{"id":1113,"date":"2008-12-01T00:00:00","date_gmt":"2008-12-01T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/?p=1113"},"modified":"2020-09-22T14:06:59","modified_gmt":"2020-09-22T14:06:59","slug":"vidtal-kristjans-thorvaldssonar-vid-jon-baldvin-fyrir-birtu-fylgirit-frettabladsins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/?p=1113","title":{"rendered":"VI\u00d0TAL KRISTJ\u00c1NS \u00deORVALDSSONAR VI\u00d0 J\u00d3N BALDVIN FYRIR BIRTU, FYLGIRIT FR\u00c9TTABLA\u00d0SINS"},"content":{"rendered":"<p>EFTIRFARANDI VI\u00d0TAL T\u00d3K KRISTJ\u00c1N \u00deORVALDSSON VI\u00d0 J\u00d3N BALDVIN FYRIR BIRTU, FYLGIRIT FR\u00c9TTABLA\u00d0SINS \u00cd DESEMBER 2008.<\/p>\n<p>Eitt af eil\u00edf\u00f0arumr\u00e6\u00f0uefnum \u00edslenskra stj\u00f3rnm\u00e1la er tilvist J\u00f3ns Baldvins Hannibalssonar, sko\u00f0anir hans og hugsanleg endurkoma hans \u00ed atvinnustj\u00f3rnm\u00e1lin. \u00dea\u00f0 er einl\u00e6g \u00f3sk margra a\u00f0 J\u00f3n Baldvin sn\u00fai aftur en a\u00f0 sama skapi ekki laust vi\u00f0 a\u00f0 sumir \u00f3ttist \u00fea\u00f0. Jafnt andst\u00e6\u00f0ingar sem samherjar. Sj\u00e1lfur hefur hann aldrei sagt alveg skili\u00f0 vi\u00f0 p\u00f3lit\u00edk, \u00fe\u00f3tt hann hafi um \u00e1rabil starfa\u00f0 \u00ed dipl\u00f3mat\u00edunni sem sendiherra og eigi n\u00fa a\u00f0 heita sestur \u00ed helgan stein. Upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0 hefur hann teki\u00f0 fullan \u00fe\u00e1tt\u00ed umr\u00e6\u00f0unni og sent fr\u00e1 s\u00e9r \u00edtarlegar greinar um hi\u00f0 grafalvarlega \u00e1stand sem blasir vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0inni.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>J\u00f3n Baldvin er s\u00edungur \u00ed hugsun og hefur stundum leyft s\u00e9r a\u00f0 skipta um sko\u00f0un \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni. \u00dea\u00f0 er kannski engin tilviljun a\u00f0 n\u00fdveri\u00f0 sat hann Heimsm\u00f3t \u00e6skunnar sem haldi\u00f0 var vi\u00f0 virtan h\u00e1sk\u00f3la \u00ed \u00de\u00fdskalandi. Reyndar ekki sem \u00feingfulltr\u00fai heldur sem annar tveggja fulltr\u00faa Nor\u00f0urlanda \u00ed panel \u00fear sem \u00e6skuf\u00f3lk spur\u00f0i reynda menn um ganga m\u00e1l \u00ed lj\u00f3si kreppunnar sem r\u00ed\u00f0ur yfir. \u00dear var J\u00f3n Baldvin \u00ed essinu s\u00ednu og kunni vel a\u00f0 meta n\u00e1lgun unga f\u00f3lksins \u00e1 vi\u00f0fangsefni\u00f0.<\/p>\n<p>Vi\u00f0fangsefni \u00e6skum\u00f3tsins var J\u00f3ni a\u00f0 skapi en fyrir r\u00e1\u00f0stefnuna h\u00f6f\u00f0u um 30 \u00fe\u00fasund sv\u00f6r borist hva\u00f0an\u00e6va \u00far heiminum vi\u00f0 \u00feeirri krefjandi spurningu hva\u00f0a vandam\u00e1l pl\u00f6gu\u00f0u helst heimsbygg\u00f0ina. Sv\u00f6rin vi\u00f0 st\u00f3ru spurningunni sem Heimsm\u00f3ti\u00f0 velti fyrir s\u00e9r h\u00f6f\u00f0u voru dregin saman og koma l\u00edklega ekki \u00e1 \u00f3vart.<\/p>\n<p>A\u00f0 mati ungmennanna eru n\u00e1tt\u00farspj\u00f6ll af mannav\u00f6ldum \u00e1 pl\u00e1netunni st\u00e6rsta vandam\u00e1l heimsbygg\u00f0innar. N\u00famer tv\u00f6 komu Bandar\u00edkin undir Bush, \u00ed merkingunni ey\u00f0sla, s\u00f3lund og \u00e1gengni \u00e1 orkulindir jar\u00f0ar, herna\u00f0arofbeldi og algj\u00f6rt skilningsleysi \u00e1 vandam\u00e1lum heimsins af h\u00e1lfu au\u00f0k\u00fdfinga. N\u00famer \u00ferj\u00fa var hungri\u00f0, n\u00famer fj\u00f6gur vatnsskortur og \u00ed fimmta s\u00e6ti kom mannskepnan sj\u00e1lf.<\/p>\n<p>Sumt \u00ed \u00feessari upptalning er kannski ekki svo fjarri \u00fev\u00ed sem J\u00f3ni Baldvin hefur veri\u00f0 t\u00ed\u00f0r\u00e6tt um eftir a\u00f0 hann sneri heim sem sendiherra \u00cdslands \u00ed Bandar\u00edkjunum og Finnlandi.