{"id":235,"date":"2018-09-19T00:00:00","date_gmt":"2018-09-19T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/09\/19\/komin-heim-i-heidardalinn\/"},"modified":"2020-09-23T08:39:45","modified_gmt":"2020-09-23T08:39:45","slug":"komin-heim-i-heidardalinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2018\/09\/19\/komin-heim-i-heidardalinn\/","title":{"rendered":"KOMIN HEIM \u00cd HEI\u00d0ARDALINN"},"content":{"rendered":"
-Hvernig var a\u00f0 koma heim?
\nBrynd\u00eds l\u00edtur af m\u00e9r og horfir litla stund \u00fe\u00f6gul \u00e1 hann J\u00f3n sinn, kannski eins og h\u00fan s\u00e9 a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann svari fyrst, en hann brosir bara \u00fat \u00ed anna\u00f0 og \u00feegir. Kannski er \u00fe\u00f6gnin merki til Brynd\u00edsar um a\u00f0 tala, sams\u00e6ri \u00feagnarinnar er \u00f3\u00fearft n\u00fana. \u00deau eru ekki lengur sendiherrahj\u00f3n me\u00f0  \u00feagnarskyldu.
\nBrynd\u00eds hallar s\u00e9r fram og krossleggur langa p\u00edanistafingur, st\u00f3r hringur \u00e1berandi vottur um d\u00fdran smekk. Um h\u00e1ls hennar er eins konar skrautke\u00f0ja sem fer vel vi\u00f0 d\u00f6kkan kj\u00f3linn, andliti\u00f0 eitt varlegt bros sem s\u00ed\u00f0an hverfur  vegna alv\u00f6ru\u00feunga or\u00f0anna. H\u00e9r talar fyrrverandi sendiherrafr\u00fa \u00cdslands \u00ed Bandar\u00edkjunum og Finnlandi.
J\u00f3n Baldvin brosir n\u00fa str\u00ed\u00f0nislega \u00fat \u00ed b\u00e6\u00f0i munnvik og spyr l\u00e1gt hvort h\u00fan hafi nokku\u00f0 \u00feurft \u00e1fallahj\u00e1lp.
\nVi\u00f0 hl\u00e6jum og Brynd\u00eds kannski mest \u00feegar J\u00f3n heldur \u00e1fram og spyr hvort h\u00fan vilji ekki bara byrja aftur \u00e1 svarinu!
\nH\u00fan sendir honum auga sem er \u00e1 skj\u00f6n vi\u00f0 \u00e1stina og byrjar a\u00f0 tala um k\u00faltursjokk – og svo:
\n\u201cAndr\u00famslofti\u00f0 er breytt! Hvernig finnur ma\u00f0ur \u00feetta?  \u00c9g veit ekki, \u00fea\u00f0 er einhvern vegin meiri harka, tillitsleysi, frekja og eigingirni. Minnti mig svol\u00edti\u00f0 \u00f3\u00fe\u00e6gilega \u00e1 Bandar\u00edkin, \u00fev\u00ed \u00e9g er b\u00fain a\u00f0 vera \u00ferj\u00fa yndisleg r\u00f3leg \u00e1r \u00ed Finnlandi, \u00fear sem allt  er svo stab\u00edlt,  jafnvel ve\u00f0ri\u00f0, og f\u00f3lki\u00f0 haggast ekki. \u00dea\u00f0 er svo traust.\u201d<\/p>\n
-\u00de\u00fa varst m\u00f6rg \u00e1r h\u00fasm\u00f3\u00f0ir \u00e1 sendiherraheimili \u00ed Bandar\u00edkjunum og Finnlandi, hvernig er a\u00f0 vera or\u00f0in h\u00fasm\u00f3\u00f0ir \u00ed Mosfellsb\u00e6?
\n\u201c\u00cd ritinu Samt\u00ed\u00f0arm\u00f6nnum kalla \u00e9g mig r\u00e1\u00f0skonu vi\u00f0 sendir\u00e1\u00f0 \u00cdslands \u00ed Washington fr\u00e1 1998,\u201d segir \u00feessi fyrrverandi sendiherrafr\u00fa, me\u00f0 gl\u00e6silegan og margv\u00edslegan starfsferil. H\u00fan var dansari  og leikari vi\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0, dagskr\u00e1rger\u00f0arma\u00f0ur hj\u00e1 R\u00daV \u2013 sj\u00f3nvarpi, ritstj\u00f3ri hj\u00e1 Frj\u00e1lsu framtaki, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri kvikmyndasj\u00f3\u00f0s \u00cdslands, g\u00e6slukona \u00e1 S\u00f3lheimum, danskennari vi\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0, bla\u00f0akona, kennari, leikkona og leikstj\u00f3ri og jafnvel sk\u00f3lastj\u00f3ri.
\n\u201c\u00c9g setti \u00feetta svona af str\u00ed\u00f0ni vegna \u00feess a\u00f0 \u00feegar \u00fe\u00fa heyrir or\u00f0i\u00f0 sendiherrafr\u00fa, hva\u00f0 s\u00e9r\u00f0u fyrir \u00fe\u00e9r? Einhverja f\u00edna konu me\u00f0 p\u00f3lera\u00f0ar neglur, s\u00edgarettu \u00ed munni og sh\u00e9rr\u00fd-glas \u00ed hendi. Konu sem \u00fearf aldrei a\u00f0 gera neitt nema kl\u00e6\u00f0a sig til a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed veislur!\u201d
\nBrynd\u00eds hefur \u00e1k\u00f6f halla\u00f0 s\u00e9r fram \u00feegar h\u00fan talar en r\u00e9ttir n\u00fa \u00far s\u00e9r og d\u00e6sir.
\n\u201cMig \u00f3ra\u00f0i ekki fyrir hva\u00f0 \u00feetta er hrikalegt djobb.\u201d
\nBrynd\u00edsi  finnst a\u00f0 Bandar\u00edkin s\u00e9u krefjandi  land a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 \u00fear  m\u00e6\u00f0ir miki\u00f0 \u00e1 maka sendiherrans. H\u00fan keypti sj\u00e1lf  inn fyrir sendir\u00e1\u00f0i\u00f0.
\n\u201c\u00deetta er \u00fe\u00fasund fermetra h\u00fas \u00e1 fj\u00f3rum h\u00e6\u00f0um. \u00dea\u00f0 \u00feurfti au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 halda \u00fev\u00ed hreinu, me\u00f0 \u00f6ll r\u00fam upp\u00e1b\u00fain, \u00feegar \u00f3v\u00e6nta gesti bar a\u00f0 gar\u00f0i.  \u00c9g \u00feurfti a\u00f0 gera fj\u00e1rhag\u00e1\u00e6tlun \u00fev\u00ed peningar til sendir\u00e1\u00f0sins eru naumt skamta\u00f0ir og \u00e9g \u00e6tla\u00f0i sannarlega a\u00f0 gera eitthva\u00f0 skemmtilegt \u00feessi \u00e1r, nota t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 og kynna \u00edslenska menningu, og peningarnir ur\u00f0u a\u00f0 n\u00e6gja. \u00deannig a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r og keypti sj\u00e1lf  inn og haf\u00f0i a\u00f0sto\u00f0armann me\u00f0 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 var str\u00e1kur fr\u00e1 Filipseyjum sem fylgdi h\u00fasinu \u00feegar vi\u00f0 komum og var \u00f3metanlegur. Og  vi\u00f0 s\u00e1um um \u00feetta allt sj\u00e1lf, \u00e9g og Flaviano.\u201d<\/p>\n
-Heldur\u00f0u a\u00f0 a\u00f0rar sendiherrafr\u00far hafi gert \u00fea\u00f0 sama og \u00fe\u00fa?
\n\u201c\u00c9g hef ekki hugmynd um \u00fea\u00f0.  \u00deetta fer allt eftir st\u00e6r\u00f0 sendir\u00e1\u00f0a og metna\u00f0i \u00feeirra.
