{"id":236,"date":"2019-03-26T00:00:00","date_gmt":"2019-03-26T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/bs\/index.php\/2019\/03\/26\/arin-okkar-i-ameriku-faein-vel-valin-ord-af-gefnu-tilefni-2\/"},"modified":"2020-09-23T08:39:33","modified_gmt":"2020-09-23T08:39:33","slug":"arin-okkar-i-ameriku-faein-vel-valin-ord-af-gefnu-tilefni-2","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2019\/03\/26\/arin-okkar-i-ameriku-faein-vel-valin-ord-af-gefnu-tilefni-2\/","title":{"rendered":"\u00c1rin okkar \u00ed Amer\u00edku \u2013 f\u00e1ein vel valin or\u00f0 af gefnu tilefni."},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er hins vegar n\u00fdtt fyrir m\u00e9r a\u00f0 sj\u00e1 n\u00ed\u00f0i\u00f0 kl\u00e6tt \u00ed vi\u00f0hafnarb\u00faning fr\u00e6\u00f0imannsins, eins og reynt er a\u00f0 gera \u00ed n\u00fdlegri b\u00f3k eftir Bj\u00f6rn J\u00f3n Bragason. \u00dear eru gr\u00f3us\u00f6gurnar bornar \u00e1 bor\u00f0 me\u00f0 v\u00edsan \u00ed \u00f3nafngreinda heimildamenn (sj\u00e1 skr\u00e1 yfir heimildamenn aftast \u00ed b\u00f3kinni). Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um: r\u00f3gberarnir \u00feora ekki a\u00f0 standa vi\u00f0 or\u00f0 s\u00edn undir nafni. Einstaklingar, sem \u00feannig koma fram gagnvart \u00f6\u00f0rum, d\u00e6ma sig sj\u00e1lfir. \u00deeir eru ekki svaraver\u00f0ir. Samt ney\u00f0ist ma\u00f0ur til a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta gr\u00f3us\u00f6gurnar, svo a\u00f0 saklaust f\u00f3lk glepjist ekki til a\u00f0 tr\u00faa \u00feeim.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<h3>R\u00e6\u00f0an sem aldrei var haldin<\/h3>\n<p>R\u00f3gberinn heldur \u00fev\u00ed fram, a\u00f0 s\u00f6gn \u201efr\u00e6\u00f0imannsins\u201c, a\u00f0 \u00ed kve\u00f0juh\u00f3fi s\u00ednu sem sendiherra \u00cdslands \u00ed Washington, hafi JBH bori\u00f0 \u00e1 bor\u00f0 svo magna\u00f0an \u00f3hr\u00f3\u00f0ur um Bandar\u00edkin, a\u00f0 einhverjum bo\u00f0sgesta hafi ofbo\u00f0i\u00f0 og strunsa\u00f0 \u00e1 dyr \u00ed m\u00f3tm\u00e6laskyni. Vegna nafnleyndarinnar er engin lei\u00f0 a\u00f0 vita, hver hefur logi\u00f0 \u00feessu a\u00f0 h\u00f6fundinum. \u00deess vegna hl\u00fdtur hann a\u00f0 liggja undir grun um a\u00f0 hafa b\u00fai\u00f0 \u00feetta til sj\u00e1lfur, \u00fear sem fyrir \u00feessu er ekki fluguf\u00f3tur. Enda gengur hann, a\u00f0 s\u00f6gn, svo langt a\u00f0 segja \u00feessa r\u00e6\u00f0u, sem aldrei var haldin, undirr\u00f3t versnandi samb\u00fa\u00f0ar Bandar\u00edkjanna vi\u00f0 \u00cdsland eftir hrun \u2013 \u00fe.e.a.s. m\u00f6rgum \u00e1rum eftir a\u00f0 vi\u00f0 vorum \u00e1 bak og burt fr\u00e1 Washington D.C. Fyrr m\u00e1 n\u00fa aldeilis fyrr vera!