{"id":775,"date":"2020-09-24T09:56:44","date_gmt":"2020-09-24T09:56:44","guid":{"rendered":"https:\/\/jbh.is\/bs\/?p=775"},"modified":"2022-02-24T09:58:12","modified_gmt":"2022-02-24T09:58:12","slug":"thrainn-hallgrimsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2020\/09\/24\/thrainn-hallgrimsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur\/","title":{"rendered":"\u00der\u00e1inn Hallgr\u00edmsson: Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, ritd\u00f3mur"},"content":{"rendered":"\n<p><em>Brynd\u00eds Schram, ums\u00f6gn um b\u00f3kina hennar 070920lokaskj<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><strong><em>\u00d3\u00f0ur til l\u00edfsins<\/em><\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><em>Br\u00e9f til Brynd\u00edsar Schram um <strong>Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin<\/strong><\/em><\/p>\n\n\n\n<p><strong><em>&nbsp;-eftir \u00der\u00e1in Hallgr\u00edmsson<\/em><\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 hafa \u00feann h\u00e1ttinn \u00e1 a\u00f0 senda \u00fe\u00e9r l\u00edti\u00f0 letters br\u00e9f \u00ed tilefni b\u00f3kar \u00feinnar sem n\u00fa er a\u00f0 koma \u00fat. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 vi\u00f0 h\u00e6fi. Sendibr\u00e9f hafa gegnt s\u00e9rst\u00f6ku hlutverki allt \u00feitt l\u00edf. Fr\u00e1s\u00f6gn \u00fe\u00edn byggir oftar en ekki \u00e1 efni br\u00e9fanna. &nbsp;\u00dea\u00f0 a\u00f0 eiga \u00feessi g\u00f6mlu samskipti \u201eskjalfest\u201c \u00ed gamaldags sendibr\u00e9fum er eimitt \u00f6ryggi\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru \u00fe\u00ednar tilfinningar og \u00feinn veruleiki sem er dreginn fram og endurspeglar s\u00ed\u00f0an atbur\u00f0ar\u00e1s og samskipti \u00fe\u00edn vi\u00f0 \u00fe\u00edna n\u00e1nustu.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00deetta lei\u00f0ir mig a\u00f0 \u00f6\u00f0rum sannindum. &nbsp;\u00c9g hef lengi veri\u00f0 \u00feeirrar sko\u00f0unar a\u00f0 \u00feeir sem \u00e6tla segja s\u00f6gu s\u00edna, eigi fyrir alla muni a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sj\u00e1lf\/ir. Ekki f\u00e1 \u00f6\u00f0rum efni\u00f0 e\u00f0a handriti\u00f0 \u00ed hendur. Gera \u00feetta sj\u00e1lf.<strong>Brosa\u00f0<\/strong><\/em><strong><em> gegnum t\u00e1rin<\/em><\/strong><em>er g\u00f3\u00f0 b\u00f3k. \u00c9g hef \u00fdmislegt lesi\u00f0 fr\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni en fullyr\u00f0i n\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00e9rhefur aldrei tekist betur upp.<\/em><\/p>\n\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n\n<p><em>En fyrst af \u00f6llu langar mig a\u00f0 hr\u00f3sa \u00fe\u00e9r fyrir kjark \u00feinn og einl\u00e6gni sem sk\u00edn \u00ed gegnum textann \u00e1 hverri einustu s\u00ed\u00f0u b\u00f3karinnar. \u00c9g veit af langri reynslu a\u00f0 \u00fe\u00e9r ver\u00f0ur ekki \u00feakka\u00f0 fyrir hreinlyndi e\u00f0a \u00feor. \u00c1hrifar\u00edk er l\u00fdsing \u00fe\u00edn \u00e1 m\u00f3\u00f0ur \u00feinni og f\u00f6\u00f0ur, \u00e1str\u00edki \u00feeirra, hvernig mamma var alltaf heima og t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r \u00far sk\u00f3lanum, a\u00f0sto\u00f0a\u00f0i\u00feig \u00e1 d\u00fdrm\u00e6tu m\u00f3tunarskei\u00f0i. Heimavinnandi elskandi m\u00f3\u00f0ir margra barna sem s\u00e1 um allt sem sn\u00e9ri a\u00f0 heimilinu, \u00e1 l\u00edklega ekki upp \u00e1 pallbor\u00f0i\u00f0 hj\u00e1 feministum n\u00fat\u00edmans.En h\u00fan talar sterkt til okkar sem \u00feekkjum n\u00e1kv\u00e6mlega \u00feennan t\u00edma \u00feegar ein laun voru l\u00e1tin duga til a\u00f0 sj\u00e1 fyrir rekstri heimilis og \u201emamma var alltaf heima\u201c til a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti sv\u00f6ngum b\u00f6rnum sem \u00feurftu k\u00e6rleika og a\u00f0sto\u00f0 a\u00f0 loknum vinnudegi \u00ed sk\u00f3lanum.