\nA\u00f0 v\u00edsu \u00feurfti \u00e9g ekki a\u00f0 umgangast miki\u00f0 a\u00f0rar sendiherrafr\u00far \u00ed Washington. \u00dea\u00f0 eru Bandar\u00edkjamenn sj\u00e1lfir sem eiga vi\u00f0 mann erindi. Ma\u00f0ur er ekki fyrr komin til landsins en s\u00edminn byrjar a\u00f0 hringja fr\u00e1 leikh\u00fasum, hlj\u00f3msveitum og \u00f3peruh\u00fasum og raddir segjast vera a\u00f0 safna f\u00e9 fyrir vi\u00f0komandi svo a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 standa undir menningunni. \u00cd Bandar\u00edkjunum er allt reki\u00f0 af \u00e1hugaf\u00f3lki. Ekki r\u00edki e\u00f0a borgum. \u00d3tr\u00falegur fj\u00f6ldi af alls konar nefndum eru a\u00f0 safna peningum og margar n\u00fdta s\u00e9r sendir\u00e1\u00f0in. \u00c9g var me\u00f0 st\u00f3rt bor\u00f0stofubor\u00f0 \u00fear sem fj\u00f3rt\u00e1n manns g\u00e1tu seti\u00f0 \u00ed einu og svo er enn hringt og sn\u00edkjur\u00f6dd sag\u00f0i  kannski: \u201cMiki\u00f0 v\u00e6rir\u00f0u v\u00e6n fr\u00fa, ef \u00fe\u00fa vildir hafa dinner \u00ed h\u00fasinu \u00fe\u00ednu fyrir okkur. Hver matargestur borgar \u00fe\u00fasund dollara fyrir a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 sitja til bor\u00f0s hj\u00e1 \u00fe\u00e9r og vi\u00f0 f\u00e1um peninginn \u00ed sj\u00f3\u00f0inn og getum haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 reka Kennedy Center, e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa h\u00e9t.  \u00c9g s\u00e1 m\u00e9r leik \u00e1 bor\u00f0i, a\u00f0 \u00feannig g\u00e6ti \u00e9g kynnst peninga- og valdaf\u00f3lkinu svo a\u00f0 \u00feetta ger\u00f0i \u00e9g i\u00f0ulega og var or\u00f0in  \u00e1g\u00e6tis gestgjafi me\u00f0 h\u00f3telstj\u00f3rareynslu, \u00fe\u00f3 \u00e9g segi sj\u00e1lf fr\u00e1;  g\u00e6ti teki\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 reka me\u00f0alst\u00f3rt h\u00f3tel, held \u00e9g bara.\u201d
\nJ\u00f3n Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendiherra, hefur  seti\u00f0 og \u00feaga\u00f0 svo d\u00e6malaust fallega, a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e6tti halda a\u00f0 hann v\u00e6ri \u00ed transi \u00feegar hann horfir l\u00e1tlaust \u00e1 Brynd\u00edsi s\u00edna. Hann hrekkur upp \u00feegar \u00e9g spyr hvernig honum fyndist p\u00f3lit\u00edska korti\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi l\u00edta \u00fat.
\nHann \u00feegir \u00e1fram sm\u00e1stund. \u00deegar \u00e9g l\u00e6t mig r\u00e1ma \u00ed myndir af honum \u00ed vi\u00f0t\u00f6lum finnst m\u00e9r alltaf a\u00f0 hann l\u00e9ti eins og hann hef\u00f0i n\u00f3gan t\u00edma \u00e1\u00f0ur en hann svara\u00f0i. M\u00e6ttu svo sem fleiri gera.
\nSvo segir hann.
\n\u201cKannski er ma\u00f0urinn sem f\u00f3r ekki  s\u00e1 sami og kom og s\u00e9r \u00feetta d\u00e1l\u00edti\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0rum augum. H\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr, me\u00f0an \u00e9g var \u00ed p\u00f3lit\u00edk og \u00ed samstarfi vi\u00f0 \u00fdmsa menn, til d\u00e6mis annars sta\u00f0ar \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum, \u00fe\u00e1 andm\u00e6lti \u00e9g \u00fev\u00ed alltaf sterklega a\u00f0 \u00cdslendingar v\u00e6ru amer\u00edkan\u00eds\u00e9ra\u00f0ir. \u00c9g sag\u00f0i Sv\u00edum a\u00f0 l\u00edta \u00ed eigin barm. Vi\u00f0 Dani sag\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00feeir k\u00f6llu\u00f0u helgarbla\u00f0 Berlinske \u201cWeekend Avisen\u201d! \u00dea\u00f0 ger\u00f0um vi\u00f0 ekki. Vi\u00f0 hef\u00f0um var\u00f0veitt okkar tungum\u00e1l betur. \u00der\u00e1tt fyrir n\u00e1b\u00fdli\u00f0 vi\u00f0 Bandar\u00edkjamenn hef\u00f0i \u00edslensk menning aldrei veri\u00f0 \u00ed eins miklum bl\u00f3ma!
\n\u00deetta sag\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1. N\u00fa ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 j\u00e1ta a\u00f0 m\u00e9r finnst a\u00f0 sumt \u00ed okkar \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi beri \u00feess merki a\u00f0 vi\u00f0 erum a\u00f0 ver\u00f0a meira amerikan\u00edseru\u00f0 en m\u00e9r ge\u00f0jast a\u00f0. \u00deegar \u00e9g er \u00e1 lei\u00f0 \u00ed b\u00e6inn \u00fe\u00e1 keyra fram \u00far m\u00e9r amer\u00edskir f\u00f3\u00f0urflutningatrukkar sem eru \u00e6tla\u00f0ir til flytja f\u00f3\u00f0ur \u00e1 sl\u00e9ttum Amer\u00edku en ausa yfir mig aur \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0veginum svo m\u00e9r er fari\u00f0 a\u00f0 l\u00ed\u00f0a eins og \u00e9g b\u00fai \u00ed einhverju amer\u00edsku \u00fathverfi. \u00deessi ynd\u00e6li dalur, Reykjadalurinn, sem kallast n\u00fa Mosfellsb\u00e6r, hefur \u00ed mi\u00f0ju s\u00e9r Kentucky-Fried Chicken-sta\u00f0, amer\u00edska myndbandaleigu og eina bens\u00ednst\u00f6\u00f0. \u00deegar \u00e9g kveiki \u00e1 sj\u00f3nvarpinu er \u00fear ekkert nema amer\u00edskt rusl \u00e1 myndbandssp\u00f3lum fyrir utan fr\u00e9ttir. \u00cd Helsinki g\u00e1tum vi\u00f0 vali\u00f0 \u00far tugum kvikmynda v\u00ed\u00f0svegar a\u00f0 \u00far heiminum, ekki s\u00edst Evr\u00f3pskum kvikmyndum. \u00c9g var varla fyrr kominn til landsins \u00feegar samt\u00f6k atvinnul\u00edfsins voru me\u00f0 r\u00e1\u00f0stefnu, \u00feetta eru dugna\u00f0arstr\u00e1kar og sag\u00f0ir vera \u00ed st\u00f3rri \u00fatr\u00e1s en \u00feeir voru me\u00f0 till\u00f6gu um a\u00f0 leggja ni\u00f0ur \u00edslenskuna, \u00fev\u00ed h\u00fan hamla\u00f0i eitthva\u00f0 \u00fatr\u00e1sinni! Hva\u00f0 \u00feykjast \u00feessi g\u00e6jar  vera?<\/p>\n
-Kitlar \u00fea\u00f0 \u00feig a\u00f0 reyna a\u00f0 breyta \u00feessu eitthva\u00f0?
\n\u00dea\u00f0 er merkilegt hva\u00f0 J\u00f3n Baldvin getur seti\u00f0 lengi kyrr, n\u00e1nast eins og hann s\u00e9 skorinn \u00fat \u00ed krossvi\u00f0, augun svo d\u00e6ma-laust r\u00f3leg. \u00dea\u00f0 er hreint ekki eins og hann s\u00e9 a\u00f0 fara \u00fat a\u00f0 bor\u00f0a og s\u00ed\u00f0an \u00ed leikh\u00fas og klukkan tifar s\u00edfellt! Svo dregur hann dj\u00fapt andann og svarar.
\n\u201c\u00c9g hef jafn mikinn \u00e1huga \u00e1 p\u00f3lit\u00edk og \u00e9g hef alltaf haft. Ekki minni.\u201d
\nHann dregur \u00f6gn seiminn \u00feegar hann heldur \u00e1fram.
\n\u201c\u00c9g get ekkert a\u00f0 \u00fev\u00ed gert a\u00f0 ef m\u00e9r misl\u00edkar eitthva\u00f0 vil \u00e9g koma m\u00ednum sko\u00f0unum \u00e1 framf\u00e6ri og jafnvel reyna a\u00f0 b\u00e6ta \u00e1standi\u00f0. \u00c9g hef hins vegar ekki \u00feann metna\u00f0 sem \u00e9g haf\u00f0i pers\u00f3nulega til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 einhverjum frama \u00ed p\u00f3lit\u00edk. \u00dea\u00f0 er l\u00f6ngu li\u00f0i\u00f0. \u00c9g hef engan \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 setjast \u00e1 \u00feing e\u00f0a setjast \u00ed einhvern r\u00e1\u00f0herrast\u00f3l, e\u00f0a eins og Kanar segja:\u201d I have been there and done that.\u201d \u00deannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur bara a\u00f0 koma \u00ed lj\u00f3s.\u201d<\/p>\n
-\u00de\u00fa l\u00e6tur \u00fe\u00e9r n\u00e6gja a\u00f0 Brynd\u00eds kitli \u00feig!
