{"id":223,"date":"2017-07-28T00:00:00","date_gmt":"2017-07-28T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2017\/07\/28\/vid-thurfum-ad-hugsa-allt-upp-a-nytt\/"},"modified":"2020-09-23T08:43:55","modified_gmt":"2020-09-23T08:43:55","slug":"vid-thurfum-ad-hugsa-allt-upp-a-nytt","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2017\/07\/28\/vid-thurfum-ad-hugsa-allt-upp-a-nytt\/","title":{"rendered":"Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 hugsa allt upp \u00e1 n\u00fdtt"},"content":{"rendered":"<p>Svo kom a\u00f0 \u00fev\u00ed, m\u00f6rgum \u00e1rum seinna, a\u00f0 ma\u00f0urinn minn var\u00f0 sendiherra \u00ed Bandar\u00edkjunum, \u00fear sem vi\u00f0 \u00e1ttum fimm g\u00f3\u00f0 \u00e1r. Vegna starfa hans kynntumst vi\u00f0 Su\u00f0ur-Amer\u00edku. \u00dea\u00f0 var \u00ed fyrsta sinn, sem \u00e9g var \u00ed l\u00f6ndum, \u00fear sem \u00e9g gat ekki tj\u00e1\u00f0 mig \u00e1 m\u00e1li heimamanna. Fannst \u00fea\u00f0 \u00f3\u00fe\u00e6gilegt. Svo a\u00f0 \u00e9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 gera eitthva\u00f0 \u00ed m\u00e1linu. Fann m\u00e9r argent\u00ednskan kennara, unga kvikmyndager\u00f0arkonu, Andreu, sem kenndi m\u00e9r m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i \u00ed stofunni sinni, og \u00feegar \u00e9g \u00fatskrifa\u00f0ist fr\u00e1 henni, gat \u00e9g s\u00f3tt t\u00edma \u00ed George Washington h\u00e1sk\u00f3lanum.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p><\/p><center><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"810\" height=\"1214\" class=\"alignnone wp-image-30 size-full\" alt=\"\" src=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis2.jpg\" srcset=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis2.jpg 810w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis2-200x300.jpg 200w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis2-768x1151.jpg 768w, https:\/\/jbh.is\/bs\/wp-content\/uploads\/2019\/10\/bryndis2-683x1024.jpg 683w\" sizes=\"auto, (max-width: 709px) 85vw, (max-width: 909px) 67vw, (max-width: 984px) 61vw, (max-width: 1362px) 45vw, 600px\" \/><br>\nBrynd\u00eds Schram<\/center><br>\n\u00deegar vi\u00f0 fluttum svo til Helsinki h\u00e9lt \u00e9g n\u00e1minu \u00e1fram \u00ed h\u00e1sk\u00f3lanum \u00fear. Sat me\u00f0 t\u00e1ningsstelpum \u00ed t\u00edmum og reyndi hva\u00f0 \u00e9g gat a\u00f0 ver\u00f0a unglingur \u00e1 n\u00fd. Gaman.<p><\/p>\n<p>Eftir \u00e1tta \u00e1r \u00ed \u00fatl\u00f6ndum ur\u00f0um vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin frj\u00e1ls \u00e1 n\u00fd \u2013 og \u00fe\u00e1 var komi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta draum minn r\u00e6tast og kynnast Sp\u00e1ni \u2013 \u00e9g haf\u00f0i eiginlega aldrei komi\u00f0 \u00feanga\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u2013 ekki til langdvalar.<\/p>\n<p>Svo \u00e1tti \u00e9g l\u00edka anna\u00f0 erindi til Sp\u00e1nar. \u00dea\u00f0 var ekki bara tungum\u00e1li\u00f0. Mig langa\u00f0i alltaf til a\u00f0 l\u00e6ra flamenco. \u00deor\u00f0i ekki, \u00feegar \u00e9g var ung, of bundin \u00e1tth\u00f6gunum. En n\u00fa var loksins t\u00e6kif\u00e6ri. \u00c9g var a\u00f0 byrja n\u00fdtt l\u00edf.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 l\u00f6g\u00f0um \u00fea\u00f0 \u00e1 okkur a\u00f0 aka alla strandlengju Sp\u00e1nar, allt fr\u00e1 landam\u00e6rum Frakklands su\u00f0ur til Cadiz. Vissum ekki alveg, hverju vi\u00f0 vorum a\u00f0 leita a\u00f0, en fyrst og fremst kyrr\u00f0 og n\u00e6\u00f0i, sta\u00f0 til a\u00f0 einbeita s\u00e9r \u00e1, sta\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0 g\u00e6tum blanda\u00f0 ge\u00f0i vi\u00f0 heimamenn, kynnst \u00fej\u00f3\u00f0ars\u00e1linni. L\u00e6rt b\u00e6\u00f0i sp\u00e6nsku og flamenco. Og \u00fear kom, a\u00f0 vi\u00f0 fundum sl\u00edkan sta\u00f0, sem heitir \u00fev\u00ed skr\u00edtna nafni Salobrena \u2013 hinn salti klettur. Og \u00fea\u00f0 vill svo til, a\u00f0 efst \u00e1 \u00feessum kletti er kastali, sem er kenndur vi\u00f0 Hannibal P\u00fanverjakappa. Og af \u00fev\u00ed a\u00f0 J\u00f3n Baldvin er sonur Hannibals og \u00fev\u00ed \u00f3skilgetinn afkomandi P\u00fanverjakappans, tr\u00fa\u00f0i hann \u00fev\u00ed, a\u00f0 hann v\u00e6ri bara kominn heim \u2013 og beit \u00e1 agni\u00f0.