{"id":771,"date":"2020-09-24T09:52:33","date_gmt":"2020-09-24T09:52:33","guid":{"rendered":"https:\/\/jbh.is\/bs\/?p=771"},"modified":"2022-02-24T09:52:49","modified_gmt":"2022-02-24T09:52:49","slug":"sighvatur-bjorgvinsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2020\/09\/24\/sighvatur-bjorgvinsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur\/","title":{"rendered":"Sighvatur Bj\u00f6rgvinsson: Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, ritd\u00f3mur"},"content":{"rendered":"<p><strong>Eitt l\u00edf \u2013 m\u00f6rg \u00e6viskei\u00f0. <\/strong>Sagan hennar Brynd\u00edsar Schram.<\/p>\n<p>N\u00fdlega kom \u00ed b\u00f3kaverslanir b\u00f3kin \u201eBrosa\u00f0 \u00ed gegn um t\u00e1rin\u201c.&nbsp; \u00dear rekur Brynd\u00eds Schram l\u00edfss\u00f6gu s\u00edna.&nbsp; S\u00fa l\u00edfssaga er l\u00f6ng og kemur v\u00ed\u00f0a vi\u00f0.&nbsp; \u00deetta er saga eins l\u00edfs \u2013 en saga margra \u00e6viskei\u00f0a, sem hvert um sig eru hinum \u00f3l\u00edkt.&nbsp; Um margt heillandi lesning, fr\u00f3\u00f0leg lesning en einnig dapurleg og n\u00edstandi. Saga einnar mannss\u00e1lar, sem \u00e1 a\u00f0 baki s\u00e9r svo \u00f3l\u00edka \u00e6vidaga, um margt svo \u00f3l\u00edka l\u00edfsreynslu, \u00ed svo s\u00edbreytilegu og ger\u00f3l\u00edku umhverfi og vi\u00f0 svo \u00f3l\u00edkan a\u00f0b\u00fana\u00f0.&nbsp; Eitt l\u00edf \u2013 m\u00f6rg \u00e6viskei\u00f0.<\/p>\n<p><strong>\u00c1str\u00edkt uppeldi.<\/strong><\/p>\n<p>Brynd\u00eds \u00f3lst upp \u00ed borgaralegu umhverfi \u00ed h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0num, Reykjav\u00edk. \u201e\u00cd borgaralegu umhverfi\u201c er ekki sagt \u00ed ni\u00f0randi merkingu heldur \u00ed lj\u00f3si \u00feeirra vi\u00f0horfa, a\u00f0 fj\u00f6lskylduna skorti hvorki f\u00e6\u00f0i n\u00e9 kl\u00e6\u00f0i, foreldrarnir nutu \u00feess a\u00f0 geta veitt b\u00f6rnum s\u00ednum \u00f6ruggt og gott skj\u00f3l \u00fear sem hver og einn f\u00e9kk \u00f6ll t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn og foreldrarnir voru hvarvetna og ein\u00e6tt n\u00e6rri til \u00feess a\u00f0 geta veitt \u00feann stu\u00f0ning og \u00fe\u00e1 hl\u00fdju, sem \u00feeir veita vildu og \u00fe\u00f6rf v\u00e6ri \u00e1.&nbsp; \u00deannig var ekki umhverfi allra barna \u00ed Reykjav\u00edk \u2013 s\u00ed\u00f0ur en svo.&nbsp; En \u00feannig umhverfi vildum vi\u00f0 jafna\u00f0armenn f\u00e1 skapa\u00f0 fyrir hverja og eina fj\u00f6lskyldu.&nbsp; \u00d6ryggi, samheldni, sam\u00fa\u00f0 og traust.&nbsp; Au\u00f0vita\u00f0 naut Brynd\u00eds \u00feessara a\u00f0st\u00e6\u00f0na.&nbsp; H\u00fan dregur enga dul \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed fr\u00e1s\u00f6gn sinni.&nbsp; Ma\u00f0f\u00e6ddir h\u00e6fileikar hennar til n\u00e1ms og til starfa&nbsp; fengu a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn og til \u00feess a\u00f0 svo m\u00e6tti ver\u00f0a til fullnustu naut h\u00fan stu\u00f0nings sinna foreldra og &nbsp;fj\u00f6lskyldu.