\nHann k\u00edmir.
\n\u201c\u00dea\u00f0 er \u00f3sk\u00f6p notalegt.\u201d<\/p>\n
-En er ekki veri\u00f0 a\u00f0 hv\u00edsla a\u00f0 \u00fe\u00e9r sei\u00f0andi or\u00f0um um a\u00f0 koma aftur og l\u00e1ta til \u00fe\u00edn taka?
\n\u201cJ\u00fa, en \u00fea\u00f0 er n\u00fa ekki allt sem s\u00fdnist. \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00e9g hitti f\u00f3lk \u00e1 f\u00f6rnum vegi sem segir a\u00f0 miki\u00f0 s\u00e9 n\u00fa gott a\u00f0 sj\u00e1 mig aftur og hvort \u00e9g \u00e6tli ekki \u00ed p\u00f3lit\u00edkina, tek \u00e9g \u00fea\u00f0 ekki alvarlega.\u201d<\/p>\n
-Var erfitt a\u00f0 ganga \u00fat \u00far Al\u00feingish\u00fasinu og gerast sendiherra?
\n\u201cEkki erfitt nei, en \u00fea\u00f0 var gerbreyting. \u00cd m\u00ednu tilviki voru stj\u00f3rnm\u00e1l str\u00ed\u00f0. \u00dea\u00f0 er ekki  svo hj\u00e1 \u00f6llum stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum svo k\u00f6llu\u00f0um. En \u00fea\u00f0 var str\u00ed\u00f0 fr\u00e1 morgni til kv\u00f6lds.\u201d<\/p>\n
-\u00c1tti \u00fea\u00f0 vi\u00f0 \u00feig?
\n\u00d6nnur augabr\u00fan J\u00f3ns Baldvins lyftist \u00ed f\u00f6gnu\u00f0i.
\n\u201cJ\u00e1, j\u00e1, j\u00e1j\u00e1j\u00e1! \u00c9g haf\u00f0i gaman af str\u00ed\u00f0um.\u201d
\nBros.
\n\u201c\u00dea\u00f0 var tekist \u00e1 um st\u00f3r m\u00e1l. \u00c9g var mj\u00f6g umdeildur stj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0ur, \u00e9g man \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 eru kanski ekki allir sem muna hva\u00f0 \u00e9g var umdeildur. A\u00f0 vera sendiherra er n\u00fa bara 9 til 5 djobb \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 \u00feau \u00f3sk\u00f6p, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 fari talsvert af \u00fev\u00ed starfi fram \u00e1 kv\u00f6ldin.\u201d<\/p>\n
-En af hverju f\u00f3rstu \u00ed \u00feetta?
\n\u201c\u00c9g haf\u00f0i veri\u00f0 forma\u00f0ur \u00ed m\u00ednum flokki \u00ed t\u00f3lf \u00e1r og veri\u00f0 r\u00e1\u00f0herra \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rnum \u00ed \u00e1tta \u00e1r. \u00c9g haf\u00f0i beitt m\u00e9r fyrir st\u00f3rum og umdeildum m\u00e1lum me\u00f0 m\u00ednum samstarfsm\u00f6nnum og vi\u00f0 komi\u00f0 miklu \u00ed verk. Vi\u00f0 l\u00f6g\u00f0um raunar grundv\u00f6llinn a\u00f0 \u00fev\u00ed n\u00fdja \u00cdslandi sem \u00e9g var a\u00f0 f\u00e1rast yfir h\u00e9rna r\u00e9tt \u00e1\u00f0an. Jafnframt h\u00e1tta\u00f0i svo til og var raunverulega kominn t\u00edmi til, a\u00f0 endurskipuleggja vinstri\u00f0 \u00ed \u00edslenskri p\u00f3lit\u00edk. Gamall draumur sem hefur veri\u00f0 me\u00f0 m\u00e9r alla t\u00ed\u00f0 a\u00f0 jafna\u00f0armenn eigi a\u00f0 starfa saman \u00ed einum flokki.
\nMitt p\u00f3lit\u00edska kapital var a\u00f0 sumu leyti upp uri\u00f0. \u00c9g sag\u00f0i a\u00f0 \u00e9g hafi veri\u00f0 umdeildur stj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0ur, \u00fea\u00f0 voru margir sem l\u00f6g\u00f0u talsver\u00f0a f\u00e6\u00f0 \u00e1 mig, ekki s\u00edst innan vinstra li\u00f0sins, margir sem b\u00e1ru einhver s\u00e1r eftir vi\u00f0skipti vi\u00f0 mig. M\u00edn ni\u00f0ursta\u00f0a var s\u00fa a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti best greitt fyrir \u00fev\u00ed sem \u00feyrfti a\u00f0 gerast me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 draga mig \u00ed hl\u00e9.\u201d
\nEn hva\u00f0 me\u00f0 draum \u00feinn um st\u00f3ra jafna\u00f0armannaflokkinn?
\n\u201cTil \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta drauminn r\u00e6tast \u00feurfti \u00e9g a\u00f0 draga mig \u00ed hl\u00e9. \u00dea\u00f0 l\u00e1 lj\u00f3st fyrir a\u00f0 st\u00f3r jafna\u00f0armannaflokkur mundi \u00ed frumbernsku vera nokku\u00f0 lengi \u00ed stj\u00f3rnarandst\u00f6\u00f0u. R\u00edkisstj\u00f3rnarsamsteypa Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokks og Frams\u00f3knar, sem seti\u00f0 hefur vi\u00f0 v\u00f6ld fr\u00e1 1995, var n\u00e1nast \u00f3hj\u00e1kv\u00e6mileg. H\u00fan hefur svo sem ekki gert miki\u00f0 en \u00fea\u00f0 hefur miki\u00f0 gerst sem h\u00fan hefur ekki skipt s\u00e9r af.\u201d<\/p>\n
-Brynd\u00eds, varstu samm\u00e1la \u00feessu, a\u00f0 J\u00f3n Baldvin h\u00e6tti \u00ed p\u00f3lit\u00edk og \u00fei\u00f0 f\u00e6ru\u00f0 \u00fat \u00ed hi\u00f0 lj\u00fafa l\u00edf sendiherrans?
\nH\u00fan l\u00edtur af m\u00e9r og horfir r\u00f3legum augum \u00e1 mann sinn sem hefur aftur sett sig \u00ed \u00feagnarr\u00f3.
\n\u201c\u00dea\u00f0 var \u00e1fall fyrir mig \u00feegar hann \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 h\u00e6tta sem forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksins. \u00c9g s\u00e1 eftir Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokknum, \u00e1tti \u00fear l\u00edka m\u00edna bestu vini. Vi\u00f0 vorum eins og ein fj\u00f6lskylda, \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 var eftirsj\u00e1 \u00ed \u00fev\u00ed. Hinsvegar, \u00feegar \u00feetta bo\u00f0 kom um a\u00f0 fara burtu af landinu, \u00fe\u00e1 n\u00e1tt\u00farlega greip ma\u00f0ur \u00fea\u00f0. M\u00e9r fannst Halld\u00f3r \u00c1sgr\u00edmsson mj\u00f6g \u00f6rl\u00e1tur ma\u00f0ur a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a andst\u00e6\u00f0ingi s\u00ednum \u00ed p\u00f3lit\u00edk a\u00f0 gerast sendiherra \u00ed Washington, sem er n\u00e1tt\u00farlega borg borganna. \u00c9g vissi \u00fea\u00f0 strax a\u00f0 \u00e9g mundi eiga mj\u00f6g g\u00f3\u00f0a t\u00edma framundan og held a\u00f0 m\u00edn bestu \u00e1r jafnvel hafi veri\u00f0 eftir a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f3rum af landinu.
