{"id":226,"date":"2018-03-24T00:00:00","date_gmt":"2018-03-24T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/03\/24\/commedia-dell-arte\/"},"modified":"2020-09-23T08:40:46","modified_gmt":"2020-09-23T08:40:46","slug":"commedia-dell-arte","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/03\/24\/commedia-dell-arte\/","title":{"rendered":"Commedia dell Arte"},"content":{"rendered":"<p>Ef \u00fe\u00fa ert einn af \u00feeim, sem eru st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 velta s\u00e9r upp \u00far vandam\u00e1lum heimsins, eru \u00feungt haldnir af svok\u00f6llu\u00f0um Weltschmerz og kv\u00ed\u00f0a hverjum degi, \u00fe\u00e1 er kannski kominn t\u00edmi \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara \u00ed leikh\u00fas \u2013 ekki \u00ed \u00feetta skipti til a\u00f0  harma \u00f6rl\u00f6g mannsins, heldur til a\u00f0 hl\u00e6ja a\u00f0 \u00f3f\u00f6rum hans.<\/p>\n<p>Manstu, hva\u00f0 okkur \u00fe\u00f3tti fyndi\u00f0, \u00feegar einhver steig \u00e1 bananah\u00fd\u00f0i og rann \u00e1 rassinn me\u00f0 skelfilegum aflei\u00f0ingum? \u2013 H\u00e9t \u00fea\u00f0 ekki \u00de\u00f3r\u00f0argle\u00f0i \u00ed gamla daga? (Hver var annars \u00feessi \u00de\u00f3r\u00f0ur?  \u00dea\u00f0 skilur \u00fea\u00f0 or\u00f0 enginn n\u00fa til dags, en \u00feetta snerist um a\u00f0 hlakka yfir \u00f3f\u00f6rum annarra!)  \u2013  E\u00f0a manstu, hva\u00f0 okkur \u00fe\u00f3tti Charlie Chaplin fyndinn \u00ed \u00fe\u00f6glu myndunum? \u00c9g tala n\u00fa ekki um Buster Keaton, G\u00f6g og Gokke e\u00f0a Marxbr\u00e6\u00f0ur! Allt voru \u00feetta \u00f3dau\u00f0legir snillingar, sem t\u00f3kst a\u00f0 gera aulafyndni a\u00f0 t\u00e6rri list \u2013 turn low humour into high art!<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>En til \u00feess a\u00f0 gera aulafyndni a\u00f0 t\u00e6rri list, \u00fearftu a\u00f0 vera \u00fe\u00fasund\u00fejalasmi\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er ekki n\u00f3g a\u00f0 geta flutt textann, svo allir skilji og me\u00f0taki. \u00de\u00fa \u00fearft a\u00f0 vera hinn fullkomni tr\u00fa\u00f0ur \u2013 buffoon \u2013  hafa fyrst og fremst skopskyn, en vera jafnframt allt \u00ed senn \u2013 fimleikama\u00f0ur, li\u00f0t\u00e6kur dansari,  jafnvel akrobat, b\u00faktalari, t\u00f6frama\u00f0ur,  helst hafa unni\u00f0 \u00ed sirkus \u2013  og vera me\u00f0 \u201etiming\u201c fullkomlega \u00e1 valdi \u00fe\u00ednu. Ekkert m\u00e1 klikka, annars fer allt \u00ed handaskolum. \u00de\u00e1 getur \u00fe\u00fa bara gleymt leiklistinni \u2013 fari\u00f0 a\u00f0 vinna \u00e1 skattstofunni! \u00deetta heitir Commedia dell Arte \u2013 r\u00e9ttnefni \u2013 og \u00e1 s\u00e9r langa s\u00f6gu. A\u00f0eins \u00feeir bestu komust a\u00f0 og \u00e1unnu s\u00e9r hylli l\u00fd\u00f0sins.<\/p>\n<p>Og n\u00fa r\u00ed\u00f0ur Borgarleikh\u00fasi\u00f0 \u00e1 va\u00f0i\u00f0 me\u00f0 \u201eS\u00fdningu sem klikkar\u201c, \u00e6vint\u00fdralegan farsa \u00feriggja leiklistarnemenda fr\u00e1 Edinborg, sem \u00e1tti \u00ed upphafi a\u00f0 a\u00f0 vera stofukrimmi  \u2013 \u00ed anda Ag\u00f6thu Christie \u2013 en enda\u00f0i sem geggja\u00f0ur spuni, sem var\u00f0 lengri og lengri, eftir \u00fev\u00ed sem s\u00fdningum fj\u00f6lga\u00f0i og vins\u00e6ldir jukust. N\u00fa eru \u00feeir f\u00e9lagar \u00e1 st\u00f6\u00f0ugum \u00feeytingi um allar trissur, \u00fdmist \u00ed \u00c1stral\u00edu, Amer\u00edku e\u00f0a g\u00f6mlu Evr\u00f3pu, hir\u00f0a \u00f6ll hugsanleg ver\u00f0laun, og enginn er jafn hissa og \u00feeir sj\u00e1lfir, sem fyrir nokkrum \u00e1rum voru bara atvinnulausir leikarar og \u00e1ttu ekki b\u00f3t fyrir rassinn \u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var laukr\u00e9tt \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hj\u00e1 leikh\u00fasstj\u00f3ra a\u00f0 fela Halld\u00f3ru Geirhar\u00f0sd\u00f3ttur \u2013 stj\u00f3rn \u00e1 uppf\u00e6rslu verksins. H\u00fan er ein allra fj\u00f6lh\u00e6fasta gamanleikkona okkar um \u00feessar  mundir. Auk \u00feess er h\u00fan h\u00e1\u00f0fugl, sem kann vel a\u00f0 meta spott og sp\u00e9 \u2013  og hefur s\u00fdnt \u00fea\u00f0 \u00ed verki. (Muni\u00f0i eftir Ormstungu?)<\/p>\n<p>H\u00fan skilur \u00fea\u00f0, a\u00f0 h\u00e9r er ekki um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u201eleikh\u00fas f\u00e1r\u00e1nleikans\u201c \u2013 th\u00e9atre absurde \u2013  alls ekki, \u00fe\u00f3tt f\u00e1ranlegt s\u00e9. Leikh\u00fas f\u00e1r\u00e1nleikans er l\u00e1gv\u00e6rt, \u00edsmeygilegt og undirfur\u00f0ulegt, l\u00e6\u00f0ist me\u00f0 veggjum og  kemur manni \u00e1 \u00f3vart. Leikrit \u00feeirra f\u00e9laga fr\u00e1 Edinborg er \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti dj\u00f6fulgangur, \u00e6rsl og l\u00e6ti. \u00dea\u00f0 er \u00e1 ja\u00f0ri sirkusins, l\u00edkamsl\u00e6ti \u2013 physical comedy.<\/p>\n<p>\u201eS\u00fdningin sem klikkar\u201c er yfirm\u00e1ta fl\u00f3kin uppf\u00e6rsla, sem krefst samstarfs margra a\u00f0ila \u2013  \u00ed fyrsta lagi \u00feeirra handverksmanna og snillinga, sem standa k\u00f3fsveittir baksvi\u00f0s \u00ed myrkrinu, og svo leikendanna \u00ed svi\u00f0slj\u00f3sinu, sem treysta \u00feeim fullkomlega \u00ed einu og \u00f6llu \u2013 eiga ekki annarra kosta v\u00f6l.  Ekkert m\u00e1 klikka, \u00fe\u00e1 er vo\u00f0inn v\u00eds. \u201eTiming\u201c \u2013 t\u00edmasetning \u2013 skiptir h\u00f6fu\u00f0m\u00e1li.<\/p>\n<p>Og \u00fea\u00f0 samspil tekst fullkomlega \u2013  klikkar hvergi \u2013  \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 klikka\u00f0 \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r!<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 gera upp \u00e1 milli leikenda, sem eru sj\u00f6 talsins, fj\u00f3rir karlmenn og \u00ferj\u00e1r konur. \u00d6ll eru \u00feau komin me\u00f0 t\u00f6luver\u00f0a reynslu \u00ed leikh\u00fasheiminum \u00feekkt andlit, sem eru komin til a\u00f0 vera \u2013  Dav\u00ed\u00f0 \u00de\u00f3r, a\u00f0 v\u00edsu alla lei\u00f0 fr\u00e1 L.A., \u00f3\u00feekktur \u00e1 \u00cdslandi, en lofar g\u00f3\u00f0u. En \u00e9g efast um, a\u00f0 nokkurt \u00feeirra hafi nokkru sinni fengi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 s\u00fdna, hvers \u00feau eru megnug, fyrr en n\u00fana \u00ed \u201es\u00fdningunni sem klikkar\u201c. Og \u00feau er svo fj\u00e1ri g\u00f3\u00f0, \u00f6ll me\u00f0 t\u00f6lu, a\u00f0 \u00fea\u00f0  er engu l\u00edkara en, a\u00f0 \u00feau hafi veri\u00f0 alin upp \u00ed sirkus og kunni allt sem kunna \u00fearf \u2013  eru me\u00f0 \u00feetta \u00ed bl\u00f3\u00f0inu \u2013  hinir fullkomnu tr\u00fa\u00f0ar, t\u00f6frameistarar, gr\u00ednarar, akr\u00f3batar.  \u00d6ll \u00ed k\u00f6s og hvert \u00f6\u00f0ru fyndnara. \u201ePerfect timing,\u201c eins og sagt er.<\/p>\n<p>Allt \u00e6tlar af g\u00f6flunum a\u00f0 ganga. L\u00e6tin eru svo mikil, a\u00f0 or\u00f0in \u2013  \u00fev\u00ed mi\u00f0ur \u2013  eiga \u00fea\u00f0 til a\u00f0 t\u00fdnast \u00ed hamaganginum. Veggir hrynja, arinhillur og myndastyttur eru \u00e1 fer\u00f0 og flugi, og \u00feaki\u00f0 \u2013 g\u00f3lfi\u00f0 \u00e1 n\u00e6stu h\u00e6\u00f0 \u2013  er a\u00f0 hruni komi\u00f0. Leikararnir  eru sj\u00e1lfir  reyndar \u00ed l\u00edfsh\u00e6ttu vi\u00f0 hvert f\u00f3tm\u00e1l \u00ed \u00feessari mor\u00f0g\u00e1tu. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed kannski til of mikils m\u00e6lst, a\u00f0 \u00feeir vandi frams\u00f6gnina og komi textanum til skila til \u00e1horfenda, eins og allt s\u00e9 me\u00f0 felldu.<\/p>\n<p>Var \u00feetta  gaman? J\u00e1, svo sannarlega, og \u00e9g s\u00e1 ekki betur en, a\u00f0 \u00e1horfendur h\u00e9ldu um magann af hl\u00e1tri. En \u00fea\u00f0 komu samt \u00feau augnablik, a\u00f0 \u00fea\u00f0 var eins og f\u00e1r\u00e1nleikinnn gengi fram af  \u00feeim \u2013 a\u00f0 \u00feeim v\u00e6ri ofbo\u00f0i\u00f0 og h\u00e6ttu a\u00f0 hl\u00e6ja \u2013 en bara \u00ed bili.<\/p>\n<p>\u00c9g hl\u00f3 og hl\u00f3, alla vega  \u2013 eins og vitlaus manneskja. Gleymdi sta\u00f0 og stund. Gleymdi s\u00fat og sorg. Gleymdi \u00f6llum vandam\u00e1lum heimsins.<br>\nOg hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er gott a\u00f0 geta hlegi\u00f0. L\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r, fundi\u00f0 aftur barni\u00f0 \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brynd\u00eds Schram fjallar um <b>S\u00fdninguna sem klikkar<\/b>sem var frums\u00fdnd \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00feann 24. mars s.l.<br \/>\nH\u00f6fundar: Henry Lewis, Jonathan Sayer og Henry Shields<br \/>\n\u00de\u00fd\u00f0andi: Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Halld\u00f3ra Geirhar\u00f0sd\u00f3ttir<br \/>\nLeikmynd og b\u00faningar: Helga I.Stef\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>\nL\u00fdsing: P\u00e1ll Ragnarsson<br \/>\nHlj\u00f3\u00f0: Gar\u00f0ar Borg\u00fe\u00f3rsson<br \/>\nLeikgervi: Helga I. Stef\u00e1nsd\u00f3ttir og Margr\u00e9t Benediktsd\u00f3ttir<br \/>\nLeikendur:<br \/>\nBergur \u00de\u00f3r Ing\u00f3lfsson<br \/>\nDav\u00ed\u00f0 \u00de\u00f3r Katr\u00ednarson<br \/>\nHilmar Gu\u00f0j\u00f3nsson<br \/>\nKrist\u00edn \u00de\u00f3ra Haraldsd\u00f3ttir<br \/>\nBirna R\u00fan Eir\u00edksd\u00f3ttir<br \/>\nHj\u00f6rtur J\u00f3hann J\u00f3nsson<br \/>\nKatr\u00edn Halld\u00f3ra Sigur\u00f0ard\u00f3ttir <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-226","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-leikhus"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/226","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=226"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/226\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":489,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/226\/revisions\/489"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=226"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=226"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=226"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}