<\/p>\n<p>Salobrena er \u00ed Andalus\u00edu \u2013 Litlu Afr\u00edku, eins og sumir segja, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fearna r\u00edktu M\u00e1rar \u00ed sj\u00f6 hundru\u00f0 \u00e1r og l\u00f6g\u00f0u grunninn a\u00f0 \u00fev\u00ed l\u00edfi, sem enn \u00fer\u00edfst \u00ed \u00feessu vogskorna landi, sem minnir um margt \u00e1 Vestfir\u00f0i, \u00f3gnvekjandi \u00ed hrikalegri fegur\u00f0 sinni.<\/p>\n<p>Salobrena er M\u00e1ra\u00feorp, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir, a\u00f0 \u00f6ll h\u00fasin eru hv\u00edt og g\u00f6turnar \u00fer\u00f6ngar. B\u00edlar geta ekki m\u00e6st, en b\u00f6rn og hundar og kettir \u2013 jafnvel geitur \u2013 \u00fev\u00e6last fyrir manni \u00e1 heimlei\u00f0 upp klettinn. \u00cd lok \u00e1rs og \u00ed byrjun jan\u00faar er kalt og rakt, enginn hiti \u00e1 ofnum, a\u00f0eins gl\u00f3\u00f0 fr\u00e1 kolamolum \u00ed vaskafati til a\u00f0 ylja s\u00e9r vi\u00f0. \u00de\u00e1 er gott a\u00f0 sn\u00faa heim og nj\u00f3ta hitaveitunnar okkar. Hitaveitan \u2013 \u00fea\u00f0 er okkar \u00edslenska gu\u00f0sgj\u00f6f.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds talar sp\u00e6nskuna, en vi\u00f0urkennir, a\u00f0 J\u00f3n Baldvin gerir \u00fea\u00f0 ekki: \u201eHonum finnst l\u00edklega, a\u00f0 \u00fea\u00f0 taki \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 l\u00e6ra m\u00e1li\u00f0, hann er alltaf \u00e1 heimlei\u00f0, \u00feannig a\u00f0 \u00e9g hef jafnan or\u00f0 fyrir okkur, og \u00fea\u00f0 er alveg n\u00fdtt fyrir m\u00e9r \u2013 og honum l\u00edka!\u201c.<\/p>\n<p><i>Hver er munurinn \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00ed \u00feorpi \u00e1 Sp\u00e1ni og \u00ed Mosfellsb\u00e6num?<\/i><\/p>\n<p>\u201eMunurinn er s\u00e1, a\u00f0 h\u00e9r b\u00fd \u00e9g \u00ed afskekktum dal, Reykjadal, svo a\u00f0 \u00e9g \u00e1 ekki marga n\u00e1granna \u2013 en g\u00f3\u00f0a granna. \u00cd M\u00e1ra\u00feorpinu b\u00faa allir mj\u00f6g \u00fe\u00e9tt, og allir vita allt um alla. On\u00ed hvers manns koppi. \u00deeir vita, \u00feegar vi\u00f0 f\u00f6rum og \u00feeir fylgjast me\u00f0, \u00feegar vi\u00f0 komum aftur. Okkur er fagna\u00f0 me\u00f0 kossum og fa\u00f0ml\u00f6gum. Jafnvel \u00e1 \u00feorpskr\u00e1nni lyfta menn glasi og segja \u201ebien venidos\u201c, og \u00e9g f\u00e6 koss. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g notalegt, eins og \u00fe\u00fa getur \u00edmynda\u00f0 \u00fe\u00e9r! M\u00e9r hl\u00fdnar um hjartar\u00e6tur, \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e9r \u00feykir v\u00e6nt um f\u00f3lk og vil hafa g\u00f3\u00f0 samskipti vi\u00f0 alla. \u00c9g vildi \u00f3ska \u00feess, a\u00f0 landar m\u00ednir v\u00e6ru \u00f6gn opnari og hreinskiptnari\u201c.<\/p>\n<p><i>Ertu mj\u00f6g f\u00e9lagslynd? <\/i><\/p>\n<p>\u201eNei, l\u00edklega er \u00e9g ekki mj\u00f6g f\u00e9lagslynd. \u00deegar \u00e9g l\u00edt til baka, \u00fe\u00e1 s\u00e9 \u00e9g, a\u00f0 \u00e9g hef aldrei tilheyrt neinum h\u00f3pi og ekki una\u00f0 m\u00e9r \u00ed h\u00f3pi \u2013 fyrir utan \u00ed Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokknum, au\u00f0vita\u00f0! \u00c9g er \u00feakkl\u00e1t, \u00feegar f\u00f3lk leitar til m\u00edn, en \u00e9g hef aldrei leita\u00f0 til annarra. Veit ekki af hverju. Kannski sj\u00e1lfri m\u00e9r n\u00e6g.