\n\u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig ekki \u00e1 \u00fev\u00ed fyrr en \u00e9g var komin \u00fat hva\u00f0 \u00e9g var undir miklum \u00fer\u00fdstingi og pressu h\u00e9r heima. \u00deetta var b\u00fdsna miki\u00f0 \u00e1reiti h\u00e9r heima, st\u00f6\u00f0ugar \u00e1r\u00e1sir og ma\u00f0ur \u00feor\u00f0i varla a\u00f0 opna \u00fatvarp e\u00f0a sj\u00f3nvarp, ma\u00f0ur vissi aldrei hva\u00f0 k\u00e6mi n\u00e6st.\u201d
\nN\u00fa er eins og J\u00f3n Baldvin vakni og augu hans ver\u00f0a mild \u00feegar hann segir:
\n\u201cH\u00fan er svo vi\u00f0kv\u00e6m, \u00feessi elska.\u201d<\/p>\n
-Segi\u00f0 m\u00e9r \u00e1g\u00e6tu hj\u00f3n, \u00fearf \u00feetta a\u00f0 vera svona? \u00dearf konan a\u00f0 gjalda \u00feess og b\u00f6rnin, a\u00f0 eiginma\u00f0urinn er umdeildur \u00ed p\u00f3lit\u00edk?
\nBrynd\u00eds segir \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 anna\u00f0 hvort s\u00e9u \u00feau saman \u00ed \u00feessu e\u00f0a ekki.
\n\u201cMa\u00f0ur hle\u00f0ur ekki vegg \u00e1 milli s\u00edn og eiginmannsins.\u201d<\/p>\n
-En \u00fe\u00fa, Brynd\u00eds, \u00fe\u00fa varst af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um mun s\u00fdnilegri sem eiginkona stj\u00f3rnm\u00e1lamanns en nokkur \u00f6nnur \u00ed \u00feeirri st\u00f6\u00f0u. S\u00e9r\u00f0u eiginkonu Halld\u00f3rs \u00c1sgr\u00edmssonar einhvers sta\u00f0ar?
\n\u201c\u00dea\u00f0 var alls ekki me\u00f0vita\u00f0, nei, alls ekki. Kannski var \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kenna a\u00f0 \u00e9g var \u00feekkt \u00far sj\u00f3nvarpinu. Getur veri\u00f0 \u00fea\u00f0, sem vakti \u00e1huga \u00feeirra \u00e1 m\u00e9r og hva\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 gera. \u00c9g var au\u00f0vita\u00f0 mj\u00f6g virkur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed \u00feessu \u00f6llu me\u00f0 J\u00f3ni. Og eflaust hefur \u00fea\u00f0 skipt m\u00e1li, a\u00f0 andst\u00e6\u00f0ingarnir vissu a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 mig , fyndu \u00feeir veikan blett \u00e1 J\u00f3ni Baldvini. \u201d<\/p>\n
-\u00de\u00fa lif\u00f0ir samt sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u l\u00edfi sem \u00e1berandi fj\u00f6lmi\u00f0lakona.
\n\u201c\u00c9g get enga sk\u00fdringu gefi\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed af hverju f\u00f3lk hefur \u00e1huga \u00e1 sumum en ekki \u00f6\u00f0rum. En kannski er \u00fea\u00f0 eitthva\u00f0 \u00ed fari m\u00ednu, sem \u00f6grar f\u00f3lki. \u201d<\/p>\n
-Aftur a\u00f0 sendiherrahj\u00f3nunum. \u00de\u00fa skrifa\u00f0ir pistil, Brynd\u00eds, \u00feegar \u00fei\u00f0 voru\u00f0 a\u00f0 leggja af sta\u00f0 heim fr\u00e1 Finnlandi og nutu\u00f0 ekki lengur \u00feeirra s\u00e9rr\u00e9ttinda sem sendiherrastarfinu fylgir. Skrifa\u00f0ir a\u00f0 \u00fei\u00f0 v\u00e6ru\u00f0 or\u00f0in venjulegt f\u00f3lk. Var einhver s\u00f6knu\u00f0ur eftir forr\u00e9ttindunum \u00ed \u00feessum skrifum?
\n\u201cNei, \u00e9g var einmitt fegin a\u00f0 vera laus vi\u00f0 \u00feau. Starfi sendiherra fylgir svo miki\u00f0 form, prj\u00e1l og umb\u00fa\u00f0ir. H\u00fan hefur oft gripi\u00f0 mig, \u00feessi tilfinning a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 \u00farelt form, til d\u00e6mis a\u00f0 vera me\u00f0 b\u00edl og b\u00edlstj\u00f3ra. \u00c9g var mj\u00f6g fegin a\u00f0 hafa minn eiginn b\u00edl og geta fari\u00f0 m\u00ednar eigin lei\u00f0ir og enginn v\u00e6ri a\u00f0 skipta s\u00e9r af m\u00e9r. \u00dea\u00f0 var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 frelsi a\u00f0 komast \u00far \u00feessu kerfi. \u00deetta var kannski gaman svona allra fyrst, skilur\u00f0u, en \u00e9g er flj\u00f3t a\u00f0 a\u00f0lagast n\u00fdjum a\u00f0st\u00e6\u00f0um og finnst yfirleitt allt svo forvitnilegt \u00ed kring um mig, sem gerir l\u00edfi\u00f0 spennandi.\u201d
\nJ\u00f3n Baldvin segir ekkert vi\u00f0 \u00feessu. \u00deegir \u00e1 sinn talandi h\u00e1tt.<\/p>\n
-Hva\u00f0 segir fyrrverandi utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra, sem var r\u00e1\u00f0andi sendiherra \u00fat um allt? Ertu samm\u00e1la konu \u00feinni a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00farelt kerfi a\u00f0 hafa sendiherra?
\n\u00dea\u00f0 kemur falleg h\u00e1\u00f0sbros \u00fat \u00ed anna\u00f0.
\n\u201cNei, nei, og \u00e9g veit ekkert hvort h\u00fan meinar \u00feetta sem h\u00fan segir um prj\u00e1li\u00f0. H\u00fan er n\u00fa prj\u00e1llaus kona h\u00fan Brynd\u00eds. Um t\u00edma h\u00e9lt \u00e9g a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri tekin vi\u00f0 \u00feessu b\u00edlstj\u00f3radjobbi sj\u00e1lf, \u00fev\u00ed h\u00fan var farin ap keyra b\u00edlstj\u00f3rann heim og aka sj\u00e1lf.\u201d<\/p>\n
-M\u00e1ttir \u00fe\u00fa tj\u00e1 \u00feig um \u00fe\u00ednar sko\u00f0anir \u00e1n \u00feess a\u00f0 tala vi\u00f0 utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra?
\n\u201cNei, sendiherra hefur umbo\u00f0 stj\u00f3rnvalda til a\u00f0 flytja \u00feeirra m\u00e1l. Sendima\u00f0urinn flytur bo\u00f0 og stefnu stj\u00f3rnvalda, svo koma t\u00falkunaratri\u00f0i, hva\u00f0 m\u00e1 og hva\u00f0 ekki. M\u00e1 hann flytja erindi \u00e1 vegum h\u00e1sk\u00f3la e\u00f0a ranns\u00f3knastofnana \u00e1 vegum svokalla\u00f0ra hugveita e\u00f0a heilaveita?
\nEitt af \u00fev\u00ed sem \u00e9g ger\u00f0i miki\u00f0 af \u00ed Washington DC var a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed sl\u00edku. \u00dea\u00f0 er miki\u00f0 af ranns\u00f3knarstofnunum \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum, varnarm\u00e1lum og \u00f6ryggism\u00e1lum. \u00dea\u00f0 eru til stofnanir um alla skapa\u00f0a hluti og sumar \u00feeirra mj\u00f6g hugmyndafr\u00e6\u00f0ilega bjaga\u00f0ar. N\u00e1nast tr\u00fabo\u00f0sstofnanir. Af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um var eftirspurn eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 sendiherra til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed sl\u00edkum m\u00e1lfundum og flytja erindi. Einnig vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3la og \u00e9g ger\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00e1n athugasemda fr\u00e1 stj\u00f3rnv\u00f6ldum heima.<\/p>\n
-Hvernig var fyrir \u00feig, stj\u00f3rnm\u00e1lamann mj\u00f6g til vinstri, a\u00f0 koma sendiherra til \u00feessa mj\u00f6g svo h\u00e6gri sinna\u00f0a lands?
