{"id":1114,"date":"2007-03-27T00:00:00","date_gmt":"2007-03-27T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/?p=1114"},"modified":"2020-09-22T14:38:19","modified_gmt":"2020-09-22T14:38:19","slug":"nyja-ahofn-i-sedlabankann-vidtal-jakobinu-davidsdottur-vid-jon-baldvin-fyrir-timaritid-mannlif","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/?p=1114","title":{"rendered":"N\u00ddJA \u00c1H\u00d6FN \u00cd SE\u00d0LABANKANN.  VI\u00d0TAL JAKOB\u00cdNU DAV\u00cd\u00d0SD\u00d3TTUR VI\u00d0 J\u00d3N BALDVIN FYRIR T\u00cdMARITI\u00d0 MANNL\u00cdF"},"content":{"rendered":"<p>Eftirfarandi vi\u00f0tal t\u00f3k Jakob\u00edna Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir, bla\u00f0akona og stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur, vi\u00f0 J\u00f3n Baldvin fyrir t\u00edmariti\u00f0 Mannl\u00edf \u00ed mars 2007.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>Lengi vel voru andst\u00e6\u00f0ingar a\u00f0ildar talsvert fj\u00f6lmennari en n\u00fa breg\u00f0ur svo vi\u00f0, \u00feegar samdr\u00e1ttur ver\u00f0ur \u00ed samf\u00e9laginu, a\u00f0 upp r\u00edsa fyrrum andst\u00e6\u00f0ingar og tala fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00cdslendingar eigi vitaskuld a\u00f0 hefja samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0ur um inng\u00f6ngu \u00ed ESB \u00feannig a\u00f0 allt ver\u00f0i kl\u00e1rt \u00feegar a\u00f0 \u00fev\u00ed komi a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in st\u00edgi skrefi\u00f0 st\u00f3ra yfir til Evr\u00f3pu.<br>\n\u00deegar J\u00f3n Baldvin sag\u00f0i skili\u00f0 vi\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1lin og flutti utan til Bandar\u00edkjanna var langt bil \u00e1 milli \u00feeirra sem vildu ganga \u00ed ESB og hinna sem vildu standa utan vi\u00f0 Evr\u00f3pusambandi\u00f0. \u00deeim fer fj\u00f6lgandi sem \u00e1\u00f0ur voru svarnir andst\u00e6\u00f0ingar en standa n\u00fa saman me\u00f0 hinum um a\u00f0 stefnan ver\u00f0i tekin \u00e1 Evr\u00f3pu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hefur alla t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 lj\u00f3st hver sko\u00f0un J\u00f3ns Baldvins er \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 vi\u00f0 \u00cdslendingar g\u00f6ngum \u00ed Evr\u00f3pusambandi\u00f0. Hef\u00f0i hann einhverju fengi\u00f0 um \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0 v\u00e6rum vi\u00f0 anna\u00f0 hvort or\u00f0in a\u00f0ilar a\u00f0 sambandinu e\u00f0a v\u00e6rum a\u00f0 undirb\u00faa inng\u00f6ngu. \u00deeir sem eitthva\u00f0 velta fyrir s\u00e9r samf\u00e9lagsm\u00e1lum og fylgjast me\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1lum vita sem er a\u00f0 J\u00f3n Baldvin Hannibalsson er einl\u00e6gur Evr\u00f3pusinni. Hann hefur aldrei dregi\u00f0 dul \u00e1 \u00fe\u00e1 sko\u00f0un s\u00edna a\u00f0 Islendingar eigi heima \u00ed Evr\u00f3pusambandinu.<br>\nSj\u00e1lfur var J\u00f3n Baldvin utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra \u00ed svokalla\u00f0ri Vi\u00f0eyjarstj\u00f3rn sem hann mynda\u00f0i me\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 Oddssyni. \u00deeir f\u00e9lagar t\u00f3ku s\u00e9r ekki langan t\u00edma \u00ed a\u00f0 \u00ferefa um sm\u00e1r\u00e6\u00f0i heldur voru sn\u00f6ggir a\u00f0 setja saman m\u00e1lefnasamning sem \u00feeir unnu s\u00ed\u00f0an eftir \u00ed fj\u00f6gur \u00e1r.<\/p>\n<p>Sem utanr\u00edkisr\u00e1herra st\u00fdr\u00f0i J\u00f3n Baldvin samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0um vi\u00f0 ESB um myndun Evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0isins, sem nefnist EES \u00ed daglegu tali, \u00e1 \u00e1runum 1989-93. Almennt er vi\u00f0urkennt a\u00f0 EES-samningurinn gerbreytti \u00f6llu vi\u00f0skiptaumhverfi \u00e1 \u00cdslandi auk \u00feess sem hinn \u00f6rsm\u00e1i heimamarka\u00f0ur n\u00e1\u00f0i allt \u00ed einu til 350 millj\u00f3na manna. V\u00edsast g\u00e6tum vi\u00f0 ekki hugsa\u00f0 okkur hvernig \u00e1standi\u00f0 v\u00e6ri ef vi\u00f0 hef\u00f0um ekki teki\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00f6rlagar\u00edka skref \u00e1 s\u00ednum t\u00edma.<\/p>\n<p>J\u00f3n Baldvin er sestur \u00e1 helgan stein fr\u00e1 daglegu arga\u00ferasi stj\u00f3rnm\u00e1lanna. Hann er eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur jafn p\u00f3lit\u00edskur \u00ed hugsun og hann hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0&#8230;gott ef \u00e1huginn \u00e1 stj\u00f3rnm\u00e1lum eykst ekki fremur en hitt me\u00f0 aldrinum. \u00c1 engan er halla\u00f0 \u00fe\u00f3 fullyrt s\u00e9 a\u00f0 f\u00e1ir \u00cdslendingar \u00feekki m\u00e1lefni Evr\u00f3pu betur en einmitt J\u00f3n Baldvin. Hann er sta\u00f0fastur Evr\u00f3pusinni og hefur fylgst n\u00e1i\u00f0 me\u00f0 \u00fer\u00f3un m\u00e1la innan ESB og st\u00e6kkun \u00feess.<br>\n\u201c\u00der\u00e1tt fyrir h\u00e1v\u00e6r m\u00f3tm\u00e6li einstakra manna sem b\u00f6r\u00f0ust hatrammri bar\u00e1ttu gegn a\u00f0ild, \u00fe\u00e1 velkist enginn \u00ed vafa lengur um a\u00f0 \u00fea\u00f0 var k\u00f3rr\u00e9tt \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 vera me\u00f0 \u00ed EES\u201c, segir hann og bendir \u00e1 a\u00f0 varla myndi nokkur \u00cdslendingur vilja sn\u00faa aftur til fyrri t\u00edma.<\/p>\n<p><b>\u00dea\u00f0 er ekki \u00e1 stefnuskr\u00e1 r\u00edkistj\u00f3rnarinnar a\u00f0 s\u00e6kja um a\u00f0ild \u00e1 \u00e1 kj\u00f6rt\u00edmabilinu en menn hafa tala\u00f0 um a\u00f0 taka upp evru \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vi\u00f0 st\u00f6ndum utan Evr\u00f3pubandalagsins. Er eitthva\u00f0 vit \u00ed \u00fev\u00ed?<\/b><\/p>\n<p>\u201cNei, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri l\u00edti\u00f0 vit \u00ed \u00fev\u00ed. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri platlausn. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka upp evru, einhli\u00f0a, \u00ed sta\u00f0 kr\u00f3nunnar, v\u00e6rum vi\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kjast eftir st\u00f6\u00f0ugleika. Til \u00feess n\u00e6gir ekki a\u00f0 breyta um nafn \u00e1 gjaldmi\u00f0linum. Menn ver\u00f0a a\u00f0 geta treyst \u00fev\u00ed, a\u00f0 stj\u00f3rnv\u00f6ld h\u00e9ldu fast vi\u00f0 evruna \u00fer\u00e1tt fyrir ytri \u00e1f\u00f6ll e\u00f0a sveiflur \u00ed efnahagsumhverfinu. \u00dea\u00f0 traust myndi eftir sem \u00e1\u00f0ur skorta og \u00fear me\u00f0 tr\u00faver\u00f0ugleikann. Hann bendir \u00e1 til samanbur\u00f0ar, \u00feegar Argent\u00edna t\u00f3k upp dollarann sem gjaldmi\u00f0il. \u201c\u00dea\u00f0 var skelfilegt og enda\u00f0i n\u00e1nast \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0argjald\u00feroti. \u00deetta var gert me\u00f0 r\u00e1\u00f0um snillinganna \u00ed Al\u00fej\u00f3\u00f0agjaldeyrissj\u00f3\u00f0num. Tilgangurinn var a\u00f0 n\u00e1 ni\u00f0ur ver\u00f0b\u00f3lgunni. En misv\u00edsunin \u00e1 milli hins \u00f6fluga bandar\u00edska hagkerfis og \u00feess argent\u00ednska var\u00f0 alltaf meiri og meiri. Spennan vi\u00f0 a\u00f0 halda uppi h\u00e1gengisgjaldmi\u00f0li, eins og dollarinn \u00fe\u00e1 var, \u00fe\u00fdddi a\u00f0 Argent\u00ednumenn ur\u00f0u \u00f3samkeppnish\u00e6fir \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0am\u00f6rku\u00f0um og \u00e1ttu a\u00f0 lokum ekki fyrir skuldum.