{"id":743,"date":"2020-09-24T09:16:41","date_gmt":"2020-09-24T09:16:41","guid":{"rendered":"https:\/\/jbh.is\/bs\/?p=743"},"modified":"2022-04-20T18:23:51","modified_gmt":"2022-04-20T18:23:51","slug":"herdis-brosad-gegnum-tarin-ritdomur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2020\/09\/24\/herdis-brosad-gegnum-tarin-ritdomur\/","title":{"rendered":"Herd\u00eds Hubner: Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, ritd\u00f3mur"},"content":{"rendered":"<p>Brynd\u00eds Schram hefur sent fr\u00e1 s\u00e9r b\u00f3kina Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin \u00fear sem h\u00fan segir fr\u00e1 l\u00edfi s\u00ednu, gle\u00f0i og sorgum. \u00c1\u00f0ur hafa komi\u00f0 \u00fat tv\u00e6r b\u00e6kur um l\u00edf Brynd\u00edsar, \u00d3l\u00edna \u00deorvar\u00f0ard\u00f3ttir skrifa\u00f0i \u00fe\u00e1 fyrstu 1998 en fyrir 12 \u00e1rum kom \u00fat b\u00f3kin \u00cd s\u00f3l og skugga sem Brynd\u00eds skrifa\u00f0i sj\u00e1lf. En ef einhver heldur a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 bori\u00f0 \u00ed bakkafullan l\u00e6k skal strax teki\u00f0 fram a\u00f0 svo er ekki, enda hefur h\u00fan lifa\u00f0 langa og vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edka \u00e6vi sem ver\u00f0ur a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u ekki ger\u00f0 full skil \u00e1 nokkrum bla\u00f0s\u00ed\u00f0um.<\/p>\n<p>Brynd\u00eds brosir gegnum t\u00e1rin og hefur gaman af fer\u00f0al\u00f6gum og lestri g\u00f3\u00f0ra b\u00f3ka eins og klisjan um fegur\u00f0ardrottninguna b\u00fd\u00f0ur. En Brynd\u00eds er engin klisja, engin innant\u00f3m fegur\u00f0ard\u00eds &#8211; ef sl\u00edk er \u00fe\u00e1 til. Brynd\u00eds er st\u00f3rvel gefin kona, h\u00e6fileikar\u00edk \u00e1 \u00f3tal svi\u00f0um og hefur lifa\u00f0 \u00f3venjulegu og merkilegu l\u00edfi, gegnt margs konar st\u00f6rfum, gjarnan \u00ed kastlj\u00f3si fj\u00f6lmi\u00f0la, b\u00fai\u00f0 \u00ed m\u00f6rgum \u00f3l\u00edkum l\u00f6ndum, fer\u00f0ast um allan heim og kynnst m\u00f6rgu af valdamesta f\u00f3lki veraldar.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>B\u00f3kin er a\u00f0 \u00fdmsu leyti \u00f3venjuleg minningab\u00f3k, me\u00f0al annars vegna \u00feess a\u00f0 \u00ed henni eru engar lj\u00f3smyndir sem gjarnan eru uppista\u00f0an \u00ed endurminningab\u00f3kum. Hins vegar dregur Brynd\u00eds upp svo lj\u00f3slifandi myndir me\u00f0 lipurlega skrifu\u00f0um texta a\u00f0 lesandinn hefur einskis a\u00f0 sakna \u00ed \u00feeim efnum, heldur s\u00e9r fyrir s\u00e9r \u00f3tr\u00falega litr\u00edkar og lifandi pers\u00f3nur og s\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0 sem n\u00e6r yfir h\u00e1lfan heiminn \u00ed \u00f6llum s\u00ednum fj\u00f6lbreytileika. \u00dea\u00f0 var \u00e1n\u00e6gjulegt a\u00f0 geta \u00ed \u00feessu Covid-fer\u00f0abanni n\u00e1nast fari\u00f0 \u00ed heimsreisu me\u00f0 Brynd\u00edsi enda er h\u00fan vanur lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur, skarpskyggn og