<\/p>\n<p>En \u00e9g vi\u00f0urkenni, a\u00f0 \u00e9g hef mj\u00f6g gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 gle\u00f0ja a\u00f0ra. Eitt sumar endur fyrir l\u00f6ngu var \u00e9g flugfreyja, og \u00e9g man, hva\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fej\u00f3na f\u00f3lki, gera \u00fev\u00ed til ge\u00f0s. \u00dea\u00f0 kom m\u00e9r \u00e1 \u00f3vart.<\/p>\n<p>Og \u00feannig er \u00e9g enn. M\u00edn besta skemmtun er a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a g\u00f3\u00f0um vinum heim, e\u00f0a f\u00f3lki, sem \u00e9g d\u00e1ist a\u00f0 \u00far fjarska, leggja fallega \u00e1 bor\u00f0 og bera fram margr\u00e9tta\u00f0a m\u00e1lt\u00ed\u00f0, sem \u00e9g hef sj\u00e1lf \u2013 e\u00f0a \u00fe\u00e1 ma\u00f0urinn minn, sem ver\u00f0ur \u00e6 betri \u00ed eldh\u00fasinu \u2013 eytt deginum \u00ed a\u00f0 undirb\u00faa. Svo a\u00f0, j\u00e1, kannski er \u00e9g f\u00e9lagslynd \u2013 \u00ed a\u00f0ra r\u00f6ndina.\u201c<\/p>\n<p><i>Hefur\u00f0u ekki miki\u00f0 sj\u00e1lfstraust? <\/i><\/p>\n<p>\u201e\u00c9g hl\u00fdt a\u00f0 hafa einhvern snefil af sj\u00e1lfstrausti, \u00fev\u00ed a\u00f0 annars hef\u00f0i \u00e9g aldrei geta\u00f0 or\u00f0i\u00f0 dansari n\u00e9 leikari n\u00e9 kennari, n\u00e9 bla\u00f0ama\u00f0ur, n\u00e9 sj\u00f3nvarpskona \u2013 n\u00e9 skrifa\u00f0 stafkr\u00f3k. Samt skal \u00e9g vi\u00f0urkenna, a\u00f0 \u00feegar ma\u00f0urinn minn var or\u00f0inn \u00e1berandi \u00ed p\u00f3lit\u00edkinni og st\u00f6\u00f0ugur f\u00f3lksstraumur allt \u00ed kringum hann, \u00fe\u00e1 var \u00e9g ekki n\u00f3gu st\u00f3r \u00ed sni\u00f0um til a\u00f0 afbera \u00fea\u00f0 og gle\u00f0jast me\u00f0 honum. \u00c9g var heldur ekki or\u00f0in n\u00f3gu p\u00f3lit\u00edsk til \u00feess a\u00f0 geta teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed st\u00f6\u00f0ugum umr\u00e6\u00f0um. \u00de\u00e1 skorti mig sj\u00e1lfstraust\u201c<\/p>\n<p>\u00dei\u00f0 hj\u00f3nin eru\u00f0 st\u00f3ran hluta \u00e1rsins h\u00e9r \u00e1 landi. Hva\u00f0 finnst \u00fe\u00e9r best \u00e1 \u00cdslandi?<\/p>\n<p>\u201eBest finnst m\u00e9r a\u00f0 koma \u00ed h\u00fasi\u00f0 okkar \u00ed Reykjadal. Vi\u00f0 vorum svo g\u00e6fus\u00f6m a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 endurbyggja gamla sumarb\u00fasta\u00f0inn hans pabba og m\u00f6mmu. \u00dea\u00f0 er algj\u00f6rt \u00e6vint\u00fdri a\u00f0 b\u00faa \u00ed h\u00fasi sem tekur utan um mann eins og gamall vinur. Ma\u00f0ur \u00e1 ekkert erindi \u00fat, \u00fea\u00f0 er allt inni \u00ed \u00feessu h\u00fasi. Ver\u00f6ldin afmarkast af trj\u00e1gr\u00f3\u00f0ri, sem umkringir h\u00fasi\u00f0 n\u00fa sem aldrei fyrr \u2013 er \u00ed rauninni a\u00f0 vaxa yfir h\u00fasi\u00f0. \u00dea\u00f0 minnir mig \u00e1, a\u00f0 h\u00e9r var ekki stingandi str\u00e1, a\u00f0eins \u00f6rfoka melur, \u00feegar \u00e9g var stelpa a\u00f0 koma hinga\u00f0 \u00ed fyrsta sinn.\u201c<\/p>\n<p>Heimili Brynd\u00edsar og J\u00f3ns Baldvins \u00ed Mosfellsb\u00e6 er einstaklega hl\u00fdlegt og fallegt. \u00deau fluttu \u00feanga\u00f0, \u00feegar \u00feau sneru heim fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum \u00e1ri\u00f0 2005, en h\u00fasi\u00f0 \u00e1 Vesturg\u00f6tunni seldu \u00feau \u00e1tta \u00e1rum \u00e1\u00f0ur, e\u00f0a \u00feegar \u00feau hurfu \u00far landi. \u00deau h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00e1 \u00e1tt \u00fea\u00f0 h\u00fas \u00ed 35 \u00e1r.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds er spur\u00f0 hvort h\u00fan sakni Vesturg\u00f6tunnar og segir: \u201e\u00c9g ger\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00e1 t\u00edmabili, en J\u00f3n Baldvin sag\u00f0i: \u201eMa\u00f0ur skyldi aldrei sn\u00faa aftur \u00e1 sama sta\u00f0.