<\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 var viss l\u00e9ttir a\u00f0 komast a\u00f0eins fr\u00e1 \u00cdslandi \u00ed \u00feetta al\u00fej\u00f3\u00f0lega umhverfi sem r\u00edkti \u00e1 \u00feessari r\u00e1\u00f0stefnu, \u00fe\u00f3tt ekki v\u00e6ri nema fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 s\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru v\u00ed\u00f0ar vandam\u00e1l en \u00e1 \u00cdslandi,\u201d segir J\u00f3n Baldvin. \u201cEngu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur er \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 \u00fe\u00f3tt heimurinn standi frammi fyrir \u00feeirri st\u00f3ru spurningu hvort bandar\u00edska bankakr\u00edsan geti hugsanlega veri\u00f0 a\u00f0 stefna heiminum \u00ed n\u00fdja heimskreppu, \u00fe\u00e1 er liti\u00f0 \u00e1 \u00cdsland sem fyrsta f\u00f3rnarlamb \u00feeirrar kreppu sem hrundi algj\u00f6rlega.\u201d<\/p>\n<p>J\u00f3n Baldvin segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 engin tilviljun a\u00f0 menn horfi til \u00cdslands sem s\u00e9rstaks tilfellis \u00ed \u00feessu sambandi. \u201c\u00dea\u00f0 sem vissulega hratt bankakreppunni af sta\u00f0 var stj\u00f3rnlaus og h\u00f6mlulaus \u00fatl\u00e1nastarfsemi \u00ed bandar\u00edska bankakerfinu. \u00dea\u00f0 er bein aflei\u00f0ing af stefnu undanfarandi \u00e1ra, sem kennd hefur veri\u00f0 vi\u00f0 Reagan og Thatcer, Friedman og Hayak og heitir marka\u00f0str\u00fabo\u00f0i\u00f0. \u00deetta er \u00f6fgastefna e\u00f0a eins konar tr\u00fa\u00f0bo\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1gu au\u00f0k\u00fdfinga og \u00e1 ekkert skylt vi\u00f0 v\u00edsindi.\u201d<\/p>\n<p>A\u00f0 mati J\u00f3ns Baldvins hefur \u00feetta \u201ctr\u00fabo\u00f0\u201d einfalda s\u00fdn \u00e1 heiminn. \u201e\u00c9g kalla bo\u00f0berana komm\u00fanista me\u00f0 \u00f6fugum formerkjum.\u201c Hann segir a\u00f0 \u201etr\u00fabo\u00f0i\u00f0\u201c hafi veri\u00f0 r\u00e1\u00f0andi hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00ed Bandar\u00edkjunum og n\u00e1\u00f0 til mikilv\u00e6gra stofnana eins og Al\u00fej\u00f3\u00f0agjaldeyrissj\u00f3\u00f0sins og Al\u00fej\u00f3\u00f0abankans. \u201c\u00deetta hafa veri\u00f0 r\u00edkjandi tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u00ed yfir tuttugu \u00e1r og algj\u00f6rlega h\u00f6mlulaus \u00ed t\u00ed\u00f0 Bush. Bandar\u00edska bankakreppan er bein aflei\u00f0ing af \u00feessari stefnu og \u00fear gengu menn alltaf lengra og lengra \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 kalla fram s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga til \u00feess a\u00f0 b\u00faa til n\u00fdja \u201cv\u00f6ru\u201d sem innih\u00e9lt fj\u00e1rhagsskuldbindingar og vafninga sem h\u00e6gt var a\u00f0 selja \u00e1 marka\u00f0i. A\u00f0 lokum spannst \u00feetta svo gj\u00f6rsamlega \u00far h\u00f6ndunum \u00e1 \u00feeim, umsj\u00f3nar- og eftirlitslaust. S\u00fa sta\u00f0reynd blasir vi\u00f0 a\u00f0 forst\u00f6\u00f0umenn helstu fj\u00e1rm\u00e1lastofnana heimsis vissu ekki hva\u00f0 \u00feeir voru a\u00f0 gera og skildu \u00fea\u00f0 ekki sj\u00e1lfir.\u201d<\/p>\n<p>\u00deessi gr\u00f3\u00f0amylla, sem J\u00f3n Baldvin l\u00fdsir, er a\u00f0 hrynja \u00fati um alla ver\u00f6ld. En af hverju beina menn sj\u00f3num s\u00ednum jafn miki\u00f0 til \u00cdslands \u00ed \u00feessu samhengi?<\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 er sk\u00fdring \u00e1 \u00fev\u00ed. H\u00e9r var ger\u00f0 tilraun undir formerkjum \u00feessarar stefnu. Tilraunin f\u00f3lst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 reka minnsta myntkerfi \u00ed heiminum. Myntsv\u00e6\u00f0i sem haf\u00f0i a\u00f0 baklandi r\u00edflega 300 \u00fe\u00fasund manns me\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0an gjaldmi\u00f0il en \u00e1 grundvelli starfsreglna sem giltu um fj\u00e1rmagnshreyfingar \u00ed galopinni ver\u00f6ld. S\u00fa \u00e1h\u00e6tta sem f\u00f3lst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e6tla s\u00e9r a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feessum tr\u00f6llaleik al\u00fej\u00f3\u00f0akap\u00edtalsins var eins og a\u00f0 \u00e6tla s\u00e9r a\u00f0 fara \u00fat \u00e1 Nor\u00f0ur-Atlantshafi\u00f0 \u00ed manndr\u00e1psbyl og stormum \u00e1 opinni skekktu og tr\u00faa \u00fev\u00ed statt og st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki \u00e1h\u00e6ttuf\u00f6r. \u00deetta gat ekki sta\u00f0ist og \u00e1tti a\u00f0 vera m\u00f6num lj\u00f3st fyrir allm\u00f6rgum \u00e1rum s\u00ed\u00f0an \u00feegar \u00edslenska bankakerfi\u00f0 var vaxi\u00f0 \u00edslenska hagkerfinu yfir h\u00f6fu\u00f0, allt a\u00f0 t\u00f3lffalt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera um \u00feri\u00f0jungur \u00feegar bankarnir voru einkav\u00e6ddir fyrir sex \u00e1rum.