{"id":1076,"date":"2009-02-03T00:00:00","date_gmt":"2009-02-03T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/?p=1076"},"modified":"2020-09-22T14:09:19","modified_gmt":"2020-09-22T14:09:19","slug":"samningar-vid-evropusambandid-eru-lykillinn-ad-lausn-vandans","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/?p=1076","title":{"rendered":"SAMNINGAR VI\u00d0 EVR\u00d3PUSAMBANDI\u00d0 ERU LYKILLINN A\u00d0 LAUSN VANDANS"},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 \u00feolir enga bi\u00f0 a\u00f0 gera n\u00fdju bankana starfh\u00e6fa. Vi\u00f0b\u00e1rur eins og \u00fe\u00e6r a\u00f0 eignamat \u00feeirra taki enn langan t\u00edma ver\u00f0a einfaldlega ekki lengur teknar gildar. \u00dea\u00f0 er hlutverk n\u00fds vi\u00f0skiptar\u00e1\u00f0herra a\u00f0 binda endi \u00e1 bi\u00f0st\u00f6\u00f0una. Hann n\u00fdtur trausts til \u00feess a\u00f0 finna \u00feau \u00farr\u00e6\u00f0i sem duga. H\u00e9r m\u00e1 engan t\u00edma missa. Skuldasta\u00f0an og vextirnir \u00fe\u00fd\u00f0a a\u00f0 n\u00fd r\u00edkisstj\u00f3rn ver\u00f0ur \u00feegar \u00ed sta\u00f0 a\u00f0 \u00f3ska eftir endursko\u00f0un \u00e1 forsendum og framkv\u00e6md a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlunar Al\u00fej\u00f3\u00f0agjaldeyrissj\u00f3\u00f0sins (IMF-AGS).<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Fyrst um vextina. R\u00f6kin fyrir 18% st\u00fdriv\u00f6xtum eiga a\u00f0 heita \u00feau a\u00f0 ella bresti \u00e1 fj\u00e1rfl\u00f3tti sem lei\u00f0i til n\u00fds gengisfalls kr\u00f3nunnar. \u00c1 \u00feetta reynir hins vegar ekki um sinn af \u00feeirri einf\u00f6ldu \u00e1st\u00e6\u00f0u a\u00f0 t\u00edmabundin gjaldeyrish\u00f6ft koma \u00ed veg fyrir fj\u00e1rfl\u00f3tta. Vi\u00f0 \u00feurfum ekki b\u00e6\u00f0i axlab\u00f6nd og belti. Hef\u00f0bundin r\u00f6k um a\u00f0 h\u00e1ir st\u00fdrivextir hamli ver\u00f0b\u00f3lgu eiga heldur ekki vi\u00f0. Yfirstandandi ver\u00f0b\u00f3lguk\u00fafur er aflei\u00f0ing gengisfalls kr\u00f3nunnar. \u00deetta er \u00fev\u00ed t\u00edmabundin innflutningsver\u00f0b\u00f3lga sem senn fjarar \u00fat.<\/p>\n<p>Framundan er ver\u00f0hj\u00f6\u00f0nun \u2013 ekki ver\u00f0b\u00f3lga. Se\u00f0labankar um allan heim l\u00e6kka n\u00fa st\u00fdrivexti til a\u00f0 m\u00e6ta \u00feeim vanda. Fyrrverandi r\u00edkisstj\u00f3rn br\u00e1st bogalistin \u00ed samningum vi\u00f0 AGS r\u00e9tt eins og \u00ed samningum um Icesave. N\u00fdr fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra og n\u00fdr se\u00f0labankastj\u00f3ri ver\u00f0a \u00ed sameiningu a\u00f0 b\u00e6ta fyrir \u00feessi mist\u00f6k. N\u00fd r\u00edkisstj\u00f3rn ver\u00f0ur a\u00f0 virkja bankana og l\u00e6kka vextina \u00feegar \u00ed sta\u00f0. \u00dea\u00f0 er fyrsti pr\u00f3steinninn \u00e1 getu hennar til a\u00f0 stj\u00f3rna landinu.<\/p>\n<h2>A\u00d0GER\u00d0A\u00c1\u00c6TLUN AGS \u00deARFNAST ENDURSKO\u00d0UNAR<\/h2>\n<p>Svo er \u00fea\u00f0 skuldas\u00fapan. \u00dea\u00f0 er til marks um \u00f3\u00feolandi seinagang stj\u00f3rns\u00fdslunnar \u00ed yfirstandandi ney\u00f0ar\u00e1standi a\u00f0 \u00e1rei\u00f0anlegar t\u00f6lur um erlendar skuldir r\u00edkisins skuli enn vera \u00e1 reiki. Samkv\u00e6mt n\u00fdjustu t\u00f6lum eru erlendar skuldir r\u00edkisins u.