&nbsp; Ekki \u00ed fj\u00e1rmunum heldur \u00ed n\u00e1nd, \u00ed or\u00f0i og \u00ed verki.&nbsp; Fj\u00f6lskyldun\u00e1ndin var hennar \u00f6flugi bakhjarl \u00e1 \u00f6llu hennar fyrsta \u00e6viskei\u00f0i.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p><strong>H\u00e6fileikar n\u00fdttir<\/strong><\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur naut Brynd\u00eds \u00feess a\u00f0 geta n\u00fdtt til fullnustu h\u00e6fileika s\u00edna.&nbsp; H\u00fan n\u00fdtti \u00fe\u00e1 vel og n\u00e1\u00f0i g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri hvort heldur sem er hva\u00f0 var\u00f0ar g\u00e1fur, listfengi og greind ellegar l\u00edkamlegt atgervi og gj\u00f6rvileika.&nbsp; \u00deannig skapa\u00f0i h\u00fan s\u00e9r s\u00edna sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u tilveru \u00fear sem framt\u00ed\u00f0in bei\u00f0 bj\u00f6rt og brosandi \u2013 \u00feanga\u00f0 til h\u00fan \u00feurfti a\u00f0 velja \u00e1 milli tveggja kosta.&nbsp; Sinna eigin framt\u00ed\u00f0ardrauma, sem h\u00fan var komin vel \u00e1 veg me\u00f0 \u2013 og hins, a\u00f0 fylgja \u00e1 vegfer\u00f0 \u00feeim maka, sem h\u00fan haf\u00f0i vali\u00f0 s\u00e9r sem l\u00edfsf\u00f6runaut.&nbsp;&nbsp; Um \u00fea\u00f0 val segir h\u00fan sj\u00e1lf \u00ed l\u00edfss\u00f6gu sinni a\u00f0 h\u00fan: \u201eHef\u00f0i veri\u00f0 hrifin \u00far sinni sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u tilveru\u201c.&nbsp; \u00dea\u00f0 ger\u00f0ist, \u00feegar h\u00fan kaus a\u00f0 fylgja eiginmanni s\u00ednum, J\u00f3ni Baldvin Hannibalssyni, fr\u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarumhverfinu, \u00fear sem h\u00fan haf\u00f0i skapa\u00f0 s\u00e9r s\u00edna \u201esj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u tilveru\u201c og til \u00cdsafjar\u00f0ar \u00fear sem allt umhverfi var gerbreytt fr\u00e1 \u00dev\u00ed, sem h\u00fan \u00e1tti a\u00f0 venjast.<\/p>\n<p>\u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur, umhverfi mitt.&nbsp; \u00c9g tr\u00fai \u00fev\u00ed vel, sem Brynd\u00eds segir, a\u00f0 \u00fea\u00f0 umhverfi hafi komi\u00f0 henni \u00f6\u00f0ru v\u00edsi fyrir sj\u00f3nir en hitt, sem h\u00fan haf\u00f0i dvali\u00f0 og starfa\u00f0 \u00ed.&nbsp; H\u00fan telur sig hafa veri\u00f0 afskipta \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.&nbsp; \u00dear hafi veri\u00f0 liti\u00f0 svo \u00e1, a\u00f0 h\u00fan og \u00feau hj\u00f3n b\u00e6\u00f0i v\u00e6ru a\u00f0komnir broddborgarar, sem l\u00edti\u00f0 \u00e6ttu sameiginlegt me\u00f0 \u00edb\u00faunum.&nbsp; H\u00fan vinni ekki \u00ed fiski.&nbsp; Ekki var \u00fea\u00f0 m\u00edn upplifun af veru \u00feeirra hj\u00f3na \u00fear vestra.&nbsp;&nbsp; \u00c9g man f\u00e1tt af \u00dev\u00ed, a\u00f0 nokkur \u00cdsfir\u00f0ingur hef\u00f0i tala\u00f0 um \u00feau hj\u00f3nin sem utana\u00f0komandi broddborgara, sem ekkert erindi \u00e6ttu \u00fear \u00e1 sta\u00f0num.