\n\u201cVi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00fea\u00f0 \u00e1 or\u00f0i \u00ed gamla daga a\u00f0 \u00feeir \u00edslensku n\u00e1msmenn sem f\u00f3ru til Bandar\u00edkjanna hafi or\u00f0i\u00f0 komm\u00fanistar. \u00deeir sem f\u00f3ru til Sov\u00e9tr\u00edkjanna ur\u00f0u \u00f6fgah\u00e6gri menn, h\u00e6gra megin vi\u00f0 Solzhenitsyn. \u00deetta var \u00ed st\u00f3rum dr\u00e1ttum r\u00e9tt. Fimm \u00e1ra dv\u00f6l okkar \u00ed Bandar\u00edkjunum haf\u00f0i \u00e1hrif af \u00feessu tagi. \u00c9g er ekki \u00ed nokkrum vafa um a\u00f0 kynnin af bandar\u00edsku \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi hafa skerpt vinstri sj\u00f3narmi\u00f0 m\u00edn og d\u00fdpka\u00f0 sannf\u00e6ringu m\u00edna fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 hi\u00f0 evr\u00f3pska velfer\u00f0arr\u00edki er miki\u00f0 p\u00f3lit\u00edskt afrek og eftirs\u00f3knarvert a\u00f0 vi\u00f0halda \u00fev\u00ed.<\/p>\n
-Var ekki stundum erfitt a\u00f0 vera kurteis sendiherra og n\u00e1nast hlutlaus og segja ekki til vamms \u00ed veislum e\u00f0a \u00ed einkasamt\u00f6lum vi\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1lamenn?
\n\u201cNei, \u00fea\u00f0 var \u00fea\u00f0 n\u00fa ekki. Formleg samskipti sendiherra vi\u00f0 fulltr\u00faa stj\u00f3rnvalda \u00ed vi\u00f0t\u00f6kur\u00edkinu er \u00ed Washington fyrst og fremst \u00e1 svi\u00f0i utanr\u00edkis- og varnarm\u00e1la. A\u00f0 nokkru leyti vi\u00f0skiptam\u00e1la og \u00fe\u00e1 \u00ed samstarfi vi\u00f0 vi\u00f0skiptafulltr\u00faa, sem reyndar situr \u00ed New York \u00fe\u00f3 hann tilheyri sendir\u00e1\u00f0inu. \u00deri\u00f0ji hluti starfsins er s\u00ed\u00f0an kynning \u00e1 landi, \u00fej\u00f3\u00f0 og menningu. Svo \u00e9g nefni \u00fe\u00e9r d\u00e6mi \u00fe\u00e1 var \u00e9g \u00e1ri\u00f0 2000, \u00e1 tv\u00f6 \u00fe\u00fasund ara aldarafm\u00e6li Leifs heppna,  vi\u00f0staddur 270 atbur\u00f0i \u00ed Bandar\u00edkjunun, Kanada og Mex\u00edk\u00f3.
\nVi\u00f0 f\u00f3rum um n\u00e6rri \u00f6ll fylki Bandar\u00edkjanna og m\u00f6rg af fylkjum Kanada. \u00deetta var au\u00f0vita\u00f0 samr\u00e6md tilraun af h\u00e1lfu Nor\u00f0urlandanna til a\u00f0 reisa sinn pr\u00f3f\u00edl, draga upp s\u00e9rstaka mynd af Nor\u00f0url\u00f6ndum, og \u00fev\u00ed sem v\u00e6ri framlag norr\u00e6nna manna til \u00fej\u00f3\u00f0ardeiglunnar sem Bandar\u00edki Nor\u00f0ur-Amer\u00edku er. \u00deetta t\u00f3k au\u00f0vita\u00f0 gr\u00ed\u00f0arlegan t\u00edma og atorku og kalla\u00f0i fyrst og fremst \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 sendiherrann tala\u00f0i endalaust \u00e1 samkundum og \u00ed stofnunum og h\u00e1sk\u00f3lum. Hann \u00feurfti au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 vera f\u00e6r um a\u00f0 tala af einhverri \u00feekkingu um land, \u00fej\u00f3\u00f0 og tungu. Hina heil\u00f6gu \u00ferenningu.\u201d
\nEftir \u00feessa r\u00e6\u00f0u er eins og J\u00f3n Baldvin fari \u00ed framhaldstrans. Me\u00f0an hann tala\u00f0i haf\u00f0i hann seti\u00f0 n\u00e6rri hreyfingarlaus og r\u00f3legur \u00e1 svip. Honum leiddist samt ekki held \u00e9g – og vona.
\nBrynd\u00eds tekur n\u00fa vi\u00f0.
\n\u201cM\u00e9r finnst einhver vegin a\u00f0 utanr\u00edkis\u00fej\u00f3nustan hafi ekki \u00e1kve\u00f0i\u00f0 til hvers s\u00e9  veri\u00f0 a\u00f0 reka sendir\u00e1\u00f0. H\u00fasn\u00e6\u00f0i sendiherra eru yfirleitt gl\u00e6sileg, \u00fear er all til alls…….\u201d
\n\u201cEr \u00fea\u00f0?\u201d
\n\u00dea\u00f0 er fyrrverandi sendiherra sem gr\u00edpur framm\u00ed, en Brynd\u00eds, fyrrverandi sendiherrafr\u00fa, l\u00e6tur ekki trufla sig. H\u00fan hv\u00edslar einhverri athugasemd a\u00f0 J\u00f3ni sem \u00e9g \u00e1 ekki  a\u00f0 heyra, enda heyr\u00f0i \u00e9g ekki. H\u00fan heldur svo \u00e1fram.
\n\u201cTil \u00feess a\u00f0 geta n\u00fdtt \u00feessa a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00fearf au\u00f0vita\u00f0 peninga. \u00c9g held a\u00f0 \u00f6llum sendir\u00e1\u00f0um s\u00e9 skorinn svo \u00fer\u00f6ngur stakkur a\u00f0 sendiherrar hafa ekki t\u00f6k \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 kynna land og \u00fej\u00f3\u00f0, sem manni finnst a\u00f0 hlj\u00f3ti a\u00f0 vera a\u00f0al hlutverk sendir\u00e1\u00f0a \u00cdslands um allan heim. \u00dea\u00f0, a\u00f0 hafa gl\u00e6silegt f\u00f3lk sem hefur t\u00f6k \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 til lykilf\u00f3lks me\u00f0 kynningum s\u00ednum \u00e1 landi og \u00fej\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 er ekki n\u00f3g af hafa gl\u00e6sileg h\u00fasakynni, ef ekki er h\u00e6gt a\u00f0 n\u00fdta \u00feau. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri miklu praktiskara \u00fe\u00e1 a\u00f0 setja sendiherrann \u00ed \u00f3d\u00fdrari \u00edb\u00fa\u00f0 \u00ed \u00fathverfi og s\u00ed\u00f0an g\u00e6ti hann eki\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r  \u00e1 vinnusta\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00f3\u00fearfi a\u00f0 hafa svona d\u00fdrt h\u00fasn\u00e6\u00f0i og \u00f3\u00fearfa dekur, ef engir peningar eru  til athafna.
\n\u00c9g haf\u00f0i matarbo\u00f0 fyrir \u00e1hrifamikla Bandar\u00edkjamenn og  ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 stefnum\u00e1li a\u00f0 f\u00e1 listaf\u00f3lk a\u00f0 heiman til a\u00f0 skemmta gestunum. \u00c9g sag\u00f0i listaf\u00f3lkinu a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti ekkert borga\u00f0 \u00fev\u00ed en redda\u00f0i \u00f3keypis fari fyrir \u00fea\u00f0 og bau\u00f0 \u00fev\u00ed gistingu hj\u00e1 okkur og \u00fea\u00f0 skemmi fyrir okkur \u00ed sta\u00f0inn. \u00deetta var fastur li\u00f0ur \u00ed veislum okkar.\u201d<\/p>\n
-Varstu einskonar menningarfulltr\u00fai \u00cdslands \u00ed sendir\u00e1\u00f0inu?