\u00fe.b. 2400 milljar\u00f0ar kr\u00f3na. Samt er vita\u00f0 a\u00f0 \u00fear eru ekki \u00f6ll kurl komin til grafar. Sveitarf\u00e9l\u00f6gin eru m\u00f6rg hver sokkin \u00ed skuldir. S\u00f6mu s\u00f6gu er a\u00f0 segja um opinberar stofnanir \u00ed orkugeiranum. \u00de\u00e6r skuldir eru v\u00e6ntanlega me\u00f0 r\u00edkis\u00e1byrg\u00f0. \u00c1rei\u00f0anlegar heildart\u00f6lur um erlendar skuldir r\u00edkisins, \u00fear me\u00f0 taldar skuldir me\u00f0 r\u00edkis\u00e1byrg\u00f0, hafa \u00fev\u00ed enn ekki veri\u00f0 birtar svo m\u00e9r s\u00e9 kunnugt um.<\/p>\n<p>Alla vega er lj\u00f3st a\u00f0 s\u00fa forsenda a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlunar AGS, a\u00f0 erlendar skuldir nemi 110% af vergri landsframlei\u00f0slu, stenst ekki. Dr. Willem Buiter, h\u00f6fundur sk\u00fdrslunnar fr\u00e6gu um yfirvofandi hrun bankakerfisins, sem stungi\u00f0 var undir st\u00f3l h\u00e1lfu \u00e1ri fyrir hrun, telur erlendar skuldir nema 160% af vlf. N\u00e1nari sko\u00f0un bendir til a\u00f0 jafnvel \u00fea\u00f0 s\u00e9 van\u00e1\u00e6tla\u00f0. Hafa ber \u00ed huga a\u00f0 landsframlei\u00f0slan mun dragast saman verulega \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum, einnig fyrir \u00e1hrif heimskreppunnar. Ekki er \u00f3sennilegt a\u00f0 vaxtarbyr\u00f0in ein af erlendum l\u00e1num geti numi\u00f0 allt a\u00f0 \u00feri\u00f0jungi \u00fatgjalda r\u00edkisins \u00e1 fj\u00e1rl\u00f6gum.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00feetta \u00e1 m\u00e6ltu m\u00e1li? \u00deetta \u00fe\u00fd\u00f0ir m.a. eftirfarandi: \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 gera vanda\u00f0a \u00e1\u00e6tlun til a.m.k. \u00feriggja e\u00f0a fj\u00f6gurra \u00e1ra um tekjur og gj\u00f6ld r\u00edkissj\u00f3\u00f0s, ekki a\u00f0eins \u00ed lj\u00f3si efnahagshrunsins heima fyrir heldur einnig \u00ed lj\u00f3si d\u00fdpkandi heimskreppu. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 endursko\u00f0a a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlun IMF \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 grei\u00f0slubyr\u00f0i skulda hefur veri\u00f0 vanmetin og horfur \u00e1 \u00fatflutningsm\u00f6rku\u00f0um fara versnandi. \u00deetta \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 tekjur r\u00edkissj\u00f3\u00f0s munu r\u00fdrna en \u00fatgjalda\u00fe\u00f6rfin vaxa, umfram gefnar forsendur.<\/p>\n<p>\u00deegar liti\u00f0 er yfir skuldast\u00f6\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0arb\u00fasins \u00ed heild: fyrirt\u00e6kjanna, ekki s\u00edst sj\u00e1var\u00fatvegsins vegna kv\u00f3tabrasksins, sveitarf\u00e9laga, r\u00edkisstofnana og heimila, m\u00e1 lj\u00f3st vera a\u00f0 grei\u00f0slubyr\u00f0in, mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00feau grei\u00f0slukj\u00f6r sem \u00cdslandi bj\u00f3\u00f0ast, er umfram