\u201d<\/p>\n<p>J\u00f3n Baldvin segir a\u00f0 \u00cdsland hafi veri\u00f0 fyrirhyggju- og varnarlaust \u00ed \u00feessum leik \u00fev\u00ed gjaldmi\u00f0illinn hafi aldrei geta\u00f0 sta\u00f0ist \u00e1hlaup \u00feegar \u00e1 reyndi. En m\u00e1 \u00fe\u00e1 ekki spyrja hvort \u00cdslendingar hef\u00f0u ekki fari\u00f0 fram \u00far s\u00e9r me\u00f0 EES-samningnum fyrst ekki var skipt um gjaldmi\u00f0il \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0?<\/p>\n<p>\u201c\u00derj\u00e1t\u00edu \u00fej\u00f3\u00f0ir hafa fari\u00f0 \u00feessa lei\u00f0 \u00ed Evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0inu, eins og vi\u00f0 f\u00f3rum fyrir fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1rum. Hefur \u00fe\u00e1 ekki fari\u00f0 svipa\u00f0 fyrir \u00feeim? Svari\u00f0 er nei. \u00dea\u00f0 er bara ein \u00fej\u00f3\u00f0 sem hefur hruni\u00f0 og \u00fea\u00f0 er \u00cdsland. \u00dea\u00f0 bendir til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 s\u00e9rstakt vandam\u00e1l sem er heimatilb\u00fai\u00f0 og tengist \u00edslenska gjaldmi\u00f0ilssv\u00e6\u00f0inu sem sl\u00edku. En, j\u00fa, menn spyrja l\u00edka hvort \u00fea\u00f0 hafi ekki veri\u00f0 \u00e1h\u00e6ttusamt a\u00f0 fara \u00feessa lei\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 st\u00edga skrefi\u00f0 til fulls og byggja upp \u00fe\u00e6r varnir sem felast \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 taka upp evruna og fulln\u00e6gja \u00feeim skilyr\u00f0um sem \u00fev\u00ed fylgir. Svari\u00f0 vi\u00f0 \u00fev\u00ed er afdr\u00e1ttarlaust j\u00e1. Allt fr\u00e1 1995 bo\u00f0a\u00f0i \u00e9g og minn flokkur \u00fe\u00e1 stefnu. N\u00fa er h\u00e6gt a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0 ef vi\u00f0 hef\u00f0um fari\u00f0 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 og s\u00f3tt um a\u00f0ild a\u00f0 Evr\u00f3pusambandinu og peningam\u00e1lasamstarfinu einhvern t\u00edmann \u00e1 \u00e1runum \u00b495 til 2002 og veri\u00f0 komin me\u00f0 evru \u00ed hendurnar v\u00e6ri \u00f6\u00f0ruv\u00edsi komi\u00f0 fyrir okkur. Vi\u00f0 fulln\u00e6g\u00f0um \u00f6llum skilyr\u00f0um og hef\u00f0um noti\u00f0 stu\u00f0nings Evr\u00f3pska Se\u00f0labankans eftir einkav\u00e6\u00f0ingu bankanna. Vi\u00f0 komum \u00fev\u00ed aftur og aftur a\u00f0 r\u00f3tinni a\u00f0 hruninu sem n\u00fa blasir vi\u00f0, \u00fea\u00f0 er a\u00f0 vi\u00f0 erum me\u00f0 \u00f3n\u00fdtan gjaldmi\u00f0il.\u201c<\/p>\n<p>En er h\u00e6gt a\u00f0 tala um evruna sem patentlausn?<\/p>\n<p>\u201cNei, \u00fev\u00ed heldur enginn fram. En styrkur evrunnar og sto\u00f0kerfi hennar \u00ed Evr\u00f3pska se\u00f0labankanum eru \u00feau varnarvirki sem n\u00fa reynir \u00e1 hvort dugi \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0legri fj\u00e1rm\u00e1lakreppu. A\u00f0 sama skapi reynir \u00e1 dollarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 og As\u00edu. Vi\u00f0 erum ekki b\u00fain a\u00f0 b\u00edta \u00far n\u00e1linni me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 en vitum eitt, a\u00f0 \u00feetta eru alv\u00f6ru varnarvirki. Hitt er auglj\u00f3st m\u00e1l a\u00f0 okkar varnir voru engar og l\u00f6ngu fyrirsj\u00e1anlegt a\u00f0 okkar gjaldeyriskerfi var hruni\u00f0. \u00dea\u00f0 hefur afhj\u00fapa\u00f0 a\u00f0 eftirlitsstofnanir okkar dug\u00f0u ekki og efnahagsstefnan innanlands var fyrirhyggjulaus.\u201d<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem \u00fe\u00fa ert a\u00f0 l\u00fdsa a\u00f0 hef\u00f0i \u00feurft a\u00f0 gera haf\u00f0i ekki p\u00f3lit\u00edskan hlj\u00f3mgrunn. \u00deannig f\u00f3r Samfylkingn ekki \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rn me\u00f0 \u00fea\u00f0 sem skilyr\u00f0i a\u00f0 s\u00e6kja um a\u00f0ild a\u00f0 ESB og taka upp evru.