{"id":761,"date":"2020-09-24T09:40:23","date_gmt":"2020-09-24T09:40:23","guid":{"rendered":"https:\/\/jbh.is\/bs\/?p=761"},"modified":"2022-02-24T09:40:40","modified_gmt":"2022-02-24T09:40:40","slug":"styrmir-gunnarsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2020\/09\/24\/styrmir-gunnarsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur\/","title":{"rendered":"Styrmir Gunnarsson: Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, ritd\u00f3mur"},"content":{"rendered":"
Kynni okkar Brynd\u00edsar Schram h\u00f3fust hausti\u00f0 1948, \u00feegar h\u00fan settist \u00ed 10 \u00e1ra bekk \u00ed Melask\u00f3lanum, sama bekk og vi\u00f0 Atli Heimir Sveinsson, s\u00ed\u00f0ar t\u00f3nsk\u00e1ld, h\u00f6f\u00f0um veri\u00f0 \u00ed fr\u00e1 \u00e1tta \u00e1ra aldri. \u00de\u00e1 \u00feegar f\u00f3ru s\u00f6gur af henni, s\u00f6kum gl\u00e6sileika og pers\u00f3nut\u00f6fra. Ekkert okkar \u00feriggja vissi \u00fe\u00e1, a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6ttum eftir a\u00f0 ver\u00f0a vinir til \u00e6viloka. Vi\u00f0 str\u00e1karnir h\u00e9ldum okkur \u00ed h\u00e6filegri fjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 \u00feessari \u201eprimadonnu\u201c, sem \u00fe\u00e1 var a\u00f0 ver\u00f0a til. H\u00f6fum sennilega veri\u00f0 hr\u00e6ddir vi\u00f0 hana og \u00fea\u00f0 sama s\u00fdndist m\u00e9r eiga vi\u00f0 um menntask\u00f3la\u00e1rin.<\/p>\n
Fyrir sk\u00f6mmu kom \u00fat b\u00f3k eftir Brynd\u00edsi, sem heitir Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, sem er eins konar uppgj\u00f6r hennar vi\u00f0 stormasamt l\u00edf. Framan af er b\u00f3kin lifandi og skemmtileg. Svo tekur s\u00e1rsauki og harmleikur vi\u00f0.
Sj\u00e1lfur held \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u erfi\u00f0leikarnir, sem um lei\u00f0 eru \u00feroskandi. \u00deeir gera okkar a\u00f0 \u00f6\u00f0ru v\u00edsi einstaklingum, en vi\u00f0 ella hef\u00f0um or\u00f0i\u00f0. \u00c9g hef kynnzt Brynd\u00edsi betur vi\u00f0 lestur \u00feessarar b\u00f3kar en \u00e1 \u00feeim 72 \u00e1rum, sem vi\u00f0 h\u00f6fum \u00feekkzt. \u00cd henni er a\u00f0 finna meiri d\u00fdpt en \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur or\u00f0i\u00f0 var vi\u00f0 \u00ed hennar fari. Kannski er \u00fea\u00f0 m\u00f3tbyrinn og erfi\u00f0 l\u00edfsreynsla, sem hefur kalla\u00f0 hana fram.<\/p>\n
Vi\u00f0 str\u00e1karnir sem vorum samt\u00edma henni \u00ed sk\u00f3la, litum upp til hennar og b\u00e1rum mikla vir\u00f0ingu fyrir henni.
\n\u00deeirri upplifun l\u00fdsti \u00e9g \u00ed b\u00f3k minni, \u00cd k\u00f6ldu str\u00ed\u00f0i \u2013 Bar\u00e1tta og vin\u00e1tta \u00e1 \u00e1takat\u00edmum \u2013 sem \u00fat kom hj\u00e1 Ver\u00f6ld 2014 me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um:
\n\u201eEn \u00fer\u00e1tt fyrir s\u00edvaxandi p\u00f3lit\u00edsk umsvif h\u00f6f\u00f0u \u00feeir okkar sem heima s\u00e1tum, t\u00edma til a\u00f0 fara \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0 \u00feessi misseri \u2013 aftur og aftur, s\u00e1tum \u00fear gjarnan \u00e1 fremsta bekk og st\u00f6r\u00f0um \u2013 or\u00f0lausir af a\u00f0d\u00e1un \u2013\u00e1 hina n\u00fdju primaballer\u00ednu \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins, Brynd\u00edsi Schram, sv\u00edfa um svi\u00f0i\u00f0.\u201c<\/p>\n
Samf\u00e9lag okkar \u00e1 \u00feeim \u00e1rum var b\u00e6\u00f0i ford\u00f3mafullt og \u00fer\u00f6ngs\u00fdnt. \u00deegar samband \u00feeirra J\u00f3ns Baldvins Hannibalssonar og Brynd\u00edsar var or\u00f0i\u00f0 l\u00fd\u00f0um lj\u00f3st, man \u00e9g eftir umtali um \u00feessa vini m\u00edna, \u00fear sem fur\u00f0u var l\u00fdst yfir \u00fev\u00ed, a\u00f0 a\u00f0 heildsalad\u00f3ttir \u00far Vesturb\u00e6num t\u00e6ki saman vi\u00f0 son al\u00fe\u00fd\u00f0uhetjunnar Hannibals Valdemarssonar.