grei\u00f0slugetu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. H\u00f6fum \u00ed huga a\u00f0 \u00fea\u00f0 er s\u00e9rstakt\u201d\u00cdslands\u00e1lag\u201d \u00e1 l\u00e1n til \u00cdslands. L\u00e1nstrausti\u00f0 er l\u00f6ngu \u00feroti\u00f0. \u00de\u00f3tt vextir fari hr\u00ed\u00f0l\u00e6kkandi \u00ed heiminum er krafist s\u00e9rstaks \u00e1h\u00e6ttu\u00e1lags vegna vi\u00f0skipta vi\u00f0 \u00cdsland af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00cdsland er flokka\u00f0 sem gjald\u00ferota \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 r\u00e1\u00f0um ekki vi\u00f0 \u00feetta ein. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 semja um grei\u00f0slukj\u00f6r og l\u00e1nst\u00edma. T\u00edmabundin frestun afborgana og l\u00e6kkun vaxta ein saman getur slaga\u00f0 h\u00e1tt upp \u00ed gjaldeyrisver\u00f0m\u00e6ti sj\u00e1varv\u00f6ru\u00fatflutnings \u00e1 \u00e1ri. \u00dea\u00f0 munar um minna. \u00dearna getur skili\u00f0 milli feigs og \u00f3feigs. A\u00f0 fenginni reynslu treystum vi\u00f0 ekki \u00edslenskum emb\u00e6ttism\u00f6nnum til \u00feess a\u00f0 lei\u00f0a \u00feessa samninga. Vi\u00f0 eigum a\u00f0 r\u00e1\u00f0a erlenda s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga me\u00f0 \u00e1ratuga reynslu af \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 aflei\u00f0ingar fj\u00e1rm\u00e1lakreppu af svipu\u00f0um toga \u00ed okkar \u00fej\u00f3nustu. Dr. Willem Buiter n\u00fdtur vi\u00f0urkenningar sem einn af fremstu s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingum heims \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i. \u00c9g veit a\u00f0 hann er til \u00fej\u00f3nustu rei\u00f0ub\u00fainn. Vi\u00f0 eigum a\u00f0 leita til hans til a\u00f0 lei\u00f0a samninga vi\u00f0 erlenda l\u00e1nardrottna og til a\u00f0 leggja \u00e1 r\u00e1\u00f0in um n\u00fdtt regluverk og eftirlit me\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lastofnunum.<\/p>\n<h2>SAMNINGAR VI\u00d0 ESB: LYKILL A\u00d0 LAUSN<\/h2>\n<p>N\u00fd r\u00edkisstj\u00f3rn hefur veri\u00f0 gagnr\u00fdnd fyrir a\u00f0 h\u00fan stingur h\u00f6f\u00f0inu \u00ed sandinn var\u00f0andi Evr\u00f3pum\u00e1l og bo\u00f0ar engar lausnir \u00e1 gjaldmi\u00f0ilsvandanum. \u00deessi gagnr\u00fdni er r\u00e9ttm\u00e6t. A\u00f0 \u00f3breyttu ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 b\u00faa \u00e1fram vi\u00f0 gjaldeyrish\u00f6mlur. \u00dea\u00f0 getur hins vegar ekki gengi\u00f0 til framb\u00fa\u00f0ar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hamlar uppbyggingarstarfinu, b\u00e6\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar fj\u00e1rfestingar og n\u00fdsk\u00f6pun \u00ed framt\u00ed\u00f0inni. R\u00edkisstj\u00f3rn, sem getur hvorki leyst skuldavandann n\u00e9 gjaldmi\u00f0ilsvandann til framb\u00fa\u00f0ar, ver\u00f0ur \u00fev\u00ed ekki \u00e1 vetur setjandi.<\/p>\n<p>H\u00e9r er komi\u00f0 a\u00f0 kjarna m\u00e1lsins. Forystumenn stj\u00f3rnarflokkanna, \u00fe.m.t. hinn ungi forma\u00f0ur Frams\u00f3knarflokksins, ver\u00f0a a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 \u00feessar sta\u00f0reyndir og koma fram me\u00f0 tr\u00faver\u00f0ugar og rauns\u00e6jar lausnir. Annars mun \u00feeim mistakast bj\u00f6rgunarstarfi\u00f0 r\u00e9tt eins og fyrrverandi stj\u00f3rn.