&nbsp; Man ekki betur, en a\u00f0 J\u00f3n Baldvin hafi veri\u00f0 kj\u00f6rinn sem b\u00e6jarfulltr\u00fai a\u00f0 mestu leyti fyrir eigin tilverkna\u00f0 og hafi st\u00fdrt b\u00e6jarf\u00e9laginu um skei\u00f0.&nbsp; \u00dea\u00f0 getur enginn gert sem ekki hefur haft stu\u00f0ning almennings \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.&nbsp; Og Brynd\u00eds t\u00f3k vi\u00f0 starfi sk\u00f3lameistara \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00ed fr\u00e1f\u00f6llum J\u00f3ns \u00f6rf\u00e1um \u00e1rum eftir a\u00f0 h\u00fan fluttist vestur.&nbsp; Gegndi \u00fev\u00ed me\u00f0 s\u00f3ma og vi\u00f0 g\u00f3\u00f0an or\u00f0st\u00edr. Mikil breyting haf\u00f0i or\u00f0i\u00f0 \u00e1 hennar \u201esj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u tilveru\u201c. &nbsp;N\u00fd tilvera risin.&nbsp; N\u00fdtt \u00e6viskei\u00f0 framundan.<\/p>\n<p><strong>Kynnin.<\/strong><\/p>\n<p>J\u00f3ni Baldvin og Brynd\u00edsi kynntist \u00e9g flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 \u00feau hj\u00f3nin settust a\u00f0 \u00ed heimab\u00e6 m\u00ednum \u2013 og okkar J\u00f3ns Baldvins beggja.&nbsp; \u00c1ri\u00f0 1974 heims\u00f3ttum vi\u00f0 Vilmundur heitinn Gylfason \u00feau hj\u00f3nin \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 \u00feeirra \u00ed Sundstr\u00e6tinu og r\u00e6ddum a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u p\u00f3lit\u00edk. &nbsp;Fyrsti sameiginlegi frambo\u00f0sfundur, sem \u00e9g s\u00f3tti vestra \u00ed kosningunum 1974, var haldinn \u00ed f\u00e9lagsheimilinu \u00e1 Nor\u00f0urfir\u00f0i \u00e1 Str\u00f6ndum.&nbsp; \u00dear m\u00e6ttum vi\u00f0 b\u00e1\u00f0ir \u2013 \u00e9g og J\u00f3n Baldvin \u2013 \u00ed frambo\u00f0 hvor fyrir sinn flokk.&nbsp; \u00deanga\u00f0 haf\u00f0i \u00e9g aldrei \u00e1\u00f0ur komi\u00f0.&nbsp; Veitti \u00fev\u00ed hins vegar athygli, a\u00f0 \u00feegar annar hvor okkar J\u00f3ns Baldvins h\u00f3fum m\u00e1ls \u00fe\u00e1 kom fundarf\u00f3lk allt aftur inn \u00ed salinn, settist ni\u00f0ur og hlusta\u00f0i.&nbsp; \u00deegar frambj\u00f3\u00f0endur Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokks og Frams\u00f3knar f\u00f3ru \u00ed r\u00e6\u00f0ust\u00f3l \u00fe\u00e1 f\u00f3ru sumir karlarnir \u00fat til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r \u00ed nefi\u00f0 \u2013 en sumar konurnar f\u00f3ru a\u00f0 r\u00e6\u00f0a b\u00faskapinn.&nbsp; A\u00f0eins einn fundargesta \u00feekkti \u00e9g me\u00f0 nafni.&nbsp; Gu\u00f0mund \u00ed B\u00e6.&nbsp; G\u00f3\u00f0an og gegnan Frams\u00f3knarmann. \u00c9g spur\u00f0i hann hvort veri\u00f0 g\u00e6ti a\u00f0 vi\u00f0 kratar \u00e6ttum einhvern stu\u00f0ng \u00ed \u00c1rneshreppi.&nbsp; \u201eAf hverju heldur \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0?\u201c spur\u00f0i Gu\u00f0mundur.&nbsp; \u201eAf \u00fev\u00ed a\u00f0 allir koma inn \u00feegar vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin f\u00f6rum a\u00f0 tala en margir fara burtu og \u00fat \u00feegar \u00fei\u00f0 e\u00f0a \u00edhaldi\u00f0 f\u00e1i\u00f0 or\u00f0i\u00f0\u201c.