<\/p>\n<p><b>En voru mist\u00f6kin ekki falin \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 t\u00edmasetningin hj\u00e1 Argent\u00ednu var r\u00f6ng \u00fev\u00ed n\u00fa hafa l\u00f6nd eins og El Salvador og Ekvador teki\u00f0 upp dollar og gengi\u00f0 \u00e1g\u00e6tlega?<\/b><\/p>\n<p>Hann gr\u00edpur or\u00f0i\u00f0 \u00e1 lofti og svarar: \u00deeir voru \u00e1rei\u00f0anlega \u00e1 vitlausum t\u00edma. Vi\u00f0 myndum \u00e1rei\u00f0anleg l\u00edka lenda \u00e1 vitlausum t\u00edma fyrr en varir, segir J\u00f3n Baldvin og hl\u00e6r.<br>\nHann minnir \u00e1 a\u00f0 hagfr\u00e6\u00f0in skilgreinir \u00e1kve\u00f0in l\u00e1gmarksskilyr\u00f0i fyrir noth\u00e6fan gjaldmi\u00f0il r\u00edkis. Frumskilyr\u00f0i er, a\u00f0 hann ver\u00f0i a\u00f0 vera noth\u00e6fur grei\u00f0slumi\u00f0ill og a\u00f0 vera \u00e1v\u00edsun \u00e1 ver\u00f0m\u00e6ti. Til a\u00f0 nj\u00f3ta vi\u00f0urkenningar annarra ver\u00f0i hver gjaldmi\u00f0ill a\u00f0 var\u00f0veita \u00ed s\u00e9r ver\u00f0m\u00e6ti fr\u00e1 einu t\u00edmabili til annars. \u00deannig \u00f6\u00f0last hann vi\u00f0urkenningu \u00ed vi\u00f0skiptum. Kr\u00f3nan uppfyllir ekkert af \u00feessum skilyr\u00f0um.<br>\nEinmitt \u00feess vegna ur\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 taka upp ver\u00f0trygginguna \u00e1 s\u00ednum t\u00edma.<br>\nL\u00e1n til langs t\u00edma eru ekki veitt \u00ed kr\u00f3num \u00e1 \u00cdslandi. \u00deau eru veitt \u00ed ver\u00f0tryggingarkr\u00f3num, sem er \u00fear me\u00f0 er or\u00f0in hin raunverulega reiknieining og grei\u00f0slumi\u00f0ill. Ver\u00f0tryggingin var harkaleg a\u00f0ger\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. H\u00fan \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00feeim tilgangi a\u00f0 kve\u00f0a ni\u00f0ur \u00f3\u00f0aver\u00f0b\u00f3lgu, sem haf\u00f0i s\u00fdkt efnahagsl\u00edfi\u00f0, og var vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara \u00far b\u00f6ndunum \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum. Ver\u00f0tryggingin dug\u00f0i til \u00feess a\u00f0 hemja \u00f3se\u00f0jandi l\u00e1nsfj\u00e1reftirspurn, \u00fev\u00ed a\u00f0 me\u00f0 ver\u00f0tryggingunni h\u00e6ttu l\u00e1n a\u00f0 vera gj\u00f6f. Menn ur\u00f0u framvegis a\u00f0 borga l\u00e1nin s\u00edn fullu ver\u00f0i. Og sparifj\u00e1reigendur g\u00e1tu loks aftur liti\u00f0 gla\u00f0an dag. En ver\u00f0tryggingin var \u00ed e\u00f0li s\u00ednu skammt\u00edmaa\u00f0ger\u00f0. \u00cd opnu og al\u00fej\u00f3\u00f0av\u00e6ddu hagkerfi er h\u00fan t\u00edmaskekkja. Vi\u00f0 inng\u00f6ngu \u00ed ESB og me\u00f0 uppt\u00f6ku evru \u00ed sta\u00f0 kr\u00f3nunnar, me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim skuldbindingum sem \u00fev\u00ed fylgir, hyrfi ver\u00f0tryggingin \u00far s\u00f6gunni.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt ver\u00f0tryggingin hafi veri\u00f0 ill nau\u00f0syn \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, hefur h\u00fan \u00f3\u00e6skilegar hli\u00f0arverkanir til lengri t\u00edma. H\u00fan verkar or\u00f0i\u00f0 sem h\u00e1lfgert snu\u00f0 \u00e1 hagstj\u00f3rnina. Ef stj\u00f3rnv\u00f6ld gera sig sek um alvarleg hagstj\u00f3rnarmist\u00f6k sem hafa t.d. \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r ver\u00f0b\u00f3lgu\u00feenslu og okurvexti, \u00fe\u00e1 gerir ver\u00f0tryggingin stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum kleift a\u00f0 s\u00f3pa aflei\u00f0ingunum undir teppi\u00f0. Me\u00f0 ver\u00f0b\u00f3lgunni h\u00e6kkar h\u00f6fu\u00f0st\u00f3ll l\u00e1nsfj\u00e1rskuldbindinga, en \u00feetta er ekki s\u00fdnilegt og bitnar ekki strax \u00e1 skuldurum, vegna \u00feess a\u00f0 vextir geta sta\u00f0i\u00f0 \u00f3breyttir, \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 komi seinna a\u00f0 skuldad\u00f6gum. \u00deetta veldur \u00fev\u00ed l\u00edka a\u00f0 svok\u00f6llu\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 peningam\u00e1lastefna \u00edslenska se\u00f0labankans, sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e6kka svokalla\u00f0a st\u00fdrivexti b\u00edtur ekki; skilar engum \u00e1rangri eins og reynslan allt fr\u00e1 \u00e1rinu 2001 hefur kennt okkur. \u00c1hrifin eru reyndar \u00fever\u00f6fug \u00e1 vi\u00f0 upprunalegan tilgang. H\u00e1ir st\u00fdrivextir og mikill vaxtamunur milli \u00cdslands og annarra landa hvetur til skammt\u00edmafj\u00e1rfestinga sp\u00e1kaupmanna, sem eygja skj\u00f3tfenginn gr\u00f3\u00f0a \u00ed nafni \u00feessa vaxtamunar. Um lei\u00f0 er gengi okkar \u00f3noth\u00e6fa gjaldmi\u00f0ils styrkt \u00feannig a\u00f0 kr\u00f3nan er \u00f3e\u00f0lilega \u201csterk\u201d \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 a\u00f0ra gjaldmi\u00f0la. Me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti lokumst vi\u00f0 inni \u00ed v\u00edtahring. Se\u00f0labankinn veigrar s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 l\u00e6kka vexti af \u00f3tta vi\u00f0, a\u00f0 \u00fe\u00e1 kippi hinir erlendu sp\u00e1kaupmenn a\u00f0 s\u00e9r hendinni me\u00f0 \u00feeim aflei\u00f0ingum, a\u00f0 gengi\u00f0 fellur, og ver\u00f0b\u00f3lga fer aftur vaxandi. Fyrirt\u00e6ki jafnt sem almenningur hafa reynt a\u00f0 losa sig \u00far \u00feessari \u00falfakreppu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e6kjast eftir erlendu l\u00e1nsf\u00e9 \u00e1 l\u00e1gum v\u00f6xtum. \u00dear me\u00f0 taka skuldarar \u00e1 sig gengis\u00e1h\u00e6ttu, en kj\u00f3sa \u00fea\u00f0 frekar af tvennu illu fremur en a\u00f0 ver\u00f0a f\u00f3rnarl\u00f6mb innlendrar \u00f3stj\u00f3rnar \u00ed gegnum ver\u00f0trygginguna.