<\/p>\n<p>\u201cJ\u00e1, \u00fea\u00f0 er einn flokkur sem ber h\u00f6fu\u00f0\u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig fyrir okkur er komi\u00f0. Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn hefur haft forystu \u00ed sautj\u00e1n \u00e1r. Hann hefur vissulega veri\u00f0 \u00ed samsteypustj\u00f3rnum allan \u00feennan t\u00edma en fari\u00f0 me\u00f0 fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 \u00f6ll \u00e1rin ef undan eru skilin \u00e1rin tv\u00f6 sem Halld\u00f3r \u00c1sgr\u00edmsson sat. Efnahagsm\u00e1lin heyra undir fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 og allan t\u00edmann hefur Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn fari\u00f0 me\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0. Samstarf \u00feessarara tveggja r\u00e1\u00f0uneyta er \u00fea\u00f0 sem mestu r\u00e6\u00f0ur um efnahagsm\u00e1lastefnuna og auk \u00feess er fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra algj\u00f6rlega \u00e1byrgur fyrir peningam\u00e1lastefnunni \u00fev\u00ed se\u00f0labankastj\u00f3rar \u00e1 \u00feessum t\u00edma hafa veri\u00f0 tveir og b\u00e1\u00f0ir forystumenn Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins. Ef menn meina eitthva\u00f0 me\u00f0 hugtakinu p\u00f3lt\u00edsk \u00e1byrg\u00f0, \u00fe\u00e1 hefur \u00e1byrg\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins sannarlega veri\u00f0 mikil.\u201d<\/p>\n<p>J\u00f3n Baldvin segir a\u00f0 \u00e1byrg\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins s\u00e9 meiri en \u00feetta. \u201cHagstj\u00f3rn flokksins hefur ekki bara mistekist. Go\u00f0s\u00f6gnin um a\u00f0 flokknum s\u00e9 einum treystandi \u00ed efnahagsm\u00e1lum er au\u00f0vita\u00f0 algj\u00f6rlega fokin. \u00de\u00e1 hefur oft veri\u00f0 haft a\u00f0 or\u00f0i a\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn hafi veri\u00f0 forystuafl \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00ed efnahagssamstarfi vi\u00f0 a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir. \u00dea\u00f0 er \u00f6nnur go\u00f0s\u00f6gn sem stenst ekki. Hvernig hefur Evr\u00f3pustefna Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins veri\u00f0 fr\u00e1 upphafi til \u00feessa dags? J\u00fa, h\u00fan hefur veri\u00f0 hringlandah\u00e1ttur og \u00fear hefur ekkert forystuhlutverk veri\u00f0. Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkurinn undir forystu Gylfa \u00de. G\u00edslasonar beitti s\u00e9r fyrir inng\u00f6ngunni \u00ed EFTA. \u00cd lok n\u00edunda \u00e1ratugarins setti Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn upp nefnd til a\u00f0 m\u00f3ta stefnu gagnart Evr\u00f3pusambandinu. Nefndin laut forystu Dav\u00ed\u00f0s Oddssonar \u00fe\u00e1verendi borgarstj\u00f3ra og komst a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 \u00cdsland \u00e6tti a\u00f0 ganga \u00ed Evr\u00f3pusambandi\u00f0.\u201d<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 breytti ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed stj\u00f3rnarandst\u00f6\u00f0u fram til \u00e1rsins 1991 var Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 EES-samningin og bo\u00f0a\u00f0i tv\u00edhli\u00f0a samning um marka\u00f0sa\u00f0gang fyrir fisk. \u201c\u00dea\u00f0 var ekki fyrr en formenn Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalags og Frams\u00f3knar ger\u00f0u \u00feau mist\u00f6k fyrir kosningar \u00b491 a\u00f0 hlaupast fr\u00e1 EES-samningnum a\u00f0 \u00e9g var neyddur til \u00feess a\u00f0 spyrja Dav\u00ed\u00f0 Oddsson hvort hann treysti s\u00e9r til \u00feess a\u00f0 tryggja samningnum framgang \u00e1 Al\u00feingi. Hann vildi til \u00feess vinna og k\u00favenda stefnu Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins til \u00feess flokkurinn k\u00e6mist \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rn.