&nbsp; \u201eNei\u201c, sag\u00f0i Gu\u00f0mundur \u00ed B\u00e6. &nbsp;\u201e H\u00e9r eigi\u00f0 \u00fei\u00f0 kratarnir engan stu\u00f0ning.&nbsp; \u00dea\u00f0 er bara ekki oft \u00e1 \u00e1ri, sem f\u00f3lk h\u00e9rna \u00ed sveitinni f\u00e6r a\u00f0 sj\u00e1 krata.&nbsp; \u00dea\u00f0 er forviti\u00f0 \u2013 ekki um \u00fea\u00f0 sem \u00fei\u00f0 segi\u00f0, heldur hvernig \u00fei\u00f0 eiginlega l\u00edti\u00f0 \u00fat.\u201c<\/p>\n<p><strong>\u00c6viskei\u00f0 tv\u00f6<\/strong><\/p>\n<p>Tilvera \u00feeirra hj\u00f3nanna sem sk\u00f3lameistarahj\u00f3na vestur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u2013 tilvera, sem flestum n\u00e6gir \u00ed heilt \u00e6viskei\u00f0 \u2013 var\u00f0 ekki lang\u00e6.&nbsp; \u00deau hurfu b\u00e6\u00f0i \u00fea\u00f0an en hvorugt \u00fe\u00f3 til algerlega n\u00fdrrar tilveru.&nbsp; J\u00f3n Baldvin til \u00feess a\u00f0 helga sig alfari\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1la\u00fe\u00e1ttt\u00f6ku; fyrst sem ritstj\u00f3ri og svo sem \u00feingma\u00f0ur, flokksforma\u00f0ur og r\u00e1\u00f0herra.&nbsp; Brynd\u00eds t\u00f3k upp aftur \u00fer\u00e1\u00f0 sinnar fyrri tilveru sem svi\u00f0slistama\u00f0ur auk \u00feess sem h\u00fan feta\u00f0i n\u00fdjar brautir sem virkur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed borgarm\u00e1lum.&nbsp; N\u00fdtt \u00e6viskei\u00f0 framundan.&nbsp; \u00c6viskei\u00f0 sem \u00e9g \u00feekki vel til.&nbsp; \u00c6viskei\u00f0, \u00fear sem \u00e9g og \u00feau hj\u00f3nin, vorum samfer\u00f0a. &nbsp;\u00c1 \u00fev\u00ed tilveruskei\u00f0i kynntist \u00e9g \u00feeim hj\u00f3num pers\u00f3nulega, einkum \u00fe\u00f3 J\u00f3ni Baldvin.&nbsp; Vi\u00f0, sem h\u00f6f\u00f0um hildi h\u00e1\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum hans vestra, ger\u00f0umst fyrst samherjar, svo samstarfsmenn og loks vinir.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feekki \u00fev\u00ed b\u00e1\u00f0ar hli\u00f0arnar \u00e1 J\u00f3ni Baldvin.&nbsp; B\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1 hli\u00f0, sem \u00feeir \u00feykjast sj\u00e1 sem telja sig eiga \u00ed \u00fatist\u00f6\u00f0um vi\u00f0 hann&nbsp; sem og hina, sem sn\u00fdr a\u00f0 vinum og samherjum.&nbsp; \u00cd \u00f6ll \u00feau \u00e1r, sem vi\u00f0 \u00e1ttum \u00ed samskiptum \u2013 \u00feau \u00e1r \u00feegar \u00feau samskipti snerust um \u00e1t\u00f6k og snerrur og \u00feann langa t\u00edma, sem lei\u00f0ir okkar l\u00e1gu saman \u2013 heyr\u00f0i \u00e9g aldrei svo miki\u00f0 sem brot \u00e1 hann bori\u00f0 af \u00feeim \u00e1s\u00f6kunum, sem s\u00ed\u00f0ar hefur or\u00f0i\u00f0.&nbsp; Jafnvel \u00ed h\u00f6r\u00f0um \u00e1t\u00f6kum okkar \u00e1 milli \u00ed Vestfjar\u00f0akj\u00f6rd\u00e6mi, \u00fear sem hvorugur hl\u00edf\u00f0i \u00f6\u00f0rum, heyr\u00f0i \u00e9g aldrei svo miki\u00f0 sem hv\u00edskur um \u00fea\u00f0, sem hann \u00e1ratugum s\u00ed\u00f0ar var borinn s\u00f6kum um.