<p>Allar eru \u00feessar fj\u00f3rar konur \u00ed leikritinu \u00fdmist einsamlar e\u00f0a fr\u00e1skildar. \u00de\u00e6r ungu sn\u00faa heim \u00ed hrei\u00f0ri\u00f0, eftir a\u00f0 hafa be\u00f0i\u00f0 skipbrot \u00fati \u00ed hinum har\u00f0a heimi \u2013 skili\u00f0 vi\u00f0 kallinn e\u00f0a falli\u00f0 \u00e1 pr\u00f3fum. Og \u00feetta er ekkert s\u00e6ldarl\u00edf. \u00de\u00e6r eru einmana og \u00f3fulln\u00e6g\u00f0ar. Ein leitar \u00e1 n\u00e1\u00f0ir fl\u00f6skunnar. Hinar freistast til a\u00f0 leita \u00fat \u00ed djammi\u00f0, \u00fear sem kynl\u00edfsreynsla veldur s\u00e1rum vonbrig\u00f0um. Hva\u00f0 me\u00f0 \u00e1stina? \u00deurfum vi\u00f0 ekki hvert \u00e1 \u00f6\u00f0ru a\u00f0 halda? \u00dea\u00f0 er ekki bara me too \u2013 l\u00edka you too? Ein \u00feeirra (Inga) er varla lengur \u00feessa heims. H\u00fan er horfin<br>\ninn \u00ed annan f\u00e9lagsskap \u00ed netheimum. \u00dear vonast h\u00fan til a\u00f0 finna \u00fe\u00e1 a\u00f0d\u00e1un og eftirtekt, sem h\u00fan hefur fari\u00f0 \u00e1 mis vi\u00f0 \u00ed veruleikanum. Einsemdin \u00ed blokkinni er ekki beinl\u00ednis draumur \u00ed d\u00f3s.<\/p>\n<p>\u00de\u00e6r fara allar \u00e1 kostum. \u00dea\u00f0 m\u00e6\u00f0ir mest \u00e1 Arnd\u00edsi Hr\u00f6nn Egilsd\u00f3ttur \u2013 sem var \u00fear a\u00f0 auki \u00f3gleymanleg \u00ed s\u00f6ngatri\u00f0inu \u2013 og Elmu D\u00eds Gunnarsd\u00f3ttur \u2013 sem komst \u00e1 flug \u00ed hinum villta dansi. En ekki eru \u00fe\u00e6r s\u00ed\u00f0ri, J\u00f3hanna Fri\u00f0rika S\u00e6mundsd\u00f3ttir og Mar\u00eda Heba \u00deorkelsd\u00f3ttir. Allar fj\u00f3rar f\u00e6ddar gamanleikkonur. Og \u00e9g s\u00e9 ekki betur en a\u00f0 \u00fearna s\u00e9 \u00e1 fer\u00f0inni \u00e6rslafenginn farsi, sem g\u00e6ti hugsanlega haldi\u00f0 l\u00edfi \u00e1 svi\u00f0inu fram \u00e1 vordaga. \u00dea\u00f0 var miki\u00f0 hlegi\u00f0 \u00e1 frums\u00fdningu og leikkonum og hj\u00e1lparkokkum fagna\u00f0 innilega \u00ed lokin.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00f6fundur: L\u00f3a Hl\u00edn Hj\u00e1lmt\u00fdsd\u00f3ttir.<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Kolfinna Nikul\u00e1sd\u00f3ttir.<br \/>\nLeikarar: Arnd\u00eds Hr\u00f6nn Egilsd\u00f3ttir, Elma L\u00edsa Gunnarsd\u00f3ttir, Fri\u00f0rika S\u00e6mundsd\u00f3ttir og Mar\u00eda Heba \u00deorkelsd\u00f3ttir.<br \/>\nLeikmynd og b\u00faningar: Sigr\u00ed\u00f0ur Sunna Reynisd\u00f3ttir.<br \/>\nL\u00fdsing: Valdimar J\u00f3hannsson.<br \/>\nT\u00f3nlist: \u00c1rni R\u00fanar Hl\u00f6\u00f0versson.<br \/>\nSvi\u00f0shreyfingar: \u00c1sr\u00fan Magn\u00fasd\u00f3ttir.<br \/>\nTeikningar: L\u00f3a Hl\u00edn Hj\u00e1lmt\u00fdsd\u00f3ttir.<br \/>\nLj\u00f3smyndun: \u00deorbj\u00f6rn \u00deorgeirsson.<\/p>\n<p>Frums\u00fdnt \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00feann 26. febr\u00faar. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-218","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/218","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=218"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/218\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":495,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/218\/revisions\/495"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=218"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=218"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=218"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}