\n\u201cSj\u00e1lfskipa\u00f0ur,\u201d svarar h\u00fan og J\u00f3n Baldvin b\u00e6tir vi\u00f0 hreykinn:
\n\u201c\u00dea\u00f0 er alveg r\u00e9tt, h\u00fan var \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 eru um 200 sendir\u00e1\u00f0 \u00ed Washington og hvert og eitt me\u00f0 menningarfulltr\u00faa e\u00f0a heilar menningardeildir. \u00dea\u00f0 er gefi\u00f0 \u00fat t\u00edmarit \u00ed borginni sem er n\u00e1nast eing\u00f6ngu helga\u00f0 starfsemi sendir\u00e1\u00f0anna, enda mikil samkeppni um a\u00f0 koma \u00fej\u00f3\u00f0unum \u00e1 framf\u00e6ri. \u00c1r eftir \u00e1r \u00feennan t\u00edma sem vi\u00f0 vorum \u00fear var okkar sendir\u00e1\u00f0 me\u00f0al \u00feeirra \u00e1tta sendir\u00e1\u00f0a sem samkv\u00e6mt \u00feeirra sko\u00f0anak\u00f6nnunum \u00fe\u00f3tti eftirs\u00f3knarver\u00f0ast a\u00f0 koma \u00ed samkv\u00e6mi hj\u00e1. \u00dea\u00f0 var fyrst og fremst Brynd\u00edsi a\u00f0 \u00feakka. En h\u00fan haf\u00f0i ekki mikla peninga til \u00feess.\u201d
\nBrynd\u00eds b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi \u00ed Finnlandi \u00fear sem borgir og r\u00edki reka alla menningu,
\n\u201c\u00dear var \u00fev\u00ed engin eftirspurn eftir f\u00f3lki eins og m\u00e9r.  \u00dea\u00f0 er erfi\u00f0ara a\u00f0 komast inn \u00ed finnskt samf\u00e9lag en bandar\u00edskt, enda eru Finnar \u00f3l\u00edkir Bandar\u00edkjam\u00f6nnum. Ma\u00f0ur kynntist \u00feess vegna kollegum fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum sendir\u00e1\u00f0um mun meira. Nokku\u00f0 sem ger\u00f0ist ekki \u00ed Bandar\u00edkjunum.\u201d<\/p>\n
-J\u00f3n Baldvin, a\u00f0eins a\u00f0 \u00f6\u00f0ru. Hvernig hef\u00f0ir \u00fe\u00fa sem utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra, teki\u00f0 \u00e1 \u00feeirri \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Bandar\u00edkjamanna a\u00f0 loka herst\u00f6\u00f0inni \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli?
\nFyrrum utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra \u00cdslands svara  \u00e1n umhugsunar.
\n\u201c\u00c9g hef sagt \u00fea\u00f0 \u00e1\u00f0ur og get endurteki\u00f0 \u00fea\u00f0 vi\u00f0 \u00feig alveg hreint og kl\u00e1rt; \u00e9g hef\u00f0i fylgt stefnu Dav\u00ed\u00f0s Oddsonar \u00ed \u00fev\u00ed m\u00e1li. \u00deegar vi\u00f0 h\u00e9ldum upp \u00e1 50 \u00e1ra afm\u00e6li varnarsamstarfsins vi\u00f0 Bandar\u00edkin \u00e1ri\u00f0 2001, var efnt til m\u00e1l\u00feings \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0menningarh\u00fasi og af \u00fev\u00ed tilefni var \u00edtarlegt vi\u00f0tal vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 Oddsson, fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra. Hann sag\u00f0i eitthva\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0, –  \u00e9g man \u00feetta ekki or\u00f0r\u00e9tt: Varnarsamningurinn er grundv\u00f6llur \u00feessa samstarfs og kve\u00f0ur \u00e1 um gagnkv\u00e6m r\u00e9ttindi og skuldbindingar. Varnirnar eru ekki bara \u00ed \u00fe\u00e1gu Bandar\u00edkjanna heldur l\u00edka \u00ed \u00fe\u00e1gu \u00cdslands og grann\u00fej\u00f3\u00f0a okkar. Ef Bandar\u00edkjamenn taka einhli\u00f0a \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 hverfa fr\u00e1 skuldbindingum s\u00ednum um tr\u00faver\u00f0ugar varnir \u00cdslands a\u00f0 okkar mati og \u00e1n samr\u00e1\u00f0s vi\u00f0 okkur, \u00fe\u00e1 geta \u00feeir bara hypa\u00f0 sig!\u201d
\nN\u00fa er kominn skemmtilegur svipur \u00e1 J\u00f3n Baldvin og \u00e9g er hreint ekki viss um hvort \u00fea\u00f0 er gamall r\u00e1\u00f0herrasvipur. Svo heldur hann \u00e1fram:
\n\u201cEf Bandar\u00edkjamenn hef\u00f0u tilkynnt m\u00e9r sem fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra me\u00f0 s\u00edmtali fr\u00e1 einhverri undirtyllu a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri \u00feessu loki\u00f0 \u00fe\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g sagt \u00fea\u00f0 sama og Dav\u00ed\u00f0 Oddson: \u00dea\u00f0 er brot \u00e1 varnarsamningnum. \u00deetta er einhli\u00f0a \u00e1kv\u00f6r\u00f0un ykkar. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 sni\u00f0gengi\u00f0 samr\u00e1\u00f0 vi\u00f0 okkur og skulu\u00f0 bara pakka saman!\u201d<\/p>\n
-Hva\u00f0 viltu segja vi\u00f0 n\u00faverandi r\u00edkisstj\u00f3rn sem hefur veri\u00f0 n\u00e1nast v\u00e6landi vi\u00f0 \u00fer\u00f6skuld Bandar\u00edkjaforseta?
\n\u201c\u00cd gu\u00f0anna b\u00e6num, standi\u00f0 \u00ed lappirnar. Hva\u00f0 eru\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja um? \u00deessu er loki\u00f0. \u00deetta voru allt saman s\u00fdndarvi\u00f0r\u00e6\u00f0ur!
\nKjarni m\u00e1lsins er \u00feessi: \u00dea\u00f0 er engin herna\u00f0arleg \u00f3gn sem ste\u00f0jar a\u00f0 \u00cdslandi. H\u00e9r var kalt str\u00ed\u00f0 \u00e1ratugum saman og Sov\u00e9tr\u00edkin skilgreind sem \u00f3vinurinn. Og voru \u00fea\u00f0  l\u00f6ngum. \u00deetta var kalt str\u00ed\u00f0 milli Sov\u00e9tr\u00edkjanna og bandamanna \u00feeirra annars vegar og hins vegar l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkja \u00e1 vesturl\u00f6ndum. NATO var kjarninn \u00ed \u00fev\u00ed og vi\u00f0 vorum a\u00f0ilar a\u00f0 NATO. \u00deessu t\u00edmabili er loki\u00f0.
\nSov\u00e9tr\u00edkin li\u00f0u undir lok \u00ed \u00e1rslok 1991. \u00dea\u00f0 var \u00f3vissut\u00edmabil nokkur \u00e1r \u00fear \u00e1 eftir. Me\u00f0al annars \u00feess vegna var \u00fea\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1994, \u00e1 n\u00e6st s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri m\u00ednu sem utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra, a\u00f0 eftir \u00edtarlegar vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur vi\u00f0 bandar\u00edsk stj\u00f3rnv\u00f6ld undirritu\u00f0um vi\u00f0 me\u00f0 vara varnarm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra Bandar\u00edkjanna s\u00e9rstaka b\u00f3kun um framkv\u00e6md varnarsamningsins sem gilti a\u00f0eins \u00ed tv\u00f6 \u00e1r og forsendan var s\u00fa a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri \u00f3vissu\u00e1stand. L\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is\u00fer\u00f3unin \u00ed R\u00fasslandi var mj\u00f6g skammt \u00e1 veg komin og margir hr\u00e6ddir um a\u00f0 R\u00fassar mundu hverfa aftur til fyrri stj\u00f3rnarh\u00e1tta. \u00deeirri \u00f3vissu er l\u00f6ngu l\u00f6ngu loki\u00f0 og Sov\u00e9tr\u00edkin eru n\u00fana n\u00e1inn bandama\u00f0ur Bandar\u00edkjanna \u00ed \u00fev\u00ed sem \u00feeir skilgreina sem  heimsstr\u00ed\u00f0 gegn hry\u00f0juverkum.
\n\u00dea\u00f0 er engin  herna\u00f0arleg \u00f3gn sem stafar fr\u00e1 neinu \u00fej\u00f3\u00f0r\u00edki gagnvart \u00cdslandi og ekki \u00e1 okkar sv\u00e6\u00f0i \u00ed heiminum. S\u00fa \u00f3gn sem a\u00f0 okkur ste\u00f0jar tengist hugsanlegum hry\u00f0juverkum. H\u00fan tengist al\u00fej\u00f3\u00f0legri gl\u00e6pastarfsemi sem stundum er samtvinnu\u00f0. H\u00fan sn\u00fdst um borgarlegar varnir. Fullvalda r\u00edki hl\u00fdtur a\u00f0 tryggja \u00f6ryggi borgaranna. \u00dea\u00f0 er eitt af frumskyldum \u00feess.