&nbsp; \u00cd jafn h\u00f6r\u00f0um slag og vi\u00f0 \u00fear \u00e1ttum hef\u00f0u sl\u00edkar s\u00f6gur, ef sannar v\u00e6ru, ekki veri\u00f0 lengi a\u00f0 berast m\u00e9r og m\u00ednum stu\u00f0ningsm\u00f6nnum til eyrna.&nbsp; Engan minnsta \u00e1v\u00e6ning heyr\u00f0i \u00e9g af sl\u00edku fyrr en \u00e1ratugum seinna \u00feegar fj\u00f6lskylduharmleikur \u00feeirra hj\u00f3na haf\u00f0i veri\u00f0 vakinn af \u00feeim, sem n\u00e1nust var \u00feeim hj\u00f3num en jafnframt eins fjarl\u00e6g \u00feeim og mest getur or\u00f0i\u00f0 af v\u00f6ldum sj\u00fakd\u00f3ms, sem engum og engu eirir<\/p>\n<p><strong>\u00c6viskei\u00f0 \u00ferj\u00fa.<\/strong><\/p>\n<p>N\u00e6sta \u00e6vikafla \u00ed fr\u00e1s\u00f6gn Brynd\u00edsar \u00e9g vel \u00feekki og minnist me\u00f0 hl\u00fdju og stolti.&nbsp; \u00cd skammvinnri fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herrat\u00ed\u00f0 J\u00f3ns Baldvins \u00feegar hann \u00e1 \u00f6rf\u00e1um misserum innleiddi sta\u00f0grei\u00f0slukerfi skatta og tilur\u00f0 vir\u00f0isaukaskatts, sem margir fyrirrennarar hans \u2013 og \u00e9g var einn \u00feeirra \u2013 hef\u00f0u \u00feurft a.m.k. heilt kj\u00f6rt\u00edmabil til a\u00f0 lj\u00faka vi\u00f0; ef \u00feeir hef\u00f0u \u00fe\u00e1 haft dug og kraft til \u00feess.&nbsp; Og fars\u00e6lt starf hans sem utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra \u00fear sem hann leiddi \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00edna inn \u00ed EES samstarfi\u00f0, sem allir eru n\u00fa samm\u00e1la um a\u00f0 hafi f\u00e6rt \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0inni mestu og st\u00e6rstu t\u00e6kif\u00e6rin \u00ed vi\u00f0skiptas\u00f6gu hennar vi\u00f0 a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir og tryggt sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0 mannr\u00e9ttindi eins og neytendavernd, sem enginn \u00e1hugi var hj\u00e1 \u00edslenskum stj\u00f3rnv\u00f6ldum a\u00f0 tryggja, \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 jafna\u00f0armenn hef\u00f0um margsinnis flutt um \u00fea\u00f0 frumv\u00f6rp \u00e1 Al\u00feingi sem aldrei hlutu \u00fear afgrei\u00f0slu.&nbsp; Mikilsver\u00f0ast fr\u00e1 utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herrat\u00ed\u00f0 hans er \u00fe\u00f3 \u00feegar hann \u00ed \u00f3\u00fe\u00f6kk stj\u00f3rvalda margra bandalags\u00fej\u00f3\u00f0a t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 vera fyrsti evr\u00f3pski stj\u00f3rnm\u00e1laforinginn, sem lj\u00e1\u00f0i frelsism\u00e1lsta\u00f0 Eystrasalts\u00fej\u00f3\u00f0anna li\u00f0sinni.&nbsp; Fyrir \u00fe\u00e1 eindregnu og hugr\u00f6kku afst\u00f6\u00f0u hefur J\u00f3n Baldvin hloti\u00f0 meira lof \u00e1 erlendri grundu en nokkur annar \u00edslenskur stj\u00f3rnmm\u00e1lama\u00f0ur hefur nokkru sinni hloti\u00f0 \u2013 og l\u00edklega heldur enginn \u00edslenskur stj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0ur \u00feegi\u00f0 jafn litla vi\u00f0urkenningu me\u00f0al eigin \u00fej\u00f3\u00f0ar og hann \u00fear sem illm\u00e6lgin k\u00e6fir alla a\u00f0ra umr\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<p><strong>N\u00fdtt \u00e6viskei\u00f0.