<\/p>\n<p>\u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed, a\u00f0 vi\u00f0 h\u00e9ldum ekki kve\u00f0juh\u00f3f hausti\u00f0 2002, var s\u00fa, a\u00f0 kve\u00f0juh\u00f3fin, sem efnt var til af vinum okkar, voru or\u00f0in svo m\u00f6rg, a\u00f0 dagskr\u00e1in r\u00fama\u00f0i ekki fleiri. \u00dea\u00f0 var sums\u00e9 ekkert kve\u00f0juh\u00f3f \u00e1 vegum sendir\u00e1\u00f0sins. Af sj\u00e1lfu lei\u00f0ir, a\u00f0 JBH flutti enga sl\u00edka r\u00e6\u00f0u og \u00fear af lei\u00f0ir, a\u00f0 enginn gekk \u00fat \u00ed m\u00f3tm\u00e6laskyni vi\u00f0 ekki neitt.<\/p>\n<p>Eitt eftirminnilegasta kve\u00f0juh\u00f3fi\u00f0 var \u00ed bo\u00f0i konu, sem \u00fe\u00e1 var \u201ediplomatic correspondent\u201c vi\u00f0 vikurit, sem einkum l\u00e9t sig var\u00f0a sendiherrafl\u00f3runa \u00ed \u00feessari h\u00f6fu\u00f0borg heimsins. H\u00fan var reyndar h\u00f6fundur a\u00f0 b\u00f3k: <i>Diplomatic Dance \u2013 The New Embassy Life in America<\/i>. \u00cd \u00feessari b\u00f3k birti h\u00fan m.a. kafla, \u00fear sem h\u00fan bar \u00fev\u00edl\u00edkt lof \u00e1 sendiherrahj\u00f3nin \u00edslensku, a\u00f0 me\u00f0f\u00e6tt l\u00edtill\u00e6ti bannar m\u00e9r a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 eftir (sj\u00e1 fylgisskjal: <a href=\"http:\/\/jbh.is\/landkynning.pdf\" target=\"\u201ctop\u201c\" rel=\"noopener noreferrer\">\u00deau fundu Amer\u00edku 500 \u00e1rum \u00e1 undan Kolumbusi<\/a>). \u00cd \u00feessu h\u00f3fi voru a\u00f0 s\u00f6nnu haldnar margar r\u00e6\u00f0ur. S\u00fa eftirminnilegasta var \u00ed bundnu m\u00e1li og flutt vi\u00f0 g\u00edtarundirleik. H\u00f6fundur og flytjandi var <i>Joe Glazier<\/i>, \u00feekktur me\u00f0al \u201ek\u00e1ntr\u00ed\u201c s\u00f6ngvara sem \u201ethe trubador of labor\u201c. \u00dea\u00f0 kom \u00ed minn hlut a\u00f0 \u00feakka fyrir okkur. Og \u00fea\u00f0 er m\u00e9r ei\u00f0ur s\u00e6r, a\u00f0 enginn gekk \u00fat undir \u00feeirri r\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<h3>Eldabuskan \u2013 sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0i \u00ed \u00fej\u00f3nustu r\u00edkisins<\/h3>\n<p>\u00c9g sag\u00f0i s\u00f6gur af \u00feeirri upplifun minni a\u00f0 vera sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0i sem eldabuska \u00ed \u00fej\u00f3nustu \u00edslenska r\u00edkisins. \u00c9g var varla fyrr komin til Washington, \u00feegar s\u00edminn f\u00f3r a\u00f0 hringja me\u00f0 bei\u00f0ni um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 tala vi\u00f0 ritara sendiherrafr\u00faarinnar. \u00c9g var flj\u00f3t a\u00f0 breg\u00f0a m\u00e9r \u00ed vi\u00f0komandi gervi. Einn daginn \u00fe\u00f3ttist \u00e9g vera ritari fr\u00faarinnar, n\u00e6st var \u00e9g fj\u00f6lmi\u00f0lafulltr\u00fai, e\u00f0a \u00fe\u00e1 kokkur, yfir\u00fej\u00f3nn \u2013 jafnvel fj\u00e1rm\u00e1lastj\u00f3ri, ef \u00fe\u00f6rf kraf\u00f0i. \u00deessi erindi voru \u00f6ll \u00e1 s\u00f6mu lund: a\u00f0 bi\u00f0ja sendiherrafr\u00fana a\u00f0 efna til bo\u00f0s til styrktar g\u00f3\u00f0um m\u00e1lefnum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 kom \u00e1 daginn, a\u00f0 gestir voru rei\u00f0ub\u00fanir a\u00f0 borga f\u00falgur fj\u00e1r til a\u00f0 komast \u00e1 gestalistann. Og \u00ed hva\u00f0 f\u00f3ru