\u201c \u00dea\u00f0 var l\u00edklega alveg r\u00e9tt hj\u00e1 honum, Vesturg\u00f6tu\u00e6vint\u00fdrinu var loki\u00f0. Svo er mi\u00f0b\u00e6rinn svo breyttur a\u00f0 \u00e9g \u00feekki mig ekki \u00fear lengur. \u00cd gamla daga gat \u00e9g gengi\u00f0 \u00e1 innisk\u00f3num ni\u00f0ur \u00ed b\u00e6, sinnt m\u00ednum erindum og \u00feekkti n\u00e1nast hvern mann. En \u00fea\u00f0 er li\u00f0in t\u00ed\u00f0.Fer\u00f0amennirnir hafa teki\u00f0 borgina algj\u00f6rlega yfir. \u00deetta er ekki m\u00edn gamla Reykjav\u00edk, svo \u00e9g hef einskis a\u00f0 sakna\u201c.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds og J\u00f3n Baldvin hafa veri\u00f0 gift \u00ed n\u00e6stum \u00fev\u00ed sext\u00edu \u00e1r. H\u00fan er spur\u00f0 hvort sambandi\u00f0 hafi teki\u00f0 breytingum \u00e1 \u00feessum t\u00edma. Brynd\u00eds svarar: \u201e\u00dea\u00f0 var einu sinni l\u00edfsreynd og g\u00e1fu\u00f0 kona, sem spur\u00f0i mig \u00ed part\u00edi um mi\u00f0ja n\u00f3tt, \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i n\u00fdlega kynnst mannsefninu m\u00ednu: \u201eHeldur\u00f0u a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt \u00e1stfangin, Brynd\u00eds?\u201c \u201eJ\u00e1,\u201c sag\u00f0i \u00e9g, \u201e\u00fea\u00f0 fer um mig s\u00e6luhrollur \u00ed hvert sinn, sem hann snertir mig.\u201c \u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00fan: \u201e\u00de\u00e1 er \u00fea\u00f0 ekta.\u201c<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g held \u00e9g geti alveg svara\u00f0 \u00feessu \u00e1 sama h\u00e1tt \u00ed dag, \u00fea\u00f0 er \u00feessi svokalla\u00f0i s\u00e6luhrollur sem er \u00ed rauninni grunnurinn a\u00f0 g\u00f3\u00f0ri samb\u00fa\u00f0. Ef hann dofnar, \u00fe\u00e1 er sambandi\u00f0 einskis vir\u00f0i, b\u00fai\u00f0. Fyrir gu\u00f0s n\u00e1\u00f0 erum vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin g\u00e6dd \u00feeim h\u00e6fileika a\u00f0 geta vi\u00f0haldi\u00f0 neistanum. Vi\u00f0 t\u00f6lum saman endalaust, og finnst gaman. \u00c1stin er eins og bl\u00f3m, sem \u00fearf st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 hl\u00faa a\u00f0. \u00c1 svona l\u00f6ngum t\u00edma gr\u00e6r f\u00f3lk saman .\u201c<\/p>\n<p><i>Hvernig er l\u00edfi\u00f0 \u00feegar komi\u00f0 er \u00e1 eftirlaunaaldur? <\/i><\/p>\n<p>\u201e\u00deegar Sp\u00e1nverjar fara \u00e1 eftirlaun, heitir \u00fea\u00f0 a\u00f0 jubilera (jubilarse). Vi\u00f0 jubileru\u00f0um l\u00edka, \u00feegar okkur var sleppt lausum \u00far MR i den. Vi\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0um frelsinu. Og vi\u00f0 f\u00f6gnum enn frelsinu. Vi\u00f0 erum loksins frj\u00e1ls. Engar skyldur, engar kva\u00f0ir umfram \u00fe\u00e6r, sem vi\u00f0 viljum sj\u00e1lf \u00e1 okkur leggja. Getum gert \u00fea\u00f0 sem okkur \u00fe\u00f3knast, l\u00e1ti\u00f0 gamla drauma r\u00e6tast, byrja\u00f0 l\u00edfi\u00f0 upp \u00e1 n\u00fdtt. Og \u00fea\u00f0 var \u00fea\u00f0, sem vi\u00f0 ger\u00f0um. Byrju\u00f0um upp \u00e1 n\u00fdtt, n\u00e1mum meira a\u00f0 segja n\u00fdtt land me\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir augum a\u00f0 l\u00e6ra meira, jafnvel n\u00fdtt tungum\u00e1l.<br>\n\u00deessi s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r hafa veri\u00f0 enn eitt \u00e6vint\u00fdri\u00f0\u201c.