<\/strong><\/p>\n<p>Svo lauk \u00feessu \u00e6viskei\u00f0i \u00ed l\u00edfshlaupi \u00feeirra hj\u00f3nanna og n\u00fdtt \u00e6viskei\u00f0 t\u00f3k vi\u00f0 \u2013 \u00ed n\u00fdju umhverfi, vi\u00f0 gerbreyttar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og me\u00f0al ger\u00f3l\u00edkra \u00fej\u00f3\u00f0a.&nbsp; Dv\u00f6l \u00feeirra hj\u00f3na sem sendir\u00e1\u00f0shj\u00f3na \u00ed Washington.&nbsp; \u00de\u00e1 s\u00f6gu \u00feekki \u00e9g l\u00edtt, enda v\u00ed\u00f0s fjarri \u00feeim vettvangi.&nbsp; Hins vegar \u00fe\u00f3tti m\u00e9r og f\u00e9l\u00f6gum m\u00ednum \u00fdmislega vera me\u00f0 \u00f6\u00f0ru sni\u00f0i eftir \u00fe\u00e1 sendir\u00e1\u00f0s\u00e6vi en fyrrum.&nbsp; Vi\u00f0 t\u00f3kum t.d. vel eftir \u00fev\u00ed, a\u00f0 s\u00f3s\u00edaldem\u00f3kratinn J\u00f3n Baldvin var\u00f0 enn\u00fe\u00e1 \u00e1kve\u00f0nari \u00ed \u00feeirri afst\u00f6\u00f0u eftir Bandar\u00edkjadv\u00f6lina en \u00e1\u00f0ur var.&nbsp; Norr\u00e6na m\u00f3deli\u00f0, sem hann nefndi svo, var ekki bara \u00e6skilegast allra samf\u00e9lagsger\u00f0a heldur margfaldlega langbest.&nbsp; Og gamlir s\u00f3s\u00edaldem\u00f3kratar eins og Olof Palme ekki lengur svona b\u00e6\u00f0i-og heldur sannar fyrirmyndir.&nbsp; \u00deetta er sagan um l\u00edfsreynslu \u00feeirra hj\u00f3na \u00e1 \u00feessu \u00e6viskei\u00f0i.&nbsp; Sagan um l\u00edfsreynslu s\u00f3s\u00edaldem\u00f3krata vi\u00f0 ger\u00f3l\u00edkt umhverfi.<\/p>\n<p><strong>Og enn n\u00fdtt \u00e6viskei\u00f0.<\/strong><\/p>\n<p>A\u00f0 loknum sendir\u00e1\u00f0sst\u00f6rfunum t\u00f3k svo vi\u00f0 ger\u00f3l\u00edkt umhverfi, ger\u00f3l\u00edkt \u00e6viskei\u00f0.&nbsp; Fer\u00f0al\u00f6g borga, landa og heims\u00e1lfa \u00e1 milli \u00fear sem Jon Baldvin f\u00f3r um m.a. til \u00feess a\u00f0 r\u00e6\u00f0a stj\u00f3rnm\u00e1l og stj\u00f3rnm\u00e1lastefnur en Brynd\u00eds til \u00feess a\u00f0 hitta f\u00f3lk, m\u00e6ta f\u00f3lki, upplifa umhverfi og menningu og sko\u00f0a ger\u00f3l\u00edkt mannl\u00edf.&nbsp; \u00cd b\u00f3kinni heldur Brynd\u00eds \u00e1 pennanum.&nbsp; H\u00fan er \u00fear ekki a\u00f0 l\u00fdsa vi\u00f0fangsefnum b\u00f3nda s\u00edns, sem h\u00f6f\u00f0u marka\u00f0 sterkt alla \u00feeirra tilveru, heldur til \u00feess a\u00f0 segja fr\u00e1 \u00fev\u00ed, sem h\u00fan sj\u00e1lf haf\u00f0i s\u00e9\u00f0, heyrt, kynnst, skili\u00f0 og sko\u00f0a\u00f0 \u00ed m\u00f6rgum og miklum fer\u00f0al\u00f6gum \u00feeirra hj\u00f3nanna.&nbsp; \u00deessi fr\u00e1s\u00f6gn hennar er ekki bara skemmtileg og fr\u00f3\u00f0leg heldur einnig skilmerkileg og greinarg\u00f3\u00f0 fr\u00e1s\u00f6gn af ger\u00f3l\u00edku umhverfi, ger\u00f3l\u00edkum samf\u00e9lagsh\u00e1ttum \u2013 og ger\u00f3l\u00edku f\u00f3lki.&nbsp; \u00c1hugaver\u00f0 lesning og vel ritu\u00f0.