<\/p>\n<p>N\u00fa er \u00feessi lei\u00f0 ekki lengur f\u00e6r. \u00dea\u00f0 er skollin \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0leg l\u00e1nsfj\u00e1rkreppa, sem \u00e1 r\u00e6tur a\u00f0 rekja til langvarandi \u00f3stj\u00f3rnar Bush og f\u00e9laga hans \u00e1 bandar\u00edskum efnahagsm\u00e1lum. Kannski v\u00e6ri n\u00e6r a\u00f0 kalla \u00feetta hreinlega bankakreppu. Hinir n\u00fdlega einkav\u00e6ddu bankar \u00e1 \u00cdslandi eru gr\u00ed\u00f0arlega skuldsettir. \u00deeir t\u00f3ku \u00f3t\u00e6pilega l\u00e1n \u00ed g\u00f3\u00f0\u00e6rinu, erlend l\u00e1n \u00e1 l\u00e1gum v\u00f6xtum, sem \u00feeir endurl\u00e1nu\u00f0u, \u00fdmist ver\u00f0tryggt e\u00f0a \u00e1 h\u00e1um v\u00f6xtum. \u00deetta var f\u00edn gr\u00f3\u00f0amylla, me\u00f0an h\u00fan entist. En n\u00fa er komi\u00f0 a\u00f0 skuldad\u00f6gum. Hi\u00f0 sama \u00e1 vi\u00f0 um \u00fej\u00f3\u00f0arb\u00fai\u00f0, \u00fe\u00f3tt r\u00edkissj\u00f3\u00f0ur standi enn sem komi\u00f0 er tilt\u00f6lulega vel. En l\u00e1nsfj\u00e1rkreppa hefur ke\u00f0juverkandi \u00e1hrif, sem g\u00e6tir um allt samf\u00e9lagi\u00f0, m.a. bitnar h\u00fan br\u00e1tt \u00e1 tekjum r\u00edkissj\u00f3\u00f0s. Tekjurnar r\u00fdrna, en \u00fatgjalda\u00fe\u00f6rfin vex \u00ed kreppu. \u00deetta, \u00e1samt me\u00f0 skuldast\u00f6\u00f0u bankanna, r\u00fdrir l\u00edka l\u00e1nstraust r\u00edkissj\u00f3\u00f0s.<\/p>\n<p>\u00deegar bankarnir n\u00fa leita eftir endurfj\u00e1rm\u00f6gnun \u00feurfa \u00feeir a\u00f0 s\u00e6ta skuldatryggingar\u00e1lagi, sem gerir l\u00e1nt\u00f6kur anna\u00f0 hvort mj\u00f6g d\u00fdrar e\u00f0a jafnvel \u00f3vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegar. Megni\u00f0 af umsvifum bankanna eru ekki lengur \u00e1 \u00cdslandi heldur erlendis. Umsvif \u00feeirra \u00ed heild samsvara margfaldri \u00fej\u00f3\u00f0arframlei\u00f0slu \u00cdslendinga. Ef \u00edslenskt heimilisfang og \u00f3noth\u00e6fur gjaldmi\u00f0ill reynist \u00feeim vera varanlega fj\u00f6tur um f\u00f3t, vekur \u00fea\u00f0 upp spurninguna um, hvort \u00feeir taki ekki a\u00f0 lokum \u00feann kostinn a\u00f0 fl\u00fdja land me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 setja upp h\u00f6fu\u00f0st\u00f6\u00f0var \u00ed \u00fatl\u00f6ndum.<\/p>\n<p>Segja m\u00e1, a\u00f0 vi\u00f0 st\u00f6ndum \u00fev\u00ed \u00e1 nokkrum t\u00edmam\u00f3tum. Vi\u00f0 getum ekki miki\u00f0 lengur b\u00fai\u00f0 vi\u00f0 aflei\u00f0ingarnar af misheppna\u00f0ri peningam\u00e1lastj\u00f3rn Se\u00f0labankans. \u00datg\u00f6ngulei\u00f0in fyrir f\u00f3lk og fyrirt\u00e6ki, sem hinga\u00f0 til hefur veri\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed f\u00f3lgin a\u00f0 leita eftir l\u00e1nsfj\u00e1rmagni erlendis, hefur n\u00fa lokast. N\u00faverandi stj\u00f3rn Se\u00f0labankans hefur fengi\u00f0 s\u00edn t\u00e6kif\u00e6ri, en hefur ekki tekist a\u00f0 n\u00fdta \u00feau me\u00f0 \u00e1rangri. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed kominn t\u00edmi til a\u00f0 skipta um \u00e1h\u00f6fn undir Sv\u00f6rtuloftum og fela stj\u00f3rnina fagm\u00f6nnum. \u00dea\u00f0 er \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra og e\u00f0lilegast a\u00f0 koma sl\u00edkum breytingum til lei\u00f0ar me\u00f0 breytingu \u00e1 l\u00f6gum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 vitum ekki \u00e1 \u00feessari stundu, hversu langvarandi \u00feessi kreppa mun reynast. Stj\u00f3rn Bush Bandar\u00edkjaforseta, sem hratt kreppunni af sta\u00f0, er r\u00fain trausti \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um. \u00deanga\u00f0 er engra lausna a\u00f0 leita. N\u00fdr forseti tekur ekki vi\u00f0 fyrr en \u00ed byrjun n\u00e6sta \u00e1rs. Bandar\u00edkin eru venjulega stj\u00f3rnlaus undir lok valdat\u00edma fr\u00e1farandi forseta og \u00ed byrjun \u00feess n\u00e6sta. \u00deess er \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 v\u00e6nta a\u00f0 vi\u00f0reisnara\u00f0ger\u00f0ir n\u00fds forseta fari a\u00f0 hafa \u00e1hrif fyrr en l\u00ed\u00f0a tekur \u00e1 n\u00e6sta \u00e1r. \u00dea\u00f0 er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 sl\u00e1 \u00fev\u00ed f\u00f6stu, a\u00f0 margir hafa ekki bur\u00f0i til \u00feess a\u00f0 b\u00ed\u00f0a svo lengi. Auk \u00feess er \u00edslenska hagkerfi\u00f0 illa \u00ed stakk b\u00fai\u00f0 til \u00feess a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 langvarandi kreppu. Vei\u00f0iheimildir \u00ed b\u00e6\u00f0i \u00feorski og lo\u00f0nu hafa veri\u00f0 skornar ni\u00f0ur. \u00dea\u00f0 mun bitna me\u00f0 \u00e6rnum \u00feunga \u00e1 landsbygg\u00f0arhagkerfinu. Hagkerfi\u00f0 \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu er enn me\u00f0 hitas\u00f3tt eftir of\u00feensluna og skuldum vafi\u00f0. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed l\u00edti\u00f0 \u00fat \u00e1 bera.<\/p>\n<p><b>\u2013 Og hva\u00f0 er \u00fe\u00e1 til r\u00e1\u00f0a?<\/b><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru engar t\u00f6fralausnir til n\u00fa frekar en fyrri daginn. Vandinn er \u00ed \u00fev\u00ed f\u00f3lginn a\u00f0 halda ver\u00f0b\u00f3lgu \u00ed skefjum, a\u00f0 skapa skilyr\u00f0i fyrir st\u00f6\u00f0ugleika \u00ed efnahagsumhverfinu, sem getur ekki gerst til lengri t\u00edma liti\u00f0 nema me\u00f0 l\u00e6kkun vaxta. Forystum\u00f6nnum \u00ed atvinnul\u00edfinu er \u00e6 fleirum a\u00f0 ver\u00f0a \u00feetta lj\u00f3st. Vi\u00f0 getum ekki lengur b\u00fai\u00f0 vi\u00f0 \u00f3breytt \u00e1stand. \u00deess vegna v\u00e6ri skynsamlegt n\u00fa, einmitt vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, a\u00f0 taka polit\u00edska \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 stefna a\u00f0 ESB a\u00f0ild. \u00cd \u00fev\u00ed f\u00e6list mikilv\u00e6gt a\u00f0hald a\u00f0 hagstj\u00f3rninni. Allar a\u00f0ger\u00f0ir h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 yr\u00f0u vi\u00f0 \u00fea\u00f0 mi\u00f0a\u00f0ar a\u00f0 fulln\u00e6gja settum skilyr\u00f0um um inng\u00f6ngu \u00ed ESB og \u00ed framhaldi af \u00fev\u00ed a\u00f0ild a\u00f0 myntsamstarfinu og uppt\u00f6ku evru. Jafnframt \u00fearf a\u00f0 hefja undirb\u00faning a\u00f0 nau\u00f0synlegum breytingum \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1nni sem a\u00f0 \u00f3breyttu heimilar ekki a\u00f0ild \u00cdslands a\u00f0 sam\u00fej\u00f3\u00f0legu samstarfi, sem felst \u00ed ESB a\u00f0ild. Menn eiga ekki a\u00f0 reyna a\u00f0 sl\u00e1 \u00feessari lykil\u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00e1 frest me\u00f0 \u00feeim falsr\u00f6kum a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 skammt\u00edmavanda, en ESB a\u00f0ild s\u00e9 langt\u00edmam\u00e1l, sem leysi ekki vandann n\u00fa. \u00deetta eru falsr\u00f6k vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r umb\u00e6tur sem vi\u00f0 n\u00fa \u00feurfum a\u00f0 gera \u00e1 