\n\u00deeir ford\u00f3mar og s\u00fa \u00fer\u00f6ngs\u00fdni birtust l\u00edka \u00ed \u00fev\u00ed, sem fram kemur \u00ed b\u00f3kinni og \u00e9g fylgdist me\u00f0 \u00e1 \u00feeim t\u00edma, a\u00f0 \u00feegar J\u00f3n Baldvin kom heim fr\u00e1 n\u00e1mi, me\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lapr\u00f3f \u00ed hagfr\u00e6\u00f0i,  f\u00e9kk hann hvergi vinnu vegna \u00feess a\u00f0 hann var sonur Hannibals. \u00deess vegna f\u00f3r hann a\u00f0 kenna \u00ed Hagask\u00f3la.<\/p>\n
A\u00f0 \u00feessu leyti hefur okkur fari\u00f0 fram. \u00cd dag v\u00e6ru ekki ger\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 sl\u00edkt samband \u201eheildsalad\u00f3ttur\u201c og son \u00feekkts stj\u00f3rnm\u00e1laforingja \u00e1 vinstri kantinum. Og sl\u00edkur einstaklingur mundi ekki vera \u00fatiloka\u00f0ur fr\u00e1 starfi \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i \u2013 e\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n
Lifandi l\u00fdsingar Brynd\u00edsar af Vesturg\u00f6tunni og f\u00f3lkinu \u00fear og fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i eru skemmtilegar sem og margv\u00edslegar fr\u00e1sagnir hennar af samskiptum \u00feeirra J\u00f3ns Baldvins vi\u00f0 erlenda stj\u00f3rnm\u00e1lamenn, \u00feekkta og \u00f3\u00feekkta.
\n\u00deegar \u00e9g var a\u00f0 lesa b\u00f3kina rifju\u00f0ust upp fyrir m\u00e9r or\u00f0, sem sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ir minn \u00far Melask\u00f3lanum, H\u00f6r\u00f0ur heitinn  Sigurgestsson, s\u00ed\u00f0ar forstj\u00f3ri Eimskipaf\u00e9lagsins, l\u00e9t einu sinni falla \u00ed samt\u00f6lum okkar: Umtali\u00f0 er grimmt sag\u00f0i H\u00f6r\u00f0ur.
\nOg \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt. Umtali\u00f0 \u00ed svona f\u00e1mennu samf\u00e9lagi getur veri\u00f0 \u00f3tr\u00falega grimmt. Og \u00fea\u00f0 er s\u00fa grimmd, sem Brynd\u00eds \u00e1 erfitt me\u00f0 a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0. Umfj\u00f6llun hennar um \u00feann \u00fe\u00e1tt mannl\u00edfsins vekur upp \u00fe\u00e1 spurningu, hvort vi\u00f0kv\u00e6mni hennar hafi veri\u00f0 og s\u00e9 sl\u00edk, a\u00f0 h\u00fan hafi \u00feola\u00f0 illa \u00fe\u00e1 grimmu p\u00f3lit\u00edsku ver\u00f6ld, sem var ver\u00f6ld \u00feeirra J\u00f3ns Baldvins.
\nFyrir allm\u00f6rgum \u00e1rum flutti \u00e9g r\u00e6\u00f0u \u00e1 \u00e1rsfundi Rotary-f\u00e9laga \u00ed K\u00f3pavogi. \u00deema \u00feeirrar r\u00e6\u00f0u var: Ef \u00fei\u00f0 vilji\u00f0 eiga fars\u00e6lt l\u00edf, haldi\u00f0 ykkur fr\u00e1 fj\u00f6lmi\u00f0lum. A\u00f0 sumu leyti m\u00e1 segja, a\u00f0 \u00feau J\u00f3n Baldvin hafi lifa\u00f0 l\u00edfi s\u00ednu \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum \u2013 ekki vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau hafi s\u00f3tzt eftir \u00fev\u00ed, heldur vegna \u00feess, a\u00f0 \u00feau g\u00e1tu varla hreyft sig \u00e1n \u00feess, a\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0lar v\u00e6ru \u00e1 eftir \u00feeim. Og reyndar ekki bara fj\u00f6lmi\u00f0lar.<\/p>\n
Fyrir nokkrum \u00e1ratugum f\u00f3r \u00e9g me\u00f0 \u00feeim \u00e1 milli nokkurra \u00f6ldurh\u00fasa. Alls sta\u00f0ar \u00feyrptist f\u00f3lk a\u00f0 \u00feeim b\u00e1\u00f0um og \u00e9g gat ekki betur s\u00e9\u00f0 en \u00fea\u00f0 v\u00e6ri samkeppni \u00e1 milli \u00feeirra um athyglina. H\u00fan vann alltaf.