peningarnir? \u00cd Kennedy Center, Washington Ballet, Shakespeare Theatre, barnahj\u00e1lpina, t\u00e6kjakaup fyrir sk\u00f3lana, o.s.frv. o.s. Frv.. Fj\u00e1r\u00f6flun af \u00feessu tagi gegnir \u00fe\u00fd\u00f0ingarmiklu hlutverki \u00ed Bandar\u00edkjunum af \u00feeirri \u00e1st\u00e6\u00f0u, a\u00f0 ekki er sj\u00e1lfgefi\u00f0, a\u00f0 menning og listir e\u00f0a velfer\u00f0ar\u00fej\u00f3nusta s\u00e9 kostu\u00f0 af r\u00edkinu \u2013 skattgrei\u00f0endum. \u00deessir a\u00f0ilar \u00feurfa \u00fev\u00ed endalaust a\u00f0 leita til annarra um samskot. Meira a\u00f0 segja sj\u00e1lf forsetafr\u00fain, <i>Hillary Rodham Clinton<\/i>, var\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta sig hafa \u00fea\u00f0 a\u00f0 efna til samskota me\u00f0al velvilja\u00f0ra til a\u00f0 endurn\u00fdja bor\u00f0b\u00fana\u00f0inn og r\u00famd\u00fdnurnar \u00ed Hv\u00edta h\u00fasinu.<\/p>\n<p>\u00deessi fj\u00e1r\u00f6flun haf\u00f0i s\u00edna kosti. Sendir\u00e1\u00f0i\u00f0 var komi\u00f0 inn \u00ed hringi\u00f0u tilverunnar \u00ed h\u00f6fu\u00f0borginni. Hj\u00e1 okkur s\u00e1tu til bor\u00f0s \u00e1hrifamenn af \u00f6llum stigum samf\u00e9lagsins: stj\u00f3rnm\u00e1lamenn, fj\u00f6lmi\u00f0laf\u00f3lk, fr\u00e6\u00f0imenn, listamenn, au\u00f0k\u00fdfingar &#8211; og jafnvel emb\u00e6ttismenn. \u00deetta reyndist vera skj\u00f3tvirkasta lei\u00f0in til \u00feess a\u00f0 koma \u00cdslandi \u00e1 framf\u00e6ri og afla tengsla, sem oftar en ekki komu a\u00f0 g\u00f3\u00f0u gagni, \u00feegar \u00e1 \u00feurfti a\u00f0 halda s\u00ed\u00f0ar meir. \u00deessi tengsl dug\u00f0u t.d. til a\u00f0 kalla menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra Bandar\u00edkjanna, Richard Riley, \u00far fundarlei\u00f0angri \u00ed Texas til a\u00f0 koma til fundar vi\u00f0 Bj\u00f6rn Bjarnason, menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra \u00cdslands, sem var \u00f3v\u00e6nt \u00ed heims\u00f3kn \u00ed Washington.<\/p>\n<p>Sm\u00e1m saman f\u00f3rum vi\u00f0 a\u00f0 n\u00fdta \u00feessi bo\u00f0 til a\u00f0 koma \u00edslenskum listam\u00f6nnum \u00e1 framf\u00e6ri. T\u00f3nleikahald og lists\u00fdningar var or\u00f0i\u00f0 fastur li\u00f0ur \u00ed starfsemi sendir\u00e1\u00f0sins. Til \u00feess h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 v\u00edsu engar fj\u00e1rveitingar. Gestir okkar reyndust hins vegar meira en f\u00fasir til a\u00f0 borga h\u00f3flegan a\u00f0gangseyri, svo a\u00f0 listamenn fengju eitthva\u00f0 fyrir sinn sn\u00fa\u00f0, fyrir utan fr\u00edtt h\u00fasn\u00e6\u00f0i og f\u00e6\u00f0i hj\u00e1 m\u00e9r. Icelandair \u00e1 \u00feakkir skyldar fyrir a\u00f0 hafa bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 fr\u00edtt far milli landa fram og til baka.