hagstj\u00f3rninni, eru n\u00e1kv\u00e6mlega hinar s\u00f6mu og \u00fearf a\u00f0 gera til a\u00f0 uppfylla skilyr\u00f0i a\u00f0ildar. P\u00f3lit\u00edsk \u00e1kv\u00f6r\u00f0un n\u00fa um ESB a\u00f0ild v\u00e6ri \u00fev\u00ed stefnumarkandi til lengri t\u00edma liti\u00f0 og g\u00e6fi stj\u00f3rnv\u00f6ldum \u00fea\u00f0 a\u00f0hald, sem nau\u00f0synlegt er til \u00feess a\u00f0 a\u00f0ger\u00f0ir til skamms t\u00edma skili \u00e1rangri til framb\u00fa\u00f0ar. \u00c9g hef sagt \u00fea\u00f0 \u00e1\u00f0ur og segi \u00fea\u00f0 enn: \u00cdslendingar munu s\u00e6kja um a\u00f0ild a\u00f0 ESB \u00feegar forystuli\u00f0 atvinnul\u00edfsins hefur endanlega gefist upp \u00e1 s\u00eds\u00edfosar pu\u00f0inu me\u00f0 gjaldmi\u00f0il, sem ekki er lengur gjaldgengur \u00ed vi\u00f0skiptum, hvorki innanlands n\u00e9 erlendis. Og \u00feegar \u00feetta forystuli\u00f0 atvinnul\u00edfsins hefur gert forystum\u00f6nnum Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins \u00fea\u00f0 lj\u00f3st, a\u00f0 \u00feeir komist ekki upp me\u00f0 \u00fea\u00f0 lengur a\u00f0 sl\u00e1 \u00feessari \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegu p\u00f3lit\u00edsku \u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00e1 frest. T\u00edminn leyfir \u00fea\u00f0 ekki miki\u00f0 lengur. A\u00f0 lokum \u00feurfa Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn og Samfylkingin a\u00f0 n\u00e1 samst\u00f6\u00f0u um \u00feetta st\u00f3ra m\u00e1l. \u00deetta er reyndar eina m\u00e1li\u00f0, sem er af \u00feeirri st\u00e6r\u00f0argr\u00e1\u00f0u, a\u00f0 \u00fea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti t\u00edmabundi\u00f0 samstarf \u00feessara flokka, sem ella \u00e6ttu a\u00f0 skiptast \u00e1 um a\u00f0 veita r\u00edkisstj\u00f3rnum forst\u00f6\u00f0u \u00ed landinu.<\/p>\n<p><b>\u2013 S\u00eds\u00edfosarpu\u00f0? Hvernig ber a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0?<\/b><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er von \u00fe\u00fa hv\u00e1ir, segir J\u00f3n Baldvin brosandi. Hann rifjar upp a\u00f0 S\u00eds\u00edfos hafi veri\u00f0 s\u00f6gupers\u00f3na \u00ed gr\u00edskum go\u00f0s\u00f6gnum. \u00d6rl\u00f6g hans voru \u00ed \u00fev\u00ed f\u00f3lgin a\u00f0 hann var d\u00e6mdur til a\u00f0 rogast upp fjallshl\u00ed\u00f0 me\u00f0 stein \u00ed fanginu. Hann var ekki fyrr kominn a\u00f0 efstu br\u00fan, fyrr en hann r\u00falla\u00f0i ni\u00f0ur hl\u00ed\u00f0ina aftur \u00e1 sama sta\u00f0 og \u00ed upphafi. Og var d\u00e6mdur til a\u00f0 endurtaka leikinn \u00ed s\u00edfellu, \u00e1n \u00e1rangurs. \u00deetta er saga hagstj\u00f3rnarinnar \u00e1 \u00cdslandi og hinnar sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u peningam\u00e1lastefnu Se\u00f0labankans \u00ed hnotskurn. Steinninn, sem S\u00eds\u00edfos er s\u00edfellt a\u00f0 rogast me\u00f0 upp brattann til \u00feess eins a\u00f0 r\u00falla ni\u00f0ur aftur, &#8211; s\u00e1 steinn heitir \u00edslenska kr\u00f3nan. \u00dea\u00f0 eru allir b\u00fanir a\u00f0 gefast upp \u00e1 \u00feessu \u00e1rangurslausa pu\u00f0i.<\/p>\n<p><b>Seg\u00f0u m\u00e9r \u00fe\u00e1 J\u00f3n Baldvin: Hversvegna eru fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra og a\u00f0rir r\u00e1\u00f0amenn innan Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins svona tregir til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um hugsanlega inng\u00f6ngu \u00ed ESB? Hver er draugurinn?<\/b><\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 er kannski ekki \u00e1 m\u00ednu f\u00e6ri a\u00f0 uppl\u00fdsa lesendur um meintan draugagang innan Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins, segir J\u00f3n Baldvin og hl\u00e6r vi\u00f0. En vi\u00f0 getum svosem reynt a\u00f0 setja okkur \u00ed f\u00f3tspor Geirs formanns, enda er \u00fea\u00f0 almennt g\u00f3\u00f0 regla ef ma\u00f0ur vill skilja \u00fe\u00e1 sem eru manni \u00f3samm\u00e1la. Hva\u00f0 hef\u00f0i hann a\u00f0 \u00f3ttast vi\u00f0 a\u00f0 skipta um k\u00fars \u00ed Evr\u00f3pum\u00e1lum? Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn hefur gert \u00fea\u00f0 \u00e1\u00f0ur. Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn var \u00ed stj\u00f3rnarandst\u00f6\u00f0u \u00e1 m\u00f3ti samningnum um Evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. N\u00fdr forma\u00f0ur, Dav\u00ed\u00f0 Oddsson, skipti um stefnu \u00ed stj\u00f3rnarmyndunarvi\u00f0r\u00e6\u00f0um vi\u00f0 mig \u00fati \u00ed Vi\u00f0ey \u00e1 tveimur d\u00f6gum. A\u00f0 v\u00edsu var \u00fea\u00f0 Davi\u00f0 \u00fatl\u00e1tal\u00edti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hin p\u00f3lit\u00edsku \u00e1t\u00f6k um samninginn voru a\u00f0 baki. \u00deessi \u00e1t\u00f6k n\u00e1\u00f0u h\u00e1marki fyrir kosningarnar \u201991. \u00deau m\u00e6ddu mest \u00e1 m\u00e9r og m\u00ednum flokki, Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokknum, me\u00f0an Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn sigldi lygnan sj\u00f3. Geir getur aftur \u00e1 m\u00f3ti ekki loka\u00f0 augunum fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 leita eftir inng\u00f6ng \u00ed ESB ver\u00f0ur ekki tekin me\u00f0 sitjandi s\u00e6ldinni. H\u00fan mun kosta har\u00f0v\u00edtug \u00e1t\u00f6k og h\u00fan mun m.a. \u00fe\u00fd\u00f0a \u00fea\u00f0 a\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn ver\u00f0ur a\u00f0 \u00feora a\u00f0 ganga \u00ed berh\u00f6gg vi\u00f0 hagsmunakl\u00edkur eins og t.d. L\u00cd\u00da og samt\u00f6k b\u00e6nda, sem hinga\u00f0 til hafa tali\u00f0 s\u00e9r tr\u00fa um a\u00f0 a\u00f0ild a\u00f0 ESB samr\u00fdmist ekki hagsmunum \u00feeirra. Anna\u00f0 hvort ver\u00f0ur hann a\u00f0 sannf\u00e6ra \u00feessa a\u00f0ila um, a\u00f0 st\u00f6\u00f0umat \u00feeirra s\u00e9 skakkt og andsta\u00f0an bygg\u00f0 \u00e1 van\u00feekkingu og misskilningi eins og raunin er, e\u00f0a a\u00f0 hann ver\u00f0ur a\u00f0 \u00feora a\u00f0 taka slaginn, \u00ed nafni \u00fej\u00f3\u00f0arhagsmuna. Til hvers eru menn \u00ed p\u00f3lit\u00edk? \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur hver og einn a\u00f0 gera upp vi\u00f0 sig. En \u00fea\u00f0 er haft fyrir satt a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0ir f\u00e1i almennt \u00fe\u00e1 forystumenn sem \u00fe\u00e6r eiga skili\u00f0.<\/p>\n<p><b>Er \u00fea\u00f0 ekki gamla gr\u00fdlan um fiskimi\u00f0in sem m\u00f6nnum hefur veri\u00f0 talin tr\u00fa um a\u00f0 vi\u00f0 munum missa fr\u00e1 okkur? \u00d3ttast \u00feeir um a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 deila \u00feeim me\u00f0 \u00f6\u00f0rum \u00fej\u00f3\u00f0um Evr\u00f3pu?