\u201d<\/p>\n<p>J\u00f3n Baldvin segist hafa ali\u00f0 \u00fe\u00e1 von \u00ed brj\u00f3sti a\u00f0 Dav\u00ed\u00f0, sem marka\u00f0i framt\u00ed\u00f0arstefnu flokksins \u00ed Evr\u00f3pum\u00e1lunum 1989 me\u00f0 nefndarforystu sinni v\u00e6ri \u00ed raunini Evr\u00f3pusinni. \u201c\u00c9g komst sm\u00e1tt og sm\u00e1tt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 svo var ekki. EES-samningurinn n\u00e1\u00f0ist fram me\u00f0 naumum meirihluta og ekki var vilji til \u00feess a\u00f0 ganga lengra.\u201d<\/p>\n<p>Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn er \u00f3stj\u00f3rnh\u00e6fur um \u00feessar mundir, a\u00f0 mati J\u00f3ns Baldvins. \u201cHann er getur ekki veitt forystu vegna a\u00f0 hann er heltekinn af innanmeinum. Flokkurinn hefur ekki geta\u00f0 gert upp hug sinn um st\u00e6rsta m\u00e1l samt\u00edmans, afst\u00f6\u00f0una til Evr\u00f3pusambandsins. Hann er ekki s\u00e1 stefnufasti flokkur go\u00f0sagnarinnar sem getur haft forystu og teki\u00f0 erfi\u00f0ar og \u00f3vins\u00e6lar \u00e1kvar\u00f0anir \u00ed t\u00e6ka t\u00ed\u00f0. \u00dear vantar \u00feor og framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn og Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn er \u00e1 eftir \u00fej\u00f3\u00f0inni.<\/p>\n<p>Mitt \u00e1 strandsta\u00f0num erum vi\u00f0 a\u00f0 upplifa, fr\u00e1 degi til dags, \u00e1takanleg birtingarform \u00feess a\u00f0 Sj\u00e1fst\u00e6\u00f0isflokkurinn er forystulaus. \u00dea\u00f0 er st\u00f6\u00f0ugt rifrildi milli n\u00faverandi formanns og fyrrverandi sem situr \u00ed Se\u00f0labankanum og hefur fyrirgert trausti innanlands og \u2013utan \u00e1 peningam\u00e1lastj\u00f3rn landsins. \u00dear er hann \u201csniper\u201d, eins og sk\u00e6ruli\u00f0i \u00ed r\u00fastunum og mi\u00f0ar \u00e1 sinn gamla undirs\u00e1ta og n\u00faverandi eftirmann sem vir\u00f0ist svo heltekinn af \u00f3tta vi\u00f0 a\u00f0 flokkurinn klofni \u00ed \u00feessum \u00e1t\u00f6kunum a\u00f0 honum er fyrirmuna\u00f0 a\u00f0 taka \u00e1kvar\u00f0anir. Heimilisb\u00f6li\u00f0 \u00ed Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokknum er \u00feyngra en t\u00e1rum taki. \u00d3sanngirnin er s\u00fa a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in situr uppi me\u00f0 lama\u00f0a r\u00edkisstj\u00f3rn af \u00feessum v\u00f6ldum. \u00deegar svona h\u00e1ttar til er algj\u00f6rlega \u00f3umfl\u00fdjanlegt a\u00f0 skj\u00f3ta m\u00e1lum \u00ed d\u00f3m \u00fej\u00f3\u00f0arinnar.\u201d<\/p>\n<p>Eins og gefur a\u00f0 skilja getur J\u00f3n Baldvin ekkert sagt fyrir um v\u00e6ntanlega d\u00f3m \u00fej\u00f3\u00f0arinnar e\u00f0a hvort hreinar l\u00ednur f\u00e1ist \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lunum. Vinstri gr\u00e6n hafa opna\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 kosi\u00f0 ver\u00f0i \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu b\u00e6\u00f0i um ums\u00f3kn a\u00f0 ESB og s\u00ed\u00f0an samning ef til kemur. \u201eMe\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um vir\u00f0ast forystumenn \u00ed flokknum jafnvel rei\u00f0ub\u00fanir a\u00f0 vera ekki me\u00f0 handj\u00e1rn \u00e1 flokksmenn \u00ed \u00feessum efnum. V\u00e6ntanlega stendur ekki \u00e1 \u00feeim vir\u00f0a ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu. Af fenginni reynslu hef \u00e9g hins vegar litla tr\u00fa \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00f3tt sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ismenn haldi einhvern fund \u00ed lok jan\u00faar komi eitthva\u00f0 \u00fat \u00far \u00fev\u00ed anna\u00f0 en v\u00edfillengjur og frestanir. Innanmeinin og klofningurinn er svo dj\u00fapst\u00e6\u00f0ur a\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn \u00e1 a\u00f0 taka s\u00e9r t\u00edma \u00ed innhverfa \u00edhugun og endurh\u00e6fingu. Sem \u00feverklofinn og forystulaus ver\u00f0ur hann ekki stj\u00f3rnh\u00e6fur \u00e1 n\u00e6stunni. En geta Samfylking og Vinstri gr\u00e6n starfa\u00f0 saman ef \u00feeir ver\u00f0a st\u00e6rstu flokkarnir a\u00f0 loknum kosningum \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rn sem myndi vilja leggja samninga vi\u00f0 ESB undir \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0i? Geta Vinstri gr\u00e6n s\u00e6tt sig vi\u00f0 \u00fea\u00f0 ef \u00fej\u00f3\u00f0in kemst a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u? \u00c1 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 l\u00e1ta reyna.