<\/p>\n<p>Sumir halda, a\u00f0 sendiherrar r\u00e1\u00f0i yfir risnu, sem dugi til a\u00f0 skapa nau\u00f0synlegt tengslanet. \u00cd okkar tilviki var \u00feessi upph\u00e6\u00f0 svo l\u00edtilfj\u00f6rleg, a\u00f0 \u00e9g spur\u00f0i eitt sinn fj\u00e1rm\u00e1lastj\u00f3ra utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0uneytisins, hva\u00f0 r\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 vildi gera vi\u00f0 \u00feessa sm\u00e1aura. \u201eSem minnst\u201c, var svari\u00f0.<\/p>\n<p>Sendir\u00e1\u00f0 st\u00f3r\u00fej\u00f3\u00f0a va\u00f0a au\u00f0vita\u00f0 \u00ed peningum og hafa \u00e1 a\u00f0 skipa s\u00e9rh\u00e6f\u00f0um starfskr\u00f6ftum \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um. Fulltr\u00faar sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0a ver\u00f0a einfaldlega a\u00f0 gr\u00edpa til annarra r\u00e1\u00f0a. Og \u00fea\u00f0 ger\u00f0um vi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feori varla a\u00f0 segja \u00fea\u00f0, en \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 j\u00e1ta, a\u00f0 \u00fea\u00f0 kom m\u00e9r \u00fe\u00e6gilega \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 lesa \u00ed glanst\u00edmariti, sem helgar sig m\u00e1lum \u00e1 \u201e<i>Embassy Row<\/i>\u201c, a\u00f0 samkv\u00e6mt k\u00f6nnunum, sem \u00e1rlega voru ger\u00f0ar \u00e1 vegum t\u00edmaritsins, hafi sendir\u00e1\u00f0 \u00cdslands \u00e1 \u00feessum \u00e1rum veri\u00f0 me\u00f0al \u00feeirra \u201esem \u00fe\u00f3tti eftirs\u00f3knarver\u00f0ast a\u00f0 \u00feiggja bo\u00f0 hj\u00e1\u201c. Hvers vegna? \u201eVegna mennningarlegrar dagskr\u00e1r, uppl\u00fdsandi samr\u00e6\u00f0na og \u2013 \u00fej\u00f3\u00f0legs eldh\u00fass \u00ed h\u00e1um g\u00e6\u00f0aflokki!\u201c \u00de\u00f6kk s\u00e9 SH og Sj\u00e1varv\u00f6rudeild S\u00cdS s\u00e1lugu, sem l\u00f6g\u00f0u til sj\u00e1varfangi\u00f0.<\/p>\n<h3>\u201ePopular statesman\u201c<\/h3>\n<p><b>Hva\u00f0 gera annars sendiherrar?<\/b> Er nema von, a\u00f0 f\u00f3lk spyrji. J\u00fa, \u00feeir eru tengili\u00f0ir \u00ed samskiptum stj\u00f3rnvalda beggja r\u00edkja. \u00cd tilviki \u00cdslands snerist \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 mest um varnarsamstarfi\u00f0 og vi\u00f0skipti. En sendiherrann \u00fearf l\u00edka a\u00f0 \u00feekkja vel til manna og m\u00e1lefna \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum og atvinnul\u00edfi gistilandsins og skrifa um \u00fea\u00f0 sk\u00fdrslur. \u00deetta ger\u00f0i JBH af mikilli samviskusemi, svo a\u00f0 eftir var teki\u00f0. \u00cd Washington D.C. er fj\u00f6ldinn allur af \u201ehugveitum\u201c (e. Think Tanks). \u00deetta eru \u00ed bland ranns\u00f3knar- og uppl\u00fdsingastofnanir, en \u00feegar verst gegnir, hreinar \u00e1r\u00f3\u00f0ursstofnanir. <i>Brookings<\/i> er gott d\u00e6mi um hi\u00f0 fyrrnefnda, <i>Cato og Herritage<\/i> um hi\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda. J\u00f3n Baldvin tamdi s\u00e9r a\u00f0 vera virkur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed umr\u00e6\u00f0um \u00e1 vegum \u00feessara stofnana og innan h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagsins. Hann var i\u00f0ulega be\u00f0inn um a\u00f0 flytja fyrirlestra e\u00f0a taka \u00fe\u00e1tt \u00ed umr\u00e6\u00f0uh\u00f3pum um al\u00fej\u00f3\u00f0am\u00e1l, ekki s\u00edst m\u00e1l tengd Evr\u00f3pu.