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00de\u00e9r ver\u00f0ur heldur ekki \u00feakka\u00f0 fyrir hreinskilna fr\u00e1s\u00f6gn af framkomu fram\u00e1manna \u00ed \u00feinn gar\u00f0. \u00dea\u00f0 kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed hj\u00e1 okkur \u00f6llum, sem \u00feekkjum \u00e1hrif r\u00f3gbur\u00f0ar \u00e1 s\u00e1larl\u00edf okkar, a\u00f0 einn daginn f\u00e1um vi\u00f0 bara n\u00f3g. Segjum hinga\u00f0 og ekki lengra. \u00d3hr\u00f3\u00f0ur um okkur sj\u00e1lf og okkar n\u00e1nustu \u00e9tur okkur sm\u00e1m saman a\u00f0 innan, hversu h\u00f6r\u00f0 sem vi\u00f0 teljum okkur vera. En \u00fe\u00fa t\u00f3kst af skari\u00f0 \u00ed \u00feessari b\u00f3k og sag\u00f0ir fr\u00e1. \u00dea\u00f0 er \u00f3venjulegt ef ekki einstakt a\u00f0 \u00fe\u00fa sl\u00e1ir \u00feannig fr\u00e1 \u00fe\u00e9r.&nbsp;<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00dea\u00f0 er vandasamt a\u00f0 draga fram fj\u00f6lbreyttan l\u00edfsferil sem sta\u00f0i\u00f0 hefur svo lengi sem \u00feinn, Brynd\u00eds. \u00dea\u00f0 er meistaralegt a\u00f0 takast a\u00f0 velja \u00fe\u00e1 atbur\u00f0i og atri\u00f0i sem skipta m\u00e1li og mynda a\u00f0 lokum s\u00f6guna \u00fe\u00edna. Ballettinn og dansinn \u00ed upphafi, leiklistarferilinn, kennarastarfi\u00f0 og sk\u00f3lameistarahlutverki\u00f0, listferill \u00ed sj\u00f3nvarpi, svo bara nokku\u00f0 s\u00e9 nefnt af hlutverkum \u00fe\u00ednum \u00ed l\u00edfinu. En \u00fe\u00e1 er tvennt<\/em><em> \u00f3tali\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur eins og rau\u00f0ur \u00fer\u00e1\u00f0ur \u00ed gegnum b\u00f3kina. Annars vegar \u00e1starsagan sem liggur \u00ed bakgrunni \u00feessarar b\u00f3kar \u00feinnar og harmur fj\u00f6lskyldunnar sem opinberast \u00ed lokakaflanum.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00deetta er ekki b\u00f3k um afrek \u00fe\u00edn, dugna\u00f0 \u00feinnog hin vandas\u00f6mu verkefni og st\u00f6rf sem \u00fe\u00e9r hefur veri\u00f0 tr\u00faa\u00f0 fyrir \u00e1 fj\u00f6lbreyttri starfs\u00e6vi. Vi\u00f0fangsefni\u00f0 er a\u00f0 l\u00fdsa l\u00edfinu og harminum sem \u00fer\u00faga\u00feig og fj\u00f6lskylduna \u00feegar fer\u00f0alokin n\u00e1lgast.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Eitt afrek finnst m\u00e9r \u00fe\u00fa vinna \u00ed \u00feessari b\u00f3k. \u00de\u00fa hefur aldrei skrifa\u00f0 jafn g\u00f3\u00f0an texta. Hann er lipur og \u00fe\u00e6gilegur, framvindan l\u00ed\u00f0ur h\u00e6gt og r\u00f3lega fram og ma\u00f0ur b\u00ed\u00f0ur eftir n\u00e6stu s\u00ed\u00f0um. H\u00fan lei\u00f0ir okkur sm\u00e1m saman a\u00f0 \u00fev\u00ed meginatri\u00f0i sem eflaust er tilefni skrifanna<\/em><em>.