<\/p>\n<p><strong>Og svo harmleikur.<\/strong><\/p>\n<p>Lokafr\u00e1s\u00f6gn b\u00f3karinnar er harmleikur.&nbsp; A\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00ed samt\u00edmanum eru vissulega n\u00fana ger\u00f3l\u00edkar \u00feeim a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem tilheyr\u00f0u daglegu l\u00edfi okkar jafnaldra \u00feeirra hj\u00f3na.&nbsp; \u00c1sakanir um framfer\u00f0 karls gegn konu, sem \u00fe\u00e1 var ekki gert miki\u00f0 \u00far, eru n\u00fa \u00e1litnar vera dau\u00f0asynd.&nbsp; Gr\u00f3far \u00e1sakanir um barnan\u00ed\u00f0 gegn eigin afkv\u00e6mum eru \u00edtreka\u00f0ar og endurteknar af \u00f3kunnugum eins og satt og sanna\u00f0 v\u00e6ri og nota\u00f0ar sem r\u00f6kstu\u00f0ningur fyrir \u00e6rur\u00e1ni \u2013 \u00fe\u00f3 ekkert sl\u00edkt hafi gerst, \u00fer\u00e6tt hafi veri\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0 m.a. af \u00feeim, sem fullyrt hefur veri\u00f0 a\u00f0 hlut eigi a\u00f0 m\u00e1li. L\u00e1ti\u00f0 er duga sem s\u00f6nnunarf\u00e6rsla, a\u00f0 einstaklingur \u00ed n\u00e1nu fj\u00f6lskldusambandi vi\u00f0 s\u00f6kunaut hafi bori\u00f0 fram \u00fe\u00e6r \u00e1sakanir, \u00fe\u00f3 \u00f6ll \u00f6nnur skyldmenni, sem s\u00f6kunautur \u00e1 a\u00f0 hafa n\u00ed\u00f0st \u00e1, hafni \u00fev\u00ed me\u00f0 \u00f6llu og l\u00fdsi hreina lygi og uppspuna.&nbsp; Og ef n\u00f3gu margir \u00edtreka \u00e1sakanirnar \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 \u00e1liti\u00f0 til merkis um sannleika \u2013 \u00fe\u00f3 aldrei hafi neinar sannanir af neinu tagi veri\u00f0 fram f\u00e6r\u00f0ar.<\/p>\n<p>Ge\u00f0sveiflur er sj\u00fakd\u00f3mur, sem \u00e9g hef reynslu af sem vinur s\u00f6kunauta &#8211; annarra en fj\u00f6lskyldu J\u00f3ns Baldvins Hannibalssonar.&nbsp; \u00deegar s\u00fa var t\u00ed\u00f0in, a\u00f0 illa sj\u00fakur einstaklingur, sem \u00f3ttast v\u00e6ri a\u00f0 g\u00e6ti ska\u00f0a\u00f0 sj\u00e1lfan sig e\u00f0a a\u00f0ra, \u00feurfti a\u00f0 \u00e1liti ge\u00f0l\u00e6knis tafarlaust \u00e1 l\u00edknandi me\u00f0fer\u00f0 a\u00f0 halda \u00fe\u00e1 var sl\u00edkt ekki h\u00e6gt nema n\u00e1i\u00f0 skyldmenni \u2013 foreldri e\u00f0a maki \u2013 f\u00e9llist \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0komandi yr\u00f0i lag\u00f0ur inn \u00e1 ge\u00f0deild til me\u00f0fer\u00f0ar. Oftar en ekki ur\u00f0u \u00fea\u00f0 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 sj\u00faklingsins, a\u00f0 kenna&nbsp; foreldri e\u00f0a maka um ekki bara innl\u00f6gnina heldur jafnframt um alla erfi\u00f0leika, sem sj\u00faklingur haf\u00f0i \u00feurft a\u00f0 m\u00e6ta \u2013 og hinn sj\u00faki jafnvel b\u00fai\u00f0 til hrein \u00f3sannindi um hversu \u00e1m\u00e6lisvert framfer\u00f0i makans e\u00f0a foreldrisins hef\u00f0u veri\u00f0 gagnvart s\u00e9r og s\u00ednum.