<\/p>\n<p><i>\u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed mi\u00f0ur \u00e1 misskilningi byggt a\u00f0 spurningin um samninga vi\u00f0 Evr\u00f3pusambandi\u00f0 s\u00e9 einhver framt\u00ed\u00f0arm\u00fas\u00edk, sem megi huga a\u00f0 seinna, \u00feegar br\u00e1\u00f0avandinn hefur veri\u00f0 leystur. \u00deetta er \u00f3skhyggja sem byggir \u00e1 sj\u00e1lfsblekkingu. Samningar vi\u00f0 Evr\u00f3pusambandi\u00f0 um a\u00f0ild a\u00f0 \u00fev\u00ed og myntsamstarfinu er lykillinn a\u00f0 lausnum \u00e1 br\u00e1\u00f0avanda \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar n\u00fa \u00feegar. \u00c1st\u00e6\u00f0an er einf\u00f6ld: Vi\u00f0 getum hvorki leyst skuldavandann n\u00e9 gjaldmi\u00f0ilsvandann ein og s\u00e9r; vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 semja um hvort tveggja. Samningsvettvangurinn er hj\u00e1 Evr\u00f3pusambandinu &#8211; allsherjarsamt\u00f6kum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkja \u00ed Evr\u00f3pu.<\/i><\/p>\n<p>L\u00edtum fyrst \u00e1 gjaldmi\u00f0ilsvandann. Fyrsti kostur er a\u00f0 notast \u00e1fram vi\u00f0 kr\u00f3nuna \u00ed skj\u00f3li gjaldeyrishafta. \u00dea\u00f0 kemur \u00ed veg fyrir yfirvofandi fj\u00e1rfl\u00f3tta en hindrar um lei\u00f0 erlendar fj\u00e1rfestingar til uppbyggingar \u00ed atvinnul\u00edfinu. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed ney\u00f0arbrau\u00f0 til skamms t\u00edma. Annar kostur er a\u00f0 afl\u00e9tta gjaldeyrish\u00f6mlum og setja kr\u00f3nuna aftur \u00e1 flot. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri \u00f3\u00f0s manns \u00e6\u00f0i vi\u00f0 \u00f3breyttar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. H\u00fan mundi s\u00f6kkva eins og steinn \u00e1 augabrag\u00f0i. \u00dea\u00f0 mundi lei\u00f0a n\u00fdja ver\u00f0b\u00f3lguholskeflu yfir \u00fej\u00f3\u00f0ina og \u00fear me\u00f0 loka \u00f6llum \u00fatg\u00f6ngulei\u00f0um \u00fat \u00far skuldafangelsinu. Ni\u00f0ursta\u00f0a gagnlegrar umr\u00e6\u00f0u um einhli\u00f0a uppt\u00f6ku evru er s\u00fa a\u00f0 \u00fea\u00f0 er t\u00e6knilega gerlegt en p\u00f3lit\u00edskt fr\u00e1gangss\u00f6k. \u00de\u00e1 er a\u00f0eins ein lei\u00f0 eftir: A\u00f0 s\u00e6kja um a\u00f0ild a\u00f0 Evr\u00f3pusambandinu og myntsamstarfinu, me\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir augum a\u00f0 taka upp evru.<\/p>\n<p>P\u00f3lit\u00edsk \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 \u00f3ska eftir samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0um mun ein og s\u00e9r hafa j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00ed st\u00f6\u00f0unni. \u00cdsland hef\u00f0i \u00fear me\u00f0 marka\u00f0 s\u00e9r framt\u00ed\u00f0arstefnu me\u00f0 afdr\u00e1ttarlausum h\u00e6tti. \u00dea\u00f0 ey\u00f0ir \u00f3vissu og eflir traust. \u00cd lj\u00f3si ney\u00f0ar\u00e1stands mundi \u00cdsland \u00f3ska eftir fl\u00fdtime\u00f0fer\u00f0. Eftir a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir a\u00f0ilar hafa fengi\u00f0 samningsumbo\u00f0 er unnt a\u00f0 lj\u00faka samningum vi\u00f0 EES-r\u00edki\u00f0 \u00cdsland \u00e1 h\u00e1lfu \u00e1ri. F\u00e1einum m\u00e1nu\u00f0um s\u00ed\u00f0ar g\u00e6ti \u00cdsland veri\u00f0 komi\u00f0 inn \u00ed anddyri peningam\u00e1lasamstarfsins (exchange rate mechanism \u2013II). \u00dear me\u00f0 v\u00e6ri kr\u00f3nan or\u00f0in bundin evrunni \u00e1 ums\u00f6mdu gengi. \u00dea\u00f0 er ekki fullna\u00f0arlausn. \u00dea\u00f0 er a\u00f0eins br\u00e1\u00f0abirg\u00f0alausn. Og \u00fea\u00f0 leysir ekki vandann \u00ed millibils\u00e1standinu, fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 afl\u00e9ttum gjaldeyrish\u00f6ftum og \u00fear til vi\u00f0 h\u00f6fum teki\u00f0 upp evru. \u00deess vegna \u00feurfum vi\u00f0 \u00e1 a\u00f0 halda s\u00e9rlausn \u00ed millibils\u00e1standinu.<\/p>\n<h2>MILLILAUSN: MYNTSAMSTARF VI\u00d0 NOR\u00d0URL\u00d6ND<\/h2>\n<p>H\u00e9r kemur til kasta hins n\u00fdja fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, Steingr\u00edms J. Sigf\u00fassonar, formanns Vinstri gr\u00e6nna. Hann hefur \u00e1\u00f0ur bo\u00f0a\u00f0 myntsamstarf vi\u00f0 Nor\u00f0menn. Forma\u00f0ur Mi\u00f0flokksins norska hefur \u00feegar teki\u00f0 hugmyndinni vel. Steingr\u00edmur hefur tilkynnt a\u00f0 hann muni r\u00e6\u00f0a hugsanlegt myntsamstarf vi\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra Noregs, formann SV, systurflokks Vinstri gr\u00e6nna, \u00feegar tilefni gefst til \u00e1 10 \u00e1ra afm\u00e6li VG n\u00fana um helgina. Dr. Willem Buiter, sem \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur v\u00edsa\u00f0 til, m\u00e6lti me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00ed r\u00e6\u00f0u sinni \u00ed h\u00e1t\u00ed\u00f0arsal h\u00e1sk\u00f3lans a\u00f0 \u00cdslendingar leitu\u00f0u til vinveittra Nor\u00f0urlanda\u00fej\u00f3\u00f0a um myntsamstarf \u00e1 umr\u00e6ddum millibilst\u00edma, uns upptaka evru yr\u00f0i raunh\u00e6fur kostur.<\/p>\n<p>Dr. Buiter sag\u00f0i b\u00e6\u00f0i norsku og d\u00f6nsku kr\u00f3nuna koma til greina. A\u00f0 v\u00edsu mundi danska kr\u00f3nan henta betur \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri \u00ed reynd evra undir \u00f6\u00f0ru nafni. Styrkur norsku ol\u00edukr\u00f3nunnar og tilt\u00f6lulega h\u00e1ir vextir teldust \u00f3hagr\u00e6\u00f0i \u00ed \u00feessum samanbur\u00f0i. Hvort tveggja k\u00e6mi \u00fe\u00f3 til greina. Hvor lei\u00f0in sem v\u00e6ri farin g\u00e6ti tryggt \u00edslenskum \u00fej\u00f3\u00f0arb\u00faskap meiri st\u00f6\u00f0ugleika og l\u00e6gri vexti en vi\u00f0 getum gert \u00e1 eigin sp\u00fdtur. \u00deetta er \u00fea\u00f0 sem \u00edslenskt atvinnul\u00edf \u00fearfnast til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r aftur \u00e1 strik. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leysa \u00feetta m\u00e1l g\u00e6ti hinn n\u00fdi fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, Steingr\u00edmur J. Sigf\u00fasson, unni\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 sinni \u00f3metanlegt gagn. \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 vona a\u00f0 \u00deistilfir\u00f0ingurinn r\u00f6ski l\u00e1ti n\u00fa hendur standa fram \u00far ermum og leysi \u00feetta m\u00e1l.<\/p>\n<p>Hin megin\u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 megum ekki draga \u00fea\u00f0 \u00e1 langinn a\u00f0 ganga til samninga vi\u00f0 Evr\u00f3pusambandi\u00f0 er s\u00fa a\u00f0 grei\u00f0slubyr\u00f0i \u00feeirra skulda sem fyrrverandi r\u00edkisstj\u00f3rn hefur lagt okkur \u00e1 her\u00f0ar, er \u00feyngri en svo a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in f\u00e1i undir risi\u00f0 ein og \u00f3studd. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 semja um skuldirnar, um grei\u00f0slut\u00edma og grei\u00f0slukj\u00f6r. Samningsa\u00f0ilinn er Evr\u00f3pusambandi\u00f0 og einstakar a\u00f0ilda\u00fej\u00f3\u00f0ir \u00feess. \u00deegar vi\u00f0 hefjum samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0ur vi\u00f0 Evr\u00f3pusambandi\u00f0 ver\u00f0ur allt a\u00f0 vera uppi \u00e1 bor\u00f0inu: S\u00e1 \u00feri\u00f0jungur af l\u00f6ggj\u00f6f Evr\u00f3pusambandsins (acquis communautaire) sem er umfram EES-l\u00f6ggj\u00f6fina, sem \u00cdsland hefur \u00feegar teki\u00f0 yfir, t\u00edma\u00e1\u00e6tlun um myntsamstarfi\u00f0 og \u00f3skir \u00cdslendinga um s\u00e9rstaka fyrirgrei\u00f0slu vegna \u00feess ney\u00f0ar\u00e1stands sem skapast hefur vegna \u00f3h\u00f3flegrar skuldsetningar \u00fej\u00f3\u00f0arb\u00fasins.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 ver\u00f0ur allt \u00f6\u00f0ru v\u00edsi teki\u00f0 \u00e1 vandam\u00e1lum \u00cdslendinga sem ver\u00f0andi a\u00f0ildar\u00fej\u00f3\u00f0ar Evr\u00f3pusambandsins en sem utangar\u00f0s\u00fej\u00f3\u00f0ar. Vandam\u00e1l ver\u00f0andi a\u00f0ildar\u00fej\u00f3\u00f0a eru vandam\u00e1l Evr\u00f3pusambandsins sem sl\u00edks. Evr\u00f3pusambandi\u00f0 b\u00fdr yfir \u00fdmsum \u00farr\u00e6\u00f0um til \u00feess a\u00f0 leysa vanda a\u00f0ildarr\u00edkja af \u00feeim toga sem \u00cdslendingum er n\u00fa ofvi\u00f0a a\u00f0 leysa \u00e1 eigin sp\u00fdtur. Sm\u00e6\u00f0 \u00cdslands skiptir h\u00e9r m\u00e1li. Upph\u00e6\u00f0irnar sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a eru risavaxnar \u00e1 m\u00e6likvar\u00f0a 300.000 manna \u00fej\u00f3\u00f0ar en sm\u00e1munir einir \u00e1 m\u00e6likvar\u00f0a r\u00edkjabandalags sem telur 500 millj\u00f3nir manna. Vi\u00f0 skulum l\u00edka hafa \u00fea\u00f0 hugfast a\u00f0 margar Evr\u00f3pu\u00fej\u00f3\u00f0ir, \u00fear \u00e1 me\u00f0al bandalags\u00fej\u00f3\u00f0ir okkar \u00ed Nor\u00f0urlandasamstarfi. Sv\u00edar og Finnar, gengu \u00ed Evr\u00f3pusambandi\u00f0 til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0sto\u00f0 \u00feess vi\u00f0 a\u00f0 leysa \u00feungb\u00e6r vandam\u00e1l \u00ed kj\u00f6lfar fj\u00e1rm\u00e1lakreppu. A\u00f0 \u00fev\u00ed leyti eru \u00cdslendingar ekki einir \u00e1 b\u00e1ti.