<\/p>\n<p><i>J\u00f3n Baldvin lif\u00f0i og hr\u00e6r\u00f0ist \u00ed p\u00f3lit\u00edkinni sem getur veri\u00f0 ansi grimm, eins og \u00fe\u00fa hefur l\u00edka kynnst. T\u00f3k \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00feig? <\/i><\/p>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 var ekki fyrr en vi\u00f0 fluttumst til Amer\u00edku um \u00e1ri\u00f0, a\u00f0 \u00e9g fann til \u00feess a\u00f0 vera allt \u00ed einu frj\u00e1ls kona. \u00de\u00e1 \u00e1tta\u00f0i \u00e9g mig \u00e1 \u00fev\u00ed, hva\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 vi\u00f0 miklar h\u00f6mlur h\u00e9r heima \u00e1rum saman \u2013 undir st\u00f6\u00f0ugri sm\u00e1sj\u00e1 gagnr\u00fdnenda, \u00fear sem illgirnin leiddi \u00f6fundina. Sama hva\u00f0 \u00e9g ger\u00f0i. \u00c9g m\u00e1tti varla hreyfa mig, \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri komi\u00f0 \u00ed bl\u00f6\u00f0 e\u00f0a eitthvert sk\u00edtkast f\u00e6ri \u00ed gang.\u00cd Amer\u00edku var m\u00e9r hins vegar teki\u00f0 eins og venjulegri manneskju, og allir voru m\u00e9r g\u00f3\u00f0ir og j\u00e1kv\u00e6\u00f0ir. \u00c9g f\u00e9kk a\u00f0 nj\u00f3ta m\u00edn allt \u00ed einu\u201c.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds \u00e1tti afm\u00e6li fyrr \u00ed \u00feessum m\u00e1nu\u00f0i. H\u00fan l\u00e6tur aldurinn sannarlega ekki stj\u00f3rna s\u00e9r. \u201eEnn sem komi\u00f0 er finnst m\u00e9r ekkert erfitt a\u00f0 eldast. M\u00e9r finnst mj\u00f6g gaman a\u00f0 lifa, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1rin segja \u00ed raun ekkert til um aldur. \u00c9g er l\u00edka svo g\u00e6fus\u00f6m a\u00f0 nj\u00f3ta g\u00f3\u00f0rar heilsu,\u201c segir h\u00fan.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 hefur samt ekki veri\u00f0 \u00e1n \u00e1falla. \u00deungb\u00e6rast var andl\u00e1t Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar, d\u00f3ttur Brynd\u00edsar og J\u00f3ns Baldvins, sem l\u00e9st skyndilega \u00ed upphafi \u00e1rs 2013.<\/p>\n<p>\u201eJ\u00e1, tr\u00falega er f\u00e1tt jafn s\u00e1rsaukafullt \u00ed l\u00edfinu og a\u00f0 missa barni\u00f0 sitt \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfs. En \u00feetta hefur veri\u00f0 hlutskipti form\u00e6\u00f0ra okkar \u00f6ldum saman. \u00c9g get ekki gleymt or\u00f0um, sem l\u00edfsreynd kona haf\u00f0i eftir \u00f6mmu sinni af \u00feessu tilefni. H\u00fan sag\u00f0i: \u00c9g vildi ekki tengjast b\u00f6rnum m\u00ednum of n\u00e1num tilfinningab\u00f6ndum af \u00f3tta vi\u00f0 a\u00f0 geta misst \u00feau. Hv\u00edl\u00edk \u00f6rl\u00f6g. \u00dea\u00f0 sto\u00f0ar l\u00edtt a\u00f0 harma hlutskipti sitt.<\/p>\n<p>Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur lifir \u00ed huga og hj\u00f6rtum okkar, sem elsku\u00f0um hana. \u00c9g er meira a\u00f0 segja h\u00e6tt a\u00f0 r\u00edfast vi\u00f0 Gu\u00f0, af \u00fev\u00ed einfaldlega, a\u00f0 \u00e9g veit, a\u00f0 hann kom hvergi vi\u00f0 \u00feessa s\u00f6gu. Gu\u00f0 skapa\u00f0i ekki heiminn og mennina me\u00f0. Mennirnir sk\u00f6pu\u00f0u Gu\u00f0 til \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 sk\u00fdra \u00fea\u00f0, sem \u00feeir skildu ekki og til \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 \u00fea\u00f0. En m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 \u00f3sambo\u00f0i\u00f0 manninum a\u00f0 lifa \u00ed sj\u00e1lfsblekkingu\u201c.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds hefur gert margt um \u00e6vina. H\u00fan var me\u00f0al annars dansari, leikkona, kennari, sk\u00f3lameistari og sj\u00f3nvarpskona. En hef\u00f0i h\u00fan vilja\u00f0 gera eitthva\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi \u00ed l\u00edfinu?<\/p>\n<p>\u201eNei. \u00deetta hefur veri\u00f0 \u00e6vint\u00fdralegt fer\u00f0alag. \u00c9g var komin \u00e1 samning hj\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu, \u00feegar J\u00f3n Baldvin var alveg \u00f3v\u00e6nt r\u00e1\u00f0inn sk\u00f3lameistari \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. \u00c9g var ekkert of \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u2013 en var ekki spur\u00f0. \u00c9g var\u00f0 a\u00f0 fylgja honum \u2013 enda or\u00f0in fj\u00f6gurra barna m\u00f3\u00f0ir. Forl\u00f6gin t\u00f3ku fram fyrir hendur okkar.