<\/b><\/p>\n<p>\u201cJ\u00fa, \u00feetta er enn ein gr\u00fdlusagan. \u00c1 ensku nota menn hugtaki\u00f0 \u201cfour letter word\u201d um or\u00f0 sem \u00feykja tv\u00edr\u00e6\u00f0, d\u00f3naleg e\u00f0a ekki vi\u00f0 h\u00e6fi \u00ed opinberri umr\u00e6\u00f0u. \u00deetta er svona \u201cfour letter word\u201d: Fish. \u2018I hvert skipti sem einhver hefur viti borna umr\u00e6\u00f0u um kosti og galla ESB a\u00f0ildar, \u00fe\u00e1 endurtaka kl\u00edkubr\u00e6\u00f0ur \u00ed s\u00edfellu sitt fj\u00f6gurra stafa or\u00f0, nefnilega um fisk. Kv\u00f3taeigendurnir hafa tali\u00f0 s\u00e9r tr\u00fa um \u00fea\u00f0, a\u00f0 kommisarar \u00ed Brussel muni taka af \u00feeim kv\u00f3tana, gangi \u00cdsland \u00ed ESB, og a\u00f0 sp\u00e6nskir togarar muni flykkjast \u00e1 \u00cdslandsmi\u00f0 \u00ed samkeppni vi\u00f0 okkar \u00fatv\u00f6ldu kv\u00f3tak\u00f3nga. \u00de\u00e1 er fiskurinn \u00feeirra allt \u00ed einu or\u00f0inn fiskurinn okkar! Og \u00fea\u00f0 er \u00fej\u00f3\u00f0in, hinn l\u00f6gformlegi eigandi fiskistofna \u00ed okkar l\u00f6gs\u00f6gu, sem \u00e1 a\u00f0 tryggja \u00feeim einkar\u00e9ttinn \u00e1fram \u00ed nafni \u00fej\u00f3\u00f0arhagsmuna. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 endurtaka \u00feetta n\u00f3gu oft hefur \u00feeim tekist a\u00f0 telja f\u00f3lki tr\u00fa um a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 sta\u00f0reynd.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 breytir samt sem \u00e1\u00f0ur engu um, a\u00f0 \u00feetta er sta\u00f0leysa. Fyrir \u00feessu er ekki fluguf\u00f3tur. Og \u00e1st\u00e6\u00f0an er einf\u00f6ld: \u00dea\u00f0 eru engir fiskistofnar innan \u00edslensku l\u00f6gs\u00f6gunnar sem eru sameiginlegir me\u00f0 ESB, a\u00f0rir en \u00feeir sem \u00feegar er um sami\u00f0. \u00dea\u00f0 ber \u00fev\u00ed enga nau\u00f0syn til a\u00f0 beygja \u00cdslendinga undir reglur hinnar sameiginlegu fiskvei\u00f0istefnu ESB. \u00deetta er me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um ekkert vandam\u00e1l, sem \u00e1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 ver\u00f0i torvelt a\u00f0 leysa vi\u00f0 samningabor\u00f0i\u00f0. Anna\u00f0 eins hefur n\u00fa veri\u00f0 leyst \u00ed sl\u00edkum samningum. \u00deetta liggur \u00feegar lj\u00f3st fyrir. Fulltr\u00faar r\u00e9ttra stj\u00f3rnvalda \u00ed framkv\u00e6mdarstj\u00f3rn ESB hafa sta\u00f0fest \u00feetta mat me\u00f0 \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0um yfirl\u00fdsingum, sem taka af allan vafa. \u00dev\u00ed er svo vi\u00f0 a\u00f0 b\u00e6ta a\u00f0 allar \u00fej\u00f3\u00f0ir, sem sami\u00f0 hafa um inng\u00f6ngu \u00ed ESB hafa fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 tryggt, a\u00f0 fullt tillit s\u00e9 teki\u00f0 til \u201cbr\u00fdnna \u00fej\u00f3\u00f0arhagsmuna\u201d. Fulltr\u00faar ESB hafa enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 rengja \u00fea\u00f0, a\u00f0 forr\u00e6\u00f0i yfir fiskvei\u00f0iau\u00f0lindinni var\u00f0i br\u00fdna \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0arhagsmuni. Finnar og Sv\u00edar fengu m.a.s. vi\u00f0urkenningu \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 heimskautalandb\u00fana\u00f0ur \u00ed \u00feeirra l\u00f6ndum nyti sl\u00edkrar s\u00e9rst\u00f6\u00f0u, a\u00f0 hann nyti styrkja umfram landb\u00fana\u00f0 \u00ed b\u00fas\u00e6ldarlegri Evr\u00f3pul\u00f6ndum.<\/p>\n<p>Hitt er svo anna\u00f0 m\u00e1l, a\u00f0 vi\u00f0 sitjum uppi me\u00f0 fiskvei\u00f0istj\u00f3rnunarkerfi sem n\u00fdlega hefur fengi\u00f0 \u00feann d\u00f3m hj\u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum d\u00f3mst\u00f3li, a\u00f0 \u00fea\u00f0 brj\u00f3ti \u00ed b\u00e1ga vi\u00f0 grundvallarreglur um mannr\u00e9ttindi. \u00dea\u00f0 er laukr\u00e9tt. N\u00faverandi fiskvei\u00f0istj\u00f3rnunarkerfi stenst heldur ekki til framb\u00fa\u00f0ar tv\u00e6r grundvallarreglur \u00edslensku stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar: Annars vegar jafnr\u00e6\u00f0isregluna um, a\u00f0 allar menn skuli jafnir fyrir l\u00f6gunum. Og hins vegar grundvallarregluna um atvinnufrelsi manna. Seinast \u00feegar H\u00e6stir\u00e9ttur fjalla\u00f0i um \u00feessi \u00e1litam\u00e1l komst meirihlutinn a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u, a\u00f0 kv\u00f3takerfi\u00f0 teldist l\u00f6gm\u00e6tt sem ney\u00f0arr\u00e1\u00f0st\u00f6fun til bjargar fiskistofnunum. \u00dea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6tist m.\u00f6.o af ney\u00f0arr\u00e9tti. En \u00fea\u00f0 getur a\u00f0eins sta\u00f0ist til skamms t\u00edma. Ney\u00f0arr\u00e9ttur getur ekki til langframa viki\u00f0 til hli\u00f0ar sj\u00e1lfum grundvallarreglum sj\u00f3rnskipunarinnar. \u00deetta er hins vegar innlent \u00e1greiningsm\u00e1l, sem okkur ber a\u00f0 leysa innbyr\u00f0is og heyrir ekki undir l\u00f6gs\u00f6gu ESB. Hins vegar m\u00e1 vel vera, a\u00f0 innlendir a\u00f0ilar geti leita\u00f0 eftir \u00farskur\u00f0i Evr\u00f3pud\u00f3mst\u00f3lsins um l\u00f6gm\u00e6ti \u00feess til framb\u00fa\u00f0ar.<\/p>\n<p><b>Ertu a\u00f0 segja a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum fyrst a\u00f0 stokka upp kv\u00f3takerfi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 hefjum vi\u00f0r\u00e6\u00f0ur um a\u00f0ild a\u00f0 ESB?<\/b><\/p>\n<p>\u201cNei, kv\u00f3takerfi\u00f0 kemur spurningunni um ESB a\u00f0ild ekkert vi\u00f0. Hitt er svo anna\u00f0 m\u00e1l, a\u00f0 \u00f3breytt kv\u00f3takerfi f\u00e6r ekki sta\u00f0ist til framb\u00fa\u00f0ar. Fyrir \u00fev\u00ed eru \u00fdmsar \u00e1st\u00e6\u00f0ur, \u00fear \u00e1 me\u00f0al \u00fe\u00e6r sem \u00e9g rakti \u00e1\u00f0an um a\u00f0 kerfi\u00f0 samr\u00fdmist ekki grundvallarreglum stj\u00f3rnskipunarinnar. \u00d3keypis \u00fathlutun vei\u00f0iheimilda sem eru miki\u00f0 f\u00e9m\u00e6ti og eru \u00ed eigu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, til \u00fatvalinna einstaklinga, f\u00e6r heldur ekki sta\u00f0ist af, hvort heldur er, hagfr\u00e6\u00f0ilegum, (prakt\u00edskum) e\u00f0a si\u00f0fer\u00f0ilegum \u00e1st\u00e6\u00f0um. \u00dea\u00f0 stenst engin l\u00f6g a\u00f0 a\u00f0ilar taki s\u00e9r vald til \u00feess a\u00f0 selja e\u00f0a leigja annarra manna eigur \u00ed \u00e1bataskyni og \u00fea\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 eigandinn f\u00e1i nokku\u00f0 fyrir sinn sn\u00fa\u00f0. Okkur jafna\u00f0arm\u00f6nnum t\u00f3kst \u00e1 s\u00ednum t\u00edma a\u00f0 for\u00f0a \u00fev\u00ed slysi, a\u00f0 kv\u00f3tarnir yr\u00f0u me\u00f0 l\u00f6gformlegum h\u00e6tti vi\u00f0urkenndir sem eign vi\u00f0takenda. Vi\u00f0 komum \u00e1kv\u00e6\u00f0inu um \u00fej\u00f3\u00f0areign \u00e1 au\u00f0lindum innan l\u00f6gs\u00f6gunnar inn \u00ed 1. grein fiskvei\u00f0istj\u00f3rnunarlaganna. Vi\u00f0 \u00e1r\u00e9ttu\u00f0um \u00fea\u00f0 s\u00e9rstaklega s\u00ed\u00f0ar, \u00feegar framsali\u00f0 var leyft \u00ed nafni nau\u00f0synlegrar ar\u00f0semi, a\u00f0 \u00fathlutun vei\u00f0iheimilda b\u00e6ri a\u00f0 sko\u00f0a sem n\u00fdtingarr\u00e9tt en ekki l\u00f6gvarinn eignarr\u00e9tt og a\u00f0 breytingar \u00e1 kerfinu g\u00e6tu undir engum kringumst\u00e6\u00f0um r\u00e9ttl\u00e6tt ska\u00f0ab\u00f3takr\u00f6fur \u00e1 hendur r\u00edkinu.