\nFyrr \u00e1 \u00e1rum voru ekki til margar sl\u00edkar \u201estj\u00f6rnur\u201c \u00e1 \u00cdslandi. Og \u00fea\u00f0 er ekki endilega fars\u00e6lt a\u00f0 vera \u201estjarna\u201c. \u00dea\u00f0 eru l\u00edka d\u00f6kkar hli\u00f0ar \u00e1 \u00feeirri tilveru.<\/p>\n
En allt eru \u00feetta aukaatri\u00f0i \u00ed l\u00edfi \u00feeirra Brynd\u00edsar og J\u00f3ns Baldvins, sem skipta engu m\u00e1li \u00feegar kemur a\u00f0 alv\u00f6ru l\u00edfsins. Fr\u00e1fall Sn\u00e6fri\u00f0ar, d\u00f3ttur \u00feeirra \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfsins, er \u00e1fall sem aldrei hverfur og s\u00e1 harmleikur, sem tengist Ald\u00edsi d\u00f3ttur \u00feeirra \u00f3l\u00fdsanlegur.<\/p>\n
\u00c9g man vel eftir \u00fev\u00ed, \u00feegar Ald\u00eds f\u00e6ddist. \u00cd mig hringdi \u00e6skuvinur okkar allra, Ragnar Arnalds, s\u00ed\u00f0ar forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins, \u00feingma\u00f0ur og r\u00e1\u00f0herra og sag\u00f0i: Veiztu hver eigna\u00f0ist barn \u00ed g\u00e6r? Nei, sag\u00f0i \u00e9g. Brynd\u00eds Schram sag\u00f0i hann. \u00dea\u00f0 getur ekki veri\u00f0 sag\u00f0i \u00e9g, hitti hana \u00ed fyrradag og h\u00fan var ekki \u00f3fr\u00edsk.
\nAld\u00eds f\u00e6ddist og fyrir nokkrum \u00e1rum t\u00f6lu\u00f0um vi\u00f0 saman \u00e1 fundi \u00ed I\u00f0n\u00f3. \u00dea\u00f0 var upplifun a\u00f0 sj\u00e1 pers\u00f3nut\u00f6fra m\u00f3\u00f0ur hennar og r\u00e6\u00f0usnilld f\u00f6\u00f0ur hennar sameinast \u00ed einni og s\u00f6mu manneskju.<\/p>\n
Fyrir u.\u00fe.b. \u00feremur \u00e1ratugum s\u00e1tu \u00feau fe\u00f0gin \u00ed stofunni heima hj\u00e1 m\u00e9r, vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin rifumst eins og vi\u00f0 h\u00f6fum gert alla t\u00ed\u00f0 og \u00e9g sta\u00f0h\u00e6f\u00f0i a\u00f0 hann hef\u00f0i aldrei or\u00f0i\u00f0 sami al\u00fe\u00fd\u00f0uforingi og pabbi hans, Hannibal, var. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Ald\u00eds:
\n\u201eHann pabbi? Hann hefur aldrei keppt vi\u00f0 neinn annan en pabba sinn\u201c. M\u00e9r var\u00f0 liti\u00f0 \u00e1 J\u00f3n Baldvin, \u00feegar h\u00fan sag\u00f0i \u00feetta og s\u00e1, a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i hitt hann \u00ed hjartasta\u00f0.<\/p>\n
Brynd\u00eds hefur \u00ed b\u00f3k sinni tilhneigingu til a\u00f0 kenna sj\u00e1lfri s\u00e9r um. Sta\u00f0reynd er hins vegar a\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 vorum ung var l\u00edti\u00f0 vita\u00f0 um s\u00e1larl\u00edf barna. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu r\u00famri h\u00e1lfri \u00f6ld hafa margv\u00edslegar ranns\u00f3knir leitt margt \u00ed lj\u00f3s, sem \u00fe\u00e1 var ekki vita\u00f0, sem gj\u00f6rbreytir \u00f6llum vi\u00f0horfum. Barnaverkefni \u00c1smundar Einars Da\u00f0asonar, barnam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, sem mun birtast \u00e1 Al\u00feingi \u00ed haust, sn\u00fdst um a\u00f0 taka \u00e1 m\u00e1lum, sem enginn vissi neitt um \u00ed \u00fe\u00e1 daga.
\nB\u00f3k Brynd\u00edsar Schram er ver\u00f0ugt innlegg \u00ed \u00fe\u00e6r umr\u00e6\u00f0ur, sem framundan eru um \u00feau m\u00e1l.
\nStyrmir Gunnarsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"