&nbsp; Stundum var \u00feeim \u00e1s\u00f6kunum tr\u00faa\u00f0, jafnvel af n\u00e1num vinum, og \u00e1sakanir hins sj\u00faka endurteknar til n\u00ed\u00f0s og lasts yfir \u00feeim, sem veitt haf\u00f0i ge\u00f0l\u00e6kni heimild til \u00feess a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 alvarlegan sj\u00fakleika n\u00e1komins til \u00feess a\u00f0 for\u00f0a \u00fev\u00ed, a\u00f0 s\u00e1 hinn sami yr\u00f0i s\u00e9r sj\u00e1lfum e\u00f0a n\u00e1unganum a\u00f0 ska\u00f0a.<\/p>\n<p>\u00c9g hef sj\u00e1lfur or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 sl\u00edka reynslu \u00ed m\u00ednum vinah\u00f3pi og \u00e9g hef fundi\u00f0 miki\u00f0 til me\u00f0 \u00feeim vinum m\u00ednum, sem \u00feurft hafa a\u00f0 m\u00e6ta sl\u00edkum vi\u00f0br\u00f6gum. Lokin \u00e1 s\u00f6gu Brynd\u00edsar um langt l\u00edf og margar \u00e6vistundir er einmitt saga af sl\u00edkri lifan.&nbsp; H\u00f6rmuleg, s\u00e1rgr\u00e6tileg og skelfileg.&nbsp; Merki um n\u00fdja t\u00edma, sem engu og engum eirir.&nbsp; \u00dear sem \u00f3ttinn r\u00e6\u00f0ur f\u00f6r, sviptir sundur vin\u00e1ttu og v\u00e6ntum\u00feykju og \u00fear sem reglur r\u00e9ttarr\u00edkisins um sakleysi nema anna\u00f0 s\u00e9 sanna\u00f0 eru sm\u00e1na\u00f0ar, a\u00f0 engu haf\u00f0ar en \u00e1m\u00e6lin endurtekin af \u00feeim, sem ekki \u00f6\u00f0ru \u00feora.&nbsp; N\u00e1kv\u00e6mlega eins og gert var af vinum, n\u00e1gr\u00f6nnum, samstarfsm\u00f6num og samfer\u00f0am\u00f6nnum \u00ed a\u00f0draganda Kristalsn\u00e6turinnar og \u00feeirra atbur\u00f0a, sem henni fylgdu.<\/p>\n<p>Sighvatur Bj\u00f6rgvinsson.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eitt l\u00edf \u2013 m\u00f6rg \u00e6viskei\u00f0. Sagan hennar Brynd\u00edsar Schram. N\u00fdlega kom \u00ed b\u00f3kaverslanir b\u00f3kin \u201eBrosa\u00f0 \u00ed gegn um t\u00e1rin\u201c.&nbsp; \u00dear rekur Brynd\u00eds Schram l\u00edfss\u00f6gu s\u00edna.&nbsp; S\u00fa l\u00edfssaga er l\u00f6ng og kemur v\u00ed\u00f0a vi\u00f0.&nbsp; \u00deetta er saga eins l\u00edfs \u2013 en saga margra \u00e6viskei\u00f0a, sem hvert um sig eru hinum \u00f3l\u00edkt.&nbsp; Um margt heillandi lesning, fr\u00f3\u00f0leg &hellip; <a href=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2020\/09\/24\/sighvatur-bjorgvinsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur\/\" class=\"more-link\">Continue reading<span class=\"screen-reader-text\"> &#8220;Sighvatur Bj\u00f6rgvinsson: Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, ritd\u00f3mur&#8221;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-771","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/771","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=771"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/771\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":772,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/771\/revisions\/772"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=771"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=771"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=771"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}