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00feessu t\u00f6ldum vi\u00f0 okkur hafa tryggt a\u00f0 meirihluti \u00e1 Al\u00feingi g\u00e6ti hven\u00e6r sem v\u00e6ri afturkalla\u00f0 vei\u00f0iheimildirnar, bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e6r upp \u00e1 marka\u00f0i e\u00f0a me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti tryggt a\u00f0 eigandinn, \u00fej\u00f3\u00f0in, fengi r\u00e9ttl\u00e1tan ar\u00f0 af \u00feessari eign sinni. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur hefur \u00feetta mikilv\u00e6ga m\u00e1l aldrei veri\u00f0 leitt til lykta e\u00f0a til r\u00f6kr\u00e9ttrar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u. Kv\u00f3takerfi\u00f0 hefur s\u00edna kosti og s\u00edna galla. \u00dev\u00ed m\u00e1 breyta \u00e1 \u00fdmsa lund \u00ed lj\u00f3si reynslunnar enda hefur \u00fea\u00f0 ekki skila\u00f0 \u00feeim \u00e1rangri, sem v\u00e6nst var, fyrir uppbyggingu fiskistofna. En eitt er alveg v\u00edst: \u00d3keypis \u00fathlutun ver\u00f0m\u00e6tra almannaeigna til einkaa\u00f0ila, \u00e1n \u00feess a\u00f0 greitt s\u00e9 fyrir n\u00fdtingarr\u00e9ttinn, f\u00e6r ekki sta\u00f0ist til framb\u00fa\u00f0ar. Au\u00f0vita\u00f0 er viss h\u00e6tta \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 me\u00f0h\u00f6ndlun kv\u00f3taeigenda \u00e1 vei\u00f0iheimildum s\u00ednum, sem birtist m.a. \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 bankakerfi\u00f0 sam\u00feykkir \u00f3n\u00fdttar vei\u00f0iheimildir sem ve\u00f0 fyrir skuldum e\u00f0a a\u00f0 kv\u00f3taeign, s\u00e9 skipt \u00e1 milli hj\u00f3na vi\u00f0 hj\u00faskaparslit, e\u00f0a a\u00f0 \u00feeir eru l\u00e1tnir ganga a\u00f0 erf\u00f0um milli kynsl\u00f3\u00f0a, lei\u00f0i til \u00feess sm\u00e1m saman skv. hef\u00f0ar\u00e9tti, a\u00f0 \u00feessi takmarka\u00f0i n\u00fdtingarr\u00e9ttur ver\u00f0i vi\u00f0urkenndur sem l\u00f6gvarinn eignarr\u00e9ttur. Til \u00feess a\u00f0 b\u00e6gja \u00feeirri h\u00e6ttu fr\u00e1 \u00fearf a\u00f0 koma \u00e1kv\u00e6\u00f0i um sameign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00e1 au\u00f0lindum s\u00ednum inn \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1na. \u00dear a\u00f0 auki ver\u00f0ur innan t\u00ed\u00f0ar a\u00f0 l\u00e1ta \u00e1 \u00fea\u00f0 reyna fyrir d\u00f3msst\u00f3lum, hversu lengi \u00feetta \u00f3r\u00e9ttl\u00e1ta kerfi geti sta\u00f0ist \u00ed skj\u00f3li t\u00edmabundins ney\u00f0arr\u00e9ttar.<\/p>\n<p>A\u00f0spur\u00f0ur um hver ver\u00f0i \u00fe\u00e1 r\u00e9ttur \u00feeirra sem hafi keypt kv\u00f3ta d\u00fdrum d\u00f3mum, svarar J\u00f3n Baldvin a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i bara a\u00f0 spyrja sj\u00e1lfa sig hvort \u00feeir hafi ekki borga\u00f0 heldur miki\u00f0 fyrir n\u00fdtingarr\u00e9ttinn \u00fev\u00ed \u00feeir eignu\u00f0ust \u00feetta aldrei. \u00dej\u00f3\u00f0in \u00e1 fiskistofnana\u201d svarar J\u00f3n Baldvin stutt og laggott.<\/p>\n<p><b>Ver\u00f0a svo allir hamingjusamir vi\u00f0 inng\u00f6ngu \u00ed ESB, e\u00f0a hva\u00f0?<\/b><\/p>\n<p>\u201c\u00dev\u00ed fer \u00e1rei\u00f0anlega v\u00ed\u00f0s fjarri enda vands\u00e9\u00f0 hvernig auka megi hamingju \u00cdslendinga sem l\u00fdsa sj\u00e1lfum s\u00e9r \u00fer\u00e1faldlega \u00ed sko\u00f0anak\u00f6nnunum sem hamingjustu \u00fej\u00f3\u00f0 \u00ed heimi. \u00c9g veit ekki til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 nokkku\u00f0 um hamingjuna \u00ed R\u00f3mars\u00e1ttm\u00e1lanum. Enda skulum vi\u00f0 for\u00f0ast \u00ed lengstu l\u00f6g a\u00f0 \u00fdkja kosti a\u00f0ildar umfram \u00fea\u00f0 sem \u00e1lykta m\u00e1 um af sta\u00f0reyndum e\u00f0a af reynslu annarra \u00fej\u00f3\u00f0a. Sj\u00e1lfur er \u00e9g sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 \u00fea\u00f0 er unnt a\u00f0 tryggja b\u00e6ttan hag \u00edslenskra b\u00e6nda innan ESB. Reynsla annarra \u00fej\u00f3\u00f0a s\u00fdnir l\u00edka a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 me\u00f0 van\u00fer\u00f3a\u00f0 samg\u00f6ngukerfi eins og vi\u00f0 erum megi b\u00faast vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 verulega fj\u00e1rmuni til a\u00f0 byggja upp innvi\u00f0i samf\u00e9lagsins eins og samg\u00f6ngukerfi \u00f3neitanlega er. Hi\u00f0 fr\u00e1b\u00e6ra hra\u00f0brautakerfi Sp\u00e1nar, sem margir \u00cdslendingar hafa kynnst af eigin reynd, er l\u00fdsandi d\u00e6mi um \u00feetta. Sp\u00e1nn var reyndar aftur \u00ed gr\u00e1rri forneskju \u00e1 flestum svi\u00f0um eftir \u00e1ratuga \u00f3stj\u00f3rn fasistans Franco en hefur teki\u00f0 st\u00f3rst\u00edgum breytingum \u00ed framfara\u00e1tt eftir inng\u00f6ngu \u00ed ESB. Eitt af \u00fev\u00ed sem \u00cdslendingar \u00e6ttu a\u00f0 gera n\u00fa \u00feegar og ekki sl\u00e1 \u00e1 frest er a\u00f0 afla haldg\u00f3\u00f0ra uppl\u00fdsinga af reynslu \u00feeirra \u00fej\u00f3\u00f0a sem gengi\u00f0 hafa \u00ed ESB \u00e1 seinustu \u00e1ratugum. \u00dear getum vi\u00f0 l\u00e6rt margt og miki\u00f0 af reynslu annarra Nor\u00f0urlanda\u00fej\u00f3\u00f0a, ekki s\u00edst Finna, sem telja sig hafa styrkt st\u00f6\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0ar sinna verulega me\u00f0 a\u00f0ild a\u00f0 ESB. \u00deeir m\u00e6la \u00fea\u00f0 ekki bara \u00e1 hagvaxtarm\u00e6likvar\u00f0a, me\u00f0 sterkari st\u00f6\u00f0u \u00e1 erlendum m\u00f6rku\u00f0um, l\u00e6kkun ver\u00f0lags og auknum st\u00f6\u00f0ugleika \u00ed krafti evrunnar heldur einnig me\u00f0 auknu \u00f6ryggi \u00ed samskiptum vi\u00f0 hi\u00f0 risavaxna grannr\u00edki \u00ed austri sem oft hefur sett \u00feeim har\u00f0a kosti. Ef til vill g\u00e6tum vi\u00f0 l\u00e6rt hva\u00f0 mest a\u00f0 reynslu \u00cdra sem eru tr\u00falega besta d\u00e6mi\u00f0 um gr\u00ed\u00f0arlega j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif ESB a\u00f0ildar fyrir sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur var me\u00f0al f\u00e1t\u00e6kustu \u00fej\u00f3\u00f0a Evr\u00f3pu en er n\u00fana \u00ed fremstu r\u00f6\u00f0 \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem vi\u00f0 getum sagt me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri samvisku um \u00e1hrif ESB a\u00f0ildar \u00e1 almannahag, ekki s\u00edst \u00ed lj\u00f3si reynslu annarra \u00fej\u00f3\u00f0a, er eftirfarandi: Vi\u00f0 munum losna vi\u00f0 \u00f3vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegar og \u00f3fyrirsj\u00e1anlegar sveiflur gjaldmi\u00f0ils, sem reynslan s\u00fdnir a\u00f0 ekki er lengur gjaldgengur \u00ed vi\u00f0skiptum, hvorki innanlands n\u00e9 erlendis. Vi\u00f0 getum gert okkur vonir um verulega l\u00e6kka\u00f0 v\u00f6ruver\u00f0 og aukinn ver\u00f0st\u00f6\u00f0uleika. Vi\u00f0 vitum me\u00f0 vissu a\u00f0 vextir \u00e1 l\u00e1num munu l\u00e6kka verulega fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem n\u00fa er. Vi\u00f0 vitum me\u00f0 vissu a\u00f0 vi\u00f0skiptakostna\u00f0ur mun l\u00e6kka verulega og a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun stu\u00f0la a\u00f0 meiri hagvexti en ella v\u00e6ri. Og vi\u00f0 getum gert okkur vonir um a\u00f0 erlendar langt\u00edmafj\u00e1rfestingar geti aukist \u00ed skj\u00f3li aukins st\u00f6\u00f0ugleika og trausts gjaldmi\u00f0ils.<\/p>\n<p>Svo er anna\u00f0: S\u00ed\u00f0astli\u00f0na h\u00e1lfa \u00f6ld hafa Bandar\u00edkjamenn annast varnir \u00cdslands \u00ed verkt\u00f6ku. Bandar\u00edkin eru herveldi \u00e1 \u00fat\u00feensluskei\u00f0i. \u00deeir eru kerfisbundi\u00f0 a\u00f0 byggja upp herst\u00f6\u00f0vanet sem hefur a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 tryggja \u00feeim forr\u00e6\u00f0i yfir au\u00f0lindum annarra \u00fej\u00f3\u00f0a og a\u00f0 umkringja K\u00edna sem \u00feeir hafa skilgreint sem framt\u00ed\u00f0ar\u00f3vin. \u00deessi \u00e1rasargjarna \u00fat\u00feenslustefna mun ver\u00f0a kveiki\u00fer\u00e1\u00f0urinn \u00ed herna\u00f0ar\u00e1t\u00f6kum v\u00edtt og breitt um ver\u00f6ldina \u00e1 n\u00e6stu \u00e1ratugum. \u00dea\u00f0 er h\u00e6ttulegt fyrir f\u00e1menna og herlausa \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed aftan\u00edossi \u00feessa herveldis. \u00dea\u00f0 samr\u00fdmist ekki okkar \u00fej\u00f3\u00f0arhagsmunum sem byggja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0leg deilum\u00e1l s\u00e9u leyst \u00e1 grundvelli laga og r\u00e9ttar. Evr\u00f3pusambandi\u00f0, aftur \u00e1 m\u00f3ti, er fri\u00f0arafl \u00ed heiminum.<\/p>\n<p>\u00d6ll starfsemi ESB byggir \u00e1 \u00feeirri grunnforsendu a\u00f0 leysa deilum\u00e1l milli \u00fej\u00f3\u00f0a me\u00f0 samningum og \u00e1 grundvelli laga og r\u00e9ttar. \u00deess vegna s\u00fdnir reynslan a\u00f0 sm\u00e1\u00fej\u00f3\u00f0ir sj\u00e1 s\u00ednum hag vel borgi\u00f0 me\u00f0 samstarfi innan ESB. Vi\u00f0 eigum heima \u00ed sl\u00edku samstarfi. ESB a\u00f0ild okkar er \u00fev\u00ed l\u00edka \u00f6ryggism\u00e1l r\u00e9tt eins og hj\u00e1 Finnum e\u00f0a t.d. Eystrasalts\u00fej\u00f3\u00f0um. ESB a\u00f0ild \u00cdslands er \u00fev\u00ed l\u00edka lei\u00f0 til \u00feess a\u00f0 losa \u00fej\u00f3\u00f0ina \u00far banv\u00e6nu fa\u00f0mlagi Amer\u00edkana. ESB mun fyrr e\u00f0a s\u00ed\u00f0ar \u00ed framt\u00ed\u00f0inni annast sameiginlegar varnir og \u00f6ryggi a\u00f0ildar\u00fej\u00f3\u00f0a. \u00dea\u00f0 \u00f6ryggis- og varnarbandalag mun a\u00f0 lokum leysa NAT\u00d3 af h\u00f3lmi. \u00dea\u00f0 samr\u00fdmist nefnilega ekki \u00fej\u00f3\u00f0arhagsmunum Evr\u00f3pur\u00edkja til framb\u00fa\u00f0ar a\u00f0 vera \u00e1hrifalausir undirverktakar Amer\u00edkana \u00ed ofbeldisverkum \u00feeirra v\u00edtt og breitt um heiminn eins og t.d. n\u00fa \u00ed Afganistan og \u00cdrak. \u2013 \u00deetta er \u00ed st\u00f3rum dr\u00e1ttum \u00fea\u00f0 sem reynsla annarra \u00fej\u00f3\u00f0a kennir okkur um \u00fea\u00f0 sem g\u00e6ti \u00e1unnist vi\u00f0 inng\u00f6ngu \u00ed ESB.<\/p>\n<p>En hver er f\u00f3rnarkostna\u00f0urinn? Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 borga kl\u00fabbgjaldi\u00f0 sem ver\u00f0ur \u00e1rei\u00f0anlega h\u00e6rra en \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 n\u00fa rei\u00f0um fram vi\u00f0 rekstur EFTA og \u00ed \u00fer\u00f3unarsj\u00f3\u00f0 ESB. \u00deeim fer n\u00fa \u00f6rt f\u00e6kkandi sem flokka missi sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0rar peningastefnu, afn\u00e1m kr\u00f3nunnar og flutning Se\u00f0labankans til Frankfurt til f\u00f3rnarkostna\u00f0ar. Er einhverju a\u00f0 f\u00f3rna? Sumir myndu jafnvel ganga svo langt a\u00f0 segja, a\u00f0 fari\u00f0 hafi f\u00e9 betra. \u00c9g tek ekki undir \u00fea\u00f0. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur m\u00e1 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 traustur gjaldmi\u00f0ill og a\u00f0ild a\u00f0 sameiginlegri peningastefnu ESB teljist fremur til kosta vi\u00f0 ESB a\u00f0ild en galla.<\/p>\n<p><b>-Gabriel Stein hagfr\u00e6\u00f0ingur sag\u00f0i \u00ed samtali vi\u00f0 Vi\u00f0skiptabla\u00f0i\u00f0 fyrir sk\u00f6mmu a\u00f0 hann yr\u00f0i ekki hissa \u00e1 a\u00f0 Egill Skallagr\u00edmsson r\u00edsi upp\u00far gr\u00f6f sinn til \u00feess eins a\u00f0 h\u00f6ggva \u00ed hausinn \u00e1 Evr\u00f3pusinnum. Hann segir einnig a\u00f0 menn muni ekki vir\u00f0a undan\u00fe\u00e1gu \u00cdslendinga hva\u00f0 var\u00f0ar fiskvei\u00f0il\u00f6gs\u00f6gu okkar. Hva\u00f0 segir \u00fe\u00fa um \u00feessi umm\u00e6li?<\/b><\/p>\n<p>\u201e\u00dev\u00ed er flj\u00f3tsvara\u00f0. \u00deessum andst\u00e6\u00f0ingi Evr\u00f3pusambandsins og spunameistara ver\u00f0ur ekki k\u00e1pan \u00far \u00fev\u00ed kl\u00e6\u00f0inu a\u00f0 vekja Egil Skallagr\u00edmsson upp fr\u00e1 dau\u00f0um, \u00fear sem hann hefur hv\u00edlt \u00ed fri\u00f0i \u00ed gr\u00f6f sinni \u00ed a.m.k. 1100 \u00e1r, og virkja afturg\u00f6nguna, sem m\u00e1lali\u00f0a gegn Evr\u00f3pu. Egill var sem kunnugt er fyrsti \u00fatr\u00e1sarv\u00edkingurinn sem hasla\u00f0i s\u00e9r v\u00f6ll v\u00ed\u00f0a um l\u00f6nd sem \u00f6ll eru gengin \u00ed ESB fyrir utan Noreg, sem hann herja\u00f0i \u00e1 me\u00f0 har\u00f0fylgi. \u00dea\u00f0 er n\u00e1kv\u00e6mlega ekkert mark takandi \u00e1 \u00feessum umm\u00e6lum enda liggja fyrir sta\u00f0festar yfirl\u00fdsingar fr\u00e1 r\u00e9ttum a\u00f0ilum innan ESB um hi\u00f0 gagnst\u00e6\u00f0a a\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar fiskvei\u00f0il\u00f6gs\u00f6guna. \u00c9g eyddi fj\u00f3rum \u00e1rum \u00e6vi minnar \u00ed samninga vi\u00f0 ESB. \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 efast um a\u00f0 \u00feessi ma\u00f0ur byggi \u00e1 meiri reynslu en \u00e9g \u00ed \u00feeim efnum.