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g l\u00edt til baka, \u00fe\u00e1 voru \u00feessi \u00e1r fyrir vestan eins og h\u00e1sk\u00f3la\u00e1rin hj\u00e1 Gorki. \u00c9g kynntist \u00fej\u00f3\u00f0 minni \u00e1 n\u00fdjan h\u00e1tt, \u00fati \u00e1 landsbygg\u00f0inni. Kennsla er g\u00f6fugt starf og gefandi. Leiklistin bl\u00f3mstra\u00f0i og oftar en einu sinni gafst m\u00e9r sj\u00e1lfri t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 standa \u00e1 svi\u00f0inu.<\/p>\n<p>En sk\u00f3lameistarastarfi\u00f0 toppa\u00f0i \u00feetta allt undir lokin. \u00dea\u00f0 var \u00feegar ma\u00f0urinn minn f\u00f3r til Amer\u00edku, \u00ed bo\u00f0i Harvard h\u00e1sk\u00f3la. \u00de\u00e1 skorti mig alla vega ekki sj\u00e1lfstraust! Besta \u00e1ri\u00f0 mitt fyrir vestan.<\/p>\n<p>Svo komum vi\u00f0 su\u00f0ur aftur, og n\u00e6stu \u00e1rin vann \u00e9g \u00ed sj\u00f3nvarpi, fyrst hj\u00e1 R\u00daV og s\u00ed\u00f0an St\u00f6\u00f0 2, sem h\u00f3f starfsemi \u00e1ri\u00f0 1986. Hef\u00f0i \u00e9g ekki veri\u00f0 gift p\u00f3l\u00edt\u00edkusi \u00e1 vinstri kantinum, v\u00e6ri \u00e9g \u00fear kannski enn! En m\u00e9r var ekki v\u00e6rt \u2013 \u00fat af p\u00f3lit\u00edkinni.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1984 var\u00f0 J\u00f3n Baldvin forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksins, og \u00fe\u00e1 ur\u00f0u kaflaskipti \u00ed l\u00edfi okkar. N\u00e6stu t\u00f3lf \u00e1rin var eins og vi\u00f0 st\u00e6\u00f0um \u00e1 v\u00edgvelli dag hvern. J\u00f3n Baldvin var \u00ed essinu s\u00ednu allan \u00feann t\u00edma, str\u00ed\u00f0sma\u00f0ur, fullur af sj\u00e1lfstrausti og r\u00e9ttl\u00e6tiskennd \u2013 alltaf svo viss um, a\u00f0 hann hef\u00f0i r\u00e9tt fyrir s\u00e9r. Sem hann haf\u00f0i au\u00f0vita\u00f0, eins og s\u00ed\u00f0ar kom \u00e1 daginn. Hvar v\u00e6rum vi\u00f0 st\u00f6dd \u00e1n EES? L\u00edklega var \u00fea\u00f0 orrustan um \u00feann samning, sem var\u00f0 til \u00feess, a\u00f0 hans p\u00f3lit\u00edska ferli lauk svo skyndilega.<\/p>\n<p>\u00dear a\u00f0 auki henta\u00f0i hinn umdeildi str\u00ed\u00f0sma\u00f0ur ekki sem sameiningart\u00e1kn, \u00feegar til st\u00f3\u00f0 a\u00f0 sameina Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkinn, Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagi\u00f0 og Kvennalista. Hann l\u00e9t sig \u00fev\u00ed einfaldlega hverfa. Og a\u00f0rir t\u00f3ku vi\u00f0. N\u00fa vitum vi\u00f0, hvernig \u00fea\u00f0 f\u00f3r.\u201c<\/p>\n<p><i>Hefur\u00f0u einhvern t\u00edmann hugsa\u00f0 um \u00fea\u00f0 hvernig l\u00edf \u00feitt hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 ef \u00fe\u00fa hef\u00f0ir ekki hitt J\u00f3n Baldvin? <\/i><\/p>\n<p>Segjum, a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i fari\u00f0 til Sp\u00e1nar \u00e1 unglings\u00e1runum til a\u00f0 l\u00e6ra flamenco, eins og hugur minn st\u00f3\u00f0 til \u2013 \u00fe\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g eflaust aldrei komi \u00f0 til baka. \u00c9g v\u00e6ri hugsanlega enn a\u00f0 reyna a\u00f0 vinna fyrir m\u00e9r \u00e1 f\u00e1t\u00e6klegum bar \u00ed Granada, f\u00f3tf\u00fain og l\u00edfs\u00fereytt \u2013 ekki anna\u00f0 \u00ed bo\u00f0i.<\/p>\n<p>E\u00f0a segjum, a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i \u00edlenst \u00ed Kaliforn\u00edu \u00fearna um \u00e1ri\u00f0, fengi\u00f0 a\u00f0 leika \u00ed augl\u00fdsingum \u00ed nokkur \u00e1r, en aldrei \u00ed alv\u00f6ru b\u00ed\u00f3myndum \u2013 \u00e9g var of h\u00e1vaxin, s\u00f6g\u00f0u \u00feeir \u2013 og ynni n\u00fa fyrir m\u00e9r me\u00f0 r\u00e6stingum \u00e1 H\u00f3tel Hilton, g\u00f6mul og afundin. Ekki anna\u00f0 \u00ed bo\u00f0i.