<\/p>\n<p>Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna, a\u00f0 eitt sinn efndi George Town University til m\u00e1l\u00feings um efni\u00f0: <i>The Trans-Atlantic Relationship: Success, Strain, Prospects<\/i>. Fyrsta erindi\u00f0 var um: \u201e<i>The European Social Model vs. The American Way \u2013 Are the Allies drifting Apart?<\/i>\u201c \u00de\u00f3tt \u00cdsland v\u00e6ri ekki \u00ed Evr\u00f3pusambandinu, var J\u00f3n Baldvin be\u00f0inn um a\u00f0 hafa \u00fearna frams\u00f6gu. M\u00e1l\u00feingi\u00f0 var fj\u00f6ls\u00f3tt og v\u00ed\u00f0a til \u00feess vitna\u00f0. Daginn eftir f\u00e9kk J\u00f3n Baldvin br\u00e9f fr\u00e1 franska sendiherranum, sem h\u00e6ldi honum \u00ed h\u00e1stert og \u00feakka\u00f0i frammist\u00f6\u00f0una. Franski sendiherrann var n\u00e1fr\u00e6ndi <i>Valerie Giscard d\u00b4Estaing<\/i>, fyrrverandi forseta Frakklands. Eftir \u00e1 ganta\u00f0ist J\u00f3n Baldvin me\u00f0 \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri \u00ed fyrsta skipti, sem franskur arist\u00f3krat hef\u00f0i teki\u00f0 upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 lofsyngja norr\u00e6nan s\u00f3cialdem\u00f3krat.<\/p>\n<p>Bla\u00f0i\u00f0 <i>Washington Times<\/i>, sem var afar h\u00e6grisinna\u00f0 \u00ed sinni p\u00f3lit\u00edk, h\u00e9lt \u00fati reglulegum d\u00e1lki um starfsemi sendir\u00e1\u00f0a undir heitinu: \u201e<i>Embassy Row<\/i>\u201c. \u00dear segir James Morrison 6. okt. 1999, t\u00e6pum tveimur \u00e1rum eftir komu okkar til Washington, undir fyrirs\u00f6gninni \u201e<i>Popular Statesman<\/i>\u201c: \u201eIceland\u00b4s ambassador, J\u00f3n Baldvin Hannibalsson, a man of wit and intelligence, has become a popular diplomat on Embassy Row\u201c.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 ger\u00f0ist ekki af sj\u00e1lfu s\u00e9r. \u00c1ri\u00f0 2000 efndu Nor\u00f0url\u00f6ndin sameiginlega til mikils landkynningar\u00e1taks \u00ed Bandar\u00edkjunum til a\u00f0 minnast 1000 \u00e1ra afm\u00e6lis landafunda norr\u00e6nna manna \u00ed N\u00fdja heiminum. Sendir\u00e1\u00f0in h\u00f6f\u00f0u n\u00e1i\u00f0 samstarf s\u00edn \u00ed milli og vi\u00f0 \u00fdmsar stofnanir \u00ed Bandar\u00edkjunum. Vi\u00f0amesta verkefni\u00f0 var samstarf vi\u00f0 <i>Smithsonian<\/i> safni\u00f0 um farands\u00fdningu um landk\u00f6nnun norr\u00e6nna manna \u00e1 meginlandi N-Amer\u00edku. Sendiherra \u00cdslands var valinn til \u00feess, f.h. sendiherra Nor\u00f0urlanda\u00fej\u00f3\u00f0anna, a\u00f0 flytja erindi um efni\u00f0 \u00ed <i>Cosmos Club<\/i>. \u00deetta er v\u00ed\u00f0fr\u00e6gur f\u00e9lagsskapur v\u00edsinda- og fr\u00e6\u00f0imanna, sem taldi \u00fe\u00e1 me\u00f0al f\u00e9laga meira en 80 N\u00f3belsver\u00f0launahafa. Alls f\u00f3r \u00edslenski sendiherrann til fyrirlestrahalds vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3la og \u00e1 samkomur f\u00f3lks af norr\u00e6num uppruna \u00ed 35 fylkjum Bandar\u00edkjanna \u00e1 afm\u00e6lis\u00e1rinu (sj\u00e1 fylgisskjal: <i>Sk\u00fdrsla sendiherrans<\/i>).