<\/p>\n<p><b>-Hva\u00f0 tekur \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00ednu mati langan t\u00edma a\u00f0 semja vi\u00f0 ESB um inng\u00f6ngu \u00cdslands?<\/b><\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 \u00fearf \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekki a\u00f0 taka svo langan t\u00edma. \u00c1st\u00e6\u00f0an er s\u00fa a\u00f0 vi\u00f0 erum n\u00fa \u00feegar me\u00f0 a\u00f0ild okkar a\u00f0 Evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0inu eins konar aukaa\u00f0ilar a\u00f0 ESB. \u00c9g hef or\u00f0a\u00f0 \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um \u00ed ESB a\u00f0 um \u00fea\u00f0 bil tveimur \u00feri\u00f0ju (2\/3) hlutum. Megni\u00f0 af l\u00f6ggj\u00f6f okkar \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um t.d. a\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar vi\u00f0skipti og umhverfism\u00e1l kemur n\u00fa \u00feegar fr\u00e1 ESB. Vi\u00f0 erum fullgildir a\u00f0ilar a\u00f0 innri marka\u00f0i ESB, hinu svokalla\u00f0a fj\u00f3rfrelsi, e\u00f0a \u00f6llu sem l\u00edtur a\u00f0 v\u00f6ruvi\u00f0skiptum, \u00fej\u00f3nustu, fj\u00e1rm\u00e1la\u00fej\u00f3nustu og vinnumarka\u00f0i fyrir utan margv\u00edslega samninga og tengslanet \u00e1 svi\u00f0i v\u00edsindaranns\u00f3kna, sk\u00f3lam\u00e1la og \u00ed menningarsamstarfi. \u00dea\u00f0 sem mun taka meiri t\u00edma l\u00fdtur fyrst og fremst a\u00f0 \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 gera sj\u00e1lf \u00e1 heimavettvangi til a\u00f0 undirb\u00faa a\u00f0ildina. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 vinna a\u00f0 \u00fev\u00ed kerfisbundi\u00f0 fr\u00e1 og me\u00f0 deginum \u00ed dag a\u00f0 uppfylla \u00feau skilyr\u00f0i sem sett eru fyrir inng\u00f6ngunni. \u00dea\u00f0 er \u00e6ri\u00f0 verkefni og mun taka t\u00edmann sinn en allt \u00fea\u00f0 starf t.d. a\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar hagstj\u00f3rnina ver\u00f0ur mun markvissara og \u00e1rangursr\u00edkara, ef hin p\u00f3lit\u00edska \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 stefna a\u00f0 a\u00f0ild liggur \u00feegar fyrir. \u00dear me\u00f0 vitum vi\u00f0 hverju vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 breyta \u00ed eigin ranni og h\u00f6fum s\u00e9rstaka hvatningu til a\u00f0 fylgja \u00feeim verkefnum eftir innan settra t\u00edmamarka. \u00dear a\u00f0 auki mun \u00fea\u00f0 taka t\u00edmann sinn a\u00f0 n\u00e1 fram tilskildum breytingum \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1 l\u00fd\u00f0veldisins sem nau\u00f0synlegar eru til a\u00f0 heimila ESB a\u00f0ild. \u00deetta er st\u00e6rsta verkefni \u00edslenskra stj\u00f3rnm\u00e1la n\u00fa og \u00ed fyrirsj\u00e1anlegri framt\u00ed\u00f0. \u00dea\u00f0 er ekki lengur eftir neinu a\u00f0 b\u00ed\u00f0a.<\/p>\n<p><b>-N\u00fa hefur heyrst a\u00f0 \u00fei\u00f0 Brynd\u00eds hafi\u00f0 keypt h\u00fas \u00e1 Sp\u00e1ni: Eru\u00f0 \u00fei\u00f0 pers\u00f3nulega gengin \u00ed ESB?<\/b><\/p>\n<p>\u00cd fyrsta sinn l\u00e6tur svari\u00f0 eitthva\u00f0 \u00e1 s\u00e9r standa. Hann dreypir \u00e1 k\u00f6ldu kaffinu og svarar s\u00ed\u00f0an eftir r\u00e6kilega yfirvegun: \u00c9g er \u00ed f\u00f6\u00f0ur\u00e6tt upprunninn af nor\u00f0ur Str\u00f6ndum. \u00dear hafa menn \u00fea\u00f0 fyrir satt a\u00f0 fiskimenn fr\u00e1 Baskah\u00e9ru\u00f0um Sp\u00e1nar hafi haft \u00fear nokkra vi\u00f0legu og skotist me\u00f0 n\u00e1nar \u00f3\u00fatsk\u00fdr\u00f0um h\u00e6tti inn \u00ed \u00e6ttir m\u00ednar. Eins og um fleiri Vestfir\u00f0inga m\u00e1 \u00fev\u00ed segja a\u00f0 nokku\u00f0 s\u00e9 \u00e1 huldu um hreinr\u00e6ktun stofnsins. Alla vega er \u00e9g viss um \u00fea\u00f0 a\u00f0 Hannibal og Finnbogi R\u00fatur br\u00f3\u00f0ir hans voru l\u00edkari B\u00f6skum en M\u00f6rlandanum b\u00e6\u00f0i a\u00f0 upplagi og \u00ed \u00fatliti. \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki eitthva\u00f0 af \u00feessu Baskabl\u00f3\u00f0i \u00ed m\u00e9r l\u00edka? Og svo er anna\u00f0: \u00dear sem \u00fe\u00fa ekur eftir hra\u00f0brautum Andal\u00fas\u00edu, sem allar eru bygg\u00f0ar fyrir styrki fr\u00e1 ESB, kemur\u00f0u a\u00f0 skilti sem v\u00edsar \u00e1 kastala\u00feorpi\u00f0 \u00ed Salobrena \u00fear sem fornt varnarvirki M\u00e1ra gn\u00e6fir vi\u00f0 himinn efst \u00e1 kletti \u00fat vi\u00f0 str\u00f6ndina. N\u00e1nari athugun leiddi \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 elsti hluti virkisins er fr\u00e1 t\u00ed\u00f0 P\u00fanverja, me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um Kar\u00feag\u00f3manna, sem r\u00edktu yfir st\u00f3rum hluta P\u00fdreneaskagans h\u00e9r \u00e1 \u00f6ldum \u00e1\u00f0ur.. Varnarvirki\u00f0 \u00e1 klettinum, sem n\u00fa er or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 minjasafni, var me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um hluti af hervirkjum forf\u00f6\u00f0ur m\u00edns Hannibals \u00ed str\u00ed\u00f0i hans gegn R\u00f3m \u00e1 \u00feri\u00f0ju \u00f6ld fyrir Kristbur\u00f0. \u00dea\u00f0 er svona 10 m\u00edn\u00fatna gangur fr\u00e1 h\u00fasinu hennar Brynd\u00edsar a\u00f0 virkisveggjum Hannibals. \u00c6tli \u00fea\u00f0 megi ekki leggja \u00fat fr\u00e1 \u00feessari s\u00f6gu eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 bara kominn heim til m\u00edn?<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 hefur ekki fari\u00f0 fram hj\u00e1 \u00feeim sem \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 fylgjast eitthva\u00f0 me\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1laumr\u00e6\u00f0unni h\u00e9r landi a\u00f0 hvarvetna er r\u00e6tt um Evr\u00f3pum\u00e1l. \u00dear sem \u00fer\u00edr e\u00f0a fleiri koma saman ber Evr\u00f3pusambandi\u00f0 \u00e1 g\u00f3ma og s\u00fdnist sitt hverjum. <\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,9],"tags":[],"class_list":["post-1114","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allar_greinar","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1114","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1114"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1114\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2932,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1114\/revisions\/2932"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1114"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1114"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1114"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}