<\/p>\n<p>E\u00f0a, ef \u00e9g hef\u00f0i \u00feegi\u00f0 bo\u00f0 formanns menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0s Sov\u00e9tr\u00edkjanna um a\u00f0 setjast a\u00f0 \u00ed Leningrad vi\u00f0 Kirov ballettinn a\u00f0 loknu st\u00fadentspr\u00f3fi. \u00de\u00e1 v\u00e6ri \u00e9g \u00f6rugglega ekki ofar moldu lengur, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed fyrsta lagi var \u00e9g t\u00edu sentimetrum of l\u00f6ng og \u00ed \u00f6\u00f0ru lagi upp \u00e1 kant vi\u00f0 arftaka Stal\u00edns, sem \u00e9g hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 taka \u00fat refsingu fyrir\u201c.<\/p>\n<p><i>Ertu alltaf jafn p\u00f3lit\u00edsk? <\/i><\/p>\n<p>\u201eJ\u00e1, og \u00fev\u00ed meir sem \u00e9g eldist. Ma\u00f0urinn minn hugsar ekki um anna\u00f0 \u2013 \u00fea\u00f0 er a\u00f0 segja, \u00feegar hann er ekki a\u00f0 hugsa um mig!\u201c<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2016 hef\u00f0i Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkuirnn or\u00f0i\u00f0 hundra\u00f0 \u00e1ra. Af \u00fev\u00ed tilefni var Gu\u00f0j\u00f3n Fri\u00f0riksson, sagnfr\u00e6\u00f0ingur \u2013 sem var reyndar \u00ed nokkur \u00e1r kennari vi\u00f0 sk\u00f3lann okkar fyrir vestan og l\u00e9k \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r hva\u00f0 eftir anna\u00f0 \u00e1 sk\u00f3laskemmtunum \u2013 fenginn til a\u00f0 skrifa s\u00f6gu flokksins. H\u00fan kom \u00fat fyrir \u00e1ri og er hin mesta gersemi. \u201e\u00dar fj\u00f6trum\u201c heitir h\u00fan\u201c. \u00dea\u00f0 er r\u00e9ttnefni.<\/p>\n<p>\u00deetta er saga um uppreisn f\u00e1t\u00e6ks f\u00f3lks gegn r\u00e9ttleysi og k\u00fagun. S\u00fa saga greinir fr\u00e1 gl\u00e6stum sigrum og beiskum \u00f3sigrum. A\u00f0d\u00e1unarver\u00f0ast er, hversu miklu \u00feessi flokkur jafna\u00f0armanna \u2013 sem aldrei n\u00e1\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 ver\u00f0a r\u00e1\u00f0andi fj\u00f6ldaflokkur eins og annars sta\u00f0ar \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum \u2013 kom \u00ed verk. Hann hefur skili\u00f0 eftir sig st\u00e6rri spor \u00ed okkar samt\u00ed\u00f0 en nokkur \u00f6nnur stj\u00f3rnm\u00e1lahreyfing. \u00deessi tilraun til a\u00f0 byggja upp norr\u00e6nt velfer\u00f0arr\u00edki \u00e1 \u00cdslandi er fyrst og fremst hans verk og verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar.<\/p>\n<p>N\u00fa vir\u00f0ist verkal\u00fd\u00f0shreyfingin vera \u00ed lamasessi sem umb\u00f3taafl, og Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkurinn skilur eftir sig t\u00f3mar\u00fam. Margar \u00fej\u00f3\u00f0ir hafa \u00feurft a\u00f0 byggja \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag sitt upp \u00e1 n\u00fdtt, eftir a\u00f0 hafa tapa\u00f0 str\u00ed\u00f0i. Hruni\u00f0 var okkar \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00f3sigur. Okkur hefur ekki tekist a\u00f0 l\u00e6ra af \u00feeirri reynslu. \u00deess vegna b\u00faa n\u00fa tv\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00ed landinu, \u00fer\u00e1tt fyrir hags\u00e6ld \u00ed g\u00f3\u00f0\u00e6ri. Vi\u00f0 erum or\u00f0in a\u00f0 \u00f3jafna\u00f0ar\u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi, sem f\u00e6r ekki sta\u00f0ist til framb\u00fa\u00f0ar. P\u00f3lit\u00edk dagsins sn\u00fdst um \u00f3breytt \u00e1stand. \u00dea\u00f0 gengur ekki. \u00dea\u00f0 \u00fearf r\u00f3tt\u00e6kar breytingar. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 byrja upp \u00e1 n\u00fdtt. \u00c1standi\u00f0 n\u00fana er eins logni\u00f0 \u00e1 undan storminum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin vorum a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a saman b\u00f3k \u00ed sumar, \u201eN\u00fd framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn handa rauns\u00e6jum konum og k\u00f6rlum\u201c, eftir hollenskan sagnfr\u00e6\u00f0ing, Rutger Bregman. \u201e\u00deetta er, eins og titillinn gefur til kynna, framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn inn \u00ed n\u00e6stu \u00e1ratugi fyrir f\u00f3lk, sem hefur l\u00e6rt af s\u00f6gunni. B\u00f3kin er hugsu\u00f0 sem handb\u00f3k fyrir \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsumr\u00e6\u00f0u n\u00e6stu \u00e1ratuga. H\u00fan \u00e6tti a\u00f0 vera \u00e1 n\u00e1msskr\u00e1 framhaldssk\u00f3la og kv\u00f6ldsk\u00f3la, og l\u00edka h\u00e1sk\u00f3la\u201c segir Brynd\u00eds. \u201e\u00cd sk\u00f3lum er nemendum ekkert kennt um vexti og ver\u00f0tryggingu, n\u00e9 heldur, hvernig eigi a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0 ver\u00f0a skulda\u00fer\u00e6ll fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0. \u00deeir vita ekkert um \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g hef aldrei lesi\u00f0 hagfr\u00e6\u00f0i, en \u00feetta er b\u00f3k, sem jafnvel \u00e9g skil, \u00fev\u00ed h\u00fan er skrifu\u00f0 \u00e1 mannam\u00e1li. H\u00f6fundurinn fullyr\u00f0ir, a\u00f0 l\u00edf okkar eigi eftir a\u00f0 taka algerum stakkaskiptum \u00e1 n\u00e6stu \u00e1ratugum, \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00f3b\u00f3tinn \u2013 v\u00e9lmenni\u00f0 \u2013 mun taka vi\u00f0 hlutverki mannsins \u00e1 vinnumarka\u00f0num. Hvernig ver\u00f0ur \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0, \u00feegar meiri hluti f\u00f3lks f\u00e6r enga vinnu? \u00dea\u00f0 breytir \u00f6llu. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 hugsa allt upp \u00e1 n\u00fdtt. \u00dea\u00f0 ver\u00f0a m\u00edn lokaor\u00f0\u201c.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deetta vi\u00f0tal t\u00f3k Kolbr\u00fan Berg\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir \u00e1ri\u00f0 2017. \u00dea\u00f0 birtist \u00ed DV.<\/p>\n<p>\u00deegar Brynd\u00eds sam\u00feykkti a\u00f0 koma \u00ed vi\u00f0tal t\u00f3k h\u00fan fram a\u00f0 h\u00fan nennti ekki a\u00f0 endurtaka sig og tala um hluti sem h\u00fan hef\u00f0i margoft r\u00e6tt um: \u201eM\u00e9r finnst \u00e9g alltaf vera spur\u00f0 s\u00f6mu spurninganna\u201c. <\/p>\n<p>Vi\u00f0tali\u00f0 hefst \u00fev\u00ed \u00e1 spurningu um l\u00edfi\u00f0 \u00ed dag og hvers vegna \u00feau hj\u00f3n kj\u00f3si a\u00f0 b\u00faa hluta \u00e1rs \u00ed litlu \u00feorpi \u00e1 Sp\u00e1ni.<\/p>\n<p>\u201e\u00deetta var gamall draumur,\u201c segir Brynd\u00eds. \u00c9g haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 lat\u00ednu \u00ed menntask\u00f3la og st\u00f3\u00f0 mig vel \u00ed fr\u00f6nsku l\u00edka, sem er latneskt m\u00e1l. Seinna t\u00f3k \u00e9g h\u00e1sk\u00f3lapr\u00f3f \u00ed b\u00e1\u00f0um \u00feessum tungum\u00e1lum. \u00cdt\u00f6lsku l\u00e6r\u00f0i \u00e9g af \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna \u00ed fimm sumur sem lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur fyrir Ing\u00f3lf \u00ed \u00dats\u00fdn \u00e1 \u00cdtal\u00edu. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-223","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/223","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=223"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/223\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":507,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/223\/revisions\/507"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=223"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=223"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=223"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}