\u201c<\/p>\n<p>\u00de\u00fa vilt sem sagt kosningar strax?<br>\n\u201eJ\u00e1, eins flj\u00f3tt og kostur er. Snemma \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri. \u00dea\u00f0 er ekkert hald \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 kosningar s\u00e9u ekki t\u00edmab\u00e6rar me\u00f0an r\u00f3inn er l\u00edfr\u00f3\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er enginn l\u00edfr\u00f3\u00f0ur \u00fev\u00ed vi\u00f0 erum me\u00f0 r\u00edkisstj\u00f3rn sem er meira og minna sundurvirk og l\u00f6mu\u00f0. H\u00fan er l\u00f6mu\u00f0 af innbyr\u00f0is \u00f3\u00e1ran og h\u00f6fu\u00f0setin af sk\u00e6ruli\u00f0um \u00ed Se\u00f0labanknanum. \u201c<br>\nJ\u00f3n Baldvin segir fleytingu kr\u00f3nunnar n\u00fa me\u00f0 tilheyrandi gjaldeyrish\u00f6ftum hreina fjarst\u00e6\u00f0u. \u201eKr\u00f3nan, \u00feessi litla julla, er enn bundin vi\u00f0 bryggju. \u00deess vegna er h\u00fan ekki sokkin en h\u00fan er ekki haff\u00e6r. Flotholti\u00f0 hennar er gjaldeyrish\u00f6ft. Fyrr en s\u00ed\u00f0ar ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 leysa m\u00e1lin. Vi\u00f0 eigum \u00feann kost a\u00f0 l\u00fdsa \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 \u00cdsland stefni a\u00f0 \u00fev\u00ed eins og flj\u00f3tt og m\u00f6gulegt er a\u00f0 taka upp samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0ur vi\u00f0 ESB um inng\u00f6ngu. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum marka\u00f0 stefnu um a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6tlum okkur a\u00f0 leysa gjaldeyrisvandam\u00e1lin til framb\u00fa\u00f0ar.\u201c<br>\nA\u00f0 mati J\u00f3ns Baldvins \u00e1 \u00cdsland sem EFTA-r\u00edki a\u00f0 geta loki\u00f0 samningum \u00e1 u.\u00fe.b. h\u00e1lfu \u00e1ri. Sta\u00f0festingarferli\u00f0 hj\u00e1 r\u00edkjunum 27 g\u00e6ti hins vegar or\u00f0i\u00f0 t\u00edmafrekt. En um lei\u00f0 og ni\u00f0ursta\u00f0a fengist \u00e1 \u00cdslandi yr\u00f0i sta\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0arinnar allt \u00f6nnur. \u201e\u00de\u00e1 \u00feyrftum vi\u00f0 ekki nema \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i til vi\u00f0b\u00f3tar til \u00feess a\u00f0 breyta gjaldmi\u00f0ils\u00e1standinu og skapa\u00f0 okkur s\u00f6mu st\u00f6\u00f0u og Danir sem eru me\u00f0 gjaldmi\u00f0il sem er bundinn vi\u00f0 evruna me\u00f0 h\u00e1um vikm\u00f6rkum. Vi\u00f0 v\u00e6rum komin inn \u00ed anddyri a\u00f0 peningam\u00e1lasamstarfi Evr\u00f3pu. Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um t\u00e6ki \u00feetta ferli um n\u00edu m\u00e1nu\u00f0i og f\u00e6li \u00ed s\u00e9r lausn til framb\u00fa\u00f0ar \u00e1 okkar h\u00e1skalegasta vandam\u00e1li.<br>\nSt\u00f6\u00f0ugleiki breytir \u00f6llu og vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera m\u00f6nnum lj\u00f3st a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6tlum ekki a\u00f0 fara \u00ed feig\u00f0arflani\u00f0 me\u00f0 kr\u00f3nuna til framb\u00fa\u00f0ar. R\u00edkisstj\u00f3rn sem getur ekki teki\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um \u00feetta er l\u00f6mu\u00f0. \u00deessa vegna \u00fearf kosningar sem allra fyrst.\u201c<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 er margt anna\u00f0 \u00ed lausu lofti, \u00fear \u00e1 me\u00f0al samningar um Icesave og grei\u00f0slubyr\u00f0i af erlendum l\u00e1num?<br>\n\u201e\u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Se\u00f0labankinn \u00feorir ekki a\u00f0 fleyta kr\u00f3nunni og beitir gjaldeyrish\u00f6ftum er s\u00fa a\u00f0 \u00e1h\u00e6ttan af \u00fev\u00ed a\u00f0 fleyta henni \u00e1 hi\u00f0 opna \u00fathaf aftur er a\u00f0 \u00fe\u00e1 g\u00e6ti gjaldeyrissj\u00f3\u00f0urinn sem fenginn er \u00e1 d\u00fdrum l\u00e1num horfi\u00f0 \u00e1 augabrag\u00f0i.