athugul. Forvitni Brynd\u00edsar og \u00e1hugi \u00e1 f\u00f3lki og mannl\u00edfi er sem rau\u00f0ur \u00fer\u00e1\u00f0ur \u00ed lei\u00f0s\u00f6gninni, h\u00fan \u00feekkir s\u00f6gu og menningu sta\u00f0anna sem h\u00fan heims\u00e6kir, veltir fyrir s\u00e9r kj\u00f6rum og a\u00f0st\u00e6\u00f0um f\u00f3lksins sem b\u00fdr \u00fear, reynir a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0 og fjallar um \u00fea\u00f0 af sam\u00fa\u00f0 og vir\u00f0ingu. S\u00e9rstaklega eru henni kj\u00f6r kvenna hugleikin, b\u00e6\u00f0i fyrr og s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>B\u00f3kin er sett upp \u00ed l\u00ednulegri r\u00f6\u00f0, \u00feannig a\u00f0 \u00ed fyrsta hluta hennar rekur Brynd\u00eds uppvaxtar\u00e1r s\u00edn og minnist foreldra sinna og samfer\u00f0amanna allra me\u00f0 mikilli \u00e1st\u00fa\u00f0 og v\u00e6ntum\u00feykju. Auglj\u00f3st er a\u00f0 h\u00fan hefur veri\u00f0 l\u00e1ns\u00f6m og heppin me\u00f0 v\u00f6ggugjafir og a\u00f0b\u00fana\u00f0 \u00ed \u00e6sku. N\u00e6sti kafli fjallar um \u00e1rin vi\u00f0 Menntask\u00f3lann \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og s\u00ed\u00f0an tekur vi\u00f0 p\u00f3lit\u00edskur ferill J\u00f3ns Baldvins og sendir\u00e1\u00f0s\u00e1rin. \u00de\u00f3tt skipulag b\u00f3karinnar s\u00e9 \u00feannig fylgir h\u00fan ekki neinni beinni l\u00ednu, h\u00fan fer \u00far einu \u00ed anna\u00f0 og kemur v\u00ed\u00f0a vi\u00f0, fjallar um allt m\u00f6gulegt, rifjar upp \u00fdmis atvik og veltir v\u00f6ngum yfir s\u00ednum margv\u00edslegu hug\u00f0arefnum og \u00e1hugam\u00e1lum. \u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i s\u00e9rstaklega gaman af vangaveltum hennar um tungum\u00e1l heimsins og hjarta\u00f0 \u00ed \u00feessu m\u00e1lfr\u00e6\u00f0in\u00f6rdi hreinlega hoppa\u00f0i af k\u00e6ti \u00feegar h\u00fan tala\u00f0i um hina ford\u00e6mdu og \u00fatsk\u00fafu\u00f0u n\u00e1msgrein, m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ina. Viva la gramatica, Brynd\u00eds!<\/p>\n<p>Brynd\u00edsi liggur miki\u00f0 \u00e1 hjarta og stundum skrifar h\u00fan fullhratt. H\u00fan hefur tr\u00falega ekki haft neinn ritstj\u00f3ra og jafnvel engan pr\u00f3farkalesara. En Brynd\u00eds er flinkur penni, henni er miki\u00f0 ni\u00f0ri fyrir og \u00feessir \u00f6rf\u00e1u hn\u00f6krar gefa b\u00f3kinni eiginlega enn meiri sjarma, \u00feetta er eins og a\u00f0 hlusta \u00e1 lifandi t\u00f3nlistarflutning, h\u00e9r er ekki b\u00fai\u00f0 a\u00f0 f\u00e1ga allt og dau\u00f0hreinsa. Brosin ylja bj\u00f6rt og geislandi og t\u00e1rin  eru s\u00f6lt svo undan sv\u00ed\u00f0ur.