<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2000 var haldin s\u00e9rst\u00f6k lj\u00f3smyndas\u00fdning \u00ed s\u00f6gusafni Washingtonborgar, \u00fear sem m.a. voru birtar myndir af \u00feeim einstaklingum, sem hef\u00f0u sett svip sinn \u00e1 borgarl\u00edfi\u00f0 \u00ed tilefni af \u00e1r\u00fe\u00fasundinu. Me\u00f0al \u00feeirra var a\u00f0 finna fj\u00f3ra sendiherra erlendra r\u00edkja \u2013 \u00fe.\u00e1.m. sendiherra \u00cdslands.<\/p>\n<p>Er \u00fea\u00f0 mj\u00f6g tr\u00falegt, a\u00f0 sendiherra, sem l\u00e6tur a\u00f0 s\u00e9r kve\u00f0a vi\u00f0 a\u00f0 kynna heimaland sitt me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti, s\u00e9 talinn vera vargur \u00ed v\u00e9um \u00ed samskiptum bandalags\u00fej\u00f3\u00f0a \u2013 m\u00f6rgum \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar?<\/p>\n<h3>\u00d3vildarmenn?<\/h3>\n<p>\u00c1ttum vi\u00f0 okkur einhverja s\u00e9rstaka \u00f3vildarmenn \u00ed Washington, svo vita\u00f0 v\u00e6ri? J\u00fa, reyndar, svona eftir \u00e1 a\u00f0 hyggja. \u00dea\u00f0 f\u00f3r ekki fram hj\u00e1 okkur, a\u00f0 \u00fea\u00f0 anda\u00f0i k\u00f6ldu til okkar, \u00feegar \u00e1 lei\u00f0, fr\u00e1 n\u00e1granna \u00ed Kalorama Road. \u00deessi kona var um skei\u00f0 sendiherrafr\u00fa Bandar\u00edkjanna vi\u00f0 Lauf\u00e1sveg \u00ed Reykjav\u00edk. \u00dea\u00f0 duldist engum, a\u00f0 h\u00fan var afar h\u00e6gri sinnu\u00f0 \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum, svo mj\u00f6g a\u00f0 h\u00fan lag\u00f0i f\u00e6\u00f0 \u00e1 fyrrverandi sendiherra Bandar\u00edkjanna \u00e1 \u00cdslandi, Marshall Brement, sem h\u00fan gagnr\u00fdndi fyrir a\u00f0 hafa \u00e1tt of n\u00e1i\u00f0 samneyti vi\u00f0 vinstrimenn.<\/p>\n<p>Reyndar var ekki fr\u00edtt vi\u00f0, a\u00f0 \u00feessi \u00e1g\u00e6ta kona teldi, a\u00f0 Hv\u00edta h\u00fasi\u00f0 \u00ed h\u00f6ndum <i>Bills og Hillary Clinton<\/i> v\u00e6ri n\u00e1nast \u00ed \u00f3vinah\u00f6ndum. \u00c1 henni m\u00e1tti skilja, a\u00f0 dem\u00f3kr\u00f6tum v\u00e6ri ekki treystandi til a\u00f0 g\u00e6ta hagsmuna Bandar\u00edkjanna gagnvart komm\u00fanistum.<\/p>\n<p>H\u00fan fann hj\u00e1 s\u00e9r \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 fetta fingur \u00fat \u00ed gestalista sendir\u00e1\u00f0sins \u2013 taldi a\u00f0 \u00fear v\u00e6ri allt of margt um manninn af \u00f3\u00e1rei\u00f0anlegum vinstrim\u00f6nnum, listam\u00f6nnum og fj\u00f6lmi\u00f0la- og fr\u00e6\u00f0im\u00f6nnum me\u00f0 vafasamar sko\u00f0anir.<\/p>\n<p>Skyldi ekkjan vi\u00f0 Kalorama Road vera \u201e<i>deep throat<\/i>\u201c a\u00f0 baki gr\u00f3us\u00f6gum hins \u00f3vanda\u00f0a fr\u00e6\u00f0imanns? Svari\u00f0 vi\u00f0 \u00fev\u00ed f\u00e6st ekki, nema sagnfr\u00e6\u00f0ingurinn afl\u00e9tti nafnleyndinni og heimildarma\u00f0urinn \u2013 ef hann er einhver \u2013 \u00feori a\u00f0 standa vi\u00f0 r\u00f3ginn.