\u201c<\/p>\n<p>Andst\u00e6\u00f0ingar ESB benda \u00e1 a\u00f0 Evr\u00f3pu\u00fej\u00f3\u00f0ir vilji nau\u00f0beygja \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0ina vegna sl\u00f3\u00f0a bankanna erlendis. Menn halda \u00feessu \u00e1 lofti og telja \u00fea\u00f0 d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 sem b\u00ed\u00f0ur okkar \u00ed samskiptum vi\u00f0 risana \u00ed Evr\u00f3pu.<br>\n\u201eHva\u00f0 hef\u00f0um vi\u00f0 gert ef evr\u00f3pskir bankar hef\u00f0u leiki\u00f0 sama leikinn h\u00e9r \u00e1 landi og \u00feeir \u00edslensku ytra? Vi\u00f0 hef\u00f0um au\u00f0vita\u00f0 krafist \u00feess a\u00f0 \u00edslenskir sparifj\u00e1reigendur yr\u00f0u var\u00f0ir. Spurningin n\u00fana er hins vegar um lagalegar skuldbindingar \u00cdslendinga vegna bankastarfseminnar \u00e1 evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0inu. Vi\u00f0 vissum a\u00f0 vi\u00f0 \u00feyrftum a\u00f0 tryggja vissa l\u00e1gmarksupph\u00e6\u00f0 \u00ed \u00fatib\u00faum \u00edslenskra banka en \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 aldrei til a\u00f0 vi\u00f0 \u00feyrftum a\u00f0 ver\u00f0a vi\u00f0 \u00f6llum kr\u00f6fum. En svo ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 me\u00f0 setningu ney\u00f0arlaganna a\u00f0 allar inneignir \u00cdslendinga voru trygg\u00f0ar. \u00cdslendingar hafa \u00fev\u00ed ekki haft sterk r\u00f6k me\u00f0 s\u00e9r \u00feegar \u00feeir halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00feessar reglur gildi ekki \u00ed \u00fatib\u00faum bankanna \u00e1 evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0inu. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fev\u00ed ekkert a\u00f0 fara fram me\u00f0 einhverjum hrakyr\u00f0um um a\u00f0 \u00fatlendingar s\u00e9u vondir vi\u00f0 okkur. M\u00f6nnum \u00ed Evr\u00f3pu er fullkomnlega lj\u00f3st hvers konar li\u00f0 \u00fea\u00f0 var \u00ed b\u00f6nkunum sem misnota\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00f3spart \u00ed eigin \u00fe\u00e1gu \u00e1 lokasprettinum. \u00deess vegna er miki\u00f0 vitna\u00f0 \u00ed or\u00f0 se\u00f0labankastj\u00f3rans sem tala\u00f0i um hina \u00edslensku \u00f3rei\u00f0umenn. Eftir stendur s\u00fa p\u00f3lit\u00edska spurning hversu langt eigi a\u00f0 ganga \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0inn grei\u00f0u fyrir veislu \u00f3rei\u00f0umannanna.<br>\nVi\u00f0 eigum aftur \u00e1 m\u00f3ti a\u00f0 standa vi\u00f0 l\u00e1gmarksskuldbindingar okkar erlendis en ekki borga kr\u00f3nu umfram \u00fea\u00f0. Og r\u00edkisstj\u00f3rnin ver\u00f0ur a\u00f0 segja okkur hvernig h\u00fan hefur sami\u00f0 og hversu skuldabyr\u00f0in er or\u00f0in mikil.\u201c<\/p>\n<p>Eins og fram hefur komi\u00f0 er r\u00e6tt um a\u00f0 erlendir l\u00e1nardrottnar g\u00f6mlu bankanna komi hugsanleg inn sem eigendur a\u00f0 n\u00fdju b\u00f6nkunum. \u00deetta finnst J\u00f3ni Baldvin undarlegt. \u201eErum vi\u00f0 a\u00f0 tala um a\u00f0 erlendu bankarnir krefjist meira heldur en \u00feeir f\u00e1 \u00fat \u00far \u00ferotab\u00faum g\u00f6mlu bankanna? Vi\u00f0 \u00feessu h\u00f6fum vi\u00f0 ekki fengi\u00f0 nein sv\u00f6r.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 \u00e1lykta a\u00f0 J\u00f3ni Baldvin kl\u00e6i \u00ed fingurna a\u00f0 hefja aftur bein afskipti af stj\u00f3rnm\u00e1lum og gefa kost \u00e1 s\u00e9r \u00ed kosningum?<\/p>\n<p>\u201e\u00cdslendingar sem \u00fej\u00f3\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 fullkomi\u00f0 ney\u00f0ar\u00e1stand. Vi\u00f0 erum \u00e1 n\u00e6sta b\u00e6 vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0argjald\u00ferot og b\u00faum l\u00edka vi\u00f0 \u00fea\u00f0 heimilisb\u00f6l a\u00f0 vi\u00f0 erum \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lakreppu. \u00dea\u00f0 stafar af \u00fev\u00ed a\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn er \u00f3stj\u00f3rnh\u00e6fur vegna illdeilna og getuleysis til \u00feess a\u00f0 gera upp st\u00f3r m\u00e1l. \u00dea\u00f0 berast a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6li \u00far \u00f6llum \u00e1ttum \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu og \u00fea\u00f0 er vaxandi \u00feungi \u00ed \u00feeim. M\u00f3tm\u00e6lin eru birtingarform \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lki er gersamlega ofbo\u00f0i\u00f0, m.a. vegna \u00feess a\u00f0 stj\u00f3rnv\u00f6ld vir\u00f0ast ekki treysta s\u00e9r til a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 f\u00f3lk og segja \u00fev\u00ed satt um st\u00f6\u00f0u m\u00e1la. \u00dea\u00f0 er vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 velta m\u00e1lum \u00e1 undan s\u00e9r \u00ed m\u00e1lami\u00f0lunum milli flokka \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 r\u00f6kr\u00e6\u00f0a sig til ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u og marka stefnu.<br>\nVi\u00f0 \u00feessu er ekkert r\u00e1\u00f0 nema kosningar sem allra fyrst. \u00c9g er \u00ed s\u00f6mu sporum og hver annar \u00cdslendingur a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 m\u00e9r ber skylda til a\u00f0 gera allt sem \u00e9g get til a\u00f0 leggja m\u00e1lum li\u00f0 \u00feannig a\u00f0 stefna ver\u00f0i m\u00f6rku\u00f0. \u00c9g hef a\u00f0 baki p\u00f3lit\u00edskan feril, og h\u00e9lt reyndar a\u00f0 honum v\u00e6ri loki\u00f0, og b\u00fd yfir mikilli reynslu, ekki s\u00edst \u00ed tengslum vi\u00f0 Evr\u00f3pum\u00e1l og samninga \u00fear a\u00f0 l\u00fatandi. Fr\u00e1 \u00e1rinu 1994 hef \u00e9g veri\u00f0 \u00feeirrar sannf\u00e6ringar a\u00f0 vi\u00f0 eigum a\u00f0 st\u00edga \u00fea\u00f0 skref til fulls og er til \u00ed a\u00f0 leggja mitt af m\u00f6rkum. Hva\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir fyrir mig pers\u00f3nulega er aukaatri\u00f0i. \u00c9g hef fulln\u00e6gt \u00f6llum m\u00ednum p\u00f3lit\u00edska metna\u00f0i. \u00dea\u00f0 eina sem kn\u00fdr mig \u00e1fram er r\u00e9ttl\u00e1t rei\u00f0i yfir \u00fev\u00ed hvernig komi\u00f0 er og einl\u00e6gur vilji til \u00feess a\u00f0 leggja m\u00edn l\u00f3\u00f0 \u00e1 vogarsk\u00e1larnar til a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 varanlegum lausnum. \u00dea\u00f0 geri \u00e9g me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tj\u00e1 mig, skrifa og svara \u00feegar \u00e9g er spur\u00f0ur.\u201c<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 er ekkert sem \u00fatilokar \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa l\u00e1tir slag stranda og gefir kost \u00e1 \u00fe\u00e9r?<\/p>\n<p>\u201eNei, \u00fea\u00f0 er ekkert sem \u00fatilokar \u00fea\u00f0,\u201c segir J\u00f3n \u00e1kve\u00f0inn og kl\u00e6\u00f0ir sig \u00ed hl\u00fdjan Mokkajakkann og setur \u00e1 sig h\u00fafuna \u00e1\u00f0ur en hann fer \u00fat \u00ed kalt \u00edslenskt vetrarve\u00f0ri\u00f0.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&#8220;Ef vi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 taka \u00e1 \u00feeim vandam\u00e1lum sem a\u00f0 ste\u00f0ja ver\u00f0ur a\u00f0 leggja \u00feau \u00ed d\u00f3m kj\u00f3senda,\u201d segir J\u00f3n Baldvin Hannibalsson \u00e1kve\u00f0inn \u00feegar hann er spur\u00f0ur hva\u00f0 blasi vi\u00f0 \u00ed \u00edslenskum stj\u00f3rnm\u00e1lum um \u00feessar mundir. J\u00f3n Baldvin er kvikur \u00ed hreyfingum og hugsunum sem aldrei fyrr \u00feegar hann sest ni\u00f0ur me\u00f0 bla\u00f0amanni Birtu undir h\u00e1degi \u00e1 m\u00e1nudagsmorgni \u00e1 a\u00f0ventunni, mitt \u00ed alvarlegustu efnahagskreppu sem herja\u00f0 hefur \u00e1 \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0ina. <\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,9],"tags":[],"class_list":["post-1113","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allar_greinar","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1113","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1113"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1113\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2898,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1113\/revisions\/2898"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1113"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1113"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1113"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}