\nVerkefni okkar n\u00fana er einfaldlega \u00feetta: A\u00f0 hve miklu leyti  getum vi\u00f0 gert \u00fea\u00f0 sj\u00e1lf?
\nMoldr\u00edk \u00fej\u00f3\u00f0, sj\u00f6tta r\u00edkasta \u00fej\u00f3\u00f0 \u00ed heimi!
\nA\u00f0 hve miklu leyti er e\u00f0lilegt a\u00f0 \u00f3ska eftir samstarfi grann\u00fej\u00f3\u00f0a innan Atlantshafsbandalagsins og reyndar Evr\u00f3pusambandsins?
\nVi\u00f0 eigum a\u00f0 fara \u00ed vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir um \u00feetta.
\nEystrasaltsr\u00edkin hafa veri\u00f0 nefnd sem hli\u00f0st\u00e6\u00f0a, en \u00fear \u00feekki  \u00e9g vel til eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 \u00fear sendiherra s\u00ed\u00f0astli\u00f0in \u00ferj\u00fa \u00e1r. \u00c9g eyddi verulegum hluta af m\u00ednum starfst\u00edma \u00fear. \u00deau hafa ekki eigin flugher. Atlantshafsbandalagi\u00f0 hefur \u00e1byrgst \u00feeim tr\u00faver\u00f0ugar s\u00fdnilegar loftvarnir og a\u00f0 \u00fear skipta \u00f6nnur r\u00edki me\u00f0 s\u00e9r verkum. Um \u00feetta \u00fearf au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 semja.
\nEn kjarni m\u00e1lsins er \u00feessi:  Tv\u00edhli\u00f0a varnarsamstarfi vi\u00f0 Bandar\u00edkin er loki\u00f0.\u201d<\/p>\n
-Hvernig var fyrir ykkur a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 k\u00edkja bak vi\u00f0 \u00feetta leiksvi\u00f0 sem Bandar\u00edkin hafa fyrir heiminn, en s\u00fdna reyndar alltaf sama leikriti\u00f0 sem g\u00e6ti heiti\u00f0 \u201cVi\u00f0 erum fr\u00e1b\u00e6rt land og h\u00e9r eru allir jafnir og elska fri\u00f0inn.\u201d Eru Bandarr\u00edkjamenn fri\u00f0arbo\u00f0ar heimsins?
\nBrynd\u00eds hefur seti\u00f0 me\u00f0 h\u00f6nd undir kinn og hlusta\u00f0 \u00e1 hann J\u00f3n sinn. H\u00fan setur n\u00fa \u00ed br\u00fdrnar.
\n\u201c\u00dea\u00f0 er ekki m\u00edn tilfinning eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 \u00fear \u00ed fimm \u00e1r. \u00dea\u00f0 ur\u00f0u algj\u00f6r umskipti \u00ed \u00f6llum vi\u00f0horfum \u00feegar Bush t\u00f3k vi\u00f0 af Clinton. M\u00e9r hugna\u00f0ist \u00fea\u00f0 ekki. Bandar\u00edska \u00fej\u00f3\u00f0in er svo fj\u00f6lmenn, 300 milj\u00f3nir manna, og \u00fear er til er allt \u00fea\u00f0 besta og allt \u00fea\u00f0 versta.\u201d<\/p>\n
-Heldur\u00f0u a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u h\u00e6ttulegir heimsfri\u00f0inum?
\nBrynd\u00eds ver\u00f0ur alvarlega \u00e1 svip
\n\u201c\u00cd dag held \u00e9g a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u \u00fea\u00f0. \u00cd m\u00ednum huga eru Bandar\u00edkin mj\u00f6g harkalegt og eigingjarnt samf\u00e9lag. M\u00e9r ver\u00f0ur hugsa\u00f0 til barnanna sem f\u00e6\u00f0ast \u00fear inn \u00ed \u00f6murleikann og komast aldrei \u00fat \u00far honum. \u00dev\u00ed lengur sem \u00e9g var \u00ed Bandar\u00edkjunum var\u00f0 \u00e9g \u00e6 hamingjusamari a\u00f0 tilheyra \u00fe\u00f3 okkar hluta veraldar h\u00e9rna megin Atlantshafsins. \u00c9g haf\u00f0i aldrei b\u00faist vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed Bandar\u00edkjunum og Evr\u00f3pu v\u00e6ri svo mikill munur \u00e1 vi\u00f0horfum f\u00f3lks til l\u00edfsins.\u201d<\/p>\n
-\u00deegar \u00fe\u00fa varst sendur til Finnlands, J\u00f3n, var p\u00edskra\u00f0 um a\u00f0  \u00fea\u00f0 v\u00e6ri veri\u00f0 a\u00f0 l\u00e6kka \u00feig \u00ed tign me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 flytja \u00feig fr\u00e1 Bandar\u00edkjunum til Finnlands. Hva\u00f0 viltu segja um \u00fea\u00f0?
\n\u00dea\u00f0 klukkar sannf\u00e6randi hl\u00e1tur \u00ed J\u00f3ni Baldvini.
\n\u201c\u00c9g kom nokku\u00f0 vi\u00f0 s\u00f6gu \u00ed sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isbar\u00e1ttu Eystrasalts\u00fej\u00f3\u00f0anna \u00feriggja vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g var fyrsti utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra erlendrar \u00fej\u00f3\u00f0ar til a\u00f0 vi\u00f0urkenna sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i \u00feeirra formlega. Tv\u00f6, \u00ferj\u00fa \u00e1rin \u00fear \u00e1 undan var \u00e9g einn af \u00f6rf\u00e1um m\u00f6nnum sem var talsma\u00f0ur  sj\u00f3narmi\u00f0a \u00feeirra  \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum vettvangi. \u00c9g leit \u00e1 \u00fea\u00f0 sem s\u00e9rstakan hei\u00f0ur a\u00f0 vera ger\u00f0ur a\u00f0 sendiherra hj\u00e1 \u00feessum \u00fej\u00f3\u00f0um og \u00e9g var greinilega l\u00e1tinn finna \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeim \u00fe\u00e6tti \u00fea\u00f0 heldur ekki mi\u00f0ur.
\nSendir\u00e1\u00f0i\u00f0 hefur a\u00f0setur \u00ed Helsinki \u00ed Finnlandi, sem er s\u00fa Nor\u00f0urlanda\u00fej\u00f3\u00f0, a\u00f0 \u00f6\u00f0rum \u00f3l\u00f6stu\u00f0um, sem \u00e9g hef mestar m\u00e6tur \u00e1, svo \u00e9g haf\u00f0i ekki yfir neinu a\u00f0 kvarta. En m\u00e1 \u00e9g b\u00e6ta vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem h\u00fan Brynd\u00eds var a\u00f0 segja um Bandar\u00edkin?
\nWashington DC er h\u00f6fu\u00f0borg heimsins. H\u00fan er 85 pr\u00f3sent sv\u00f6rt. \u00deegar Martin Luther King, lei\u00f0togi jafnr\u00e9ttindabar\u00e1ttu og frelsishreyfingar bl\u00f6kkumanna \u00ed Bandar\u00edkjunum, var myrtur \u00e1ri\u00f0 1968 ur\u00f0u fj\u00f6ldaupp\u00feot \u00ed borginni og st\u00f3r hverfi voru l\u00f6g\u00f0 \u00ed r\u00fast. \u00deau eru enn \u00ed r\u00fast!
\n\u00de\u00fa g\u00e6tir haldi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir staddur \u00ed \u00feri\u00f0ja heims borg. Sk\u00f3lakerfi\u00f0 \u00ed Washington er \u00ed r\u00fast af \u00fev\u00ed a\u00f0 borgin sj\u00e1lf hefur engar tekjur, \u00fea\u00f0 er mass\u00edvt atvinnuleysi, hrikaleg eiturlyfjavandam\u00e1l og eitthva\u00f0 \u00e1 milli sj\u00f6 og \u00e1ttahundru\u00f0 mor\u00f0 eru framin \u00fear hverju \u00e1 \u00e1ri.
\n\u00c6vil\u00edkur svarts karlmanns, sem er f\u00e6ddur \u00fearna og uppalinn, er um \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1r. Barnaf\u00e1t\u00e6kt er gr\u00ed\u00f0arleg og \u00fe\u00fa l\u00e6rir a\u00f0 \u00fe\u00fa ert staddur \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sem er rammst\u00e9ttskipt. \u00dearna er undirst\u00e9tt kynsl\u00f3\u00f0 fram af kynsl\u00f3\u00f0 sem er ofurseld ofbeldisfullu \u00f6rbyrg\u00f0ar\u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi \u00fear sem sk\u00f3lar eru hreinlega af \u00fev\u00ed taginu a\u00f0 \u00feeir b\u00faa \u00feig ekki undir nein st\u00f6rf. \u00de\u00fa ert loka\u00f0ur inn \u00ed v\u00edtahring f\u00e1t\u00e6ktargildru.