<\/p>\n<p>\u00c1rin okkar \u00ed forsvari fyrir sendir\u00e1\u00f0i \u00cdslands \u00ed Washinton D.C. voru l\u00e6rd\u00f3msr\u00edk. \u00dea\u00f0 er bjart yfir minningum okkar J\u00f3ns Baldvins fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma. \u00dea\u00f0 er margt a\u00f0d\u00e1unarvert \u00ed fari \u00feeirra Bandar\u00edkjamanna, sem vi\u00f0 kynntumst, og vi\u00f0 kunnum vel a\u00f0 meta. Hreinskilni, velvild, hispursleysi (s\u00e9rstaklega a\u00f0 vera laus vi\u00f0 snobb og tildur) og \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara ekki \u00ed manngreinar\u00e1lit, hvort sem vi\u00f0 var a\u00f0 eiga fulltr\u00faa sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0ar e\u00f0a st\u00f3rveldis. Jafnr\u00e6\u00f0i me\u00f0 m\u00f6nnum, \u00e1n tillits til st\u00e9ttar e\u00f0a st\u00f6\u00f0u, er r\u00edkulegur partur af arfleif\u00f0 landnemasamf\u00e9lagsins. Reyndar er amer\u00edski draumurinn fyrst og fremst um \u00fea\u00f0. Miki\u00f0 vildum vi\u00f0 gefa til, a\u00f0 draumurinn geti r\u00e6st \u00ed verunni \u2013 en reynist ekki t\u00e1ls\u00fdn.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<blockquote><p>\u00c6ran<br \/>\nf\u00e9lagi Or\u00f0r\u00f3mur<br \/>\nf\u00e9lagi Or\u00f0r\u00f3mur<br \/>\nmargur hefur \u00fea\u00f0 heyrt<br \/>\nsem hefur veri\u00f0 fleygt a\u00f0&#8230;<br \/>\n(\u00der\u00f6stur J. Karlsson \u00ed lj\u00f3\u00f0ab\u00f3kinni: Einn apak\u00f6ttur sag\u00f0i \u00fe\u00e1, afskaplega er gaman)<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00cd \u00e1ranna r\u00e1s h\u00f6fum vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin vanist \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa um okkur \u2013 anna\u00f0 hvort e\u00f0a b\u00e6\u00f0i \u2013 allra handa \u00f3hr\u00f3\u00f0ur, oftast n\u00e6r nafnlaust. Mest af \u00feessu flokkast undir p\u00f3lit\u00edskt sk\u00edtkast og fylgir starfsl\u00fdsingu stj\u00f3rnm\u00e1lamannsins. Menn l\u00e6ra sm\u00e1m saman a\u00f0 taka \u00fev\u00ed eins og hverju \u00f6\u00f0ru hundsbiti. Stundum er \u00feetta runni\u00f0 undan rifjum f\u00f3lks, sem \u00e1 af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um b\u00e1gt og finnur hj\u00e1 s\u00e9r \u00fe\u00f6rf a\u00f0 kenna \u00f6\u00f0rum um eigin \u00f3farir. <\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-236","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/236","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=236"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/236\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":482,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/236\/revisions\/482"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=236"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=236"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=236"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}