<\/p>\n<p>*\u2019*\u2019*\u2019*\u2019*<\/p>\n<p>Um lei\u00f0 og \u00e9g sendi vinum og s\u00e1luf\u00e9l\u00f6gum \u00ed r\u00f6\u00f0um Vinstri gr\u00e6nna heilla\u00f3skir \u00ed tilefni af 10 \u00e1ra afm\u00e6linu, bi\u00f0 \u00e9g \u00feau a\u00f0 lei\u00f0a hugann a\u00f0 atbur\u00f0um sem ur\u00f0u \u00ed a\u00f0draganda al\u00feingiskosninganna \u00e1ri\u00f0 1991. \u00de\u00e1 ur\u00f0u \u00feau \u00f3t\u00ed\u00f0indi a\u00f0 samstarfsflokkar okkar jafna\u00f0armanna \u00ed bestm\u00f6nnu\u00f0u r\u00edkisstj\u00f3rn l\u00fd\u00f0veldist\u00edmans, vinstri stj\u00f3rninni undir forystu Steingr\u00edms Hermannssonar (1988-1991), hlupust brott fr\u00e1 \u00e1byrg\u00f0 sinni \u00e1 undirb\u00faningi EES-samningsins. \u00dear me\u00f0 neyddu \u00fe\u00e1verandi forystumenn Frams\u00f3knarflokksins og Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins okkur jafna\u00f0armenn til \u00feess a\u00f0 leita eftir samstarfi vi\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn um r\u00edkisstj\u00f3rn til a\u00f0 tryggja EES-samningnum brautargengi. Til \u00feess eru mist\u00f6kin a\u00f0 l\u00e6ra af \u00feeim. \u00deessi mist\u00f6k hafa dregi\u00f0 langan sl\u00f3\u00f0a \u00e1 eftir s\u00e9r. Heitum \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0inni \u00fev\u00ed \u00e1 \u00e1ratugsafm\u00e6li Vinstri gr\u00e6nna a\u00f0 \u00feessi mist\u00f6k ver\u00f0i ekki endurtekin, hvorki \u00ed a\u00f0draganda n\u00e9 eftirm\u00e1la komandi kosninga.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvernig getum vi\u00f0 komi\u00f0 hj\u00f3lum atvinnul\u00edfsins aftur \u00e1 fullt me\u00f0 70% fyrirt\u00e6kja t\u00e6knilega gjald\u00ferota, \u00f3starfh\u00e6fa banka og vaxtastig l\u00e1na vel yfir 20%, sem sogar til s\u00edn \u00fea\u00f0 litla sem eftir er af lausaf\u00e9 fyrirt\u00e6kja? Hvernig getum vi\u00f0 afla\u00f0 gjaldeyris til a\u00f0 borga ni\u00f0ur skuldir okkar \u00feegar ver\u00f0 \u00e1 \u00fatflutningsafur\u00f0um (fiski og \u00e1li) fer hr\u00ed\u00f0l\u00e6kkandi vegna \u00e1hrifa heimskreppunnar og vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 notast vi\u00f0 gjaldmi\u00f0il sem er \u00ed gj\u00f6rg\u00e6slu og samkv\u00e6mt skilgreiningu \u00f3noth\u00e6fur \u00ed millir\u00edkjavi\u00f0skiptum?<br \/>\nSpurningarnar l\u00fdsa kjarna \u00feess vanda sem n\u00fd r\u00edkisstj\u00f3rn stendur frammi fyrir. <\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,9],"tags":[],"class_list":["post-1076","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allar_greinar","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1076","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1076"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1076\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2904,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1076\/revisions\/2904"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1076"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1076"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1076"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}