\nSk\u00f3lar eru fj\u00e1rmagna\u00f0ir af sveitaf\u00e9l\u00f6gunum. \u00cd \u00fathverfunum eru sum af r\u00edkustu sveitaf\u00e9l\u00f6gum \u00ed Bandar\u00edkjunum og \u00fear geta veri\u00f0 f\u00ednir sk\u00f3lar. En \u00feetta er allt st\u00e9ttskipt \u00feannig a\u00f0 hugmyndir Bandar\u00edkjamanna um sj\u00e1lfa sig, um land t\u00e6kif\u00e6ranna og um \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 ekki st\u00e9ttskipt \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag eru \u00fev\u00ed mi\u00f0ur \u00f3skaplegar ranghugmyndir. Og \u00fea\u00f0 er \u00fearna sem munurinn \u00e1 Evr\u00f3pu og Bandar\u00edkjunum er sk\u00edrastur, nefnilega a\u00f0 \u00fea\u00f0 er f\u00ednt a\u00f0 vera r\u00edkur \u00ed Bandar\u00edkjunum en \u00fea\u00f0 er skelfilegt hlutskipti a\u00f0 vera f\u00e1t\u00e6kur \u00fear.\u201d
\nBrynd\u00eds hefur \u00f6\u00f0ru hverju kinnka\u00f0 kolli undir tali J\u00f3ns Baldvins og \u00feegar hann \u00feagnar segir h\u00fan hra\u00f0m\u00e6lt:
\n\u201c\u00dea\u00f0 hvarfla\u00f0i aldrei a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum eitthva\u00f0 sett ni\u00f0ur, \u00feegar vi\u00f0 vorum send til Finnlands. \u00dea\u00f0 var nefnilega st\u00f3rkostlegt a\u00f0 fara \u00feanga\u00f0 fr\u00e1 Bandar\u00edkjunum til a\u00f0 geta bori\u00f0 saman ger\u00f3l\u00edka og andst\u00e6\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsger\u00f0. Finnar eru ekki l\u00edkir okkur og vita l\u00edti\u00f0 um \u00cdsland, en \u00feeim \u00feykir v\u00e6nt um okkur. \u00dej\u00f3\u00f0irnar vita bara ekki n\u00f3g hvor um a\u00f0ra, \u00fev\u00ed mi\u00f0ur.\u201d<\/p>\n
-\u00c1g\u00e6tu hj\u00f3n, hva\u00f0 n\u00fa, \u00feegar \u00fei\u00f0 eru\u00f0 komin heim. G\u00e6tir \u00fe\u00fa, Brynd\u00eds, hugsa\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 fara aftur \u00ed sj\u00f3nvarpi\u00f0?
\n\u201c\u00c9g v\u00e6ri alveg til \u00ed \u00fea\u00f0, j\u00e1.<\/p>\n
-J\u00f3n, Baldvin, reynsla \u00fe\u00edn er of d\u00fdrm\u00e6t til a\u00f0 \u00fe\u00fa l\u00e1tir hana f\u00falna \u00ed endurger\u00f0u heils\u00e1rsh\u00fasi \u00ed Mos\u00f3. \u00de\u00f3 \u00fei\u00f0 s\u00fdnilega elski\u00f0 hvort anna\u00f0 ver\u00f0ur varla n\u00f3g fyrir ykkur a\u00f0 sitja og horfa hvort \u00e1 anna\u00f0 og tala um hva\u00f0 \u00feetta er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 vera gott!
\n\u201c\u00c9g var einhvern t\u00edma spur\u00f0ur a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri sem m\u00e9r \u00fe\u00e6tti mest um vert a\u00f0 gera \u00ed l\u00edfinu og \u00e9g vitna\u00f0i \u00ed J\u00f3hann Hannesson sk\u00f3lameistara \u00e1 Laugarvatni sem sag\u00f0i \u00fe\u00fd\u00f0ingarmest a\u00f0 kenna og skrifa. \u00c9g hef veri\u00f0 kennari og vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i reyndar. \u00c9g skrifa miki\u00f0 og \u00e1 eftir a\u00f0 skrifa meira \u00fev\u00ed \u00e9g hef \u00e1str\u00ed\u00f0u til \u00feess. N\u00fdlega voru m\u00e9r bo\u00f0in tv\u00f6 djobb vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3la h\u00e9rna. \u00c9g er a\u00f0 hugsa. A\u00f0 vera \u00ed samskiptum vi\u00f0 ungt f\u00f3lk eru forr\u00e9ttindi og \u00feannig l\u00e6rir\u00f0u  mest um n\u00fdjar hugmyndir og breytilegt hugarfar.
\n\u00c9g kv\u00ed\u00f0i \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 vi\u00f0 tv\u00f6 f\u00e1um ekki n\u00f3g a\u00f0 gera. Spurningin er hvernig vi\u00f0 komumst hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera of miki\u00f0.\u201d
\nSvo hl\u00e6r J\u00f3n d\u00e1vel og Brynd\u00eds segir vi\u00f0 mig og brosir:
\n\u201cGer\u00f0u ekki of l\u00edti\u00f0 \u00far h\u00fasinu okkar \u00ed Reykjadal. \u00dea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 yndislegt og hvergi gefst betra t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 hugsa og skrifa en einmitt \u00fear, \u00ed \u00feessu fallega umhverfi.<\/p>\n
Samtali er loki\u00f0.
\n\u00deegar hj\u00f3nin ganga \u00e1 brott stend \u00e9g kyrr og horfi um stund \u00e1 eftir \u00feeim. Gl\u00e6silegir fulltr\u00faar \u00feess besta \u00ed \u00edslensku samf\u00e9lagi, t\u00edmalaus \u00ed aldri, reynsluboltar sem munu \u00e1n efa l\u00e1ta meira \u00ed s\u00e9r heyra og vonandi hrista upp \u00ed okkur hinum, sem h\u00f6ldum a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um salt jar\u00f0ar, einst\u00f6k me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0a, en erum soddan sm\u00e1s\u00e1lir a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 kalla alla fr\u00e6ga \u00fatlendinga \u00cdslandsvini ef \u00feeir slysast til a\u00f0 stoppa h\u00e9r yfir helgi og detta \u00ed \u00fea\u00f0 \u00e1 einhverjum Reykjav\u00edkurbarnum.
\nHven\u00e6r \u00e6tlum vi\u00f0 eiginlega a\u00f0 losna vi\u00f0 hugsunarh\u00e1tt sm\u00e1borgara?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"
\u00dea\u00f0 er sunnudagur s\u00ed\u00f0degis \u00feegar \u00feau koma til fundar vi\u00f0 mig, sparib\u00fain og gl\u00e6sileg, enda a\u00f0 fara \u00fat a\u00f0 bor\u00f0a og s\u00ed\u00f0an \u00ed leikh\u00fas. Brynd\u00eds Schram l\u00edtur \u00fat eins og ung fegur\u00f0ard\u00eds og J\u00f3n Baldvin Hannibalsson brosir, l\u00edka me\u00f0 augunum, nokku\u00f0 sem m\u00e9r finnst hann ekki gera n\u00f3gu oft \u00ed vi\u00f0t\u00f6lum. Brosi\u00f0 \u00fe\u00e1 er svona meira \u00fat \u00ed anna\u00f0 munnviki\u00f0 og m\u00e9r hefur stundum s\u00fdnst a\u00f0 hann finni jafnvel til me\u00f0 \u00feeim fr\u00e9ttamanni sem hefur hann \u00ed vi\u00f0tali. Vi\u00f0 setjumst vi\u00f0 l\u00edti\u00f0 fundarbor\u00f0. Sitjum \u00ed \u00fer\u00edhyrning, \u00feau hvort \u00e1 m\u00f3ti \u00f6\u00f0ru og skiptast \u00e1 augnar\u00e1\u00f0i sem fyllir mig \u00f6fund. \u00deegar \u00feau hafa horfst \u00ed augu d\u00e1g\u00f3\u00f0a stund l\u00edta \u00feau b\u00e6\u00f0i  \u00e1 mig spyrjandi. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-235","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/235","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=235"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/235\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":483,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/235\/revisions\/483"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=235"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=235"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=235"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}