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>H\u00e9r ert \u00fe\u00fa leikstj\u00f3rinn og a\u00f0alleikandinn, en aukaleikaranir eru um allt svi\u00f0i\u00f0 og koma inn \u00feegar t\u00edmi verksins kallar \u00e1 \u00fe\u00e1. Minningarbrotin ra\u00f0ast saman \u00far langri \u00e6vi og starfs\u00e6vi. \u00dar ver\u00f0ur mynd af l\u00edfi \u00fe\u00ednu og tilveru sem er \u00ed senn heillandi en um lei\u00f0 tregablandin.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>En \u00fe\u00f3 a\u00f0 <strong>Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin<\/strong> s\u00e9 \u00f6\u00f0rum \u00fer\u00e6\u00f0i sprottin af dj\u00fapum harmi, listilega vel s\u00f6g\u00f0 fl\u00e9tta af l\u00edfi \u00fe\u00ednu, \u00fe\u00e1 er h\u00fan a\u00f0 m\u00ednu mati fyrst og fremst \u00f3\u00f0ur til l\u00edfsins, \u00f3\u00f0ur til listanna, dansins, b\u00f3kmenntanna, \u00e6sku\u00e1starinnar sem fylgir \u00fe\u00e9r allt l\u00edfi\u00f0 og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst er h\u00fan uppgj\u00f6r vi\u00f0 hin illu \u00f6fl sem hafa \u00e1s\u00f3tt \u00feig og fj\u00f6lskyldu \u00fe\u00edna.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Von m\u00edn er s\u00fa a\u00f0 me\u00f0 \u00feessu verki hafir \u00fe\u00e9r tekist a\u00f0 reka vofurnar \u00fat \u00ed ystu myrkur \u00fear sem \u00fe\u00e6r eru best geymdar. <\/em><em><\/em><\/p>\n\n\n\n<p>_________________________________________________________<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00f6fundur starfa\u00f0i um \u00e1rabil me\u00f0 Brynd\u00edsi Schram. Fyrst sem samkennari&nbsp; \u00ed tungum\u00e1lum vi\u00f0 Menntask\u00f3lann \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00fear sem hann var kennari fr\u00e1 1973-1980. S\u00ed\u00f0ar sem bla\u00f0ama\u00f0ur \u00e1 Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu \u00fear sem Brynd\u00eds var leiklistargagnr\u00fdnandi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brynd\u00eds Schram, ums\u00f6gn um b\u00f3kina hennar 070920lokaskj \u00d3\u00f0ur til l\u00edfsins Br\u00e9f til Brynd\u00edsar Schram um Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin &nbsp;-eftir \u00der\u00e1in Hallgr\u00edmsson \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 hafa \u00feann h\u00e1ttinn \u00e1 a\u00f0 senda \u00fe\u00e9r l\u00edti\u00f0 letters br\u00e9f \u00ed tilefni b\u00f3kar \u00feinnar sem n\u00fa er a\u00f0 koma \u00fat. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 vi\u00f0 h\u00e6fi. Sendibr\u00e9f hafa gegnt s\u00e9rst\u00f6ku hlutverki allt &hellip; <a href=\"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/2020\/09\/24\/thrainn-hallgrimsson-brosad-gegnum-tarin-ritdomur\/\" class=\"more-link\">Continue reading<span class=\"screen-reader-text\"> &#8220;\u00der\u00e1inn Hallgr\u00edmsson: Brosa\u00f0 gegnum t\u00e1rin, ritd\u00f3mur&#8221;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,5],"tags":[],"class_list":["post-775","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/775","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=775"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/775\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":776,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/775\/revisions\/776"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=775"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=775"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/bs\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=775"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}