<\/p>\n<p>A\u00f0 sendir\u00e1\u00f0s\u00e1runum loknum er lj\u00f3st a\u00f0 Brynd\u00eds hefur horft me\u00f0 nokkurri tilhl\u00f6kkun til eftirlauna\u00e1ranna \u00ed frelsi og fri\u00f0i. En \u00fea\u00f0 er ekki beinl\u00ednis frelsi og fri\u00f0ur sem hefur einkennt l\u00edf hennar s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin og um \u00fea\u00f0 fjallar s\u00ed\u00f0asti hluti b\u00f3karinnar: Fj\u00f6lskylduharmleikur. Enginn sem ekki hefur hjarta \u00far steini g\u00e6ti lesi\u00f0 \u00feann hluta \u00f3snortinn, enda rekur hvert skelfilega \u00e1falli\u00f0 anna\u00f0, veikindi, \u00e1t\u00f6k og sorg. Sagt er a\u00f0 engin m\u00f3\u00f0ir geti veri\u00f0 hamingjusamari en \u00f3hamingjusamasta barni\u00f0 hennar og v\u00edst er a\u00f0 erfi\u00f0leikar \u00ed l\u00edfi d\u00e6tranna hafa lagst \u00feungt \u00e1 \u00feau hj\u00f3nin. \u00c9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e1rsaukafyllsta sem h\u00e6gt er a\u00f0 lenda \u00ed \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni s\u00e9 a\u00f0 missa barni\u00f0 sitt en J\u00f3n og Brynd\u00eds hafa \u00ed raun misst tv\u00e6r d\u00e6tur s\u00ednar, hvora me\u00f0 s\u00ednum h\u00e6tti. Ofan \u00e1 \u00fe\u00e1 n\u00edstandi sorg ver\u00f0a \u00feau fyrir miskunnarlausum \u00e1r\u00e1sum og eru b\u00f3kstaflega svipt \u00e6runni r\u00e9tt um \u00fea\u00f0 bil \u00feegar \u00feau t\u00f6ldu sig mega l\u00edta stolt og s\u00e1tt yfir 80 \u00e1ra l\u00edf sitt og starf. Og Brynd\u00eds spyr, e\u00f0lilega: Hva\u00f0an kom allt \u00feetta hatur?<\/p>\n<p>Hvort sem f\u00f3lk telur sig vita svari\u00f0 vi\u00f0 \u00feeirri spurningu e\u00f0a ekki, hvet \u00e9g alla til a\u00f0 lesa \u00feessa b\u00f3k, h\u00fan er lengst af mikill yndislestur og r\u00famar allan tilfinningaskalann sem l\u00edfi\u00f0 hefur upp \u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a, allt fr\u00e1 himins\u00e6lu til d\u00fdpstu sorgar.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brynd\u00eds Schram hefur sent fr\u00e1 s\u00e9r b\u00f3kina Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin \u00fear sem h\u00fan segir fr\u00e1 l\u00edfi s\u00ednu, gle\u00f0i og sorgum. \u00c1\u00f0ur hafa komi\u00f0 \u00fat tv\u00e6r b\u00e6kur um l\u00edf Brynd\u00edsar, \u00d3l\u00edna \u00deorvar\u00f0ard\u00f3ttir skrifa\u00f0i \u00fe\u00e1 fyrstu 1998 en fyrir 12 \u00e1rum kom \u00fat b\u00f3kin \u00cd s\u00f3l og skugga sem Brynd\u00eds skrifa\u00f0i sj\u00e1lf. En ef einhver heldur a\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2020\/09\/24\/herdis-brosad-gegnum-tarin-ritdomur\/\" class=\"more-link\">Continue reading<span class=\"screen-reader-text\"> &#8220;Herd\u00eds Hubner: Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, ritd\u00f3mur&#8221;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-743","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/743","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=743"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/743\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":833,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/743\/revisions\/833"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=743"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=743"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=743"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}